Núna er ég búinn að vera í viku á Hauganesi hjá afa og ömmu í góðu yfirlæti. Eiginlega mjög góðu því þetta dekur og þessi "lausaganga" er farin að hafa djúpstæð áhrif á mig og mitt skap. Segjum ekki meir.
Ferðalagið til Íslands gekk alveg vonum framar, það var mjög langt eða 12 klst. Fyrst fórum við í lestina kl 7 um morguninn (5 að íslenskum), fengum fín sæti og ég náði aðeins að sofa smá og svo borðuðum við nestið okkar og reyndum að skemmta okkur. Þegar við komum upp á Kastrup tékkuðum við okkur inn, keyptum smá dót og fórum svo fljótlega að bíða eftir vélinni sem fór í loftið kl 13. Það gekk allt saman vel, ég náði að sofa svolítið, borða og hlusta á tónlist. Svo spjölluðum við bara saman, ég velti því fyrir mér eitt sinn hvernig flugvélin myndi nú eiginlega lenda, spurði mömmu hvort að flugvélin væri með dekk, og létti töluvert þegar ég komst að því að svo var.
Þegar við lentum í Keflavík kl 14:10 hófst Amazing Race þar sem við þurftum að ná í töskuna og helst vera komin út í leigubíl kl 14:30. Mamma skellti mér í flugstöðvakerru og svo brunuðum við í gegnum fríhöfnina og svo beint að færibandinu. Sem betur fer kom taskan fljótlega, leigubílstjórinn beið eftir okkur í biðsalnum og svo brunuðum við yfir á innanlandsflugvöllinn, en við áttum miða norður kl 15:30.
Það tókst, á löglegum hraða meira að segja. Flugið norður gekk líka vel og þegar við komum tók Baddý frænka á móti okkur. Góður endir á fínu ferðalagi.
Við höfum farið næstum á hverjum degi niður í fjöru að henda steinum í sjóinn eða vaða, á fimmtudag keyrðum við yfir til Grenivíkur til Danna frænda og Birnu og allra hinna og það var sko fjör. Ég sótti Danna frænda í leikskólann og hann og Birna sýndu mér alla lóðina og við spjölluðum við krakkana þar líka. Svo fórum við í búðina og fengum ís og svo lékum við úti á lóð og á pallinum. Mikið fjör. Við Dannarnir vorum líka sofnaðir fyrir kvöldmat í sófanum en ég glaðvaknaði auðvitað þegar við mamma lögðum af stað heim (sem var um klst keyrsla).
Í dag kom pabbi svo til okkar en hann fór strax á djammið (er að fagna 10 ára stúdentsafmæli með gömlu bekkjarfélögunum), vonandi næ ég að sjá hann eitthvað á morgun.


