Eftirfarandi eru færslur í flokknum "netið"
Hvað kemur okkur við?
Og nú að mergjuðu máli. Lögbann á umfjöllun í ríkismiðlinum, um mál sem er á allra vörum og í dreifingu til allra sem það vilja skoða. Haha! mér er dettur helst í hug að Sýslumaður vilji skerpa á umfjöllun um þetta mál því töfrasproti laganna virkar ekki í þetta sinn. (Ég er sko nýbúin að sjá nýjustu Harry Potter myndina þar sem slegist er við myrkraöflin og það er alveg merkilegt hvað hann er nálægt raunveruleikanum.)
Og hvað er það sem má ekki segja frá? Í stuttu máli er það lánabók Kaupþings sem birtist á wikileaks.org þar sem sagt er frá lánveitingum á síðustu dögum bankans áður en hann var tekinn yfir. Þar er sagt að að 10 stærstu skuldarar bankans eru allir tengdir bankanum sjálfum beint, eða í gegnum viðskiptafélaga, og þeir skuldi hvorki meira né minna en þrefalda þjóðarframleiðslu Íslands, 1500 milljarða. 1.500.000.000.000.
Í frétt Kristins Hrafnssonar í gær (ég sé yfirleitt aldrei fréttir nú til dags vegna anna í fjölskyldulífinu, en kíki stundum á netið seinnipart kvölds) er sagt frá því að lán Kaupþings til 11 fyrirtækja í Existu-hópnum, að Skiptum meðtöldum, séu upp á rúmlega 300 milljarða króna að núvirði. Bara þau lán eru tæpur helmingur af Icesave-skuldinni.
Auk þess kemur fram að Kaupþing lánaði félaginu 1998ehf, sem er í eigu Jóns Ásgeirs, til að kaupa rúmlega 95% hlut Baugs í Högum, þar sem auðséð var að Baugur væri að falla og þá myndi Jón Ásgeir missa mjólkurkúnna sína (Bónus). Lánið er kúlulán (bullet loan -sem þýðir engir vextir og aðeins ein greiðsla á gjalddaga -ef þú borgar það ekki geturðu alveg eins sett kúlu í hausinn á þér). Auk þess voru milljarðalán veitt til kaupa á einkaþotu og húsnæði í London.
Og hvað um lánið frá Seðlabankanum sem átti að bjarga Kaupþingi þegar Glitir og Landsbankinn voru fallnir?
Ef það hefur ekki verið augljóst allan tíman þá er það augljóst núna að það þurfti enga heimskreppu eða samdrátt í heiminum til að bankarnir kolféllu algjörlega og íslenskt samfélag með. Þeir sáu algjörlega um það, bankamennirnir, embættismennirnir og stjórnmálamennirnir sjálfir.
Og þetta vilja þeir ekki að við vitum, allt þetta siðlausa gambl sem við og börnin okkar komum til með að borga fyrir með einum eða öðrum hætti. Með niðurskurði, skattahækkunum og enn meiri niðurskurði. Þeir eru hræddir því þeir eru á leiðinni í grjótið.
Réttilega.
Fátækir, svangir, úthræktir og kaldir.
Er ekki hægt að gera samninga við brasilísk fangelsi um að þeir hýsi þetta lið.
Hvað er númerið hjá Interpol?
góð grein
Þessa grein: Tími stórra breytinga « hjalli.com - Hjálmar Gíslason ætla ég að lesa núna á eftir þegar ég hef nægan tíma.. þú líka.
Hlekkir dagsins 23/10
- Dagblaðið Nei!
- Nýir tímar - kyndilganga frá Austurvelli að Ráðherrabústaðnum kl 16 á laugardag
- Lærdómurinn af Landsnefndinni 1771
- Dotling, krúttleg dönsk barnaföt úr lífrænni bómull
- Reiði Íslendingurinn
Væri ekki pínu sniðugt að gera þetta á hverjum degi, setja inn linka á það sem maður er að skoða yfir daginn? Einhver viðbrögð?
indefence.is
Síðunni hefur borist tilkynning:
Við getum ekki setið aðgerðarlaus lengur.
Að gefnu tilefni hafa sprottið upp óánægjuraddir vegna þeirrar meðferðar sem við höfum fengið hjá bresku ríkisstjórninni. Nú er tækifæri til þess að láta að sér kveða.
Íslenskur almenningur getur ekki setið undir því að vera brennimerktur hryðjuverkamenn til þess að þjóna pólitískum skammtímasjónarmiðum einstakra breskra stjórnmálamanna og styrkja samningsstöðu bresku ríkisstjórnarinnar. Ekki er nóg með að þetta hafi breytt grafalvarlegri stöðu í efnahagshrun, heldur hefur almenningsáliti í Bretlandi og utan þess verið snúið gegn íslensku þjóðinni, með þeim afleiðingum að viðskiptahöft breiðast út um Evrópu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Við verðum að láta rödd okkar heyrast þó fámenn séum, og dugir þá ekki annað en að allir taki undir.
Tölum beint til bresku þjóðarinnar, fáum hana á okkar band og hindrum saman frekari skaða. Stöndum saman og skrifum undir skilaboð frá íslensku þjóðinni og vinum hennar á www.indefence.is.
Fáum hryðjuverkastimplinum aflétt.
Vinsamlega láttu þetta berast - fáum alla með.
www.indefence.is
- -
Reyndar mætti benda á þetta líka, því það er nokkuð mikið til í að framsetningin á þessari undirskriftasöfnun er svolítið varasöm.
Grundvallaregla í ímyndarvinnu er að nota ekki þau orð sem maður vill ekki standa fyrir. Sá sem vill ekki vera talin hryðjuverkamaður á ekki að nota það orð. Hann á að nota það orð sem endurspeglar það sem hann vill standa fyrir.
Þetta er svipað og að tala við börn, sonur minn er hættur að skilja orðið EKKI.. sbr. "ekki skella hurðinni", þá heyrir hann bara SKELLA HURÐINNI. Þá er betra að segja "lokaðu rólega".
Góður þessi..
...er farinn að halda að það séu tvær leiðir út úr efnahagsvandanum:
1. Icelandair.
2. Iceland Express.
Ísland er ofarlega í hugum margra...
...og hinir dönsku Wulffmorgenthaler láta ekki sitt eftir liggja:

the diet coke + mentos domino effect
ótrúleg snilld..
fólkið á milli fjallanna
Var að lesa mjög áhugaverðan pistil um Háskólann á Akureyri á fína vefnum Hugsandi. Þar talar greinarhöfundur um "fólkið á milli fjallanna" og gott ef ég fékk ekki smá heimþrá, eða fjallaþrá öllu heldur. Danmörk er nefnilega flatt land, nema þegar maður hjólar.
neytendaverðkönnunarpæling
Mikið var ég glöð í mínu hjarta að lesa fréttirnar hjá Rúv í dag, þegar þeir komu með skúbb með Krónuna og Bónus. Mér þykir svo vænt um að það sé einhver neytendavakning í gangi og fer til dæmis reglulega inn á OKUR síðuna hans dr.Gunna til að heykslast mér til gamans.. svo kíki ég líka reglulega inn á Skotsilfur, síðuna hans Ragga til að fá nýjustu fréttir í sparnaðarráðum og heimilisbókhaldi. Alveg gulls ígildi þessi vefur ;)
En í dag, í þessum pælingum um verðkannanir og neytendavitund, fékk ég hugmynd.

Út um allt eru neytendur að gera sínar eigin verðkannanir, hver í sínu horni, þó þeir láti kannski ekki mikið uppi um það.
Það þyrfti að vera til vefur þar sem maður setur inn verðin á vörunni sem maður er að kaupa, eftir að maður er búinn að versla. Hugsum okkur (í fyrsta lagi að einhver myndi nenna þessu) fara út í búð - kaupa kók í bauk (segi þetta bara af því ég er að norðan), opna vefinn og stimpla inn númerið í strikamerkinu. Strikamerkið er bara auðkenni sem er svo tengt við upplýsingar um vöruna í verslunarkerfinu, þannig hefur hver vara - eftir þyngd eða bragðtegund sitt auðkenni sem er svo tengt inn í hvert verslunarkerfi fyrir sig. Það er ekkert sem mælir gegn því að vefur geti ekki geymt þannig upplýsingar eins og verslunarkerfin? (Leiðrétti mig hver sem getur).
Ef kókið í bauknum hefur verið skráð inn áður þá kemur upp form þar sem kaupandinn er beðinn um að slá inn dagsetningu, verslun og verðið á vörunni. Þar getur hann líka séð hvað aðrir, sem hafa keypt sömu vöru, hafa borgað fyrir hana í gegnum tíðina.
Ef kókið í bauknum hefur ekki verið skráð inn þá þyrfti að setja inn upplýsingar um þá vöru; tegund, framleiðanda, magn oþh, áður en hægt er að setja inn verðið.
Þetta hljómar kannski svolítið leiðinlegt en með notendavænu viðmóti og fallegu útliti ásamt möguleikum til samskipta (skilaboð og spjallborð) og jafnvel því að gera þetta að léttum leik þar sem maður safnar stigum fyrir hverja vöru sem maður setur inn.. (svona eins og iconbuffet þar sem ég er komin með "gegt" mörg stig fyrir að bíttast á táknmyndum í gerviheimi...) gæti þetta orðið gott sport og geysilega gott aðhald fyrir verslanir því þannig er hver kúnni orðinn aktívur "verðkönnunareftirlitsaðili".
Þetta veltur auðvitað mikið á heiðarleika fólks og einhvernvegin þyrfti að vera hægt að færa sönnur á kaupin. Hugsanlega gætu neytendasamtökin staðið fyrir svona vef og gert þá kröfu um að fá kassastrimilinn ef eitthvað undarlegt er í gangi.
Með svona gögnum er hægt að fá upplýsingar yfir ákveðin tímabil, ákveðnar verslanir og ákveðnar vörutegundir. Þetta segir auðvitað bara ákveðna sögu og er ekki marktækt nema að vissu leyti en býr samt til landslag sem mér finnst vera öðruvísi en hefur verið.
Pæling sem vert er að þróa áfram ? Hvað finnst þér ?
Flokkað sem fólk / hugmyndir / hönnun / netið / tækni /
3
tóm snilld
hehe, má ég benda á snilldar lestur á föstudagskvöldi: Mitt epíska, linnulausa hatur.
Nýr vefur Ekta fisks + smá greining

Á laugardaginn sendi ég í loftið nýja vefinn fyrir Ekta fisk sem ég hef verið að vinna núna síðsumars. Mig langar að segja svolítið frá því hvernig ég vann hann, því það er búið að vera mjög lærdómsríkt og skemmtilegt ferli.
Í raun hef ég unnið að öllum hliðum þessa vefs. Til að byrja með má nefna vinnslu efnisvals og veftrés út frá greiningu á stöðu, og ekki síst sérstöðu, fyrirtækisins á markaði. Ég hef reyndar góða þekkingu á þessu fyrirtæki þar sem bróðir pabba rekur það, og ég vann þar mikið í minni æsku í salfiski. Þar má segja að ég hafi kynnst kúltúrnum í fyrirtækinu en það er ótrúlega mikilvægt atriði þegar kemur t.d. að mörkun fyrirtækja, og vefurinn er stórt atriði í því.
Einnig að skrifa texta sem er vænn fyrir leitarvélar jafnt sem lesendur, skrá nýja hýsingu, breyta DNS stillingum, búa til netföng og setja upp blogg kerfi, sem sér um að fóðra nokkrar síður af efni sem kúnninn getur sjálfur uppfært.
Síðurnar sjálfar eru skrifaðar í xhtml og php, þar sem include skipunin er óspart notuð til að minnka endurtekningar á efni. Til dæmis er valmyndin lesin úr einni og sömu skránni, en glöggir sjá að hún breytist eftir því hvar maður er staðsettur í vefnum. Með því að gefa hverri síðu sérstakt nafn veit "valmyndaskráin" hvar maður er staddur og getur því sýnt þær undirsíður sem búið er að skilgreina. Kannski efni í aðra og nördalegri bloggfærslu.
Einnig kemur javascript við sögu sem og tungumálið sem Movable Type notar í sínum template-um. Svo er smá hluti vefsins lesinn úr xml skrá, nefnilega söluaðilarnir. Í dag er skráin lesin beint eins og hún leggur sig, en auðveldlega gæti ég sett upp skipanir sem næðu í upplýsingar um hverja verslunarkeðju fyrir sig. Ég ætlaði fyrst að útbúa Íslandskort í flash og lesa xml-ið þar í gegn en ég sá ekki alveg tilganginn og held að þetta sé þægilegra í svona lista. Kemur kannski seinna ef þörfin er mikil (...á því að hafa eitthvað sveitt).
Næstu skref er að setja inn meira efni og skoða þær ábendingar sem hafa komið fram, því strax á sunnudaginn komu bæði pantanir og komment um vefinn, sem er bara frábært. Ábendingar eru vel þegnar.
Ég notaði Coda ritilinn alfarið við að skrifa vefinn, hann er hýstur hjá Bluehost í USA, nýju merkin fyrir Ekta fisk og Ekta rétti voru teiknuð hjá Stíl á Akureyri. Sérstakar þakkir fær svo tölvunarfræðingurinn á heimilinu fyrir að hafa ávallt svör við misgáfulegum spurningum sambýliskonunnar. :)
bara allt of sætt!
sumarið og verkefni
Ég skilaði verkefninu í morgun, þar með er bara eitt hópverkefni eftir eins og ég sagði í síðustu færslu. Það er hins vegar allt komast á skrið í sumarvinnunni. Ég sem hélt að ég gæti verið í fríi í sumar og notið dönsku veðurblíðunnar.. það ætlar eitthvað að frestast. Veðurblíðan fór líka eitthvert, lýsi eftir henni hér með. Ég er semsagt með þrjá kúnna þessa stundina, tvo á Íslandi (Reykjavík og á landsbyggðinni) og einn í Ameríku. Það er mjög áhugavert verkefni sem ég segi frá strax og ég get. Óli verður sömuleiðis hérna heima að vinna, í fjarvinnuverkefnum fyrir sinn gamla vinnustað. Það sýnir sig að það skiptir ekki öllu máli hvort maður er hér í Danmörku eða á Hauganesi, svo lengi sem nettengingin er nógu hröð. Það er hreint ótrúlegt, eins og Lára bendir réttilega á, hvað það hefur verið mikill seinagangur í því að nettengja dreifbýlið.
En nú vantar okkur bara au-pair!.. anyone?
iconbuffet
![]()
Ég held að flestir eigi í svona "love / hate" sambandi við netið. Stundum getur maður ekki slitið sig frá því og öðrum stundum finnur maður gjörsamlega ekkert nýtt eða áhugavert. Alveg dautt.
Núna er ég í ~love~ gírnum því ég hreinlega get ekki slitið mig í burtu.. ég sagði frá scrapblogs um daginn en því miður hef ég ekki náð að kíkja aftur í það vegna þess að ég datt inn í Iconbuffet, sem er bíttimarkaður fyrir icon pakka (icon nörda kannski.. ) og þar má ekki bara finna flott merki / táknmyndir heldur líka skemmtilegt fólk (icon nörda..) og virkilega skemmtilegt og vel hannað viðmót.
skráðu þig endilega ;)
Scrapblogs
Scrapblogs er nýtt unaðslegt tól til að búa til scrap á netinu. (Scrap = skreytt myndaalbúm). Eftir að Danni fæddist hef ég verið að reyna að scrappa svolítið en hef aldrei haft almennilegan tíma til að setjast yfir það. Þegar ég sá þetta tól þá sé ég að þetta á eftir að verða mikill tímaþjófur... þá allt í einu hefur maður tíma ;)
Forritið er mjög skemmtilegt að vinna með, bæði flott tæknilega séð en líka gott viðmót og falleg grafík, hægt að tengjast beint við flickr (og YouTube er væntanlegt fyrir video) til að sækja myndir eða bara beint úr tölvunni. Maður á nú samt örugglega eftir að sakna þess að klippa ekki og líma.. og vera klístraður á puttunum.
Þessar síður gerði ég á hálftíma í gærkvöldi þegar ég var að prófa þetta:
þetta megum við kljást við..
Þetta megum við kljást við á hverjum degi... óheyrilega fyndið..
* nýtt útlit *
Síðustu tvo daga hef ég aðeins verið að breyta útlitinu og uppsetningunni á blogginu. Ég er sífellt að reyna að finna betri leiðir til að setja upp bloggið en einhvernvegin fær maður alltaf leið á því að horfa á það sama. Ég er ágætlega sátt við þetta, enn sem komið er.
Það er líka fínt að vinna með bloggkerfið Movable Type. Eftir að ég uppfærði finnst mér það ganga hraðar og eftir að hafa horft yfir öxlina á Óla með sitt Wordpress þá er ég ennþá ánægðari með mitt MT.
Það eru örugglega einhverjir hnökrar á þessu, þannig að ég ætla að kíkja í Windows tölvurnar í skólanum á morgun.
En ef það er einhver MT notandi þarna úti sem vill fá template skrárnar mínar þá væri ég glöð að deila þeim, með smávegis breytingum auðvitað. Endilega hafa bara samband.
súrmeti
Windows 386.. gvuð minn góður!
Uppfærsla í MT 3.34
Ég var að uppfæra Movable Type bloggkerfið upp í nýja útgáfu og það gekk algjörlega snuðrulaust fyrir sig þannig að þið takið sennilega ekki eftir neinu, það væri frekar að Hanna, Þorsteinn, Baddý, Mundi og Svanhildur og Danni (hah, kannski ekki) fái sjokk þegar þau logga sig inn. Eða kannski ekki, þetta er allt voða smooth. Vona ég. Látið mig allavega vita ef það er eitthvað undarlegt á seiði.
tímaeyðsla
Þetta moggablogg er að verða alveg einstaklega pirrandi. Í staðinn fyrir að eyða dýrmætum tíma núna eftir landsleikinn í að horfa á nýja Greys Anatomy, þá er ég búin að eyða klukkutímum í að lesa eitthvað raus hjá hinum og þessum um leikinn sem öll hljóma á sama veg. Þá hefði ég frekar átt að eyða tímanum í mcdreamy.
my portfolio
Jamm, komið upp aftur í endurbættri útgáfu. Ég er að reyna að veiða inn fleiri verkefni til að vinna að hérna heima og nú þegar eru nokkur komin í gang.
Ég ákvað líka að færa smá hönnunarblogg yfir á þessa síðu og ætla að reyna að taka það ekki of alvarlega heldur reyna frekar að finna eitthvað áhugavert og skemmtilegt til að setja þarna inn.
Hvað finnst ykkur?
piparkökujól
glöggir taka eftir að það eru krúttlegar jólamyndir komnar hérna upp en ég fékk svo skemmtileg piparkökuicon send frá iconbuffet í morgun. Þessi icon eru svo sæt. Ef einhver vill bíttast á þá endilega hafi samband við mig, ég á hellings.
vefrýni - noi.is
Mér finnst alltaf gaman að skoða þegar nýir vefir eru að opna og sjá hvernig verið er að breyta og hvað er verið að leggja áherslu á. Mig langaði til að minnast á þrjá núna; noi.is, eymundsson.is og amazon.com. (Kannski breyttist amazon.com fyrir löngu síðan en ég hef ekki tekið eftir því fyrr af því ég fer yfirleitt inn á amazon.co.uk því þar hef ég yfirleitt fengið vörurnar oggópoggó ódýrari og aðeins fyrr). EN anyhow, ég ætlaði að minnast á þessa þrjá en þegar ég byrjaði á fyrsta þá gat ég bara ekki hætt að rassskella þannig að ég geymi hina til síðari tíma.
Fyrir þá sem hafa á huga að lesa bendi ég á að lesa áfram (duh!) en fyrir hina er ég ekkert að troða þessu uppá þá. Og munið, ég er ekkert í sérstaklega slæmu skapi og ég hef ekkert útá neinn að setja persónulega, þetta bara stakk mig illilega og er, að sjálfsögðu, eingöngu mín skoðun.
helgarfylleríið
Í staðinn fyrir að fara á djammið um helgina mæli ég með því brása bara netið.. maður fær reyndar hausverk af því líka en kannski ekki eins mikinn..
...hvernig fórum við eiginlega að áður en þetta kom?..
aðalfundur 2006
Í kvöld var haldinn aðalfundur pjúsarafélagins að mér fjarstaddri. Pjúsarar láta ekki vegalengdir á sig fá og í raun var ég viðstödd fundinn lengi vel, þar til tæknilegu unaðssemdirnar gáfu sig.
Ýmislegt var samþykkt, ýmis mál komu upp en félagsmenn eru sammála að fundurinn hafi verið innihaldsríkur og afkastamikill, sérstaklega á eftirréttina.
nýtt stöff
Nýjungarnar eru allsstaðar sem maður lítur:
mánudagssarpur
Á mánudegi á maður ekkert að vera að nenna að gera eitthvað af viti, það verður allt hvort sem er svo mikil sósa að það er best að stara bara út í loftið. Eða skoða þetta..
skólinn og lífið
Ég er alltaf komin snemma heim úr skólanum og ég elska það :) Núna er ég reyndar að skrópa í HTML tíma en þegar maður hefur talað html í átta ár þá nennir maður ekki að sitja undir þessu einfalda (call me miss cocky..). Óli er ennþá í skólanum og var á bílnum þannig að í staðinn fyrir að sækja bílinn og sækja svo Óla á eftir þá ákvað ég að taka bara strætó heim. Það er reyndar enginn strætó sem fer alla leiðina þannig að ég þurfti að skipta á miðri leið.
Það er gaman að taka strætó hérna - miðað við RVK þá eru sennilega öll strætókerfi skemmtileg. Hér fer maður inn að aftan, stimplar miðann sinn (eða ekki) og svo út að framan. Hérna les líka vagnstjórinn upp næstu götur/stoppistöðvar þannig að hann virkar ekki eins úldinn og önugur maður hefur vanist áður.
Áður en ég fór heim kom ég við í bókabúðinni í skólanum og keypti markaðsfræðibókina sem við erum að lesa núna, það er nú kominn október og kominn tími til að lesa skólabækurnar :) Hún var hins vegar frekar þung og seig í þegar ég var að bíða eftir næsta strætó sem tók heila eilífð að því virtist. Það var nefnilega við eina stærstu götuna hérna, Viborgvej, og akkúrat á 2km kafla þar sem verið er að breikka hana - þeir eru búnir að vera að vinna í þessu síðan áður en við komum hingað en með sínum löngu hádegishléum, hætta-að-vinna-klukkan-fjögur stefnu og engri yfirvinnu þá held ég að þeir verði örugglega í því að breikka götuna allan tíman sem við verðum hérna. Allavega sér maður engan mun frá degi til dags.
Ásamt því að kaupa markaðsfræðibókina keypti ég líka aðra bók sem mig hefur langað í lengi; Web Redesign eftir Kelly Goto sem var með magnaðan fyrirlestur á vefráðstefnunni heima í apríl. Þannig að það verður kannski svolítill tími þar til ég kíki í markaðsfræðibókina ;)
æji svona dót sem maður teiknar eftir...
Jonni félagi er kominn með verkin sín á flottri síðu Skapalónsins.
MYND/Stefán
Það er alltaf gaman þegar fréttaljósmyndarar eru húmoristar.. eins og sjá má í þessari frétt hjá Vísi.
föstudagsfílingur
Danni litli var veikur í morgun svo ég fór með honum heim. Núna sefur hann og þá er tækifæri til að skoða eitthvað skemmtilegt á netinu. Er að skoða:
- Afterphase MAY 1st REBOOT Margt splunkunýtt og skemmtilegt að skoða.
- Reykjavik.com mag kom út í dag, ég hef ekki gripið blaðið ennþá en er að melta vefinn.
- Boltaleikir verða víst aðalmálið næstu daga. Ég væri samt alveg til í að fletta frekar þessari bók; Play loud! heldur en að horfa á imbann. Nú eða horfa á þennan leik.. híhíhí
mbl.is
Þetta auglýsingafyllerí á Mbl.is fer að verða ágætt. Nóg var um þegar þeir bættu við alveg fáránlegum borða efst í hausinn sem lækkaði vefinn um heila 110 pixla og augun, sem lentu yfirleitt beint á fyrirsögn fyrstu fréttar, þurfa nú að leita að efninu í gegnum allan hafsjóinn af hreyfimyndum.
Ég hef margoft gert bannera fyrir mbl.is og hef mælt með því að auglýsa þar en mér finnst þetta orðið allt of mikið. Spurning um að nota bara alfarið newsfox?
enn um rusl
Mér var enn hugsað til spamms í dag og ákvað að fletta upp ruslpóstur á google og rakst á þennan frábæra pistil: Dear Spammer...*uppfært.
Bara of fyndið.
íslenskur ruslpóstur
Ég er kannski bitch og allt það, en ég fékk áðan ruslpóst sem ég svaraði. Pósturinn var frá Ellert nokkrum sem ég þekki ekki, sem vinnur fyrir fyrirtæki sem ég ákvað að nefna ekki (ekki af virðingu fyrir þeim heldur vil ég ekki auglýsa þá frekar).
Svar mitt var svona:
--
Ágæti viðtakandi,
Ég vil benda þér á að póstur af þessu tagi var ekki umbeðinn og er ekki vænlegur til þess að auka viðskipti við fyrirtæki þitt.
http://www.netverjar.is/baratta/ruslpostur/
virðingarfyllst,
Dagný Reykjalín
dagny@reykjalin.com / dagnyr@lhi.is
--
Ég veit ekki hvort þetta skilar einhverju eða hvort þetta var bara tímasóun fyrir mig, en ég held samt að maður eigi að reyna hvað maður getur að stoppa lítil íslensk fyrirtæki í að senda út ruslpóst því þannig markaðssetning á netinu er ekki rétt leið.
ps. Ég setti lhi netfangið mitt inn á því þetta var sent á það netfang. Ég nota það hvergi en það er listað á starfsmannalista Listaháskóla Íslands og líklegt að það hafi verið pikkað upp þar.
getamac
Ef þetta sannfærir ekki tölvunarfræðinginn á heimilinu... þá veit ég ekki hvað... Apple - Get a Mac - Watch The TV Ads
Flokkað sem hönnun / netið / tækni / video /
2
iceweb
Síðustu tvo daga hef ég setið á Iceweb ráðstefnunni um vefmál, innan um vefhönnunarliðið á íslandi og hlustað á Molly Holzschlag, Eric Meyer, Kelly Goto, Dave Shea, Andy Clarke, Joe Clark og Shaun Inman (missti reyndar viljandi af þessum tveimur síðastnefndu því vinnan kallaði og topicin þeirra voru aðeins of tæknileg fyrir minn grunn).
Það var ákaflega hressandi að hlusta á þessa snillinga, sem allir eru professional fram í fingurgóma. Mér var svo kippt aftur í íslenskan raunveruleika þegar ég kom í vinnuna og fékk það verkefni að gera eitt stykki vefútlit fyrir klukkan fjögur... æ lov it!
Núna langar mig bara að skreppa til amazons og versla nokkrar bækur, er það ekki allt í lagi? ég á nú einusinni afmæli á morgun! ;)
vefmál
Ég er búin að hafa reykjalin.com óvirkt núna í rúmlega tvö ár eða síðan eftir að ég kláraði skólann. Blómatíminn var sennilega árin 2000-2003 þegar nýtt útlit kom upp í hverjum mánuði. Ég hef samt alltaf ætlað mér að hafa eitthvað skemmtilegt í gangi þarna en það hafa verið aðrir vefir sem hafa gengið fyrir, auk þess sem mér finnst ég aldrei hafa verið að gera neitt sem ég gæti sett þarna.
En um daginn datt mér í hug að skrá mig í May1stReboot og koma með eitthvað almennilegt upp þann fyrsta maí og aldrei að vita nema að það geti gengið eftir.
En morgundagurinn og einhver hluti föstudagsins verður undirlagður undir Iceweb ráðstefnuna.
...hvað ætlum við að læra já....
Eins og ég er búin að segja höfum við ákveðið að rífa okkur upp og flytja til Danmerkur til að læra meir. Við erum bara nokkurn vegin nýbúin að segja frá í vinnunni og það hefur aðeins haldið aftur af mér að blaðra um það hér, en það ætti samt alveg að vera í lagi núna, þessi færsla er því tileinkuð Áslaugu vinkonu minni.
Óli Helgi ætlar að taka master í tölvunafræði (datalogi á máli innfæddra) og sækir um bæði í Århus Universitet og Handelshøjskolen i Århus. Í síðarnefnda skólanum fór hann í viðtal um daginn þegar við fórum til Árósa og leist vel á en þetta verður samt mikil keyrsla. Þetta þýðir að ef hann kemst inn á öðrum hvorum staðnum verður hann ansi mikið upptekinn og ef ég færi líka í álíka viðamikið nám yrði það mikið álag á heimilislífið. Ég tók mér tíma til að leita að námi sem mig langaði að eyða tíma í næstu tvö árin og ég fann diplómunám í Århus Tekniske Skole í margmiðlun. Kannski ekki mest ögrandi nám sem hægt er að finna svona grafískt séð en ég held að þetta gæti orðið áhugavert. Ég hef aldrei verið mikill flash fan, þvert á móti eiginlega. Ég held samt að margmiðlun sé óskilgetið barn grafískrar hönnunar og oftast litið hornauga af hörðustu grafísku teiknurum og hönnuðum og ástæðan er nákvæmlega þessi: Forkröfurnar í námið eru nánast engar, bara stúdentspróf og það helst af stærðfræði- eða viðskiptasviði. Sem þýðir að 95% af liðinu sem mætir í skólann er nánast bókað gjörsneytt tilfinningu fyrir hönnun og útliti en vill læra þetta því það er INN og heldur að bara ef það kann nógu mikið inn á tæknina þá komi hlutirnir til með að vera flottir.
So wrong. Þess vegna er svo margt margmiðlunardót búið að vera ljótt, en sem betur fer er það að breytast. Til dæmis sá ég í kvöld nýja dagskrárkynningu á Sirkus sem mér fannst frekar töff, þó það væru tvær stafsetningarvillur í textanum.
Eeen. Ég held að þetta gæti orðið gaman og ég held að ég komi til með að læra fullt nýtt og skemmtilegt.
Flokkað sem hönnun / lífið sjálft / netið /
0
sekúntubrot sem skipta máli
Áhugavert.. Netnotendur ákveða á sekúndubroti hvort þeim líkar við vefi eða ekki (mbl.is) Þessi ákvörðun ræður síðan úrslitum um það hvort og hvernig notendur skoða og nýta sér vefina.
ferskar systur
Systur mínar voru að fá nýtt útlit, þetta er í raun alveg sami strúktúr og ég er með, mjög einfalt, hentugt og virkar. Hvað er betra en það?
lúkkið
Sansaði aðeins lúkkið á þessu hérna, setti inn ártal og fleira smávægilegt.
Taichi námskeiðið sem ég talaði um í síðustu færslu byrjar ekki í fyrramáli heldur næsta laugardag svo að í fyrramáli verður útsalan í next tekin snemma (talandi um jafnvægi, slökun og orkuflæði).. þokkalega búin að bíða alla vikuna eftir að komast á útsölur því mig vantar svoooo mikið af fötum. finn reyndar aldrei neitt á útsölum og enda alltaf á að kaupa eitthvað í *nýju* deildinni.
En já, ætli maður fari ekki að sofa núna.. ef sonurinn sofnar aftur bráðlega, hann vaknar við hvern flugeld sem sprengdur er í borginni svo það stefnir allt í að hann kúri á milli í nótt.
Flokkað sem hönnun / lífið sjálft / netið / uppeldi /
0
morgundagurinn
ókei, uppfærslan tókst með eindæmum vel og einhver gæti giskað á það að nýtt útlit væri á leiðinni.. það er rétt. Það er yfirleitt þannig að ég hætti að nenna að skrifa um leið og ég er komin með ógeð á lúkkinu hérna, svona er maður sorglega grunnur.
Annars er síðasti dagur kennslunnar í LHÍ í fyrramálið og það þýðir yfirferð og gagnrýni á verkefnunum. Ég get ekki neitað því að ég fæ alveg flashback 2 ár aftur í tímann með tilheyrandi hnúti í magann en núna er hann aðeins öðruvísi hnýttur þar sem ég er kennari en ekki nemandi. Skrýtin tilfinning. Líka skrýtið af því meirihlutinn af þessum krökkum er eldri en ég, og ég sem hélt að ég væri að verða gömul.
En ówell, ég hef svosem ekki miklar áhyggjur, þetta er búið að vera gaman og ganga vel.
En af því ég er búin að vera að stússast í vefútliti fyrir aðra síðustu vikur þá gat ég ekki stillt mig um að gera eitt fyrir sjálfa mig, og það kemur þá upp á næstu dögum. Lífið er tekið í skorpum.
vefverðlaunin
Við Danni kíktum á vefverðlaunin í Iðnó um daginn, hvorki hann né ég vorum tilnefnd en það kemur kannski seinna. Við náðum þó að heilsa upp á nokkra kunningja og Þorsteinn Guðmunds var fyndinn eins og mátti búast við.
Svo þegar afhendingin hófst fórum við bara út að horfa á endurnar á tjörninni og það var ekki síður gaman.
Annars finnst mér verðlaunahafarnir vel að sínu komnir, það er alltaf gaman að skoða arni.hamstur.is og vefur Íslandsbanka er afspyrnufagur.
vefurinn, síminn og vinnan
Gaman að sjá að síminn er með svona hipp og kúl bakgrunn í auglýsingunum sínum (prent) eins og bloggið mitt. Ég er alls ekki að íja að neinu enda er það nokkuð langsótt. Ég hugsa bara alltaf um bloggsíðuna mína þegar ég sé þessar auglýsingar og það minnir mig á hvað ég er löt að skrifa, sitjandi við tölvu allan daginn. Málið er bara að þegar ég er í vinnunni er hausinn á mér þar líka og lítið annað kemst að.
Annars get ég kannski bent á nýjan vef sem ég er búin að vera að gera síðustu mánuði í samstarfi við aðra, og fór í loftið fyrir nokkru, www.t.is.
Camino - Mozilla power, Mac style.
Getur einhver sagt mér eitthvað um Camino?
Vefsíðan
Jæja, ég er enn að pússa þetta allt til og það tók aðeins lengri tíma en ég ætlaði. Sennilega mun eitthvað breytast næstu daga, einhverjar fínpússningar eftir.
Mig langaði alltaf að halda áfram með myndabloggið, ég á fínt safn af stökum myndum sem mig langar að setja upp og þetta hvetur mig líka áfram til að taka skemmtilegar myndir. Ég ákvað að hafa það á ensku eins og síðast, málið er að ég fæ enn mikið af erlendum gestum og margar af þessum myndum sem ég á eru svolítið há-dú-jú-læk-æsland-legar. Þú skilur.
En já, batnandi manni er bezt að lifa.
vefur dagsins
Uppáhalds vefurinn minn í dag er islenskt.is. Þar er fullt af fínum upplýsingum um íslenskt grænmeti, næringargildi, geymslu og meðhöndlun. Hann gæti alveg litið betur út, það eru alltaf smáatriðin sem klikkað er á, en þetta sleppur alveg. Hins vegar finnst mér þetta íslenska lúkk hjá sölufélagi garðyrkjumanna mjög flott. Þarna eru margar uppskriftir sem er alveg þess virði að prófa.
CSS beauty
ég er búin að vera að spurla á fullu ("hef verið að skoða" flokkurinn til vinstri fyrir þá sem ekki vita), ég fór nefnilega á CSS viskuleitarflakk og fann ýmislegt til að geyma og deila.
Næsta skref er að útfæra þetta blogg aðeins betur fyrir svona söfn.
á þessu flakki fékk ég þessa línu eftir Bubba á heilann.. skapar fegurðin hamingjuna.. ég er ekki frá því.
UMFR
Alltaf dásamlegt að finna eitthvað frá heimahögunum, Ungmennafélagið Reynir - Árskógsstönd er alveg sprellalive! já, gömlu góðu dagarnir sem maður hékk í "stúkunni" og horfði á pabba skora mörkin. Og þegar Baddý systir og Ellý töldu freknurnar á skallanum á Ómari Ragnarssyni. Ógleymanlegt.
Sumt verður ekki metið til fjár.
teljari
Vill einhver plís segja mér hvað stendur þarna við reykjalin.com ?
Ég var að setja nýjan teljara á vefina mína þar sem reinvigorate teljarinn sæti er eitthvað þreyttur. Skemmst frá því að segja er þessi nýji teljari alveg að brillera á heimilinu. Með honum get ég séð hvað hver er að skoða, hvenær, hvaðan og hvert hann fer. og ótrúlegt en satt er reykjalin.com síðan, sem hefur ekki breyst í háa herrans tíð en stendur til bóta, að fá mun fleiri hits en síða sonarins sem þó er hvað mest lifandi. -og ég kvarta ekki undan heimsóknum á þann vef.
Betra seint en aldrei
Jólakveðja frá Aljazeera, arabísku fréttastöðinni. Áhugaverðar teiknimyndir þarna.
Tölvupósturinn kominn á vísan stað
Ég var að ná í Mozilla Thunderbird sem er email forrit svipað og Outlook en bara miklu betra. Lúkkar mjög vel og öll funksjón gengur fullkomlega upp og því er það ákaflega vel hannað að mínu mati. Mun léttara og öruggara forrit. Hvet alla til að skipta yfir í Thunderbird (í staðin fyrir Outlook) og Firefox (í staðin fyrir Internet Explorer).
bestasta leitarvélin.. ugh
Rétt í þessu fékk ég póst, tvo reyndar þó svo þeir þykist ekki vera að senda spamm, sem er að segja mér frá nýrri leitarvél sem heitir í höfuðið á landnámshrafni og skólablaði fyrir norðan, Muninn heitir hún og ber slóðina http://iceland.munax.com:8090/nindex.htm (splæsi ekki linki á þá) Þó mér finnist gaman að fá að vita um nýja hluti þá er ýmislegt sem pirrar mig í þessu:
1. Óumbeðinn tölvupóstur er spamm, það þýðir ekkert að setja klausu sem segir "þetta er ekki spamm" til að fría sig frá því.
2. Það er bannað að nota lýsingarorð í hæsta stigi í auglýsingum eða slagorðum á Íslandi. "Besta leitarvélin á Íslandi" er því ólöglegt. Auk þess er leitarvélin ekki á Íslandi þannig að þetta er ekki bara ólögleg heldur líka röng fullyrðing.
3. mér finnst meiriháttar óeðlilegt og ógeðfellt að geta slegið upp leit að nafni og listað upp netföng bara sísvona. Jú, gæti verið hentugt ef manni vantaði netfang hjá félaga sínum en býður upp á alveg ógrynni af spammmöguleikum (þó svo spammbotar geti alveg pikkað upp netföngin eins þá hjálpar þetta þeim sem ekki nenna að forrita svona bot)
4. vefslóðin er arfaléleg, enginn nennir að muna þetta. Ef menn hefðu hugsað þetta lengra gæti þetta heitið Huginn og Muninn (báðir landnámsfuglarnir) og huginn.is er laust.
5. Útlitið ber þess merki að um viðvaninga á því sviði er um að ræða.
ÉG er nú enginn penni um svona tæknihluti, læt hann Trigger vin minn um það (gaman væri að vita hvað honum finnst um þetta), en ég varð bara að setja inn mín tvö sent um þetta.
reyndu bara að spamma mig núna helvítið þitt!
Þessi dásamlega spammvörn er komin á bloggið mitt eftir að ég henti út 150 spammskeytum sem voru sett á bloggið mitt í morgun. Guð blessi MT-forritara og skrattinn hirði spammara.
haha!
ég er búin að engjast úr hlátri yfir þessu bloggi þó ég viti ekkert hver þessi kona er, en eitt er víst að hún er snillingur!
um vefinn
ég er búin að vera að testa þennan vef svolítið áður en ég hef sett hann í loftið. ég eyddi einni kvöldstund í að gera hann valideraðann hægri vinstri - reyndar er ýmislegt í gömlu færslunum sem gefur villu en ómægod ég nenni ekki að fara í gegnum það... þetta er aðallega gert til þess að sýnast.. það er allavega hægt að segja núna: úúúú bara valideitast í xhtml... grúví ha! ;)
æji en allavega, ég skrifaði um daginn að ég væri komin aftur og læt það standa.
komin aftur
ég er komin aftur, þessi pása var kærkomin. ég vissi ekki hvernig ég vildi hafa þetta og vissi þá ekki hvað ég ætti að segja og því best að taka sér frí frá þessu öllu. Svo auðvitað í pásunni er ég búin að blogga í huganum á fullu og eins og við er að búast, búin að gleyma flestu því sem ég hef ætlað að skrifa.
það er stundum sem maður dettur ofan í svona sjálfsskoðun (eða sjálfs-vefs-skoðun öllu heldur) að maður spyr sig fyrir hvern er ég að gera þetta? hvað finnst fólki um mig þegar það les þetta? það er eins og maður þurfi að réttlæta það fyrir sjálfum sér, eða öðrum, að maður er að skrifa það sem maður er að hugsa. Kannski er þetta bara feimnin sem er að tala, sem ég hef ekki yfirstigið þrátt fyrir að hafa verið að þessu í nærri 5 ár. En auðvitað á manni að vera sléttsama um það hvað maður haldi að aðrir hugsi, menn geta þá bara farið eitthvert annað!
En þegar maður er búinn að venja sig á svona útblástur eins og bloggið er í svolítinn tíma og tekur svo pásu, þá er maður orðinn nokkurn veginn fullur af hugsunum sem maður hefði þurft að koma frá sér jafnóðum, en ekkert kemur náttúrulega ef maður ætlar að æla þessu út öllu í einu.
Fyrir vikið er maður einn hrærigrautur í kollinum.
En allavega, það er gott að geta byrjað á ferskum grunni.
Eva sem póstaði með mér er reyndar hætt þannig að nú á enginn að vera í vafa með hver er að skrifa, þetta er allt undan fingrunum á mér. Vonandi bara að Eva gefi sér tíma í að kommenta og svona og vera þannig áfram með :)
snilldin eina
það er alltaf gaman, þrátt fyrir allt, þegar nýjir vefir eru að koma upp. í fréttablaðinu í morgun sá ég að snilld.is
er leið spron til að höfða til unga fólksins. Svona vefir virka bara í stuttan tíma því þeir verða strax svo lummó, þrátt fyrir það er engin ástæða til að vanda sig ekki. Ekki svo mikil snilld.
svona gerum við er við...
Húsmæður landsins, sjáið þetta og lærið. Ein mesta snilld sem ég hef séð lengi.
*nýtt*
naglbítarnir fengu líka andlitslyftingu í dag
movable type spammmarar
þrátt fyrir að hafa uppfært MT í 2.661 er ég enn að berjast við róbóta sem spamma kommentakerfið hjá mér með miður skemmtilegum skilaboðum. það þýðir afskaplega lítið að setja viðkomandi ip tölur á bannlista þó það sé hægt því sennilega er aldrei sama ip talan notuð tvisvar. það er bara vonandi að nýja útgáfan af Movable Type geti lokað einhverjum holum því þetta er að verða jafn pirrandi og ruslpóstur.
fari spammarar í rass og rófu!
Undanfarið hef ég verið að henda út allskonar ógeðiskommentum sem hefur verið spammað á bloggið og bara núna áðan gerði ég það sem ég hef lengi ætlað að gera.. uppfæra MT-ið. þetta þýðir samt að við tækifæri þarf ég að fara í gegnum nokkrar færslur og eyða þessum óþverra út.
Sigurður Reynir er farin að
Sigurður Reynir er farin að blogga, sem er gott mál. Fyndnir bloggarar eru bestir.
blogg um blogg
bloggið hennar ásu er í stúdentablaðinu.
FireFox
ég get alveg fullkomlega mælt með nýja browsernum firefox, miklu flottari og betri en nokkurn tíman Explorer. það er nefnilega hægt að breyta lúkkinu á honum (ég er sökker fyrir svoleiðis fídusum). ég lenti samt í smá krísu með hann áðan.. ég nefnilega fann ekki afturábak og áfram takkana og í nokkrar mínútur var ég mjög hugsi yfir þessu en þegar ég fór að svissa um útlit og þannig þá hrukku þeir aftur inn.
þetta er held ég það mest spennandi sem hefur hent mig í langan tíma....
nýr tímaþjófur
vefmál
ég fór í dag í opnunarboð hjá útflutningsráði, þau voru að opna nýjan vef sem ég skipti mér örlítið af. það var fínt að koma þarna og hitta fólk sem ég hef unnið svolítið með og fyrir. Svo voru þarna líka gamlir samstarfsfélagar frá Origo sem var gaman að sjá framaní.
nýr vefur
Nýtt lúkk sem ég gerði er komið upp fyrir Laugar, þetta er reyndar tímabundinn vefur með aðeins allra helstu upplýsingar og seinna verður farið í greiningu á nýjum og stærri vef. Kannski fæ ég að vera með í því, hver veit.
bítarnir bítast um verðlaun
ég var að kjósa Naglbítana á mbl til íslensku tónlistarverðlaunanna.
Sem minnir mig á það að ég þarf að klára vefinn þeirra.. *woopah*
Sama hvað hver segir.. þetta
Sama hvað hver segir.. þetta er flottasta klukka í heimi
tónlist
nýja uppáhalds lagið mitt er með Ragnheiði Gröndal og er ástæða þess að ég skráði mig inn á tonlist.is vefinn og keypti lagið, enda kominn tími til að skoða almennilega þennan vef, sem meðal annars er tilnefndur til vefverðlaunanna 2003.
í fréttum
í fréttunum í kvöld á rúv var talað um vefinn okkar icelandicnationalteam.com og umræðurnar sem hafa verið þar um nýju mjólkurauglýsinguna Muu. það er alltaf gaman að fá smá hits.
Langaði bara að segja frá
Langaði bara að segja frá því að myndirnar frá Danmörku eru komnar í myndasafnið. Betra er seint en aldrei
hlustaðu..
tónlistarskortinum sem ég var með um daginn hefur verið bjargað fyrir horn þegar ég fann Listen to a movie á INT í dag. þarna getur maður hlustað á bíómynd eins og það sé létt hljóðbók. Alveg tryllingslega sniðugt
ég á mér draum...
mig dreymir...
mig dreymir farartæki sem getur svifið um í loftinu..
mig dreymir farartæki sem getur svifið um og sogið bara orku úr andrúmsloftinu...
er draumurinn að rætast.. ?
raggo spacecowboy sendi mér linkinn.
trúgirni fólks
ég fékk svolítið skemmtilegt bréf rétt í þessu..
Dear Hotmail User,
Because of the sudden rush of people signing up to Hotmail, it has come to our attention that we are vastly running out of resources. So, within a month's time, anyone who does not receive this mail with the exact subject heading, will be
deleted off our server. Please forward this email so that we know you are still using this account. (...)
From Mr. Jon Henerd
Hotmail Admin. Dept.
Ef maður fær svona póst á maður bara að segja "Je right!" og henda honum. í guðanna bænum ekki senda hann áfram. :)
það er sorglegt en jafnframt fyndið hvað það voru margir listaðir í hausnum, sem voru búnir að fá þetta bréf, því í sakleysi sínu og til að eiga ekki hættu á að vera eytt út, þá trúir fólk svona vitleysu.
makki er málið
Tryggvi er með þrusuræðu um Apple Macintosh. Verð að segja að eftir þessa lesningu hefur mig aldrei langað eins mikið í makka og einmitt núna...
íslenski bloggheimurinn
merkileg hugmynd, verst að ég get ekki betur séð en að það vanti Tryggva inn í þessa heimsmynd, grundvallarmistök. :) samt sætt.
blogg með sms
ég er búin að vera að gera tilraunir með SMS sendingar í bloggið mitt, kerfið sem Már og Keli eiga allan heiðurinn að. Allt gengur upp núna, ég er aðeins að læra inn á hvernig maður getur notað íslensku stafina í þessu, í símanum mínum er 'ð' í hnappaborðinu en það virðist koma út sem 'e' þannig að ég nota bara kóðann í staðin. 'ö' virkar fínt en tvöfaldar gæsalappir koma ekki fram, bíttar engu en bara ágætt að vita af þessu svona áður en maður verður nettengingarlaus.
þetta er mjög áhugavert og verður alveg pottþétt til þess að símreikningurinn minn hækkar eitthvað aðeins :p
puppies!
mússímú.. ótrúlega sætir!
ég sendi inn eina sms
ég sendi inn eina sms færslu í tilefni af því að sms þjónusta landssímans er kominn í lag.. en það kemur bara ekki inn, kannski er það lengi að koma inn eða kannski gerði ég e-ð vitlaust.
það er samt snilld að fá þetta í gagnið fyrir fríið. Við ætlum að leggja af stað norður á eftir, gistum eina nótt á dalvík og förum svo á morgun austur á borgarfjörð eystri þar sem ættin hans óla ætlar að koma saman. Við náum samt ekki að vera nema tvær nætur þar, þá þurfum við að bruna aftur í bæinn og fara til kaupmannahafnar á þriðjudag. reyndar er spáin ekkert sérstök en það hlýtur að rætast úr því.
færeyjarvinir
heimurinn bíður spenntur eftir myndum frá færeyjum.
triggerinn
Tryggvi er orðinn lénsherra með trigger.is.
ég ætla að setja þetta
ég ætla að setja þetta í hugmyndakassann í Vesturbæjarlauginni.
myndafrík
á meðan óli var í golfi í kvöld fór ég einn hring um Seltjarnarnesið með fisher og canon. þrátt fyrir allar mýfluguárásirnar var þetta fínn hjólreiðatúr, mátulega langur og yndislegt útsýni. ég prófaði líka að taka myndir með því að breyta yfir/undirlýsingarstillingunni á vélinni (voru alltaf svo leiðinlega bláar þegar ljósmagnið var ekki nóg) og mér sýnist það hafa virkað alveg þokkalega vel, litirnir koma reyndar aðeins skærari fram en það er skárra en að hafa bláu slikjuna yfir öllu. ( -takk Tryggvi fyrir að benda mér á þetta :)
Svo ákvað ég að tengja myndabloggið sem ég gerði einhverntíman í vetur hérna inn á, mar þarf bara að skrolla aðeins neðar á síðuna til að sjá það.. finnst þér að ég ætti að hanna þetta ofar á síðuna??
ég skil ekki þetta, sérstaklega
ég skil ekki þetta, sérstaklega ekki þetta ps. dæmi. Mér finnst þetta meira en lítið barnalegt.. því miður sá ég ekki það sem var þarna fyrst, sem var víst "dæmi um umfjöllun um feminisma á netinu" en af hverju hentu þau ekki bara öllu út fyrst þau vildu hafa þetta leyndó í staðin fyrir að breyta yfir í þetta rugl?
maður á náttla ekki að vera að skipta sér af svona girlfight en þetta er bara svo geðveikt hallærislegt!
myndasaga
Verð að segja að Hulda vinkona mín á ansi góða spretti í kommentakerfinu í myndasafni Evu og óla.
Var að hugsa, þetta er eins og að halda partý og leyfa öllum að fá miða til að setja undir myndirnar í real-life myndaalbúmunum.. eða halda svona myndaalbúmapartý þar sem maður skiptist á albúmum því öllum finnst jú leiðinlegt að skrifa við myndirnar í sínu albúmi. hey já geðveikt partý... næstum því eins skemmtilegt og para-sokka-partý.
nýtt lúkk
ef þið hafið ekki tekið eftir því þá er ég búin að umbreyta útlitinu á síðunni, þetta bleika er farið niður í smástund þó það sé ennþá í tísku að vera feministi, bleikt er bara eitthvað svo ofnotað.
snegð er ekki einn af mínum bestu eiginleikum..
loksins eru myndirnar frá 5 ára stúdentaafmælinu komnar inn á netið.
slef
art on demand! giðgt sniðugt og giiiðgt hipp og kúl! versli versli versli...
Vek athygli á því að
Vek athygli á því að ofurforritarinn Oddur er kominn með nýtt og brilliant lúkk.. af hverju er 01 krúið hvergi finnanlegt á rassalistanum? eru þeir ekki í sama liði?
19. júní
í tilefni af morgundeginum er portfolio vefurinn minn kominn í feminískan búning. Maður þarf jú víst að vera með.
meira talandi blogg
Vafalítið er þetta fyndnasta talandi blogg færsla EVER..!
talandi blogg
það er ekki að spyrja að henni Láru! Hún er frumkvöðull í eðli sínu og hefur núna birt sína fyrstu talandi bloggfærslu. ég verð að fara að skoða þetta betur!!
ps. það er fyrirtækið Hex sem stendur á bakvið þetta og fleiri færslur má finna á blog.hex.is, og auðvitað nota þeir Movable Type, en ekki hvað?
rosa gangstera mynd af mér!
rosa gangstera mynd af mér! spurning um að fá þig til að taka nýja svona við tækifæri dagný mín;)
harður rockur
það er banastuð í Færeyjum
jæja, ég gaf mér allavega
jæja, ég gaf mér allavega tíma til að fríska aðeins upp á okkur hérna.. mér líður næstumþví eins og nýrri manneskju.. vhúff!
næsta skref af bloggi?
næsta skref af bloggi?
celeblog!
En ótrúlega fyndið að lesa bloggið hans Poul Nyrup Rasmussen. það er ágætt við svona tilefni eins og að rekast á danska forsætisráðherran að rifja aðeins upp dönskuna, mér sýnist í fljótu bragði hún vera nokkuð skýr hjá honum.
Mér finnst pínu skrýtið að íslenskir stjórnmálamenn hafi ekki tekið þetta meira upp á sína arma, þó svo að það séu náttúrulega nokkrir duglegir /duglegar. ég hefði nefnilega haldið að bloggið væri eitt auðveldasta, einfaldasta og skemmtilegasta tæki til að koma skoðunum sínum á framfæri á þessum síðustu og verstu. Er BB eini bloggari D listans? Hvar er Davíð?
áhugavert...! Er ekki málið að
áhugavert...! Er ekki málið að læra af reynslunni? ég held það
pjúsarar eru víða..
Borgarholtsskóli er með ágætis upplýsingavef um auglýsingakúrs sem er kenndur í skólanum. Neðarlega á síðunni er listi yfir það sem þeim finnst vera áhugaverðar krækjur og viti menn hvað finnum við þar fyrir ofan SIA? enga aðra en Pjúsarafélagið!
breytti pínu, og ég veit
breytti pínu, og ég veit ekki af hverju bakgrunnurinn er ekki hvítur, það eru bara stælar í mér.
var samt að spá hvort ég ætti að gera nokkra svona ma98 hnappa sem liðið getur birt á sinni síðu, svona klíkuhnappa.. hehe
samt, ég ætti frekar að fara heim að borða...
vega og meta...
Femenistar mótmæla gáluauglýsingum Flugleiða, tíkurnar gefa uppskrift af árangursríkri helgi. Hmm, hefði ekki verið heppilegra að birta þessa grein aðeins fyrr/seinna?
antisportisti
Náungarnir hjá Intersport eru með fínar upplýsingar um ýmsar íþróttir á vefnum sínum, þar á meðal um skvass. þessi texti um skvass er reyndar tekinn úr greinargerð sem óli bjó til fyrir eitthvað forritunarverkefni í skólanum á sínum tíma og var einusinni uppi á islandia síðunni hans, sem er dottin út fyrir einhverju síðan. Sem er svosem allt í lagi því hans er getið sem höfundar efnisins þó svo hann hafi í raun bara tekið það saman. En annað er fyndnara, á undirsíðu flokksins Skvass (undir flipanum 'Hreyfing' og 'Skvass' í menu borðanum) eru listaðar leikreglur í íþróttinni sem eru líka teknar upp úr þessari greinargerð nema hvað að það vantar myndina. Sem er heldur ekki skrýtið því það er tengt beint í hana og þar sem búið er að eyða myndinni af islandia er hún einnig brotin á vefnum þeirra. Maður spyr sig eiginlega, hvað er í gangi? Er metnaðurinn í efnisöflun fyrir þennan vef ekki meiri en svo að þeir gefa sér ekki tíma til að 'stela' myndinni almennilega? Með því að tengja hana beint í síðuna á islandia eru þeir líka að nota bandvíddina þeirra.. þó hún sé í litlu mæli (því ég býst ekki við að mikil aðsókn sé í að skoða reglurnar í skvass). Einnig finnst mér það vera almenn kurteisi að senda viðkomandi email og spyrja hvort það sé í lagi að nota þetta efni. Allavega hefði virðing þeirra hjá okkur vaxið við það að senda eins og einn skvassbolta í staðinn.
bloggarar
það eru nokkrir af harðkjarnabloggarar að fara af stað í blogginu aftur, Már er að þróa sitt blogg 'Live' á meðan Oddur er með sitt í leyni... vúps
Og báðir nota þeir MT, þessa snilldargræju.
síðar: ef það kraumar ekki hjá henni Hilmu líka barasta...
3 ára bloggafmæli!! jey!
Vá, í dag eru liðin 3 ár síðan ég byrjaði í blogginu. það var 25. mars 2000, layoutið leit einhvernvegin svona út og fyrsta entríið var um blað nr 56 hjá k10k, vefur sem er alltaf í uppáhaldi.
jiii hvað tíminn líður hratt!!
nákvæmlega!
baggalútur klikkar ekki
