Eftirfarandi eru færslur í flokknum "skólinn"
Frk. framkvæmdastjóri
Fyrr í vor skráði ég mig á námskeiðið Brautargengi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, 15 vikna námskeið í stofnun og rekstri fyrirtækja. Þessar 15 vikur eru núna búnar og eftir það er ég með í höndunum viðskiptaáætlun um fyrirtækið mitt litla, lýsingu á því hvað það er og hvert það vill fara og síðast en ekki síst, rekstraráætlun sem sýnir að með ákveðnum, raunhæfum forsendum þá getur batteríið gengið upp.
Þessi tími er búinn að vera alveg ótrúlega skemmtilegur, eiginlega skrýtið að ég hafi ekki bloggað um þetta áður en bloggið hefur aðeins dottið uppfyrir. Hópurinn var mjög skemmtilegur, konur á öllum aldri með allskonar hugmyndir. Fyrirlestrarnir voru líka innspýting hugmynda og krafts og námskeiðið allt mjög vel skipulagt.
Tímarnir voru einn dag í viku frá 9-13:30, semsagt nánast allur vinnudagurinn þar sem Emil hefur verið hjá dagmömmunni til kl. 14. Fyrirlestrarnir byggja á því að ákveðinn kafli í viðskiptaáætluninni er tekinn fyrir, svo eru heimaverkefni sem eru unnin eftir það.
Verkefnastaðan hefur líka verið mjög góð og það verður gott að fá auka dag í vikuna aftur.
Semsagt mjög skemmtilegur tími liðinn og við tekur vægast sagt áhugaverður tími. Sumarið verður notað til að pússa og undirbúa, svona eins og maður kemst upp með í fríinu, og svo þegar skólinn byrjar í haust verður farið af stað af fullum krafti með fyrirtækið. Við (já ég segi við) erum komin með húsnæði í sigtið, það verður nýtt nafn og rosa stuð. Segi betur frá síðar :)
ekki svo mikið nörd..
Núna tekur við í skólanum nokkurs konar sérhæfingatími (specialization) fram í lok mars, þar sem við megum kafa ofaní ákveðið efni og styrkja okkur í því. Það sem ég lagði alltaf upp með í þessu námi var að vera betri vefhönnuður og kannski aðeins öflugri í forritun. Þess vegna ákvað ég að styrkja mig aðeins betur í php forritun umfram þann litla kúrs sem við fengum í haust. En núna hef ég verið að spá, hvort ég græði nokkuð á því að auka við mig örlítilli þekkingu, þar sem mínar sterkari hliðar liggja annarsstaðar en í hard core forritun og það þyrfti svolítið mikið til svo ég gæti sagt að ég sé eitthvað fær í PHP vefforritun.
Svo að ég er aðeins að skipta um gír, og ætla næstu vikur að skoða "Smarty" sem er svokallað "template engine" eða tól/forritunarmál til að setja upp útlit án þess að vera nokkuð háður innihaldi, þ.e.a.s býr til alla virkni og útlit þó svo á bak við séu flókin samskipti við gagnagrunn. Í einföldu málið þýðir það að ég sem útlitshönnuður gæti þá sett upp alla útlitseiginleika og forritarinn þyrfti ekkert að pæla í framsetningunni. Einhvernvegin held ég að ég græði meira á því að kunna það heldur en eitthvað flóknara tækni-smækni dót.
hrós dagsins
Við fengum nokkur auka slög í gær þegar það uppgötvaðist að við gleymdum að sækja um LÍN í sumar fyrir haustönnina sem var að ljúka. Starfsfólkið hjá LÍN kom af fjöllum þegar við sendum þeim staðfestingu á námsárangri og sögðu að við ættum að sækja um fyrst.
A rush of blood to the head, i might say.
Svo við sóttum um í gær, eftirá, og það gekk allt í gegn á einum degi. Þvílík snilld.
Sé það fyrir mér gerast hérna í þurrpappírsríkinu Danmörku þar sem við þurfum að fara að huga að því að segja öllu dótinu upp (íbúð, sími, banki osfr), sem allt þarf að gerast SKRIFLEGA með margra mánaða fyrirvara.
Ein pæling, borgar sig ekki bara að ávaxta námslánin á hærri vöxtum en við borgum af þeim..
afslöppunarblogg
Þá er kærkomið sumarfrí runnið upp. Í morgun fór hópurinn minn í munnlega prófið, sem fór þannig fram að við héldum kynningu á verkefninu í 15 mín og svo fékk hver og einn 20 min "hraðaspurningar" þar sem við vorum spurð út í námsefni vetursins. Við stóðum okkur alveg þrusuvel, fengum 11 í einkunn! Held að það sé bara hægt að vera ánægður með það.
Það er búið að vera vel heitt í dag, engin sól samt. Þegar ég kom heim kveiktum við bara á skjánum og horfðum á einhverjar súrar túristamyndir á Travel and Living stöðinni, sofnaði í sófanum... semsagt bara afslöppun!
Ég sótti svo Danna á hjólinu, yndislegt að hjóla þessa leið á hlýrabol - bara passa að hafa munninn lokaðann og vera ekkert að blása tyggjókúlur nema maður vilji eitthvað.. extra crispy.. - og við vorum komin heim fyrir kl 16. Það var svo mikið að gera hjá honum að hann sofnaði þegar við komum heim - þarf að fara að vekja hann svo hann sofni eitthvað í kvöld.
en semsagt, dásemdar sumarfrí framundan
dagurinn og síminn
Í dag er ég búin að fara Danmörkina endilanga, svo til. Ég er að vinna verkefni með tveimur úr skólanum, þeim Katrine og Kris og við erum með kúnna niðri í Rødekro sem við erum í raun að "re-branda". Markaðsgaurinn frá fyrirtækinu sótti okkur í morgun og við keyrðum niður eftir hraðbrautinni í nærri tvo tíma og vorum þá komin skuggalega nálægt þýsku landamærunum. Við skoðuðum mikið, tókum myndir og spjölluðum (á dönskunni auðvitað) og tókum svo lestina heim og ég var komin heim um sex leytið. Veðrið spillti ekki fyrir ferðinni, rúmlega 20 stiga hiti og glampandi sól. Þetta var áhugaverð ferð og gaman að kynnast aðeins atvinnulífinu hérna í Dk
Baddý systir fór frá okkur í dag, flaug til Barcelona til Ellýjar frænku. Litli stubbur saknar hennar nú þegar.
Ég fékk mér líka nýjan síma í gær, þar sem minn gamli gaf upp öndina. Við systur fórum í raftækjaverslun og af því ég var áður bara með svona frelsi þá ákvað ég að binda mig í áskrift í hálft ár, borga 120 danskar á mánuði og get sent öll þau sms sem mér hugnast. Ágætt. Af því tilefni fékk ég líka nýtt símanúmer, sem hljóðar svona á dönsku:
otte og tyve, sex og halvfjerds, to og halvfems, tre og firs.
Ég get engan vegin munað þetta númer, hvað þá sagt það á dönsku undir álagi. Jiminn.
markaðsfræði 101 - how do you like iceland?
Það hefur mikið verið rætt um ímynd Íslands síðustu daga, sérstaklega eftir að Simon Anholt talaði á Viðskiptaþingi um daginn, og sagði að ímynd landsins væri ekki nægjanlega sterk.
Ég veit ekki hvort eitthvað er í gangi í framhaldi af þessari ráðstefnu en ég bíð spennt eftir viðbrögðum, áætlun eða einhverju slíku á því hvernig hægt sé að styrkja ímyndina eða hvort það á ekki að gera neitt. Það er ákvörðun í sjálfu sér.
Eins og sönnum Íslendingi er tamt, þá nota ég hvert tækifæri til að finna út hvað öðrum finnst um land og þjóð, ég ræði við félaga mína hérna í alþjóðlegu deildinni í skólanum og reyni að finna einhvern takt eða mynstur, tilfinningu fyrir því hvað er Ísland, jafnvel þó viðmælendur mínir hafi aldrei komið hingað. Sjálf hef ég líka ákveðna tilfinningu fyrir landinu eftir að hafa búið þar og ferðast um það þvert og endilangt, og með því að búa hérna úti þá fær maður að horfa á landið úr fjarlægð og við það opnast ákveðnar gáttir.
Hef heyrt það áður og tek undir að það er hverjum Íslendingi nauðsynlegt að búa í útlöndum í svona eins og eitt ár eða svo.
markaðsfræði 101 - ímynd
Í markaðsfræði höfum við svolítið verið að fjalla um ímynd. Ég hef mikinn áhuga á þessu viðfangsefni aðallega eftir að ég var að vinna hjá mixa (nú pipar) þar sem við unnum mikið með fyrirtækjaímynd (Corporate Identity) en ímynd er hægt að heimfæra á alla hluti, bæði einstaklinga, samtök, vörur sem og heilu löndin.
Í markaðsfræðitímanum hef ég alltaf verið með Ísland sem útgangspunkt í hausnum á mér, líklega af því þetta er svo mikið í umræðunni þessa dagana heima (allavega eftir því sem ég tek eftir); Vörumerkið Ísland, Framtíðarlandið (sem fjallar um hvernig viljum við vera og hvað getum við gert til að láta það verða að veruleika), Viðskiptaþing 2007 og svo mætti áfram telja.
Mig langar aðeins til að rifja upp þessi grundvallarhugtök sem við vorum að skoða í markaðsfræðitíma fyrir nokkru og hvað er betra en bloggið sitt þegar maður er að rifja upp glósurnar sínar og fá kannski einhvern til að leiðrétta sig ef maður fer með fleypur.
Ísland er líka ágætis útgangspunktur.
Flokkað sem hönnun / samfélag / skólinn /
0
úr mér allur vindur
Já, það er úr mér allur vindur. Í dag skiluðum við lokaverkefni annarinnar í skólanum þrátt fyrir að lokaskil séu ekki fyrr en á morgun og ég held að það hafi gengið alveg frá mér. Ég var í 4 manna hópi með einum dana, stelpu frá eistlandi og annarri frá lettlandi, mjög hressir krakkar nema bara fjári ungir .. það fær mann bara til að yngjast aðeins upp, er það ekki? Ekki veitir af.
Eftir skóla fór ég aðeins í Mollið sem er rétt við hliðina á skólanum hans Óla (óréttlátt, mér finnst að það eigi að vera hjá mínum skóla...) og það var ekki að hjálpa hausverknum. Heima var sonurinn með ragettu í rassinum (sennilega af því mig langaði svo mikið í ís og lét það eftir mér/okkur).
Núna ætla ég að setjast upp í sófa með bókina og horfa á eitthvað skemmtilegt.
Og sofa svo út á morgun.
skólinn og lífið
Ég er alltaf komin snemma heim úr skólanum og ég elska það :) Núna er ég reyndar að skrópa í HTML tíma en þegar maður hefur talað html í átta ár þá nennir maður ekki að sitja undir þessu einfalda (call me miss cocky..). Óli er ennþá í skólanum og var á bílnum þannig að í staðinn fyrir að sækja bílinn og sækja svo Óla á eftir þá ákvað ég að taka bara strætó heim. Það er reyndar enginn strætó sem fer alla leiðina þannig að ég þurfti að skipta á miðri leið.
Það er gaman að taka strætó hérna - miðað við RVK þá eru sennilega öll strætókerfi skemmtileg. Hér fer maður inn að aftan, stimplar miðann sinn (eða ekki) og svo út að framan. Hérna les líka vagnstjórinn upp næstu götur/stoppistöðvar þannig að hann virkar ekki eins úldinn og önugur maður hefur vanist áður.
Áður en ég fór heim kom ég við í bókabúðinni í skólanum og keypti markaðsfræðibókina sem við erum að lesa núna, það er nú kominn október og kominn tími til að lesa skólabækurnar :) Hún var hins vegar frekar þung og seig í þegar ég var að bíða eftir næsta strætó sem tók heila eilífð að því virtist. Það var nefnilega við eina stærstu götuna hérna, Viborgvej, og akkúrat á 2km kafla þar sem verið er að breikka hana - þeir eru búnir að vera að vinna í þessu síðan áður en við komum hingað en með sínum löngu hádegishléum, hætta-að-vinna-klukkan-fjögur stefnu og engri yfirvinnu þá held ég að þeir verði örugglega í því að breikka götuna allan tíman sem við verðum hérna. Allavega sér maður engan mun frá degi til dags.
Ásamt því að kaupa markaðsfræðibókina keypti ég líka aðra bók sem mig hefur langað í lengi; Web Redesign eftir Kelly Goto sem var með magnaðan fyrirlestur á vefráðstefnunni heima í apríl. Þannig að það verður kannski svolítill tími þar til ég kíki í markaðsfræðibókina ;)
af verkföllum og skólum
Við Danni erum búin að vera heima núna í tvo daga út af verkfallinu hjá leikskólakennurum, sem á reyndar að enda í dag. Það er mjög fínt veður núna reyndar og víða má sjá fólk í garðvinnu núna í byrjun október, við kvörtum ekki yfir því.
Fallega tölvan mín hefur það líka alveg einstaklega gott. Hún er nú að verða nokkuð vel græjuð enda fann ég *óvart* fontasafnið úr vinnunni á diski og sitthvað fleira. Svo verður eiginlega að þakka símafyrirtækinu TDC fyrir að hífa hraðann hjá okkur upp úr 1mb yfir í 8mb/sek núna í haust, en þeir eru að reyna að koma okkur á bragðið og munu lækka hraðann aftur núna fljótlega. Þann dag verður grátið því bragðið er gott.
Skólinn gengur líka fínt, á föstudaginn í síðustu viku var yfirferð á verkefni sem var gert eftir kennslu síðustu vikna, þar áttum við að fjalla um einhvern menningaratburð, gera poster og vef ásamt svolítilli skýrsku, sem var skiljanlega ekki mikið mál fyrir mína! Ég ákvað að taka fyrir fiskidaginn mikla þar sem ég er ekkert of hrifin af því sem hefur verið gert áður, það er auðvitað bara smekksatriði.
Ég hef líka verið að spá í því, hvort ég sé á réttum stað í þessum skóla, þetta er bara hálfgerður iðnskóli. Þegar við ákváðum að koma hingað byrjaði ég að skoða mastersnám í Multimedia sem er kennt hérna við Aarhus University, og Óli er í því að hluta til, en það nám er mjög mikið akademískt og mig vantar svolítið tæknilegan grunn fyrir það. Þetta nám sem ég er í mun, þegar fram í sækir, fara í flash vinnslu og php + javascript forritun sem mig langar að læra en þangað til er þetta ekki svo krefjandi. Það er kannski líka allt í lagi því þá hefur maður tíma til að vera heima og leika einstöku sinnum þegar aðrir eru í verkfalli.
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / skólinn /
0
vikan framundan
Þið haldið kannski að ég sé búin að vera upptekin alla helgina við að leika mér í nýju tölvunni.. því miður.. hún er ekki ennþá komin! ég þorði varla út úr húsi alla vikuna ef ske kynni. Buuhuhuu..
En order statusinn á apple.com segir að ég þurfi ekkert að örvænta, þeir ætla að gefa sér tíma til 26. sept en ég hélt bara að þeir vissu hvað ég væri mikið að bíða.
Næsta vika verður aðeins strembnari í skólanum heldur en hefur verið, allavega er stundaskráin frá 8:15-16:00 í vikunni miðað við að hafa verið frá 9-12. Núna er fyrstu lotu að ljúka og vikan fer í verkefnavinnu. Skipulagið í skólanum er þannig að maður þarf að standast loturnar til að geta komist áfram, það eru engar einkunnir gefnar og engin jólapróf, bara að fá OK og þá er maður kominn í gegn. Ég veit ekki alveg hvort þetta verða einstaklingsverkefni eða hópaverkefni, það kemur í ljós á morgun.
Já, 8:15 á morgun. Það þýðir púsluspil því við erum uþb 35 min að koma okkur út og fara með Danna á morgnanna og koma okkur í skólann. Það er eiginlega of snemmt fyrir hann að mæta fyrir kl 8 og Óli þarf ekki að mæta fyrr en kl 9 þannig að ég býst við því að ég taki bara hjólið í skólann á morgun og þeir feðgar fari svo seinna. Spáin er líka góð, sennilega um 12-15 stiga hiti í fyrramálið en verður upp undir 20 gráður um hádegi, heiðskýrt og 7m sek, verður varla betra.
