Það er bara "Snestorm" og ekkert annað þessa stundina hér í Árósum. Þegar við vöknuðum í morgun var allt orðið hvítt og þegar við komum heim uppúr hádeginu þá var bara komin "þæfingsfærð" í götunni okkar.
Núna í kvöld er allt að fara á kaf og bálhvasst líka. Það verður fróðlegt að vita hvernig umferðin verður í fyrramálið því við erum að sjálfsögðu ennþá á sumardekkjunum. :S
Ég fer til varadagmömmunnar á morgun, af því dagmamman mín er í fríi í vikunni. Það hefur alveg verið gaman en félagar mínir þeir Bastian og Mark eru líka í fríi í vikunni þá leik ég við strák sem heitir Philip. Í dag vorum við í Legestue en af því mamma var búin um hádegisbilið þá sótti hún mig þá og við fórum heim að leika.
Núna þegar við erum komin með bleiumálin (eða bleiuleysismálin) á nokkuð gott ról þá er næsta verkefni að losna við studduna. Danni veit vel reglurnar að það má bara hafa duddu þegar maður fer að sofa. Það veldur því að strax eftir kvöldmat vill hann bara fara strax inn að sofa og rígheldur svo í snudduna.
En þegar foreldrarnir koma og slökkva ljósið þá stela þau snuddunni úr munni sofandi barnsins og hann klárar nóttina ósnuðaður. Þetta eru því bara örfáir tímar á dag með duddu og vonandi að tennurnar og gómurinn fari aðeins að rétta úr sér.
Endilega munið eftir gestabókinni. :)


