Fimmtudagur 4. september 2008
Við vöknuðum öll saman í morgun, reyndar var litli bróðir síðastur á fætur.. hann er svo mikið matargat að hann vaknar bara kl 5 til að drekka og sefur svo í aðra 4-5 tíma. Alveg eins og sá stóri, algjörir draumapiltar!
Svo fór Danni á leikskólann og sá litli átti tíma í 5 daga skoðun á spítalanum klukkan rúmlega níu, í skugga ljósmæðraverkfallsins. Þær voru nú ekki margar á vappinu en okkar ljósmóðir (sem er með okkur í heimaþjónustu) kom nú samt og barnalæknirinn var auðvitað líka þar, honum leist rosalega vel á gaurinn sem er búinn að ná fæðingarþyngdinni (3700gr) og er bara langflottastur. En við vissum það jú ;)
Núna uppúr hádegi á Danni svo tíma í skoðun hjá tannlækninum og vonandi gengur það bara vel, hugsanlega vill hann bara fara í leikskólann aftur eftir það, til að leika aðeins meira.. en við sjáum til. Á laugardaginn byrjar svo íþróttaskólinn þannig að það er nóg prógramm í gangi :)
Og já, meðan ég man.. fyrstu "live shots" myndirnar af litla bróður koma hugsanlega í sjónvarpinu í kvöld - þegar við vorum uppi á fæðingardeild í morgun kom stöð 2 á staðinn til að taka myndir og tók auðvitað myndir af sætustu strákunum.. pabbanum og þeim litla þar sem þeir sátu að spjalla saman. Endilega kíkið á fréttirnar í kvöld :)
En auðvitað vonum við að verkfallið leysist mjög fljótlega þrátt fyrir að við höfum sloppið vel.
Nýjar myndir komu inn í gær, reyndar þurfti mamman að hlaupa frá svo hún skrifaði ekkert við þær en okkur sýnist þið geta það bara alveg óstudd :) takk fyrir!
Mánudagur 1. september 2008
Hálftíma eftir að Danni kom heim úr leikskólanum og hitti litla bróður sinn í nánast fyrsta skipti, spurði hann hvort hann mætti hvísla svolítið að litla bróður. Þegar hann fékk leyfi til þess beygði hann sig niður að honum og sagði: "Eigum við að leika?"
takk fyrir góðar kveðjur :) við erum bara klökk yfir því að sjá hvað það eru margir að fylgjast með. Ástarþakkir. Litli bróðir minn er kominn heim og er mjög glaður með það, búinn að drekka og sofa vel. Við settum inn nokkrar myndir af honum síðan á spítalanum og hann er auðvitað líka kominn efst á síðuna okkar við hliðina á mér.
Heyrumst!
Kæru vinir. Ég eignaðist alveg yndislegan lítinn bróður í fyrrinótt kl. 01:24. Hann er 3735 gr. á þyngd og 53 cm. langur. Mamma og pabbi hafa það mjög fínt og litli bróðir líka. Þau segja að hann sé frekar líkur mér þegar ég var lítill. Amma og afi á Dalvík pössuðu mig í gær og fóru með mig í réttir í Mývatnssveit. Það var rosalega gaman og ég passaði hliðið inn í dilkinn sem að Steini og Lína á Strönd eiga. Mikið fjör að sjá svona skemmtilegar kindur. En jæja, ég ætla að drífa mig í leikskólann og svo kemur litli bróðir sennilega heim þegar ég kem heim úr leikskólanum, það verður sko gaman.
Fimmtudagur 28. ágúst 2008
Neibb, ekkert að gerast, nema kvefpest í gangi! X(
Vonandi hefur tyrkneska hakksúpan í kvöld (með extra chili og hvítlauk) og allt hálsmolabruðið og nefspreys dæmið í dag eitthvað aðeins slegið á þetta.
Við fórum í viðtal í dag hjá kennaranum hans Danna í leikskólanum og það gekk ofsalega vel, hún var mjög ánægð með strákinn þó hann sýni kannski ekki mikið frumkvæði við hina krakkana ennþá þá er hann alltaf hress og kátur.
Við fórum líka í mæðraskoðun og jr er líka bara brattur, með hjartslátt uppá 135 slög og er nokkuð hress. Við fengum aftur tíma í næstu viku (einmitt 4. sept - sem er verkfallsdagur hjá ljósmæðrum!), ef ekkert verður búið að gerast, og þá verður metið hvort það eigi að setja eitthvað í gang. En vonandi lætur hann sjá sig fyrr - um leið og mamman getur andað aftur með nefinu :)
Þriðjudagur 26. ágúst 2008
Það eru 40 vikur komnar í dag og ekkert fararsnið á litla krílinu. Hún þarf sennilega að hvíla sig á súkkulaðirúsínuátinu og fara að borða brokkolí og aspas til að fá bumbubúann út. Reyndar náði hún sér í smá hálsbólgu og kvef í gær og er búin að vera frekar slöpp í dag, en fékk sig þó til að sitja fyrir á einni mynd svona í lokin:
Danni er annars hress og gengur vel á leikskólanum, hann þarf reyndar að fara fyrr að sofa á kvöldin (helst fyrir 20) svo hann nái að rífa sig framúr á morgnana. Við settum inn nokkrar myndir í albúm í gær, endilega kíkið :)
Sunnudagur 24. ágúst 2008
Helgin er búin að vera mjög fínt, mamma og pabbi ákváðu að fara saman út að borða á föstudagskvöldið (reyna að þjappa kúlunni aðeins neðar.. heh..) svo að amma og afi á Dalvík komu og pössuðu mig. Mér fannst nú alveg dásamlegt að fá svona tilbreytingu í lífið og fagnaði því bara þegar m+p fóru út. :)
Á laugardaginn var fjölskyldudagur á Karlsá, sem er hús á leiðinni úti í Ólafsfjarðarmúla frá Dalvík, sem er í eigu fjölskyldunnar hennar Helgu ömmu. Þar vorum við bara að leika okkur, tína ber og grilla og borða saman. Ég og Danni frændi náðum bara vel saman, sulluðum í bæjarlæknum með bátana mína tvo og gerðum stíflur í lækinn. Ekki leiðinlegt :)
Í dag komu svo Sóllilja, Haukur og Sædís í heimsókn og við pöntuðum okkur pizzu saman í kvöldmatinn. Við Sóllilja lékum mikið saman uppi í herbergi og úti í garði, í sandkassanum og víðar.
Á morgun er svo leikskóli aftur, vetrarstarfið þar fer að komast í reglulegt horf bráðlega, mikið um hópavinnu og svoleiðis en á meðan það er ennþá svona gott veður (19 stiga hiti á Karlsá í gær og þegar við keyrðum heim um hálf tíu um kvöldið var ennþá 13 gráður) þá njótum við þess að vera úti að leika.
Á þriðjudaginn er dagurinn sem bumbubúinn á að mæta í heiminn, en hann er ekkert farinn að láta vita af sér svo við bíðum bara róleg. Annars er allt tilbúið fyrir hann og uppsett inni í "barnaherbergi" eins og Danni segir.
Föstudagur 22. ágúst 2008
Ókei, hún móðir mín gat ekki horft á leikinn í hádeginu í dag, gægðist af og til niður á sjónvarpið en það virtist alltaf eins og Spánverjar næðu að skora þegar hún horfði á.
Í staðinn notaði hún tækifærið þegar enginn Íslendingur var á netinu og uppfærði síðuna mína, eins og þið sjáið. Kannski eru nokkrir hnökrar einhversstaðar, þið megið endilega láta hana vita af því ef þið rekist á einhverja galla.
Fimmtudagur 21. ágúst 2008
Það gengur bara rosalega vel í aðlöguninni á Pálmholti. Í gær var ég framyfir hádegismat (fengum fisk að borða) og þegar ma+pa sóttu mig var ég inni í herbergi umkringdur fimm stelpum ;) já, þær sogast að :) Í dag var ég svo framyfir kaffitíma og það gekk líka bara mjög vel. Kennarinn minn heitir Sigrún og hún er búin að vera með mér í vikunni, ég kann mjög vel við hana, en það er svolítið erfitt að muna hvað hinir krakkarnir heita. Það kemur með tímanum.
Sunnudagur 17. ágúst 2008
jæja, núna er netið loksins komið í lag hjá okkur, pabbi sagði góða sögu af því sem þarf kannski ekkert að lengja.
Það er búin að vera dúndurblíða hérna norðan heiða í dag og síðustu daga, gefur veðrinu á túninu á Stavns ekkert eftir. Ég og Sóllilja lékum okkur saman á leiksvæðinu í Kjarnaskógi í dag, á hlýrabol og stuttbuxum og sulluðum í vatninu. Mega gaman (eins og Danni segir sjálfur). Á laugardaginn var líka gott veður en við ákváðum samt að fara inn í skuggann og kíkja í bíó, sáum Wall'e sem var ótrúlega skemmtilegur.
Hérna er eitt skemmtilegt video með honum:
Á fimmtudag fórum við í berjamó út á Karlsá, sem er "húsið hennar ömmu" síðasta húsið áður en maður kemur út í Ólafsfjarðarmúla. Þar er roosa stórt berjaland og gaman að tína ber þar, og ekki verra þegar veðrið er svona gott.
Á morgun er svo stór dagur, fyrsti dagurinn í leikskólanum. Við erum búin að fara tvisvar í heimsókn og mér líst bara vel á leikskólann minn sem heitir Pálmholt. Ég verð þar á elstu deildinni sem heitir Sól. Við verðum bara stutt á morgun, örugglega of stutt fyrir Danna smekk, held að hann vilji örugglega bara byrja að leika og taka þátt á fullu.
Í gær settum við inn fullt af myndum frá berjatínslunni og eitthvað hérna heiman frá. Bætum svo fljótlega við myndum af okkur Sóllilju síðan í dag.
Af bumbubúanum er ekkert að frétta, nema hikstar, sprikl og spörk í rifbein. Mamman nýtur þess að sofa út þessa daga og hvíla sig, spáir því að þetta komi einhverja síðustu daga í ágúst.
Sunnudagur 3. ágúst 2008
Við erum búin að koma okkur vel fyrir í íbúðinni okkar en það er bara eitt sem vantar - nettengingin! Það er búið að vera svolítið bras með það af því það gleymdist að aftengja símann sem var hérna fyrir, sem var hjá Vodafone og það tekur nokkra daga fyrir þá að græja það - sérstaklega þegar við ætlum ekki að vera í viðskiptum við þá. :/
Allavega, Danni unir sér alla daga úti í sandkassa, það þarf oft ekki mikið meira dót en sandkassa og garðslöngu :) Veðrið er líka búið að vera geggjað síðustu daga, gefur danska veðrinu ekkert eftir. Við erum búin að fara í sund nánast á hverjum degi annaðhvort á Akureyri eða í Sundlaug Dalvíkur.
Bumban er alltaf að stækka en hagar sér ósköp vel og er ekkert á leiðinni neitt, það eru allavega 3 vikur eftir og sennilega eitthvað meira en það. Við bættum við nokkrum myndum í júní-júlí albúmið af því við erum í heimsókn hjá ömmu og afa núna en þurfum að fara að taka fleiri myndir hérna heima og setja inn þegar netið heima er komið í lag :)
Sunnudagur 13. júlí 2008
Jæja, kominn til Íslands. Ferðin gekk rosalega vel, eiginlega alveg ótrúlega vel. Við kvöddum Stavnsvej með tárin í augunum kl hálf sjö á föstudagsmorgun og tókum leigubíl niður á lestarstöð. Lestin fór svo rétt fyrir sjö til Kastrup, sú ferð tók tæpa þrjá tíma þannig að rétt fyrir ellefu vorum við komin til Kastrup. Danni sofnaði aðeins síðasta hálftímann en var annars bara að dunda sér og leika aðeins í tölvunni. Á Kastrup tók við nokkuð löng röð enda var vélin til Akureyrar nánast pakkfull. Við fórum svo rólega í gegnum flugstöðina enda mamman farin að vagga svolítið.. heh ;)
Flugið gekk líka rosalega vel, allt á tíma (sem er víst ekki sjálfsagt þessa dagana hjá Iceland Express) og á Akureyrarflugvelli tók Raggi "morfar" á móti okkur. Við tókum eitt stutt stopp á heimleiðinni á ráðhúsinu og skráðum okkur inn í landið.
Núna um helgina erum við búin að vera í algjörri afslöppun og látum dekra við okkur. Danni er líka búinn að vera á útopnu, finnst alveg ótrúlega gaman og gott að vera kominn til Íslands, dundar sér í öllu gamla dótinu frá foreldrunum og rápar út og inn enda svo margt að skoða.
Þegar hann kom inn á bað hjá ömmu og afa á Hauganesi og sá hornbaðkarið þá sagði hann að það væri "rosalega stór bali!!" :)
Á morgun ætlum við svo að binda fleiri lausa hnúta; fara á heilsugæsluna, pósthúsið og græja símana (við erum alveg úr sambandi við umheiminn og það er pínu góð tilfinning í smástund). Svo næstu daga fáum við lyklana, gámurinn kemur í vikunni og bíllinn eftir helgi. Á meðan erum við með volvoinn þeirra ömmu og afa á Dalvík og látum fara vel um okkur í letilífinu.
já og ps. pabbi skilaði ritgerðinni á fimmtudaginn! :)
Miðvikudagur 9. júlí 2008
Jæja gott fólk, þá er gámurinn farinn! Lokaður og læstur. Núna erum við bara ferðatöskutúristar. Við kláruðum líka að þrífa íbúðina okkar í dag og núna er hún eins og ný!
Síðasti dagurinn í leikskólanum var í dag. Í tilefni dagsins bauð ég uppá popp og saltstangir, ég var svo kvaddur með fullt af kossum. Á morgun er frídagur, þá ætlar pabbi aðeins að hitta leiðbeinandann sinn varðandi ritgerðina og mamma ætlar til læknis og fá vottorð fyrir flugið. Vonandi gengur það vel, annars erum við í ágætis klípu.
Bíllinn fór líka í dag til Hanstholm þar sem hann fer með Norrænu, Abbi sem er pabbi þeirra Ásgeirs og Gunnars var svo góður að keyra á eftir pabba og skulta honum heim.

En gámurinn mætir til Akureyrar einhverntíman eftir 16. júlí - fer eftir því hvað tollararnir vilja skoða hann vel. Við búumst að sjálfsögðu við gríðargóðri mætingu á planið á Heiðarlundi 8a ! Nánari tímasetning auglýst síðar. :)
Þriðjudagur 8. júlí 2008
"Og núna get ég leikið mér með ekkert!"
Danni þegar hann kom inn í tómt herbergið sitt þegar við vorum að flytja.
Mánudagur 7. júlí 2008
Smá video úr nýju myndavélinni... Danni að fara með nokkurs konar "ugla sat á kvisti" á dönsku
og annað af Danna og Bastian að lesa Leiftur McQueen litabók :)
Ég er fluttur! Þ.e.a.s yfir í næstu íbúð, inn í herbergið þeirra Ástrósar og Bergdísar. Pabbi ofurhetja fór með alla kassana (yfir 50 stk) út í gám í gær, stór hluti af þeim var reyndar í geymslunni þannig að núna er hún tóm og geymslulásinn kominn á gáminn. Svo svaf ég í rúminu hennar Ástrósar í nótt, það var mjög gaman því það er stigi upp í það en það var svolítið skrýtið að vera ekki heima hjá sér og ég var alltaf einhvernveginn að bíða eftir að við færum yfir aftur. En stelpudótið hérna er mjög spennandi og gaman að komast í svona nýtt :)
Í dag ætlum við að klára að pakka úr eldhúsinu og skrúfa niður ljós og hillur, við förum nú bara að verða nokkuð tilbúin og ef það styttir upp í dag (núna er gjörsamlega skýfall, og úrkoman á að vera ca 11mm í dag) þá náum við kannski að koma rest í gáminn og fara svo að þrífa.
Eftir að Danni var farinn í leikskólann fórum við niður í Arne Jacobsen ráðhúsið og skráðum okkur út úr landinu. Þar með var hægt að tékka eitt enn út af listanum.
Á sunnudaginn fórum við í tívolí í síðasta sinn, við tókum með okkur nýju videovélina og kvöddum þennan skemmtilega garð sem við eigum eftir að sakna mikið.
Fimmtudagur 3. júlí 2008
Það er farið að bergmála í herberginu hans Danna núna, hann er annars furðu sáttur - finnst held ég bara gott að allt dótið fari með fyrst hann er að fara :) Hann hefur samt LEGO fötuna sína til að leika með eftir leikskóla en er reyndar orðinn frekar þreyttur þegar hann kemur heim, því þau eru úti allann daginn þessa dagana.
Við fengum hringingu frá Atlantsskip hérna í DK í morgun og þau spurðu hvort þau mættu koma með gáminn á morgun því hann væri að koma í bæinn og það væri hagstæðara að skilja hann bara eftir hjá okkur heldur en að fara sér ferð á þriðjudaginn. Hann yrði síðan sóttur aftur á miðvikudag eins og við töluðum um. Það er jú bara fínt, auðveldara fyrir þá sem ætla að bera dótið niður, við ætlum bara að læsa honum vel og helst bara parkera bílnum fyrir hurðinni. Líka búin að spyrja nágrannana og þeir eru margir að fara úr bænum yfir helgina þannig að þeim var alveg sama þó nokkur bílastæði yrðu tekin fyrir þetta. En já, þá höfum við líka meiri tíma til að þrífa (ágætt þegar mamman vinnur í slo-mo), svo skilum við lyklunum seinnipartinn 10. júlí.
Síðasti dagurinn í leikskólanum verður n.k. miðvikudag, þá ætlum við að fara með eitthvað snarl handa krökkunum, popp og saltstangir eða eitthvað mjög auðvelt! Danni og Bastian eru búnir að ákveða að gefa hver öðrum vinagjafir í næstu viku þegar þeir kveðjast. Bastian fær smávegis til minningar um vin sinn á Íslandi. Það verður undarleg stund, en vonandi náum við einhverjum heimsóknum á næstu árum.
Mánudagur 30. júní 2008
Jæja, mæðraskoðun í morgun og allt leit vel út, blóðþrýstingurinn aðeins hærri en síðast enda voru margir stigar upp í Jordmorscenter, en þó ekki nema 110/60. Litla krílið sennilega orðið 2kg og lætur vita af sér af og til - sparkaði t.d. í ljósmóðurina þegar hún var eitthvað að þukla.. hehe.
Hér er annars niðursuða í fullum gangi og allt í kössum úti um allt. Við keyptum barnavagn um daginn sem við erum núna búin að ná í, skelltum honum inn í íbúðina hjá Ástrós og Bergdísi (enda boðar víst ekki gott að láta vagninn standa inni í stofu) enda eru þær farnar til Íslands og við fáum að flýja þangað inn þegar við komumst ekki lengur fyrir hérna fyrir kössum.
Síðasta Ikea ferðin í bili var líka farin í morgun, enda verslunaræðið orðið ágætt í þessu ógengi.
Gámurinn kemur semsagt til okkar 8. júlí, bíllinn fer upp í Hanstholm í Norrænu þann 9. júlí, flugið okkar er 11. júlí og gámurinn kemur svo til AK þann 16. Við fáum íbúðina í Heiðarlundinum strax en ætli við köstum ekki andanum hjá ömmu og afa til að byrja með og reynum að komast niður á jörðina. :)
Svo eru flestir hér í hverfinu að tínast heim í frí/vinnu, Ástrós og Bergdís kvöddu einmitt um daginn (þær ætla samt að koma norður á fiskidaginn og hitta okkur) og í gær var smá kaffisamsæti hérna úti á túni þar sem Ilmur og Móeiður voru að fara heim í dag. Æji hvað við eigum eftir að sakna alls fólksins hérna. Síðustu daga og í verkfallinu sérstaklega, hafa Danni og Bastian verið duglegir að leika og hlaupa á milli húsa. Það er náttúrulega þvílíkt frelsi að mega bara ráða hvar maður leikur og segja bara bæ og hlaupa út.
Síðustu daga hefur verið mjög gott veður, alls ekki of heitt, en það á að hitna aftur í vikunni (upp og yfir 25°) og hugsanlega fáum við smá lit aftur - bara rétt svona svo við getum sagst hafa verið í útlöndum :)
Mamma útskrifaðist úr skólanum sl. föstudag og pabbi kláraði síðasta prófið í síðustu viku og er að leggja lokahönd á mastersritgerðina. Líklega nær hann að skila henni inn í vikunni en hann hefur reyndar alveg til 1. ágúst til þess. Vinnumálin heima eru líka komin á hreint og í september byrjar hann að vinna hjá Theriak við að búa til hugbúnað fyrir sjúkrahús á meginlandinu. Þá verður krílið litla líka komið og sá stóri kominn á fullt í leikskólanum.
Sunnudagur 22. júní 2008
Þegar ég kem á Hauganes, þá þarf ég ekki svona augndropa!
Danna er farið að hlakka til að komast heim :)
Fimmtudagur 19. júní 2008
Æ hvað það er ágætt að komast í rútínuna aftur eftir verkfallið. Fyrsta daginn var mikil tilhlökkun að komast í leikskólanum, þann næsta var það alveg ásættanlegt að fara og svo í morgun harðneitaði stráksi að fara af stað. Semsagt, allt eins og það var.
Um daginn, sérstaklega áður en það byrjaði að rigna, var Danni alltaf rauður og bólginn í augunum, og í gær áttum við tíma hjá heimilislækninum. Hann sagði að þetta væri grasofnæmi og gaf honum augndropa sem á að setja í augun 4x á dag. Það hefur verið frekar pirrandi að fá þetta í augun en hefur samt gengið ágætlega þar sem honum líður mun betur með þessum dropum og er ekki sífellt nuddandi augun eða með kaldan þvottapoka á þeim.
Í dag sóttum við Danna í leikskólann um hálf tvö og fórum með Bastian, litla bróður hans og Agnete mömmu hans út á jarðaberjaakur sunnan við Árósa og tíndum jarðaber. Þau eru alveg rooooooosalega góð, ótrúlega sæt og mjúk. Við tíndum í tvær dollur sem reyndist vera rúmlega 4kg!! - úps, en borguðum ekki nema 20kr fyrir kílóið, það er ágætt :)
Nú er bara spurning hvað á að gera við öll þessi ber, það er nefnilega svo ótrúlega stutt þangað til við förum heim.. eiginlega allt of stutt.
Sunnudagur 15. júní 2008
"Jeg eeeeelllllsker bare slik"
Verkfallið er búið, leikskólinn byrjar á þriðjudaginn. Það passar fínt því mamman á heimilinu er einmitt búin að skila verkefninu sínu ;)
Danni er reyndar búinn að vera nokkuð kátur í verkfallinu, svona fyrir utan að foreldrarnir hanga bara í tölvunni þá hefur yfirleitt verið hægt að ná á leikfélögum í hverfinu. Svo er svo dásamlegt að þurfa ekki að rífa sig á lappir á morgnana. Reyndar hefur hann vaknað uppúr sjö síðustu morgna en það er líka af því hann hefur farið snemma að sofa (til að lengja kvöldið fyrir verkefnafíklana).
Það eru komnir nokkrir kassar út á gólf og einn skápur orðinn tómur, það styttist nefnilega í flutningana. Danna finnst voða gaman að skoða myndir af húsinu okkar á Akureyri og er bara spenntur. Þeir Bastian eru líka aðeins búnir að kveikja á því að hann sé að fara og komi ekki aftur nema kannski í heimsókn. Það verður kannski öðruvísi þegar raunveruleikinn blasir við.
Síðustu daga höfum við haft góða gesti, Ari og Axel ásamt foreldrum hafa verið í heimsókn og gistu í einni íbúðinni hérna á Stavnsvej. Það var rosalega gaman að sjá hvað Axel er orðinn stór. :)
Pabbinn hamast við að skrifa niðri í skóla alla daga, reynir að ná 60 blaðsíðunum sínum áður en við fljúgum heim, svo á hann líka eftir eitt próf í næstu viku þannig að hann er alveg afsakaður frá niðurpökkuninni. Svo er líka búið að rigna síðustu daga, það var mjög kærkomið bæði fyrir gróðurinn og líka að fá smá vinnufrið fyrir veðrinu, það er ekki hægt að þurfa að gera eitthvað í steikjandi sól.
Sunnudagur 8. júní 2008
Við erum bara að kafna úr hita. Það er heitara í dag en í gær (sennilega svona 27°C) og í bónus er enginn vindur í dag! Í gær var Danni úti heillengi að leika með Magnúsi Mána, og var alveg aumur í augunum í gær og bólginn undir augunum - við héldum að hann hefði kannski sólbrunnið í augunum þar sem þeir voru svolítið að sulla í vatni líka, en líklega er þetta ofnæmi af grasinu þar sem túnið er orðið svo þurrt. Við löbbuðum aðeins yfir það í morgun og hann byrjaði strax aftur að roðna í augunum og hnerra. Dagurinn í dag er því búinn að vera innidagur.. vegna veðurs. :)
Það er mjöööög kærkomin rigning í kortunum næstu daga og vonandi rætist sú spá.
Í gærkvöldi fórum við í dásamlegt matarboð til Ilmar og Móeiðar og þær eru nú þegar komnar með nokkrar myndir á síðunni sinni af matarboðinu (lykilorðið þeirra er gatan okkar) :)
Minnum á myndirnar okkar líka, og alltaf jafn gaman að fá komment við þær :)
Föstudagur 6. júní 2008
Jæja, aftur komin helgi. Þriðja verkfallsvikan búin og útlit fyrir aðra í viðbót. Ma+Pa eru að hamast við að klára verkefnin sín og ég er ótrúlega duglegur að leika sjálfur, þó það sé ekkert mjög skemmtilegt til lengdar. Það er líka erfitt fyrir foreldrana að standast þessi fallegu augu sem horfa á þau í einlægni og spyrja.. "viltu leika mamma?" Það er ekki hægt að koma með einhverjar afsakanir og halda áfram að sitja við tölvuna (og sérstaklega ekki þegar það er yfir 25 stiga hiti úti). Við vonum bara að þetta hafist allt saman.
Við tókum okkur reyndar smá frí á sunnudaginn, fórum niður á strönd með góðu grönnunum okkar og tókum meðal annars bumbumyndina sem er þarna fyrir neðan, og á þriðjudag fórum við síðustu ferðina núna í langan tíma í Legoland með Bastian og fjölskyldu. Það var alveg rosalega gaman :)
Núna eru semsagt kominn heill hellingur af myndum frá síðustu dögum í nokkur albúm, bæði í maí og júní.
Mánudagur 2. júní 2008
Smávegis bumbufréttir í verkfallinu. Loksins rann upp fyrsti mæðratíminn hjá bumbubúanum. Hérna fara nefnilega "hraustar fjölbyrjur" allra fyrst í mæðraskoðun á 28. viku og í allt ca 3-4x til ljósmóður (miðað við á Íslandi er það 10-12x) á meðgöngunni. Þessar 28 vikur eru búnar að vera lengi að líða, þó svo það sé náttúrulega allt búið að vera í stakasta lagi. En það var mjög gaman að heyra hjartsláttinn í krílinu, sem var 120 slög (sennilega sofandi). Ljósmæðurnar (hún var með ljósmóðurnema sem við töluðum mest við) áttu í smá erfiðleikum með að finna hvernig krílið liggur en sennilega er það sitjandi, eitthvað á ská. Blóðþrýstingurinn var líka fínn 100/65, kannski aðeins í lægri kantinum, búin að þyngjast um tæplega 4 kíló (nú þarf maður að fara að borða meiri ís...)
Semsagt, allir mjög afslappaðir.
Á meðan fékk Danni að fara yfir til Ástrósar sinnar og er þar enn að leika. Þetta verkfall hjá leikskólakennurum á víst engan endi að taka...
Föstudagur 30. maí 2008
Það gengur bara ágætlega hérna á verkfallsstöðinni, ég er svo duglegur að fara í önnur hús að leika og fá til mín leikfélaga, það er auðvitað miklu auðveldara að vera hér tveir/tvö heldur en einn þannig að það er ágætis verkefnanæði. Ma+Pa eru búin í allri kennslu og bæði bara í verkefnavinnu svo við hreyfum varla bílinn hérna úti á stæði, nema til að fara kannski í Bilka.
Í gær kom Ilmur og svo Ástrós og Móeiður og við lékum öll saman hérna inni, og fengum okkur svo köku í kaffitímanum (kaffitíminn er uppáhalds tíminn minn, vill helst fá hann strax eftir morgunmatinn ;) ).
Það eru auðvitað búnar að vera fréttir héðan af jarðskjálftanum heima, núna áðan var stór frétt á DR1, danska ríkissjónvarpinu, og viðtal við nokkra sem töluðu íslensku og ég bara rak upp stór augu og fór að skellihlæja þegar ég heyrði fólk tala íslensku í sjónvarpinu! haha! Aðal áherslan í fréttinni var að húsin á Íslandi væru steinsteypt, og í gær var sagt í seinnifréttum á TV2 að þau væru byggð eins og byrgi (bunkers) djúpt ofaní jörðinni... maður sá eitthvað undarlegt fyrir sér.
Mömmu hans Bastian líst allavega ekkert á það að við séum að flytja heim!
Helgin á að vera mjög sólrík og rúmlega 25°c hiti. Pabbi er á kafi í verkefnavinnu og fær ekki að líta upp svo við Ma förum kannski bara í tivoli eða sund eða eitthvað. Hún er náttúrulega orðin svolítið útstæð en bumban er eiginlega bara framaná, eins og með mig, sést voða lítið aftanfrá.
Ég gleymdi að segja það, en í hádeginu á mánudaginn sl fór ég með Ástrós minni (og mömmunum okkar) í bíó og við fórum að sjá myndina um Horton. Ég var nú dálítið stressaður fyrst, því ég hef eiginlega aldrei farið í bíó (of ungur á Íslandi og ekki alveg nógu góður í dönsku þar til núna) og leist ekkert á það þegar mér var sagt að ljósin yrðu slökkt.. en þegar myndin byrjaði var sko ALLT Í LAGI, og mér fannst þetta ótrúlega gaman. Það var ekki verra að ég fékk að fara á nammibarinn fyrst og velja mér í poka, svo spurði ég í hvert skipti sem ég stakk einhverju upp í mig hvort það mætti tyggja :)
Hérna er sýnishorn úr myndinni:
Miðvikudagur 28. maí 2008
jújú, það er ennþá verkfall. Mér leiðist það samt ekkert, bara fínt að vera heima og úti á túni að leika :) Við erum búin að nota tækifærið og æfa okkur smá í 'ð' og 'þ' framburðinum og það er sko allt að koma, núna segi ég "hlið" alveg rétt og líka "þarna" (reyndar sem þargna). Svo koma erfiðari orð síðar, en þetta er sko ekkert mál.
Það eru nýjar myndir inni á myndasíðunni :)
Mánudagur 19. maí 2008
Jámm, það var fyrsti í verkfalli í dag. Ég endurheimti pabba minn í morgun en hann var á Íslandi yfir helgina að græja húsnæði og aðeins að skoða vinnur. Húsnæðismálin eru komin á hreint og við komin með stóra og flotta íbúð á brekkunni sem við getum flutt beint inn í þegar við komum í júlí. Þá er nú þungu fargi létt af okkur :)
Ég var nú pínu feiminn þegar ég sá pabba í morgun og eftir smá stund manaði ég mig upp í að vekja hann með kossi. Sem var nú gaman því þegar hann opnaði ferðatöskuna sína komu fullt af pökkum uppúr henni handa mér. Ó hvað ég er heppinn, fékk púslu og perlur og tösku og föt á hann Tomma minn (dúkkuna), og bók og sápukúlur og ég veitekkihvað :) Dásamlegt.
Það er semsagt búið að vera rólegt hjá okkur í dag, mamma nældi sér í einhverja kvefpest sem fer ekkert sérstaklega skemmtilega ofaní meðgöngukvefið, og er búin að vera frekar sljó síðustu tvo daga. Öll trixin í bókinni voru notuð í kvöld, pabbi eldaði dýrindis kjúklinganúðlusúpu með extra chili og hvítlauk og vonandi að það hafi drepið í pestinni. Nú þarf hún bara að vera dugleg að hvíla sig, og vonandi að bumbubúinn slaki aðeins á í spriklinu, hann er búinn að vera ansi fjörugur síðustu daga.. sem er jú bara jákvætt.
Við erum af og til að reyna að draga úr danska -r-inu hjá drengnum (sem er alveg ekta) og reyna að fá hann til að bera betur fram -ð. Til dæmis segir hann "hlig" í staðinn fyrir "hlið". Þegar við endurtökuð mjög skýrt H-L-I-Ð kemur það öfugt út hjá honum, sem "ÐLIG", því hann getur alveg gert ð-ið og vandar sig svo mikið að það kemur fram sem fyrsta hljóð.
Við erum að gera þetta mjög hægt og rólega og passa okkur að gagnrýna ekki um of því þá gæti allt farið í baklás. Þetta smellur allt einn daginn svo við höfum ekki áhyggjur. Þetta orð (hlið) er reyndar mjög gott að nota, því hann er með æði fyrir því að búa til hlið til að ganga í gegnum, raðar upp stólunum sínum og öðru stóru dóti og svo má ekki voga sér að fara út á vitlausum stað!
Það nýjasta í því er líka að búa til barnalæsingu á hliðið, hvort sem það er í legoinu eða eitthvað stærra, kannski ekki seinna vænna að byrja að þróa barnalæsinguna áður en það kemur annar skæruliði og skemmir allt. :)
Veðrið, sem var svo gott um hvítasunnuhelgina, er búið að vera sæmilegt síðustu daga, í dag reyndar hellirigndi sem var mjög kærkomið, allavega fyrir þá sem vilja fá ný svæði til að kríta á.. stéttirnar voru orðnar nær alveg fullar af kroti :)
Þriðjudagur 13. maí 2008
Nú er það ljótt maður, á mánudaginn hefst að öllum líkindum verkfall hjá leikskólakennurum hérna í Árósum. Það þýðir að ég verð heima frá mánudegi og eitthvað frameftir, því menn eru að spá löngu verkfalli. Þetta kemur sér ekki vel fyrir ritgerðina hans pabba né skólann og vinnuna hennar mömmu, en hún er búin að vera að vinna á fullu sjálfstætt síðustu vikur.
Krakkarnir í nágrenninu verða líka heima þannig að hugsanlega náum við að leysa þetta eitthvað saman.
En ætli það sé hægt að finna einhversstaðar au-pair með stuttum fyrirvara? *blikk*blikk* ;)
Sunnudagur 11. maí 2008
Til hamingju með afmælin Hanna móðursystir og Lilja föðursystir :) Ykkur til heiðurs er búið að vera yndislega fallegt veður í dag. Heiðskýrt, sól, heit gola og 24°c hiti. Við fórum því á ströndina uppúr hádegi og vorum fram að kaffi. Fyrir hádegi gerðum við reyndar skúffuköku sem kólnaði á bekknum fram að kaffitíma, og svo var kremi skellt á þegar við komum heim. Alvöru afmælis :)
Öll fjölskyldan fékk því svolítinn lit í dag.
Laugardagur 10. maí 2008
Síðustu daga höfum við verið að njóta veðurblíðunnar. Ég er búinn að vera úti að leika í leikskólanum alla daga í vikunni, og hef því farið vel smurður af sólarvörn á morgnana. Það er að komast í vana að vera kremaður svona í býtið, það var svolítið pirrandi fyrst.
Reyndar eftir fyrsta sólardaginn kom ég heim með sólarútbrot á kinnunum og aftan á hálsinum. Sem betur fer er ég duglegur að vera með nýja sólhattinn minn í leikskólanum, sem er betri en derhúfa því hún skyggir líka á að aftan. En það er ósköp þægilegt að hendast í leikskólann bara á stuttbuxum og bol.
Við höfum aðeins verið að grilla á flotta grillinu okkar í vikunni, ekkert flókið reyndar, bara hamborgara og pylsur. Það er góð stemmning í því að vera með svona gamaldags kolagrill og bara ekkert seinlegt við það.
Í dag, laugardag, var einn besti dagur vorsins/sumarsins enn sem komið er, yfir 25 stiga hiti. Við fórum í Tivolíið okkar uppúr hádegi (það er staður sem við eigum eftir að sakna mikið þegar við komum heim) sem var ofsalega gaman, þó svo ég vilji ekki fara í nein tæki, það er líka nóg annað að gera.
Það góða við að vera alltaf svona mikið úti er að á kvöldin er ég orðinn dauðþreyttur á kvöldin og bað pent um að fara að sofa klukkan hálf átta. Þá lesum við bókina um Ólátagarð sem ég fékk í afmælisgjöf frá ömmu og afa á Dalvík, við erum búin að lesa hana á hverju kvöldi síðan ég átti afmæli, og ein söguhetjan, sú minnsta, á alltaf að heita Bergdís, eins og litla vinkona mín sem býr við hliðina á mér.
Núna eru slatti af nýjum sumarmyndum í albúminu mínu, endilega kíkið :)
Laugardagur 3. maí 2008
Sjáiði veðurspánna hjá mér í næstu viku!!
Sjáiði þetta! :D

Nú fer hver að verða síðastur að panta sér far til okkar hérna í sólina, því við erum búin að bóka miðann heim. One way ticket. Föstudaginn 11. júlí kl 13:00 - beint í höfuðstað Norðurlands. Pínu sorglegt og pínu spennandi um leið.
Við vitum reyndar ekkert hvenær gámurinn okkar fer héðan, eða hvert við förum þegar við lendum, kannski einhver góðhjartaður veiti okkur smá skjól yfir nótt eða svo. Reyndar er pabbinn að fara eftir tvær vikur norður á bóginn og vonandi komast húsnæðismálin aðeins betur á hreint eftir það.
En það var líka blíða í dag, við fórum í sund í Horsens fyrripartinn og grilluðum svo niðri á túni með nágrönnunum seinnipartinn. Á fimmtudaginn, uppstigningardag, fórum við á rosa flottan róló (gæsluvöll eiginlega) niðri í miðbæ sem heitir "Børnenes og Beboernes Jord", greinilega gamall hipparóló með flottum gróðri, geitum, kanínum og fuglum og auðvitað mikið af leiktækjum. Það eru nokkrar myndir frá þeim degi í myndaalbúminu.
Ég er búinn að vera í fríi síðan á miðvikudag og því mikið búinn að leika við fóstbróður minn, við föðmumst yfirleitt þegar við hittumst úti á túni... og eigum reyndar í miklu ást-haturs sambandi stundum... ef það slettist eitthvað uppá vinskapinn segir annar; ég ætla bara að fara heim! þá segir hinn í aðeins kátari tón: eigum við að leika með (eitthvað dót)... þá er svarið oftast mjög glaðlegt: Jeh! og allt fellur í sama góða horfið.
Mamma hefur það líka bara fínt, stöðugt að gildna í mittinu og það nýjasta er einstaklega óþægilegur brjóstsviði.. þurfum að athuga hvort apótekið eigi ekki eitthvað við honum (svona þegar maður er búinn að finna danska orðið yfir brjóstsviða - sem er halsbrand). Um leið og brjóstsviðinn byrjaði kom upp bragðið af alminoxinu sem hún bruddi á síðustu meðgöngu.
Annars er mjög skondin þjóðtrú hérna sem við höfum ekki heyrt áður, þannig að ef móðirin þjáist af brjóstsviða á meðgöngu komi barnið til með að verða mjög hárprútt.
Það reyndar gekk eftir með Danna.. en veit ekki alveg hvernig þetta ætti að fylgjast að :)
Á morgun ætlum við að taka smá þrif syrpu á íbúðinni og bílnum, erfitt þegar sólin skín svona á skítuga gluggana :)
Sunnudagur 27. apríl 2008
Ég hélt afskaplega vel heppnaða afmælisveislu í gær, laugardag. Ég bauð auðvitað öllum íslensku krökkunum hérna á Stavnsvej og að sjálfsögðu Bastian líka. Mamma gerði kötturinn Njáll afmælisköku og svo gerðum við ávaxtaspjót saman sem mér fannst ótrúlega spennandi (og borðaði ca hálfan ananas á meðan ég var að raða á spjótin). Ég fékk ótrúlega fallegar gjafir og í allt var afmælisveislan mjög skemmtileg og vel heppnuð. :)
Í dag er svo búið að vera rosalega gott veður og ég var úti á bolnum í allan dag, núna er greinilega kominn tími á að sleppa sokkabuxunum og finna fallegan sumarjakka.
Á morgun er svo leikskóli en þetta verður stutt vika þar sem það er frí á fimmtudag en þá er uppstigningadagur (kristelig himmelfartsdag) og svo er frí á föstudag í leikskólanum.
En já, það eru komnar nokkrar myndir frá afmælisdeginum og veislunni í gær og svo síðan í dag. Kíkið :)
"Einusinni sá ég krókódíl með veiðihár á Hauganesi!"
Pabbi var að þurrka mér eftir baðið (og veiðihárin mín líka auðvitað) og þá kom þetta eins og þruma úr heiðskýru...
Þriðjudagur 22. apríl 2008
* Takk fyrir mig *
Ég vaknaði við afmælissöng í morgun og fullt af pökkum á borðinu hjá mér. Loksins er afmælisdagurinn kominn - Ó hvað mig hefur hlakkað til þessa dags síðustu daga :)
Ég fékk margt fallegt í morgun; rosalega flotta flíspeysu og spil frá Palla, Láru og litlu systur þeirra, bol frá Pílu og dótabúðarpening frá ömmu og afa á Hauganesi, bók og föt og flottan baby strák frá ömmu og afa á Dalvík (búinn að horfa lengi á hann í dótabúðinni - nú get ég æft mig í stórabróðurleik) og svo bílabraut frá mömmu og pabba!
Svo bíður mín pakki á eldhúsborðinu frá Baddý og Hönnu frænku.
Í gærkvöldi skelltum við í eina skúffuköku og kláruðum svo að skreyta hana með berjum í morgun, og tókum hana með á leikskólann. Við vorum komin uppúr hálf tíu á leikskólann og svo byrjaði afmælisveislan kl 10.
Það eru komnar MYNDIR frá afmælisdeginum (og líka frá tivoliferðinni um helgina) inn á myndasíðuna.
Nú á eftir ætla ég að ganga með boðskort í hús og fara svo út að borða á Bones í kvöld. Aldrei að vita nema það bætist við myndir í albúmið í kvöld líka.
Takk aftur fyrir gjafirnar og allar góðu kveðjurnar :)
Danni afmælisstrákur.
Mánudagur 21. apríl 2008
Hæ, núna er sumarið sko komið. Þegar mamma sótti mig á leikskólann í dag var ég úti að leika í engum útifötum (reyndar með húfu) og það í fyrsta skipti á árinu. Það var bara svo heitt, sagði ég.
Það sést reyndar framan í mér hvað ég er búinn að vera mikið úti að leika undanfarið, reyndar er það ekki sólbrúnkan heldur skrámurnar, ég er með ljótan marblett á hökunni eftir að ég datt af löggusparkbílnum hans Bastian (mamma var reyndar að elta mig með húfu og ég að reyna að komast undan, svo þetta var ekki allt stráknum að kenna) og svo datt ég af hjóli í leikskólanum í dag og fékk skrámu á nefið. Mamma laumast til að setja áburð á þetta á meðan ég sef, (því hún skal ekki voga sér að gera slíkt þegar ég er með meðvitund).
Síðasta helgi var líka frábær. Á föstudaginn var frídagur og þá notuðum við tækifærið og þrifum hátt og lágt, á meðan gólfið var að þorna fórum við með brauð út á andapollinn og gáfum öndunum og sáum nokkra fiska kroppa líka. Á laugardaginn hélt Bergdís Heba vinkona mín uppá 2 ára afmælið sitt og það var sko alvöru veisla. Á sunnudaginn vorum við búin að ákveða að fara í Tívolí, uppúr hádegi vorum við að klára að taka okkur til, Danni fór út á tröppur og hitti þar tvíburabróður sinn hann Bastian og tilkynnti honum að hann væri að fara í Tivolí og að Bastian mætti sko alveg koma með!! :D The more the merrier!
Eftir svona yfirlýsingar var eiginlega ekki hægt að valda vininum vonbrigðum og bakka út úr loforðum þannig að hann fékk bílstólinn yfir í bílinn okkar og við fórum öll af stað. Mamma hans og pabbi komu svo á eftir.
Það var mjög gaman í tivolí en stráksinn er ekkert mjög hugaður að prófa tækin, er alveg sama um þau eiginlega, langskemmtilegast bara að hlaupa og klifra á klifursvæðinu.
Á morgun er svo STÓR DAGUR - 4. ára afmælisdagur!
Við erum búin að telja niður undanfarna daga, og Danni geymir pakkana sem hann hefur fengið í pósti samviskusamlega inni í skáp. Í kvöld bökuðum við köku sem við ætlum að fara með í leikskólann í fyrramálið. Hún skartar að sjálfsögðu danska og íslenska fánanum. Ma+Pa ætla að vera með í afmælisveislunni í fyrramálið og taka nokkrar myndir. Svo verður haldin veisla hérna heima á laugardaginn, það er vonandi að veðrið haldi áfram að vera svona gott :)
Fimmtudagur 17. apríl 2008
Þessi vika er búin að vera frekar róleg, á mánudaginn keyrðum við heim úr sumarhúsinu, á þriðjudag og miðvikudag var ég heima því ég var svolítið slappur og með smá hita en svo á miðvikudagskvöld var ég orðinn hress og fór því í leikskólann í morgun. Á morgun, föstudag, er svo Store Bededag sem er frídagur (semsagt stóri bænadagurinn þar sem nokkrum trúarlegum frídögum var skellt saman í einn). Þeir sem eru ekki svo trúaðir breyta þessu bara í Store Bagedag og baka bollur og eitthvert gúmmílaði :)
Varðandi flutningana þá eru skrefin tekin mjög smá þessa dagana, en þó einhver. Við erum búin að segja upp leikskólaplássinu hérna úti og fá pláss á leikskólanum Pálmholti á Akureyri. Það er lítill og heimilislegur leikskóli sem okkur líst mjög vel á. Reyndar ætlum við að reyna að athuga þegar við erum komin með húsnæði að fá að skipta yfir í þann leikskóla sem verður næst okkur, en þó það gangi ekki verður það örugglega allt í lagi.
Og varðandi húsnæði, þá er pabbi búinn að panta flug fyrir sig norður uppúr miðjum maí til að ganga frá því, hvort sem það verður kaup eða leiga.. við erum meira hrifin af því að kaupa eitthvað gott hús svo við þurfum ekki að flytja aftur þegar við erum komin með lítið kríli, en aðstæðurnar núna eru bara þannig að það er mun hagstæðara að leigja á meðan maður er að ákveða sig.
Á morgun og um helgina er spáð rosalega góðu veðri, við ætlum að vera hérna heima og slaka á og fara svo um helgina niður í Tivoli Friheden, en þeir eru nýbúnir að opna aftur eftir veturinn og við auðvitað komin með seasonpassa ;)
Þriðjudagur 15. apríl 2008
Helgin sem leið var ótrúlega skemmtileg. Ég fór í sumarhús í Vejers, sem er á vesturströndinni rétt hjá Esbjerg, með Bastian, Bertram, Agnete og Bjarne ásamt Ilmi, Móeiði, Guðrúnu Björk og Vigfúsi. Við fórum eftir hádegi á föstudaginn, lentum í smávegis umferðateppu við Horsens og vorum komin í bústað rétt fyrir kvöldmat. Þá elduðu Agnete og Bjarne tyrkneska súpu sem var alveg ótrúlega góð. Húsið var líka rosalega fínt, mjög snyrtilegt og vel skipulagt. Það voru þrjú svefnherbergi og eitt svefnrými inn af stofunni, það var gerð heiðarleg tilraun til að athuga hvort við grislingarnir gætum sofið saman í einu herberginu en þrátt fyrir góðan vilja af allra hálfu var það svolítið skrýtið og við enduðum öll á milli mömmu og pabba.
Á laugardaginn löbbuðum við í gegnum bæinn Vejers, sem er alveg ekta sumarbær, örugglega enginn sem býr þar eða vinnur á veturna, og niður á ströndina sem var alveg óóótrúlega stór og flott. Þegar við komum heim slöppuðum við bara af og lékum okkur, og mamma og pabbi elduðu svínasteik með sykurbrúnuðum kartöflum. Á sunnudeginum keyrðum við til Ribe, sem er einn elsti bærinn í Danmörku og er virkilega flottur. Kíktum í kirkjur og í garða og fengum okkur ís. Svo rúntuðum við aðeins meira þar til við komum heim og þá töfruðu Guðrún og Vigfús fram rosa góðan kjúklingarétt. Á mánudeginum tókum við bara til og fórum út um hádegi. Þá var ég reyndar orðinn svolítið slappur og kominn með hita svo við keyrðum bara beinustu leið heim á meðan samferðafólk okkar tók auka rúnt um vesturströnd Jótlands.
Það sem stendur uppúr þessari ferð var hvað við vorum virkilega dugleg að leika okkur saman. Við komum með fullt af dóti með en notuðum það eiginlega ekkert, því við vorum bara í ímyndunarleik og fundum bara eitthvað til að leika með sjálf. Til dæmis á laugardagsmorgninum vaknaði ég á undan mömmu og pabba þegar ég heyrði krakkana tala saman frammi, svo ég spurði mömmu mjög gætilega hvort ég mætti "opna hurðina smá og loka henni svo strax aftur?" semsagt, ég vildi fara fram en þau þurftu ekkert endilega að fara á fætur :)
Að sjálfsögðu voru teknar yfir 200 myndir um helgina, svo eitthvað af þeim er á leiðinni í albúmið mitt.
Á heimleiðinni á mánudag var ég frekar slappur og svaf mestallan tímann eftir að við komum heim og var heitur um kvöldið, svo vaknaði ég bara hress um morguninn en fór ekki í leikskólann samt. Var hress frameftir degi svo mamma tók mig með í smá bæjarrölt á meðan pabbi vann í verkefninu sínu, en þegar við komum heim kom slappelsið yfir mig og þegar ég sofnaði í kvöld var ég svolítið heitur. Vonandi að það lagist á morgun.
Þriðjudagur 8. apríl 2008
Í morgun fórum við í 20 vikna sónarinn. Mamman ákvað að drekka eina kókómjólk/matilda áður en við færum uppeftir til að vera viss um að það væri nægur sykur í blóðinu svo krílið myndi kannski taka smá æfingar, í stuttu máli hreyfði það sig svo mikið að það var varla hægt að mæla útlimalengdir! Við sáum það leggja hendurnar saman (maður verður jú að halda í hendina á einhverjum), sjúga þumalfingurinn, toga í naflastrenginn, rétta úr fótunum, krossleggja fætur og súpa legvatn alveg á fullu og hnykkja sér til. Konan sem var með okkur var alveg ótrúlega fær, enda er Skejby Sygehus eitt besta sjúkrahús í Danmörku og hún er örugglega algjör sérfræðingur í röntgen fósturfræði. Tækin eru líka alveg ótrúlega skýr og hægt að sjá blóðflæðið í mismunandi litum eftir því hvort það er á leiðinni inn eða út.
Og henni leist alveg rosalega vel á krílið, allt eftir uppskriftinni, stækkar vel og verður örugglega álíka stórt og Danni var þegar hann fæddist. Við fengum svo útprentun af allri skýrslunni okkar til að taka með heim til Íslands.
Næsta á dagskránni er fyrsta mæðraskoðunin en hérna í Danmörku fara fjölbyrjur fyrst til ljósmóður á 28. viku, ekkert verið að stressa sig, það er í byrjun júní.
Danni er annars kátur, við sváfum óvenju lengi frameftir í morgun - reyndar kom hann uppí eldsnemma í morgun en mamma hans náði að fá hann til að sofna aftur þannig að við enduðum á að fara framúr uppúr hálf níu :/ Þegar við komum svo að sækja hann í leikskólann seinnipartinn hittum við Bastian besta vin úti á plani hjá leikskólanum. Hann var að koma að sækja mömmu sína sem vinnur í leikskólanum við hliðina. Bastian fékk þessvegna að koma með að sækja Danna í leikskólann og það var ekki lítið skemmtilegt :)
En já, sónarmyndirnar frá því í morgun eru á leiðinni í myndaalbúmið, og nokkur gullkorn hafa bæst við síðustu daga líka :)
takk fyrir kveðjurnar :)
Mánudagur 7. apríl 2008
Jæja núna erum við að vona að vorið sé komið. Sólin skín bjart og lyktin af sumrinu er komin í loftið (og einn nágranninn byrjaður að skrúfa upp í tyrkneska útvarpinu sínu ;) ) og gott ef við þurfum ekki að fara að henda út nokkrum köngulóm út úr baðherberginu (við þrifum samt um helgina, lofa ykkur því!)
Undanfarna daga hef ég sagst á morgnana vera alveg "rosalega rosalega rosalega rosalega rosalega rosalega lasinn" þegar ég á að fara í leikskólann. Nefnilega þegar maður er veikur þá kemst maður upp með svo margt... en það er ekkert mjög sannfærandi að segjast vera rosalega veikur eftir að maður er búinn að vera að hoppa í rúminu, háma í sig fulla skál af hafrefras eða hafragraut. Á laugardagsmorgun sagði ég þetta líka, alveg rosalega rosalega lasinn, og þá spurði mamma að ég gæti þá ekkert farið út að leika við Bastian í dag af því það væri ekki leikskóli.. og þá spratt minn á fætur og hrópaði jibbí!
Bara ef veikindin myndu renna svona auðveldlega af manni.
En hann er samt alveg kátur í leikskólanum, sérstaklega eftir að hann fékk nýja Cars inniskó sem lýsa þegar hann gengur um. Núna valhoppar minn um leikskólann með blikkandi ljósasjói!
Mamman hefur það líka alveg ágætt, henni er hikstað í svefn á kvöldin og sparkað á fætur á morgnana svo það er eitthvað að gerast í bumbunni. Á morgun förum við svo í 20 vikna sónar upp á Skejby sjúkrahús og þá kemur í ljós hvort það verður hamstrað í bleiku eða bláu deildinni í H&M ;) Því verður samt ekkert básúnað um allt.. hehe.
Hún er líka farin að blása svo út að það er kominn tími á að parkera fötunum svo það verði ekki bara teygðir bolir teknir upp úr töskunum heima.
Um næstu helgi ætlum við að fara í sumarhús niður til Esbjerg með Bastian og fjölskyldu og Ilmi og fjölsk. Það verður örugglega rosalegt stuð og vonandi að sumarblíðan fari að kvikna núna fyrir alvöru :)
"Ertu eitthvað þreyttur, elskan mín?"
Sagði ég við pabba þegar hann sat í eldhúsinu að læra.
Föstudagur 4. apríl 2008
Danni fékk bók í jólagjöf frá Kormáki og Furu sem er í miklu uppáhaldi. Hún heitir "Teljum dýr, 1-2 og 3". Þar eru ýmsar upplýsingar um íslensk dýr. Við erum búin að lesa hana svo oft að Danni man yfirleitt hvað stendur, svo þegar kom að músinni þá er hann beðinn um að botna þessa línu: Á Íslandi eru tvær tegundir músa, þær heita:
Danni: Hagamús og.... innimús!
Sunnudagur 30. mars 2008
Í morgun breyttum við yfir í sumartíma þannig að núna erum við 2 tímum á undan Íslandinu góða.
Það fer smá tími milli foreldranna hérna heima að ræða framtíðarplönin (við erum semsagt ekkert að beila á því að flytja heim þó svo allt virðist vera að fara til ansk.) og alltaf skýtur sá stutti inn á milli: "Ég vil búa hérna!" Svolítið viðkvæmur fyrir breytingunum framundan.
Við vitum reyndar ekkert hvernig þetta verður... hvort við kaupum áður en við flytjum (sem verður í kringum 10. júlí), eða byrjum á því að leigja (á meðan erfingi #2 kemur í heiminn (lok ágúst) og byrjar að spjara sig og kaupa svo) eða hvort við kaupum eftir að við komum heim og reynum að fá afhent áður en leikskólinn byrjar (1. ágúst) og allt fer af stað... óvissan er allsráðandi!
Annars var vikan ósköp ljúf, ég var reyndar ekkert á því að fara í leikskólann á þriðjudaginn eftir páskafrí en það lagaðist fljótt. Svo hef ég verið límdur við Bastian um helgina, við erum svo góðir að leika okkur að það er alveg ótrúlegt.. farnir að leysa okkar ágreiningsmál líka sjálfir og getum aldrei verið fúlir hvor við annan nema í eina mínútu í einu, svo verður allt ljúft.
Sunnudagur 23. mars 2008
* Gleðilega páska *
Síðustu morgna hefur Danni vakið okkur, um átta leytið, með því að standa við rúmstokkinn yfir okkur og sagt svona "fúúúidd fúúúidd" með stút á vörunum. Ég hef þá yfirleitt vaknað við þetta lágværa hljóð og blástur á kinninni. Í morgun spurði ég hann hvað hann væri eiginlega að gera og þá sagði hann.. nú auðvitað blístra!
Já einmitt.
Honum er líka mikið kappsmál að geta smellt með fingrunum og er oft að æfa sig á því og sleikir á sér puttana en ennþá kemur ekkert hljóð. Það kemur að því sennilega.
Nokkrar myndir úr páskafríinu huggulega eru komnar inn í albúmið góða. Páskadagurinn er líka búinn að vera góður, fullt af leikfélögum og nóg af myndum sem koma von bráðar.
Og takk fyrir að vera svona dugleg í gestabókarskrifum, það er rosalega gaman að sjá kvittið :)
Laugardagur 22. mars 2008
Það er magnað að vera svona í fríi. Leikskólinn var lokaður í dymbilvikunni og strax á þriðjudaginn fannst mér skrýtið að vera alltaf heima svo ég spurði mömmu og pabba hvort ég væri lasinn :)
Það er reyndar búið að vera hrikalega kalt úti þannig að við höfum lítið verið útivið að leika, nema kannski klst á dag. Á fimmtudaginn fórum við í matarboð yfir í næstu íbúð til Hindar og Hebu og eftir matinn fengum við krakkarnir smá hyggepartý með poppi og teiknimynd. Svo náðum við í dýnu, sængina mína, koddana og kisurnar og ég kúrði á gólfinu á milli Hebu og Hindar (Bergdís Heba sofnaði reyndar strax en við Ástrós Hind hvísluðumst aðeins á, áður en við sofnuðum svo). Svo tóku foreldrarnir í spil og spiluðu fram á rauða nótt (föstudagsinslanga-nótt - tökum ekkert mark á einhverju spilabanni!) Eftir spil var ég svo borinn í rúmið mitt og vaknaði þar um morguninn.
Á föstudagskvöld fengum við Magnús Mána, Atla og Evu í mat og við elduðum stórt nýsjálenskt lambalæri sem smakkaðist alveg prýðilega. Svo fengum við ís í eftirmat og ávexti og það var sko ekki ónýtt :)
Í dag brunuðum við niður til Billund og hittum á Munda frænda og Svanhildi. Ég var svo roooosalega heppinn að þau gáfu mér flott páskaegg þannig að eftir hádegismatinn fékk ég að þjófstarta páskunum og smakka á góðgætinu. :)
Það snjóaði reyndar í nótt og var allt hvítt yfir þegar við vöknuðum. Það á að vera óskaplega kalt næstu daga, örfáar gráður yfir daginn og hörku næturfrost og úrkoma og aldrei að vita nema það bæti aðeins í snjóinn.
Á morgun, páskadag á Palli frændi minn afmæli. Hann verður 6 ára hvorki meira né minna. Það þarf alveg tvær hendur í að telja það! Núna eru bæði ömmu og afa settin mín á ferðalagi í Prag og vonandi að þau njóti lífsins og nái að skoða þessa fallegu borg.
Baddý frænka flaug líka á hausinn í gær þegar hún var að renna sér niður Kaldbak á sleða og viðbeinsbrotnaði :/ Ég sendi henni batnaðarknús... og harðan koss, eins og ég er gjarn á að gefa þessa dagana :)
Föstudagur 14. mars 2008
"Ég heiti Daníel Ólafsson Helgi..."
Hann fattaði um daginn hvað pabbi hans hét fullu nafni og þessu sló aðeins saman :)
Við tölum ekki mikið við Danna um litla barnið því það er svo langt að bíða, en hann minnist svolítið oft á það sjálfur að fyrra bragði því hann er jú oft með eitthvað í bumbunni líka. Þegar hann var að fara að sofa í gærkvöldi sagði hann að litla barnið mætti alveg fá gamla rúmið hans, og svo þegar hann kom inn í herbergi í morgun var það fyrsta sem sagði að litla barnið mætti alveg nota kerruna hans líka. Mamma hans spurði hvað hann hafi dreymt og var þá að spá í hvort hann hefði dreymt eitthvað með litla barnið, en nei.. hann dreymdi bara ís, og það hefur komið fyrir áður :)
En það er gott að ítreka röðina sem þetta gerist allt, fyrst kemur páskafrí, svo kemur afmæli, svo kemur sumar og sumarfrí og svo flytjum við...
og jú, ps. mamma hringdi loksins á læknastöðina og spurði um niðurstöðuna úr blóðprufunni/mótefnamælingunni sem hún fór í fyrir tveimur vikum. Það þurfti nefnilega að hringja milli 8 og 9 á morgnana og kellingin var alltaf sofandi þá.. hehe,
Allavegana, hún er búin að fá fimmtu veikina (lussingesyge) þannig að það er ekkert mál þó hún komi upp aftur :)
Miðvikudagur 12. mars 2008
Hæ, það er nú bara mest lítið að frétta,

ég eignaðist reyndar litla sæta frænku fyrir helgina sem er systir Palla og Láru, hún fæddist með rosa mikið flott dökkt hár og pétursspor í hökunni - alveg eins og ég þegar ég fæddist, þannig að auðvitað á ég smá í henni ;)
Í næstu viku verð ég í fríi þar sem leikskólinn er lokaður, og sennilega allir krakkarnir í hverfinu líka heima. Reyndar meiddi ég mig pínu í leikskólanum í gær þegar ég og Kasper vorum að hoppa í sófanum, ég datt og rak hökuna á borðið og var eiginlega heppinn að hafa ekki meitt mig meira. Þetta kennir manni kannski að vera ekki að hoppa í sófanum :s
En það er mikil tilhlökkun til páskanna, eða "jólapáskaeggjanna" eins og Danni segir.. aðeins að rugla saman.
Mamma er líka bara hress, var svolítið ónýt í síðustu viku út af ógleði en þarf bara að passa sig að borða á ca 2 tíma fresti og fara aðeins út og hreyfa sig, en það eru komnar rúmar 16 vikur svo vonandi fer því að linna. Pabbi sér reyndar ennþá um eldamennskuna og uppvaskið... enda engin ástæða til að breyta því ;)
Föstudagur 7. mars 2008
"Einusinni var ég í bumbunni, núna er ég bara Danni og á eftir ætla ég að vera missekat (kisa)"
Miðvikudagur 5. mars 2008
jæja, orðinn alveg eiturhress og mikið að gera í leikskólanum. Þegar ég kem á morgnana taka vinir mínir, þau Kristoffer og Nanna svo hressilega á móti mér að þau ætla næstumþví að éta mig.. ég er varla kominn inn fyrir dyrnar þegar þau eru komin upp að andlitinu á mér og segja "Skal vi lege sammen, Danni?" Mér finnst þetta nú yfirleitt óþægilegt og segi "Nej" með fýlusvip.. en þau eru farin að kunna inná mig og eftir smástund, eftir að það er búið að veifa mömmu eða pabba bless frá kassanum í forstofunni (það er staðið uppi á kassa og það má sko ekki hversemer standa hjá manni...) erum við farin inn í herbergi að leika.
Bastian kom annars til mín í gær, hann er búinn að vera mjög veikur síðustu daga því í síðustu viku voru teknir úr honum hálskirtlarnir. Hann var því á sjúkrahúsi í Randers yfir eina nótt (pabbi hans vinnur þar) og svo bara heima að reyna að láta sér batna. Hann var samt mjög orkulítill þegar hann kom í heimsókn svo við lékum okkur bara stutt en það var mjög fínt því við söknuðum hvors annars mjög mikið. Veit ekki alveg hvað við gerum í sumar þegar ég flyt...
Annars er ég búinn að vera rosalega heppin síðustu daga, alltaf að fá eitthvað með póstinum. Gauja amma sendi mér flott dót frá Kanarí, m.a. mjög sólríkan bol sem ég vildi sko endilega fara í í leikskólann í morgun. Helga amma sendi mér svo páskaegg í dag! Ó hvað ég varð glaður að sjá það. Þegar ég var veikur í síðustu viku gróf mamma upp jóla-bangsimon-kinderegg út úr skápnum (sem átti að skoðast um jólin en hafa einhvernvegin gleymst.. skilþaðekki..). En þetta var sko ekki jólapáskaegg heldur alvöru strumpaegg! Reyndar sá pósturinn um að brjóta það nokkuð vel en þá allavega sér maður allt gumsið sem leynist inní.. mmmmm..... Reyndar er Danni með mjög góða útskýringu á því að það brotnaði - auðvitað afþví strumpurinn var OFANÁ páskaegginu... !
En það bíður hérna uppi á hillu eftir páskunum :)
Fimmtudagur 28. febrúar 2008
Við fórum í morgun til læknisins, hann hlustaði mig og sagði að það væri ekkert alvarlegt í lungunum heldur væri þetta bronkítis eða berkjubólga og hún ætti nú að fara að hjaðna, vonandi.
Ég fór ekkert í leikskólann í dag en fer í fyrramálið fram að hádegi, Ástrós kom líka yfir að leika við mig í dag og það var mjög ánægjulegt að fá almennilega leikfélaga loksins. :)
Miðvikudagur 27. febrúar 2008
Síðustu dagar eru búnir að vera hreint ótrúlega leiðinlegir, ég er búinn að hanga heima með hita og ferlegan hósta og ekkert komist í leikskólann. Ég vaknaði reyndar hitalaus á þriðjudaginn en varð rosalega slappur með smá hitaskot seinnipartinn. Í dag er ég reyndar búinn að vera nokkuð hress (enda svaf ég til tíu eftir mikla svefnóreglu í gær) en ennþá með þennan leiðinlega hósta. Við hringdum í Pernille lækninn okkar og hún gaf okkur tíma í fyrramálið og ætlar að hlusta drenginn (annars merkilegt hvað það er auðvelt að fá tíma hjá heimilislækninum!) og athuga hvort þetta sé ekki að hjaðna. Mamma ætlar að nota tækifærið og fá mótefnamælingu við "Lussingesyge" (fimmta veikin) sem er barnasjúkdómur sem er að storma um hverfið.
Við erum búin að reyna að stytta stundirnar hérna heima með föndri (mér finnst rosalega gaman að klippa, og helst að klippa út nöfnin okkar), Bangsimon- og Söngvaborgaráhorfi, púsli og málverkagerð. Samt sakna ég vina minna á leikskólanum og Bastians. Spyr oft á dag hvort ég megi ekki fara og leika við hann.
Takk annars fyrir góðu kveðjurnar sem hafa borist. Það er svolítið merkilegt að tilkynna svona fréttir þegar maður er svona langt í burtu og hálf einangraður. Við hefðum jafnvel komist upp með það að segja engum og mæta bara með stóra kúlu heim í sumar en það hefði nú ekki verið eins skemmtilegt. :) Mamma hefur það alveg fínt, ógleðin er að hjaðna en poppar ennþá upp og bragðlaukarnir eru eitthvað ruglaðir líka. Pestóið um daginn var á bragðið eins og hrossakjöt og soðni laxinn í kvöld smakkaðist eins og þorskhrogn.
Ughh..
Það sést auðvitað ekkert ennþá, nema maginn er kannski þaninn eins og eftir góða pizzu og bjór.. hehe
Sunnudagur 24. febrúar 2008
dregur upp bolinn og bendir á bumbuna sína: "ég er líka með barn í maganum... og líka sjónvarp!"
Ég er búinn að vera slappur síðan á föstudaginn með ljótan hósta, fór ekkert í leikskólann þá og aðfararnótt laugardags fékk ég alveg bullandi hita sem er búinn að vera núna í gær og í dag. Það er ekkert sérstaklega skemmtilegt þó ég hafi verið hress yfir daginn. Nú hins vegar sofnaði ég yfir Emil í Kattholti disknum sem ég fékk að láni hjá Ilmi vinkonu minni og vonandi að ég nái að hrista þetta úr mér fljótlega. Ég verð samt heima á morgun.
Bastian vinur minn er líka lasinn, með svokölluðu fimmtu veikina. Ég er ekki búinn að fá hana og mömmu er alveg meinilla við að hún komi á heimilið akkúrat núna. Við skulum bara vona að hitinn minn sé flensa en ekki upphafið að fimmtu veikinni, allavega eru engin útbrot komin fram :S
Miðvikudagur 20. febrúar 2008
Ég er nú bara hress og kátur, nýt mín vel í leikskólanum og er duglegur að leika og pikka upp frasana sem er misvel tekið í þegar heim er komið (dumme mor... oþh.) Danskan er alveg að smella hjá mér og núna gleymi ég yfirleitt frekar íslenskunni en við reynum að leiðrétta það hérna heima. Ég er líka orðinn góður í að þýða yfir á dönsku og svo syngja líka.. núna er ég með á heilanum lag sem er svona: "Gik jeg over sø og land og hitte der en gammel mand.. sagde jeg så og spørgte så, hvor har du hjemme...."
Fyndið. (textinn er reyndar ekki alveg svona á dönsku en okkar maður er ekkert að stressa sig á því)
Ég byrjaði líka í smá talþjálfum fyrir nokkrum vikum eftir að ég fór í "prófið" í haust en ég fæ hálftíma á viku í talörvun (sem sérstaklega er tekið fram að kommúnan borgar fyrir). Það snýst að mestu um að skoða bækur eða teikna eða gera eitthvað sérstakt sem ætti kannski að vera hluti af daglega lífinu.
Núna hins vegar er smá upplausnarástand á leikskólanum þar sem leikskólastjórinn sagði upp og hætti samdægurs, líklega af því það er búið að gera rosalegt mál úr því að plana að vera með heitan mat í hádeginu.. hver á að elda? hver á að sjá um börnin á meðan? hvað á að rukka foreldra.. má ekki rukka of mikið.. ? jaríjarí. Mest held ég að stressið hafi verið á henni því það komu 3x miðar heim til að kanna meðal foreldra hvernig ætti að fara að þessu..., þannig að á meðan það er verið að finna nýjan leikskólastjóra þá eru allar svona sérmeðferðir eins og hálftíma talörvun á viku sett á bið (sem koma leikskólastjóranum reyndar ekkert við, en við spyrjum bara sem minnst enda erum við ekkert að borga fyrir leikskóladvölina).
Svo kannski fréttuð þið af ólátunum sem voru hérna um helgina, en það var kveikt í einni vöggustofunni í hverfinu, ekki nálægt leikskólanum mínum reyndar en í leiðinni. Það var einhver 16 ára gutti úr hverfinu sem gerði það en við vitum ekki hvort það hafi verið einhverjir eldri sem stjórnuðust í því eða hvort hann var bara að taka þátt í æsingnum sem er búinn að vera sl. daga vegna teikninganna. Allavega var þetta alveg ferlegt!
Um daginn kom í ljós að útigallinn minn var farinn að rifna og eftir einhverjar tilraunir til saumaskapar á heimilinu var ákveðið að versla nýtt útidress á drenginn. Mamma spurði mig hvernig gallinn hafi eiginlega rifnað svona og mitt svar var: Nú, þegar ég var að klifra í trénu, þá bara rifnaði hann...!
Já einmitt, klifra uppi í tré!
Allavega, okkur fannst frekar súrt að kaupa annan kuldagalla þar sem það fer nú vonandi að vora og hlýna bráðum svo við fundum regngalla sem var fóðraður með flíspeysu. Vonandi dugar hann þó það sé ekki nema 5-8 stiga hiti.
Nokkur gullkorn eru komin á þá síðu og svo fara að koma myndir bráðum,.. kannski.. :)
takk fyrir gestabókakvittsdugnaðinn :)
Eldsnemma að morgni:
Danni: "Mig langar í barbie dúkku..."
"og svona kerru..."
Mamma: "Barbie kerru?"
Danni: "Nei, handa Sturlu, svona Sturluvagn"
(Sturla er sko gamla dúkkan hennar mömmu sem ég leik mér með núna, en Barbie dúkkurnar eru vinsælar á leikskólanum þessa dagana, sérstaklega að smella saman og hneppa fötunum)
Þriðjudagur 19. febrúar 2008
"Ég ætla að búa í makdonands"
Danni er ennþá að ákveða hvar hann ætlar að búa, fyrst hann veit að við erum að fara að flytja bráðum. MacDonalds er á horninu hjá okkur og hann er einusinni búinn að fara þar inn fyrir löngu síðan en ákvað samt um daginn að það væri bara allt í lagi að búa þar, frekar en í Barcelona.
Sunnudagur 10. febrúar 2008
Núna er eiginlega vor í lofti hjá okkur andstætt því sem við heyrum að er að gerast á Íslandi. Veðurspáin fyrir helgina var afskaplega góð; yfir 10 stiga hiti bjart og lítill vindur. Í gær ákváðum að kíkja í sund til Viborgar, sem er um 60 km í vestur og sundlaugin þar var rosalega flott, en kannski ekki alveg eins flott og í Horsens, en samt fínn innilaugargarður með góðri heitri busllaug fyrir svona gaura eins og mig, svo var líka pollur með "sandkassadóti" og stórum legokubbum, risa rennibraut og svo auðvitað sundlaug með dýfingarpöllum. Reyndar fékkst ég ekki til að fara í rennibrautina, mamma og pabbi sáu bara um það :) Svo löbbuðum við aðeins um miðbæinn í gegnum göngugötur og garða.
Í dag er líka búin að vera brakandi blíða. Ég fór út á róló með pabba í morgun og svo náðum við á Magnúsi Mána og við fórum saman með mömmunum okkar líka út á róló. Magnús kom svo inn með mér og við lékum inni í herbergi og svo bakaði pabbi rosa góðar pönnsur sem við gúffuðum í okkur.
Miðvikudagur 6. febrúar 2008
Dansk/íslenskan hans Danna:
"Bubbimann byggir" (blanda af Bubbi byggir og Byggemand Bob)
"Ég get ekki líað þetta" (jeg kan ikke lide det - yfirleitt þegar það er kvöldmatur!)
"Viltu merkja þetta?" (vil du mærke det -- þýðir: viltu finna? t.d. hvað þetta er mjúkt)
"Ég ætla að henta minn bolta" (jeg skal hente min bolde - sækja boltann minn)
Mánudagur 4. febrúar 2008
Í gær héldum við uppá Fastelavn (öskudag) hérna úti á túni, ég ætlaði að fara í spiderman búninginn minn en af því það var svo kalt passaði hann ekki yfir útifötin mín, svo ég fór í sjóræningjabúning, mjög flottur!
Við vorum ótrúlega dugleg að slá í tunnuna, þær voru nefnilega tvær, ein fyrir stóru krakkana og önnur fyrir okkur litlu krakkana. Við fórum alltaf í mjög fallega röð eftir hvert öðru til að slá og út úr tunnunni kom allskonar góðgæti; mandarínur, rúsínur, smarties og hlaup.. jummms
Í morgun fór ég svo á leikskólann, með spiderman búninginn minn og það voru allir krakkarnir í búning og meiraðsegja kennararnir líka. Gaman gaman. Sennilega syngjum við fastelavns lagið oft í dag, enda er það búið að hljóma mikið um helgina:
"Fastelavn, er mit navn
boller vil jeg have
Hvis jeg ingen boller får
så laver jeg ballade"
Sunnudagur 20. janúar 2008
Helgin er búin að vera aldeilis sveiflukennd. Í síðustu viku var ég svooo farinn að hlakka að gefa Sóllilju afmælispakkann sinn og fara í afmælisveislu á laugadaginn, nema að uppúr hádegi á laugardaginn, þegar Ástrós og Bergdís voru í pössun hjá okkur, varð ég alveg rooooosalega slappur með hita og gat varla staðið, svo ég svaf eiginlega það sem eftir var dags. Ég vaknaði um hálf ellefu um kvöldið dálítið svangur, borðaði smá brauð með osti en var alveg dasaður af hita (spurði mömmu upp úr þurru hvort hún gæti sett tunguna hérna og bendi á nefið.. mamma gat það ekki og ekki ég heldur, en ég sagði að Lilo gæti það - ég horfði sko á Lilo og Stitch með Baddý um áramótin) og svo fórum við bara inn í rúm með bækur og fórum að sofa. Ég var með hita aðfaranótt sunnudags og vaknaði nokkrum sinnum, en náði samt að sofa til níu á sunnudagsmorgun og var þá alveg hitalaus og eldhress. Sem var nú gott.
Seinnipartinn í dag fórum við svo loksins með afmælisgjöfina til Sóllilju og skoðuðum dótið hennar smá. Það var mjög hressandi og skemmtilegt.
Föstudagur 18. janúar 2008
jæja, það er nú meiri letin hér á bæ, svona er það þegar það er lítið að frétta :)
En mamma var að klára síðasta prófið í gær, það var munnlegt próf (reyndar á ensku) og gekk alveg glimrandi vel, fékk 10 en í prófinu um daginn, sem var hópverkefni og við vorum 4 saman, fengum við öll 12 í einkunn. Við kvörtum ekki undan því ;)
Pabbi er líka á fullu í ritgerðinni sinni og lítur varla uppúr útprentununum sínum, nema til að fá sér kaffibolla auðvitað :)
Það hefur því verið nóg að gera síðustu daga, við Bastian lékum okkur mikið saman síðustu helgi og núna um helgina fer ég í afmæli til Sóllilju, ég pakkaði inn gjöfinni í gær og vildi eiginlega fara með hana strax!
Það gengur líka vel á leikskólanum og ég er orðinn mjög öruggur í dönskunni, í gær var ég í búningaleik með krökkunum enda er fastelavn (öskudagur) á næsta leyti, við klippum stundum út grímur og setjum upp. Við keyptum búning um daginn, mig langaði helst að finna kisubúning en þeir voru of litlir, þannig að ég valdi Spiderman.
Það er líka vonandi að veðrið haldist eins og það er, búið að vera mjög milt og frostlaust, í fyrra snjóaði alveg helling nokkra daga eftir fastelavn en við vonum bara að það taki ekki uppá því aftur.
en ok, þegar maður er farinn að tala um veðrið, þá er fréttaleysið orðið ansi alvarlegt... ;)
Miðvikudagur 9. janúar 2008
Hver ætlar að skutla mér í leikskólann?
Ég vaknaði klukkan 06:00 í morgun þannig að uppúr átta var ég orðinn nokkuð óþreyjufullur að komast af stað...
Mánudagur 7. janúar 2008
"Hver sefur þarna?" spurði ég þegar ég sá vagninn hennar Bergdísar úti á svölum í morgun, mamma sagði að Bergdís (vinkona mín og nágranni) svæfi þarna.
Eftir smá umhugsun sagði ég svo:
"En ég svaf inni í rúminu mínu!" - mamma leiðrétti mig svo og sagði að auðvitað hefði Bergdís ekki sofið úti í nótt, heldur í rúminu sínu :)
Baddý á að vera heima hjá mér!
Vorum að skoða myndir eftir heimsóknina og þá komu fram þessi saknaðarorð.
Miðvikudagur 2. janúar 2008
Gleðilegt nýtt ár :)
Ég er núna í algerri sælu athyglinnar því móðursystur mínar tvær ásamt ömmu og afa eru í heimsókn og keppast við að fá að leika við mig.
Gamlárskvöld var mjög skemmtilegt, ég var ekkert hræddur við flugeldana en fannst samt betra að sitja inni og horfa út um gluggann. Ég hitti samt Bastian úti og veifaði með honum nokkrum stjörnuljósum.
Við erum annars búin að gera ýmislegt, skoða bæinn og versla aðeins, fórum í dag á fiskasafnið í Silkiborg og ætlum á næstu dögum að skoða Den Gamle By og sitthvað fleira en það er bara verst hvað spáin er slæm; frost og hvassviðri, auðvitað er miklu betra veður núna á Íslandi.
Eftir helgi verður svo reynt að ná sólarhringnum í eðlilegt horf; á nýársmorgun svaf ég lengst allra eða til korter í eitt (sofnaði reyndar kl hálf eitt á nýársnótt), í morgun til hálf tólf svo það er verk að vinna að koma þessu í réttan gang aftur.
Kærar nýárskveðjur til allra frá okkur :)


