daia -- Dagný Reykjalín

Uppgjör við 2010
Svolítið vont ef maður bloggar svo lítið að önnur hver færsla er orðinn annáll..

En það ekki hægt að víkja frá því að renna aðeins yfir árið, svona upphátt í huganum, til að sjá hvort það hafi nokkuð merkilegt gerst.

Þegar maður hugsar til baka þá var það bara þónokkuð. 2010 varð eiginlega eins og 2007 hefði orðið ef við hefðum verið á landinu. Ég bjó til fyrirtæki í mars, við keyptum jeppa um páskana (já við, ekki fyrirtækið.. þó það sé svolítið stílbrot við "gullnu árin") - og þá um leið hvarf allur snjór af Norðurlandinu, man það vel! Við fórum samt frábæra skíða/snjósleðaferð upp á Kaldbak, í byrjun júní. Það var geggjuð ferð.

Í sumar eyddum við helgi í Vaglaskógi með minni fjölskyldu og fórum svo austur, bæði í Hallormsstað og í paradís á Borgarfjörð Eystri. Það var góð sumarhleðsla.

Í sumar var húsnæðinu sem við erum búin að vera í síðan við komum sagt upp svo við hófum íbúðaleit fyrir alvöru, fundum eina perlu í götunni okkar svo húsnæðiskaup í september bætast við hinn langa eyðslulista. Og ekki nóg með það heldur ákváðum við að setja út tromp og fara til Boston með Óla og Evu núna í nóvember. Fjórir dagar í "sightseeing & shopping", Harvard, körfuboltaleikur og allur pakkinn. Dásamleg stemmning og skemmtileg ferð.

Já, ég minntist á fyrirtækið. Það er búið að vera merkilega auðvelt og skemmtilegt ferli, og eiginlega ótrúlegt að það hafi gerst á svona stuttum tíma. Núna er fyrirtækið Blek farið að rúlla nokkuð jafnt og vel og bara frábært að vera með frænkurnar sér við hlið alla daga. Stundum kemur maður heim með strengi í brosvöðvunum :)

Það er svo gaman að búa til sín tækifæri sjálfur og ég er eiginlega hvergi hætt. Það eru nokkrar hugmyndir sem blunda í mér svona samhliða og ein er komin mjög langt í vinnslu. Þannig að ég er spennt yfir því sem ég veit að á eftir að gerast á þessu nýja ári.

Fjölskyldan óx og dafnaði líka, drengirnir byrjuðu báðir á nýjum skólastigum. Emil fór í sama leikskóla og Danni útskrifaðist úr um vorið og Danni hóf skólagöngu í 1. bekk og hvorki meira né minna en alþjóð fékk að vita hvernig það gekk. :)

<embed src="http://www.reykjalin.com/blog/danni_tv.mov" width="512" height="295" autoplay="false" controller="true" pluginspage="http://www.apple.com/quicktime/download/"> </embed>

Í nokkra daga á eftir var vísað í Danna sem "strákinn í sjóvarpinu" í skólanum. Ég held að hann hafi ekki tekið eftir því, var alveg slétt sama um þessa athygli.

Nýja árið byrjar á því að við flytjum inn núna í lok janúar og þá vonandi getum við komið okkur betur fyrir. Ég hlakka mikið til að búa til skemmtileg barnaherbergi fyrir drengina og koma öllu haganlega fyrir. Það eru kassar inni í geymslu sem ég setti ofaní árið 2006 þegar við fluttum út og nokkrir sem ég hef ekki hugmynd um hvað er í. Kannski eru þeir best geymdir þannig?

Rútína
Aftur komin helgi. Vá hvað tíminn líður. Ég var að renna yfir gamlar færslur og sá að áður en við eignuðumst drengina var ég farin að hefja jólaundirbúninginn um miðjan október.

Seisei hvað maður hafði nægan tíma í þá daga.

Rútínan yfir vikuna er samt eitthvað svo auðveld og skemmtileg að tíminn líður hraðar fyrir vikið. Þar skiptir auðvitað mestu máli hvað vinnan er ofboðslega skemmtileg, í návígi við frábærar frænkur, bleksystur.

Ég ákvað að vinnudeginum lyki kl 15 og það er algjör draumur.

Danni fer í fimleika milli 15 og 16 tvo daga í viku og það gerir honum ofboðslega gott. Nýja fimleikahúsið hérna á Akureyri er líka alveg frábært, með öllum nýjustu græjum og frábærum tólum. Hann er núna í strákahóp og þeir eru ca 5-10 í einu, eftir því hve margir mæta. Kennararnir hans eru algjörir parkour töffarar. Fyrir þá sem þekkja ekki parkour þá er það mega töff sko....

<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/6pcqRuFEMLs?fs=1&hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/6pcqRuFEMLs?fs=1&hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>

Annars hef ég síðustu daga verið með hundleiðinlega hálsbólgu og haldið mig heimavið. Næsta vika verður líka aðeins strembnari en venjulega þar sem Óli er að fara til Álaborgar í vinnuferð yfir alla vikuna. Hann fór líka í byrjun október og það var alveg meinlaust, bara frekar einmanalegt.

Kúkalabbi
Sonur minn, nýorðinn 2 ára, er duglegur að tala. Hann segir heilu setningarnar og aðrir en ég eru jafnvel farnir að skilja hann. En hann er kominn með eitt orð á heilann öðru fremur. Ég veit ekki alveg hvaðan hann pikkaði það upp, sennilega frá bróður sínum. Það er kúkalabbi.

Pínu krúttlegt og pínu fyndið þegar lítill kroppur er að reyna að verja stöðu sína hérna heima gegn stóra bróður og yfirvaldinu. Svona síðustu rök sem hægt er að grípa til og engin orð geta unnið gegn.

En það er ekkert sérstaklega fyndið þegar maður er að tína til af innkaupalistanum í Nettó þegar allt í einu er kallað mamma kúkalabbi úr kerrunni.

Heldri konur snúa sér við í vandlætingu og eldri krakkar flissa yfir aðstæðunum. Hugsa sér hvers konar uppeldi er eiginlega á heimilinu!

Ég er búin að reyna ýmis trikk.. fyrsta var náttúrulega að útskýra, svo að skamma, svo að hunsa.. það var erfitt. Því næst reyndi ég að skipta því út fyrir annað orð: sjarmatröll. Skemmtilegt orð sem er pínu flókið og gaman að segja, og virkaði alveg í nokkra daga. En hann fattaði það samt fljótt að það var ekki eins sterkt vopn, kveikti ekki eins mikinn eld í augunum á mömmunni.

Nei, kúkalabbi skal það vera.

meira um plön
Já talandi um plön.. hver var það sem ákvað fyrir nokkrum árum að rústa Íslandi, mjólka allt sem hægt er að mjólka og eignast svo allt draslið aftur?

Kastljósið í kvöld var sláandi.

Af hverju - Hví í ósköpunum - er ekki búið að koma með stóra planið um það hvernig við, sem þjóð, ætlum að koma okkur út úr þessu; leiðrétta forsendubresti vegna gengishruns, vinda ofan af verðtryggingunni og gera lífið almennt ánægjulegt á Íslandi, þá meina ég að fólk eigi almennt tíma og fjármuni afgangs til að eiga góða daga.

Er það ekki gert af því þeir vita sem er, að fólk nennir ekki að berjast til að halda lífsgæðunum, svona eins og með froskinn í pottinum sem finnur ekki hvernig hitnar um eina og eina gráðu (í myndinni hans Al Gore, mannstu..) ... þess vegna er haldið áfram. Þar til froskurinn springur.

Fólk vill breytingar en flestir vilja ekki það sem var áður, þess vegna er engin krafa um kosningar af því þá er bara farið einn hring í viðbót í hringavitleysunni.

Ég gæti alveg sett fram mínar óskir um það hvað Ísland á að verða þegar það er orðið stórt. En ég er náttúrulega bara ein lítil manneskja með eitt lítið blogg sem hverfur í glym fuglabjargsins bloggheima.

En kannski bara geri ég það, bara til að koma því frá mér.

Þetta er ekki svona "Ísland er best í heimi" ræða, en þegar maður fer að ákveða hvað maður ætlar að verða þá á maður að skoða hvaða kosti maður hefur, hvað gerir maður vel og úr hverju fær maður ánægju.

Ísland hefur oft verið kallað matarkista. Við getum búið til ótrúlega góðan mat. Á heimsmælikvarða. Ef orkan (já og vatnið) verður ekki hrifsuð frá okkur í einhverja vitleysu getum við búið til stór gróðurhús sem búa til fullt af hráefni og úr því hráefni getum við fullunnið og pakkað allskonar vörum.

Við þurfum svo litla hlutdeild af markaði í Evrópu eða USA til að selja stórt á íslenskan mælikvarða. CO2 jafnaðar- og "grænar" vörur verða næstu stóru vörumerki og geysilega verðmætar, og ef það er eitthvað sem við kunnum þá er það að markaðssetja rétt (sbr. Icesave.. ha ha..).

En þetta þarf ekki að vera og á ekki að vera ein stór lausn, ein stór fabrikka þar sem allir mæta í röð, neinei alls ekki!

Ef markmiðið er til staðar, að við ætlum að vera súpergóð (kannski best í heimi, ef má segja það) í að búa til hollan og hreinan mat, þá er það hvati fyrir hvern og einn að leggja sitt að mörkum. Búa til eitthvað nýtt. Framleiða fiskisósu á Seyðisfirði.

Húsvíkingar gætu átt nokkuð stóran bita í púslið.

fimm ára planið
Sumarið á enda, flórsykurinn kominn á fjallstoppana og fyrsta haustflensan er að ganga yfir heimilið. Þetta er búið að vera fínt sumar, við vorum mest hér heima en fórum í góða viku austur á land. Þar er dásamlegt að vera.

Gaurarnir mínir litlu eru komnir í góðan gír í skóla og leikskóla og standa sig auðvitað eins og hetjur. Ég man hvað mér fannst gaman að byrja í skóla og finnst ennþá æðislegt að kaupa skóladót á haustin, blýanta og svona.

Ég er líka sjálf komin í rútínu. Mér tókst nefnilega  það sem ég ætlaði mér fyrir fjórum árum. Að skapa mér starfsvettvang hérna í litla bænum Akureyri. Það er reyndar lengra síðan ég setti það markmið, áður en við fórum út til Danmerkur bjuggum við til fimm ára plan og vorum við búin að ákveða að enda hérna, en hvernig við færum að því var auðvitað ekki ákveðið strax heldur spilaðist með tímanum.

Þegar ég var á námskeiðinu Brautargengi, hjá Nýsköpunarmiðstöð núna í vor, gerði ég viðskipta- og rekstraráætlun fyrir fyrirtækið Daia ehf sem stofnaði svo í framhaldinu. Það breyttist svo í Blek ehf núna í sumar. Nafnið Blek datt í hausinn á mér eitt skipti þegar við vorum að keyra suður, vorum stödd á Öxnadalsheiðinni og ég var eitthvað að hugsa um nöfn. Á toppinum á heiðinni kom þetta svo, ætli það hafi ekki verið út af því að þá var ég svo nálægt hugmyndaskýjunum.. jú alveg deff.

En já, skemmtilegt og stutt nafn, ákaflega íslenskt og svolítið macho. Sem er gott fyrir svona "kvenna"fyrirtæki. Jamm.

Svo er líka gaman að djóka með það, blekaðar og allt það. Hljómar líka svo yndislega á norðlenskunni.

Ég var búin að ákveða að fá Gunnu í lið með mér, til að skapa meiri breidd í þjónustunni. Hún var nýflutt heim frá Dublin þar sem hún var að vinna á auglýsingastofu og vantaði eitthvað spennandi að gera.

Svo vafðist utan á snjóboltann og Eva, bókarinn okkar og stórfrænka með meiru, ákvað að hætta í sinni vinnu og vinna með okkur. Í sumar fundum við frábært skrifstofurými hjá Atvinnuþróunarfélaginu en ásamt því að vera með sprotasetur leigja þeir út skrifstofur. Við innréttuðum hana sjálfar og erum með frábært útsýni þar sem staðsetningin er meiriháttar; allt frá nýja Menningarhúsinu Hofi, yfir pollinn (og bílastæðið við Skipagötu) og upp að Akureyrarkirkju.

Við byrjuðum í lok ágúst og erum farnar að rúlla nokkuð vel, með ákveðinn viðskiptavinagrunn og undirbúum okkur að sækja á fleiri mið, enda má segja að sögu fyrirtækisins megi rekja allt aftur til ársins 1940 þegar langafi okkar stelpnanna stofnaði útgerð. Þar unnum við saman næturlangt (...kannski ekki alveg) á barnsaldri við að salta fisk og vinna skreið, sennilega síðasta kynslóðin sem lærði að vinna. Hefðum við verið af hinu kyninu værum við sennilega frekar salt- og sjóbarnar í dag.

En við spilum þetta svolítið eftir eyranu, þurftum ekki að taka lán eða fá styrk annarsstaðar frá og erum afskaplega áhættufælnar. Við vitum samt alveg hvernig við ætlum að ráðstafa hagnaðinum. En fyrst og fremst ætlum við að læra eitthvað nýtt á hverjum degi og HAFA GAMAN!

Og já, annað sem við hjónaleysin gerðum, líka í ágúst. Við keyptum íbúð, fyrir allan peninginn. Leiguíbúðinni sem við erum búin að vera í síðan við fluttum heim frá DK þurfum við að skila 1. feb og við keyptum alveg sambærilega íbúð (að stærð og gæðum) og við erum að leigja, og það í sömu götu. Það er ekki hægt annað þegar hefur verið svona nálægt grunnskólanum en að vera nálægt honum áfram.

Semsagt, flutningar framundan.. í síðasta lagi í lok jan og vonandi ekki fyrr.

En ég finn það að það er kominn tími á nýtt fimm ára plan.

bleh
Ég er í því að endurskipuleggja mig þessa dagana, það felst ekki síst í nýja vinnustaðnum sem ég er að búa til með öðrum, sem fer af stað með sumrinu. Ég er líka að reyna að hætta að vinna á kvöldin, horfa frekar á tv eða fara í sund.. eða prjóna.. svolítinn me-time.

Mig langar líka til að fara að blogga aftur á ensku og þá minna um pólitík.. maður er alveg að krepera á því.. en ég veit að ég myndi aldrei meika það að blogga bæði á íslensku og ensku þannig að ég er að spá í að snúa þessu bara yfir á ensku.. hvað finnst ykkur um það?

Frk. framkvæmdastjóri
Fyrr í vor skráði ég mig á námskeiðið Brautargengi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, 15 vikna námskeið í stofnun og rekstri fyrirtækja. Þessar 15 vikur eru núna búnar og eftir það er ég með í höndunum viðskiptaáætlun um fyrirtækið mitt litla, lýsingu á því hvað það er og hvert það vill fara og síðast en ekki síst, rekstraráætlun sem sýnir að með ákveðnum, raunhæfum forsendum þá getur batteríið gengið upp.

Þessi tími er búinn að vera alveg ótrúlega skemmtilegur, eiginlega skrýtið að ég hafi ekki bloggað um þetta áður en bloggið hefur aðeins dottið uppfyrir. Hópurinn var mjög skemmtilegur, konur á öllum aldri með allskonar hugmyndir. Fyrirlestrarnir voru líka innspýting hugmynda og krafts og námskeiðið allt mjög vel skipulagt.

Tímarnir voru einn dag í viku frá 9-13:30, semsagt nánast allur vinnudagurinn þar sem Emil hefur verið hjá dagmömmunni til kl. 14. Fyrirlestrarnir byggja á því að ákveðinn kafli í viðskiptaáætluninni er tekinn fyrir, svo eru heimaverkefni sem eru unnin eftir það.

Verkefnastaðan hefur líka verið mjög góð og það verður gott að fá auka dag í vikuna aftur.

Semsagt mjög skemmtilegur tími liðinn og við tekur vægast sagt áhugaverður tími. Sumarið verður notað til að pússa og undirbúa, svona eins og maður kemst upp með í fríinu, og svo þegar skólinn byrjar í haust verður farið af stað af fullum krafti með fyrirtækið. Við (já ég segi við) erum komin með húsnæði í sigtið, það verður nýtt nafn og rosa stuð. Segi betur frá síðar :)

Ísland eftir #RSA, dagur tvö
Í gær fannst mér glitta í Nýja-Ísland þegar ég hlustaði á Rannsóknarnefndina segja frá helstu niðurstöðum skýrslunnar. Það var þá þarna einhversstaðar í þokunni. Ég fékk oft og tíðum kökk í hálsinn því þarna fannst mér ég heyra sannleik í fyrsta skipti frá opinberum aðilum, þann sama og ég hef heyrt óma í eitt og hálft ár í fréttum, á bloggi, í greinaskrifum, í umfjöllunum í sjónvarpi og blöðum. Þetta var í sjálfu sér ekkert nýtt en hvað skýrslan var tæpitungulaus kom mér á óvart því maður er svo vanur því að heyra moðsteiktar yfirlýsingar pólitíkusa sem eru á allt annarri slóð heldur en fólkið í landinu.

Skýrslan er áfellisdómur yfir öllu bankakerfinu, viðskiptalífinu og stjórnsýslunni. Bankarnir báru skyldur til sinna hluthafa og viðskiptavina og stjórnsýslan bar skyldur til almennings alls. Bæði reyndust siðlaus og blinduð af græðgi í peninga eða völd, þjóðníðingar. Algjörlega slétt sama um allt nema sitt eigið rassgat. Mikið djöfull verður maður reiður að sjá að þjóðin, sem manni þykir þó alveg óskaplega vænt um, hefur verið rænd aleigunni og ærunni. Hugsið ykkur!

Það að þessar upplýsingar hafi verið teknar saman á svona faglegan hátt og opinberlega hlýtur að þýða að við fáum sanngjörn málalok, en ferðin er bara rétt að byrja.

Getið þið ímyndað ykkur hversu mikill niðurskurður er framundan á næstu árum? Ég hugsa oft til þess fyrir hönd drengjanna minna, hvernig ætli skólarnir komi undan þessu?

Getið þið ímyndað ykkur hvað gerist á næstu árum ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fær að skuldsetja okkur eins mikið og hann vill? Þessi sjóður er hluti af World Bank sem er einkastofnun í Bandaríkjunum í eigu auðmannaklíku og við eigum ekkert með að hleypa þeirri klíku inn í landið. Þetta er ekki Rauði Krossinn. Það er algjörlega þekkt  að þeir munu taka auðlindirnar upp í skuldir en láta okkur fyrst skera allt niður við nögl. Dæmin eru til í heiminum, Filipseyjar t.d.

Þetta vissi Davíð Oddsson og það að hann varaði Árna M við því er eitt af því fáa sem ég kann að meta við manninn.

Þau orð Geirs Haarde óma stundum í höfðinu á mér þegar hann svaraði spurningu fréttamanns um það hvort Ísland væri komið í þrot, en svarið var: "Nei, alls ekki, við eigum fullt af auðlindum hérna".

Það var og.

Hvað er Ísland án fiskimiða, án hitaveitu eða kalda vatnsins? Hvað er Ísland ef aðgöngumiðinn að Gullfossi nemur tugum þúsunda? Eða ef Gullfoss er bara lítil spræna?

En hvað er þá hægt að gera, ef helmingurinn af liðinu á Alþingi er handónýtur ?

Eina svarið er stjórnlagaþing þar sem samin yrði ný stjórnarskrá, breytt stjórnskipulag og nýtt kerfi, kjósa neyðarþing með persónukosningu þvert á flokka og banna stjórnmálaflokka í 3-4 ár hið minnsta.

Í mér býr sú von að það séu til skynsamir og góðir Íslendingar og að þeir sæki einmitt ekki í hefðbundnu stjórnmálaflokkana.

Annars finnst mér ótrúlegt hvað fólk sýnir samt stillingu. Það eru allir að tala um þetta, það eru allir að fylgjast með og bíða eftir ákvörðunum. Ef þetta fer ekki í réttan farveg, þá mun sjóða uppúr. Þá veit ég ekki hvað gerist.

Almennur borgari gerir grein fyrir atkvæði sínu
Það er búið að vera svolítið erfitt að vera Íslendingur síðustu vikur. Á margan hátt hefur maður glaðst yfir því að fá að kjósa í þessum blessuðu Icesave kosningum og fá einhverja möguleika á að grípa til varna eftir þetta hrun. Á hinn bóginn er maður hryggur yfir því að kosningarnar snúast að forminu til ekki um það hvort reikningurinn á að koma til okkar. Hins vegar snúast þær um það að mörgu leyti í hjarta og hugum fólks, þrátt fyrir að við viljum auðvitað að fólkið sem átti féð inni á reikningunum fái peningana sína til baka. Hins vegar er ég sannfærð um að ábyrgðin liggi annarsstaðar, bæði siðferðilega og lagalega (þrátt fyrir að innistæður innan landamæra Íslands hafi verið tryggðar að fullu).

Í þessum kosningum sagði ég feitt Nei, eins og þorri annarra kjósenda. Auðvitað var annað ekki hægt þar sem ég er í grundvallaratriðum á móti samningunum og menn segja betri samning bíða handan við hornið, sem hefði auðvitað ekki gerst ef málinu hefði ekki verið skotið til þjóðarinnar með þessum hætti.

Auðvitað á þetta sorglega mál að vera í höndum skilanefndar bankans en ekki ríkisvaldsins. Bretar og Hollendingar eiga að fá eignir bankans, hvers virði þeir geta sjálfir séð um að hámarka, og láta þar við sitja. Fróðir menn fullyrða núna 90% heimtur. Ábyrgðin og óvissan á ekki að sitja á herðum okkar eða framtíðarkynslóða.

áll anna
Gleðilegt nýtt ár. ** Árið sem er nýliðið var frekar viðburðalítið hérna hjá litlu fjölskyldunni á Norðurlandinu.  Ég var líka afskaplega löt við að blogga þetta árið þannig að það eru varla til heimildir fyrir því sem þó var gert. Því er nú verr.

Ég spáði því í upphafi að 2009 yrði ár hönnunar og íslenskrar framleiðslu og það hefur að sumu leyti gengið eftir.  Ég er mikil áhugamanneskja um "aktivítet" og vill helst sjá blómstrandi framleiðslu í öllum sveitum. Í því samhengi stofnaði ég bloggið "Eitthvað annað" í apríl, sem hét fyrst "Veljum íslenskt" en ég vildi ekki að því yrði ruglað saman við verkefni á vegum Samtaka Iðnaðarins, sem nota þetta slagorð. Þarna reyni ég að safna saman vörum sem eru hannaðar og framleiddar á Íslandi fyrir almenna neytendur, helst af öllu úr alíslensku hráefni og jafnvel umbúðum sem einnig eru framleiddar á Íslandi.

Annað sem ég gerði í fæðingarorlofinu (eins og maður hafi nógan tíma þar.. haha) var Lopafrík, litatónar í lopapeysum. Það voru góðar undirtektir þegar það fór af stað og ég þarf eiginlega að vera dugleg að uppfæra það verkefni, það hefur fullt af pótensjal og margar hugmyndir kviknað í kringum það í kollinum á mér.

Svo tók þjóðfélagsumræðan ansi mikinn tíma frá mér þetta árið. Ég er svolítill fréttafíkill í mér (svolítið skyld honum pabba mínum sem hefur ekki misst af fréttatíma í 50 ár) og fylgist því mjög vel með því sem er að gerast, þetta ár var bara svolítið óverdós. Þegar árið var hálfnað fékk ég alveg upp í kok og ákvað að vera ekki að tjá mig svo mikið um þetta enda byggist samfélagsumræðan að miklu leyti á félagslegum fordómum þannig að það er voðalega lítið hægt að tala saman hérna á þessu skeri.

Einn merkilegasti viðburður á þessu ári, sem sýndi fram á að það er hægt að tala saman án félagslega fordóma, var Þjóðfundurinn. Ég bauð mig fram sem sjálfboðaliði til þess að geta verið á staðnum og fylgst með. Ég var í bakvinnslunni, bak við tjöldin í stóra salnum. Þar tókum við við gögnum sem komu af hringborðunum og slóum þau inn í kerfið. Alveg ótrúlegt hvað þetta var vel skipulagður viðburður, gekk alveg ótrúlega smurt. Þetta var eins og kapall sem gekk upp, skref fyrir skref, lið fyrir lið.

Niðurstöðurnar koma kannski ekki á óvart, eru kannski ákveðin útópía eða jafnvel á hinum endanum; óskilgreinanlegt og almennt miðjumoð, en ég trúi því samt að þessar setningar geti þegar safnast saman, myndað ákveðna stefnu sem við getum verið sammála um.

Persónulegir sigrar hafa verið ýmsir á árinu líka. Ég fór nú ekki í neitt ákveðið átak en er samt átta kílóum léttari um þessi áramót en þau síðustu. Það voru reyndar auðveldu kílóin, þessi sem komu á eftir að ég gekk með Emil. Efast um að þau verði jafnmörg af um næstu, en hver veit. Ég fór reyndar á skriðsundnámskeið í haust sem var mjög skemmtilegt, þar lærði ég að synda með blöðkum, sem er svipuð tilfinning og að hlaupa með lóð.. semsagt frekar erfitt en viðráðanlegt þegar maður er búinn að ná tækninni. Mér finnst líka mjög gaman að synda (heyri það reyndar ekki oft -flestum finnst þetta svo hundleiðinlegt) og ég reyni yfirleitt að synda 800-1000m á bringusundi. Mér finnst ágætt að vera ein með hausnum á mér í vatninu og horfa á birtuna og litina í vatninu, sérstaklega þegar það er komið myrkur.

Í sumar fórum við loksins á Borgarfjörð eftir langan tíma og við hjónaleysin fórum í virkilega skemmtilega gönguferð í Stórurð, við Dyrfjöllin.

Ég er bjartsýn á árið sem er framundan. 2010 er töff tala og ég held að við getum látið fullt af góðum hlutum gerast. Það eru ekki endilega áramótaheit, en þegar maður lítur yfir farinn veg hugsar maður líka um það sem er framundan og hvernig maður vill hafa hlutina í framtíðinni (eða í fortíð framtíðarinnar... :-) )

Um næstu áramót ætla ég að hafa gengið á fleiri fjöll, sérstaklega hérna í Eyjafirðinum. Ég ætla að koma nokkrum persónulegum verkefnum í gang og halda áfram að sinna vinnunni minni vel. Ég ætla að halda áfram að vera vakandi yfir samfélagsmálum en reyna að horfa í gegnum reykinn. Ég ætla að skissa meira og kannski mála eitthvað... og til þess að geta gert allt sem mig langar að gera ætla ég að þróa með mér leið til að þurfa bara að sofa í fjóra tíma á sólarhring...

GLEÐILEGT ÁR

multi-prjón-ing
Þar kom að því að Spaugstofan gerði svolítið gys að prjónæðinu sem gengur yfir kvenfólk þessi misserin og ekki síst þessum social media hluta þess, óteljandi grúbbur á facebook og mont-statusar, sem er auðvitað bara frábært :)

Ég hef nú ekki látið mitt eftir liggja og prjónaði lopapeysu á Emil í sumar sem ég er búin að nota mikið í vetur.

Núna er ég með tvennt á prjónunum, bæði ullarsokka á mig úr álafosslopa og sokkahosur úr bulkylopa, málið er bara að ég nota kvöldin yfirleitt til að klára vinnuverkefni dagins og það er yfirleitt nóg að gera, þannig að ég sit voða lítið fyrir framan imbann að prjóna, því er nú verr.

En það er einmitt það sem Spaugstofumenn klikkuði illilega á, þeir hugsuðu auðvitað eins og karlmenn og þekkja ekki eða skilja ekki hvernig það er að að multi-taska. Auðvitað geta konur bæði hlustað og prjónað í einu, að sjálfsögðu. :)

Í bítið
Þegar litli stubbur vaknar rúmlega sex á morgnana og heimtar sinn hafragraut, þrátt fyrir að það sé laugardagur, þá þýðir yfirleitt ekkert að mótmæla. Við fórum því á fætur eldsnemma í bítið. Það er samt mjög góð tilfinning að vakna svona snemma, ná morgunkyrrðinni, þrátt fyrir lítinn svefn. Það verður svo mikið úr deginum.

Þannig að uppúr sjö, þegar morgunmaturinn var frá og stubburinn kominn í dótið sitt, fannst mér tilvalið að gera nokkuð sem ég hef lengi ætlað að gera. Búa til úrklippubók fyrir uppskriftir, þið vitið, þessar sem maður klippir úr dagblöðum, prentar út af netinu osfr. sem eiga eiginlega hvergi heima.

Það sem þarf er 1stk A4 gormabók úr Tiger, kostar 600 kall held ég. Gormarnir mega gjarnan vera svolítið rúmir þar sem bókin á eftir að fitna. Breiður og fínn túss, lím og límmiðar til að deila bókinni niður.

Flokkarnir fara auðvitað eftir hverjum og einum, kannski vill maður gera tvær bækur, aðra fyrir mat og hina fyrir kökur, það gæti verið skemmtilegt. Eins er mismunandi pláss fyrir hvern og einn flokk eftir því hvað þú heldur að það þurfi, hver smekkur þinn og fjölskyldunnar er.

Klippa og líma er skemmtilegasti hlutinn af þessu, það má auðvitað líka skrifa beint niður. Maður man oftast eftir uppskriftum eftir því hvað er í kringum þær.

Mér finnst líka ágætt að safna saman heilráðum og góðum aðferðum, það er með sér kafla í bókinni, það er innspýting og heldur manni við efnið.

Að lokum má auðvitað skreyta kápuna (skera í hana holu og skrifa "matargat" fyrir ofan) eða bara sleppa því.

Svo er bara að halda áfram að safna, góðir staðir eru t.d. www.eldhus.is og www.cafesigrun.com. Uppskriftirnar sem ég var byrjuð að líma inn eru teknar úr bæklingi frá líkamsræktarstöðinni Bjargi, má finna hér.

Þjóðfundur
Í dag er Þjóðfundur haldinn í Laugardalshöllinni, sem hefur vonandi ekki farið framhjá neinum. Hérna eru 1500 gestir og um 300 sjálfboðaliðar. Ég ákvað að sjálfsögðu að reyna að taka þátt, þó ég hefði ekki fengið boðsbréf sem gestur, og er hérna stödd sem sjálfboðaliði. Fékk starf í bakvinnslu þannig að ég sit í tölvuverinu og slæ inn þær upplýsingar sem fólk á borðunum kemur frá sér. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með þessu, skipulagið er alveg ótrúlega gott, maður sér það best á því að það er allt ótrúlega smooth. Fyrir utan kannski svolítil bílastæðavandræði hérna fyrir utan í byrjun. Hérna eru allir ótrúlega jákvæðir og það er tilhlökkun yfir því hver útkoman verður úr þessum fundi.

Það er bein útsending á www.thjodfundur2009.is/straumur. Endilega kveikið á því og verið með í anda :)

allt um ekkert
Ég hef ekki skrifað mikið á þessum vettvangi þrátt fyrir að vera límd við tölvuna dag og nótt. Það er mjög gott að vera bissí, ég get ekki hugsað mér að vera neitt öðruvísi.

Í síðasta mánuði byrjaði Emil hjá dagmömmu, hann er þar frá 8-14 og við það lengdist vinnudagurinn minn um ca 500%. Veitti ekki af því.  Dagurinn byrjar líka á góðum göngutúr yfir í næstu götu. Hann er líka miklu hressari, finnst frábært að hitta hin litlu börnin og komast út á róló í þannig félagsskap.

Það eru nokkur skemmtileg verkefni sem ég er að vinna að. Eitt skemmtilegt er veitingastaðurinn Vegi-terian í miðbæ Akureyrar. Sá staður er nýfluttur frá Skipagötunni og eigandinn ákvað að byrja með nýtt concept og það er alveg frábært (og jafnframt krefjandi) að fá að stjórna því. Það sem er líka brýnt hjá mér núna er að koma nýju síðunni minni upp ásamt einu gæluverkefni sem mér finnst einstaklega áhugavert og spennandi. Ég skráði einmitt lén fyrir það fyrr í kvöld, sem verður örugglega aðalefni næstu færslu.

ritstjórinn
Það hafa sennilega allir rætt þetta, fram og til baka. Ég hafði varla geð í að punkta niður mína skoðun og í raun hef ég ekki verið viss í þessu máli, sem margir hafa öskrað í nokkra daga yfir.

Það er þetta með Davíð Oddson og Morgunblaðið.

Í fyrsta lagi er náttúrulega afleitt, afspyrnu glatað og í raun stórskaðlegt að manneskja sem er svona nátengd hruninu (stýrði Seðlabankanum í gjaldþrot) sé að ritstýra einu helsta dagblaði landsins. Alveg sama hvort hún heiti Geir Haarde eða Ingibjörg Sólrún, Jón Ásgeir, Björgvin G, nú eða Davíð Odsson. Það á að vera algjörlega óháð manneskja sem setur blaðamönnum verkefni dagsins og þess vegna við þessar fréttir má eiginlega segja Mogginn RIP. Búið að afskrifa hann fjárhagslega en nú endanlega.

Nú kaupi ég ekki moggann en les (las) hann stundum og þá setur maður upp moggagleraugun, alveg eins og með fréttablaðið. Maður veit og gengur út frá því að blaðið hafi vissa afstöðu, t.d. gagnvart ESB eða kvótakerfinu. Kannski hefur þetta eitthvað með fordóma að gera, sbr. síðustu færslu. En maður gerir ráð fyrir því að það sem maður les sé ekki heilagur sannleikur heldur alltaf skoðanir. Vissulega eru til staðreyndir, en hvernig sagt er frá þeim ber alltaf vitni um afstöðu.

En það eru nokkrir punktar sem mér finnst í raun ágætt, eitt er að þetta var gert fyrir opnum tjöldum (takk æðislega, maður er ekki of góðu vanur svo það er ágætt að nefna það) og að það má koma með aðra fleti í umræðuna um IMF, ESB og Icesave heldur en hafa verið ráðandi. Það verður að segja hlutina eins og þeir eru; IMF verður að fara, ESB er ekki að fara að gerast og Icesave mun ekki vera greitt. Heimurinn endar ekki þar.

Þessi kall veit líka fullt af hlutum sem verða að koma í dagsljósið og ég býst við því að næsta árið verði tileinkað smáskömmtum af óreiðumannasögum. Þessi Davíð vs Jón Ásgeir er þreytt lumma en gmg ef það væri bara hægt að klára þennan slag og losa þjóðina undan svona rugli. Þeim báðum.

En við þurfum pepp. "Yes we can" ræður. Ungmennafélagsanda en ekki þessa fjandans flokkstrú þar sem fólk er hætt að hugsa, heldur bara með liði. Við þurfum stefnu og sýn úr Hugmyndaráðuneytinu sem við getum stillt kompásinn eftir. Núna róir hver í sína átt eða viljandi í öfuga, og sumir meira en aðrir.

Það er svolítið scary að hrunameistari Íslands ætli að stýra peppinu.