« | Aftur á forsíðuna | »

24. nóvember 2007

Þegar við vorum í Flensburg um daginn sá ég nokkra pönkara og einn var með rosalega flottan hanakamb, rauðan og grænan og rakað hárið á hliðunum, þegar ég sá hann æpti ég af kátínu: HANI !! Mamma mátti hafa sig alla við að grípa hendurnar mínar áður en ég benti á hann, því það hefði örugglega ekki fallið í góðan jarðveg.
Síðan þá hefur verið mjög vinsælt hjá mér að moka hárinu á mér (eða mömmu) í miðjuna á kollinum og góla; "gguggulugúúú!!"

-

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2008 - Mamma gerði þetta | Knúið af Movable Type 3.34