Það varð uppi fótur og fit hér í gærkvöldi. Mamma og Pabbi heyrðu mig allt í einu gubba inni í rúmi þar sem ég svaf, ég var borinn hálf sofandi fram á bað og allur fiskurinn sem ég borðaði í kvöld var á fötunum mínum og á koddanum. Ég fékk þvott og hrein föt og vatn að drekka en um leið og ég var kominn í hreinu fötin gubbaði ég á þau aftur, svona gekk þetta í nokkur skipti þar til ég sofnaði í fanginu á pabba mínum undir teppi inni í stofu. Frekar laskaður.
En í morgun leið mér bara vel, svolítið fölur eins og í gærkvöldi en uni mér mjög vel í dótinu mínu og er duglegur að drekka og borða. Þetta var vonandi bara smá skot.


