í nótt svaf ég í fyrsta sinn í mínu eigin rúmi, sem amma og afi á Hauganesi gáfu mér þegar ég var nýfæddur. það er búið að vera niðri í geymslu síðan þá því ég er búinn að hafa svo fína vöggu til að sofa í, en í gær ákváðu ma og pa að setja það saman og koma því fyrir inni í svefnherbergi. ég er nefnilega svo duglegur að sofa á næturnar. ég sofna yfirleitt upp úr ellefu á kvöldin, fæ mér svo sopa um fjögur/fimm leytið (sofandi jafnvel) og svo aftur uppúr sjö þegar pabbi vaknar og fer í vinnuna. Svo kúrum við mamma til ellefu/hálf tólf. --algjörar purrkur!
« í dag á ég tveggja | Aftur á forsíðuna | á fimmtudögum í sumar ætla »


