Það hlaut að vera! Danni er ekki búinn að vera neitt eðlilegur í nokkra daga, slappur og sljór og lítið getað sofið. Þegar við sóttum hann í leikskólann í dag var ástæðan augljós: hlaupabóla. Hann er kominn með nokkrar bólur í framan og smá á búkinn en ætli morgundagurinn og helgin fari ekki í hjúkrun. Best að byrja á því að klippa niður neglurnar...
Emil er ekki kominn með neinar bólur og vonandi fær hann ekkert núna, því það er ekki víst að hann myndi ónæmi fyrir 6 mán og myndi því ekkert "græða á því" að fá hlaupabóluna núna, þe fengi hana sennilega aftur. Við þurfum að hringja í hjúkrunarfræðinginn í ungbarnaeftirlitinu á morgun til að vera viss um að þetta sé ekki skaðlegt. Auk þess erum við að setja aðra umferð af daktacort á kinnarnar á honum út af útbrotunum (hringdi í hana á þriðjudag út af því) og það má ekki nota það á húðina ef það er veirusýking eins og hlaupabóla í húðinni.
Annars erum við búin að skrá okkur í ýmislegt skemmtilegt. Ungbarnasundið byrjar í næstu viku og það verða fjölskylduferðir 2x í viku og svo er stóri strákurinn skráður í fimleika hjá fimleikafélaginu sem byrja um helgina en hann er löglega afsakaður til að byrja með. Svo fóru feðgar á skautaæfingu til prufu í gær sem voru mjög skemmtilegir. Danni er allavega búinn að prófa dimmalimm og eltingaleik á skautum :)
Pabbinn er svo líka kominn í "átak" hjá Átaki, fer í hádeginu að hlaupa og á körfuboltaæfingar í hverri viku, svo skilst mér að það sé komin armbeyjukeppnistemmning á vinnustaðnum. Úff. Mamman er bara heima í át-taki ;) heh
Bestu kveðjur frá veikindavígstöðvunum.


Skilaboð
ég skal senda góða hjúkkustrauma á heimilið næstu daga:) kveðja úr borginni
09.01.09 14:07
Jeddúdamía Dagný mín... Baddý sýndi mér mynd af Danna í kvöld og þá á greinilega að ráðast á hann af fullri hörku! Unnur Birta er líka komin með þessar svokölluðu Grenivíkurbólur hehe
Eeeenn það er ágætt að fá það núna en vera ekki að drepast úr hræðslu eins og Þorsteinn Ingi ofurtöffari, enda man enginn hvort hann var búinn að fá hlaupabólu og drengurinn svitnar af bólu-áhyggjum hehehehe
Knús á ykkur!
11.01.09 00:46