Um mig
Ég er Dagný Reykjalín.
Fædd árið 1978 og uppalin í sjávarþorpinu Hauganesi í utanverðum Eyjafirði. Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1998. Grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands 2003. Starfaði hjá Mixa hönnun og auglýsingum (nú Pipar) frá útskrift þar til við fluttum til Árósa í Danmörku með fjölskyldunni þar sem ég stundaði diplómunám í margmiðlun en unnusti minn var í mastersnámi í tölvunarfræði.
Sumarið 2008 fluttum við heim, í draumabæinn Akureyri, þar sem yngri sonur okkar fæddist í ágúst.
Ég hef unnið ýmis störf um ævina, m.a. í fiskverkun á sumrin frá 12 ára aldri fram á menntaskólaár, í sjoppum og á veitingastöðum, bókhaldinu hjá Landsvirkjun, vefhönnuður hjá TölvuMyndum (nú TM Software) en í og með hef ég alltaf verið í verkefnavinnu við grafíska hönnun og vefhönnun og ég starfa nú sjálfstætt sem grafískur hönnuður.
Ég annarsstaðar:
linked in
last.fm
flickr
delicious
twitter
facebook
vimeo

