« | Aftur á forsíðuna | »

4. september 2005

Hæ!
það er það helsta sem ég segi þessa dagana, „hæ!" „hæ!"
Þessi helgi er búin að vera dásamleg. Í gær tókum við strætó niður í bæ og röltuðum niður Laugarveginn. Ég svaf nærri því allan tímann en svo þegar ég var vaknaður fór um við að kíkja á endurnar á tjörninni. Það er alltaf jafn gaman. Í morgun fórum við mamma út á róló á meðan pabbi fór í golf. Eftir hádegi svaf ég blundinn minn og ég sef alltaf svo lengi, mamma vakti mig þegar ég var búinn að sofa í rúmlega 2 tíma og þá var ég ennþá frekar lúinn.
Uppáhalds dótið mitt núna er eiginlega misstóru ílátin sem fara ofan í hvert annað. Ég pússla þeim sundur og saman og er að kveikja á því að stóru dollurnar komast ekki ofaní þær litlu. Mér finnst líka gaman að hlaupa og er farinn að hlaupa frekar hratt. Svo sný ég mér í hringi og dansa og geri allskonar kúnstir, gef líka hi-five af miklum krafti.
Nú fer enn ein vikan af stað, hugsa sér að það sé kominn september. Það verða komin jól áður en við vitum af!
Það eru komnar nýjar myndir inn, síðan í réttunum og núna heima. Hanna frænka á nokkrar af myndunum úr réttunum, vona að það sé í lagi að ég hafi fengið þær að láni.
Endilega munið eftir gestabókinni og kommentunum í myndasafninu! :) kv - Danni

-
© 2008 - Mamma gerði þetta | Knúið af Movable Type 3.34