« | Aftur á forsíðuna | »

29. nóvember 2007

Einhverntíman fyrir löngu var Danni að henda einhverju eða sparka í vegginn og þá sagði ég honum að hann mætti það ekki, því kallinn sem á húsið vildi ekki að það myndi skemmast. Síðan þá hefur hann spurt öðru hverju út í það hver eigi þetta hús...


Danni: Hver á þetta hús?
Mamma: Það er kall niðri í Horsens og hann leyfir okkur að vera hérna eins lengi og við viljum, en svo kaupum við okkur kannski hús þegar við flytjum til Íslands.
Danni: með garði?.. og hliði!..
Mamma: jájá
Danni: Ég ætla að búa í Barcelona!


Alltaf endar þetta á þessu.. hann ætlar að búa í Barcelona, greinilega svona rosalega heillaður ennþá af borginni síðan í sumar!

-

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2008 - Mamma gerði þetta | Knúið af Movable Type 3.34