« | Aftur á forsíðuna | »

21. október 2007

***Pabbi minn á afmæli í dag ***

Hann er sko orðinn þrítugur (það eru mörg blikk með puttunum!) Ég vakti hann í morgun með pakka og fögrum söng, en pakkinn var eitthvað dularfullur því þar var vísbending sem sagði að hann ætti að fara og fá sér morgunmat... í múslíinu var svo önnur vísbending.. þetta hélt svo áfram, hann þurfti að banka á þremur stöðum í morgun og ná í pakka og vísbendingar þar til hann fann loksins stóran og þungan pakka.. og hvað haldiði að hafi verið í honum? hvað annað en kaffivélin sem hann er búinn að dreyma um í mánuð. Mikið varð hann glaður. :)
Ég græddi nú svolítið á þessum rúnti um hverfið, einn pakki frá ömmu Gauju og svo annar pakki frá pabba afmælisstrák, takk fyrir mig!
En annars var þetta mjög látlaus afmælisdagur því afmælisbarnið þurfti að fara í skólann að læra, hann er nefnilega í prófatörn núna. Ég fór út með mömmu og hitti á Bastian og Ilmi og fór með þeim á róló. Það var stórkostleg skemmtun.

Síðasta vika er búin að vera róleg og notaleg á leikskólanum, enda haustfrí og margir krakkar í fríi. Um síðustu helgi fórum við í sund og rifjuðum upp sundtaktana, það var stórgott og greinilegt að ég hef engu gleymt.

-

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2008 - Mamma gerði þetta | Knúið af Movable Type 3.34