á fimmtudögum í sumar ætla aprílbörnin að hittast. Mömmurnar fá sér hádegismat og svo er skemmtilegur drukkur hjá okkur á eftir. í gær hittumst við heima hjá einum gaur í Hafnarfirði en hann á sama afmælisdag og ég. Eftir hádegi var ég svo sybbinn að ég sofnaði í graco kerrunni okkar fínu og þegar mamma fór heim bar hún mig sofandi inn í bílstólinn. það er fínt að lúlla í Hafnarfirði í góða veðrinu eins og var í gær.
í dag er hins vegar frekar þungt yfir, búið að rigna í morgun og ég fór bara út í vagninn minn á svölunum eftir hádegi og sef þar í kalda ferska loftinu.
í gærkvöldi var ég í pössun hjá Baddý móðursystur minni á meðan ma og pa fóru út á golfæfingasvæði eitthvað að reyna að sveifla. það er í fyrsta skipti sem þau fara bæði frá mér í einu, reyndar bara í rúman klukkutíma en skráist samt í sögubækurnar. það var bara fínt að vera í pössun, við lékum okkur og svo lúrði ég bara notalega.
Um helgina ætlar Hanna systir mömmu að kíkja í heimsókn og svo eru sumarútsölurnar byrjaðar og aldrei að vita nema við kíkjum eitthvað á þær.
« í nótt svaf ég í | Aftur á forsíðuna | ég er með svolitla skán »

