Það var svo dásamlega fallegt veður í dag að við vorum úti næstum allan daginn. Danni og Óli fóru með snjóþotuna í Jólasveinabrekkuna (sem er hóll fyrir ofan lundahverfið) fyrir hádegi og renndu sér og eftir hádegi þegar Emil var að fara í lúrinn fóru mamman og Danni upp í Hlíðarfjall, leigðu sér skíði og renndu sér í eina og hálfa klst. Barnasvæðið er svo skemmtilegt, þar er lyfta sem heitir töfrateppið og er bara færiband á jörðinni og Danni komst alveg sjálfur í gegnum það og vildi svo bara bruna sjálfur niður :) Við byrjuðum á að renna okkur saman en svo kom sjálfstæðisbaráttan upp í honum og hann vildi bara fara einn upp og ég átti að bíða niðri.. haha.. neinei, en mamman var farin að sleppa honum í síðustu ferðunum og hann vildi bara bruna beint niður.. Hann gerði það nokkrum sinnum og mamman renndi sér á eftir honum og öskraði: SESTU NIÐUR!!.. en hver heldurðu að vilji setjast niður þegar maður er á fullri ferð og rosalegt fjör! je right!
Það var nú annars merkilegt hvað hann stóð í lappirnar í þessari fyrstu skíðaferð :)
Núna langar okkur mest að kaupa okkur skíði svo ef það er einhver lesandi sem lumar á notuðum græjum (barna eða jafnvel fullorðins) inni í geymslu þá má endilega hafa samband. :) Í þessari krepputíð er náttúrulega búið að hreinsa upp notaða lagerinn í Skíðaþjónustunni, en við ætlum samt að tékka þar í vikunni.
Svo skilst mér að það eigi að viðra vel í Dalvíkurfjalli um næstu helgi :)


Skilaboð
...á skíðum skemmti ég mér tralallalaaaaa... já alltaf gaman á skíðum. Gömlu skíðin mín eru í bílskúrnum heima og þíð megið fá þau lánuð.. held að þau eigi eftir að renna vel niður brekkurnar þegar búið er að bræða neðan í þau. spurning hvort við skellum okkur ekki bara öll í fjallið á laugardaginn ef vel viðrar?? hvernig væri það?!
06.02.09 02:07