Eftirfarandi eru færslur í flokknum "samfélag"
Almennur borgari gerir grein fyrir atkvæði sínu
Það er búið að vera svolítið erfitt að vera Íslendingur síðustu vikur. Á margan hátt hefur maður glaðst yfir því að fá að kjósa í þessum blessuðu Icesave kosningum og fá einhverja möguleika á að grípa til varna eftir þetta hrun. Á hinn bóginn er maður hryggur yfir því að kosningarnar snúast að forminu til ekki um það hvort reikningurinn á að koma til okkar. Hins vegar snúast þær um það að mörgu leyti í hjarta og hugum fólks, þrátt fyrir að við viljum auðvitað að fólkið sem átti féð inni á reikningunum fái peningana sína til baka. Hins vegar er ég sannfærð um að ábyrgðin liggi annarsstaðar, bæði siðferðilega og lagalega (þrátt fyrir að innistæður innan landamæra Íslands hafi verið tryggðar að fullu).
Í þessum kosningum sagði ég feitt Nei, eins og þorri annarra kjósenda. Auðvitað var annað ekki hægt þar sem ég er í grundvallaratriðum á móti samningunum og menn segja betri samning bíða handan við hornið, sem hefði auðvitað ekki gerst ef málinu hefði ekki verið skotið til þjóðarinnar með þessum hætti.
Auðvitað á þetta sorglega mál að vera í höndum skilanefndar bankans en ekki ríkisvaldsins. Bretar og Hollendingar eiga að fá eignir bankans, hvers virði þeir geta sjálfir séð um að hámarka, og láta þar við sitja. Fróðir menn fullyrða núna 90% heimtur. Ábyrgðin og óvissan á ekki að sitja á herðum okkar eða framtíðarkynslóða.
Þjóðfundur
Í dag er Þjóðfundur haldinn í Laugardalshöllinni, sem hefur vonandi ekki farið framhjá neinum. Hérna eru 1500 gestir og um 300 sjálfboðaliðar. Ég ákvað að sjálfsögðu að reyna að taka þátt, þó ég hefði ekki fengið boðsbréf sem gestur, og er hérna stödd sem sjálfboðaliði. Fékk starf í bakvinnslu þannig að ég sit í tölvuverinu og slæ inn þær upplýsingar sem fólk á borðunum kemur frá sér. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með þessu, skipulagið er alveg ótrúlega gott, maður sér það best á því að það er allt ótrúlega smooth. Fyrir utan kannski svolítil bílastæðavandræði hérna fyrir utan í byrjun. Hérna eru allir ótrúlega jákvæðir og það er tilhlökkun yfir því hver útkoman verður úr þessum fundi.
Það er bein útsending á www.thjodfundur2009.is/straumur. Endilega kveikið á því og verið með í anda :)
ritstjórinn
Það hafa sennilega allir rætt þetta, fram og til baka. Ég hafði varla geð í að punkta niður mína skoðun og í raun hef ég ekki verið viss í þessu máli, sem margir hafa öskrað í nokkra daga yfir.
Það er þetta með Davíð Oddson og Morgunblaðið.
Í fyrsta lagi er náttúrulega afleitt, afspyrnu glatað og í raun stórskaðlegt að manneskja sem er svona nátengd hruninu (stýrði Seðlabankanum í gjaldþrot) sé að ritstýra einu helsta dagblaði landsins. Alveg sama hvort hún heiti Geir Haarde eða Ingibjörg Sólrún, Jón Ásgeir, Björgvin G, nú eða Davíð Odsson. Það á að vera algjörlega óháð manneskja sem setur blaðamönnum verkefni dagsins og þess vegna við þessar fréttir má eiginlega segja Mogginn RIP. Búið að afskrifa hann fjárhagslega en nú endanlega.
Nú kaupi ég ekki moggann en les (las) hann stundum og þá setur maður upp moggagleraugun, alveg eins og með fréttablaðið. Maður veit og gengur út frá því að blaðið hafi vissa afstöðu, t.d. gagnvart ESB eða kvótakerfinu. Kannski hefur þetta eitthvað með fordóma að gera, sbr. síðustu færslu. En maður gerir ráð fyrir því að það sem maður les sé ekki heilagur sannleikur heldur alltaf skoðanir. Vissulega eru til staðreyndir, en hvernig sagt er frá þeim ber alltaf vitni um afstöðu.
En það eru nokkrir punktar sem mér finnst í raun ágætt, eitt er að þetta var gert fyrir opnum tjöldum (takk æðislega, maður er ekki of góðu vanur svo það er ágætt að nefna það) og að það má koma með aðra fleti í umræðuna um IMF, ESB og Icesave heldur en hafa verið ráðandi. Það verður að segja hlutina eins og þeir eru; IMF verður að fara, ESB er ekki að fara að gerast og Icesave mun ekki vera greitt. Heimurinn endar ekki þar.
Þessi kall veit líka fullt af hlutum sem verða að koma í dagsljósið og ég býst við því að næsta árið verði tileinkað smáskömmtum af óreiðumannasögum. Þessi Davíð vs Jón Ásgeir er þreytt lumma en gmg ef það væri bara hægt að klára þennan slag og losa þjóðina undan svona rugli. Þeim báðum.
En við þurfum pepp. "Yes we can" ræður. Ungmennafélagsanda en ekki þessa fjandans flokkstrú þar sem fólk er hætt að hugsa, heldur bara með liði. Við þurfum stefnu og sýn úr Hugmyndaráðuneytinu sem við getum stillt kompásinn eftir. Núna róir hver í sína átt eða viljandi í öfuga, og sumir meira en aðrir.
Það er svolítið scary að hrunameistari Íslands ætli að stýra peppinu.
Hvað kemur okkur við?
Og nú að mergjuðu máli. Lögbann á umfjöllun í ríkismiðlinum, um mál sem er á allra vörum og í dreifingu til allra sem það vilja skoða. Haha! mér er dettur helst í hug að Sýslumaður vilji skerpa á umfjöllun um þetta mál því töfrasproti laganna virkar ekki í þetta sinn. (Ég er sko nýbúin að sjá nýjustu Harry Potter myndina þar sem slegist er við myrkraöflin og það er alveg merkilegt hvað hann er nálægt raunveruleikanum.)
Og hvað er það sem má ekki segja frá? Í stuttu máli er það lánabók Kaupþings sem birtist á wikileaks.org þar sem sagt er frá lánveitingum á síðustu dögum bankans áður en hann var tekinn yfir. Þar er sagt að að 10 stærstu skuldarar bankans eru allir tengdir bankanum sjálfum beint, eða í gegnum viðskiptafélaga, og þeir skuldi hvorki meira né minna en þrefalda þjóðarframleiðslu Íslands, 1500 milljarða. 1.500.000.000.000.
Í frétt Kristins Hrafnssonar í gær (ég sé yfirleitt aldrei fréttir nú til dags vegna anna í fjölskyldulífinu, en kíki stundum á netið seinnipart kvölds) er sagt frá því að lán Kaupþings til 11 fyrirtækja í Existu-hópnum, að Skiptum meðtöldum, séu upp á rúmlega 300 milljarða króna að núvirði. Bara þau lán eru tæpur helmingur af Icesave-skuldinni.
Auk þess kemur fram að Kaupþing lánaði félaginu 1998ehf, sem er í eigu Jóns Ásgeirs, til að kaupa rúmlega 95% hlut Baugs í Högum, þar sem auðséð var að Baugur væri að falla og þá myndi Jón Ásgeir missa mjólkurkúnna sína (Bónus). Lánið er kúlulán (bullet loan -sem þýðir engir vextir og aðeins ein greiðsla á gjalddaga -ef þú borgar það ekki geturðu alveg eins sett kúlu í hausinn á þér). Auk þess voru milljarðalán veitt til kaupa á einkaþotu og húsnæði í London.
Og hvað um lánið frá Seðlabankanum sem átti að bjarga Kaupþingi þegar Glitir og Landsbankinn voru fallnir?
Ef það hefur ekki verið augljóst allan tíman þá er það augljóst núna að það þurfti enga heimskreppu eða samdrátt í heiminum til að bankarnir kolféllu algjörlega og íslenskt samfélag með. Þeir sáu algjörlega um það, bankamennirnir, embættismennirnir og stjórnmálamennirnir sjálfir.
Og þetta vilja þeir ekki að við vitum, allt þetta siðlausa gambl sem við og börnin okkar komum til með að borga fyrir með einum eða öðrum hætti. Með niðurskurði, skattahækkunum og enn meiri niðurskurði. Þeir eru hræddir því þeir eru á leiðinni í grjótið.
Réttilega.
Fátækir, svangir, úthræktir og kaldir.
Er ekki hægt að gera samninga við brasilísk fangelsi um að þeir hýsi þetta lið.
Hvað er númerið hjá Interpol?
áríðandi skilaboð
Ég er búin að vera gríðarlega pirruð í dag og mér finnst agalegt að vera pirruð á einhverju sem ég hef ekki stjórn á sjálf. Maður kemst nánast í andnauð yfir svoleiðis pirringi.
Pirringurinn er ekki bara út af þessu fjalli sem okkur Íslendingum mun reynast ógerlegt að klífa, heldur út af moðhausunum sem rífast út af tittlingaskít, bara til að koma smá höggi á "andstæðinga sína" í öðrum flokkum.
Skilaboð til ykkar, fávitar:
Mér er svo algjörlega DURRUUUULLLUSAMA í hvaða helvítis flokki þið eruð kæru þingmenn, hundskist til að taka höndum saman, leggjast saman á árarnar, allir sem einn, og fokkings RÓA fyrir framtíð þessarar þjóðar!
There. I said it.
Nú get ég farið að vinna aftur.
icesave brjálæðið
Ég er brjáluð!
Ég á tvo unga drengi sem ég hamast við að ala rétt og fallega upp. Ég er Íslendingur í húð og hár og veit hvað fólk hefur þurft að genga í gegnum á Íslandi síðustu aldir. Amma mín sagði mér oft sögur af því m.a. þegar hún vaknaði í rúminu sínu með hárið frosið við vegginn í moldarkofanum, hvað myrkrið var stundum óbærilegt. Íslensk alþýða hefur drýgt hetjudáðir í gengum aldirnar og maður getur nánast sturlast yfir því hvað síðustu tvær, þrjár kynslóðir hafa rústað því sem þær hafa fengið í hendurnar.
Þetta er hin versta martröð.
Að setja ríkisábyrgð á Icesave innistæðurnar, þegar óvissan er ALGJÖR, er algjört brjálæði, föðurlandssvik, landráð - það er varla nógu sterkt orð.
Við erum að díla við þjóðir sem hafa reynslu í gegnum margar kynslóðir af því að kúga smáþjóðir, kreista allt sem þeir mögulega geta úr sínum nýlendum fyrir fólkið í sínu landi.
Auðvitað finn ég samt sem áður til með þeim einstaklingum sem áttu þessar innistæður, þetta var í mörgum tilvikum sparifé og það fólk var gabbað alveg jafn mikið og við hin.
En það sem er mikilvægast er að þetta var EINKAFYRIRTÆKI og samkvæmt íslenskum lögum er tryggingasjóður innistæðna EKKI MEÐ RÍKISÁBYRGÐ.
Ábyrgðin á fyrst og fremst að falla á eigendur bankans.
Frekar væri ég til í að ganga í gegnum nokkur ár með börnunum mínum í stífum gjaldeyrishöftum þar sem eingöngu lyf, olía og einstaka matvörur eru fluttar inn, fá mér kú og hænur og harka þetta af, heldur en að þurfa að borga af þessu í viðbót við allt annað. Þetta er ógjörningur!
Ég er með svo mikinn stein í maganum yfir gunguskap íslenskra ráðamanna, brjálæði fjárglæframanna og andvaraleysi fjölmiðlamanna að ég veit ekki hvað ég á til bragðs að taka.
En það minnsta sem ég get gert er að senda bréf. Til allra þingmanna. Ég fékk forskriftina senda í pósti og hvet þig til að lesa það, kópera, skrifa nafn þitt undir og senda á netfangalistann. Fyrirsögnina geturðu valið sjálf/ur.
Ektafiskur á Rás 1
Gústi "frændi" tók viðtal við Ella frænda í Ektafiski í morgun, hérna er hægt að hlusta.
Af hverju blogga þau ekki bara?

Ég heyrði í hádeginu í gær þegar Jóhannu forsætis og Steingrímur fjármála voru með blaðamannafund, þau sögðu að núna ætluðu þau að halda vikulega blaðamannafundi, til þess að halda almenningi upplýstum um það sem þau eru að gera. Gott og vel.
En af hverju blogga þau ekki bara? www.rikisstjornin.is er laust, það er hægt að setja upp ókeypis bloggkerfi og gera marga usera þannig að maður getur séð: "posted by Jóhanna forsætis", og svo geta allir kommentað til hennar og komið með sínar lausnir, beint í æð.
Öll þjóðin er búin að blogga eins og brjáluð síðustu vikur og það skilaði sér (ásamt öðru) í byltingu! Takið upp þráðinn gott fólk.
Svo töluðu þau um mannaflsfrekar framkvæmdir.. ætli blaðamannafundir séu kannski hluti af því? ;)
Væri þá ekki betra að senda blaðamennina í rannsóknarblaðamennsku í staðinn fyrir að senda þá á blaðamannafundi þó svo það sé jú mannaflsfrekt. Eða það er sennilega betur borgað fyrir að sendast um allan bæ en að sitja saman og hugsa.
Lausnin!
Árið 2009
Árið 2009 verður ár íslenskrar hönnunar, handverks, matargerðar, framleiðslu og þjónustu. Íslenskt er frábært, þó fyrr hefði verið. Ódýr innflutningur er að verða liðin tíð en hann hefur nánast gengið að íslenskri framleiðslu dauðri. Ég horfði á sögu Sambandsins um daginn á meðan ég hengdi upp þvottinn (multitasking sko) þar sem Akureyri kemur ekki lítið við sögu. Hugsjónin var göfug en þegar menn hættu að trúa á hana (eða menn sem tóku við höfðu ekki þessa tengingu) og vinna eftir henni fór allt á hliðina. Ótrúlegt að allar þessar verksmiðjur séu horfnar, klæðagerðir, skinnaiðnaður og ullarverksmiðjur. Um tíma unnu 800 manns í verksmiðjum Sambandsins. Mikið yrði ég glöð ef þetta lifnar við og þá ekki endilega undir gömlum merkjum heldur á nýjum forsendum. Hönnuðir þurfa á léttum iðnaði að halda til að þróa vörur og ég er handviss um að við getum gert svo ótrúlega margt nýtt. Sem dæmi á Emil nokkrar flíkur frá Janus, sem eru norsk ullarföt. Hvar eru þessi íslensku? Jú 66N eru með flíkur úr ullarflís en bæði þeir og Cintamani eru að framleiða erlendis. Væri ekki hægt að vera með ullar og prjónaverksmiðju sem prjónaði bara efni sem væri hægt að sauma úr?
Sjálf er ég að fletta bókinni "lærið að prjóna" frá 1992, og prjóniprjón bókin er á leiðinni og ætla að fara að prjóna buxur á Emil. Ég búin að fitja upp og komin með nokkrar umferðir. Þær verða brúnar úr blönduðu ullargarni og akrýl. Skal setja inn mynd eftir því sem líður á. Ef þetta tekst þá langar mig í ullarvesti og prjóna svo kannski ullarbleiubuxur á stráksa. Þá verður líka örugglega komið aftur nýtt ár.
Seinna: Danni kom að mér þegar ég sat við prjónana og spurði: "Ertu að prjóna skip?"
hehe, góð hugmynd!
Flokkað sem heimilið / samfélag / uppeldi /
3
Hvíta byltingin
Svona á að hjálpa námsmönnum erlendis!
Það á að hjálpa þeim á næsta ári! Passa örugglega að enginn fái neitt nema viðkomandi nái prófunum!
Heimska skriffinnsku fólk! Djöfull er maður að verða pirraður.
Að slá skjaldborg um Alþingi?
Fékk þetta sent, og finnst þetta snjallt. Ó ef ég væri bara ennþá að vinna í Austurstræti:
---
Við ætlum að "slá" skjaldborg utanum Alþingishúsið,
þar sem fólk helst í hendur og myndum hring utan um húsið og garðinn
helst marga hringi þannig að þingmenn þurfa að beygja sig undir hendur okkar til að komast inn og út.
Við meinum þeim ekki útgang en það verður erfitt fyrir þá að beygja sig:o)
Þetta eiga að vera friðsamleg mótmæli en ákveðin
Skilaboðin eru skýr
Við stöndum vörð um Lýðræðið
Við stöndum saman
Við eigum Alþingishúsið
Alþingismenn eiga að vinna fyrir okkur ekki gegn okkur
Við ráðum hverjir eiga að vinna þar - ekki þeir
Þeim er sagt upp en neita að hætta?
Klukkan 12:00 á miðvikudaginn nk. 12. nóvember
Þeir sem ætla að mæta - eru beðnir að skrá sig inn á skjalið
"Mótmæli" á miðvikudag. (Facebook)
Takk Færeyingar

Takk Færeyingar, fyrir höfðinglega og óeigingjarna aðstoð. Ég vil samt sem áður biðja ykkur að halda í peninginn ykkar þangað til spillta liðið er farið í steininn og við getum byrjað að byggja upp.
Nýir tímar á Akureyri
Litla fjölskyldan dreif sig út í stórhríðina í dag til að taka þátt í kröfugöngu. Yfirskriftin var Nýir tímar, rjúfum þögnina. Þrátt fyrir að gangan hafi ekki verið mikið auglýst (hvar er götupósteramenningin þegar maður þarf á henni að halda? eða unga menntaskólafólkið með eldmóðinn? - þegar ég var í M.A. var pólitíkin og þjóðmálin virkilega áberandi og það voru oft kennararnir sem kveiktu neistana) og veðrið var suddalega leiðinlegt, þá fannst mér mætingin vera nokkuð góð. Sennilega milli 50-100 manns. Sem er samt auðvitað sorglegt miðað við ástandið og hvernig menn eru að spá að það verði næstu mánuði.
Ég trúi á fólk og að fólk sé í hjarta sínu með í göngunni og taki undir þann málstað að það má ekki valta yfir okkur, en haldi því fram að mæting þess skili hvort sem er engu. Ég er samt ekki sammála því. Við verðum að láta sjá okkur, láta vita að við erum til og að okkur standi ekki á sama, þó það sé ekki nema bara til að standa og hlusta.
Fánarnir fannst mér sérstaklega skemmtilegir. Þeir voru útbúnir fyrir Akureyrarvöku fyrir skemmstu en eiga mjög vel við í svona göngu. Eldrauðir með gulum fíflum. Við höfum öll verið gerð að fíflum. Bylting fíflanna.
![]()
![]()
![]()
recycle!
Þegar við vorum úti í Danmörku flokkuðum við dagblaðapappír og pappa frá öðru rusli enda var blaðatunna úti hjá ruslatunnunum og lítið mál að taka þetta frá. Þegar við komum heim kom það mér skemmtilega á óvart hvað það er hægt að flokka ruslið betur hérna á skerinu.
Allt veltur þetta á því að móttökuaðilinn taki við þessu og flokki rétt. Núna fara allar umbúðir á þessu heimili í endurvinnsluna; mjólkurfernur og plastdallar, niðursuðudósir og plastpokar.
Mér finnst þetta sjálfsögð virðing við umhverfið og náttúruna, en líka ákveðin virðing við umbúðahönnuðinn því þegar maður þekkir hönnunarferlið frá hugmyndafræðinni að fjöldaframleiðslu þykir manni ótrúlega vænt um vöruna, í þessu tilfelli ómerkilegar umbúðir. Þegar maður er búinn að safna þessu saman í nokkra daga er alveg ótrúlegt hvað magnið er mikið og í raun hvað þetta er verðmætt hráefni.
Eins og stendur á síðunni hjá Gámafélaginu:
Pappírsflokkarnir eru pressaðir saman í stóra bagga sem fluttir eru í 40 feta gámum til Svíþjóðar til endurvinnslu. Úr pappírnum eru framleiddar ýmsar pappírsvörur s.s. salernispappír, eldhúspappír, ljósritunarpappír, dagblaðapappír, stílabækur, teiknipappír og margt fleira.
Plastefnin eru flokkuð og fara í endurvinnslu hjá plastmótun sem er að setja upp aðstöðu í Gufunesi. Mismunandi plasttegundir eru flokkaðar frá hver annarri og efnið síðan mulið og nýtt til plastframleiðslu á nýjan leik. Afurðir ú endurunnum plastumbúðum eru m.a. vegastikur, rör, girðingastaurar og fleira.
Málmarnir fara í brotajárn sem flutt er erlendis til endurvinnslu. Mikil orka sparast við endurvinnslu málma miðað við framleiðslu þeirra úr grunnefnum. Til að endurvinna ál þarf eingöngu um 5% þeirrar orku sem þarf að frumvinna ál.
Semsagt, verðmætur gjaldeyrir á þessum síðustu og verstu ;)
Ennþá erum við með þetta vel flokkað inni í horni í bílskúrnum en ég ákvað að panta endurvinnslutunnuna, sem er væntalega á leiðinni.
![]()
![]()
indefence.is
Síðunni hefur borist tilkynning:
Við getum ekki setið aðgerðarlaus lengur.
Að gefnu tilefni hafa sprottið upp óánægjuraddir vegna þeirrar meðferðar sem við höfum fengið hjá bresku ríkisstjórninni. Nú er tækifæri til þess að láta að sér kveða.
Íslenskur almenningur getur ekki setið undir því að vera brennimerktur hryðjuverkamenn til þess að þjóna pólitískum skammtímasjónarmiðum einstakra breskra stjórnmálamanna og styrkja samningsstöðu bresku ríkisstjórnarinnar. Ekki er nóg með að þetta hafi breytt grafalvarlegri stöðu í efnahagshrun, heldur hefur almenningsáliti í Bretlandi og utan þess verið snúið gegn íslensku þjóðinni, með þeim afleiðingum að viðskiptahöft breiðast út um Evrópu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Við verðum að láta rödd okkar heyrast þó fámenn séum, og dugir þá ekki annað en að allir taki undir.
Tölum beint til bresku þjóðarinnar, fáum hana á okkar band og hindrum saman frekari skaða. Stöndum saman og skrifum undir skilaboð frá íslensku þjóðinni og vinum hennar á www.indefence.is.
Fáum hryðjuverkastimplinum aflétt.
Vinsamlega láttu þetta berast - fáum alla með.
www.indefence.is
- -
Reyndar mætti benda á þetta líka, því það er nokkuð mikið til í að framsetningin á þessari undirskriftasöfnun er svolítið varasöm.
Grundvallaregla í ímyndarvinnu er að nota ekki þau orð sem maður vill ekki standa fyrir. Sá sem vill ekki vera talin hryðjuverkamaður á ekki að nota það orð. Hann á að nota það orð sem endurspeglar það sem hann vill standa fyrir.
Þetta er svipað og að tala við börn, sonur minn er hættur að skilja orðið EKKI.. sbr. "ekki skella hurðinni", þá heyrir hann bara SKELLA HURÐINNI. Þá er betra að segja "lokaðu rólega".
lesið og horfið
Er það nokkuð táknrænt að fyrir akkúrat ári síðan horfðum við á (heimildar/áróðurs) myndina Zeitgeist. Hún er búin að vera mér ofarlega í huga síðan.
Hún fjallar í megindráttum um það hvernig ástandið í nútímanum er komið til, og á hvaða braut við erum til framtíðar. Þar er tekið t.d. inn trúarbrögð, árásin á WTC, bankakerfið og aðferðir gráðugra manna til að koma á alheimsríkisstjórn. Þar kemur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem veifa okkur útréttri "hjálparhönd" þessa daga, mikið við sögu.
Í ljósi atburða síðustu vikna getur maður ekki annað en verið með hnút í maganum yfir því hvað mun gerast næstu daga. Endilega lesið þetta líka og kíkið á myndbandið í leiðinni: EKKI IMF TAKK!
Dabbi Kóngur
- Þegar þú ert kominn ofan í holu, hættu að moka!
fjármálamógúlarnir
alltaf gaman að horfa svolítið afturábak.. lærdómsríkt... vonandi
krónu quote
Þetta er eiginlega með því betra sem ég hef heyrt:
"Að hrósa íslensku krónunni fyrir að vera sveigjanleg,
er eins og að hrósa teygju fyrir sama hlut
rétt í þann mund er hún slær þig í andlitið."
Framtíðin sem byggir á fortíðinni
Ég vaknaði eldsnemma í býtið, allt var með kyrrum kjörum hérna heima en ég gat ekki sofnað aftur. Tónleikarnir í gærkvöldi voru í fersku minni, ég fylgdist með þeim á netinu. Tónlistin var frábær, stemmningin greinilega skemmtileg en mér fannst samt pínulítið vanta uppá að þau segðu milli laga hver áherslan í baráttunni væri. Kannski var nægur áróður á staðnum sem skilaði sér ekki yfir netið, og líklega voru þessi 30.000 manns nokkuð viss á málstaðnum.
En árla morguns fór ég eitthvað að hugsa, og setti saman þessa færslu:
Þetta fólk er óforskammað og á að taka pokann sinn!!

Nánar: http://prakkarinn.blog.is/blog/prakkarinn/entry/576312/
Hlustið á Andra!
Er að hlusta á síðdegisútvarpið á Rás 2 síðan í gær, þar sem verið er að tala við Andra Snæ Magnason (ca 1/3 inn í þáttinn). Hann er að tala um að stóriðja mun ekki bjarga okkur frá kreppunni sem allir sjá framundan heldur hvað það er galið að eyða allri orku suðvesturhornsins til að þjóna stóriðjunni, og í raun ekki nýta auðlindina sem sjálfbæra heldur ganga á hana og frá henni.
Auk þess talar hann um hvað það er virkilega óþingeyskt, engin reisn yfir því, að fórna svæðum eins og Gljástykki til þess að búa til örfá verksmiðjustörf. Ef það er reiknað út hvað verður í raun og veru eftir í þjóðarbúinu frá þessum verksmiðjum, gróðinn er aldrei okkar, verður það svolítið skuggalegt.. þeir borga lánin sem orkufyrirtækin tóku til að byggja fyrir þá virkjanir, og veita kannski 2000 manns vinnu (öll álver yfir allt landið) en annars höfum við enga stjórn á þessu.
Eins hefur verið áhugavert að lesa kommentin við þessa færslu, mikið af góðum upplýsingum sem er þarft að velta fyrir sér.
En allavega, hlustið á Andra, það er þægilegt þegar maður situr hvort sem er við tölvuna og er að vinna. Mjög afkastagefandi líka þar sem púlsinn fer alveg á fullt, í mér amk.
flugmiðaverðs-strategía
Við gældum við það í uþb hálftíma í gær hvort við Danni ættum kannski bara að hoppa með Óla norður yfir helgina, hann ætlaði hvort sem er að taka bílinn til Köben (já, miðað við allt þá var það ódýrara og tók styttri tíma en lestin, þar sem hann verður með farþega á bakaleiðinni). Þetta yrði þá ótrúlega auðvelt ferðalag, beint til Akureyrar. Við tékkuðum á verðinu hjá IcelandExpress og miðinn fyrir okkur Danna var á samtals 82þús. Okkur fannst það heldur mikið fyrir bara tvo daga svo við kældum drauminn, enda bara nokkrar vikur þar til við komum heim og strákurinn kannski ekki alveg nógu hress í maganum í gær (en er það í dag).
Þegar Óli tékkaði sig svo inn í hádeginu spurði hann hvort vélin væri að verða full og daman í afgreiðslunni sagði honum að það væri langt í það.. 128 sæti laus!
Ég botna ekkert í því, af hverju menn reyna ekki að selja sætin ódýrari þegar það er svona rosalega stutt í flugið þegar svona mikið er laust. Ég meina, vélin er að fara hvort sem er. Af hverju er ekki reynt að selja restina af sætunum á slikk síðustu 3 daga fyrir brottför, svona eins og hopp miðarnir í innanlandsfluginu? Ég held nefnilega að við hefðum pottþétt skellt okkur með ef við hefðum geta gert góðan díl.
Hugsanlega væri líka hægt að fá fleiri spontant ferðamenn í bæinn.
En lending er áætluð núna kl 14 á AEY.
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / samfélag /
1
Athugasemdir við Bitruvirkjun
Mig langar til þess að vekja athygli á baráttu fyrir varðveislu Hengilssvæðisins, en þar á að reisa hina umdeildu Bitruvirkjun, til að afla orku fyrir álver í Helguvík:
"Hengilssvæðið hefur lengi verið ein helsta útivistarparadís íbúa höfuðborgarsvæðisins og er skilgreint sem útivistarsvæði á náttúruminjaskrá. Það er ekki síst mikilvægt bakland bæjafélagsins Hveragerði, bæði sem útivistarsvæði íbúa og fyrir ímynd bæjarins sem heilsu- og ferðamannabæjar. Hengilssvæðið er eitt örfárra á suðvesturhorninu þar sem hægt er að ganga um í friði og ró og njóta ótrúlega fjölbreyttrar náttúrufegurðar.
Sveitarfélagið Ölfus hefur auglýst breytingu á aðalskipulagi svæðisins sem felst í að útivistarsvæði er breytt í iðnaðarsvæði. Fresturinn til að gera athugasemdir til sveitarfélagsins rennur út 13. maí nk."
Leiðbeiningar um það hvernig á að senda athugasemdir má finna á www.hengill.nu.
Það er mikilvægt að allir sem hafa einhvern áhuga á náttúru landsins, hvort sem þeir búa á svæðinu eða ekki, taki sér 5 mínútur, prenti út blaðið og sendi í pósti til Sveitarfélagsins.
Með því að smella á posterið, sem var sent út til allra íbúa í Hveragerði, Selfossi og Ölfus, má finna margar áhugaverðar greinar um útivistarsvæðið og virkjunina.
1. maí og grafískar mótmælagöngur
Í dag er 1. maí. Frídagur verkalýðsins. Í dag fáum við frí til þess að minnast þess fólks sem stóð í baráttunni fyrir réttindum sem okkur finnst sjálfsögð í dag. Í dag eigum við að minnast þess að við stöndum ennþá í þessari baráttu, hvern einasta dag; fyrir réttindum okkar á vinnumarkaði, til náms, til orlofs og tíma með börnunum og fjölskyldunni. Þetta er kannski aðeins meira en upphaflega var haft í huga með verkalýðsdeginum en mér finnst hollt að tileinka deginum þessu líka til að minnast þess að við fengum þetta ekki upp í hendurnar baráttulaust, þetta er ekki sjálfsagður hlutur og gæti hæglega verið tekið af okkur aftur með einu pennastriki.
Þó ég hafi ekki verið mikill þátttakandi í mótmælagöngum undanfarið þá hefur starfið sem ég hef valið mér, grafísk hönnun - eða "myndræn framsetning/miðlun upplýsinga" í raun svo margt með þennan dag að gera. Fólk er að gera sig sýnilegt á þann hátt sem það getur, með því að ganga saman í fylkingu og hittast á ákveðnum miðpunkti, og blása þrótt hvert í annað. Þá skiptir líka máli að allir tali sama boðskapinn, skilji um hvað er verið að ræða og tali saman í eina átt.
Þannig hafa baráttugöngur kvenna og samkynhneigðra verið einna sterkustu kröfugöngunum því málefnin og markmiðin hafa verið skýr.
Undanfarna daga hafa umönnunarstéttir verið í kjarabaráttu hérna í Danmörku. Hjúkrunarfræðingar (Sygeplejerske) hafa staðið fyrir mótmælagöngum og ég hef tekið eftir því hvað þær hafa verið áhrifamiklar á myndrænan hátt. Semsagt, vel hönnuð ganga, þar sem ákveðnar reglur eru varðandi liti, klæðnað, slagorð og markmið, hefur sterkari áhrif á samstöðu heildarinnar.
Hjúkrunarfræðingar í mótmælum í þarsíðustu viku. Það þarf enginn að segja mér að það hafi ekki hönnuður komið þarna nálægt og lagt línurnar.
sbr. 1. Maí göngu í dag;
Einu skiltin sem ég sé á myndinni eru merki verkalýðs- og starfsgreinafélaga sem eru yfirleitt skammstafanir, sem ég hef yfirleitt ekki hugmynd um hvað standa fyrir, hvað þá að ég þekki tilgang þess og sögu eða baráttuna bak þeirra.
Þar sem Íslendingar eru oft haldnir ákveðinni hönnunarfælni (mér finnst álitið oft vera: "dýrt óþarfa tilgerðarbruðl" sbr. ummæli Steingríms J. fyrir síðustu kosningar; "Við þurfum enga hönnun" ) má segja að það þurfi ekki hönnuð til, bara ákveðinn hugsunarhátt og skipulag (sem er kjarninn í því sem hönnun gengur útá og þar eru fagmenn svona yfirleitt að verki).
En það held ég að sé einmitt vandamálið. Í þessi tvö ár sem ég er búin að búa í Danmörku hef ég tekið eftir (og þá aðallega í gegnum fjölmiðla) hvað Danir eru mun betri en við í því að koma sér að kjarnanum (haha.. það má til dæmis sjá á þessari löngu færslu að ég er Íslendingur!)
Mér hefur oft fundist að Íslendingar geri ráð fyrir að aðrir viti það sama og þeir, að menn lesi hugsanir eins og þeir séu ennþá að hlera sveitasímann, og þessvegna finnist eitthvað hallærislegt við að endurtaka sig og útskýra kjarnann í máli sínu.
Þegar markmiðin eru ekki skilgreind komast skilaboðin illa eða ekki til skila, sem veldur því að maður fær ekki þann stuðning sem maður annars fengi, og ef maður fær ekki stuðning þá missir maður móðinn og gefst fyrr upp á baráttunni.
Þess vegna held ég að það sem verkalýðsbaráttan þurfi núna sé gott hönnunarteymi.
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / samfélag /
3
Leirhnjúkur og Gljástykki
Ég les alltaf bloggið hans Ómars því þar finnst mér vera eitt stærsta debat um virkjanaframkvæmdirnar sem eru í fullum gangi. Hann er sjálfur svo gríðarlega fróður um náttúru Íslands og ég hnaut um eitt komment við færslu um ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnar um að of seint sé að framkvæma eðlilegt mat á umhverfisáhrifum vegna álvers í Helguvík. Ég ætla að leyfa mér að líma hérna fyrir neðan komment frá Ómari um Gljástykki og Leirhnjúk til geymslu og áminningar:
Mig langar í rafmagnsbíl
Ég er búin að láta mig dreyma um Toyota Prius sem er með tvinnvél, þeas rafmagnsvél og bensínvél. Ég er samt ekki mikil bílamanneskja, dæmi bíla yfirleitt á kvenlega mátann.. þ.e. eftir lit, mýkt sæta eða fjölda hólfa. Umhverfisvitund er líka að koma inn í þetta kvenlega mat því ég hef einhvernveginn á tilfinningunni að konur vilji umfram allt umhverfisvæna bíla.
En það er nú bara tilfinning.
Um daginn brunuðum við niður þjóðveg E45 sem liggur í gegnum Jótland niður til Þýskalands. Bensínverðið er reyndar ekki búið að vera mjög hagstætt, um 10.6 dkk en þennan morgun hittum við á norsku XY stöðina í góðu skapi og verðið var 9.3dkk. Einhverjar 20 isk sveiflur á líterinn, sem gerist bara á Íslandi þegar helvíti frýs.
Það var á leiðinni heim sem ég hugsaði um straumlínulagaða dökksilfraða Priusinn, og sérstaklega um að rafmagnsvélin myndi sennilega duga skammt því hún leyfir afar takmarkaðan hraða sem miðar við innanbæjarakstur.
En hvernig verður þetta þá í framtíðinni í olíuskortinum, það vilja jú allir vera á sínum eigin bíl og geta ferðast frá A til B án fyrirhafnar, hvernig fer maður þá á milli bæja eða jafnvel landshluta?
Jú, einmitt í lest. Bílalest, svona rétt eins og ferju.
Snilld að geta keyrt inn í lestina á litla rafmagnssmábílnum sínum, stillt á ákvörðunarstað, sett bílinn í hleðslu og horft á dvd úr sætinu sínu eða fengið sér lúr. Svo þegar maður er kominn opnast hlerinn og maður keyrir út.
En djö.. held ég að það væri fitandi líf.
þessi fjandans forarpytts króna!!
Hún ISK er búin að hrynja í morgun eins og mý í rafmagnsljósi. Sú danska er komin upp í 14 kr íslenskar en var fyrir nokkrum mánuðum yfirleitt nokkuð stöðugt milli 11 og 12. Þá var leigan okkar (sem er 6600 dkk) í um 75.000 en í núgildi dagsins er leigan komin í 92.400 ! Ansi góð sveifla þar á bæ. :/
Það er náttúrulega ekki hægt að fóta sig á fréttavefjunum þessa dagana fyrir fjármálafréttum og það er mjög skiljanlegt. Hvernig í ósköpunum ætli sé að standa í inn- og útflutningi (reyndar sennilega betra, en sveiflur eru vondar) þegar ástandið er svona ?
Ég er ekkert sérstaklega að halda því fram að við eigum að taka upp Evru, finnst miklu frekar að við ættum að tengja krónuna við Evru eins og Danirnir gera, það myndi stöðva sveiflurnar þar sem fjármálapeyjarnir hætta að þessu gambli. Ásamt því að gera tollasamninga við ESB þannig að við getum flutt inn vörur á ódýrari hátt.. samkeppnin innanlands myndi fá samkeppni frá netverslunum.
Ef tengingin virkar ekki af einhverjum ástæðum (var það ekki Argentína sem tengdi sig við USD án þess að forsendurnar innanlands héldu í með frekar óskemmtilegum afleiðingum) þá ætti að vera auðveldara að "aftengja" heldur en að sitja uppi með evru sem við getum ekki notað.
Eða jafnvel, eins og ég sá einhversstaðar fleygt fram, að vekja upp hið skandinavíska myndbandalag frá 19. öld og búa til hina sameiginlegu norrænu krónu!
Pant hanna eina víkingamynt!
Annars veit ég ekkert um hagfræði og forðast að rökræða um fjármál. Ég held bara áfram að borga mína dönsku leigu af íslensku námslánunum og fylgist af áfergju með blaðrinu í fréttunum án þess að nokkur geri nokkuð af viti.
Fiðrildaáhrifin
Mikið finnst mér þetta falleg skilaboð:
Fiðrildið hefur tilvísun í alþjóðlega baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og hefur í gegnum aldirnar verið álitin táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. Fiðrildið stendur fyrir vonina og styrkinn í mýktinni. Fiðrildaáhrif vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft áhrif á stór veðurkerfi hinumegin á hnettinum.
--
Þegar konur eru heilbrigðar, menntaðar og njóta frelsis til þess að nýta þau tækifæri sem lífið hefur uppá að bjóða, þrífast börn og ríki blómstra, og konur og börn (samfélagið)
uppskera margfalt.
- Kofi Annan
Mikið held ég að heimurinn verði betri ef virðing fyrir konum og þeirra gildum yrðu í hávegum höfð, hvort sem það eru karlar eða konur sem bera þau uppi.
ódýrt að misþyrma konu...
Virkilega þörf lesning: Hringbrautargengið: Það er ódýrt að misþyrma konu. Það þarf eitthvað að gerast!
yesterdays news
Mikið var það ánægjulegt fyrir Árna MM að framsókn í borginni hafi tekið af honum ljóskastarann, þetta þýðir að dómaraskandallinn hans er orðinn "yesterdays news" og komið í skúffuna merkt "geymt og sennilega örugglega líklega gleymt" ásamt samráði matvöruverslana, olíufélaga og kreditkortafyrirtækja og öðrum dægurskandölum sem þjóðin lætur ganga yfir sig.
Það er náttúrulega ansi hentugt að framkvæmdavaldið geti valið sér dómara, þvert á ráðleggingar til þess skipaðrar nefndar, á svæði þar sem virkjanir hafa og eiga líklega eftir að verða umdeildar sem og jarðaupptökur ríkisins.
Það yrði nú aðeins öðruvísi upplitið á okkur ef við kæmumst að því að þýski þjálfarinn hefði sjálfur mátt velja þýskan dómara til að dæma handboltaleikinn okkar gegn Þjóðverjum, þó svo dómarinn sé sjálfur drengur góður og hafi staðið sig vel í öðrum leikjum. Það er sama hvernig leikurinn hefði þróast, við værum búin að tapa honum frá upphafi þó ekki nema bara móralskt séð.
Bruninn í Stærra-Árskógi
Það voru virkilega sorglegar fréttir að heiman um helgina þegar fjósið í Stærra-Árskógi brann. Maður getur ekki gert sér í hugarlund hvað það hefur verið átakanlegt að allt sem maður hefur reynt að byggja upp og setja líf og sál í, hverfa fyrir framan mann. Og öll þessi dýr sem eru, eins og hann sagði, vinir manns.
Þess vegna fannst mér fallegt að sjá að það væri búið að stofna styrktarreikning fyrir Gugga, jafnvel þó tryggingarnar bæti tjónið að einhverju leyti, þá er þetta svo gríðarlegt að það er styrkur í hverri krónu.
RÚV segir: "Reikningurinn er í Sparisjóði Norðlendinga á nafni Guðmundar Jónssonar Bónda og er númerið 520040"
Kennitalan er 1501723069 og bankinn er nr 1145, en mér hefur ómögulega tekist að millifæra núna í kvöld.. nánari upplýsingar óskast.
íbúðamál
Á næstu mánuðum, eða eftir áramót förum við að spá í húsnæðismálunum aftur. Eins og glöggir muna eftir þá seldum við íbúðina okkar í borginni áður en við fluttum út, og stefnan er tekin á að flytja til Akureyrar næsta sumar, vegna þess einfaldlega að þar er best að búa (- og við getum talað dönsku á sunnudögum ;)
Það er náttúrulega allt að breytast í þessum málum akkúrat núna út af lánabreytingum og maður veit ekkert hvernig landslagið verður næsta sumar, en það hlýtur eitthvað að láta undan. Það hjálpar okkur auðvitað að húsnæðisverðið á Akureyri er ekkert í líkingu við ruglið sem er í gangi í RVK og nóg framboð virðist vera á því húsnæði eins og við erum að hugsa um (raðhús, ca 4-5 herb). Það er ansi erfitt fyrir venjulegar manneskjur að borga af 30m+ láni á yfir 6% vöxtum, eins og við hefðum þurft í borginni.
Við erum líka að vinna í því að fá íslensku nágranna okkar hérna í Danmörku að flytja líka til Ak, núna er ein fjölskylda er búin að kaupa þar og flytur í febrúar, ég er nokkuð viss um að við náum annarri ;)
En það verður áhugavert að sjá hvernig þróunin verður því ég held að þetta ástand eigi eftir að breytast mikið en á hvaða veg.. veit ég ekki.
Tenglar:
- Vextir íbúðalána - Ágúst H. Bjarnason
- Uppbygging og spennandi tímar - grein eftir Hermann Jón Tómasson, formann bæjarráðs á Akureyri
- Íbúðalánin sem danski bankinn okkar býður
fólkið á milli fjallanna
Var að lesa mjög áhugaverðan pistil um Háskólann á Akureyri á fína vefnum Hugsandi. Þar talar greinarhöfundur um "fólkið á milli fjallanna" og gott ef ég fékk ekki smá heimþrá, eða fjallaþrá öllu heldur. Danmörk er nefnilega flatt land, nema þegar maður hjólar.
virkjanahraðlestin
Um daginn fékk ég tölvupóst varðandi þau virkjanaáform sem eru á áætlun:
Zeitgeist the movie
Við horfðum á myndina Zeitgeist í gærkvöldi. Við erum náttúrulega búin að horfa mikið á allskonar heimildarmyndir um samsæriskenningar en þessi tók alveg toppinn. Ég held að ég verði aldrei söm.
REI
Maður er gjörsamlega orðlaus yfir fréttum úr gömlu borginni af mönnum sem kunna ekki að fara með vald sitt. Ég er búin að sitja yfir fréttum af þessu síðan fyrir helgi (eins og maður á að gera þegar maður er að læra... ) og lesa ótal bloggsíður um þetta mál. Ég nenni ekki að fara að útlista það yfir hverju mér ofbýður því sennilega er öllum eins innanbrjósts, mig langar bara að geyma nokkra tengla hérna..
1. Yfirlit frá Vísi um störf borgarstjóra
2. Stefán Jón Hafstein fyrrum borgarfulltrúi um Reykjavik Energy Invest
3. Mikil auðlind í orku kosningastjóranna
4. Undraland íslenskra stjórnmála
5. Mynd af hitamælinum í helvíti sem var langt undir frostmarki - Gísli Marteinn neitaði nefnilega að koma í viðtal! - man ekki hvar ég sá það, en það var snilld.
Menn halda að þeir komist upp með þetta vegna þess að fólk sé almennt heimskt og minnislaust og alveg sama því almenningur nennir ekki að mótmæla.
Þögn sé sama og samþykki.
Það er búið að endurtaka þessar klausur of oft, að við erum farin að trúa þeim.
En, almenningur er ekki vitlaus, og hvað þá minnislaus (því það er auðvelt að fletta upp í gömlum bloggfærslum). Fólki ofbýður þetta hvert og eitt og það sér í gegnum rykið! Ef þessar klausur eru endurteknar nógu oft, vonandi förum við þá að trúa þeim.
Öld sjálfsins
Síðustu kvöld höfum við verið að horfa á þættina "Century of the Self" sem voru gerðir og sýndir hjá BBC fyrir nokkrum árum. Núna er hægt að horfa á þá á google video. Það er eiginlega ótrúlegt að við höfum ekki horft á þá fyrr, umfjöllunarefnið er geysilega áhugavert.
Í raun er verið að fjalla um hvernig nútíma neyslusamfélag hefur þróast á síðustu öld, og hvernig stórfyrirtæki hafa notað sálfræði og sálgreiningu (kenningar Freuds) til að greina og stjórna neyslumynstri fólks.
Þetta er mun áhugaverðara en það kannski hljómar og opnar augu manns fyrir ýmsu sem maður kannski vissi að hluta en pældi ekki mikið í.
Síðasti þátturinn fjallar um hina óvægu einstaklingshyggju sem vaknaði á tímum Reagan og Thatcher og sér hreinlega ekki fyrir endann á.
Þættirnir voru sennilega sýndir fyrir 11. september 2001 - daginn sem 21. öldin byrjaði - þannig að guðisélof er ekki verið að fjalla um war on terror. Reyndar var hin fræga tilvitnun í Roosevelt "There is nothing to fear but fear itself" sýnd þarna, í öðru samhengi, en á alveg einstaklega ótrúlega vel við samfélagið eins og það er keyrt áfram í dag.
Næst ætla ég að reyna að að finna "End of Suburbia" sem er kanadísk heimildarmynd um áhrif aukinnar eftirspurnar og minnkandi framboðs á eldsneyti og kolefnisorkugjöfum á hið daglega líf (í vestrænum heimi).
Já, svona er þetta þegar maður er ekki með almennilega sjónvarpsáskrift (fyrir utan skandinavískar ríkisstöðvar og hina ítölsku bráðskemmtilegu Rai Uno beint frá Berlusconi) og tímabil hins auðmelta dægurefnis frá Ameríku (desperate housewives, greys anatomy og lost) er ekki hafið.
í útilegu...
Það er ferðalagahugur í okkur. Við fórum um helgina upp til Skagen, 2.5 klst akstur norður eftir Jótlandi, og gistum í tjaldi í eina nótt. Við fundum dásamlegt tjaldstæði í fallegu rjóðri rétt við ströndina og ef hitinn hefði verið 10 gráðum meiri væri ég ekki komin heim ennþá. Þetta var nokkurn vegin góð íslensk útilega, flíspeysu- og cupholderstólaútilega. Helga Möller ómaði í hausnum á mér allan tíman með langið "í útilegu".. aldrei að vita nema ég kaupi lagið á tonlist.is áður en við förum í næstu útilegu og setji inn á ipodinn, því ég verslaði mér útvarpssendi á ipodinn um daginn þannig að geti hlustað á ipodinn í gegnum útvarpið í bílnum (og hlaðið ipodinn í leiðinni).
Við erum nefnilega að horfa á hvernig viðrar fyrir tjaldferð í Þýskalandi í vikunni, en við nennum ekki alveg að vera í miklu votviðri, auk þess þyrftum við líka að finna eitthvað skemmtilegt að skoða eða gera þarna niðurfrá... það er ekki víst að sonur minni leyfi mér að sitja og lesa Potter allan daginn þó ég væri alveg til í það sjálf.
Við erum líka búin að panta okkur ferð til Barcelona um miðan ágúst þar sem við ætlum að skoða verk Gaudis í nokkra daga. Það er nefnilega flogið beint frá Árósum til Barcelona (reyndar til flugvallarins í Girana sem er í 1.5 tíma akstri frá borginni). Vonandi að við fáum svolitla sumarsól þar og eins og eina freknu eftir sumarið.
Vonandi fáum við líka gesti um verslunarmannahelgina ;)
ég blogga til að gleyma
Ég er að reyna að ná úr mér bræðinni, ég fór út áðan með ipodinn og skokkaði einn hring með Broken Boy Soldier með Raconteurs í eyrunum. Ég held ég hafi aldrei skokkað jafn ákveðið og það var fínasta hreinsun. Núna held ég að ég hætti að velta mér upp úr þessu, eins mikið og þetta sökkar, og einbeiti mér að því hvað það er margt fallegt til í heiminum.
Svo syngur sonur minn líka svo fallega með Latabæ:
sorg á mæðradegi
Ég hefði getað kennt syni mínum mörg ljót orð í morgun þar sem hann sat í sakleysi sínu og horfði á Bangsímon og vini hans í sjónvarpinu á meðan ég kveikti á tölvunni, en þar sem það er mæðradagurinn í dag ákvað ég að halda í hlutverk mitt sem góð móðir og hvísla þessi sótsvörtu blótsyrði sem voru efst í huga mér. Ég ákvað líka að halda aftur af mér þá og segja ekki meira á blogginu en ég gæti staðið undir.
Ég á ekki til orð um þessa þjóð. Engin falleg orð amk. Íslenska þjóðin studdi þessa ríkisstjórn jafnvel þó hún hafi:
- sett Íslendinga á lista þeirra sem studdu stríðið í Írak, án þess að spyrja nokkurn. Stríð sem var sett af stað af græðginni einni saman og hefur valdið dauða og þjáningu þúsunda saklausra barna og fullorðinna og sett allt á endann í heiminum.
- Komið af stað óðaverðbólgu og himinháum vöxtum með breytingum á íbúðalánum og byggingu Kárahnjúkavirkjun, sem er stærsta umhverfisslys Íslandssögunnar.
- verið og sé á góðri leið með að gefa vinum sínum auðlindir þjóðarinnar, hverjir haldið þið að komi til með að kaupa Landsvirkjun, þegar (ekki ef) hún verður seld á smáaura.. þeir sem hafa mestan hag af hagstæðu rafmagnsverði: Alcoa! Og þeir spyrja ekki landeigendur eða borga þeim skaðabætur.. þeir bara drekkja þeim líka ef þeir eru með einhverja stæla.
Auðlindir þjóðarinnar er líka vatnið, sem við erum svo stolt af. Og með vatnalögunum, sem taka gildi í haust, er útséð að lækir og ár sem renna um landið mun verða verslunarvara og þar með eign örfárra, þvert á samþykktir Sameinuðu þjóðanna sem segja að grunnvatn megi ekki vera markaðsvara.
- úthýst skólatannlækningum þannig að börnin í landinu eru að brenna upp í munninum. Hvað varð um flúorskolunina á morgnana eins og í den tid? Tannlæknirinn minn sagði áður en ég flutti út að ég væri að fara með son minn á mun betri stað, því yfirleitt væri hann að eiga við börn á hans aldri þar sem önnur hver tönn er skemmd, eitthvað sem gerðist ekki hérna áður fyrr. Hann hafði rétt fyrir sér því einn af fyrstu bréfunum sem sonur minn fékk var boð í heimsókn til tannlæknis.
- þó hún hafi ofurtrú á álvæðingu í stað þess að skoða aðrar lausnir til að lyfta undir með landsbyggðinni (lægri flutningskostnað, minni skatta á fyrirtæki, nýsköpunarstyrkir og markaðsráðgjöf) eða hreinlega breyta kvótakerfinu sem er valdur af þessum vanda....
... og finnist það bara allt í lagi að selja alla þá orku sem við eigum til álbræðslu sem skilur engin verðmæti eða hráefni til að vinna með eftir sig í samfélaginu og fer með allan hagnaðinn úr landi. Auk þess sem virkjanirnar skilja eftir sig gríðarlega eyðileggingu bæði í landi og sjó. Ég hugsa til þess með hryllingi hvaða Kárahnjúkavirkjun á eftir að gera miðunum fyrir austan land þar sem Pabbi minn er að fiska af miklum dugnaði, eins og Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur talar um í bókinni um Þjórsárver.
Ég skil ekki í fólki í þessu landi, að það sjái ekki mynstrið? Að fólk hugsi ekki á hvaða leið við erum að fara, finnist að Ísland sé alveg nógu stórt til hýsa allar þessar virkjanir.. að því finnist bara allt í lagi að borga 20% vexti, að við hugsum ekki um þá sem hafa orðið undir í samfélaginu.
Landið er klofið. Það verður því áfram stríð á Íslandi, barátta nýju kynslóðarinnar gegn þeirri gömlu, baráttu fyrir réttlátu samfélagi vs spillingunni, fjölbreyttu atvinnulífi með góðum tækifærum til mennta vs verksmiðjuvæðingu, milli upplýstra einstaklinga vs. þeirra sem loka eyrunum fyrir staðreyndum.
Það skásta í stöðunni núna væri að D listi og Samfylking myndi stjórn en þá þyrfti Samfylkingin heldur betur að halda í sitt fagra Ísland, nýja atvinnulíf og unga Ísland. En
miðað við hvernig Framsóknarmenn hafa hagað sér eftir kosningar í gegnum tíðina (hugsið Björn Ingi í borginni, sem þurfti að ráða utanaðkomandi menn í nefndir) þá er þeim alveg sama þó þeir hafi tapað nokkrum ráðherrum og verið rassskelltir. Ég spái því að þeir sjái engan sóma í því að bakka sig út heldur lýsi yfir miklum varnarsigri miðað við skoðanakannanir og haldi áfram í ruglinu. Ekkert stopp á spillingunni. Og sjöllum er alveg sama því þeir vita að þeir láta hvað best að stjórn miðað við það sem er í boði.
Sem móðir þá get ég bara ekki glaðst í dag, en þakka samt fyrir blómin frá syni mínum. Framtíðin er hans en ég segi það satt, ég hlakka ekki til að flytja heim.
tenglar:
- Verksmiðjuvæðing: 150 árum of seint
- Fortíðarhyggja eða framtíðarsýn
sumarið og verkefni
Ég skilaði verkefninu í morgun, þar með er bara eitt hópverkefni eftir eins og ég sagði í síðustu færslu. Það er hins vegar allt komast á skrið í sumarvinnunni. Ég sem hélt að ég gæti verið í fríi í sumar og notið dönsku veðurblíðunnar.. það ætlar eitthvað að frestast. Veðurblíðan fór líka eitthvert, lýsi eftir henni hér með. Ég er semsagt með þrjá kúnna þessa stundina, tvo á Íslandi (Reykjavík og á landsbyggðinni) og einn í Ameríku. Það er mjög áhugavert verkefni sem ég segi frá strax og ég get. Óli verður sömuleiðis hérna heima að vinna, í fjarvinnuverkefnum fyrir sinn gamla vinnustað. Það sýnir sig að það skiptir ekki öllu máli hvort maður er hér í Danmörku eða á Hauganesi, svo lengi sem nettengingin er nógu hröð. Það er hreint ótrúlegt, eins og Lára bendir réttilega á, hvað það hefur verið mikill seinagangur í því að nettengja dreifbýlið.
En nú vantar okkur bara au-pair!.. anyone?
Ár hinna glötuðu tækifæra
ég rakst á þessa góðu grein eftir Andra Snæ og mikið vildi ég óska þess að þið læsuð hana við gott tækifæri í vikunni:
Óbreytt stóriðjustefna mun gera okkur jafn raddlaus í umhverfismálum eins og Íraksstríðið í friðarmálum.“
og aðra góða grein má finna á vef Víkurfrétta:
kosninga...blaaa..
Ég hefði ekki geta sagt það betur en birtist hér í grein eftir Stefán Jónsson, þjóðleikhússtjóra.
Við þurfum nefnilega að fara að drífa okkur niður í bæ til að kjósa, ég held að við þurfum nefnilega sjálf að sleikja frímerki undir kjörseðilinn og senda í kjördæmið okkar (og já, það verður hið konunglega Frikka frímerki! ;)
Og hvað á þá að kjósa.. ó men, ég veit það ekki. Eftir að ég las Draumalandið (ennþá heilaþvegin) snemma á síðasta ári þá ákvað ég að lemja því fast inn í hausinn á mér að kjósa ekkert annað en VG í næstu kosningum, annað væri bara vitleysa og minnisleysi. Svo kom Íslandshreyfingin sem átti að höfða til áskrifenda Sjálfstæðisflokksins en hún gerir það bara ekki, því miður. Það er svo margt við D listann sem fær fólk til að kjósa hann annað en að hann er "til hægri". Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að skilgreina sig sem "The Ísland" og þess vegna verður hann alltaf stærstur því hann höfðar til þjóðernishyggjunnar á því tungumáli sem Íslendingar skilja en geta ekki skilgreint. Og allir hinir flokkarnir verða þá óhjákvæmilega eitthvað útlenskt og Íslendingar eru eitthvað svo óttablandnir við það sem er útlenskt, ekki út af rasisma alls ekki, heldur af því að Ísland er bara svo langt í burtu, við heyrum aldrei hávaðann í hinum. Fyrir þá sem þekkja til erlendis (öðruvísi en að fara í viðskipta- eða verslunarferð) þeir vita að fólk er allsstaðar eins og við eigum ekki að vera að óttast það. Við eigum öll fjölskyldur, viljum börnunum okkar allt það besta, viljum eiga okkar rými og tíma til að gera það sem við viljum gera. Quality of life. ***
Ég sé það einmitt ekki fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn myndi bjóða formönnum íhalds- eða frjálshyggjuflokka frá öðrum löndum á landsfundinn sinn eins og Samfylkingin gerði með Monu Sahlin og Helle Thorning-Schmidt. Mér finnst frábært að þær hafi komið, mikilvægt að eiga þessi samskipti við þær merku konur og þeirra innlegg var mjög þarft og gott mál inn í umræðuna, en það er bara eitthvað svo einstaklega óíslenskt að gera svona. Hinn venjulegi íslendingur segir ekki "ó-vá, merkilegar konur", heldur fer fyrst og fremst að hugsa um hvað það var leiðinlegt í dönskutímum og hvað sænskar myndir eru eitthvað svo boring.
Held ég. Svona er maður grunnur. En hvað veit ég. Kannski ekki.
Ef ég hugsa um íslenska fánann eins fallegur og hann er, þá finnst mér líka eitthvað eðlilegra að tengja hann við Sjálfstæðisflokkinn heldur en Samfylkinguna eða VG, þó það ætti alls ekki að vera þannig. Kannski er það bara þannig í hausnum á mér. Líka ef ég hugsa um kjörklefann þá er einhvernveginn eðlilegra að tjaldið sé í bláum lit (til að róa fólk niður væntanlega) af því það er meira íslenskt heldur en í rauðum eða grænum lit. Ég man reyndar ekki hvernig það er, vona að það sé hvítt, en ég man eftir þessari umræðu í skólanum um að kjörklefatjaldið hafi einhverntíman verið dökkblátt og það fór nett fyrir brjóstið á rauðhjörtuðu kennurnum mínum.
En einmitt þess vegna batt ég svolítið miklar vonir við Íslandshreyfinguna, að Ómar myndi ná til Íslendinga sem hafa Ísland í hjarta og æðum sér. Ísland er land þitt og allt það, en það virðist ekki vera að gerast. Stefnuskráin höfðar samt til mín, fólkið er örugglega allt hið vænsta, ég allavega þekki Jakob Frímann bara af góðu síðan ég vann í Bankastrætinu á sama stað og hann, en þetta hefur allt gengið frekar klaufalega fyrir sig, enda engin furða þegar tíminn er naumur, allir að bíða og í raun kraftaverk að þetta hafi gengið svona langt á engu fé og stuttum tíma. Mér fannst alltaf það hefði verið réttast af Ómari að gerast verndardýrlingur yfir Fagra Íslandi Samfylkingarinnar og verja það plagg með kjafti og klóm. Þá hefði orkan hans Ómars farið í að skrifa og miðla til okkar um hvað væri hægt að gera í þessu dásamlega fallega landi í stað þess að vera í öllum smámálunum sem fylgja svona framboði.
En aðal markmið Íslandshreyfingarinnar var að ná í grænu atkvæðin hjá Sjálfstæðisflokknum þá sýnist mér á öllu að það muni ekki gerast, þrátt fyrir góðan vilja.
Til dæmis skiptir myndmálið roohosalega miklu máli í því sambandi. Til dæmis munurinn á vefsíðum Sjálfstæðisflokksins og Íslandshreyfingarinnar þá er "Í" með útskýringu á merkinu sínu á forsíðunni, fín mynd og fín hugmynd en hún reynir á mann, maður þarf svolítið að stoppa við og pæla. "D" er hins vegar með fólk á forsíðunni, svona "fólk eins og mig og þig". Alvöru Íslendinga með yfirdrátt og í 66°N úlpu sem nær alltaf að redda hlutunum undir sterkri vernd pabba gamla sem á alltaf smá suðusúkkulaði í nesti. Pælið í því þegar þið kíkið á síðu Samfylkingarinnar (og reloadið til að fá mismunandi myndir), sem er með óskilgreinanlegt landslag, vissulega íslenskt en maður tengir ekkert meira, og jú líka tvenn pör af augum sem horfa ekki á mann heldur framhjá manni eða hörfa undan.
VG eru reyndar komnir með fólk á síðuna sína sem horfir á mann, en þeir eru líka búnir að vera í uppsveiflu skv. könnunum. Ef maður á að vera eitthvað að minnast á framsókn þá sé ég aðallega einhverja rollu vera að fljúga á stein (það mætti halda að markhópurinn þeirra væri aðallega fólk undi 18 -án kosningarétts!), fréttir um hvað allir hinir eru ömurlegir.. og gamla Búnaðarbankamerkið í "exbé útfærslu" nema að græni kallinn er að ganga í vitlausa átt, til fortíðar en ekki áfram til framtíðar. Hahaha..
Frjálslyndi flokkurinn nær hvergi augnsambandi á síðunni sinni, sama hvað maður reloadar oft, enda mundi ég ekki einusinni hvaða bókstaf þeir eru með og þurfti að leita í google að þeim.. segir sennilega meira um mig en þá.
Æji ég veit það ekki, það besta fyrir Ísland væri að fá ferska vinda í andlitið sem opna augun og fara að hugsa um heildarmyndina í öllum málum, ekki bara umhverfismálum og sjá hvað við erum að afreka og hvað við getum afrekað ótrúlega góða hluti. Mér er í raun alveg sama hvaðan góðir hlutir koma.
Og hvað á maður þá að kjósa?
ps. ástæðan fyrir þessari langloku er sú að ég er heima og á að vera að skrifa verkefni en ég sogaðist inn í þetta í staðinn fyrir í ísskápinn. En nú er ég búin að skrifa svo mikið að ég er orðin svöng...
og fyrst þú ert búinn að lesa alla leið hingað þá munar þig ekkert um að renna yfir greinina hans Stefáns sem ég linkaði í efst, hún er miklu styttri og skemmtilegri ;)
og pps. hvernig væri að það væri BANNAÐ AÐ TALA UM STEFNU ANNARRA FLOKKA EN SÍNS SJÁLFS í síðustu vikunni fyrir kosningar?
Fordómar og nýsköpun á Íslandi
Á síðustu önn lásum við svolítið í menningarfræði (cultural studies) í samhengi við markhópagreiningu (target group analysis). Menning er mjög vítt hugtak, sem og menningarhópar sem skiptast alls ekki eingöngu eftir kynþætti eða trúarbrögðum heldur er ákveðin flokkun á öllum okkar athöfnum, áhugamálum og skoðunum.
Þetta er ákveðið tæki sem er notað til þess að greina hvað fólk, sem kaupir einhverja X vöru, hefur áhuga á og hvernig er þá hægt að nálgast það á mismunandi hátt.
Hluti af umfjölluninni fór í að ræða um fordóma. Fordómar eru stórt vandamál milli fólks almennt og menningarheima. Ef maður reynir að skilgreina þá mætti segja að fordómar séu vanþekking og virðingarleysi, og birtast í hræðslu, sleggjudómum og því miður stundum ofbeldi. Orðið "fordómar" útskýrir í raun að verið er að dæma fyrirfram, án þess að hugsa um rök eða ástæður.
loftlagsbreytingar
Í gær kom mjög góð grein eftir Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur in á Vefritið, með yfirskriftinni "Stóra loftlagsbreytingasvindlið". Áhugaverð lesning, sérstaklega þar sem báðar kvikmyndirnar eru búnar að vera ofarlega í huga mér.
- Auðvitað eiga Vesturlandabúar að taka forystu í notkun á endurnýtanlegum orkugjöfum. Hvort sem koltvísýringur veldur hækkandi hitastigi eða ekki er lífrænt eldsneyti auðlind sem gengur til þurrðar - fyrr en síðar.
...
Stórkostlegar fjárhæðir eru lagðar í vandamál sem ekki er vitað hvort sé vandamál og þá hversu umfangsmikið, og oft á vitlausum forsendum. Á meðan falla önnur stór umhverfismál í skuggann, eins og t.d. vatnsskortur og ágangur á auðlindir.
Sáttmáli um framtíð Íslands
1. Við höfum kjark til að byggja upp fjölbreytt og lifandi samfélag á Íslandi þar sem hugvit og sköpunargleði einstaklinga fær að njóta sín þeim sjálfum og öðrum til heilla.
2. Við sýnum komandi kynslóðum virðingu með því að láta lögfesta áætlanir um náttúruvernd áður en nokkuð frekar er aðhafst í orkuvinnslu.
3. Við öxlum ábyrgð á tímum viðsjárverðra loftslagsbreytinga í heiminum með því að fylgja alþjóðlegum skuldbindingum um losun gróðurhúsalofttegunda.
Það sem fólki, þá sérstaklega búsettu á landsbyggðinni, vantar í staðinn eru hugmyndir eða lausnir sem það getur unnið úr. Flestir eru að bíða eftir pakkalausn með slaufu eins og álverin hafa verið sett fram sem en þegar pakkinn er opnaður er hann ekki mjög kræsilegur.
Mér finnst ég samt vera umflotin hugmyndum, og hef verið að melta það með mér hvort ég eigi að búa til hugmyndavef þar sem fólk getur skráð inn hugmyndir sem það hefur fengið en hefur ekki áhuga eða kost á að framkvæma.
Pæling.
En byrjið allavega á því að lesa og undirrita sáttmálann lesendur góðir þar sem ég er ódugleg við að senda út póst til að minna á það.
"The Great Global Warming Swindle"
Við horfðum á myndina "The Great Global Warming Swindle" á google video í gær og ég er nú svolítið eftir mig, verð ég að segja, þar sem Inconvenient Truth er ennþá í fersku minni.
Ég hvet reyndar alla til að sjá þessa mynd, sem var frumsýnd fyrir stuttu (8. mars 2007) á BBC, til að fá aðra hlið á málum hnattrænnar hlýnunar.
Í þessari mynd eru nokkrir vísindamenn að segja frá því, í stuttu máli, að þeirra niðurstöður bendi til þess að maðurinn eigi ekki sök á hlýnun loftlagsins með gegndarlausum koltvísýringsútblæstri, heldur stjórni sólin og skýjafar í lofthjúpnum þessu alfarið. Mannanna CO2 útblástur sé bara tittlingaskítur miðað við kraft sólarinnar og í raun og veru sé sú tenging milli hlýnunar andrúmslofts og magns CO2 tilkomið vegna þess að CO2 uppgufun í náttúrunni aukist þegar yfirborð jarðar og andrúmsloftið hitnar, en ekki öfugt.
Þeir hrekja grundvallartilgátur Al Gores svo tekið er eftir, og koma með rök fyrir því að gróðurhúsavandinn sé bara enn ein leiðin til að stýra ríkisfjármálum og halda almenningi nógu skelfdum til þess að gúddera bruðlið. Þeir segja þessa stefnu halda heilli heimsálfu, Afríku, í gíslingu þar sem Afríkubúar fái ekki leyfi til að nota sína náttúrulegu orkugjafa, kol og olíu, til að lýsa húsin sín og elda mat, heldur er gert að nota rándýra orkugjafa, sólarrafhlöður, sem við hér á vesturlöndum tímum ekki einusinni að nota.
Jahá.
Þegar ég byrjaði að horfa á myndina var ég ákaflega skeptísk því maður hefur það á tilfinningunni að þeir sem gagnrýni loftlagsbreytingar af mannavöldum séu á bandi stórfyrirtækja sem kaupi þær niðurstöður sem þeim hentar, en þessir vísindamenn sverja fyrir það allir sem einn að hafa nokkuð að gera með slíkt. Hvort maður trúir því er svo annað mál. En hverju og hverjum á maður þá að trúa? Er það þá bara lögmálið "allt er best í hófi" sem gildir?
Og ef þetta er svona, þá er allt tal um mengunarkvóta afskaplega hlægilegt. Einnig það að Íslendingar ætli sér að "bjarga heiminum" með því að nota hreina orku til að knýja álver. Eina spurningin er hvort maður vilji mengunina í bakgarðinum sínum eða einhvers annars.
Að síðustu er líka þessi vantrú á vísindin, sem okkar helsta tæki til að rannsaka heiminn ef við lítum ekki á þau gagnrýnum augum.
Vísindi, peningar og stjórnmál er ekki góður kokteill.
x2007
Maður þarf ekki að vera langt í burtu til að sjá að það eru kosningar í nánd á Íslandi. Það verður áhugavert og líka mjög auðvelt að fylgjast með baráttunni úr fjarlægð því að hún fer að miklu leyti fram á netinu. Í fyrsta skipti núna er bloggið orðið áhrifamikið tól í íslenskum stjórnmálum og eiginlega undarlegt að það hafi ekki gerst fyrr, ég allavega kvartaði yfir því í apríl 2003.
Hinn almenni bloggari, sem ættu að vera allir sem sitja kvartandi í eldhúskróknum heima hjá sér, getur líka haft töluverð áhrif. Það gerðist í Svíþjóð á síðasta ári, þegar nýkjörin sænska ríkisstjórnin lenti í mikilli krísu eftir smá rannsóknarvinnu eins bloggara, þannig að viðskiptaráðherrann sagði af sér átta dögum eftir að hún tók við og menningarmálaráðherrann var undir smásjánni í nokkrar vikur þar á eftir.
Annars hef ég ekki glóru um það hvað ég á að kjósa. Ég var lengi skráð í sjálfstæðisflokkinn, eða eftir að ég var á lista xD og ÓHÁÐRA fyrir norðan í sveitastjórnarkosningunum 1997. Ég veit eiginlega ekki af hverju ég samþykkti að vera þar, og tók í raun engan þátt í því þar sem ég var í prófum í MA á þeim tíma, en einhverra hluta vegna fór ég að fá fréttabréf og boðskort í prófkjör. Eftir að ég las Draumalandið ákvað ég að ég skyldi kjósa VG í næstu kosningum, og hringdi upp í háaleiti og afþakkaði pent að nafn mitt og adressa væri á lista hjá þeim, enda hefði ég aldrei skráð mig sjálf í flokkinn. Hins vegar tek ég eftir því núna að langflestir í fréttaveitunni minni er Samfylkingarfólk en sjálf bíð ég spennt eftir því hvað "Íslandsflokkurinn" kemur til með að færa á næstu dögum. Mætti segja að ég sé gjörsamlega áttavillt, og er örugglega ekki ein um.
Eiginlega er maður orðinn dauðleiður á þessum flokkum og öllu þessu karpi og tvískinnungshætti og vildi óska að fólk færi að koma sér að kjarnanum.
markaðsfræði 101 - how do you like iceland?
Það hefur mikið verið rætt um ímynd Íslands síðustu daga, sérstaklega eftir að Simon Anholt talaði á Viðskiptaþingi um daginn, og sagði að ímynd landsins væri ekki nægjanlega sterk.
Ég veit ekki hvort eitthvað er í gangi í framhaldi af þessari ráðstefnu en ég bíð spennt eftir viðbrögðum, áætlun eða einhverju slíku á því hvernig hægt sé að styrkja ímyndina eða hvort það á ekki að gera neitt. Það er ákvörðun í sjálfu sér.
Eins og sönnum Íslendingi er tamt, þá nota ég hvert tækifæri til að finna út hvað öðrum finnst um land og þjóð, ég ræði við félaga mína hérna í alþjóðlegu deildinni í skólanum og reyni að finna einhvern takt eða mynstur, tilfinningu fyrir því hvað er Ísland, jafnvel þó viðmælendur mínir hafi aldrei komið hingað. Sjálf hef ég líka ákveðna tilfinningu fyrir landinu eftir að hafa búið þar og ferðast um það þvert og endilangt, og með því að búa hérna úti þá fær maður að horfa á landið úr fjarlægð og við það opnast ákveðnar gáttir.
Hef heyrt það áður og tek undir að það er hverjum Íslendingi nauðsynlegt að búa í útlöndum í svona eins og eitt ár eða svo.
markaðsfræði 101 - ímynd
Í markaðsfræði höfum við svolítið verið að fjalla um ímynd. Ég hef mikinn áhuga á þessu viðfangsefni aðallega eftir að ég var að vinna hjá mixa (nú pipar) þar sem við unnum mikið með fyrirtækjaímynd (Corporate Identity) en ímynd er hægt að heimfæra á alla hluti, bæði einstaklinga, samtök, vörur sem og heilu löndin.
Í markaðsfræðitímanum hef ég alltaf verið með Ísland sem útgangspunkt í hausnum á mér, líklega af því þetta er svo mikið í umræðunni þessa dagana heima (allavega eftir því sem ég tek eftir); Vörumerkið Ísland, Framtíðarlandið (sem fjallar um hvernig viljum við vera og hvað getum við gert til að láta það verða að veruleika), Viðskiptaþing 2007 og svo mætti áfram telja.
Mig langar aðeins til að rifja upp þessi grundvallarhugtök sem við vorum að skoða í markaðsfræðitíma fyrir nokkru og hvað er betra en bloggið sitt þegar maður er að rifja upp glósurnar sínar og fá kannski einhvern til að leiðrétta sig ef maður fer með fleypur.
Ísland er líka ágætis útgangspunktur.
Flokkað sem hönnun / samfélag / skólinn /
0
umhugsunarvert
Gunnar Hersveinn á mjög góða grein í nýja tölublaði Framtíðarlandsins
Lýðræði felst ekki í meiri þjónustu heldur í virkri þátttöku borgarana. Fólk er of góðu vant í þjónustusamfélaginu – það sem þarf að taka við er samfélag sem ævinlega virkir borgarana. Fjölbreytt samfélag snýst um að byggja upp marga máttarstólpa sem reistir eru af hugsjón um fjölmenningu. Reynslan sýnir að þar sem ólík menning blandast í góðum vilja, þar gerist eitthvað nýtt og óvænt.
"loksins loksins"
nýr bloggari.. kíkið á hann.
á kosningavetri
Miðað við fréttirnar að heiman þá fer varla milli mála að það eru kosningar eftir nokkra mánuði. Ég var að velta því fyrir mér hvernig við högum okkur við þessar kosningar því við þurfum jú að kjósa utankjörfundar þar sem við höfum lögheimili erlendis og var ekki viss hvaða kjördæmi við tilheyrum. Ég komst semsagt að því að við tilheyrum enn því kjördæmi sem við fluttum úr, eða Reykjavík-suður. Ég býst nú fastlega við því að það verði settir upp kjörstaðir hérna í Árósum, þar sem það er þvílíkur fjöldi af Íslendingum hér í námi.
Hvað maður á að kjósa er svo annað mál.
Á morgun verður fundur hjá Framtíðarlandinu og þá verður kosning meðal félagsmanna hvort það eigi að fara í framboð. Ég veit að það er gremja og óþolinmæði í mönnum, en hvort það sé rétt að bæta við enn einum flokknum veit ég ekki. Fulltrúar hans gætu reyndar gengt stóru hlutverki í framboðsumræðunni þar sem þeir vekja athygli á þeim málstað sem félagið/framboðið stendur fyrir - sem er nb ekki eingöngu náttúruvernd heldur, og ekki síður, breytt atvinnustefna á landinu.
Fólk virðist almennt vera blint á tækifærin sem landið hefur og trúir á töfralausnir. Ef ekki álver, þá hvað? Og þetta Hvað á að vera ein stór lausn, einn pakki. Herbalife frekar en að hreyfa sig.
Það var mikið talað um þetta áður en virkjunin fyrir austan var til en ekkert kom. Auðvitað.
Pæling; hvernig væri atvinnulífið á austurlandi ef þeir peningar sem fóru í steypu á hálendinu hefðu farið í nýsköpun í atvinnulífinu, frumkvöðlamenntun og hugmyndasköpun, lægri gjöldum, niðurgreiðslu á flutningskostnaði, aðgengi að markaðsráðgjöf osfr. Vissulega meiri fyrirhöfn sem þarf að hafa en nær örugglega hægt að fá fjölbreytilegra og skemmtilegra samfélag út úr því.
En það sem fólki vantar yfirleitt eru hugmyndir (vantar ekki einusinni atvinnu!). Og út af þessu úrræðaleysi eru landsmenn komnir með svimandi verðbólgu með síhækkandi greiðslum af íbúðarlánum og neyslulánum (sem reyndar eiga ekki að vera til!).
Aðrir selja bara og stinga af til útlanda.
Þeir mega vita hvað okkur finnst
Þeir mega vita hvað okkur finnst: haestirettur@haestirettur.is
high export potential
Í markaðsfræðitíma í gær vorum við að fjalla um Experience Economy og í því sambandi fjölluðum við um danska markaðinn og einn helsti kostur hans væri high export potential. Ég staldraði aðeins við í hausnum á mér og fór að sjá fyrir mér allan fiskinn og álið, gullið og olíuna en nei. Þarna er verið að tala um að helstu tækifærin felist í hönnun, hugviti, tísku, arkitektúr, menntun og "user driven innovation". Ekkert ál. Ekkert stál.
Þó að Danirnir hafi unnið okkur um daginn þá getum við nú samt horft aðeins til þeirra, er það ekki?
strætó- og hjólamenning
Það var sterkur leikur hjá Akureyrarbæ að hafa strætóinn ókeypis. Sparnaðurinn er nær örugglega meiri en kostnaðurinn, fyrir utan að það er miklu skemmtilegra fyrir menningarlífið í bænum að hafa strætóinn fullan af allskonar fólki (líka fólki sem á bíla) heldur en hálftóma eða bara með rónum eins og í borg óttans.
Hérna í Danmörku er verið að tala um að borga fólki (í formi skattaafsláttar) að hjóla í vinnuna, nokkrar krónur per kílómeter. Það bæði myndi létta á umferðinni, minnka mengun og auka heilbrigði fólks. En þó að þetta ætti að vera nóg til að fá menn af stað þá þurfa menn líka einhverja áþreifanlega gulrót. Og skattaafsláttur er svo sannarlega eitthvað til að kveikja í fólki hérna.
Mér skildist að framkvæmdin ætti að vera þannig að atvinnuveitandinn skili inn vottorði um ákveðinn kílómetrafjölda hjá viðkomandi starfsmanni, en það hlýtur samt að vera hægt að fá einhverja græju á hjólið sem nemur kílómetrafjöldann, svona rétt eins og nike og ipod samstarfið, þar sem hlaupaskórnir senda upplýsingarnar um skokkið þitt inn í ipodinn og svo þegar þú tengir hann við tölvuna þína þá sendir hann þær upplýsingar inn á vef skokkhópsins þíns - sem gæti þá verið dreifður um allan heim.
Ég sé fyrir mér að næsta samstarf Apple verði við Gary Fisher. Það kemur ekkert annað til greina, enda langflottasti hjólagaurinn.
Það gæti verið græja sem heitir iFish ;)
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / samfélag / tækni /
0
húsfrúarleikurinn
Það er mikið rætt í fjölmiðlum á íslandi um hátt matarverð þessa dagana. Sjálfri hlakkaði mig til áður en við fluttum að fara út í búð og kaupa nokkra poka af ferskum mat fyrir nánast engan pening, en sá draumur rættist varla, eða kannski var hann of háfleygur.
Flokkað sem danmörk / heimilið / matur / samfélag /
3
frétt, mbl
Þetta er (m)álið: Mbl.is - Frétt - Ný gagnamiðstöð á Íslandi gæti skapað 200 störf , svona allavega á meðan sæstrengir eru ekki að bila.
Mbl.is - Frétt - Norðurpóllinn íslaus fyrir 2040
Þessi frétt er týpísk.. Mbl.is - Frétt - Norðurpóllinn íslaus fyrir 2040 - og einu afleiðingarnar sem fréttamenn á mogganum geta fundið er að þá verði greiðfært fyrir siglingar yfir pólinn í framtíðinn.. jibbíjey.. ..eða þannig!!
Afleiðingarnar verða hrikalegar.
gleðileg jól.
Blaðið vs TV2 news
Það er svolítið skondið að horfa á nýju dönsku fréttastöðina: TV2 News, þeir eru með sömu grafísku elementin og ákaflega svipað fótaletur og Blaðið sem er gefið út í Reykjavíkinni (fann ekki link á blaðið).
Flokkað sem danmörk / hönnun / samfélag /
2
framhald á: akureyri, best í heimi?
Það er gaman að fá þessa umræðu af stað og það væri gaman að halda henni áfram, ég setti inn nýtt álit á færsluna: Akureyri - best í heimi. Í staðin fyrir að setja þetta nýja álit inn sem nýja færslu þá væri bara betra að halda áfram þar sem frá var horfið.
Ég vildi bara svona benda á það. Annars ekkert merkilegt títt. Engar fréttir eru góðar fréttir.. right?
akureyri - best í heimi
Ég las þetta í morgun:Frétt - Segir koma á óvart hversu menntunarstig á Eyjafjarðarsvæðinu sé lágt - og svo las Óli þetta líka í skólanum og sendi mér í pósti í morgun.. greinilega bæði að hugsa það sama.
Ég hef aldrei botnað í þessu með "þekkt láglaunasvæði". Ég hef heyrt í fólki sætta sig við lægri laun á Akureyri en í Reykjavík vegna þess að það "sé á láglaunasvæði". Algjört rugl.
Ég bjó á Akureyri öll mín menntaskólaár. Eftir að hafa búið í Reykjavík í alltof mörg ár þar á eftir og verandi í Danmörku; "paradís fjölskyldufólksins" núna finn ég alveg hvað mig langar mikið til að búa á Akureyri í framtíðinni. Fjölskyldan hefur auðvitað mikil áhrif á þá löngun og sérstaklega að maður stofnaði sjálfur fjölskyldu því maður vill að börnin manns fái að upplifa það sama og maður gerði sjálfur.
Vissulega er margt sem þarf að laga og það á við um alla staði. En það er gott að vita hvað þarf að laga, hafa trúnna á því að það sé hægt að laga það og láta það ekki vaxa sér í augum heldur bara að framkvæma.
Þó svo framtíðarplanið okkar sé ekki fullmótað og maður sér ekki beint í hendi sér að það sé endilega staða sem við, tölvunarfræðimasterinn og vefhönnuðurinn, getum gengið inn í, þá snýst lífið líka um að skapa sín eigin tækifæri.
aðalfundur 2006
Í kvöld var haldinn aðalfundur pjúsarafélagins að mér fjarstaddri. Pjúsarar láta ekki vegalengdir á sig fá og í raun var ég viðstödd fundinn lengi vel, þar til tæknilegu unaðssemdirnar gáfu sig.
Ýmislegt var samþykkt, ýmis mál komu upp en félagsmenn eru sammála að fundurinn hafi verið innihaldsríkur og afkastamikill, sérstaklega á eftirréttina.
í beinni frá Nordica
Er að hlusta á ráðstefnu framtíðarlandsins. Ákaflega fróðlegt.
svona er samkeppni á bensínmarkaði
Það er frekar skondin bensínstefna hérna. Í morgun þegar ég keyrði af stað með Danna sá ég að bensínljósið var farið að loga. Við reynum yfirleitt að versla bensín á laugardagsmorgnum því þá er það ódýrast. En af því ljósið var farið að loga kíkti ég á verðið á skiltinu hjá HydroTexaco sem er hérna niðri á horni og það var 9.19kr. Af því ég var að flýta mér í morgun ákvað ég að stoppa ekki, enda var ljósið bara nýbyrjað að loga. Þegar ég kom svo heim uppúr hádegi var verðið komið í 9.29 ddk (106,84 isk), svo að ég ákvað að fara ekki alveg strax. Svo núna áðan þegar ég sótti Danna var bensínljósið að verða aðeins frekara þannig að ég kíkti á skiltið og viti menn; 8.56 ddk (98.44 isk) - sem þýðir 8.4 isk lækkun á einu eftirmiðdegi.
Maður getur varla séð fyrir sér að íslensku olíufélögin lækki verð án þess að senda frá sér fréttatilkynningu með tveggja daga fyrirvara, hvað þá að lækka svona mikið án þess að það sé röð út á götu.
Skemmtilegt. Annars breytist aksturinn okkar talsvert í næstu viku þegar Danni byrjar hjá nýrri dagmömmu, sem býr í stórkostlega girnilegri hjólafjarlægð frá okkur.
Viðbót: Í morgun fyrir kl 9 þegar við skutluðum Danna var verðið ennþá 8.56 þannig að við hugsuðum okkur gott til glóðarinnar og ætluðum að taka bensín í bakaleiðinni - en þá - viti menn, verðið orðið 9.56 dkk (110 isk) ! :/
Flokkað sem danmörk / samfélag / ýmislegt /
2
landið mitt
Mér er ekki rótt, ég hugsa um það allan daginn hvað allt er að fara til andskotans á Íslandinu góða.
Þeim sem stjórna landinu svona æðislega vel finnst það meira virði að skjóta verðlausa hvali heldur en að reikna út hvað það kostar í raun að halda úti þessum veiðum áður en það var farið af stað í skyndi.
Ég er samt enginn sérstakur hvalafriðunarsinni, miklu frekar heilbrigðar-skynsemis-sinni. Af hverju að eyðileggja allt sem var búið að byggja upp? Hvernig fittar þetta inn í heildarmyndina?
Áhugaverður pistill á vísi í þessu samhengi, hver er raunverulega ástæðan fyrir þessarri ákvörðun.
Það hefði verið áhugavert að sjá hversu margir þeirra sem stjórna landinu svona vel kæmu til með að mæta á Haustþingið "Ísland á teikniborðinu", sem fer fram næstu helgi, en því miður kemst ég ekki þangað til að verða vitni að því. Það hefði verið í anda haustþingsins að podcasta því þannig að allir geti fylgst með, en líklega þarf ég að fylgjast með fréttum eftirá.
Líklega þarf ég að fara að útbúa sérstakt blogg undir þetta raus um pólitík eða samfélagsmál eða hvað maður vill kalla það, til að hlífa fjölskyldunni við þessu.
Ég bara kem því ekki út úr hausnum á mér að fólk skuli taka svona vitlausar ákvarðanir um það sem skiptir svona miklu máli.




