Ókei, hún móðir mín gat ekki horft á leikinn í hádeginu í dag, gægðist af og til niður á sjónvarpið en það virtist alltaf eins og Spánverjar næðu að skora þegar hún horfði á.
Í staðinn notaði hún tækifærið þegar enginn Íslendingur var á netinu og uppfærði síðuna mína, eins og þið sjáið. Kannski eru nokkrir hnökrar einhversstaðar, þið megið endilega láta hana vita af því ef þið rekist á einhverja galla.



Skilaboð
til hamingju með nýju síðuna þína hún er mjög flott, gaman að geta sett inn skilaboð við færslurnar:)
En mamma þín var ekki sú eina sem var í erfiðleikum með að horfa á leikinn... frænka þín var á alveg sama máli, í hvert skipti sem ég settist fyrir framan sjónvarpið þá skoruðu spánverjar og því stóð ég jafn óðum upp aftur. Mér skilst að helga amma hafi ekki heldur getað horft en hún hlustaði á meðan hún þreif eldhúsið af kappi:)
sjáumst eftir helgi, þá kannski kemur litli bróðir þinn í heiminn:)
24.08.08 18:29