Eftirfarandi eru færslur í flokknum "video"
Draumalandið
Frederik í X-factor
Ég er ferlega skúffuð núna, uppáhalds keppandinn minn í danska x-factor var sendur heim í kvöld,..og keppnin í sjónvarpssal er eiginlega bara rétt að byrja... algjör skandall. :/
Hérna er hann Frederik í síðustu viku, ofursvalur, ég held svei mér þá að ég verði bara að gera mér ferð til Köben til að sjá hann á Strikinu þar sem hann stendur yfirleitt með gítarinn sinn og hundinn.
Zeitgeist the movie
Við horfðum á myndina Zeitgeist í gærkvöldi. Við erum náttúrulega búin að horfa mikið á allskonar heimildarmyndir um samsæriskenningar en þessi tók alveg toppinn. Ég held að ég verði aldrei söm.
..the land of the free..
Við horfðum á heimildarmyndina SiCKO í gærkvöldi, sem fjallar um bandaríska heilbrigðis- og tryggingakerfið. Þetta er sláandi mynd, eins og Michael Moore er einum lagið. Að hugsa sér að það séu yfir 50 milljón manns í USA sem eru ótryggðir og þurfa þ.a.l. að borga fyrir sína heilbrigðisþjónustu sjálft. Auk þess kom fram í myndinni að þó maður sé með tryggingu þá er alls óvíst hvort tryggingarfélagið "samþykki veikindin" og greiði lækniskostnaðinn. Að hugsa sér að fólki sé bókstaflega hent út af spítalanum út á götu, með drippið í æðinni, af því viðkomandi er ekki tryggður. Svo ekki sé minnst á öll þau "ónauðsynlegu" dauðsföll meðal barna og fullorðinna vegna tafa og skriffinnsku.
Bestu atriðin eru þau þegar MM fór með hóp af fólki yfir til Kúbu og fékk ókeypis læknisþjónustu, og lyf á 5 cent sem kosta yfir $100 í USA.
Allt er þetta gert svo að tryggingafélögin og lyfjafyrirtækin skili meiri og meiri hagnaði. Hrein Græðgi og ótrúleg illska.
Það voru líka margir aðrir áhugaverðir punktar varðandi samfélagið þó svo maður geti kannski ekki dæmt það beint eftir þessari heimildarmynd. Einn punkturinn var hræðslan við sósíalisma eða félagshyggju því sósíalismi virðist vera beintengdur í huga fólks við rússneska hrollvekju. Þegar menn eru hræddir þá láta þeir vel að stjórn.
Þetta er mynd sem allir verða að sjá, helst af öllu Bandaríkjamenn sjálfir því þarna eru góð dæmi um þjónustuna sem menn fá í Bretlandi og Frakklandi, en ekki síður við hin svo við sjáum hvert á EKKI að stefna.
Maður ætlar rétt að vona að Íslandsvinkonan Hillary nái að sveigja þetta eitthvað í rétta átt.
Öld sjálfsins
Síðustu kvöld höfum við verið að horfa á þættina "Century of the Self" sem voru gerðir og sýndir hjá BBC fyrir nokkrum árum. Núna er hægt að horfa á þá á google video. Það er eiginlega ótrúlegt að við höfum ekki horft á þá fyrr, umfjöllunarefnið er geysilega áhugavert.
Í raun er verið að fjalla um hvernig nútíma neyslusamfélag hefur þróast á síðustu öld, og hvernig stórfyrirtæki hafa notað sálfræði og sálgreiningu (kenningar Freuds) til að greina og stjórna neyslumynstri fólks.
Þetta er mun áhugaverðara en það kannski hljómar og opnar augu manns fyrir ýmsu sem maður kannski vissi að hluta en pældi ekki mikið í.
Síðasti þátturinn fjallar um hina óvægu einstaklingshyggju sem vaknaði á tímum Reagan og Thatcher og sér hreinlega ekki fyrir endann á.
Þættirnir voru sennilega sýndir fyrir 11. september 2001 - daginn sem 21. öldin byrjaði - þannig að guðisélof er ekki verið að fjalla um war on terror. Reyndar var hin fræga tilvitnun í Roosevelt "There is nothing to fear but fear itself" sýnd þarna, í öðru samhengi, en á alveg einstaklega ótrúlega vel við samfélagið eins og það er keyrt áfram í dag.
Næst ætla ég að reyna að að finna "End of Suburbia" sem er kanadísk heimildarmynd um áhrif aukinnar eftirspurnar og minnkandi framboðs á eldsneyti og kolefnisorkugjöfum á hið daglega líf (í vestrænum heimi).
Já, svona er þetta þegar maður er ekki með almennilega sjónvarpsáskrift (fyrir utan skandinavískar ríkisstöðvar og hina ítölsku bráðskemmtilegu Rai Uno beint frá Berlusconi) og tímabil hins auðmelta dægurefnis frá Ameríku (desperate housewives, greys anatomy og lost) er ekki hafið.
videokvöld
Í kvöld var videokvöld. Eftir að sá minnsti var floginn inn í draumalandið var poppið sett í örbylgjuna og tölvan tengd við sjónvarpið. Fyrst á dagskrá var gamanmyndin Blades of Glory sem skartar Will Ferrel í aðalhlutverki og hann á algjörlega húmorinn. Þetta er svona týpísk Zoolander mynd sem á sína góðu spretti en skilur kannski ekki mikið eftir sig, ágætis kvöldafþreying ef maður er í þannig gír. Næst tókum við einn Lost.. sem er hreint ekki að fara að enda því það eru víst tvær seríur væntanlegar í viðbót, og svo lokaþáttinn af Greys Anatomy.
Baddý systir datt svo inn í einhverja mynd á TV2 þar sem Nicole Kidman leikur á rússnesku. Hafið þið tekið eftir því hvað hún og Baddý eru líkar?
niður Kaldbak á snjóþotu
Viljiði spá í því hvað það er geðveikt að renna sér niður Kaldbak, eitt flottasta fjallið í Eyjafirði, á snjóþotu eins og systur mínar gerðu um páskana..
Það eru svona stundir sem fá mann til að sakna heimahaganna.
þetta megum við kljást við..
Þetta megum við kljást við á hverjum degi... óheyrilega fyndið..
fyndið
tímaeyðsla
Þetta moggablogg er að verða alveg einstaklega pirrandi. Í staðinn fyrir að eyða dýrmætum tíma núna eftir landsleikinn í að horfa á nýja Greys Anatomy, þá er ég búin að eyða klukkutímum í að lesa eitthvað raus hjá hinum og þessum um leikinn sem öll hljóma á sama veg. Þá hefði ég frekar átt að eyða tímanum í mcdreamy.
gerðu eitthvað brjálæðislegt
Ég rakst á eiginlega alveg ótrúlega síðu: Do Something Amazing þar sem bandaríski flugherinn er að reyna að fá fleiri til liðs við sig (wonder why) og það er augljóst að það er verið að höfða til counterstrike / battlefield tölvuleikjanördanna því þetta er eins og maður geti farið og tekið þátt í alvöru stríðstölvuleik.
Yeah!.. :/
heimildamyndasjúklingur
Inni á milli Lost, despó, greys, southpark og family guy horfi ég á undarlegar heimildarmyndir. Um daginn sá ég Loose Change, svo aðeins síðar 911 Mysteries sem er enn ein heimildarmyndin sem er að reyna að draga fram í dagsljósið að raunverulegu hryðjuverkamennirnir sem ollu árásunum á World Trade Center voru bandarísk yfirvöld sjálf og svívirðilegir peningamenn við þeirra hlið. Bókstaflega. Ummerkin og sönnunargögnin eru þannig að þessar vangaveltur eru hættar að vera samsæriskenningar og eru orðnar að undrun yfir því að ekkert skuli vera að gerast í því að fá botn í þetta mál.
Og áfram heldur stríðið í Írak.
Önnur mynd sem ég horfði á í kvöld heitir An Inconvenient Truth og er með Al Gore í aðalhlutverki. Ókei.. Al Gore, djí.. leiðinlegur gaur, hélt ég. En hann kemur á óvart. Þó svo myndin sé ekkert sérstakt skemmtiefni (annað en trailerinn heldur fram) þá heldur hann manni við efnið (hefði reyndar mátt klippa nokkrar langdregnar og óþarfa senur úr) og skilur mann eftir frekar mikið hugsi.
Myndin fjallar um gróðurhúsaáhrifin og þá framtíð sem við eigum í vændum ef hlutirnir fara ekki að breytast.
Þetta er ekki eitthvað grín sem er hægt að hunsa eða ætla sér að hugsa um einhverntíman seinna, maður þarf allavega að byrja á því að sjá þessa mynd.
og hjóla meira.
og slökkva ljósin og fara að sofa.
Samsæriskenningar?
Samsæriskenningar geta verið nokkuð skemmtilegar en þegar virðist vera fótur fyrir þeim geta þær orðið ansi ógnvekjandi.
Danska sjónvarpið var duglegt að rifja upp atburði 11. september 2001 í síðustu viku. Þar var dansk/bandarískur heimildarþáttur um aburðina sýndur á þremur kvöldum held ég og væmnin alveg gubbaðist uppúr þeim.
Þess vegna var það hressilegt að horfa á nýju heimildarmyndina Loose Change sem ungur maður að nafni Dylan Avery gerði, þar sem ótrúleg gögn koma fram og hugmyndir um það hver hafi leikstýrt þessum atburðum, mjög sláandi.
Myndina er hægt að nálgast ókeypis á Question911.com og svo sannarlega er þörf á að heimurinn sjái þessa mynd.
getamac
Ef þetta sannfærir ekki tölvunarfræðinginn á heimilinu... þá veit ég ekki hvað... Apple - Get a Mac - Watch The TV Ads
Flokkað sem hönnun / netið / tækni / video /
2
Vá! Nýtt Kastljós, nýtt sett, fullt af fólki, allt að gerast! Massa mikið af blaðabirtingum síðustu daga meðal annars tvær heilsíður í fréttablaðinu, útvarpsstjórinn sjálfur les inn á auglýsingar til að kynna þennan frábæra nýja fjölbreytta þátt sem á að höfða til unga fólksins og finna púlsinn hjá þjóðinni.
Ókei ég sest niður til að sjá eitthvað nýtt og ferskt, en kabúmm! Fyrsta umfjöllunarefni þessa ferska þáttar er Baugsmálið! Gömul seig tugga. Almáttugur, ég er hætt að horfa.
sirkus.is
hvers vegna er það þegar ég slæ inn sirkus.is til að sjá dagskránna á sjónvarpsstöðinni sirkus, fæ ég bara skjá einn?
er slagur í gangi?
L.O.S.T.
Hvað er málið þegar ég horfi á Lost, þá skelf ég öll frá toppi til táar. Frekar óþægileg tilfinning sérstaklega þegar maður situr og er að reyna að einbeita sér. Í staðin situr maður í einhverjum herpingi og fær strengi í magann og kjálkann. Þátturinn í kvöld var ógnvænlegur og eitthvað segir mér að næsti þáttur verði ekki síðri.
Svo byrjar serían úti í ameríku 21. sept og þá getur maður farið að horfa á þetta nokkurn vegin ferskt
hugurinn ber mann hálfa leið
Hef ákveðið að rífa mig uppúr þessari eymd og volæði og er hætt að nenna að vera slöpp. Þegar hausinn er kominn í jákvæðan gír hlýtur restin að fylgja með.
Ég hef reyndar ekki sofið vel undanfarið út af þessum ótrúlegu Lost þáttum sem eru sýndir á rúv á mánudögum. Óli ákvað að gerast gamaldags og fylgja sýningunum hérna heima og horfa ekki á þá jafnóðum og þeir eru sýndir úti, ég samþykkti það svolítið treg en það stríðir samt gegn up-to-date þráhyggjunni minni.
Eftir síðasta þátt og að hafa vaknað upp um nóttina og haldið að hinn dularfulli og óhugnalegi Ethan stæði í herberginu okkar (sem reyndust vera föt á snaga) gat ég ekki á mér setið og horfði á næsta þátt, bara til að halda í geðheilsuna. En auðvitað getur maður ekki hætt..
the former yugoslavian republic of iceland?
Það er merkilegt hvað margir eru ennþá í fýlu út í Eurovision og þessari klíku sem henti okkur út úr keppninni, ömurlegt að tilheyra minni klíkunni sem er samt svo miklu merkilegri en hin.
Ég stend við það sem ég sagði í fyrra, Leoncie á bleikum naríum næst.
Maryquits.com
Hún Mary er að reyna að hætta að reykja og gerir það á frekar opinberan hátt!
LOST
hvað er málið með þessa þætti? á maður alveg að fara á taugum eða hvað?
argasti dónaskapur
Það er nokkuð ljóst að Kristján Jóhannsson selur húsmæðrum þessa lands ekki mörg eintök af diski sínum um þessi jól, eftir frammistöðu sína í fjölmiðlum undanfarið..
ædolið
Þessi Brynja hlýtur að vinna idolið, jafnvel á slæmum dögum er hún óskiljanlega góð og flott stelpa! Ég sendi henni atkvæði en fór svo að pæla hvernig í ósköpunum það getur haft áhrif þegar þetta er ekki sýnt beint og það er fyrir löngu búið að taka upp atriðin.. er þessi sms og símakosning ekki bara yfirskin, verið að hala inn aurum? Reyndar engum smá aurum því ef þau segja að 30þús manns hafi kosið í kvöld þá þýðir það tæpar 3 milljónir króna í kosningasjóð! ÞAÐ er slatti. Eiginlega bara böns.
reality bites
Ég er ennþá að ná mér eftir það sem Ragnheiður Gröndal söngkona sagði hjá Gísla Marteini á laugardagskvöldið.. að hún væri að verða tvítug. Hversu gamall er maður þegar uppáhalds söngkonan manns er 6 árum yngri en maður sjálfur? ÚFF
digital kaplaskjólsvegur
já, við erum orðin stafræn. Nýji afruglarinn kom í hús í gær og er kominn í gagnið og útsendingin orðin alveg bráðskýr núna, a.m.k á því sem næst á honum. Við höfum ekki náð Skjá einum inn á hann ennþá, enda þótt langsótt megi virðast þá eru símafyrirtækin í samkeppni og eru ekkert að greiða hvors annars veg, jafnvel þó það komi sér betur fyrir notendurna.
En í tilefni þessa alls þá er fjölvarpið og stöð 2 opin, við erum nebblega bara með sýn, þannig að nú getur maður eytt allt of miklum tíma í að horfa á ekki neitt.
DíS
ég og Eva Björk fórum að sjá Dís í gærkvöldi. það voru frekar fáir í bíó en þeir sem þar voru féllu algjörlega í skilgreiningu um markhóp myndarinnar. Hvað um það, myndin var ágæt. Svolítið tilgerðarleg á köflum miðað við að eiga að endurspegla raunveruleikann í dag. Leikararnir voru mjög góðir, Ilmur (sem útskrifaðist á sama tíma og ég) fannst mér einna best, að öllum öðrum ólöstuðum. það koma líka móment sem eru alveg óborganlega fyndin. Settið er líka oftast mjög flott en eins og með allar samtímamyndir á þessi eftir að verða hrikalega hallærisleg eftir nokkur ár. það verður allavega forvitnilegt að sjá hvernig hún eldist.
Evróvisjón
Ekki gekk okkur vel í júró þetta árið, þó svo jónsi hafi staðið sig vel. Maður vissi þetta samt innst inni að lagið myndi ekki gera góða hluti en skemmtunin var ágæt og má segja að Gísli M. hafi bjargað kvöldinu með góðri lýsingu.
það sem við þurfum bara að gera er að koma af stað borgarastyrjöld á íslandi senda svo keppanda frá Eyjafjarðasýslu, þingeyjarsýslu, Múlasýslu, Húnavatnssýslu, Snæfells- og Hnappadalssýslu osfr. til að fá einhver stig í þessari keppni.
Eða senda Leoncie á bleikum nærbuxum.
HP
the last samurai
í gær fórum við og sáum síðasta samúræjann í bíó. það var ósköp notalegt að rölta upp í hverfisbíóið í góða veðrinu í gær og myndin var ágætis afþreying líka. það er allavega gaman þegar myndirnar koma einhverjum hugsunum af stað í kollinum á manni.
á eftir ætla ég hins vegar að gera aðra jógastöðvartilraun. í þetta sinn er það stöðin hans Guðjón Bergmanns, ég hef heyrt ágætis sögur af óléttujóganu sem konan hans kennir svo það verður gaman að prófa.
ædol
þá er það idol í kvöld. við ætlum að kíkja í mat til Lilju og Svavars og horfa svo á þáttinn sem allir tala um. Hver ætli það verði sem vinni?? Samkvæmt könnun á Femin.is þá verður það Kalli sjóari með yfirburðum. ég ætla samt að gefa önnu Katrínu mitt stig því mér finnst hún allra áhugaverðasti karakterinn, með fallegustu röddina svona þegar hún hefur stjórn á henni og hún er auðvitað norðlendingur. það telur þó svo Akureyringar þurfi að vera ansi mikið fleiri til að hún vinni.
Mér finnst samt mergjað að hafa svona símakosningu þar sem hringingin/sms kostar næstum hundrað kall og allir sem horfa gefa sitt atkvæði, jafnvel tvö.. við erum að tala um að kosningin á í kvöld á eftir að borga upp útlitsbreytingarnar sem Síminn gekk í gegnum í vikunni og vel það. Og allir eru hamingjusamir.
eftir laugardagskvöld með gísla marteini
eftir laugardagskvöld með gísla marteini í gærkvöldi hef ég sannfærst enn frekar... Leoncie í Eurovision!!
gleymdi að segja....
...við erum komin með tvo nýja þætti í nýju friends seríunni (10).. Baddý, þú þarft að fara að kíkja í heimsókn!
dökkhærðu rúla
þegar ég kveikti á sjónvarpinu í kvöld var miss europe á skjá einum. ég sá reyndar ekki nema brot af þeim gæða sjónvarpsþætti en það sem ég sá var þegar 12 stúlkur voru valdar í semi-finals. það vakti athygli mína að þær voru allar dökkhærðar eða í mesta lagi dökk skolhærðar, engin blondína í hópnum og (þar með) engin norræn stelpa sem komst áfram. Brunettes eru bestar.
Hver vann annars? ég sá það ekki.
sex and the city
Fyrsti þátturinn af nýju sex and the city seríunni var áðan. Mér finnst þessir þættir alltaf verða skemmtilegri þó ég hafi ekkert horft á þá fyrst. Bloggstíllinn hennar carrie höfðar samt til mín og gaman að fylgjast með blogginu hennar in action, ég sé þetta ekkert öðruvísi en blogg.
CA2
Við Eva fórum með ólana okkar tvo í bíó í gær að sjá draumadísirnar í Charlie's Angels, þeim fannst það ekki leiðinlegt. Mér finnst við líka mjög skemmtilegar kærustur að taka þá með okkur að sjá þessar svaðalegu gellur. þetta er líka ótrúleg mynd, skemmtileg dægradvöl og gaman að fylgjast með hárgreiðslum og búningum stelpnanna... það var allavega það sem ég var að horfa á..
omg,
ég var að fletta einu sorpblaðinu sem kemur inn í póstkassann hjá okkur áðan og sá þar mér til mikillar skelfingar að stöð 2 ætlar að fara að sýna "íslenskaða" útgáfu af american idol. Dómararnir eru semsagt Bubbi, Sigga Beinteins og þorvaldur Bjarni, ágætis fólk allt saman en hugmyndin er svoo Vond að ég á ekki til orð. ég hef horft á tvo þætti af ameríska þættinum og hef afskaplega lítið álit á honum, kanarnir gera ýmislegt til að komast í sviðsljósið en að við/þeir uppi á s2 séu að apa það upp er meira en lítið slakur brandari.
á ég að trúa því
á ég að trúa því sem ég sá áðan á skjá einum.. þátturinn var Mótor og þar var dead serious keppni í því hver myndi búa til mestan reyk með því að spóla, og helst sprengja dekkið? óMG! ég veit ekki hvort var hræðilegra að þetta var til eða að ég horfði á það! gubb!
Við lágum yfir sjónvarpinu í
Við lágum yfir sjónvarpinu í gærkvöldi, horfðum á ágætis mynd, mér fannst hún amk. skemmtileg þó svo óli hafi sofnað nokkrum sinnum yfir henni. það var the Emperors Club, svolítið væmin með fallegan boðskap en fín sunnudagskvöldsmynd þegar ekkert annað er í kassanum.
smá kvikmyndagagnrýni
Við fórum á matrix reloaded í gær, að vísu tókum við smá upphitun í fyrrakvöld og horfðum á fyrri myndina svo söguþráðurinn væri í fersku minni. En þvílík vonbrigði með þessa mynd! Eins flottur og hugmyndafræðilegi heimurinn sem Matrix snýst um var í fyrri myndinni var ekkert í þessari seinni mynd sem bætti hann heldur datt hann algjörlega ofan í klisjur. Borgin Zion var eins og klippt út úr Waterworld myndinni.
Ef menn vilja bara bardagaatriði, flotta myndatöku og tæknibrellur þá stendur myndin alveg fyrir sínu. æi ég veit ekki, kannski er fattarinn minn bara ekki að kveikja á þessu.
ég var á Bowling for
ég var á Bowling for Columbine. get ekkert annað sagt en þessa mynd verða bara allir að sjá. mér er alveg sama þó hann hafi ýkt nokkur atriði, hún var góð og kom vel til skila því sem henni var ætlað.
Elvis is high in the building
ég náði í myndband með Elvis á kazaa í gær, þar sem hann syngur 'are you lonesome tonight' á tónleikum í júní 1977. Frekar fyndið klipp í sorgleika sínum þar sem hann segir: "And now the stage is bare, and I am standing there, without any hair.. and If you won't come back to me... what the heck with it!" Sjarmör hann Elvis.
bíóferð
Við fórum áðan með óla og Evu á 25TH Hour sem var ágæt. ég hafði heyrt nokkra lýsa því yfir hvað hún væri frábær og allan tímann beið ég eftir því að frábærlegheitin byrjuðu. Korteri fyrir lokun kom svo snilldin og ég neita því að ég er svolítið eftir mig eftir hana.
Alla myndina er gaurinn, sem er fyrrverandi dópsali, að undirbúa sig undir að kveðja vini sína og fjölskyldu eins og hann sé að fara að deyja, og en sér ekki eftir því sem hann gerði nema að því leyti að þá fær hann ekki að hitta fólkið í kringum sig. Maður veit eiginlega ekki hvort maður á að halda með honum því maður fær bara að sjá hans hlið og að hann er ekki svo vondur gaur, eða hvort maður á að halda með samfélaginu fyrir að koma dópsölum á bakvið lás og slá fyrir græðgi sína og sjálfselsku.
Eftir svona bíóferð er maður alveg ótrúlega sáttur við manns eigin stöðu.
-og núna er ég þokkalega búin að eyðileggja myndina fyrir þér ef þú ert ekki búinn að sjá hana.
í kvöld
í kvöld er planið að sjá 25th hour í kringlubíó til að fagna bloggafmælinu, ja og nota miðana sem s24 gáfu okkur um daginn. hef heyrt að hún sé góð
"birgitta"
sáuð þið eurovision myndbandið? mér fannst það alveg flott, bara alveg ótrúlega photoshop-að og ein mesta notkun á lens-flare sem ég hef séð! En það á örugglega eftir að heilla einhverja evrópubúa.
we have a winner!
ég fékk mjög skemmtilegan meil frá s24 fyrir helgi þar sem þeir gáfu mér 2 miða á "25th hour" sem var einmitt frumsýnd á fös. jibbí, og ég sem vinn aldrei í neinu. gæti þetta tengst því að kortið mitt hjá þeim er að renna út og það er ekkert inni á því? hmmm
játning
ég horfði á hluta af bachelor áðan og hef horft á þetta áður. en hversu vitlaust getur fólk orðið að taka þátt í þessu?! stelpur sem keppa um hver færa giftast einum gæja og þær vita að þetta er keppni og það séu svona 15 aðrar að með sama markmið. ein sagði meira að segja í byrjun að þetta væri svona svipað og þegar hún var að keppa í miss texas! þær fá að kyssa hann og knúsa svona til skiptis og svo verða þær auðvitað voðalega ástfangnar af honum og eru alveg heart broken þegar hann velur einhverja aðra. talandi um good tv;)



RSS veita