Eftirfarandi eru færslur í flokknum "tækni"
náttúrutónleikarnir í PODCAST
Mikið óskaplega langar mig á þessa tónleika með Björk og Sigurrós en þar sem ég er ennþá hérna í DK á ég ekki heimangengt. Reyndar eru Icelandair og Nyhedsavisen duglegir að auglýsa tónleikana og gefa "frímiða" á þá, þeas flug og gistingu með tónleikum.
Ég hef ekki heyrt hvort þeir verði sendir út á RÁS 2 en ef ekki væri dásamlegt ef einhver myndi taka sig til og senda þá út á netinu. Ó hvað það myndi gleðja mitt hjarta. Endilega sendið mér komment ef þið vitið eitthvað meira.
Þetta er svo frábært framtak hjá þessum listamönnum sem eru mínir uppáhalds. Málstaðurinn er líka góður en ég er hrædd um að þessi skilaboð - að vernda og bera virðingu fyrir náttúru Íslands - hitti ekki nema þá sem eru honum sammála. Hinir verða alltaf ófullnægðir, krefjast töfralausna og blása á svona "101 kaffihúsaatburð". Ó ef þeir myndu bara sjá ljósið.
Mig langar í rafmagnsbíl
Ég er búin að láta mig dreyma um Toyota Prius sem er með tvinnvél, þeas rafmagnsvél og bensínvél. Ég er samt ekki mikil bílamanneskja, dæmi bíla yfirleitt á kvenlega mátann.. þ.e. eftir lit, mýkt sæta eða fjölda hólfa. Umhverfisvitund er líka að koma inn í þetta kvenlega mat því ég hef einhvernveginn á tilfinningunni að konur vilji umfram allt umhverfisvæna bíla.
En það er nú bara tilfinning.
Um daginn brunuðum við niður þjóðveg E45 sem liggur í gegnum Jótland niður til Þýskalands. Bensínverðið er reyndar ekki búið að vera mjög hagstætt, um 10.6 dkk en þennan morgun hittum við á norsku XY stöðina í góðu skapi og verðið var 9.3dkk. Einhverjar 20 isk sveiflur á líterinn, sem gerist bara á Íslandi þegar helvíti frýs.
Það var á leiðinni heim sem ég hugsaði um straumlínulagaða dökksilfraða Priusinn, og sérstaklega um að rafmagnsvélin myndi sennilega duga skammt því hún leyfir afar takmarkaðan hraða sem miðar við innanbæjarakstur.
En hvernig verður þetta þá í framtíðinni í olíuskortinum, það vilja jú allir vera á sínum eigin bíl og geta ferðast frá A til B án fyrirhafnar, hvernig fer maður þá á milli bæja eða jafnvel landshluta?
Jú, einmitt í lest. Bílalest, svona rétt eins og ferju.
Snilld að geta keyrt inn í lestina á litla rafmagnssmábílnum sínum, stillt á ákvörðunarstað, sett bílinn í hleðslu og horft á dvd úr sætinu sínu eða fengið sér lúr. Svo þegar maður er kominn opnast hlerinn og maður keyrir út.
En djö.. held ég að það væri fitandi líf.
* Leopard *
Ég pantaði loksins uppfærslu á stýrikerfinu í fallegu tölvunni minni, núna er Leopard kominn inn og snýr vélina ákaflega smurt. Næsta mál á dagskrá er að ná í nýja Candybar sem gefur manni meiri völd í því að breyta lúkkinu eftir eigin höfði.
Tölvunarfræðingurinn á heimilinu er náttúrulega þvílíkt öfundsjúkur, yfir því í fyrsta lagi hvað þetta er ótrúlega smooth og fallegt ferli. Hann reyndar hneyklaðist á því að ég væri að kaupa uppfærslur á stýrikerfinu þar sem hann uppfærir sitt Ubuntu alveg frítt og náði í, af þessu tilefni, einhverja ferlega grafíska útfærslu á gluggakerfinu sínu þar sem hann getur dregið gluggann svona wobble gobble... það heillaði mig ekki mikið.
Annars er það nú bara gott mál að kaupa hugbúnað á sanngjörnu verði, ég er búin að gera alveg ótrúlega mikið af því síðan ég eignaðist makkann og það hafa aldrei verið neitt háar upphæðir, yfirleitt um $20-50, og yfirleitt af litlum hugbúnaðarsmiðjum sem gera sérhæfan hugbúnað.
Í tilefni af þessari nördafærslu set ég hérna mynd af (vinnu)stofunni sem við sitjum í allan daginn og reynum að gera eitthvað af viti.

jólakort - oft spretta hugmyndir úr ósiðum
Mér finnst gaman að skrifa á jólakort, ég undirbý kortin nokkuð vel fyrir tímann og síðan Danni fæddist hefur mér nánast þótt skylda að hafa mynd af honum til að senda ættingjum, eingöngu vegna þess að mér finnst sjálfri svo gaman að fá myndir í jólakortum. Á danskann mælikvarða er jólakortalistinn minn nokkuð langur, um 70 kort því dönsk vinkona mín missti út úr sér augun þegar ég sagði henni fjöldann.
Í raun er þetta alveg stórkostlegur ósiður, þrátt fyrir að það sé gaman að fá opna og lesa jólakort uppi í sófa umkringdur fjölskyldunni og konfektinu, þá er álagið akkúrat á þessum tíma við að flokka og dreifa algjör vitleysa. Fyrir utan að það kostar slatta bæði í sendingargjaldi, ljósmyndinni og kortinu sjálfu.
Margir ákveða þessvegna að senda engar kveðjur eða kort heldur styrkja gott málefni og það er stórgott og blessað, ég hef samt verið að hugsa hvað getur komið í staðinn fyrir þessa stemmningu eða athöfn að fá jólakveðju frá vinum og vandamönnum þar sem fjölskyldan sameinast við að hlusta á persónulegar kveðjur. Það er auðvitað hægt að senda vefkort, eða jafnvel sms, en hvorutveggja er áreiti sem á ekki við þegar maður tekur á móti skilaboðunum og þau fara yfirleitt ekki lengra en til eins úr fjölskyldunni.
Best af öllu væri ef flatskjárinn í stofunni myndi taka við öllum kveðjunum sem berast á heimilið, hvenær sem þær berast, og ganga úr skugga um að þær sé ekki hægt að opna fyrr en á aðfangadagskvöld. Flatskjárinn í stofunni er jú altari heimilisins.
Þannig er hægt að senda myndir, texta, video, heilu ræðurnar, ágrip ársins eða bara hefðbundna árs og friðar kveðju að hætti Gerðar G. Bjarklind.
Auðvitað myndi skjárinn ekki geyma kveðjuna, heldur væri hún á vefnum sem gagnvirka sjónvarpið hefði aðgang að.
Held að þetta sé alveg málið, spurning hvort maður nái að græja þetta fyrir næstu jól... heh ;)
Flokkað sem hugmyndir / hönnun / tækni /
4
neytendaverðkönnunarpæling
Mikið var ég glöð í mínu hjarta að lesa fréttirnar hjá Rúv í dag, þegar þeir komu með skúbb með Krónuna og Bónus. Mér þykir svo vænt um að það sé einhver neytendavakning í gangi og fer til dæmis reglulega inn á OKUR síðuna hans dr.Gunna til að heykslast mér til gamans.. svo kíki ég líka reglulega inn á Skotsilfur, síðuna hans Ragga til að fá nýjustu fréttir í sparnaðarráðum og heimilisbókhaldi. Alveg gulls ígildi þessi vefur ;)
En í dag, í þessum pælingum um verðkannanir og neytendavitund, fékk ég hugmynd.

Út um allt eru neytendur að gera sínar eigin verðkannanir, hver í sínu horni, þó þeir láti kannski ekki mikið uppi um það.
Það þyrfti að vera til vefur þar sem maður setur inn verðin á vörunni sem maður er að kaupa, eftir að maður er búinn að versla. Hugsum okkur (í fyrsta lagi að einhver myndi nenna þessu) fara út í búð - kaupa kók í bauk (segi þetta bara af því ég er að norðan), opna vefinn og stimpla inn númerið í strikamerkinu. Strikamerkið er bara auðkenni sem er svo tengt við upplýsingar um vöruna í verslunarkerfinu, þannig hefur hver vara - eftir þyngd eða bragðtegund sitt auðkenni sem er svo tengt inn í hvert verslunarkerfi fyrir sig. Það er ekkert sem mælir gegn því að vefur geti ekki geymt þannig upplýsingar eins og verslunarkerfin? (Leiðrétti mig hver sem getur).
Ef kókið í bauknum hefur verið skráð inn áður þá kemur upp form þar sem kaupandinn er beðinn um að slá inn dagsetningu, verslun og verðið á vörunni. Þar getur hann líka séð hvað aðrir, sem hafa keypt sömu vöru, hafa borgað fyrir hana í gegnum tíðina.
Ef kókið í bauknum hefur ekki verið skráð inn þá þyrfti að setja inn upplýsingar um þá vöru; tegund, framleiðanda, magn oþh, áður en hægt er að setja inn verðið.
Þetta hljómar kannski svolítið leiðinlegt en með notendavænu viðmóti og fallegu útliti ásamt möguleikum til samskipta (skilaboð og spjallborð) og jafnvel því að gera þetta að léttum leik þar sem maður safnar stigum fyrir hverja vöru sem maður setur inn.. (svona eins og iconbuffet þar sem ég er komin með "gegt" mörg stig fyrir að bíttast á táknmyndum í gerviheimi...) gæti þetta orðið gott sport og geysilega gott aðhald fyrir verslanir því þannig er hver kúnni orðinn aktívur "verðkönnunareftirlitsaðili".
Þetta veltur auðvitað mikið á heiðarleika fólks og einhvernvegin þyrfti að vera hægt að færa sönnur á kaupin. Hugsanlega gætu neytendasamtökin staðið fyrir svona vef og gert þá kröfu um að fá kassastrimilinn ef eitthvað undarlegt er í gangi.
Með svona gögnum er hægt að fá upplýsingar yfir ákveðin tímabil, ákveðnar verslanir og ákveðnar vörutegundir. Þetta segir auðvitað bara ákveðna sögu og er ekki marktækt nema að vissu leyti en býr samt til landslag sem mér finnst vera öðruvísi en hefur verið.
Pæling sem vert er að þróa áfram ? Hvað finnst þér ?
Flokkað sem fólk / hugmyndir / hönnun / netið / tækni /
3
Nýi fjölskyldumeðlimurinn
Holy mother of Jesus hvað hún er falleg.

Nokia RIP
Síminn minn gaf upp öndina í fyrradag, skjárinn sýndi allt í einu "contact service" og vill núna ekki hlaða sig þrátt fyrir að ég hafi reynt öll trixin í bókinni. Ég held hreinlega að tíminn hafi verið kominn á þessa elsku, þó hann sé bara eins og hálfs árs, og sorglegt að endingin sé ekki meiri.
Ég hefði reyndar viljað að hann myndi þrauka fram á haust eða allavega þar til iPhone kemur út, það hefði verið sætt.
Mér finnst reyndar ekki svo mikið mál að missa símann, tala ekki það mikið en ég er strax byrjuð að sakna vekjaraklukkunnar í honum.
textabreytirinn 2000.. hvar ertu?
Ég er búin að vera að skoða "open source content management" tól á netinu í kvöld vegna nokkurra vefsvæða sem ég er að fara að smíða. Ég er að leita að einföldu "forriti" þar sem maður breytir texta á síðu með því að logga sig inn. Þar ætti líka að vera yfirlit yfir allar þær síður sem bjóða uppá (fyrirfram ákveðnar) breytingar, skrifuðum í PHP eða JavaScript/AJAX, án þess að þurfa SQL. Ég hef minnstan áhuga á lausnum frá veffyrirtækjum eða dýrum forritapökkum (mambo, joomla eða bloggforritunum) því yfirleitt gera þau ráð fyrir mun fleiri fítusum en ég hef þörf fyrir og gera hlutina óþarflega flókna, tímafrekna og dýra.
Ég var að skoða Toko sem gæti verið það sem ég þarf en ég þarf að skoða það aðeins betur. Ef það eru einhverjar uppástungur þarna úti þá má alveg endilega stinga þeim að mér
súrmeti
Windows 386.. gvuð minn góður!
að verða steikt í hausnum
Netsnúran sem lá yfir stofugólfið að skrifborðinu mínu er farin. Til allrar lukku því það var bara tímaspursmál hvenær einhver hrasaði um gula ferlíkið og kippti tölvunni niður í leiðinni. Núna fara samskipti mín við umheiminn fram í gegnum andrúmsloftið, spurning ef hausinn á mér er mitt á milli tölvunnar og þráðlausa routersins, hvort að ég nái ekki að fylgjast með þræðinum í lost á meðan ég næ í hann.. hann er einmitt sýndur á aftur á morgun. Pæling.
Annars jukum við tenginguna um daginn upp í 4mb/sek og það er nokkuð hressandi. Það hefur hins vegar ekki mikil áhrif á höktið á fréttatímunum því flöskuhálsinn virðist vera á hinum endanum.
high export potential
Í markaðsfræðitíma í gær vorum við að fjalla um Experience Economy og í því sambandi fjölluðum við um danska markaðinn og einn helsti kostur hans væri high export potential. Ég staldraði aðeins við í hausnum á mér og fór að sjá fyrir mér allan fiskinn og álið, gullið og olíuna en nei. Þarna er verið að tala um að helstu tækifærin felist í hönnun, hugviti, tísku, arkitektúr, menntun og "user driven innovation". Ekkert ál. Ekkert stál.
Þó að Danirnir hafi unnið okkur um daginn þá getum við nú samt horft aðeins til þeirra, er það ekki?
ifish
Dem, ég var aðeins of fljót á mér að panta frá amazon í gær, þegar ég googlaði "ifish" í tengslum við síðasta blogg þá fann ég þennan: iFish ;)
strætó- og hjólamenning
Það var sterkur leikur hjá Akureyrarbæ að hafa strætóinn ókeypis. Sparnaðurinn er nær örugglega meiri en kostnaðurinn, fyrir utan að það er miklu skemmtilegra fyrir menningarlífið í bænum að hafa strætóinn fullan af allskonar fólki (líka fólki sem á bíla) heldur en hálftóma eða bara með rónum eins og í borg óttans.
Hérna í Danmörku er verið að tala um að borga fólki (í formi skattaafsláttar) að hjóla í vinnuna, nokkrar krónur per kílómeter. Það bæði myndi létta á umferðinni, minnka mengun og auka heilbrigði fólks. En þó að þetta ætti að vera nóg til að fá menn af stað þá þurfa menn líka einhverja áþreifanlega gulrót. Og skattaafsláttur er svo sannarlega eitthvað til að kveikja í fólki hérna.
Mér skildist að framkvæmdin ætti að vera þannig að atvinnuveitandinn skili inn vottorði um ákveðinn kílómetrafjölda hjá viðkomandi starfsmanni, en það hlýtur samt að vera hægt að fá einhverja græju á hjólið sem nemur kílómetrafjöldann, svona rétt eins og nike og ipod samstarfið, þar sem hlaupaskórnir senda upplýsingarnar um skokkið þitt inn í ipodinn og svo þegar þú tengir hann við tölvuna þína þá sendir hann þær upplýsingar inn á vef skokkhópsins þíns - sem gæti þá verið dreifður um allan heim.
Ég sé fyrir mér að næsta samstarf Apple verði við Gary Fisher. Það kemur ekkert annað til greina, enda langflottasti hjólagaurinn.
Það gæti verið græja sem heitir iFish ;)
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / samfélag / tækni /
0
gluggalaust heimili
Tölvunarfræðingurinn minn var í því að strauja harða diska í jólafríinu og setja upp á nýtt þannig að þegar við komum heim ákváðum við bara að taka gömlu tölvuna aðeins í gegn líka, agalegt hvað það sogast mikið af rusli inn í windows. Að því tilefni ákvað hann að setja ekki Windows, með öllum sínum service-pökkum inn aftur heldur prófa að hafa bara Linux kerfið Ubuntu og það er að heppnast svona líka vel.
Þar með er bara ekkert Windows á heimilinu.. feels good.
frétt, mbl
Þetta er (m)álið: Mbl.is - Frétt - Ný gagnamiðstöð á Íslandi gæti skapað 200 störf , svona allavega á meðan sæstrengir eru ekki að bila.
vefrýni - noi.is
Mér finnst alltaf gaman að skoða þegar nýir vefir eru að opna og sjá hvernig verið er að breyta og hvað er verið að leggja áherslu á. Mig langaði til að minnast á þrjá núna; noi.is, eymundsson.is og amazon.com. (Kannski breyttist amazon.com fyrir löngu síðan en ég hef ekki tekið eftir því fyrr af því ég fer yfirleitt inn á amazon.co.uk því þar hef ég yfirleitt fengið vörurnar oggópoggó ódýrari og aðeins fyrr). EN anyhow, ég ætlaði að minnast á þessa þrjá en þegar ég byrjaði á fyrsta þá gat ég bara ekki hætt að rassskella þannig að ég geymi hina til síðari tíma.
Fyrir þá sem hafa á huga að lesa bendi ég á að lesa áfram (duh!) en fyrir hina er ég ekkert að troða þessu uppá þá. Og munið, ég er ekkert í sérstaklega slæmu skapi og ég hef ekkert útá neinn að setja persónulega, þetta bara stakk mig illilega og er, að sjálfsögðu, eingöngu mín skoðun.
aðalfundur 2006
Í kvöld var haldinn aðalfundur pjúsarafélagins að mér fjarstaddri. Pjúsarar láta ekki vegalengdir á sig fá og í raun var ég viðstödd fundinn lengi vel, þar til tæknilegu unaðssemdirnar gáfu sig.
Ýmislegt var samþykkt, ýmis mál komu upp en félagsmenn eru sammála að fundurinn hafi verið innihaldsríkur og afkastamikill, sérstaklega á eftirréttina.
margmiðlaðar systur
Í kvöld spjallaði ég við Hönnu systursem er stödd í californiu, í gegnum video á skype á sama tíma og við Hanna spjölluðum líka á skype við Baddý systursem var að stjórna útvarpsþætti á Akureyri og fór þar með nýjasta gossið frá Hollywood og kóngafólkinu í Danmörku, af því hún fékk það allt beint í æð.
Ég veit ekki hvaðan við höfum þetta en tæknin er okkur í blóð borin, ég segi ekki annað.
MBP
Elsku fallega macbookpro er komin heim til mömmu!!
"Thank you for buying a Mac!"
Jebb, ég lét verða af því í síðustu viku, verslaði eina MacBookPro í gegnum vefverslun apple.com. Ég lét breyta henni aðeins þannig að hún fer ekki af stað fyrr en á morgun (frá Hollandi held ég..) og kemur því núna í næstu viku, en vá hvað ég hlakka til. Ég neyðist til að skrópa í skólanum í einhverja daga til að vera heima og taka á móti henni. Ég hefði átt að eignast svona vél fyrir ca 6 árum.. en biðin er að verða á enda og það er svolítið óraunverulegt að hugsa til þess.
takk apple.. þið eruð ekki beint að hjálpa..
Loksins þegar tölvunarfræðingurinn var búinn að samþykkja kaupin, tók ekki nema um 7 ár eða svo, koma Apple menn og æla út úr sér nýjum útgáfum alveg hægri vinstri. Nú líst fræðingnum náttúrulega miklu betur á þessar nýju en þegar við hringdum niður í umboð til að athuga hvenær þær kæmu (á þessu árið eða..?) komu menn alveg af fjöllum og vissu ekkert um þessar nýju útgáfur... well...
Núna erum við að spá hvort við eigum að spara nokkra þúsundkalla og versla þessa nýju úti eða þá eldri útgáfuna (sem tölvunarfræðingurinn er búinn að komast að að er ekki alveg gallalaus) hérna heima og kaupa þá ábyrgðina með.
Oooaaacccckhhh.. Þetta getur ekki verið svona erfitt...
getamac
Ef þetta sannfærir ekki tölvunarfræðinginn á heimilinu... þá veit ég ekki hvað... Apple - Get a Mac - Watch The TV Ads
Flokkað sem hönnun / netið / tækni / video /
2
iceweb
Síðustu tvo daga hef ég setið á Iceweb ráðstefnunni um vefmál, innan um vefhönnunarliðið á íslandi og hlustað á Molly Holzschlag, Eric Meyer, Kelly Goto, Dave Shea, Andy Clarke, Joe Clark og Shaun Inman (missti reyndar viljandi af þessum tveimur síðastnefndu því vinnan kallaði og topicin þeirra voru aðeins of tæknileg fyrir minn grunn).
Það var ákaflega hressandi að hlusta á þessa snillinga, sem allir eru professional fram í fingurgóma. Mér var svo kippt aftur í íslenskan raunveruleika þegar ég kom í vinnuna og fékk það verkefni að gera eitt stykki vefútlit fyrir klukkan fjögur... æ lov it!
Núna langar mig bara að skreppa til amazons og versla nokkrar bækur, er það ekki allt í lagi? ég á nú einusinni afmæli á morgun! ;)
vefmál
Ég er búin að hafa reykjalin.com óvirkt núna í rúmlega tvö ár eða síðan eftir að ég kláraði skólann. Blómatíminn var sennilega árin 2000-2003 þegar nýtt útlit kom upp í hverjum mánuði. Ég hef samt alltaf ætlað mér að hafa eitthvað skemmtilegt í gangi þarna en það hafa verið aðrir vefir sem hafa gengið fyrir, auk þess sem mér finnst ég aldrei hafa verið að gera neitt sem ég gæti sett þarna.
En um daginn datt mér í hug að skrá mig í May1stReboot og koma með eitthvað almennilegt upp þann fyrsta maí og aldrei að vita nema að það geti gengið eftir.
En morgundagurinn og einhver hluti föstudagsins verður undirlagður undir Iceweb ráðstefnuna.
pólitískt blogg nr.1
"Ef nýsköpunarfyrirtækjum eins og CCP væri boðið upp á sams konar skattaafslætti og kjör og stóriðjunni væri ekkert því til fyrirstöðu að CCP starfaði á Sauðárkróki eða þess vegna Húsavík"
Hvað er fólk eiginlega að pæla með þessu ál-æði þegar svona tækifæri eru að fara forgörðum?
draumarnir rætast
Ég vissi það í hjarta mínu að ég ætti aldrei eftir að fá mér Powerbook þó svo ég væri sannfærð um að einhverntíman eignast ég aftur makka. Hins vegar er hún komin, draumavélin. Meira að segja tölvunarfræðingurinn á heimilinu er heitur fyrir þessu.
sambandslaus á UT deginum
Við erum búin að vera tölvupósts sambandslaus í vinnunni í allan dag, þeas innpóstinn, á sjálfum degi Upplýsingatækninnar. Ég er búin að beita ýmsum brellum við að koma frá mér skilaboðum; senda póst með "reply to" á annað netfang, tala óvenju mikið í síma - það vinnur svolítið gegn símafeimninni minni, og senda skrár með FTP og MSN.
Maður kemst að því hvað maður er háður tækninni einmitt þegar hún er ekki að virka og óskandi væri það að það kæmist í lag í tilefni dagsins.
lagað
ahh, er þettað ekký betra??
MT 3.2
það jafnast ekkert á við það á fimmtudagskvöldi en að uppfæra kerfið, svona yfir rjúkandi kakóbolla (lýg þvà reyndar, en hljómar vel samt) - ég vona bara að elskulegu Ãslensku stafirnir séu að koma à gegn..
iPod nano
iPod nano er kominn í hús, miklu minni en ég átti von á. Eiginlega svo lítill að manni líður illa á að halda á honum, maður skynjar ekki hvað hann er lítill.. svona eins og með hundinn Nóa hennar Rakelar, maður skynjar ekki hvað hann er stór.
Ég held að við fyrsta tækifæri muni ég fá mér hulstur, vatnshelt, og eitthvað gadget til að gera hann fyrirferðameiri. Ég sver, hann er svo lítill að mér líður eins og ég sé ógeðslega stór og með feita putta.. haha.. en hljómurinn er rosalegur.
klukkið
Ég er búin að vera meðvitundarlaus í netheimum undanfarna daga og gerði mér enga grein fyrir því að hafa verið klukkuð en reyni að gera mitt besta til að bjarga því sem bjargað verður, 5 atriði um mig af handahófi:
1. Mér finnst kaffi ógeðslegt, skil ekki hvernig það er hægt að drekka eitthvað heitt allan daginn. Ég finn samt að ég þarf að fá koffínskammt einhversstaðar svo ég haldi í við liðið sem er á þessu spítti allan daginn.
2. ég held að ég geti ekki lifað án súkkulaðis. það yrði allavega harður heimur.
3. ToDo listinn minn er of langur
4. Ég þarf að fá mér ný gleraugu, og já ég á að ganga með gleraugu
5. ég er ekki áskrifandi að neinu, óskalistinn er líka of langur.
skora á Baddý systur, Ragnar Frey, Munda og Svanhildi, Kristjönu og Freyju að koma með eitthvað rokk
blogday
Það er alltaf gaman að finna nýja aðila sem tengja í bloggið. Þó ég viti ekkert hvað standi þarna þá segir babelfish mér þetta:
- Although normally I try not to make too much case to initiatives that make see me in the mirror like a lamb, this time I am going to do an exception and I am going to recommend to five blogs that without this excuse surely never would appear here. Fotoblogs is five, much better than Catorze.foto (strained), that I like because they show realities very different from mine (in appearance, at least). There they go:
og maður er svona ýmsu nær.
þetta er bara kenning
Hún Lára mín stendur í ströngu um þessar mundir eins og kemur fyrir þegar fólk hefur mission í lífinu. Ég styð hana alveg 150% þar sem ég var ekki mjög hrifin af umræddum spjallþræði eftir að hafa kynnt mér hann í nokkurn tíma. Varð aldrei svo fræg að segja neitt þar.
Barnavefsíðurnar eru hins vegar ein besta viðskiptahugmynd lengi og ein helsta ástæða þess að mbl sölsaði landið undir sig, ekki ná þeir hitsum og ergo auglýsingatekjum (pdf) út á misvel skrifaðar fréttir.
ipod update
Frekar þreytt akkúrat núna, finnst eins og ég hafi fengið hálftíma persónulega pásu í dag þegar ég sofnaði yfir seinfeld í sjónvarpinu. Spurning um að ná þessari þreytu úr sér og fara að sofa, fyrir klukkan ellefu einu sinni.
Annars er allt vont að frétta af ipodnum, náðum honum í sundur, hann var víst alveg sneysafullur af ógeði og tæringin sem Ammi talaði um (hann er enginn vitleysingur) hefur víst tekið völdin þannig að ég get nokkurn vegin kysst þetta fagra tæki bless.
helvítis.
ekki oft sem ég blóta en af þessu tilefni, já.
my fellow ipod crasher
ókei, ég er ekki sú eina í heiminum: iPod Liquid Disaster!
draumar
harði diskurinn minn er að verða pakkfullur, svolítið vont þegar maður er farinn að henda út bíómyndum til að geta hlaðið af myndavélinni. Ég á reyndar annan draum, sá er að eignast ferðavél, en það ætti ekki að stoppa diskakaupin; geymslupláss er alltaf pláss. Það er reyndar líka í draumunum að vinna í lottó og á meðan röðin mín kemur ekki upp gerist mjög lítið.
17" Powerbook er sú eina sem kemur til greina. Næsta tölva mín verður að vera ferðavél, ég meika ekki að detta úr sambandi þó ég leggist í ferðalög. Svo er ágætt líka að geta pakkað öllu draslinu niður í tösku. Ég er hrifin af öllu við þessa vél, nema verðmiðanum. En þar kemur lottóið til sögunnar, eða óvæntur arfur.
"Petals around the rose"
Ég er að fara á taugum yfir því að fatta ekki "petals around the rose" og ekki skánar það þegar maður les hvað aðrir hafa átt auðvelt með að kveikja á fattaranum.
Ars-Liv leikurinn er að verða búinn og þá mun hjálpin berast úr stofunni,.. ekki það að ég sé að gefast upp.....haa
once you go mac..
Núna verð ég að fara að fá mér mac. annað er ekki hægt. Ég er algjörlega ástfangin af þessum gaur sem ég sit við í vinnunni, reyndar er ég ekki sérstaklega hrifin af skjánum þar sem það er erfitt að vera nákvæmur með litina á honum, allt annað er bara rokk!
Ég ætla samt að byrja á því að fá mér ipod, Baddý systir ætlar að koma með hann frá NY. Þá verður ekki aftur snúið.
frétt á mbl.is
Þetta er eiginlega með því betra sem ég hef heyrt!
bilun (varúð nördamál)
já það er búin að vera bilun í gangi.
ég klúðraði einhvernvegin databeis fælnum fyrir MT þannig að öll bloggin duttu út. svo ákvað ég að setja nýja kerfið bara inn fyrst ég var að þessu og importaði svo öllum gömlu færslunum inn í nýju útgáfuna (sem ég var sem betur fer búin að exporta nokkru áður, reyndar sá ég lausn hér sem hefði geta notfært mér ef það hefði farið út í hart).
Svo sá ég það í kvöld að íslensku stafirnir importuðust ekki rétt heldur kom svona skemmtilegt svart tíglamerki í staðin. Þá eyddi ég öllu út, fór aftur í import skránna, gerði replace á alla íslensku stafina og setti þá inn sem ASCII, importaði þeirri skrá, fór svo í find/replace í MT og lagaði súpuna til baka. Nú ættu allavega allir íslensku stafirnir að verða komnir í lag. Þá er bara að lagfæra template-in sem eru eftir.
stafsetningarkunnátta M$ manna
ákvað að skrifa saman á
ákvað að skrifa saman á disk nokkur af mínum uppáhalds píanólögum, Chopin og fleiri snillinga, og setja ofaní tösku en þegar skrifarinn neitar öðru en að skrifa á 4x og gefur frá sér hátíðniýl þegar hann reynir að brenna á diskinn, er kannski spurning um að fara að uppfæra græjuna?
Síminn vaktar vefinn minn.
OK þetta er eitthvað dúbíus, korteri eftir að ég sendi inn síðustu færslu með símanum mínum þá hrökk netið í gang hérna! Við erum búin að hringja á klukkutíma fresti í þjónustunúmerið og tala við alla heimsins þjónustufulltrúa Símans en ekkert hefur gengið fyrr en nú.
Máttur bloggsins er óútreiknanlegur!
í tilefni helgarinnar ákváðum við
í tilefni helgarinnar ákváðum við að taka heimatölvuna aðeins í gegn og settum harða diskinn aftur upp, uppfærðum BIOSinn sem við vonuðumst til að myndi glæða hana aðeins meira lífi (þetta bluescreen drasl er ekki fyndið lengur!)
það er óneitanlega þægilegt að vera með öll gögn á einum feitum hörðum diski og geta svo bara kippt honum úr og í eins og hentar.
Enn sem komið er gengur þetta smurt en það er spurning hvað gerist þegar feiti grafíski pakkinn minn er kominn inn.
Allavega er þetta tilefni til að ná sér í nýja desktop mynd og gaurarnir hjá 2advanced klikka aldrei á því.
kjölur
154km af blautum, holóttum malarvegi eru að baki og við förum að renna á grútdrullugum landcruiser niður að blöndulóni. (Sent sem SMS)
ferðalagið hafið
loksins erum við lögð af stað, ákváðum að dissa göngin og fara yfir kjöl og erum því að nálgast selfoss og lendum vonandi á dalvík í kvöld. ég hef aldrei farið þessa leið þannig að spennan er mikil. (Sent sem SMS)
úr símanum
eitthvað ætlar ð-ie flotta í símanum mínum ekki ae birtast (Sent sem SMS)
úr símanum
ég sit hérna heima og fikta i simanum minum, oli er kominn i fri ur vinnunni og skrapp ut a golfvöll i smastund svo förum vie ae leggja i hann noreur. (Sent sem SMS)
úr símanum
sent sem sms (Sent sem SMS)
það er fullt af fólki
það er fullt af fólki sem er að nota MT en er ekki komið í rss listann.. er ekki sjens að importa rdf skránnum (af því MT býr alltaf til svoleiðis) inn í rss listann -eða nýjan lista- og fá þannig fyrirsagnirnar jafnóðum.. best væri náttla að hafa þetta á einum stað... einhver??
enn af ruslpósti
ég var að lesa póstinn minn rétt í þessu, ég talaði um daginn hversu mikinn ruslpóst ég fæ og hvað hann pirrar mig, þrátt fyrir að SpamAssassin sé að vinna gott verk og flestur póstur lendir beint í ruslinu. Hins vegar er ótrúlegt hvað fólk sendir mikinn ruslpóst án þess að vita af því að það sé ruslpóstur, það er náttúrulega skilgreining hvers og eins hvað sé rusl.
áðan fékk ég semsagt bréf þar sem eini tilgangur bréfsins er að senda það áfram til eins margra og maður getur, að Microsoft og Intel muni tracka það til hversu margra maður sendir og borga þér svo fyrir það. þetta er svo mikið rugl að það hálfa væri nóg!
það sem þetta gerir er að valda gífurlegu álagi á póstþjónum, sér í lagi hjá fyrirtækjum þar sem starfsmenn senda þetta fram og tilbaka sín á milli.
það veldur því líka að netfangið þitt verður auðveld bráð fyrir spammara og áður en þú veist af þá fyllist pósthólfið þitt af ruslpósti.
Aðal reglan er sú að ef eitthvað sýnist vera of gott til að vera satt þá er það yfirleitt alltaf þannig! Ekki senda áfram svona póst, jafnvel þó einhver sé búinn að íslenska meðmælin.
Ever svo umtalaði ruslpóstur
ég var að stilla útvarpsvekjarann uppúr eitt í gærkvöldi þegar ég rakst á, alveg fyrir tilviljun, viðtal við Bjarna á Rás 2 þar sem hann var spurður út í ruslpóst. þetta var mjög áhugaverð kvöldsaga svona rétt fyrir svefninn þannig að við hlustuðum aðeins betur.
Ruslpóstur er nefnilega eitthvað sem ég er alveg að eipa á, er það eðlilegt að eiga alltaf póst þegar maður sækir hann? Að maður megi ekki stökkva frá Outlook í einn dag þá eru komin yfir 40 skeyti? ugh!
ég er reyndar komin með ágætis síu sem hefur virkað vel undanfarið en það er að gefa póstforritinu mínu upp ákveðin lykilorð í "Rules Wizard", ef titill bréfsins inniheldur t.d. mortgage, amateur, enhancement eða younger þá fer það beint í ruslið, án þess að ég þurfi nokkurn tíman að líta það augum. Að vísu treysti ég þessari síu ekki það vel að ég renni augum yfir bréfin áður en ég eyði þeim algjörlega, bara til að vera viss um að vera ekki að henda einhverju sem ég vil skoða. þannig að til að vera viss um að ég hendi ekki póstinum frá þér óvart skaltu ekki setja 'viagara' í subject línuna ;)
firebird
af því ég tek alltaf mark á því sem Tryggvi segir þá ákvað ég að prófa Firebird vafrann því Explorer var stöðugt að hrynja hjá mér. Firebird byrjaði á því að heilla mig með því að drepa pop up glugga svo varð ég ástfangin þegar ég sá að ég gat breytt um theme á honum.
Hins vegar hef ég ekki náð að installa MSN chat plugin í einni msn grúbbunni sem ég er í því MSN síðan heldur að vafrinn sé afbrigði af Netscape og installið neitar að installa viðbótinni nema setja hana í netscape plugin folder. MSN er náttúrulega afsprengi (6) þannig að það kemur ekki á óvart.
Svo reyndar er ég að finna nokkra javascript bögga en það er nú bara eins og það er.
Samt, allt fyrir að hafa vel hannaðan vafra.
ég verð að fara að fá mér mac.
Góður Gvuð á himnum! þetta
Góður Gvuð á himnum! þetta lætur svarta PS2 boxið við hliðina á sjónvarpinu líta út fyrir að vera so 90's. þessi græja og bílarnir hans Ingimars eru þokkalega dót mánaðarins.
MT uppfærsla og hugleiðingar
það er víst í tísku að uppfæra MT þannig að ég skellti inn 2.64 í gær. Sá ekki mikla breytingu en hún er örugglega einhver og til batnaðar, þó þetta sé snilldarkerfi eins og það er.
það verður samt gaman þegar TypePad verður komið upp, þá veðja ég á að blogspot fari fjandans til. Enda virkar það aldrei.
Sú sem sannfærði mig í að setja upp MT í fyrra heitir Brooke en hún var með snilldarblogg á brookelyn.org. Hún er hætt því og er orðin freelance vefhönnuður, hún hefur nefnilega mjög gott auga og alltaf gaman að sjá hvað hún er að gera.
Eve
3 dagar í að EVE komi út? frábært!! þetta er örugglega einn mesti gradient og lens-flare leikur sem hefur komið út. Og alveg frábært að hann skuli koma út því ég er viss um að það eru nokkuð margir sem höfðu enga trú á því, en þolinmæðin og eljan hjá CCP er aðdáunarverð.. og eitthvað held ég að bankabókin þeirra sé tómleg.
dót allra vikna
ég kíkti með Guðjóni í hádeginu í dag í dótabúðina sem er rétt handan við hornið frá skólanum. Dótið þar var rosalega flott. Helst langar mig í mac og videovél til að geta haldið áfram að taka video og klippa. Flestar camerur eru nefnilega með firewire og þó svo pésarnir okkar væru til í að klippa smá þá er það bara svo "miklu auðveldara á mac".
ég er gera verkefni fyrir
ég er gera verkefni fyrir director námskeið sem ég er á. Director er fínt forrit nema þetta er eiginlega of mikið föndur fyrir minn smekk.. ég veit að þetta kemur úr hörðustu átt en ég hef aldrei fílað að vinna í flash þegar maður getur gert hlutina miklu einfaldari með html. Director er samt meira CD eða DVD viðmótshönnunarforrit þannig að að því leyti fíla ég það. ég er samt ekki alveg að nenna þessu núna.. argg..
nenni ekki að blóta lengur...
Okkar annars ágæta tölva hefur haft einn leiðindagalla from day one. Hann er sá að hún endurræsir sig eftir eigin geðþótta. þetta getur verið mjög hvimleitt vandamál og við erum að sjálfsögðu búin að henda henni nokkuð oft heim á verkstæðið en höfum ekkert fengið út úr því nema feitan reikning.
í dag er staðan þannig að það er búið að setja hana upp aftur ca 4x með tveimur mismunandi stýrikerfum, komin með nýja viftu á örgjörvan, komin með nýjan örgjörva, búið að prófa nýtt skjá+ hljóðkort og ennþá er hún drottning í ríki sínu og tekur sér pásu þegar henni hentar. það er spurning hvað á að gera næst?
Eftir meira en ár í þessu leiðinda umhverfi eru litliputti og langatöng orðin vel skilyrt þannig að á eftir punkti kemur kontrol-ess.
sagan af þunglynda vefþjóninum
ég kenni virkilega í brjósti um þennan vefþjón, ég held hann eigi virkilega bágt : p

