Við höfum það "bara fínt" eins og Danni myndi segja. Heimferðin á mánudaginn var gekk mjög vel. Við flugum til Kaupmannahafnar frá Akureyri og það var dálítil töf áður en við fórum í loftið en það var ekkert mál, við vorum komin heim um kvöldmatarleytið.
Í vikunni er ég búinn að vera hjá fóstrunni minni, það var svolítið erfitt að koma á þriðjudaginn eftir svona langa bið og ég var svolítið lítill þegar mamma var að fara. Að vísu tók Bastian vinur minn óskaplega vel á móti mér eins og hann gerir alltaf og svo var líka rosalega gaman hjá okkur yfir daginn.
Mamma kláraði skólann á fimmtudaginn með munnlegu prófi (á ensku) og er bara nokkuð sátt við þessa einu einkunn vetrarins, en hópurinn hennar fékk 11, sem er eiginlega hæsta einkunin sem er gefin. Núna er hún komin í sumarfrí en við taka nokkur vinnuverkefni þannig að það er alveg nóg að gera.
Í dag var pabbi að undirbúa prófverkefni þannig að við ákváðum að labba saman út í búð, það er reyndar dálítill spölur þannig að ég fór í kerruna mína (sem ég er by the way búinn að sakna mikið og spyrja mikið um) og við löbbuðum í Fakta. Á leiðinni löbbuðum við yfir skólalóðina og þar var heilmikill skranmarkaður með hellings dóti, bókum og fötum. Við keyptum ekki neitt þar enda nóg af skrani til heima.. haha.
Á meðan við löbbuðum í búðina kom ekki dropi úr lofti en þegar við vorum búin að borga tókum við eftir því að það var byrjað að HEELLIRIGNA. Ekkert smáræðis. Svo við hringdum í námsmanninn sem var heima og báðum hann að sækja okkur í búðina. Demban var reyndar bara í 10 min eða svo þannig að fljótlega eftir að við komum heim hætti að rigna.
Eftir drekkutímann fórum við mamma aftur út því að mér finnst ekkert skemmtilegt að hanga heima, og fljótlega hittum við Ásgeir og Gunnar og svo Bastian. Við félagarnir vorum úti að hjóla fram að kvöldmat (það fór eitt gullkorn á gullkornasíðuna) og klukkan sjö var ég orðinn alveg búinn á því svo ég háttaði bara og fór inn í rúm. Ég heimtaði svo að mamma snyrti á mér neglurnar áður en kvöldlesturinn hæfist því mér finnst svo pirrandi þegar það er eitthvað laust á naglaböndunum eða nöglunum... já, lítill prins á baun... en svo sofnaði ég bara yfir handsnyrtingunni þannig að við náðum aldrei að opna bókina.
Svona er nú það
Við erum búin að setja inn helling af myndum frá Íslandsferðinni... kíkið.


