Seinnipartinn á sunnudaginn þann 14. des var Emil litli skírður, í Dalvíkurkirkju. Hann var nývaknaður og fékk sér smá sopa áður en við fórum af stað svo hann var mjög sprækur og hress í kirkjunni. Horfði sperrtur yfir allt fólkið sitt sem beið eftir að heyra mömmuna segja nafnið hans. Sem er Emil Ragnar Reykjalín. Ragnar er í höfuðið á afanum í móðurættina. Pabbinn spilaði svo undir söng á gítarinn sinn og Ragnar afi og Gauja amma fóru með heilræðavísur. Þetta var allt mjög látlaust og fallegt. Eftir skírnina fórum við heim í Sunnubrautina til Gauju ömmu og Ragga afa og buðum gestum að borða, fisk frá Ektafiski og kökur, m.a. sem mamman bakaði. Hulda frænka gerði svo óaðfinnanlega kransaköku. Þetta var frábær dagur og vel lukkaður, og allir ánægðir með nafnið vonum við. Sá stutti er allavega hæstánægður.
Á föstudaginn voru haldin litlujól í leikskólanum hans Danna. Það var dansað í kringum jólatré og Jólasveinninn kom að sjálfsögðu í heimsókn. Danni er búinn að vera svolítið smeykur við allt þetta jólasveinadæmi enda er hann eiginlega að upplifa það í fyrsta sinn. Þetta eru nú líka frekar furðulegir og óútreiknanlegir karlar. Á morgun ætlar öll deildin hans að fara með rútu í Jólahúsið í Eyjafjarðasveit, og það verða einhverjir jólasveinar þar líka. Mjög gaman, vonandi fáum við að sjá myndir á myndasíðu deildarinnar í vikunni.
En það eru nokkrar myndir komnar inn á myndasíðuna okkar, bæði frá litlu jólunum og líka úr skírninni.


Skilaboð
Til hamingju með fallega nafnið þitt sæti frændi. Ég er nú alveg viss um að Raggi afi og Raggi frændi séu ánægðir með þetta:) sjáumst eftir viku:) kv baddý og gunnar smári
16.12.08 22:26