Laugardagur 8. janúar 2011
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla! :) Byrjum á því að lýsa frati yfir uppfærsluleti móðurinnar, hún er greinilega alveg að missa það. Búin að vera upptekin í nýja fyrirtækinu sínu og flutt út af heimilinu með skrifstofuna.
Jólin voru alveg frábær, góð afslöppun og frábært að sjá framan í alla fjölskylduna. Við fórum á litlu jólin hjá 1. bekk sem voru mjög fín, litlu jólin í leikskólanum voru líka skemmtileg nema að Emil vildi ALLS EKKI dansa í kringum jólatréð, sveinki var bara OF mikið, jafnvel þó hann hafi alveg tekið við epli frá honum. Við héldum okkur bara til hlés.
Við vorum hjá ömmu og afa á Dalvík á aðfangadag í algjörum notalegheitum, borðuðum rjúpu á þrjá vegu og drengirnir skemmtu sér afskaplega vel.
Á annan í jólum fórum við með jólamatinn út á Karlsá eins og alltaf, mikið er alltaf gott að vera þar. Fórum með fullt af útidóti og renndum okkur, Danni á nýja sleðanum sem hann fékk í jólagjöf.
Á gamlársdag vorum við á Hauganesi í miklu sprengjuregni. Þessir drengir okkar eru hreint ekki að æsa sig yfir hlutunum og við forðuðum okkur frá mestu flugeldunum og horfðum á þá úr fjarlægð, með stjörnuljós, það var ágætt. Við fórum svo á nýársdag til Dalvíkur og hittum Húsavíkurfamilíuna við mikinn fögnuð drengjanna.
Danni er óðum að missa allar barnatennurnar, tönn nr 3 var tekin í hádeginu á jóladag, bara sísvona. Önnur framtönnin fór svo núna fyrsta skóladaginn eftir jólafrí. :)
Emil er kominn með Leiftur McQueen alveg á heilann, kemst fátt annað að. Bróðir hans gaf honum disk í jólagjöf með ýkjusögum Króks og það var alveg toppurinn. Danni var hins vegar ástfanginn af Ben 10 gjöfunum sínum og kyssti alla pakka sem Ben10 kom upp úr :)
Næsta mál á dagskrá er að pakka niður dótinu okkar því við fáum nýju íbúðina okkar um næstu mánaðarmót, og öllum hlakkar mikið til :) Sem betur fer er ekki langt að fara en samt ýmislegt sem þarf að huga að.
Mánudagur 13. september 2010
Hreinlega agalegt þessi skrifleti hérna inni, núna þegar eitthvað nýtt gerist á hverjum degi.
Emil er orðinn 2 ára, átti afmæli 31. ágúst. Hann er algjör hjartaknúsari, bræðir hjörtu með sínum sólargylltu lokkum og prakkaralegu brosi og veit alveg hvað hann vill. Nánast orðinn altalandi og veigrar sér ekkert við að flytja langar ræður. Bróðir hans er algjör hetja í hans augum og helsta fyrirmynd í lífinu, tja fyrir utan íþróttaálfinn. Emil er búinn að vera íþróttaálfs- og latabæjarsjúkur síðan rétt eftir eins árs afmælið eða þegar hann fór að labba.
Hann byrjaði í leikskóla rétt rúmri viku fyrir 2. afmælisdaginn. Aðlögunin gekk alveg frábærlega vel, fannst meiriháttar að vera innan um alla þessa krakka og þetta dót, ekkert mál að taka lúr og gaman að leika úti. Eftir aðlögunina kom smá bakslag sem við erum að vinna úr og er ekkert alvarlegt, bara svolítið erfitt fyrir mömmuhjartað að yfirgefa grát en betra þegar hún heyrir að það er bara rétt á meðan hún segir bless og lokar dyrunum. Það er nú líka ágætt að finna að manns er saknað.
Danni byrjaði í skólanum þann 23. ágúst líka. Eins og sennilega alþjóð veit, en Freyja vinkona okkar sem vinnur hjá RÚV vantaði einhvern til að tala við fyrir frétt sem hún var að gera um fyrsta skóladaginn. Danni var náttúrulega eins og hetja og lét sér fátt um finnast með öll þessi læti. Mamma hans var með aðeins meiri hnút í maganum en bæði sluppu held ég bara ágætlega frá þessari stuttu klippu. Það sem kom meira á óvart voru viðbrögðin frá fólki í kringum okkur en síminn var rauðglóandi, facebook alveg á milljón og fengum póst úr öllum áttum, m.a. frá skólastjóranum í Lundarskóla.
Fyrir þá sem ekki sáu þá er klippan úr fréttunum hérna. (Annaðhvort smella og horfa eða hægrismella og sækja).
Það gengur líka mjög vel í skólanum. Danni er alveg orðinn læs og kláraði fyrstu lestrarbókina á einni viku. Við höfum ekkert verið sérstaklega að æfa lesturinn samt, eftir að hann varð svona flinkur í því legg ég meira upp úr að hann skilji það sem hann er að lesa og spyr hann einfaldra spurninga úr textanum á hverri síðu eftir að hann er búinn að lesa eða ég búin að lesa fyrir hann. Hann á það svolítið til að láta hugann bara reika eitthvert út í buskann, en er orðinn mun betri í því að fylgjast með söguþræðinum. Við höfum líka stundum leikið þann leik að hann les síðuna og spyr mig síðan, það er líka góð æfing að finna og búa til spurningu, og svo svarar mamman á einhvern ferlega vitlausan hátt.. sem sýnir að maður má alveg vera klaufi og maður á að giska þó það sé ekki endilega rétt - hann hefur nefnilega verið svolítið gjarn á að svara öllu með "veit ekki" frekar en að láta bara vaða.
Í mars fór Danni til talþjálfara til að reyna að ná R-hljóðinu upp úr kokinu. Hann var með fullkomið danskt kartöflu-ERR og núna í september útskrifaðist hann, kominn með þetta frábæra íslenska R hljóð og algjörlega meðvitaður um það hvernig á að nota það. Þetta var mikill sigur og mikill lærdómur að fara í tíma til Valdísar bæði uppá hljóðið en ekki síður fyrir samskiptin og sjálfstraustið sem hann öðlaðist þar.
Laugardagur 15. maí 2010
Við skulduðum alveg helling af myndum svo við erum búin að bæta aðeins úr því. Annars er allt gott að frétta, allir hressir og kátir. Síðasta fimleikaæfingin á þessum vetri var í dag hjá Danna. Hann er búinn að vera tvo vetur í fimleikum og finnst það yfirleitt gaman. Stundum hefur verið svolítið erfitt að hlaupa svona mikið og gera allskonar æfingar og þá hafa sumir freistast til að fara bara í fýlu og ekki viljað meira, en alltaf verið sáttur samt. Hann hefur tekið miklum framförum á þessum tíma, bæði líkamlega og ekki síður félagslega - þarf að hlusta og fylgja fyrirmælum og þannig. Við ætlum að vera áfram næsta vetur en það er viðbúið að fimleikarnir verði svolítið meira krefjandi á næsta ári.
Emil ætlar hins vegar ekki að vera fimleikadrengur, hann ætlar að verða boltastrákur. Hann er heillaður af körfum og körfuboltum. Í fyrrasumar þegar hann var varla orðinn eins árs gat hann tekið upp bolta í öðrum enda garðsins, haldið á honum á meðan við lyftum honum upp að körfunni - og sleppt henni ofan í körfuna. Núna vill hann helst fara út á körfuboltavöllinn við Lundarskóla og það fyrsta sem hann segir þegar hann vaknar úr vagninum, ef hann heyrir í krökkunum í körfu úti á velli, þá er það bara "karfa!!" sem ómar í hlustunargræjunni. Þetta er ekkert eðlilegt. Næsta mál á dagskrá er að lækka körfuna í garðinum þannig að hann nái upp í hana sjálfur, það er flott æfing að rölta í grasinu á eftir boltanum og henda ofaní.
Um daginn eignuðumst við nýjan hamstur. Þessi er loðhamstur sem hefur fengið nafnið Diego. Hann var bara lítill ungi þegar hann kom en hefur stækkað ótrúlega mikið. Hann er mikill gleðigjafi en fer því miður ekki á stjá fyrr en eftir kvöldmat, við þurfum eitthvað að reyna að snúa sólarhringnum við hjá honum.
Sumarið er framundan og Danni útskrifast fljótlega úr leikskólanum og fer í Lundarskóla í haust. Það er alveg merkilegt hvað tíminn líður. Hann er reyndar mjög vel undirbúinn og er orðinn fluglæs, guðmóðir hans og barnakennarinn segir að hann lesi um 120 atkvæði á mínútu sem er á við meðaltal í 2-3. bekk. Hann er líka farinn að lesa dagblöðin með okkur á morgnana.. á hvolfi! Ótrúlega magnað hjá honum.
Emil fer svo í leikskóla í haust, byrjar á Pálmholti eftir miðjan ágúst. Við verðum því í fríi allan júlí og mestallan ágúst, allavega strákarnir og mamman - pabbinn á eftir að raða sínu fríi en ætli hann verði ekki mikið í júlí líka. Við þurfum bara að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera, allavega rúnta svolítið um landið á nýja fína bílnum okkar. Við endurnýjuðum bílaflotann (ef einn bíll getur talist floti..) um páskana, Avensisinn sem hefur þjónað okkur svo vel alveg síðan Danni fæddist og úti í Danmörku líka, fékk að víkja um páskana fyrir fínum Santa Fe, lúxus útgáfunni m.a.s.. rosa flottur.
Biðjum að heilsa, komum fljótt aftur :)
Mánudagur 19. apríl 2010
"Ekki sofa, syngja meira" var það sem Emil sagði í gær þegar hann var orðinn þreyttur. Hann er orðinn ótrúlega skýr og með mikinn orðaforða, er heldur ekkert að veigra sér við að endurtaka orðin sem við segjum og nær þeim mjög vel. Honum finnst fátt skemmtilegra en að leika inni í herberginu hans Danna og getur setið þar og dundað sér heillengi, sérstaklega ef við setjum einhverja tónlist á. Hann biður líka ævinlega um óskalag, segir "ýta á takka" og frussar .. og það þýðir að hann vill hlusta á prumpulagið ;)
Sunnudagur 4. apríl 2010
Gleðilega páska!
Hér hefur ekki mikið verið ritað en margt gerst, Emil er farinn að spretta úr spori. Daginn sem hann ákvað að fara að labba sjálfur gekk hann út á mitt stofugólfið og sneri sér í hringi.. hann var svo glaður að losna undan þessum álögum að þurfa alltaf að biðja um putta til að halda í. Hann er líka farinn að tala ótrúlega mikið, segir auðvitað pabbi og amma og afi, Emil, Tumi (tígur), bað, nemo (segir reyndar: númi), inn (þýðir út), upp (en meinar niður) og svona tínast orðin og merkingarnar inn.
Danni er í stöðugri leit að "R"-inu sínu sem hann hefur ekki fundið síðan í Danmörku, fallega danska r-ið hans fellur ekki beint vel í kerfinu svo við förum 1x í viku til Valdísar talkennara, hún og Danni eru orðnir hinir mestu mátar enda á hún svo mikið af flottu og óvenjulegu dóti.
Danni er búinn að uppgötva Playstation II tölvuna á heimilinu eftir að hann fékk leikinn með fiskinum Nemó. Það er margt að varast í sjávardjúpunum og smám saman hugast hann við að berjast við sæskrýmslin.. og reynir að sjá húmorinn í þessu líka. Hann er t.d. búinn að finna krabba með beittar klær og var mjög smeykur við, þar til hann sá að hann var með bleiu! ;) Svo var þar hákarl sem urraði eins og ljón - tilvalið að kalla hann sæljón!
Páskarnir eru búnir að vera mjög ánægjulegir og afslappandi, Emil tók reyndar sérstaklega langa helgi þar sem hann var veikur frá föstudeginum áður. Bæði kvefpest að hrjá hann og fæðuofnæmi. Hann er orðinn góður núna en við eigum tíma á spítalanum á fimmtudaginn þar sem hann fer í allsherjar ofnæmispróf. Hann hefur sýnt viðbrögð sérstaklega við fiski og hugsanlega fleiru, hann er með þrálátt barnaexem sem versnar sérstaklega þegar hann fær fisk og þá er alveg sama hvort það er þorskur, ýsa, lax eða rækjur. Öðrum afanum finnst þetta náttúrulega alveg óskaplega sorglegt en hinn væri sennilega alveg til í að skipta við hann til að hafa afsökun fyrir því að þurfa ekki að borða fisk ;)
En það kemur í ljós í vikunni og það verður langþráð staðfesting, sérstaklega að finna hvaða efni þetta er sem hann er með ofnæmi fyrir, hvar annarsstaðar það er að finna og hvernig má gera það svolítið bærilegra.
En við erum búin að nota páskana til að hitta fjölskylduna, áttum skemmtilegan útivistardag á Karlsá þar sem Danni prófaði bretti nafna síns á Grenó og stóð sig rosalega vel, vorum líka á þotu, skíðum, stiga sleða, snjósleða og fjórhjóli. Rosa gaman. Í dag vorum við svo í afmæli hjá Baddý frænku og ætlum að kíkja í 1 árs afmæli til Hartmanns á morgun. Nóg að gera, þannig á það líka að vera :)
Sunnudagur 21. febrúar 2010
Emil tekur stór stökk þessa dagana. Hann er loksins farinn að labba meira en aðeins meðfram og milli okkar, búinn að vera mjög varkár og samt ekkert dottið alvarlega. Hann tekur stigann í nefið, eldsnöggur upp, og er orðinn góður í að fara afturábak niður. Þetta labba-á-milli skeið er búið að standa yfir mááánuðum saman og loksins eitthvað nýtt að gerast í því. Sumir verða bara að taka hlutina á sínum hraða.
Emil er líka kominn með fullt af orðum; mamma, Danni, Klængur (duuduu..) -pabbinn er ekki alveg sáttur með að hann neitar að segja Pabbi.. svo er auðvitað Bangsimon (biddi - mikill aðdáandi!) Dudda, nammi, kaka og ís (sem er "sí") Sælkeri hér á ferð :)
Hann er með gríðarlega mikinn áhuga á kaffivélinni og þvottavélinni og segir "tssss" við þær báðar (vatnshljóðið). Það er alveg hægt að fá hann til að taka bæði úr þvottavélinni og þurrkaranum og setja í, hann er mjög liðtækur við húsverkin og vill endilega vera með í öllu ;)
Emil er líka mikill sjónvarpsglápari, bróðir hans horfir reyndar ekki mikið en sá stutti vill alltaf vera með í því og vill stundum helst borða morgunmatinn inni í stofu um helgar eins og sá stóri.
Það eru búnir að vera fallegir vetrardagar undanfarið. Á öskudaginn fór Danni í spiderman búningnum sínum í leikskólann og María dagmamma var í fríi þannig að við Emil vorum heima. Við ákváðum eftir morgunmatinn að rölta út og hitta Danna með leikskólahópnum sínum þegar þau kæmu í bakaríið, svo við fórum í bangsabúninginn og settum upp veiðihárin. Það var mjög gaman að hitta sólarbörnin í fullum skrúða og þau "sungu svo vel að maður fékk tár í augun" -eins og Danni spurði mig um á eftir ;)
Svo fórum við Emil niður í bæ og löbbuðum aðeins um, hann hefur kannski ekki labbað mikið í snjónum og á klaka en þegar hann fékk að prófa það, að labba í svona klakabraki skellti hann algjörlega uppúr, hló svo innilega að hann ætlaði ekki að geta staðið.. það var svo fyndið að heyra brakið í skónum :))
Núna þegar hann nálgast 18 mánuðina er hann kominn með 10 tennur, þar af 3 jaxla. Þær hafa tekið þokkalega vel á og mikill munur fyrir hann (tja já og okkur!) að erfiðasti hjallinn er yfirstiginn.
Við ætlum nú að reyna að vera aðeins duglegri við að skrifa hérna niður, bara út af því hvað það er gaman að fletta í gegnum þetta síðar, en endilega skrifið í gestabókina ef þið eigið leið hingað inn :) -takk :)
Fimmtudagur 21. janúar 2010
Gleðilegt nýtt ár :) Hér er allt að verða komið í réttan gír eftir frábær jól og áramót. Drengirnir fengu sæg af fallegum gjöfum sem við þökkum kærlega fyrir. Við vorum hjá ömmu og afa á Hauganesi á aðfangadag. Það var yndislegt, þar voru líka Baddý og Gunnar og litli strákurinn sem hefur fengið nafnið Ragnar Númi, sem og Raggi, Sandra og Embla Lind. Þannig að það var kátt í kotinu en samt alveg yndislega rólegt og notalegt. Á jóladag skruppum við svo til Dalvíkur og vorum fram á annan í jólum þegar við fórum með fullan bíl aftur heim til Akureyrar. Á gamlársdag fórum við svo í rosalegt matarboð hjá ömmu og afa á Dalvík, þar voru um 25 manns í góðum gír, frábært skaup og slatti af flugeldum fengu að fuðra upp. Danni og Lára voru saman úti, í kuldagallanum með lambhúshettu og hlífðargleraugu, passlega smeyk við þetta en fannst þetta samt svo flott. Emil Ragnar og Hildur Gauja fengu líka að vera inni og horfa á herlegheitin út um gluggann. Emil var orðinn frekar þreyttur svona um 11-leytið en svo lifnaði yfir honum og hann entist alveg vel framyfir miðnætti. Við sváfum líka vel á nýársmorgun og yndislegt og afslappað jólafrí var á enda.
Í byrjun janúar fengum við líka góða gesti í heimsókn, Óli og Eva komu í mat og við elduðum handa þeim hreindýr með súkkulaðisósu úr Súkkulaðibókinni góðu frá NS. Frábær matur.
Danni tók upp á því nánast í jólafríinu að byrja að lesa. Hann er núna óstöðvandi lestrarhestur og fer í gegnum nokkrar bækur fyrir svefninn, hann les líka ljóðin á mjólkurfernunum á morgnana og svo rímar hann og stafar orð daginn út og inn. Hann er búinn að ná ótrúlegum lestrarhraða á stuttum tíma. Virkilega duglegur og áhugasamur.
Emil er líka mjög áhugasamur með það að labba út um allt en vill hafa félagsskap á göngunni, treystir sér ekki í að sleppa puttanum. Hann reyndar labbar alveg 10-15 skref á milli manna eða milli veggja en það þarf aðeins að bæta sjálfstraustið og það gengur líka betur þegar hann er í góðum skóm. Núna í fyrradag tók hann svo upp á því að fara að skríða, kannski alveg kominn tími til enda rúmlega 16 mánaða :) Hann hefur farið út um allt skoppandi á rassinum og gengið bara mjög vel með það. Svolítið fyndið þegar hann skríður því hann spólar frekar mikið á hnjánum :)
Um helgina varð svo sorgaratburður í fjölskyldunni þegar Píla, hundurinn þeirra ömmu og afa á Hauganesi, varð fyrir slysi og dó. Hún var orðin 16 ára gömul og því búin að fylgja okkur í langan tíma, yndislegur hundur. Við kvöddum hana í kyrrð og minnumst alveg frábærs félaga sem var alltaf hægt að stóla á.
Sunnudagur 13. desember 2009
Jæja kominn desember. Hérna gengur allt sinn vanagang, nema Emil.. honum finnst gangur vera of mikið hættuspil og er mjög varkár við að fara af stað. Við tókum meira að segja jólagjöfina hans upp fyrir tímann, sem er vagn til að ganga með og æfa sig. Hann gengur nokkur skref á milli okkar og finnst það svo gaman að hann vill helst hlaupa og þá fer hugurinn svolítið hraðar en neðri hlutinn ræður við :) Hann er nú að verða 16 mánaða svo þetta er alveg löngu tímabært, en hann er afskaplega varkár, og það er nú kannski ekki hægt að kvarta undan því.
Um daginn, nánar tiltekið 8. desember kom Danni heim úr leikskólanum með eina framtönn í bréfi, hún var búin að vera laus í nokkra daga og hann sagðist bara hafa "tekið hana" :) Sama kvöld kom í ljós að Emil er kominn með fyrsta jaxlinn (þannig að það má segja að tannafjöldinn á heimilinu sé enn sá sami).
Emil líður líka vel hjá dagmömmunni, Maríu. Hún á hund sem er í miklu uppáhaldi hjá Emil og hann hermir iðulega eftir henni Perlu þegar hún tekur á móti okkur á morgnana. Um daginn, 9. des, fórum við á jólaball með dagforeldrafélaginu og þar kom jólasveinninn sem Emil er að kynnast í fyrsta skipti. Honum leist nú ekkert á hann samt og fannst betra að hann væri sem lengst í burtu, það var því svolítið erfitt að taka við pakka úr höndunum á honum en það tókst og enginn skaði skeður, nema pínu á sálinni. Þessir karlar geta nefnilega verið svolítið fyrirferðamiklir.
En það eru frábærir dagar framundan, jólin í næstu viku og allt að verða klárt á þessu heimili. Litli snáði ætlar að vera í fríi frá 18 des og fram á nýár og leikskólastrákurinn sennilega eitthvað svipað.
Mánudagur 5. október 2009
Það er nú ekkert allt of oft sem eitthvað er hripað hérna niður, því er nú verr. Emil tekur hvert þroskastökkið af öðru, orðinn 13 mánaða, er kominn með 5 tennur (þrjár uppi og sú fjórða á leiðinni, og tvær niðri og ekki langt í þær sínuhvoru megin við framtennurnar), hann neitar reyndar alfarið að skríða en hossar sér áfram á rassinum og vill helst af öllu labba með okkur. Hann er orðinn mjög góður í að halda bara með annarri hendi og í uppáhaldi er að skoða þvottavélina ef hún er í gangi, eða espressovélina. Tækjakarl greinilega :)
Ef honum finnst eitthvað mjög merkilegt þá bendir hann og segir: seððu, sem við höldum að sé "sérðu". Allar manneskjur eru ennþá mamma, meira að segja hann sjálfur :)
Í gær fór pabbinn í vinnuferð til Noregs og verður fram á fimmtudag. Það gengur sem betur fer mjög vel að koma þeim bræðrum í bólið, engar mótbárur og eru venjulega sofnaðir báðir fyrir hálf níu. Í gær sofnaði Emil reyndar uppúr sjö, var mjög þreyttur. Hann vaknaði svo um hálf sex í morgun og fékk að koma uppí. Skömmu síðar kom stóri bróðir hans líka og þá var ekki aftur snúið, þeir grínast og hlæja og eru í þvílíku stuði. Við vorum semsagt búin að baða okkur og borða morgunmat klukkan hálf átta, og þá varð sá stutti dauðþreyttur aftur og fékk að leggja sig í vagninum til klukkan átta. Við Danni löbbuðum svo með Emil til dagmömmunnar sem er bara í næstu götu, og fór Danni í leikskólann.
Fimmtudagur 3. september 2009
Emil Ragnar er orðinn eins árs og ágætt við þannig áfanga að segja aðeins frá honum.
Hann er mikill fjörkálfur og elskar stóra bróður sinn, herbergið hans, dótið hans og þegar hann leikur við hann. Sem er nú reyndar mjög oft, þeir ná mjög vel saman, svona eins vel og hægt er á þessum aldri.
Hann kann að sýna hvað hann er stór og sterkur. Þetta með að vera týndur er svolítið að vefjast fyrir okkar manni því hann vill jú sjá viðbrögðin, í staðinn tekur hann bara fyrir eyrun.
Hann er farinn að borða allt sem við borðum, og finnst maturinn yfirleitt bestur af diskinum hennar mömmu. Hún getur reyndar sjálfri sér um kennt því hún er vön að gefa honum bara með sér. Oft afgreiðir hann sig svo sjálfur :/
Hann er ekki farinn að labba nema bara með okkur og þorir lítið að labba meðfram einsamall. Hins vegar kemst hann ótrúlegustu leiðir og ótrúlega hratt á rassinum, verður frekar leiður á að liggja á maganum og nennir því ekki. Við erum ekkert að stressa okkur á þessu.
Emil byrjar hjá dagmömmu síðar í mánuðinum, hún er bara rétt í næstu götu, 5 min labb. Hann verður þar frá 8-14 sem gefur mömmunni smávegis vinnufrið heima og hann fær að sjá aðeins fleiri andlit yfir daginn en bara okkur þrjú. Það verður gott að komast í þannig rútínu :)
Mánudagur 31. ágúst 2009
Emil litli yndislegi drengurinn á afmæli í dag. Innilega til hamingju elsku kútur :) Takk líka fyrir allar kveðjurnar, sem hafa aðallega verið á facebook en samt komist til skila í kotið.
Drengurinn er búinn að vera ánægður með daginn, á föstudaginn héldum við reyndar afmælisveislu honum til heiðurs. Þangað komu frændur og frænkur frá Grenivík og Húsavík, að ógleymdum ömmu og afa bæði á Hauganesi og Dalvík og Sóllilja líka. Embla Lind (dóttir Ragga bróður mömmunnar) var í pössun hjá ömmu og afa og það var gaman að fá hana líka í veisluna. Emil var hress með allt fólkið, enda er hann algjör félagfíkill, engin mannafæla og vill helst hafa sem flesta í kringum sig. Við bökuðum eina bangsimon afmælisköku (bangsimon er í algjöru uppáhaldi hjá Emil) og buðum svo upp á léttan kvöldmat, lasagne, pasta, brauð oflr.
Eins fékk litla afmælisbarnið fullt af fallegum afmælisgjöfum, flísgalla frá ömmu og afa á Hauganesi og lítinn hund frá Emblu, útigalla og kuldaskó frá ömmu og afa á Dalvík, lego, bók, púslu, föt og margt fleira fallegt.
Við foreldrarnir og stóri bróðir ákváðum að gefa honum skemmtilegt dót í nýja herbergið sitt, ekki það að hann er búinn að erfa stóran lager frá bróður sínum. Emil svaf nefnilega fyrstu nóttina í sínu herbergi aðfararnótt föstudagsins og líkar það bara ósköp vel.
Á laugardaginn fórum við á ættarmót Hólsættarinnar í Svarfaðardal. Það var mjög gaman og endaði með heljarinnar matarveislu og kvöldvöku að Rimum við Húsabakka.
Á sunnudaginn vöknuðum við snemma og keyrðum austur í Mývatnssveit í réttir. Það var einmitt réttardagsmorguninn í fyrra sem Emil fæddist og hann því sannkallaður réttardrengur. Danni fann sig sem fyrr í hlutverki hliðvarðarins og pabbi hans var duglegur að draga fyrir Steina og Línu. Í hádeginu fórum við svo heim á strönd í stórgóða hangikjötsveislu, og brunuðum heim seinnipartinn.
Mánudagurinn var semsagt afmælisdagurinn og vegna veðurs (leiðinda rigning og kuldi) héngum við bara heima að leika. Emil finnst auðvitað alveg frábært að komast út í garð, eða út á róló sem er auðvitað ennþá skemmtilegra. En við bætum upp fyrir það í vikunni :)
Miðvikudagur 19. ágúst 2009
Emil litli veit fátt skemmtilegra en að labba um, hann er fljótur að finna vísifingurinn á okkur og arkar svo af stað. Hann stendur líka sjálfur við borð og labbar meðfram. Eftir rúma viku verður hann eins árs. Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið. Hann er líka farinn að babla heilmikið en DATT er eina orðið sem hann segir með merkingu, segir reyndar MAMMA þegar hann vantar eitthvað en öskrar það eiginlega frekar en talar. Svo höldum við að hann segi Danni, en það hljómar meira svona eins og "nnni". Á eftir að koma betur í ljós.
Mánudagur 10. ágúst 2009
Emil er alltaf að sýna meiri karakter, enda er hann alveg að verða eins árs gamall :) Hann elskar að hafa stóra bróður sinn heima, því sá eldri á bágt með að láta hann ekki í friði. Þeir geta leikið sér "saman" inni í herberginu hans Danna alveg ótrúlega lengi og passar að hann nái ekki í litla hluti. Matarborðið er svo alveg sér kafli því þegar líður á borðhaldið einkennist stemmningin af grettum, frusskeppni og hláturskrampa.
Emil er fyrst núna að byrja að færa sig um, hann kemst með því að ýta sér áfram á rassinum og eins með því að liggja á maganum og toga sig áfram. Það gengur langbest þegar enginn er nálægt, því ef hann veit að það er einhver sem fylgist með finnst honum alveg fullkomlega sjálfsagt að viðkomandi aðstoði hann eða stytti honum leið með því að færa hann til, þó það nú væri. En langskemmtilegast er að halda í putta og fá að labba með, helst úti í garði á grasinu. Við prófuðum líka að labba með litlu hjólbörunum, þannig að hann heldur í handföngin til að styðja sig við og mamman heldur aðeins aftar á handföngunum og ýtir börunum áfram. Mikið stuð.
Föstudagur 31. júlí 2009
Síðustu daga höfum við verið með góða gesti. Bastian vinur minn frá Danmörku og fjölskyldan hans komu í heimsókn til okkar, Bertram litli bróðir hans (sem er rúmlega 2ja ára), mamma hans Agnete og Bjarne pabbi hans. Við vorum saman í rúma 10 daga, byrjuðum á því að keyra suður með einn lánsbíl frá ömmu og afa á Dalvík þannig að það var pláss fyrir alla. Fyrsta daginn, laugardag, hittumst við á laugarveginum, þá vorum við svolítið feimnir, allavega fyrstu mínútuna, enda alveg ár liðið síðan við hittumst síðast. Danni búinn að tapa svolítið niður af dönskunni og Bastian kominn með einstaklega góðan danskan orðaforða. En eftir ca 10 mínútur skipti engu máli hvaða tungumál var talað, það skildist það sem átti að skiljast.
Við fengum okkur að borða niðri í bæ og fórum svo í sund í Laugardalnum. Emil litli svaf alla leiðina í bílnum og vaknaði ekki fyrr en kl 17 þannig að hann var alveg hress til að fara í sund kl 20 :) Eftir sundið fórum við svo heim í Garðabæinn til Baddýjar frænku, með viðkomu í Kópavoginum þar sem gestirnir gistu.
Á sunnudeginum fórum við saman í Húsdýragarðinn sem var mjög skemmtilegt enda veðrið alveg dásemd. Eyddum þar öllum deginum hjá dýrunum og í leiktækjum. Á mánudeginum var svo ákveðið að fara út fyrir borgina, keyrðum til Þingvalla og fengum okkur hádegismat (vorum mjög dugleg að gera okkur nesti enda erfitt oft að finna mat fyrir svona grislinga á réttum tíma) og keyrðum svo að Gullfossi og Geysi.
Ákaflega skemmtilegt að vera útlendingur í smá stund á Íslandi, tala útlensku og horfa öðrum augum á hlutina í kringum sig. Maður er líka öðruvísi túristi þegar maður er með lítið barn, maður verður mjög mikið var við gott hjólastólaaðgengi (fyrir barnavagninn)
Á þriðjudeginum fórum við svo af stað norður (með smá viðkomu í sænsku húsgagnaversluninni), vorum komin í Skagafjörðinn til hinna dönsku nágrannanna okkar sem elduðu dýrindis kjötsúpu og skyrtertu í eftirrétt. Vorum svo komin heim til Akureyrar seint á þriðjudagskvöld. Næsta dag ákváðum við að taka því rólega og leyfa drengjunum aðeins að leika og hvílast. Fórum samt með strætó niður í bæ og nokkrir fóru í sund á bakaleiðinni en aðrir fóru heim. Fimmtudagurinn var líka afslöppunar- og sunddagur en strákarnir prófuðu líka sundlaugina í Hrafnagili, sem er mjög skemmtileg fyrir litlu gaurana. Þar sem veðurspáin fyrir helgina var ekkert sérstaklega góð var sú ákvörðun tekin að taka ferðirnar í Ásbyrgi og á Mývatn í tveimur ferðum, þ.e. fara ekki í tjaldferðalag. Á föstudeginum keyrðum við því í Ásbyrgi og fórum í Hljóðakletta. Magnað landslag og skemmtilegt að ganga um.
Laugardagurinn var líka pásudagur þar sem litlu drengjunum var leyft að ná áttum með svefntímann, og með tilheyrandi hygge. Á sunnudeginum keyrðum við til Mývatns, skoðuðum fuglasafn Sigurgeirs Stefánssonar, sem var jú frændi mömmunnar, kíktum í Námaskarð, í jarðböðin og í Dimmuborgir, og vorum komin heim á Hauganes til ömmu og afa sem grilluðu mývetnskan silung. Dásamlegur endir á góðum degi. Á mánudeginum var shopping day, þar sem dönsku vinir okkar versluðu eitthvað af íslenskum varningi enda hægt að fá á góðu dönsku verði. Á mánudagskvöld fórum við í mat til ömmu og afa á Dalvík. Á þriðjudag var slappað af og verslað aðeins meira, og fengum okkur svo ýsu að borða um kvöldið. Á miðvikudag uppúr hádegi flugu gestirnir okkar svo aftur suður.
Þetta var merkilegt ferðalag og frábært að fá svona góða vini. Danni var farinn að skilja ágætlega mikið þarna undir lokin en hann talaði bara íslensku við Bastian vin sinn, og á endanum skildist flest allt á milli þeirra.
Emil var mjöög kátur með að fá svona mikið að fólki í heimsókn enda er hann ótrúlega félagslyndur. Hann var líka mjög góður í bílnum og svaf nánast alltaf þegar við keyrðum -við erum með lítinn spegil í aftursætinu sem sést í baksýnisspeglinum og ég varð oft vör við að hann rankaði við sér og leit í kringum sig, og sofnaði svo bara aftur. En oft fannst honum gaman þegar Bertram var eitthvað að grínast með honum og skoða dót afturí.
Það verður gaman að endurtaka þetta að ári :)
Þriðjudagur 30. júní 2009
Sumarið framanaf er nú búið að vera mjög ljúft. Danni hefur aðeins mætt á fótboltaæfingar en honum finnst það ekkert sérstaklega skemmtilegt svo ákefðin er ekki mikil. Hann ætlar hins vegar að fara aftur í fimleikana í haust, alveg ákveðinn á því.
Emil er að fá framtennurnar þessa dagana, sú hægra megin er komin í gegn og örþunnt yfir þeirri vinstra megin. Það eru því miklar breytingar framundan því það er alveg ótrúlegt hvað ásjónan breytist við að fá tennurnar. Hann er líka búinn að skipta yfir í einn lúr yfir daginn, frá ca hálf tólf til tvö. Það virðist duga honum fínt og hann sofnar þreyttur (en ekki útkeyrður) kl átta og vaknar sprækur uppúr sjö. Reyndar vaknar hann svolítið oft á næturna og við þurfum að taka það aðeins í gegn.
Um síðustu helgi fórum við út á Karlsá, sem fyrir þá sem ekki vita er ættaróðal í fjölskyldu mömmunnar. Þeir allra hraustustu slóu lúpínu sem er að vaða yfir allt, aðrir slóu garðinn og gerðu fínan og flottan. Við fórum snemma á laugardaginn og höfðum reyndar ekki planað að gista en gerðum það svo samt, það var ákaflega notalegt. Emil fannst það líka bara allt í lagi, þó svo bandið í mömmuna megi ekki vera mjög langt.
Og talandi um það, um daginn fór ég að kíkja á eina dagmömmu hérna í hverfinu, hún vinnur til tvö. Emil verður ársgamall seinna í sumar og með haustinu er hann alveg tilbúinn til að fara eitthvert út að leika á morgnanna og þá fær mamman líka tíma til að vinna. Við erum hins vegar ekkert að stressa okkur því það vantar börn frekar en dagmömmupláss hérna í bænum og ætlum að sjá til eftir sumafríin.
Danni fer í sumarfrí frá 10. júlí - 10. ágúst. Við erum aðeins búin að plana þann tíma, fáum Bastian og fjölskyldu í heimsókn, sem verður rosalega gaman, og ætlum líka eitthvað austur á Borgarfjörð. Pabbinn fær reyndar ekki langt sumarfrí en við gerum gott úr því sem verður :)
Þriðjudagur 16. júní 2009
Þetta fer náttúrulega bara að verða vandræðalegt. Litli unginn vex úr grasi á ljóshraða og kominn mánuður frá síðustu færslu. Hann er 9 1/2 mánaða þetta barn. Núna er Emil farinn að klappa eins og óður maður. Hann situr ennþá fallegur og duglega í dótinu sínu, ekkert farinn að hugsa sér til hreyfings og mamma hans þakkar fyrir hvern dag án skriðtakta. En á litla sparkbílnum hans Danna er hann farinn að ferðast um og vill helst hvergi annarsstaðar vera, bíllinn er nefnilega "sérútbúinn", með ramma utanum hann (og stýrið) þannig að hann dettur ekki til hliðanna.
Á honum nær hann að fara inn í stofu og toga í dúkinn af sófaborðinu, sem hann veit að færir honum sjónvarpsfjarstýringuna í hönd.
Emil fór í vigtun um daginn, rúmlega 9 mánaða, og er orðinn 8kg og 72.5cm. Við mættum í 9 mánaða mælingu þó svo það sé yfirleitt ekki á dagskránni, en eftirlitið tók eftir svolítilli niðursveiflu í þyngdarkúrfunni, sem er núna búin að jafna sig. Líklegasta skýringin er veikindatörnin í vor á litla manninum þar sem matarlystin var ekki uppá sitt besta og hann snéri sér helst að móðurmjólkinni. Það kom náttúrulega öllu næturgjafaferlinu (sem var búið) í uppnám og við erum aftur komin í að berjast við að hætta að drekka á næturnar. Mamman veit að vandamálið er að mestu leyti hjá henni því í stað þess að sussa drenginn niður og vökva hann með vatni, sækir hún hann í bólið sitt án þess svo mikið sem rumska. Það er einhvernvegin ljúfara.
Danni er líka mjög hress, reyndar fór hann á læknavaktina á þjóðhátíðardaginn, fékk kanilsykur í augað þegar við vorum að krydda hafragrautinn og var alveg ónýtur fram yfir hádegi. Læknirinn veiddi svo lítið kanilkorn úr auganu seinnipartinn og gaf honum sýklalyf/augndropa til að setja í augað og svo íspinna á eftir. Danna fannst það mikið stuð, reyndar svo mikið stuð að núna vill hann fá ís í hvert skipti sem dropinn fer í augað - 3x á dag í 3 daga.
Danni er líka orðinn söngóður, hann syngur allan daginn, skiptir engu máli hvort hann kunni textann eða ekki, það er aukaatriði. Þekkið þið þennan texta t.d.:
"Avinooo meno bissíbei
ívinooo vinooo ?"
Það vann nefnilega eurovision í ár.
Föstudagur 15. maí 2009
Það er alltaf jafn mikið skrifað hér sé ég. Við erum hress og spræk hérna í Heiðarlundinum og stækkum með hverjum degi, á ýmsa kanta. Um síðustu helgi fóru m+p suður í brúðkaupið þeirra Sigfúsar og Hildar. Við fórum eldsnemma á laugardagsmorgun, vorum svo heppin að amma og afi á Dalvík þurftu að snattast í borginni þannig að við fengum far hjá þeim, drengirnir voru svo hjá ömmu og afa á Hauganesi á meðan í góðu yfirlæti. Eftir hádegi á sunnudag keyrðum við svo heim, eftir að hafa kíkt aðeins í Kringluna og IKEA. Emil Ragnar var nú voða glaður að sjá foreldrana og mamman ekki síður glöð að fá Emil til að gefa honum sopann sinn.
Það er búið að vera ævintýralega gott veður hérna síðustu daga, alveg Danmerkurveður. Danni er kominn með freknur og bóndafar eftir útiveruna í leikskólanum, og Emil finnst æðislegt að fá að sitja úti á stétt eða í grasinu en þó skemmtilegast af öllu að sitja í vagninum og horfa fram þegar við sækjum Danna í leikskólann. Emil er nefnilega yfirleitt vaknaður um það leyti sem Danni kemur heim, hann sefur stundum ekki nema 1 tíma fyrir hádegi og við erum heppin ef þeir verða 2 eftir hádegi, sem kemur sér ekkert sérstaklega vel fyrir bisnessinn hennar mömmu. Hún hefur varla undan. Þeir eru þó dottnir snemma á kvöldin þannig að hún nær aðeins að vinna þá.
En já, Emil finnst gaman í vagninum, sérstaklega af því Danni stendur á systkinabretti beint fyrir framan hann svo þeir geta grett sig framan í hvern annan á labbinu heim. :)
Emil er ekki alveg farinn að skríða en hann er farinn að lyfta sér vel upp þegar hann er á maganum og þegar situr getur hann skutlað sér beint niður.
En það merkilegasta er samt sem áður, að fyrsta orðið hans er komið. Þegar hann "missir " eitthvað í gólfið og við segjum DATT, þá segir hann það líka - það er með miklum norðlenskum hreim, hljómar meira eins og DDTT, og honum finnst það rosalega sniðugt. Hann kann líka að smella tungunni í góminn og það er mikið sport. Hann er líka mjög músíkalskur því þegar við hlustum á tónlist eða raulum og syngjum þá dillar hann sér með, voða stuð.
Miðvikudagur 6. maí 2009
Emil er búinn að vera með mikið kvef síðustu daga, fyrst var hann með smá hita með en sem betur fer fór hitinn fljótt, núna vonum við bara að kvefið sé á undanhaldi. Um síðustu helgi ætluðum við nefnilega að fara til Hauganes til ömmu og afa þar sem pabbinn fór suður yfir helgina. Hins vegar varð ekkert úr því þar sem Emil var svo slappur. Danni fór hins vegar með ömmu og afa til Dalvíkur og gisti þar aleinn um sunnudagsnóttina, mikið stuð hjá okkar manni :)
Um næstu helgi er svo aftur suðurferð hjá manninum en núna ætlar hann að taka konuna sína með sér. Þau eru nefnilega á leið í brúðkaup hjá einum besta vini hans Óla. Drengirnir ætla að skemmta ömmu og afa á Hauganesi á meðan.
Það er ótrúlegt en við erum ekki búin að koma til borgarinnar síðan við fluttum þaðan 2006 (fyrir utan eina stutta millilendingu jólin 2007) og höfum reyndar saknað þess afskaplega lítið. Það verður samt gaman að kíkja til Baddýjar frænku og aðeins í búðir.
Miðvikudagur 22. apríl 2009
Takk fyrir afmæliskveðjurnar frábæra fólk :)
Danni er 5 ára í dag, loksins allir puttarnir :) Afmælisdagurinn er búinn að vera afskaplega góður, hann vaknaði og fékk afmæliskossa, knús og söng, og líka pakka auðvitað. Emil litli bróðir gaf honum bingóvél, þar sem hann getur nýtt tölustafakunnáttuna sína vel :) Baddý skildi eftir afmælisgjöf þegar hún kom um daginn og úr hennar pakka kom sagan um Kardimommubæinn, sem Danni hefur aldrei heyrt. Svo var stór pakki frá mömmu og pabba og upp úr honum kom eitthvert hraðskreitt, fjarstýrt tryllitæki.. bíll sem getur oltið og velt og stokkið og égveitekkihvað! Það er svolítið mikill kraftur og hávaði til að hafa þetta tryllitæki inni (það fylgir auðvitað hrossahlátur í drengnum) svo þeir feðgar ætla að fara með það út á morgun og prófa það á hjólabrettasvæðinu hérna við skólann. Grunar að pabbinn eigi ekki eftir að hafa minna gaman en hinn :)
Á morgun ætlum við svo að taka á móti gestum.
Takk aftur fyrir frábærar kveðjur :-*
Þriðjudagur 21. apríl 2009
Eitthvað er fjölskyldan nú löt við að skrifa, nóg að gera þessa dagana enda er vorið komið og grundirnar gróa. Páskarnir voru alveg frábærir, skemmtilegir en samt afslappandi um leið. Við fengum góða gesti, Ari og Axel komu og voru hjá okkur yfir páskana og það var frábært að fá félagsskap. Svo kíktu Kormákur og Fura eitt kvöldið í smá páskaboð og frábært að rifja upp gömul (og stofna ný) kynni. Við fórum líka í páskaboð til ömmu og afa, til Grenivíkur í afmæli og svo til Húsavíkur í síðbúið afmæli.
Já, talandi um afmæli, þá á herramaðurinn Daníel Ólafsson 5 ára afmæli á morgun. Hann er búinn að telja niður alla morgna í apríl, vaknar og það fyrsta sem hann segir er: "núna er sextán... núna er sautján". Hann er reyndar orðinn merkilega fær í að lesa og kann öll hljóðin sem stafirnir gera, svo reynum við að láta stafina haldast í hendur og lesa þá saman. Hann les líka allt sem hann sér, hvort sem það eru útiskilti, fyrirsagnir í dagblöðum (skoðar alltaf blaðsíðutölin) eða umbúðir á eldhúsborðinu. Það færist því til bókar að hann hafi byrjað að lesa fjögurra ára. :)
Á morgun er semsagt afmælisdagur, það verður líka náttfatadagur í leikskólanum og afmæliskaka (sem er bökuð í eldhúsi leikskólans) tileinkuð afmælisbörnum mánaðarins þannig að það er mjög spennandi dagur framundan. Á fimmtudag, sumardaginn fyrsta er svo ætlunin að fá vini og ættingja í smá afmæliskaffi. Við lögðum ekki alveg í að bjóða öllum leikskólavinunum, það gerist bara seinna.
Emil stækkar auðvitað og er svakalega hress. Hann er ekki farinn að skríða en það er sko ekki langt í það. Hann nær að lyfta sér upp og að setja hökuna niður við bringu er það nýjasta. Hann stýrir manni algjörlega þegar maður heldur á honum og veit alveg hvert hann vill fara. Þegar við erum á efri hæðinni er bara eitt sem heillar.. herbergið hans Danna. Þetta verður áhugavert þegar hann fer að ferðast sjálfur. Annars er Danni mjög góður og áhugasamur um bróður sinn og virkilega duglegur að leika við hann og hjálpa honum.
Þriðjudagur 7. apríl 2009
Hérna eru allir búnir að rétta úr sér eftir veikindin, sýklalyfjaskammturinn búinn og eyrnabólgan á bak og burt. Vonandi að það haldist þannig. :)
Um síðustu helgi fórum við í smá bíltúr til Húsavíkur, að heimsækja Palla, Láru og Hildi Gauju. Palli og Hildur áttu bæði afmæli í mars en við komumst í hvorugt skiptið í afmælisveislu. Á Húsavík fórum við í göngutúr bæði niður að höfn og upp að andapolli, það var rosa gaman.
Núna eru að koma páskar og þá fáum við góða gesti í heimsókn en Ari og Axel ætla að koma og vera á fallegu Akureyrinni um páskana, en ekki hvað :)
Emil er orðinn 7 mánaða (ótrúlegt!) og flýgur áfram í þroska. Hann er orðinn ótrúlega sterkur þegar hann liggur á maganum og það er ekki langt í að hann nái að lyfta upp rassinum, allavega nær hann að lyfta maganum upp frá gólfi. Hann er mjög duglegur að sitja sjálfur en þarf auðvitað púða í kringum sig. Og hann er orðinn nokkuð hreyfanlegur líka á gólfinu, í kvöld var hann settur á teppið sitt hjá sófunum en var allt í einu kominn undir borðstofuborðið!
Hann er líka matargat þegar kemur að matnum okkar en er ekkert sérstaklega hrifinn af öllu þessu mauki sem mamma hans kokkar ofaní hann. Honum finnst cheerios allra best, sem og brauð með kæfu og miklu smjöri. Hann vandar sig líka mjög vel að tyggja og horfir á mann á meðan með einbeitningarsvip. Grautinn vill hann helst ekki nema með 70% eplamauki :)
Danni er aftur á móti orðinn talnasérfræðingur. Hann man dagsetningu dagsins alltaf þegar hann vaknar (leikskóladagatalið hangir á ísskápnum og hann skoðar það óspart) hann er líka farinn að telja niður til afmælisdagsins og finnst það merkilegast að þegar hann verður 5 ára þá missir hann tönn! (Ágúst vinur hans er orðinn 5 ára og er búinn að missa tönn!). Við vonum nú samt að hann haldi í þær sem lengst :)
Hann á samt voða erfitt með að gera sér óskalista. Hann segist eiga kubba, playmo, bíla, bækur (segist eiga fleiri bækur en á bókasafninu) svo foreldrarnir eru með svolítinn hausverk varðandi afmælisgjöf. Góðar tillögur eru vel þegnar.
Um síðustu mánaðarmót kláraðist fæðingarorlofið hjá mömmunni svo hún ákvað að starta bisnessnum aftur. Núna er hún orðin WAHM-mie :) Það hafa alltaf verið næg verkefni og hún er alveg bjartsýn á að fá fleiri, en við fer bara rólega af stað á meðan Emil er heima.. en þegar hann er tilbúinn að fara í dagvistun gæti þetta verið komið á betra skrið. En við Emil fórum til bókarans um daginn sem ætlar að sjá um skriffinnskuna og svo er vsk númerið tilbúið þannig að á meðan sá stutti sefur reynir mamman að halda sér við.
en já, fullt af myndum í albúmi :)
Sunnudagur 29. mars 2009
Emil er búinn að vera með mikinn hita síðan á föstudagsmorgun, ca 39.5-.9 og stílarnir hafa ekkert slegið á nema bara tímabundið. Hann er auðvitað búinn að vera rellinn á meðan mesta hitakófið stendur yfir en verður síðan mjög glaður þegar hann nær honum aðeins niður. Í gærkvöldi var hann mjög hress og við héldum að þetta væri nú að verða búið, en þá vaknaði hann um miðnætti alveg í sama gír, og í morgun var sama sagan, sjóðandi heitur. Þá hringdi nú mamman á vaktina og við fórum svo niður á spítala eftir hádegi, til að láta kíkja í eyrun og það var sem okkur grunaði, bansett eyrnabólgan. Emil er því kominn á pensillín, vikuskammt.
Föstudagur 27. mars 2009
Emil er kominn með tennur! Jebbs, neðri gómurinn er búinn að vera bólginn í nokkra daga og í gær gægðist sú vinstri í gegn og í morgun var sú hægri (hans hægri) líka búin að brjóta leiðina. En það var ekki átakalaust, jiminn. En við hlífum ykkur við þeim lýsingum. Besta er að leiðin er greið og nú er bara að gefa drengnum tannbursta í tanngjöf :)
Meiri flensufréttir.. pabbinn á heimilinu lagðist í flensuna á laugardaginn og var nýstiginn uppúr vollinu á miðvikudaginn þegar mamman lá kylliflöt. Sem betur fer tók það fljótt af hjá henni, var samt með mjög háan hita í sólarhring, og svo þennan sama hósta og er búinn að einkenna aðra heimilismenn.
Í gær var útlitið betra hjá öllum og ærið tilefni til að allir færu í heitt bað og fengu nýtt á rúmin (reyndar er bara eitt rúm búið að vera í notkun síðustu daga, guðisélof að það er sæmilega stórt). En í morgun féll svo síðasta vígið þegar tannálfurinn var kominn með hita. Hann gubbaði reyndar í nótt (eftir að það var komið hreint á rúmið, auðvitað!) og svo aftur í morgun. Við vonum bara að hann jafni sig fljótt.
Stóri bróðirinn fór í leikskólann í morgun í fyrsta sinn í rúma viku, enda búinn að bíða eftir þessum degi allan mánuðinn. Það er nefnilega spiladagur í leikskólanum og spilasjúklingurinn tók stafa/minnisspilið sitt með sér. Svo er líka danskennsla og afmæliskaka í dag. Á morgun eru svo fimleikar og vonandi verður heilsan nógu góð fyrir þannig sprikl, allavega finnst honum það ótrúlega skemmtilegt og ekki leiðinlegt að horfa á og fá hvatningu frá frábæru krökkunum í Skólahreysti á þriðjudögum á RÚV, sem eru jú meira og minna fimleikakrakkar. Á miðvikudagsmorgun, þegar hann var ennþá lasinn, sá mamman að hann tók nokkrar armbeyjur með hendurnar á ofninum og fæturna í rúminu, áður en hann fór á fætur. Bara krúttlegt :)
En það er vonandi að sá stutti nái sér fljótt. Hann sefur uppi í rúmi núna sjóðandi heitur. Hitinn er örugglega ekki frá tanntökunni enda tennurnar komnar í gegn. Best að við skellum samt inn nokkrum myndum í albúm.
Laugardagur 21. mars 2009
Síðustu daga hefur Danni verið með flensuna, hita og hausverk, og hefur varla verið líkur sjálfum sér. Emil bróðir hans hefur sloppið (ennþá) og hefur notið þess í botn að hafa hann heima en ekki í leikskólanum. Emil finnst samt svolítið skrýtið þegar hann fær ekki svör frá Danna við spriklinu sínu, venjulega þegar hann spriklar og skrækir á hann fær hann fruss eða kítl til baka en núna er stóri bróðir bara of veikburða til að gefa honum annað en hættu-þessum-hávaða augnarráðið.
En í kvöld var hann reyndar orðinn mun hressari, horfði á Gettu betur til að vita í hvaða tölum liðin myndu enda (hann er OBSESSED yfir tölustöfum þessi misserin, þannig að við erum farin að kenna honum að reikna). Hins vegar á þessum veikindum, plús hlaupabólunni í janúar, þá er drengurinn gjörsamlega að hverfa. Hann er búinn að vera 16kg svolítið lengi, en var núna áðan 15.5kg. Þetta þýðir bara eitt; rjómaís á hverju kvöldi. Hann fær reyndar alltaf smjör út í hafragrautinn á morgnanna en það virðist ekki duga.
Emil bróðir hans er líka farinn að fá smjör á grautinn, og lýsi í eftirmat. Maginn á honum þennst út og í síðustu vigtun, á þriðjudaginn, var hann orðinn 7.4kg og 68cm. Hann fékk líka sprautu sem hann varð svolítið pirraður útaf, annars veit maður ekki alveg hvort það hafi verið það eða tennurnar að láta vita af sér, drengurinn ræðst á allt með munninum og slefar heil ósköp.
Emil er orðinn mjög duglegur að sitja sem er nú mesti munur, og pirrar sig mikið yfir að þurfa að liggja í dótinu því einhverra hluta vegna endar hann alltaf á maganum ;)
Og talandi um mat, mamman er búin að reyna að fara hægt í að venja hann á mat og hann er orðinn mjög góður í þessu fyrsta stigi. Ég reyni að gefa honum að drekka hjá mér áður en matartíminn byrji, bara svo það detti ekki uppfyrir í óðagotinu, því það á að vera aðalmáltíðin hans ennþá.
Hann er búinn að smakka gulrætur, kartöflur, rófur, sætar kartöflur, steinselju, epli, perur, avocado, tómata, banana, ferskjur, plómur, mangó, apríkósur, brauð með smjöri, hafragraut, hrísgraut, kjúkling og lambakjöt (mauksoðið). Við höldum okkur í þessum matseðli enn um sinn, þrátt fyrir að drengurinn sé algjört matargat með vel stillta matarklukku og ráðist jafnvel á bitana manns milli mála. Um daginn vorum við stödd í búð þar sem ég hélt á Emil og horfði í kexhilluna til að finna smá kruð, nema hvað að litla barnið horfði yfir litríku umbúðirnar og byrjaði bara að smjatta! Eins þegar ég hélt á honum og opnaði ísskápinn heima, hann horfði í ísskápinn, svo á mig, setti stút á munninn og smjattaði eins og hann gat. Og fyrir vikið fékk hann banana :)
Klár strákur ;)
Fimmtudagur 19. mars 2009
Danni er heima, lasinn, búinn að vera með hita í dag og mjög slappur. Hann hresstist samt við að horfa á þetta ;)
Föstudagur 13. mars 2009
Þá er komið helgarfrí, enn á ný. Í vikunni kom alveg hellingur af snjó sem er búið að vera gaman að leika í. Emil er orðinn mjög góður af exeminu, enda erum við dugleg að bera á hann eftir bað og eftir matinn. Og talandi um mat, þá er hann að verða mikið matargat, finnst gott að japla á brauði með smjöri, og cheerios. Allt sem klórar í góminn :) Tennurnar eru á leiðinni og eru búnar að ergja þónokkuð.
Í dag var búningardagur í leikskólanum. Danni fór með sjóræningabúninginn sinn í skólann í morgun, og í pósti frá skólastjóranum kom þessi skondna saga sem við megum til með að geyma hérna:
"Ég má til með að segja ykkur frá því að einn kennarinn mætti í jakkafötum og með hatt. Börnin ákváðu strax að hún hlyti að vera bæjarstjóri (hafa sennilega ekki séð Sigrúnu bæjarstjórann okkar eða eru nú þegar komin með fullmótaða staðalímynd af bæjarstjóra). Alla vega var kennarinn með samverustund og börnin sátu stilltari og prúðari en nokkru sinni, þrungin virðingu, og ef einhver truflaði var honum umsvifalaust bent á að hér væri bæjarstjóri mættur og honum bæri að sýna tilhlýðilega virðingu. Nú velti ég því fyrir mér hvort það sé ráð fyrir okkur kennara að fjárfesta í jakkafötum ? :-) "
Emil rúsínubomba
Föstudagur 6. mars 2009
Ég fór með Emil til húðlæknis á fimmtudagsmorgun út af roðanum sem hann hefur verið með af og til í andlitinu síðustu mánuði. Helga Hrönn húðlæknir sagði að hann væri með týpískt barnaexem sem myndi koma og fara af sjálfu sér og það sem hann þyrfti væri bara gott rakakrem. Nújæja, við ætlum að halda áfram að taka skorpur með daktacort og reyna að forðast að verða of heitt sem og vatn og sápur. Það er ágæt grein hérna um barnaexem sem er með góðum ráðum þannig að vonandi að þetta fari að hjaðna. Það er nefnilega þannig að maður er einhvernvegin minna með myndavélina á lofti þegar ástandið er svona, sem á auðvitað samt ekki að skipta neinu máli.
Í dag var rauður dagur í leikskólanum hans Danna, sem þýðir að allir mæta í einhverju rauðu. Danni hefur ótrúlega gaman af þessum þemadögum, föstudagar eru yfirleitt einhvernvegin spes, þá er líka danskennsla en mér skilst að dansinn sé meira í átt að spuna og hreyfingum frekar en hliðar-saman-hliðar. Sem er bara fínt. Það gengur líka vel í fimleikunum á laugardagsmorgnum. Hann hefur kvartað aðeins undan upphitunaræfingunum en þá hlaupa þau til og frá og út um allt en þegar við sögðum honum af hverju það er gert, þe að hita upp, þá skildi hann það betur og var sáttari. Auðvitað, hvers vegna að gera eitthvað sem virðist tilgangslaust :)
Miðvikudagur 4. mars 2009
Um þessar mundir er Emil Ragnar hálfs árs gamall, 6 mánaða. Það er svolítið erfitt þegar maður er fæddur 31. að það er enginn ákveðinn tímapunktur sem maður getur sagt að hann eigi akkúrat mánaðarafmæli. Hefði betur haldið í mér aðeins lengur ;)
En hann er algjört yndi þessi elska, lætur lítið fyrir sér hafa og er einstaklega brosmildur. Hann er strax orðinn vanafastur með matartímann (enda alvöru karlmenni í uppsiglingu), vill fá eitthvað almennilegt að borða uppúr 11 og svo verður hann órólegur uppúr kl 18 og vill fá kvöldmatinn sinn, situr duglegur í stólnum sínum en opnar ekkert endilega munninn, en svo þegar við förum að borða þá heimtar hann auðvitað að fá matinn okkar. En ekki hvað? :)
Það bólar ekkert á tönnsum, nema hvað að hann verður stundum einstaklega pirraður í gómnum og vill bíta í allt og alla. En svo eru það þessi útbrot í andlitinu sem hann er búinn að vera með af og til í marga mánuði. Við erum með krem sem við fengum í 3 mánaða skoðun en svo á morgun á hann tíma hjá húðlækni og þá vonandi komumst við að því hvað þetta er, hvort það er ofnæmi eða exem og fáum þá betri lausn. Þetta er voða leiðinlegt og pirrandi.
Hann er orðinn snillingur að velta sér yfir á magann en er ennþá svolítið ragur að fara til baka. En hann er samt kraftmikill. Um daginn var hann kominn út af teppinu sínu og út á parketið og var orðinn frekar mikið pirraður, hann ýtti sér þá afturábak með höndunum og setti nefið niður í gólfið og slefaði á það þannig að það lá taumur á parketinu eftir hann.. svona eins og lítill snigill.. heh. (Sem betur fer var það hreint, nýbúin að skúra..)
Hann er alltaf að verða meira og meira hrifinn af bróður sínum, elskar að hoppa með honum og grínast yfir matarborðið. Hann er líka mikil kelirófa og elskar að fikta í hári, bæði mömmunnar og sínu eigin. Þegar hann er að sofna þá togar hann í hárið á hnakkanum á sér, engin furða að það er síðara þar en annarsstaðar :) Hann er góður í að leika sér með dót og flottar fínhreyfingar, náttúrulega takkasjúkur hvort sem það er fjarstýring eða tölvan.
Síðustu daga hefur hann verið svolítið kvefaður og í dag ákvað mamman að láta hann sofa inni - þvílík mistök, það er bara ávísun á vökudag, hann byrjaði á því að sofa inni í vagninum, svona til að *plata* strákinn en hann lét ekki gabba sig þar, var vaknaður eftir hálftíma. Svo náði hann 3 korterum inni í herbergi en er annars bara búinn að nudda augun og þrjóskast. Rútínan er sterk og yfirleitt ekki vert að breyta út af henni... hann kallar..
Mánudagur 23. febrúar 2009
nokkrar nýjar myndir í albúmi :)
Laugardagur 21. febrúar 2009
Merkisdagur í dag (gær). Emil lá á bakinu og var að leika með eitthvað dót, eða meira svona að glíma við dótið. Svo tók minn sig til og sparkaði upp í loftið af svo miklum krafti að hann rúllaði yfir á magann! Jább, orkuboltinn!
Hann er þessa síðustu daga orðinn mjög mobile á gólfinu, er oftast búinn að snúa sér 180° á teppinu sínu eða kominn út af því. Hann elskar líka lætin í Danna og vill helst bara vera í herberginu hans :) Hann er orðinn duglegur að borða, bæði í hádeginu og á kvöldin, en honum finnst grautar samt ekkert sérstaklega góðir. Ég gaf honum að smakka avocado um daginn og honum fannst það alveg æði, svo vill hann naga og sjúga epli og melónur, eða helst borða bara það sem við erum að borða :) Í morgun þegar ég var að borða cheeriosið mitt og hann hamaðist við hliðina á mér og vildi fá líka, þá braut ég ca 1/3 af cheerios hring og stakk upp í hann og þvílíkar nautnastunur!.. :D Hann tuggði það og velti um í munninum, alveg ótrúlega flinkur. Hugurinn hans er greinilega kominn aðeins lengra í þessum matarpælingum en meltingin enda er hann rétt að skríða í 6 mánaða núna, svo ég vil nú helst fara svolítið hægt í þetta.
Við Danni erum búin að ná okkur af kvefinu sem við náðum í, svona nokkurn veginn. Á morgun er það hefðbundin dagskrá, fimleikar og sund.
Þriðjudagur 17. febrúar 2009
Öskudagurinn nálgast, best að undirbúa sig vel:
Miðvikudagur 11. febrúar 2009
Emil fór í 5 mánaða skoðun og sprautu í morgun, við frestuðum því um viku út af hlaupabólunni um daginn. Hann er orðinn rúmir 67cm og 6.8kg. Hann fékk bók um barnatennurnar hjá hjúkkunni og var að skoða hana þegar hann var sprautaður, hún var svo áhugaverð að hann leit ekki einusinni upp þegar hann var stunginn. Algjör hetja.
Hjúkkan sagði að þó hann væri vel haldinn mætti hann alveg fara að fá soðið grænmeti og svoleiðis í bland við grautinn. Við erum aðeins farin að glugga í baby uppskriftabókina sem við keyptum í Danmörku, uppskriftir að allskonar mauki. MMmmmm...
Þriðjudagur 10. febrúar 2009
Það er ýmislegt búið að bralla síðustu daga. Í dag kom Sóllilja vinkona að leika í smástund en Danni er búinn að tala um að vilja fá hana í heimsókn síðan fyrir helgi :) Um helgina vorum við á Dalvík, en þau gömlu fóru á Þorrablót í Árskógi með familíunni á Hauganesi. Rosalegt stuð og þurftu engar áhyggjur að hafa af litla guttanum sem var einstaklega þægur hjá ömmu og afa á Dalvík, drakk sinn pela og spjallaði af sinni einkunnu list.
Frábært að eiga svona duglega stráka :)
Á laugardaginn fóru Danni og mamman á skíði í Dalvíkurfjalli og reyndar Guðný frænka líka. Danni fékk lánuð skíði hjá Degi frænda sem voru pússuð í vikunni og hann stóð sig mjög vel. Fórum nokkrum sinnum upp í lyftunni en ekki mjög langt. Það var samt alveg rosalega fyndið að fara upp, fannst honum, að hann átti erfitt með að standa í fæturna á leiðinni niður, hann hló svo mikið. Danni sagðist helst vilja fara upp á topp og rosalega hratt niður.. heh.. kannski seinna.. eða ekki :)
Emil er núna auðvitað orðinn 5 mánaða. Vá hvað tíminn líður. Honum er að takast betur að sofna á kvöldin, yfirleitt hefur hann vaknað eftir klukkutíma til að spjalla og vakað þá fram að háttatíma foreldranna. Núna er hann að ná að sofna, vaknar uppúr miðnætti til að fá sopa, svo stundum um fimm leytið og svo um morguninn.
Hann er líka byrjaður að borða graut, fyrst smá hrísmjölsgraut en núna baby-hafragraut, sem er blandaður soðnu vatni og mömmumjólk. Hann hefur fengið bara smá smakk fyrstu dagana en er greinilega alveg að fíla þetta, því í kvöld varð hann alveg brjálaður þegar við vorum að fara að borða og hann var ekki búinn að fá grautinn sinn (var ný vaknaður aftur um 6 leytið, svaf ekki úti og var því í svefnrugli í dag). Mamman varð að gjöra svo vel að taka pásu á matartímanum og blanda handa honum graut. Það var vel þegið.
Hann horfir á eftir hverjum bita sem við borðum og vill líka smakk, fær stundum að sjúga epli og perur og er góður í að drekka vatn af brún á glasi.
Ungbarnasundið er búið að vera í pásu í nokkur skipti vegna kulda, það er voða erfitt þegar það er mikið frost því gluggarnir við innilaugina eru svo illa einangraðir að það verður svo rosalega kalt. En á laugardaginn er jafnvel spáð hita yfir frostmarki svo það verður stuð þá. Síðast fór Emil í kaf en varð alveg hryllilega móðgaður við það uppátæki... spennandi hvað gerist næst....
Á morgun er svo 5 mánaða skoðun + sprauta. Við frestuðum tímanum út af hlaupabólunni, þannig að ónæmiskerfið sé örugglega í lagi.
Komnar myndir í albúm!
Sunnudagur 1. febrúar 2009
Það var svo dásamlega fallegt veður í dag að við vorum úti næstum allan daginn. Danni og Óli fóru með snjóþotuna í Jólasveinabrekkuna (sem er hóll fyrir ofan lundahverfið) fyrir hádegi og renndu sér og eftir hádegi þegar Emil var að fara í lúrinn fóru mamman og Danni upp í Hlíðarfjall, leigðu sér skíði og renndu sér í eina og hálfa klst. Barnasvæðið er svo skemmtilegt, þar er lyfta sem heitir töfrateppið og er bara færiband á jörðinni og Danni komst alveg sjálfur í gegnum það og vildi svo bara bruna sjálfur niður :) Við byrjuðum á að renna okkur saman en svo kom sjálfstæðisbaráttan upp í honum og hann vildi bara fara einn upp og ég átti að bíða niðri.. haha.. neinei, en mamman var farin að sleppa honum í síðustu ferðunum og hann vildi bara bruna beint niður.. Hann gerði það nokkrum sinnum og mamman renndi sér á eftir honum og öskraði: SESTU NIÐUR!!.. en hver heldurðu að vilji setjast niður þegar maður er á fullri ferð og rosalegt fjör! je right!
Það var nú annars merkilegt hvað hann stóð í lappirnar í þessari fyrstu skíðaferð :)
Núna langar okkur mest að kaupa okkur skíði svo ef það er einhver lesandi sem lumar á notuðum græjum (barna eða jafnvel fullorðins) inni í geymslu þá má endilega hafa samband. :) Í þessari krepputíð er náttúrulega búið að hreinsa upp notaða lagerinn í Skíðaþjónustunni, en við ætlum samt að tékka þar í vikunni.
Svo skilst mér að það eigi að viðra vel í Dalvíkurfjalli um næstu helgi :)
Föstudagur 30. janúar 2009
Slatti af nýjum myndum í albúminu :)
Danni var á þorrablóti í leikskólanum í dag, rosalegt stuð. Það var sett upp langborð og svo fengu allir að smakka þorramat - allan pakkann! Danna fannst sviðasultan best en var ekkert að smakka hákarlinn eða hval, en svo var líka hangikjöt og súrsaðir hrútspungar og annar súrmatur. Allt í lagi að kynnast því þó svo maður smakki það ekki :)
Hann gerði líka þennan fína víkingahjálm fyrir Þorrablótið, og svo áttu allir að mæta í ullarpeysu eða ullarsokkum.
Og það er líka mikið framundan á leikskólanum, í febrúar byrjar danskennsla og verður á föstudögum, og svo verður líka dótadagur, púsldagur, slaufudagur og rugludagur, en þá fer allt á hvolf! Svo er öskudagur seint í febrúar og þá fer hópurinn á stjá í hverfinu og syngur fyrir nammi og slær köttinn úr tunnunni. Bara stuð framundan, en líka svolítill lærdómur. Núna er verið að kenna krökkunum nokkuð sem kallast SMT skólafærni (SMT stendur fyrir school management training) og er jákvæður stuðningur við hegðun barna.
Þessa dagana eru þau að læra reglurnar svo að það er nóg að gera. Myndasíða leikskólahópsins er hérna ef þið viljið fylgjast með.
Á morgun eru svo fimleikar kl 10 og ungbarnasund kl 12, Danni segist vera með 0 hlaupabólur (það er allt í tölum þessa dagana) svo hann má koma með í sund :)
Fimmtudagur 29. janúar 2009
Hérna megin eru allir að verða góðir af hlaupabólunni, Emil er ennþá með nokkur sár og Danni bara rauða flekki sem eru að hverfa. Þá er það úr sögunni thank god.
Það er alveg ótrúlegt að Emil er að verða 5 mánaða. Rosalegt hvað tíminn líður hratt. Hann er farinn að setja hendurnar upp á móti þegar maður spyr "hvort hann vilji koma".. hann hlær á móti manni og stundum hlæjum við til skiptis hvort framan í annað í dágóða stund. Hann þekkir orðið "dudda" og kinkar brosandi kolli þegar maður býður hana. Honum finnst dásamlegt að liggja sjálfur í baðkarinu með vatn uppfyrir eyrun, kíkir til hliðar af og til en passar sig vel á að fá ekki vatn í augun, svo spriklar hann í vatninu eins og hann eigi lífið að leysa. Hann er ótrúlega forvitinn og félagslyndur en umfram allt ótrúlega þægur og ljúfur.
Um helgina fær hann í fyrsta skipti að smakka graut, nokkrar teskeiðar. Hann gæti samt alveg beðið lengur en hann er mjög spenntur að horfa á okkur borða, er farinn að slefa mun minna (sem þýðir að hann er farinn að færa munnvatnið aftur en ekki fram) og er að vakna á kvöldin og vilja drekka alveg endalaust. Sem betur fer er nóg til en það er allt í lagi að byrja að smakka og undirbúa sig hægt og rólega. Danni var líka 5 mánaða þegar hann byrjaði að borða og hann er enn að :)
Danni er alveg einstaklega upptekinn af tölum og bókstöfum. Hann þekkir alla stafi bæði hástafi og lágstafi, og er farinn að læra hljóðin líka og vill vita hvernig á að stafa alla hluti. Í leikskólanum spila þau oft Glói geimvera í tölvunni en hann er líka duglegur að benda á stafi í fréttablaðinu sem pabbi hans les á morgnanna og fyrirsagnir í fréttatímanum á kvöldin. Varðandi tölustafina þá truflar það ennþá svolítið þetta sem hann lærði í Danmörku, að segja aftari stafinn á undan, t.d 21 það er 1 og 2.
Það hefur ekki verið mikið um vinaheimsóknir í janúar út af veikindum, en hann er samt búinn að fara einu sinni til Ágústar, sem á heima rétt hinumegin við KA völlinn, og hann er búinn að koma hingað líka.
Miðvikudagur 21. janúar 2009
Emil litli sæti er kominn með hlaupabóluna og sofnaði í doppóttum kalamín-áburðar búningi .. þessa ræðu hélt hann um daginn:
Emil flytur ræðu from daia reykjalin on Vimeo.
Obbossí, nú þegar Danni er að hrista af sér hlaupabólurnar er Emil kominn með 13 flykki og fer fjölgandi. Hann er samt ekkert heitur eða pirraður, vonandi stendur hann þetta bara vel af sér.
Mánudagur 19. janúar 2009
Danni er orðinn nokkuð hress af hlaupabólunni, það eru ennþá nokkur sár á húðinni og "hreistur" en hann fór í leikskólann í morgun og er nokkuð kátur.
Við fórum reyndar til Dalvíkur á laugardaginn og í afmæli til Sóllilju í gær, þannig að við erum aðeins búin að skipta um umhverfi. Hann er hins vegar búinn að missa 2x af fimleikatímum þar sem hann var skráður, við ætlum að athuga hvort hann hafi nokkuð misst of mikið úr, en þetta eru 10 skipti.
Við Emil er búinn að fara 2x í ungbarnasund. Honum finnst það algjört æði! Á laugardaginn var sundið reyndar kl 12, eða akkúrat á svefntímanum hans en það gerði ekkert til, hann spriklaði alveg jafn mikið. Um leið og hann kemur ofan í laugina leggst hann á magann og buslar með fótunum, tekur nánast sundtök.
Hann er líka nagóður þessa daga og vill helst naga á sér hnúann, það bólar reyndar ekkert á tönnum, enda fékk Danni ekki tennur fyrr en um 7 mánaða.
Pabbinn meiddi sig svo aðeins í rifjunum, búinn að vera með verk síðan fyrir helgi og fór til læknis í dag. Sem betur fer er þetta ekki alvarlegt, tognun í brjóstvöðva, en það gæti sett strik í reikninginn varðandi armbeyjukeppnina í vinnunni ;)
Þriðjudagur 13. janúar 2009
Danni stendur sig ótrúlega vel í þessu hlaupabóluveseni. Sem betur fer klæjar hann ekki mikið þannig að hann sefur ágætlega, sagði meira að segja í morgun að honum liði "ROSALEGA VEL". Það er ágætt. Hann er samt ennþá útsteyptur en maður sér að bólurnar eru að eldast og hjaðna.
Eftir að pabbinn kom heim fórum við Emil í fyrsta tímann í ungbarnasundi. Emil ætlar ekki að verða minni sundgarpur en bróðir sinn, hann spriklaði allan tímann og hamaðist og var rosalega duglegur :) Hann stóð í fæturna í lófanum á sundkennaranum þráðbeinn í smá stund þó svo ég hafi átt í smá erfiðleikum með að fá hann til að standa því hann spriklaði svo mikið. Svo hélt hann niðri í sér andanum og fékk yfir sig vatnsgusur og verður örugglega mjög duglegur í að kafa eftir nokkra tíma :)
Fimmtudagur 8. janúar 2009
Það hlaut að vera! Danni er ekki búinn að vera neitt eðlilegur í nokkra daga, slappur og sljór og lítið getað sofið. Þegar við sóttum hann í leikskólann í dag var ástæðan augljós: hlaupabóla. Hann er kominn með nokkrar bólur í framan og smá á búkinn en ætli morgundagurinn og helgin fari ekki í hjúkrun. Best að byrja á því að klippa niður neglurnar...
Emil er ekki kominn með neinar bólur og vonandi fær hann ekkert núna, því það er ekki víst að hann myndi ónæmi fyrir 6 mán og myndi því ekkert "græða á því" að fá hlaupabóluna núna, þe fengi hana sennilega aftur. Við þurfum að hringja í hjúkrunarfræðinginn í ungbarnaeftirlitinu á morgun til að vera viss um að þetta sé ekki skaðlegt. Auk þess erum við að setja aðra umferð af daktacort á kinnarnar á honum út af útbrotunum (hringdi í hana á þriðjudag út af því) og það má ekki nota það á húðina ef það er veirusýking eins og hlaupabóla í húðinni.
Annars erum við búin að skrá okkur í ýmislegt skemmtilegt. Ungbarnasundið byrjar í næstu viku og það verða fjölskylduferðir 2x í viku og svo er stóri strákurinn skráður í fimleika hjá fimleikafélaginu sem byrja um helgina en hann er löglega afsakaður til að byrja með. Svo fóru feðgar á skautaæfingu til prufu í gær sem voru mjög skemmtilegir. Danni er allavega búinn að prófa dimmalimm og eltingaleik á skautum :)
Pabbinn er svo líka kominn í "átak" hjá Átaki, fer í hádeginu að hlaupa og á körfuboltaæfingar í hverri viku, svo skilst mér að það sé komin armbeyjukeppnistemmning á vinnustaðnum. Úff. Mamman er bara heima í át-taki ;) heh
Bestu kveðjur frá veikindavígstöðvunum.
Miðvikudagur 7. janúar 2009
Rútína... hvað er það?
Danni er búinn að vera frekar mikið ringlaður síðustu daga og nætur. Hann hefur ekki náð heilli nótt í þrjá sólarhringa. Í gær var fyrsti dagurinn í leikskólanum eftir jólafrí. Hann sofnaði uppúr kl 21 kvöldið áður en vaknaði ca 2 um nóttina og var vakandi í tvo tíma. Auðvitað var ekki sjens að fá hann til að vakna kl átta þannig að pabbi hans fór í vinnuna og hann fór ekki í leikskólann fyrr en uppúr hádegi. Í nótt vaknaði hann aftur, fór á klósettið kl hálf fimm og gat svo ekkert sofnað aftur, spurði á hálftíma fresti hvort það væri kominn dagur og hvort við gætum farið niður að borða. Þegar við vöknuðum fyrir alvöru uppúr hálf átta varð hann þvílíkt glaður og samkjaftaði allan tímann, greyið búinn að liggja á milli okkar í þrjár klst án þess að geta sofnað, og mega ekki fara fram.
Hann fór svo í leikskólann hálf níu eins og vanalega, og ég hringdi þangað uppúr tvö til að athuga hvort hann væri nokkuð sofnaður. Við Emil ætlum svo að fara og rölta eftir honum núna.
Held það sé nokkuð ljóst að drengurinn þarf að fara að borða hafragraut fyrir svefninn og fara oft á wc áður en hann sofnar til að ná heilli nótt.
Emil er hins vegar síðastur til að opna augun á morgnanna, enda sefur hann uppvið forðabúrið sitt og nærist eftir behov ;) almáttugur þegar þarf að fara að taka á því!
Laugardagur 27. desember 2008
Gleðileg jól kæru lesendur nær og fjær!
Við höfum lítið látið í okkur heyra en höfum það alveg óskaplega gott. Fjórða sunnudag í aðventu (21.) skreyttum við jólatréð okkar svo það stóð í nokkra daga fyrir jól í fullum skrúða. Á þorláksmessu eftir vinnu hjá pabba brunuðum við með fullan bíl út á Dalvík til Gauju ömmu og Ragga afa og komum ekki heim fyrr en í gær. Jólahaldið hófst á árlegu síldarkvöldi hjá Guðnýju og Sigga þar sem margar tegundir af síld voru í boði, einstaklega ljúffengt fannst foreldrunum a.m.k. Danni smakkaði smá síld en var síðan afsakaður og fékk að halda áfram að borða rúgbrauðið sitt. Á aðfangadag var lífinu tekið með ró, m.a. kíktum við yfir á Hauganes og drengirnir fóru í jólabaðið, sem var nú ósköp hefðbundið bað samt ;)
Þegar jólin komu biðum við í smástund eftir Ragga afa en hann var að syngja í kirkjukórnum kl 18 og kom rétt fyrir sjö. Við elduðum rjúpur á tvenna vegu, mamma eldaði eins og hún er vön að fá, fylltar með þurrkuðum ávöxtum, vafðar með beikoni og steiktar í ofni, Gauja amma eldaði þær svo á sinn hátt, steiktar upp úr smjöri og svo soðnar í potti. Útkoman var stórglæsileg á báða vegu og eftir jólamatinn sátu allir á blístri.
Danni var ótrúlega þolinmóður á meðan við biðum eftir matnum og líka þegar var verið að ganga frá eftir matinn. Hann fékk samt að taka smá forskot á sæluna og opna nokkra pakka. Þeir bræður fengu ógrynni af fallegum gjöfum og við viljum nota tækifærið og þakka kærlega fyrir þá og okkur!
Jóladagur var látlaus og rólegur eins og jóladagar eiga að vera. Danni sökkti sér ofan í Latabæjar spilabókina sem hann fékk frá Grenó. Á annan í jólum hittum við móðurfjölskylduna á Karlsá, sem er ættaróðalið sem stendur við Ólafsfjarðarmúla. Þar er dásamleg brekka frá bænum og niður eftir túninu sem er tilvalin fyrir sleðaferðir, sama hversu mikill snjór er í brekkunni :)
Semsagt, um kvöldið annan í jólum vorum við komin heim í Heiðarlundinn, við fengum góða gesti í dag þegar Palli, Lára og Hildur Gauja komu með foreldra sína, og pabbi eldaði dýrindis fiskisúpu. Danni verður í jólafríi til 6. janúar og það er spurning hvort hann þurfi ekki bara nýja aðlögun eftir svona langann tíma ;)
Þriðjudagur 23. desember 2008
Það eru nokkrar nýjar myndir frá heimsókninni til Jólasveinanna í Dimmuborgum og myndir af Emil í skírnarkjólnum í myndaalbúminu :)
Þriðjudagur 16. desember 2008
Seinnipartinn á sunnudaginn þann 14. des var Emil litli skírður, í Dalvíkurkirkju. Hann var nývaknaður og fékk sér smá sopa áður en við fórum af stað svo hann var mjög sprækur og hress í kirkjunni. Horfði sperrtur yfir allt fólkið sitt sem beið eftir að heyra mömmuna segja nafnið hans. Sem er Emil Ragnar Reykjalín. Ragnar er í höfuðið á afanum í móðurættina. Pabbinn spilaði svo undir söng á gítarinn sinn og Ragnar afi og Gauja amma fóru með heilræðavísur. Þetta var allt mjög látlaust og fallegt. Eftir skírnina fórum við heim í Sunnubrautina til Gauju ömmu og Ragga afa og buðum gestum að borða, fisk frá Ektafiski og kökur, m.a. sem mamman bakaði. Hulda frænka gerði svo óaðfinnanlega kransaköku. Þetta var frábær dagur og vel lukkaður, og allir ánægðir með nafnið vonum við. Sá stutti er allavega hæstánægður.
Á föstudaginn voru haldin litlujól í leikskólanum hans Danna. Það var dansað í kringum jólatré og Jólasveinninn kom að sjálfsögðu í heimsókn. Danni er búinn að vera svolítið smeykur við allt þetta jólasveinadæmi enda er hann eiginlega að upplifa það í fyrsta sinn. Þetta eru nú líka frekar furðulegir og óútreiknanlegir karlar. Á morgun ætlar öll deildin hans að fara með rútu í Jólahúsið í Eyjafjarðasveit, og það verða einhverjir jólasveinar þar líka. Mjög gaman, vonandi fáum við að sjá myndir á myndasíðu deildarinnar í vikunni.
En það eru nokkrar myndir komnar inn á myndasíðuna okkar, bæði frá litlu jólunum og líka úr skírninni.
Föstudagur 12. desember 2008
Það er búinn að vera svolítill jólapúki í stóra strump síðustu daga. Hann segist ekki vilja halda jól og finnst ekki gaman að finna gjafir handa öðrum (sennilega svolítið self-centered skeið). Honum líst ekkert á jólasveinana og fannst ekkert spennandi við að setja skóinn út í glugga í gærkvöldi. Þegar maður hugsar út í það þá er það svolítið ógnvekjandi að það komi jólasveinn (sérstaklega þeir sem eru á mjólkurfernunum) og heimsæki mann þegar maður er sofandi!! úff. En út í glugga fór skórinn samt og þegar sá stóri vaknaði um morguninn og leit ofaní skóinn sinn (það sást nefnilega ekkert ef maður dró bara frá gluggatjöldunum) þá sá hann skopparabolta og sagði með miklum gleðibrag: "Þetta er nú fallegt!"
Litlu jólin verða haldin í leikskólanum í dag og þá vonandi breytist stemmningin eitthvað. Öll fjölskyldan ætlar allavega að mæta.
Litli strumpur er hress og kátur, búinn að finna hendurnar sínar og náði í gærkvöldi, eftir nokkrar tilraunir, að setja snuðið upp í sig sjálfur! Hann er líka búinn að finna tunguna sína og er ullandi út í eitt, stóra bróður til mikillar kæti. Um helgina ætlum við að láta skíra drenginn, þá fær hann "langt nafn" eins og einn frændi hans orðaði það, fannst ósanngjarnt að Danni héti "Daníel Skíði Reykjalín" en bróðir hans bara "Emil" ;)
Annars er hann svo óskaplega þægur að maður ætti að reyna að fá Kára í Decode til að finna "þægigenið" í honum, gætum grætt hellings.
Miðvikudagur 10. desember 2008
Vegna fjölda áskorana birtum við hérna óskalista fjölskyldunnar, ef einhver jólasveinn er á ferðinni.
Danni: jogginggalli, spil, latibær (anything goes), Wall-e, skór/inniskór (nr 28/29), geisladiskar, Dalvíkursleðinn,
Emil: hringlur til að festa í vagninn eða bílstólinn, bílstóla/kerruteppi () húfa+vettlingar í stíl, útiföt, bolir,
Mamman: ermalaus ullarpeysa, Sigurrós, Emiliana Torrini, Bækur (Stefán Máni - ódáðahraun, Ævar Örn Jósepson - Land tækifæranna)
Pabbinn: þunnir svartir vettlingar, bækur (Arnaldur, Hallgrímur Helga), munnharpa,
Sameiginlegt: rúmteppi, útihitamælir, vöfflujárn, eldhúsvog, þrífótur eða flass á myndavélina,
Sunnudagur 30. nóvember 2008
Veikindi eru búin að vera einkennandi síðustu daga en samt er þetta bara svona semi-slappleiki í stóra stráknum, sem kemur og fer. Við höfum brallað ýmislegt inni á milli, á fimmtudaginn síðasta var foreldraföndur í leikskólanum, þá kom mamman í leikskólann og föndraði með Danna, máluðum glimmer á köngla, bjuggum til engil og jóladúk með eplastimpli. Mjög gaman. Á föstudag komu svo jólasveinar frá Möguleikhúsinu í heimsókn. Ég spurði Danna eftir leikskóla um jólasveinana, en hann þverneitaði fyrir það að jólasveinar hefðu komið í heimsókn... sennilega af því þeir voru ekki í rauðu ;)
Hann er búinn að taka ástfóstri við einn pappakassann síðan úr flutningunum (ekki náð að henda honum út) og getur dundað sér tímunum saman við að byggja með honum hús. Svo kallar hann "BRÚ" og hendir niður einni hliðinni á húsinu - svona eins og Íþróttaálfurinn gerir úr loftskipinu sínu. Best var samt þegar hann stóð fyrir framan tröppurnar hérna í íbúðinni og kallaði "STIGI" og þaut svo upp tröppurnar ;)
Á sunnudag fórum við til Dalvíkur til Guðnýjar frænku og skárum út laufabrauð - eða horfðum á hina skera út, réttara sagt :) Pabbinn fór í rjúpur á meðan og bjargaði þar með jólamatnum. Það var mjög gaman en Danni var samt eitthvað óvenju rólegur. Hann sofnaði í bílnum í hálftíma þegar við keyrðum heim um kvöldmatarleytið, og ætlaði svo aldrei að geta sofnað um kvöldið, ekki fyrr en eftir miðnætti. Af því hann var svo þreyttur á mánudagsmorgun fór hann ekki í leikskólann (þvílíkur lúxus að eiga mömmu í fæðingarorlofi) heldur tók á móti gestum. Kormákur og Fura komu í heimsókn eftir hádegi og sömuleiðis Embla Lind litla frænka.
Í morgun var hann svo hress en varð svo slappur þegar leið á daginn svo það var hringt í mömmuna og hún kom að sækja hann.
Það er búið að vera rosalega kalt hérna á Akureyri síðustu daga, -10°c í dag og alveg nógu mikill snjór. Jólaljósin eru líka að koma upp í hverjum glugga og það birtir til þegar snjórinn er svona yfir öllu.
Emil varð 3 mánaða um helgina og í dag fór hann svo í 3 mánaða skoðun og vigtun (og sprautu!). Hann er orðinn 5670gr og 62.8cm, algjör moli. Hann er búinn að vera svolítið rauður og þrútinn í andlitinu og með hitabólur. Þetta hefur aukist síðustu daga af því hann hefur alltaf sofið inni - ekki hægt að setja hann út í þennan kulda þó svefnpokinn hans haldi alveg frostinu. Hjúkkan og læknirinn héldu að þetta væri jafnvel barnaexem en þetta er samt bara í andlitinu og aðeins niður á bringu eins og hormónabólur. Læknirinn skrifaði uppá daktacort því hann hélt að það gæti jafnvel verið sýking í því. Vonandi fer honum að líða betur, við ætlum líka að bera aloe vera á það til að kæla og veita raka. Sprautan var ekki mikið mál, smá sjokk þegar stungan kom en batnaði við duddu og mömmuknús. Annars er hann ofur hress og sprækur, finnst frábært að horfa á andlit (og Latabæ!) og spjalla við fólk, og sefur líka vel og er duglegur að sofna sjálfur knúsandi Badda sinn :)
Mánudagur 24. nóvember 2008
Síðasta vika einkenndist af svolitlum slappleika hjá stóra bróður. Á þriðjudagsnótt svaf hann illa og hóstaði mikið svo hann fór ekki í leikskólann þann dag. Af því hann var veikur gaf litli bróðir honum nýjan DVD disk með Latabæ (svo að hann á núna nr 2,5 og 7) og sá diskur fékk að rúlla nokkra hringi. Það góða við að horfa á Latabæ er að í upphafi og endi hvers þáttar stendur hann upp og hreyfir sig í takt við tónlistina, hann er ekki slappari en það ;) Á miðvikudaginn fór hann svo í skólann en á fimmtudagsmorgun var hann aftur farinn að kvarta, var núna illt í maganum og vildi bara sitja og horfa á Latabæ. Hann var svolítið glansandi í augunum og ekki með mikla matarlyst svo hann fékk að vera heima, en fékk ekki að horfa fyrr en eftir kl þrjú, sem var ógurlega trist og ósanngjarnt.. en mamman vildi ekki hætta á að hann væri að gera sér upp veikindi til að fá að sitja (eða dansa reyndar) fyrir framan imbann. Í staðinn lék hann sér bara í herberginu. Föstudagurinn var eins, það er einhvernvegin erfitt að taka ekki mark á barninu ef hann segist vera illt í maganum og lítur ekki út fyrir að vera upplagður í leikskólastarfið. Hann sat og teiknaði, virkilega krúttlegar myndir af fjölskyldunni sem við eigum eftir að skanna inn og setja hérna í albúmið. Hann teiknaði líka myndir af sjónvarpi og af íþróttaálfinum í sjónvarpinu, svo situr hann og horfir á blaðið. hehe.
Það er eiginlega núna fyrst þegar við fluttum heim að hann er kominn með þetta íþróttaálfsæði, hann sá þá alveg þegar við vorum úti en var ekkert að kveikja á þessu. Verst að geta ekki fundið disk með dönsku tali handa Bastian.
Sá yngri er líka farinn að stjórnast, hann lyftir brjóstkassanum og reygir sig upp þegar hann vill láta taka sig, og ef maður heldur á honum vill hann alltaf vera á hreyfingu - ef maður stoppar, þá ýtir hann sér fram til að fá mann til að fara af stað!
Hann fer í bað með bróður sínum ca annan hvern dag, í gærkvöldi fór Danni á undan ofan í baðið og skrúfaði aftur frá vatninu þegar ég var búin að skrúfa fyrir og farin fram, þannig að þegar ég kom inn aftur með Emil var baðkarið að verða fullt af vatni ;þ Þegar Emil fór með tásurnar og bossann ofaní vatnið rak hann upp þennan líka skellihlátur, alveg orgaði af hlátri. Stóra bróður fannst það heldur ekkert lítið fyndið! ;)
Föstudagur 14. nóvember 2008
Mamman verður nú bara að færa til bókar hvað Emil er duglegur og góður strákur. Á miðvikudaginn svaf hann frá hálf tíu um morguninn til fimm um daginn, rétt rumskaði í hádeginu til að fá sér sopa en opnaði ekki einusinni augun þannig að mamman var ekkert að skipta á honum. Alla fimmtudagsnóttina svaf hann eins og steinn og við urðum ekkert vör við að stóru strákarnir færu á fætur og voru löngu farnir út þegar við vöknuðum, klukkan tíu.
Þar sem hann er helst vakandi og svangur á kvöldin var mamman pínu nervus því hún var að fara á fund frá 18:30 í gær og eitthvað frameftir, og skildi því eftir mat handa honum í ísskápnum.
En það var sko ekkert vandamál, hann drakk úr pelanum sínum (vorum reyndar búin að æfa það aðeins kvöldið áður) og glotti framaní pabba sinn á meðan, eins og hann væri bara að djóka með þetta.
Laugardagur 8. nóvember 2008
Jiminn, hér þarf að skrifa meira. Emil stækkar sem aldrei fyrr og er orðinn kraftmikill og stæðilegur drengur. Í 9 vikna vigtuninni á miðvikudag mældist drengurinn 59.8cm og 5275gr. Hann brosir og hlær (en bara þegar hann er saddur, annars er ekkert fyndið) og horfir með aðdáun á eftir bróður sínum. Hann sefur líka rosalega vel á næturna, er yfirleitt síðastur til að vakna á morgnana, en drekkur rétt fyrir miðnætti og svo aftur um 5-6 leytið, yfirleitt án þess að opna augun. Dagsrútínan er ekki alveg farin af stað ennþá, en yfirleitt sofnar hann fljótlega eftir að stóru strákarnir eru farnir í vinnu/leikskóla og sefur í rúman klukkutíma, vaknar svo bara til að fá þurran bossa og meira í mallann og er svo farinn að nudda augun. Þá finnst honum bara best að fara út í vagn og sefur svo þar eins og steinn frá eitt til fimm, alveg á meðan við löbbum eftir stóra stráknum á leikskólann um hálf fjögur og vaknar svo um það leyti sem pabbi hans kemur heim úr vinnunni. Svo vakir hann með smá dúrum til ellefu á kvöldin, en vonandi fer það að breytast aðeins - daglúrarnir að styttast og farið snemma í háttinn. En mamman getur ekki kvartað yfir þessum þæga dreng, það er a.m.k. nógur tími til að lesa sér til um ástandið þó að tímanum væri reyndar betur varið í annað.
Danni er forfallinn íþróttaálfur þessa dagana. Hann notar gömlu svampdýnuna sína inni í stofu þannig að hann geti farið í kollhnís á leiðinni úr stofunni inn í eldhús - eins og íþróttaálfurinn. Hann er alltaf að æfa sig í að standa á höndum, og jafnvel á annarri hendi :) Í dag var síðasti tíminn í íþróttaskólanum, þar sem hann og Sóllilja hafa hist á hverjum laugardegi. Við hittum hana líka niðri í bæ í dag þegar við fórum í Eymundsson þar sem Sædís mamma hennar er verslunarstjóri. Litlu skötuhjúin sátu lengi saman við borð að fletta bókum og segja hvort öðru frá.
Hann er líka mikill stafakarl og er kominn í málæfingahóp í leikskólanum. Hann er búinn að ná tökum á næstum öllum hljóðum, en vantar ennþá R - eða það er smá danskt ennþá. Besti vinur hans í leikskólanum heitir Ágúst Herner og þeir leika mikið saman, hérna eru leikskólamyndir..
Um síðustu helgi fórum við til Hauganes og Dalvíkur. Pabbinn rölti smá eftir rjúpu en engin fannst, allavega hafa þær falið sig vel. Það verða gerðar fleiri tilraunir skilst okkur.
Miðvikudagur 29. október 2008
Jæja gott fólk. Hér er búið að snjóa alveg hellings og nánast ófært að fara út með vagninn svo Danni er sóttur á bílnum seinnipartinn. Bíllinn okkar býr núna við þann lúxus að sofa inni á nóttunni þannig að hann er heitur og fínn á morgnana. Pabbinn ætlaði að halda smá afmæliskaffi um síðustu helgi en frestaði því vegna veðurs, það var eiginlega ófært, svo við ætlum að gera aðra tilraun um næstu helgi. Baddý frænka er að koma norður á morgun og það verður frábært að fá hana í heimsókn. Svo er rjúpnaveiðin líka að byrja, pabbinn ætlar eitthvað aðeins að rölta á sunnudaginn og athuga hvort hann finni jólamatinn á leiðinni :)
Þriðjudagur 21. október 2008
Pabbi okkar á afmæli í dag, hann er 30+1 árs :) Fyrir nokkrum dögum spurði mamma hvað við ættum að gefa honum í afmælisgjöf og Danni vildi helst gefa honum íþróttaálfsföt og talaði um það í nokkra daga, en einn morguninn þegar við vorum að fara á fætur sagði Danni að hann ætlaði að gefa pabba sínum náttföt í afmælisgjöf, svo honum yrði ekki kalt. Þannig að á föstudaginn fórum við og keyptum náttbuxur og rakspíra og pökkuðum inn, og földum pakkann inni í skáp hjá Danna. Í gærkvöldi þegar pabbi hans var að fara að lesa fyrir hann sagði Danni við hann að "það mætti ekki segja hvar pakkinn hans væri" og benti svo á skáphurðina ;)
Já, það er erfitt að þaga yfir leyndarmálum ;)
Emil stækkar með hverjum deginum. Það er alltaf styttra og styttra í brosið hans, hann er einstaklega brosmildur og ljúfur og er farinn að sýna allskonar dóti mikinn áhuga. Við hengdum flugvél fyrir ofan hann á skiptiborðinu og hann spriklar af ánægju þegar hún flýgur um :)
Það er búið að snjóa mikið síðustu daga, nagladekkin fóru undir um helgina og á sunnudaginn fórum við til Húsavíkur í kaffi. Frábært að hitta á Palla og Láru og leika aðeins og Hildur Gauja, sem er tæplega 8 mánaða, er alveg vitlaus í Emil - langar helst að ráðast á hann og knúsa í tætlur :)
Föstudagur 17. október 2008
Hér gengur allt eins og vanalega. Á þriðjudaginn fór litli Emil í 6 vikna skoðun á heilsugæsluna. Aðstaðan í ungbarnaeftirlitinu hérna á Akureyri er ótrúlega flott, hlýleg, litrík og fullt af skemmtilegum myndum úti um allt. Stráksi er alveg að blómstra, búinn að þyngjast um tæplega 1200gr á þessum 6 vikum, orðinn 4900gr og 58cm. Hans bestu stundir er þegar hann er í baði, andvarpar af gleði og ánægju.
Í fyrrinótt fékk Danni smá gubbupest, hann var kominn yfir í rúmið til okkar og gubbaði kl 5 um nóttina, við skiptum á öllu settinu og fórum aftur að sofa, kl 6 gubbaði hann aftur en sem betur fer þurftum við bara að skipta á einni sæng. Hann var samt alveg hress á fimmtudeginum, svaf reyndar mikið eftir hádegið og hefur ekkert gubbað meira.
Í dag var svo foreldrakaffi í leikskólanum. Danni bauð mömmu sinni og Emil, sem svaf í stólnum sínum allan tímann. Við fengum okkur bollur, skoðuðum myndir og lituðum á fána. Þegar mamman sagðist ætla að fara heim varð Danni svolítið lítill, sagðist vera illt í maganum og fékk svo bara að koma með aftur heim. Á morgun er svo íþróttaskólinn sem er alltaf mikið tilhlökkunarefni hjá íþróttaálfinum. Hann er alltaf að æfa sig í að standa á höndum hérna heima, fara í kollhnísa og hoppa með fæturna út í loftið eins og íþróttaálfurinn. Æfingin skapar meistarann :)
Laugardagur 11. október 2008
Það hefur lítið heyrst frá okkur en það er samt allt fínt að frétta. Pabbinn fór til Osló að vinna í nokkra daga í þarsíðustu viku (Norðmennirnir voru ánægðir með þá, sem er gott) og það var gott að fá hann heim á sunnudaginn. Við höfum reynt að haga okkur bara nokkuð eðlilega þessa ömurlegu viku sem er núna að líða hjá, Danni er kominn með pall á vagninn hans Emils sem hann getur staðið á þegar við sækjum hann í leikskólann á daginn. Emil er líka að verða 6 vikna á morgun og er orðinn ótrúlega fær í því að brosa, manni finnst eins og hann sé að vakna til lífsins. Hann er líka orðinn svo kraftmikill og stór og hreyfir sig mikið.
Vikan sem er að líða var líka alþjóðleg brjóstagjafavika. Hún er haldin til þess að auka þekkingu á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Af því tilefni fórum við Emil á Amtsbókasafnið hérna á Akureyri þar sem var búið að skipuleggja fjöldagjöf. Þar voru eitthvað um 8-10 mæður komnar til að gefa saman og auðvitað kom fréttamaður frá RÚV og ljósmyndari frá mogganum þannig að það sást aðeins í okkur í fréttunum í gær og svo í dag vorum við á forsíðunni á Morgunblaðinu :)
Við erum þarna í bakgrunni reyndar. Ég held að mörgum hafi verið létt að sjá frekar myndir af börnum á forsíðunni heldur en eitthvað krísutengt.
Mánudagur 29. september 2008
Pabbinn er búinn að skila sér, hann kynnti mastersverkefnið sitt af stakri snilld úti í Árósum á föstudaginn. Á morgun er hann svo að fara í vinnuferð til Oslóar sem verður út vikuna þannig að við erum áfram í rólegheitum heima.
Emil er sífellt að stækka og dafna, hann er farinn að brosa svona spari, sendi Rögnvaldi afa sínum stórt og fallegt bros um helgina en annars er hann álíka brúnaþungur og bróðir hans var á hans aldri. Hjúkkan kom í morgun og vigtaði hann, 4490gr sem er fín þyngdaraukning. Við erum búin að hafa smá áhyggjur því hann gubbar svolítið mikið en af því hann þyngist vel og vill drekka (oft og mikið) þá þarf ekki að hafa eins miklar áhyggjur af því, vonandi eldist það bara af honum.
Föstudagur 26. september 2008
Það er greinilega komið haust hjá okkur hérna á Akureyri. Snjórinn nær hálfa leið niður Hlíðafjall og örugglega hægt að renna sér smá á rassinum uppi á skíðasvæði.
Pabbinn fór í fyrradag suður og flaug í gærmorgun út til Köben og kom til Árósa seinnipartinn. Hann sagði að hann hefði hitt alla úti á túni og mamman fékk eiginlega kökk í hálsinn því hún sá þetta alveg fyrir sér og langaði alveg að vera á staðnum.
Í dag eftir hádegi fór pabbinn svo í skólann að verja mastersverkefnið sitt og það gekk alveg rosalega vel, allir glaðir að þetta er yfirstaðið, sennilega hann hvað mest.
Hérna heima er allt búið að ganga vel líka, í gær fórum við aðeins í bæjarferð og versluðum hitt og þetta, Danni fékk Latabæjar jogginggalla sem hann er varla búinn að fara úr og svo fundum við líka flotta afmælisgjöf handa Láru frænku sem á afmæli á sunnudaginn. Í dag er starfsdagur í leikskólanum þannig að allir eru í fríi, við fórum því bara í rólegheitunum framúr í morgun og svo núna eftir hádegi kom Sóllilja vinkona mín í heimsókn til mín og við leikum alveg rosa flott saman í mömmó, playmo og bjuggum til hálsfestar úr cheerios :)
Í gær átti Raggi afi minn á Hauganesi afmæli, stórafmæli meira að segja. Hann fór vestur til Ragga og Söndru í gær að eltast við gæsir og ætlaði svo að hafa smá kaffiboð þar fyrir okkur stelpurnar, en af því það er svolítill snjór á heiðunum ákváðum við að vera ekkert að stressa okkur að fara af stað og vera bara heima.
Emil er bara ljúfur og sefur miðdegislúrinn sinn. Hann veit ekkert betra en að láta halda á sér og spjalla við sig og núna eru að koma fram greinileg bros :)
Mamman hefur verið að vera að skoða taubleiur á meðgöngunni og pantaði nokkur stykki á meðan við vorum ennþá í Danmörku. Núna erum við að máta þær á Emil og það gengur alveg rosalega vel svo hún ákvað að panta bara fleiri, til dæmis svona og svona. Spennandi :)
Þriðjudagur 23. september 2008
Hérna gengur lífið sinn vanagang. Emil stækkar alveg ótrúlega hratt, hann er núna aðeins tæplega mánaðargamall, kominn í fötin sem Danni var í þegar hann var rúmlega 4 mánaða (nr 62).. alveg lygilegt! Sýnir kannski líka hvað Danni var mikið písl ;)
Hann Emil er alltaf að æfa sig í að brosa til okkar, það er ekki komið svona alvöru bros en þetta er allt í áttina - hann horfir vel og fylgist vel með. Hann er núna að taka smá hormónabólukast í andlitinu og á bringunni en það virðist ekkert pirra hann mikið.
Á laugardaginn komu Danni frændi, Birna og Karen í heimsókn og á sunnudaginn (21. sept) fórum við í "fyrsta ferðalagið" þegar við fórum til ömmu og afa á Hauganesi og á Dalvík. Óli fór nefnilega á gæsaveiðar á laugardagsmorgun og notaði sunnudaginn til að gera að öllum aflanum með pabba sínum. Núna eigum við fimm gæsir í frystikistunni, ekki amarlegt :)
Í gær komu Raggi (móðurbróðir) Sandra og Embla Lind í heimsókn. Embla var alveg stórhrifin af Emil, frábært að sjá svona dúkku sem hreyfir sig og heyrist í :)
Svo er pabbinn að fara til Árósa á fimmtudaginn til að verja mastersverkefnið sitt. Honum verður fenginn innkaupalisti, aðallega fyrir H&M, en hann er sennilega pínu feginn að gengið er ekkert mjög hagstætt, þá verður listinn styttri. :)
Mánudagur 15. september 2008
Í dag fengum við fyrstu heimsókn frá ungbarnaverndinni þar sem hún Hrafnhildur kom og vigtaði Emil. Hann er orðinn 4060gr núna tveggja vikna, hraustur strákur sem er duglegur að drekka rjómann sinn. Pabbinn fór í vinnuna í dag í fyrsta skipti svo við Emil ætlum að rölta eftir Danna í leikskólann á eftir. Það verður örugglega fjör hjá þeim stóra að fá litla bróður til að sækja sig, auk þess sem hann kynnist hverfinu betur með því að labba heim úr leikskólanum og sér hvað það er í raun stutt að fara.


