« | Aftur á forsíðuna | »

12. október 2007

Mikið agalega erum við eitthvað löt við skriftir!
Það gengur allt bara einstaklega ljúft, lítið að segja kannski. Ég er algjör hetja í leikskólanum og líður mjög vel þar. Í gær héldum við smá "haustfest" og buðum foreldrum í kaffi seinnipartinn. Þar buðum við uppá allskonar eplakökur og pæ, gulrótarkökur og bollur sem við höfum verið að gera sjálf. Ég var í hópnum sem gerði eplamauk (eplin voru m.a. fengin úr garðinum hans Kristoffer) og svo var það sett í fat og með þeyttan rjóma yfir, dásamlega gott með gulrótarkökunni. Mér fannst líka rosalega gaman þegar mamma og pabbi stoppa í leikskólanum og þá get ég sýnt þeim allt sem ég er að leika með. Ég er farinn að þekkja eiginlega alla krakkana í leikskólanum og er oft að kubba með stóru strákunum þegar þau koma. Fóstrurnar mínar segja líka að ég sé alltaf glaður og til í að grínast.
Ég læri líka ýmislegt misjafnt.. ahemm.. í kvöld þegar við vorum að fá eftirmat fékk ég mér banana, beindi honum að pabba og sagði: "skal jeg skyde dig??.. þar með er sú vörn brostin, við höfum nefnilega engan vegin leyft einhver vopn eða vopnastæla, meira að segja kallað vatnsbyssur bara vatnssprautur (bein þýðing úr dönsku) en jæja, það hlaut að koma að því.

Lengsta danska setningin mín, sem við höfum heyrt, var inni í dótinu í vikunni, þá var ég eitthvað að leika með einhverja kalla og sagði: "Lige om lidt spiser vi aftensmad i børnehaven" (eftir smástund borðum við kvöldmat í leikskólanum) ... þau frammi göptu bara því þau kunnu ekki sjálf að mynda svona setningu fyrir ári síðan..

Mamma fór með myndavélina í leikskólann í dag þegar hún kom að sækja mig, ég var auðvitað úti í garði að leika og þá notaði hún tækifærið og smellti af nokkrum myndum.


Næsta vika er "Efterårsferie" í Danmörku og örugglega eitthvað skemmtilegt að gerast út um allt, ég fer samt ekkert í frí því ma+pa eru að gera verkefni og læra fyrir próf, en náum örugglega að gera eitthvað skemmtilegt.

Kær kveðja - Danni og fjölsk.
ps. takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa í gestabókina :)

-

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2008 - Mamma gerði þetta | Knúið af Movable Type 3.34