Hæ, allt gott að frétta. Ég fór og var hjá Brian fyrir hádegi í dag, það var mjög gaman, þar var líka ný stelpa að byrja sem heitir Sara, þannig að núna erum við fjögur hjá Brian, ég, Emily, Melanie og Sara. Ég sakna þess að hafa ekki stráka í kringum mig og bið um "stráka líka" þegar ég er spurður hvort ég vilji hitta stelpurnar, vonandi bætir maður það upp í legestue á föstudögum en þar koma fullt af gaurum til að gaurast með.
Það eru komnar nokkrar nýjar myndir inn en við höfum ekki verið neitt dugleg að mynda út af ástandinu hérna heima, en það eru allir að koma til... vona bara að pabbi sé ekki að leggjast í einhverja flensupest...
heyrumst - ♥ - Danni


