Eftirfarandi eru færslur í flokknum "ýmislegt"
Að ranka við sér?
Já það er rétt, hér hefur verið hljótt. Ég er búin að vera í smá sjálfsskipaðri pásu. Stundum þarf maður aðeins að hvíla sig á þessum vettvangi, eða amk eyða meiri tíma á öðrum sviðum.
Eftir að ég kláraði fæðingarorlofið er ég komin á fullt skrið í bissnessinn, verkefnin koma alveg ótrúlega sjálfkrafa. Það er líka góð tilfinning að vera með bókara sem sér um allt bókhaldsumstangið, besta fjárfesting í geðheilsu sem hægt er að finna. Undanfarnar vikur hef ég verið að gera merki, bækling, nokkrar umbúðir og miða, auglýsingar og vefsíður. Og skipt á bleium.
Og ég er með eitt skemmtilegt prívat project í gangi líka, sem ég hefði viljað eyða aðeins meiri tíma í, hugsanlega þegar þessi verkefnatörn er búin. Það verkefni sameinar svolítið nokkur áhugasvið ; vefumsjón, brönd (as in 'brand' eða vörumerki), innlenda framleiðslu og samfélagsuppbyggingu, hugmyndaauðgi og frumkvöðlakraft.
Ég þarf að vanda mig aðeins betur við þetta og segi ykkur svo frá.
Svo þarf ég að ákveða hvað ég á að gera við þennan vettvang. Annaðhvort kjafta meira eða breyta þessu eitthvað.
Hið skandinavíska myntbandalag
Í mars stakk ég upp á því að við myndum endurvekja hið skandinavíska myntbandalag, en það var reyndar aðallega af því mig langaði að gera eina víkingamynt (ath! ekkert skylt útrásarvíkingum.. eða húsvíkingum). Núna eru raddirnar orðnar háværari um að athuga með myntbandalag við Norðmenn. Hvort þeir hafi einhvern áhuga á því veit ég ekki.
stjörnuspá
Stjörnuspáin mín í mogganum í dag:
Naut: Þú gerðir framtíðaráætlanir ómeðvitað. Nú eru þær að koma í ljós og þú sérð að þetta var allt skipulagt. Á vissan hátt hefurðu geymt það besta þar til síðast.
aaawwwww....
Þeir eru svo góðir í Barnum
Detti mér nú allar..... [euroblogg]

Ég neyddist til að éta ofaní mig allt sem ég hef sagt um Júgóvision þegar við vorum dregin upp úr hattinum í kvöld (til dæmis að það eru ekki nógu margir flóttamenn frá Íslandi í Evrópu eða innflytjendur á Íslandi sem geta fengið ættingja sína í Evrópu til að kjósa).. ótrúlegt að við höfum komist áfram! (Kannski hafa allir Pólverjarnir sem eru nýkomnir heim hugsað svona hlýtt til okkar). :)
Að sjálfsögðu kusum við með öllum símum sem við fundum á heimilinu.
Þau stóðu sig auðvitað alveg geðveikislega vel á sviðinu og það fór alveg unaðsþjóðrembugæsahúð um mig á meðan, en ég átti bara frekar von á því að austrið myndi taka þetta allt saman eins og venjulega út af allt öðrum ástæðum en tónlist eða flutningi.
Það eru reyndar smá vonbrigði á heimilinu að liðugu meyjarnar frá Tékklandi hafi ekki komist áfram.. en samt hollt að sjá að eintóm kroppasýning skilar ekki miklu.
Til hamingju Ísland! (og Danmörk).... YEAH! :)
fyndnasta í þessum heimi
Það fyndnasta í þessum heimi er sennilega þjóðblogg Baggalúts.
Til dæmis bloggfærsla eftir Einar Ben, ljóð sem ber nafnið Pylsa með öllu:
Þú húðlita bjargráð, þú innyflum útfyllta sin;
undirlögð margræðum sósum, á laukstráðu beði.
Af algleymisfögnuði langþráðum logar mitt gin
er ljúkast um enda þér titrandi varir, af gleði.
eða ljóðið Frjókornaofnæmi eftir Bólu-Hjálmar:
Í blóðsprengdum nösum mér hangir nú hor
horfinn er veturinn trausti.
Megir þú andskotans volaða vor
verða sem snarast að hausti.
eurovision
Danir eru ekkert sérstaklega ánægðir með júróvision þessa dagana, ég skil reyndar ekkert hvað þeir voru að senda dramadrottninguna af stað og hvað þá að binda einhverjar vonir við þann glansfrostpinna. Það var eiginlega sama sagan með Eirík í gær, þó hann hafi staðið sig alveg ágætlega þá gjörsamlega lak testosteronið af atriðinu og enginn sjarmi yfir því fyrir minn smekk.
Eftir að hafa fylgst með úrslitakeppninni í kvöld með öðru eyranu þá verð ég nú bara að segja að austur Evrópa á þessa keppni alveg réttilega. Lögin þaðan eru yfirleitt mun metnaðarfyllri, tilfinningaríkari og einlægari. Mér finnst tilgerðin og leikaraskapurinn svo áberandi hjá vesturlöndunum. Mér finnst líka ákaflega heillandi að heyra lögin á sínu upprunalegu tungumáli ekki alltaf á ensku, þeas misgóðri ensku.
Í mínu uppáhaldi í kvöld eru Serbía, Ungverjaland og Moldavía.
og kosningarnar? nei, ég ætla ekki að vaka. Ég held nefnilega að þegar ég vakna kl 7 í fyrramálið (5 að íslenskum tíma) þá verði úrslitin ekki ennþá komin í ljós þannig að ég ætla að fylgjast þá, spræk í morgunsárið, með (svefn)drukknum Íslendingum á barmi taugaáfalls.
áramótaheitin
Mér finnst ágætt að strengja áramótaheit svona ein með sjálfri mér. Ég ákveð til dæmis alltaf um hver áramót að vera duglegri að leika mér í grafíkinni, mála meira, vera skipulagðari, hreyfa mig meira, borða minni sykur, eyða meiri tíma með fjölskyldunni jafnframt því að lesa meira, leggja mig betur fram í vinnunni/skólanum, blogga meira og fara fyrr að sofa. Eins og gefur að skilja falla flest þessi atriði út í fyrsta mánuðinum þar sem það kemst ekki allt að í einu, eða komast ekki í gang fyrr en einhverntíman þegar líða tekur á árið og eru þá tekin fyrir til skiptis. Það er kannski bara allt í lagi? Áramótaheit eru kannski meira markmið sem snúast um það að maður vilji bæta sig, heldur en að setja sér reglur í lífinu.
svona er samkeppni á bensínmarkaði
Það er frekar skondin bensínstefna hérna. Í morgun þegar ég keyrði af stað með Danna sá ég að bensínljósið var farið að loga. Við reynum yfirleitt að versla bensín á laugardagsmorgnum því þá er það ódýrast. En af því ljósið var farið að loga kíkti ég á verðið á skiltinu hjá HydroTexaco sem er hérna niðri á horni og það var 9.19kr. Af því ég var að flýta mér í morgun ákvað ég að stoppa ekki, enda var ljósið bara nýbyrjað að loga. Þegar ég kom svo heim uppúr hádegi var verðið komið í 9.29 ddk (106,84 isk), svo að ég ákvað að fara ekki alveg strax. Svo núna áðan þegar ég sótti Danna var bensínljósið að verða aðeins frekara þannig að ég kíkti á skiltið og viti menn; 8.56 ddk (98.44 isk) - sem þýðir 8.4 isk lækkun á einu eftirmiðdegi.
Maður getur varla séð fyrir sér að íslensku olíufélögin lækki verð án þess að senda frá sér fréttatilkynningu með tveggja daga fyrirvara, hvað þá að lækka svona mikið án þess að það sé röð út á götu.
Skemmtilegt. Annars breytist aksturinn okkar talsvert í næstu viku þegar Danni byrjar hjá nýrri dagmömmu, sem býr í stórkostlega girnilegri hjólafjarlægð frá okkur.
Viðbót: Í morgun fyrir kl 9 þegar við skutluðum Danna var verðið ennþá 8.56 þannig að við hugsuðum okkur gott til glóðarinnar og ætluðum að taka bensín í bakaleiðinni - en þá - viti menn, verðið orðið 9.56 dkk (110 isk) ! :/
Flokkað sem danmörk / samfélag / ýmislegt /
2
í skólanum...
Fyrsti skóladagurinn var í dag, svona ef ég dreg frá einn kynningardag í síðustu viku. Þetta leggst svona ágætlega í mig, getur örugglega orðið mjög skemmtilegt en ég er mest smeyk við að þetta verði of létt. Vissulega ræð ég svolítið þyngdinni sjálf, en margir kúrsar á þessarri önn eru byrjendakennsla grafískri hönnun eða í forritum eins og Photoshop og Dreamweaver sem ég er með BA gráðu í (ógeðslega klár stelpa). Hugsanlega get ég fengið eitthvað af því metið og eytt þá meiri tíma í forritun, markaðsfræði eða stærri verkefni, á eftir að tékka á því.
Bekkjarfélagarnir eru líka skrautlegir og skemmtilegir. Af hátt í 30 manns erum við 6 íslendingar sem er 5 of mikið.. um 15 menntaskólakrakkar frá Eistlandi/Lettlandi/Litháen, einn frá Suður Afríku, Bandaríkjunum, Ástralíu og Bretlandi, einn miðaldra karlmaður frá Írak og svo slatti af Dönum sem vildu læra á ensku. Það sem kemur örugglega til með að pirra mig (þið sjáið að ég er búin að ákveða það nú þegar) er að allt þetta fólk er með mismunandi bakgrunn og kannski flestir sem eru frekar tæknilega sinnaðir en útlitslega.
Þetta gæti orðið skítlétt og algjör tímasóun, eða þetta gæti líka orðið krefjandi verkefni - fer eiginlega allt eftir mér sjálfri.
Ég á eftir að fá mér pennaveski og liti en ég keypti mér samt ný skólaföt. Það er fyrir öllu.
thunder -- a a a a a...
Þrumuguðinn Þór hefur verið duglegur að tjá sig undanfarna daga og einhver kerling kemur á eftir honum með garðkönnu og vökvar hressilega, þetta er orðið frekar pirrandi. Í gær lentum við í 2 mín rigningu þar sem mánaðarregn Akureyrarbæjar að magni, lenti á okkur þar sem við trilluðum innkaupakerrunni okkar frá ikea og út í bíl.
Núna erum við Danni á leið til Brian dagpabba þar sem hann þarf aðeins að venjast því umhverfi. Á morgun verður dagurinn tekinn snemma hjá dagpabba og mamman bregður sér kannski aðeins frá þá.
Tónleikar í bræðslunni
Tónleikarnir fyrir austan með Emiliönu Torrini og Belle and Sebastian voru stórkostlegir. Það var gaman að koma einusinni á borgarfjörð þetta sumar, þangað er alltaf gott að koma. Móðurfjölskyldan hans Óla á ættaróðal þarna á þessum fallega stað og við tjölduðum tjaldkerrunni í hlaðinu. Ekki var verra að Emiliana og hennar band dvaldi í götunni og Belle and Sebastian í næsta húsi við. Við vorum mætt snemma í bræðsluna, samt ekki alveg fyrst en frænkur hans Óla voru búnar að "panta" besta stað í húsinu þannig að við tróðum okkur með þeim. Þvílíkir tónleikar. Úff vá þetta var svo flott.
Við rukum af stað á sunnudag. Við ætluðum að kíkja upp að Kárahnjúkum en það var svo lágskýjað (les. þoka) að við ákváðum að fara frekar beint norður. Það er samt ekki þannig að maður geti bara "kíkt seinna" á þetta svæði. En við eigum leið hjá á morgun þannig að ef við verðum á góðum tíma þá náum við vonandi að kíkja þarna uppeftir.
Þetta verður rosalegt..
Varið ykkur, Hadda er að mæta á Hróarskeldu. Þetta verður einhver saga.
viðskiptahugmynd 1
Einhverntíman í síðustu viku var ég stopp á rauðu ljósi og sá bíl sem var augljóslega að flytja stóra dunka af vatni, svona áfyllingu á vatnsstandarnir frá Selecta og er á öðrum hverjum vinnustað og opinberu rými. Ég hugsaði til þess að þegar við verðum komin til Danmerkur myndi ég örugglega gefa mikið fyrir að fá svona sendingu af fersku íslensku vatni, þar sem kranavatnið var svolítið eins og sundlaugarvatn síðast þegar ég var þar.
En Íslendingum hefur gengið ótrúlega brösuglega að flytja út vatn, eins og það virðist vera borðliggjandi útflutningsvara.
Svo fór ég að spá, hefur eitthvað fyrirtæki byrjað á þessum enda, að selja vatn í stórum dunkum í drykkjarstanda? Alveg er ég viss um að útibú stóru íslensku fyrirtækjanna sem eru að dreifa úr sér út um allan heim, munu glöð taka það vatn framyfir annað. Og um leið og starfsfólkið er komið "á bragðið" mun það versla það sama úti í búð í tveggja lítra flöskunum sínum.
Ég bara trúi því ekki að allir hafi verið að vesenast í að selja hálfan lítra hér og þar... þetta hlýtur að hafa verið gert!
Eða kannski liggur beinast við að selja íslenskt vatn í áldósum?
Félag um framtíð Íslands
Fékk póst um þetta og í staðin fyrir að áframsenda hann þá langar mig að setja þetta hér. Við erum að fara norður í land núna á eftir þannig að ég kemst ekki á þennan viðburð en hvet alla til þess að mæta.
- -
Frumkvæðið að stofnun félagsins kemur frá fólki af ólíkum sviðum þjóðlífsins sem telur að nú sé þörf á afli sem getur komið sterkt inn í umræðuna, upplýst, gagnrýnt og varpað fram nýjum hugmyndum – vettvangi til að hafa áhrif á framtíðarmynd Íslands sem liggur nú á teikniborðinu.
Félagið verður þverpólitískt, með víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræðimanna, viðskiptafólks, listamanna og fólks af öllum sviðum atvinnulífsins, félag sem getur þrýst á stjórnvöld með kraftmiklum hætti.
Fundurinn mun standa tæpa klukkustund og þar munu tala þau Þóra Ellen Þórhallsdóttir, doktor í grasafræði, Reynir Harðarson deildarstjóri hjá CCP, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarkona og ferðafrömuður auk leikkvennanna Maríu Ellingsen og Margrétar Vilhjálmsdóttur sem kynna dagskrána.
- -
Ég vona að þetta verði öflugt félag með sterka talsmenn. Ekki bara rómantíska fólkið úr listalífinu í lopapeysum heldur ábyrgir stjórnarformenn með bindi og einkaþotur. Þannig ímynd þurfa þessi samtök til að geta haft áhrif. Og gvuðminngóður hvað það er mikilvægt að þessi málstaður hafi áhrif.
Veðrið í dag

Það er náttúrulega bara verið að gera grín að manni... 50 dagar í brottflutning.
sumarið og tónleikar
Tíminn flýgur áfram bókstaflega. Ég á þrjár vikur eftir í vinnunni og svo förum við Danni í svolítið sumarfrí og notum tímann til að pakka niður. Reyndar erum við á leið norður um næstu helgi í útskriftina hennar Hönnu systur og ætlum að taka eins mikið af dóti með okkur þá og við getum. Það þýðir að við þurfum að pakka eins og mofo núna í vikunni.
Við nældum okkur í tónleikamiða fyrir helgi á tónleikana með Belle and Sebastian og Emiliönu Torrini sem verða á Borgarfirði Eystri í lok júlí. Við verðum á norðurlandi um þetta leyti en það hittir reyndar þannig á að tónleikarnir eru á laugardeginum 29. júlí en brottför með norrænu frá Seyðisfirði er á fimmtudeginum þar á eftir... við stefnum á að "skutlast bara" austur á tónleikana og skilja Danna eftir, og vera svo nokkra daga fyrir norðan áður en við förum aftur austur... *úff* nokkuð löng bílseta. En alveg örugglega þess virði.
Hræsnin er algjör!
draumalandið - mörkin milli draums og veruleika
Ég les bækur ekki oft. Eiginlega allt of sjaldan. Síðasta bók sem ég las var Harry Potter en ég man ekki lengur númer hvað, sennilega sú næstsíðasta... er ekki bara ein eftir?
En núna er ég sokkin niður í bók, keypti hana í IÐU á Lækjargötu, hélt að ég væri þar með að styrkja einyrkja sem væri að berjast á móti straumi í harðri samkeppni bókamarkaðarins, líkt og ég fer glöð og eyði 25% meira í Melabúðinni fyrir sambærilegar vörur en í Bónus, nema þá heyri ég útundan mér að afgreiðslumaðurinn í IÐU segi við einhvern annan kúnna að hann ætli að leita að einhverju í lagernum á Eymundsson - þetta sé nefnilega sama keðjan! (Ég verð mjög sár ef ég heyri kjötsalann í Melabúðinni segja þetta einhverntíman um Bónus)
Dóh.
Allavegana, ég keypti bókina.
Ég opnaði hana í hádeginu í vinnunni í gær og var komin djúpt inn í nokkrar fyrstu blaðsíðurnar þegar ég rankaði við mér og fór aftur að vinna (við færibandið á hönnunarstofunni). Ég gjörsamlega sogaðist inn.
Í kvöld þegar strákurinn var farinn að sofa, Óli fór eitthvert út að horfa á körfubolta og ég ætlaði að fara að pakka niður fyrir norðurferðina á morgun greip ég bókina og settist í sófann okkar góða.
Mér líður núna vægast sagt eins og í einhverri geðshræringu, samt bara komin á blaðsíðu 85.
Akkúrat núna er maður að hugsa hvað er það sem skiptir engu máli í lífinu og hvað skiptir öllu máli. Það má ekki stimpla þessa bók sem pólitískt áróður eða athyglissýki einhverra listaspíra. Hún er ekki þannig.
Ég á örugglega eftir að segja meira um hana, en fyrst ætla ég að lesa meira og láta alla mína fjölskyldu, tengdafjölskyldu, vini og ættingja nær og fjær lesa hana líka.
Þessi bók heitir Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð og er eftir Andra Snæ Magnason
Ég skil alveg orð Silju Aðalsteins þó svo ég sé bara komin á blaðsíðu 85...
Fáið ykkur Draumalandið, takið hana að láni á bókasafninu, kaupið hana í bókabúðinni, lesið hana við bókaborðið eða stelið henni ef þið eigið ekki fyrir henni. Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA!
Flokkað sem bækur / heimilið / hönnun / lífið sjálft / ýmislegt /
4
Evróvision
Ég held að íslenska þjóðin hljóti að vera frekar súr út í Silvíu Nótt og félaga þessa stundina. Atriðið var óskaplega veikt og bara arfaslakt. Held að flestir hafi búist við einhverjum breytingum frá því þegar það var sýnt hérna heima en það var ekki. Þetta var bara eftir uppskrift og rútína er ekkert mjög fyndin. En þau fá stóran plús fyrir að hrista þó það mikið upp í þessu liði að vera púuð út.
Annars eigum við aldrei eftir að komast upp úr þessum undanúrslitum. Aldrei. Landið liggur einfaldlega ekki þannig. Samt komast Írar áfram þó svo þeir hafi álíka landfræðilega legu og við. Það er örugglega af því að þeir spila inn á sín þjóðlegu einkenni og fá líklega virðingu út á það. Kannski hefði Friðrik Ómar með sinn ljósa koll og skandinavísku gleði komist áfram. Kannski ættum við að senda hina færeysku Eyvör með víkingalag næst? Eða bara hætta þessu og kaupa okkur eitthvað fallegt fyrir peninginn.
En ég er glöð að við komumst ekki áfram, þá þarf maður ekki að horfa á þetta hrikalega atriði aftur og getur leigt einhverja ræmu á laugardagskvöldið.
gott framtak - enn af PR stöntum!
Mbl.is - Frétt - Jóhannes Jónsson og börn gefa 300 milljónir til Barnaspítala Hringsins
Ef þetta er ekki þokkalega "in your face, kæra ríkisstjórn" - þá veit ég ekki hvað!
pólitískt blogg nr.3 - PR stönt ?
Er engum sem finnst undarlega hentug tímasetning á þessu máli með Bandaríska herinn nema mér ? Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Baugs skandallinn skellur á þjóðinni og ríkið tapar heilum helling (andvirði nokkurra ára reksturs hágæslu á Barnaspítalanum), þá allt í einu fær ríkisstjórnin símtal frá ráðamönnum í USA sem segja þeir séu hættir að leika við okkur.
Skemmtileg tilviljun að skandallinn um réttarhöldin yfir Baugi er ekki fyrsta frétt í kvöldfréttum heldur bara einhver korter-yfir-sjö frétt.
Skemmtileg tilviljun að Mogginn þarf ekki að sýna á forsíðunni í dag að Baugsmenn séu saklausir.
Ég er kannski bara þannig gerð en mér finnst þetta nokkuð gott PR stunt til að fá fólk til að gleyma sem fyrst. Vegna þess að það er að virka.
Or I could be wrong.
pólitískt blogg nr.1
"Ef nýsköpunarfyrirtækjum eins og CCP væri boðið upp á sams konar skattaafslætti og kjör og stóriðjunni væri ekkert því til fyrirstöðu að CCP starfaði á Sauðárkróki eða þess vegna Húsavík"
Hvað er fólk eiginlega að pæla með þessu ál-æði þegar svona tækifæri eru að fara forgörðum?
*skjálf*
hver pantaði þetta ógeðslega veður!!! mér er kalt inn að beini... hvernær hættir maður að láta bjóða sér þetta og fer að drekka kokteil á heitri strönd í sandölum með hatt?
símasaga
Vinnan mín er búin að hafa sama símanúmerið í 4-5 ár. Þar rétt á undan var þetta númer tengt við Hótel Sögu í fjöldamörg ár en þegar það losnaði þá nældum við í það vegna þess að þetta var gott númer, óafvitandi um "sögu" þess. Þetta hefur orðið til þess að í öll þessi ár þá er annaðhvert símtal þannig að menn vilja fá samband við eldhús, bóka herbergi, finna gesti og þess háttar, og furða sig á því þegar við segjum; no, this is an advertising agency. -oftast á ensku því útlendingar hringja í meira mæli, sennilega margir enn með gamlar skrár eða upplýsingar. Samt mikið um íslendinga líka sem hringja og það þarf yfirleitt að segja þeim það þrisvar að þetta er EKKI HÓTEL SAGA!! :)
Þetta er hætt að fara í taugarnar á mér, finnst það oftast bara fyndið að fólk skuli vera með svona gamlar upplýsingar, hef reyndar aldrei verið svo vond að taka niður bókun á herbergi. Í morgun hringdi hins vegar einn náungi sem talaði íslensku með hreim, sennilega arabískum eða tyrkneskum hreim, ekki alveg viss en samtalið var einhvernvegin svona:
Dagný: Mixa hönnun, Dagný
Náungi: já mig vantar vinnu hjá þér
D: já, þá þarftu að senda tölvupóst
N: en ég á ekki tölvu
D: hmm
N: get ég ekki bara komið?
D: nei, ég ræð þessu ekki, sú sem ræður verður við seinna í vikunni
N: seinna í vikunni? en mig vantar vinnu núna, ég get gert hvað sem er, skúra..
D: já þvi miður, þú verður bara að hafa samband seinna
N: Seinna? en ég verð að fá pening núna! ég skulda svo mikið, hvað á ég að gera??
D: já því miður get ég ekki hjálpað þér, þú verður að leita annað líka, ég held líka að það sé ekkert laust (líst ekki á blikuna)
N: en ég er búin að hringja út um allt og verð að fá vinnu strax það er búið að hóta mér ég skulda svo mikið, þú verður að láta mig fá vinnu
D: því miður ég get ekkert hjálpað þér
N: það er búið að hóta að saga af mér puttana (og fleiri lýsingar sem ég fer ekki nánar í) ég verð að fá vinnu og pening strax
D: því miður, leitaðu áfram og gangi þér vel
N: jæja en get ég komið og búið hjá þér?
D: (ekki að kveikja) (svolítið skelkuð: nei því miður, vertu sæll og gangi þér vel
..um leið og ég lagði á fattaði ég að auðvitað var maðurinn að reyna að fá vinnu á Hótel Sögu, ef þetta var eitthvað gabb þá vona ég líka að hann haldi að hann hafi verið að að gabba símadömuna á Sögu.
keypt og selt
Hið stórmerkilega hefur gerst, sófanum okkar gamla ljóta - en þó góða - verður skipt út í sumar því nú höfum við pantað ítalskan eðalsófa með teikniáklæði sem litlu börnin í Kína geta farið að byrja að sauma saman. Gripurinn er væntanlegur eftir um það bil 12-15 vikur (frekar langur meðgöngutími finnst mér) og er nú síðasti sjens að koma og sitja hjá okkur í lörfunum.
Athugið! Nú er einstakt tækifæri að eignast sófa með sál, til sölu er sófasettið okkar, 3-2-1, einstaklega fallegt og vel með farið sett, selt hæstbjóðanda, tilboð óskast, afhending eftir 12-15 vikur.
nammnammmmm
Mig langar að senda styrktar og samúðarkveðjur til mömmu minnar sem er í vinnunni í bankanum. "Tölvukerfið" ákvað að gera smá aprílgabb og hreinsa allt út af bankabókunum, hún er í því skilst mér að bakfæra og leiðrétta og svara í símann öllum þeim sem ætluðu að taka Kringlukastið snemma í morgun en uppgötva að kerfisdraugurinn er búinn að éta allt upp.
Strength to you, Mom!
Til hamingju með afmælið mamma mín!
Já, hún mamma mín á afmæli í dag, síung að vanda. Bestu hamingjuóskir fóru til hennar í pósti áðan, en netsambandið er búið að vera, tja ekki til staðar í allan dag. En hér með fær hún hamingjuóskir og svo ef til vill símtal í kvöld.
Do they know it's christmas time at all...
já gamla band aid lagið er farið að hljóma aftur, í nýjum búningi með nýjum stjörnum sem hver og ein gefa af sér eina línu eða svo. Er nokkuð nema gott um það að segja?
Mér hefur samt alltaf fundist vera einhver hrokafnykur af þessu lagi. Þessi vestræni hroki sem segir að "my way is the right way" og allir aðrir sem hafa það ekki eins og ég hljóta að hafa það miklu verra. Auðvitað er það hugurinn sem skiptir máli í þessu lagi og það að verið er að reyna að fæða hungraðan heim en þetta fer eitthvað í mig.. where nothing ever grows, no rain no river flows...
Svo er annað mál að ef menn hefðu virkilega áhuga á því að bæta hungur heimsins þá væri löngu búið að því en það er önnur og lengri pólitík.
En hvað veit ég svosem, ég sem hélt alltaf að þau segðu "people wOOoo" í viðlaginu en ekki "feed the wOOOoorld" þangað til bara núna :S
S60 er komin í hús!
Foreldrar Óla komu til landsins í dag og keyptu í búðinni alveg geysifagra myndavél fyrir okkur, kvöldið hefur því farið í allskonar prufutökur til að testa hina og þessa fídusa. Það er nefnilega hægt að stilla allt, allt frá ljósopi og hraða upp í styrkleika flassins og hægt að velja um fuglasöng eða hið hefðbundna smell þegar maður smellir af. Dásemd.
Af þessu tilefni gluggaði ég aðeins í Ljósmyndabókina eftir John Hedgecoe frá árinu 1982, sem situr hér spök uppi í hillu og stendur enn mjög vel fyrir sínu. Geysilega góð bók. Eftir smá flett í henni langar mig mjög mikið að versla filmu í gömlu Polaroid myndavélina hennar mömmu sem er að rykfalla niðri í geymslu hjá mér, og taka nokkrar myndir á hana. Þó svo nýja digital vélin geti gert ALLT þá stendur gamla Polaroid alltaf fyrir sínu.
Aðalfundur
Það styttist óðum í aðalfund Pjúsarafélagsins. Hann hefst klukkan 18:42 á hinum hefðbundna fundarstað. Fundarsköp eru nokkur og góð og verður þetta vafalítið mjög fróðlegur og skemmtilegur fundur.
missis major
frábært, skipulagsstjóri borgarinnar orðin borgarstjóri, var ekki nóg komið? Sjáið þið ekki lífsgleðina skína úr augunum á henni, lífsþróttinn í hverju brosi, hamingjusemina og trúnna á framtíð borgaranna í heilbrigðri, hreinni og fallegri borg?
Sá ég hana ekki í Addamsfamilí hérna um árið?
námslánin
brillíjant fréttir þar sem ég byrja að borga niður námslánin á næsta ári.
Olíumálið
Þar sem kaffistofan á vinnustaðnum mínum í dag er ekki mjög fjölmenn þá þarf ég aðeins að viðra mig hérna.
afmælisdrengurinn
Mig langar að óska mínum elskulega unnusta til hamingju með afmælið í dag. *smúúts*
ég gaf honum hálfvita í afmælisgjöf, það er golfkylfa.
meiri bush
í beinu framhaldi af síðustu færslu, getur ekki einhver sagt við þennan mann: þú ert rekinn!!!
usa
Je minn eini hvað ég vona að John Kerry vinni forsetakosningarnar í usa í nóvember. ég hef ekki mikið vit á bandarískum stjórnmálum en ég þekki fávita þegar ég sé hann og hef séð hann of oft á skjánum. ég þekki mr. Kerry ekki mikið heldur en allt hlýtur að vera betra en sá sem ræður ríkjum í dag.
ég óttast það samt að hann nái ekki að sigra. Bush er meiri showbusiness gaur og skemmtilegri á heimskulegan hátt og það virðist höfða meira til fólksins heldur en þurr en sæmilega skynsamur pólitíkus. ég er samt glöð að nokkuð margir kanar hafa séð fahrenheit 9/11, það gefur manni von.
neysluhyggjan hefur neikvæðar hliðar
Nú kemur kvarthornið.
ég er orðin svolítið pirruð á því að dót sem maður hefur vanið sig á að kaupa er alltaf tekið af markaði loksins þegar maður er kominn upp á lagið með það.
þetta byrjaði allt með sprey-gelinu hans óla, í dag er hvergi hægt að fá gel svona sæmilega vatnskennt með svona úðapumpu. Svo var það Aussie hárdótið sem ég gat alltaf gengið að í Nóatúni -mega góð hárnæring, en nei, nú er það horfið og ekkert sæmó komið í staðin. (Hárvörur í stórmörkuðum eru kapítuli út af fyrir sig!). það nýjasta er svo Colgate Baking Soda tannkremið sem hvarf af yfirborði jarðar fyrir nokkrum mánuðum -þrátt fyrir tíu mismunandi tegundir frá Colgate þurftu þeir að hætta við þetta. Núna þarf ég að bíta í það súra að nota eitthvað blátt geldrasl eða eitthvað svo ótrúlega sterkt að það er engin leið að gefa sér tíma í tannburstun. ég fann reyndar eitt sem var ágætt á bragðið en svo fór ég að taka eftir óvenju miklu glimmeri út um allt baðherbergi... túban var semsagt með "áprentuðu" glimmeri (eitthvað sensationable dæmi) og þegar búið var að handfjatla hana í nokkur skipti hafði glimmerið losnað af og var komið út um allt.
þá hugsaði ég til BakingSoda með söknuði.
En hvað verður það næst, munu ostaslaufur heyra sögunni til og kóka kóla tekið niður úr hillum?
nei kannski ekki kókið en hver veit.
ég hef sjaldan hlegið eins
ég hef sjaldan hlegið eins mikið. Baddý snillingur!
hvað varð um ásu?
hvað varð um ásu?
oh, men! (hristir hausinn)
oh, men!
(hristir hausinn)
sjóarinn mikli
Pabbi er frækinn sjóari en er þetta ekki einum of!
gó girl!
Velkomin í hópinn Freyja! Megir þú eiga langt og farsælt blogglíf framundan.
TIL HAMINGJU MEð DAGINN!!
á þessum yndisfagra vordegi á litla systir mín afmæli. ég kom við hjá henni áðan og ætlaði að færa henni litla gjöf en þá var hún ekki heima, sagðist síðan vera í bíltúr og ekki svo þunn.... je right...
En litla dúllan er 24 ára í dag, hún nálgast mig óðfluga í aldri þessi snót.
extreme makeover
hanna systir fékk nýtt langþráð útlit í kvöld.
pirr
Vá hvað það er orðið þreytt að hringja í fólk í útvarpinu og reyna að vera eitthvað fyndinn. Sérstaklega kaflinn þegar fólk er ekki búið að svara og útvarpsmaðurinn er að reyna að segja e-ð til að fylla upp í -so ten years ago! Talandi um pirrandi, Myndbandablaðið, Birta og fleiri gæðatímarit státa af dásamlegum þýðingum. Hvernig væri að ná sér í stúdentspróf áður en maður fer að reyna að færa texta úr slúðurblöðum yfir á íslensku.
extreme makeover
Baddý systir fékk nýtt lúkk í kvöld, um daginn var það Mundi.. ætli Hanna verði ekki abbó núna?
föstudagsbrandarinn
Freyja sendi mér þennan:
Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér í glas. þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann í barþjóninn: - Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?
á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: - "áður en þú segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast - af því að þú ert nú blindur - að ég fræði þig um fáein atriði:
1. Barþjónninn er ljóshærð kona.
2. útkastarinn er ljóshærð kona.
3. ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate. .. Og ég er ljóshærð.
4. Konan við hliðina á mér er ljóshærð og er íslandsmeistari í lyftingum.
5. Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er íslandsmeistari í vaxtarrækt.
Hugsaðu þig nú vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?"
Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið og segir: "Nei, ætli það. Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum."
hún á...
Mamma mín á afmæli í dag. Til hamingju Mamma! :)
wóa!
ómægod hvað Tetris yrði ánægður ef hann fengi svona búr.. Ofursvalt að hafa þetta uppi í hillu.
Ef einhver á kassa utan af Cube sem hann vill dóneita þá tek ég glöð á móti slíku!
bílamálin
Jólainnkaup ársins voru gerð í gær þegar við fórum í Toyota umboðið eftir að hafa selt Sunny um þrjúleytið í gær. Hálftíma seinna keyrðum við burt á semi-nýjum Toyota Avensis þar sem pláss er fyrir barnavagn, golfsett, tugi gæsa og meira til! Laglegt!
sunny seldur
ótrúlegt en satt, núna daginn eftir að við komum norður þá erum við búin að selja litla bílinn okkar. Náungi á Akureyri keypti hann eftir að hafa séð myndirnar af honum í blöðunum og við afhendum hann sennilega á morgun. Við erum með tvo bíla í sigtinu hérna í Toyota umboðinu á Akureyri svo það gæti farið svo að við myndum kaupa nýjan/notaðan Avensis á morgun líka. það yrðu alveg ágætis jólainnkaup.
Allavega veit ég ekki alveg hvernig við komum okkur suður annan sunnudag, það er sjálfsagt seinnitíma vandamál.
hann á afmæl' í dag....
Mig langar að óska afmælisbarni dagsins til hamingju með daginn.. ólafur Magnússon er árinu eldri í dag en lítur svo sannarlega ekki út fyrir að vera það! Til hamingju!
Veit einhver annars hvaða gella
Veit einhver annars hvaða gella stal síðunni hennar Höddu? Maður ætti kannski að breyta linknum til hliðar í hann Hreiðar Nóa
virkilega productive monday!
virkilega productive monday!
mamma sendi mér þennan brandara:
mamma sendi mér þennan brandara:
Vitið þið af hverju það er ekki búið að gefa út frímerki með Davíð Oddssyni ??
því sjálfstæðismenn myndu þá ekki vita hvora hliðina ætti að sleikja!
eeeheheheehe
jólaundirbúningur
enn er komin helgi og enn er hún farin aftur.
þetta er ótrúlega fljótt að líða. ég bakaði þó eina sort í dag, kornflextoppa. Setti special k í þá svo það væri smá hollusta á móti stífþeyttum sykri og súkkulaði. ég held nefnilega að þeir séu mjög vítamínríkir núna, enda er súkkulaði líka grænmeti/baunir.
Svo skrapp ég til Lilju mágkonu í morgun og hún gaf mér afganginn af grenigreinunum sem hún keypti fyrir aðventukransinn sinn. ég er ekki mikið fyrir að búa til svona kransa en skreytti litla habitat jólatréð með greninu í staðin. það kom alveg ágætlega út, ætli það verði ekki bara "aðventukransinn" á heimilinu.
Svo er 1. des á morgun og í fyrsta skipti á ævinni er ég ekki í fríi þann 1. des. það er alveg ferlegt, þó það sé fínt og frábært í vinnunni þá höndlar það ekki samkeppnina við það að vera heima og slappa af.
J.Lín
neisko, er ekki hanna systir búin að fá smá útlitsupplyftingu?
áhugavert en ekki mjög djúpt
nýtt dú
ó mæ gúddness hvað það er frábært að fara í klippingu.. ég hljóma eins og algjör afdalamaður en síða hárið sem ég var að reyna að safna var ekki að gera sig og var farið að valda hausverk og almennri vanlíðan. Nýja klippingin er hinsvegar algjört rokk, þökk sé prímadonnu á grensásvegi.
fólk er fífl
þetta heyrðist á FM í gær ,,ooog þá er komið að íslandsvinunum í Foo Fighters sem hrifust svona af landi og þjóð og ekki má gleyma fólkinu" !!! Hvort er það scary eða bara yndislegt hvað þetta eru miklir hálfvitar?
timewarp!
Svolítið skrýtið henti mig um helgina, reyndar á föstudaginn, rétt eftir fimm. ég var að fara niður í þvottahús en það er leigjandi í herbergi sem er við hliðina á þvottahúsinu, einhver kona á fertugsaldri sem er alltaf heima með skjáleikinn í gangi, vibbalykt sem kemur úr íbúðinni og hefur stundum verið að böggast ef einhver fer í þvottahúsið seint á kvöldin.
Allavega, ég var að opna þvottahúshurðina þá kemur hún fram og segir það er bannað að fara í þvottahúsið á þessum tíma dags...
ég varð svo hissa að ég öskraði (næstumþví): ha? klukkan er fimm?!
þá bakkaði hún inn og sagði ó sorry, i'm in a timewarp, skilurðu og þegar ég leit framan í hana sá ég að augun voru gjörsamlega á floti hún var svo dópuð.. núna veit ég ekki hvort hún sé á löglegum lyfjum en ég leyfi mér að efast um það.
Auðvitað má fólk gera það sem því sýnist heima hjá sér en manni getur ekki staðið á sama þegar maður er vanur að umgangast fólk sem veit hvernig sólarhringnum líður. Sem betur fer (!) á hún ekki marga vini í sama ástandi þessi ólukkans kona þannig að það er ekki mikið ónæði af henni hérna í húsinu, það eru bara allir á vakt.
gæs
3kg af gæsakjöti er komið inn í frystinn en veiðimennirnir komu til byggða í fyrradag (svona er ég dugleg að update-a) og virtust vera sæmilega heilir heilsu. En ef það á að veiða meira þá þarf að fara að halda matarboð til að losa frystinn, einhverjir sjálfboðaliðar?
einn, tveir og... hann á afmæli í dag....
það er alltaf gaman þegar einhver á afmæli. í dag á hann Guffi afmæli, til hamingju með það! ![]()
megi skorkvikindi rotna í fúlum pytt
það er ógeðslegur geitungur búinn að koma sér fyrir í stofuglugganum og ég held hann ætli að drepast þar...jakkkk...
ég opnaði svalahurðina fyrir 3 klst síðan og dró fyrir allann gluggann og vona að hann drulli sér út!
það væri alveg típískt ef það væru komnir 5 vinir hans núna að japla á stofublómunum í glugganum.. ég þori ekki að gá.
birthdayalarm
af því ég er svo mikil afmælisstelpa langar mig að vita hvenær þú átt afmæli. þetta er ein af svona þjónustum sem er algjörlega nauðsynleg án þess að vera það. það er bara svo leiðinlegt að gleyma afmælisdögum svona óvart.
meðleigjandi óskast...
.. íbúð þarf að fylgja með, helst einhleypur, myndarlegur og fjárhagslega stöðugur karlmaður af góðum ættum. Viðkomandi hafi samband við litlu systur mína.
hverfið skelfur
það berast óendanleg fagnaðarlæti af vellinum þessa stundina og ég fæ svarthvít öskur beint í æð hérna í tölvuherbergið. Mér finnst samt skemmtilegra að ímynda mér að það sé brids eða bobbsleðakeppni í gangi.
hún á afmæli í dag...
Til hamingju Freyja með afmælið!! Vonandi var dagurinn fagur í Dublinarborg.
Mér heyrist að það hafi
Mér heyrist að það hafi verið fjör á Roskilde.. enda kannski ekki við öðru að búast. En vá hvað ég hefði alveg verið til í að vera þarna, allavega til að sjá Björk, Thievery Corporation og Sigurrós. En það verður samt frábært að fara til Danmerkur í júlí, ég hlakka þvílíkt til þess.
du-dudduru...
á morgun ætlar Vigdís vinkona mín að hlaupast á brott með honum Einari sínum og gifta sig. þau eru afskaplega sætt par, við fórum í mat til þeirra um daginn og í kvöld ætlum við, nokkrar stelpur úr skólanum, að bjóða Viggu í smá dekur og út að borða.. úbs, má kannski ekki segja of mikið ef hún skyldi kíkja inn. En ég veit að það verður ofsalega gaman í kvöld, og frábært á morgun hjá þeim skötuhjúunum.
ég fékk örlítið aukaslag fyrir
ég fékk örlítið aukaslag fyrir hjartað áðan. ég gat ekki hringt úr símanum mínum og auk þess fékk ég ekkert hljóð úr honum þegar ég hringdi í hann.
Minnug þess að gamli síminn minn dó einmitt svona þá var mér ekki orðið alveg á sama.
Eftir að hafa slökkt á honum og kveikt aftur (endurræsingar klikka ekki..) þá virðist hann vera kominn í lag.
ppl !!
hvítasunnubrandarinn hans ragga er eitraður.
Annars er MT væðingin ógurleg um þessar mundir. Já Mundi bróðir er kominn, Hanna er vökuð til lífsins, Svenni er MT og svo voru einhverjir fleiri sem ég man ekki eins og er. gaman gaman.
Baddý systir er með bloggræpu
Baddý systir er með bloggræpu af bestu gerð. ég vildi óska að ég væri svona dugleg að blaðra..
fiskar
Eftir að ég fékk gullfiskinn tetris í afmælisgjöf er ég búin að skoða svolítið vefi um gullfiska, sérstaklega tjorvar.is sem rekur gæludýrabúð í bílskúrnum sínum í Elliðaárdalnum. ég fór reyndar að skoða búðina fyrir helgi til að athuga með verð og stærð á "alvöru" fiskabúrum, hann var með fínt úrval en ég fór samt tómhent heim. Mig dauðlangar nefnilega í nokkra fiska í viðbót en þeir komast auðvitað ekki fyrir í kúlunni litlu.
En þegar maður fer að grafa svona eftir upplýsingum þá finnur maður ótrúlegasta fólk, það er hægt að vera nörd yfir hverju sem er og ég er sko búin að finna nokkur fiskanörd. Nörd=sá sem hefur brennandi áhuga á einhverju ákveðnu og ræktar þann áhuga vel -skv skilgreiningu sem ég heyrði e-n tíma hjá Mása og það er því mesti misskilningur að vera nörd sé neikvætt!
ég er samt búin að kaupa 70l. notað búr á smá penge þannig að það gæti farið að fjölga í kotinu á næstunni.
golf
Golf er skrítin íþrótt. Tveir þjóðfélagshópar eru ótrúlega áberandi þar, ungir vel klæddir (=vel menntaðir? veit ekki.. snobbaðir.. já kannski) karlmenn annars vegar og svo eldri hjón hins vegar. það er eins og konur fari ekki nema mennirnir þeirra séu á svæðinu líka og í svipuðum galla og þær, ótrúlega týpískt. Samt það litla sem ég hef kynnst af golfi eftir að hafa farið nokkrum sinnum á æfingasvæðið með óla skil ég vel að fólk geti orðið húkt á þessu. þetta er nú ekki svo leiðinlegt þó það sé jafnvel svolítið tilgangslaust (sund er það reyndar líka) en þegar sveiflan er komin í ágætis lag þá gæti þetta orðið skemmtileg hreyfing; að pota í bolta og elta hann svo uppi. Hver veit.
martröð bjúrókratans
það er ekkert jafn ömurlegt og að eiga ónýtan gatara.
Við sitjum hérna slefandi yfir
Við sitjum hérna slefandi yfir nýja bílnum hans Tryggva. Til hamingju með bílinn Tryggvi, .. en ekki segja mér að bíllinn geti sent þér skilaboð?
Ofursvalt!
þetta er búinn að vera
þetta er búinn að vera slakur dagur, slakur í merkingunni afslappaður. ég og fisher erum búin að vera eitt síðustu daga og ég fór í smá hjólreiðitúr í dag, í gær hjólaði ég upp í skóla og það er verulega gaman að fara í gegnum miðbæinn, þó hann sé rotinn. Mikið væri samt gaman að hafa góða almennilega hjólastíga og hjólamenningu hérna, eins og í Amsterdam hefur hjólreiðafólk óskráð yfirráð yfir götunum og maður má verulega passa sig að verða ekki fyrir þeim. það er æðsti draumur minn og fishers. Kannski við ættum bara að fara til Amsterdam, þar er allavega næga vinnu að fá.
gunna er fræg. ég tók
gunna er fræg. ég tók við hana viðtal.
ondushresign
raggo er farinn að blogga í sumarfríinu, gott hjá honum.
ég er búin að finna
ég er búin að finna góða lausn á nammifíkn. í staðin fyrir að kaupa sér bland í poka er betra að fá sér raspberry born lippy varasalva úr body shop. Lyktin af honum er þannig að það er eins og maður sé að bera gúmmíbirni á varirnar á sér, svo er hann fínn á bragðið og örugglega ekki svo margar kaloríur. nice
påske måske?
páskarnir störtuðu vel, á brilliant heimboði til ó+E á föstudaginn langa. Síðan þá er ég eiginlega búin að búa uppi í skóla og óli á golfvellinum. Við tókum samt upp á því í síðustu viku að kaupa okkur eitt lítið páskaegg saman. Svo þegar Hanna systir og þorsteinn kærasti hennar komu í borgina á skírdag færðu þau okkur sitt hvort eggið frá mömmu og pabba, sem ákváðu að eyða páskunum í Dublin. Systur mínar og mágur ætla svo að koma í mat í kvöld, það verður grillað fram á rauða nótt!
auður og bjarkey hafa mikið
auður og bjarkey hafa mikið rætt um persónulegt blogg undanfarið og ábyggilega dagný líka fyrir stuttu. vá hvað ég er komin stutt með þetta. mér finnst meira að segja erfitt að blogga um hverstagslega hluti, bara hvað ég gerði í dag eða e-ð. mér finnst alltaf erfitt að ímynda mér að einhverjum gæti fundist þetta merkilegt. ég vil bara segja húrra fyrir þeim og öllum hinum hugrökku bloggurunum. þetta spjall þeirra hefur hleypt í mig lífi (allavega um stundarsakir) og vonandi mun ég blogga eins og brjáluð!!
á morgun
á morgun ætlum við að skella okkur upp á Skaga í eitt stykki fermingarveislu. Mig minnir að ég hafi ekki komið á Akranes síðan ég fór með Akraborginni yfir sundin blá í skólaferðalagi í sjöunda bekk.
En allavega, þetta er frændi hans óla sem er að fermast þannig að meginþorri tengdafjölskyldunnar verður þarna og alveg bókað að það verður margt hægt að spjalla um. Auk þess sem við höfum ekki komist í almennilega rjómatertu í marga mánuði!
Annars vorum við bekkjarfélagarnir að spjalla um fermingar um daginn og þá kom í ljós að einhver sem einhver þekkir og hefur haldið víst nokkuð margar fermingarveislur, skellir bara upp félagsvist á nokkrum borðum þannig að alla veisluna situr fólk og spilar þannig að allir ná að spjalla við alla og það vantar aldrei umræðuefni.
Annars vona ég að veðrið á morgun verði aðeins verra en það var í dag, maður þarf jú að sinna Verkefninu.
gunna.net
Hún Gunna, mín hugaða æskuvinkona sem sigldi burt af klakanum í febrúar er búin að landa giggi í Dublin, þangað sem hún flúði til að finna nýtt umhverfi og ný tækifæri. Til hamingju Gunna! í dag Dyflin.. á morgun London París Róm...
(vá væmið!)
það er svo gaman hvað
það er svo gaman hvað það þarf lítið til að gleðja mann.
áskorun
fékk email..
> 12. apríl nk. kl.21.00 munu allir mótmæla með að slökkva á öllum
> rafmagnstækjum, og kveikja á kerti á götum úti í 10 mínútna þögn til
> heiðurs látnum í írak.
>
> í öllum heiminum !!!
>
> Ekki gleyma að senda þetta áfram á alla sem þú þekkir, til að rödd
> heimsins
> heyrist í þögninni .
þetta rétt sleppur passar, spaugstofan er búin kl 20:50 þannig að landinn ætti að geta tekið þátt.
< / end sarcasm >
G-ið rúlar bara. ég er
G-ið rúlar bara. ég er búin að vera að fylgjast með þessari sigurgöngu okkar og ég verð að segja að ég er stolt. já og ég var að setja inn myndir frá útskriftinni. gaman af þessu.
G bekkurinn er að rústa
G bekkurinn er að rústa öðrum í skráningu á stúdentavefinn okkar, yfir 50% svarhlutfall! Geri aðrir betur.
tilgangurinn
Bekkjarsystur mínar eru að ræða saman fallega hluti og komust að góðum sannleika um tilgang lífsins, kannski hinum eina sanna? það verður hver að dæma fyrir sig.
ég pæli stundum í því hvað í ósköpunum ég er eiginlega að gera í þessu lífi, listnám er ekki mjög vænlegt til árangurs í kapphlaupi nútímans ef maður ætlar að taka þátt í því, þó svo að ég sé kannski á hagkvæmustu braut skólans en það að geta starfað við það sem maður hefur mestan áhuga á finnst mér ótrúlega stórt hluti af því að vera hamingjusamur í lífinu, þó svo maður sé ekki að moka inn peningum.
Svo er sagt að maður sjái ekki tilgang lífsins fyrr en börnin manns fæðast.
Annars er ég nokkuð ánægð með Auði, það er yndislegt að verða vitni að því þegar fólk sýnir sínar einlægu hugsanir og ég mætti alveg vera aðeins duglegri við það sjálf.
Einu sinni var ég leynibloggari, frá mars 2000 fram á mitt ár 2001 var ég afskaplega feimin við þetta og vildi ég ekki segja neinum í kjötheiminum frá þessum "dagbókarskrifum" jafnvel þó það væri fjarri því að vera merkilegt sem ég var að segja, fjallaði bara um hinar og þessar síður sem ég fann á netinum og yfirleitt ekki neitt persónulegt. Samt er ég á því að það er miklu skemmtilegra að lesa það sem er persónulegt heldur en hitt.
ég er alltaf að reyna að hugsa þannig að ég sé bara að tala við sjálfan mig og af virðingu við aðra reyni ég að tala ekki mikið um þá. Tilgangur (svo maður komi nú aftur að honum) þessara "dagbókar"skrifa er í meginatriðum sá að varðveita hugsanir manns sjálfs og þess vegna er maður að gera þetta fyrir sjálfan sig og engan annan, maður fær bara eitthvað kikk út úr því að aðrir geti lesið þetta. eða hvað?
út er komin þýðing á
út er komin þýðing á faðirvorinu yfir á nútímamál. Er þetta ekki það sem þeir meintu allan tíman?
grélaðarblogg
Muna: bæta Veigu sætu við á linkalistann. Bloggið hennar er skemmtilega súrt ;)
Lilja Kristín
Eins og Auður nefnir þá er liðið ár síðan Lilja bekkjarsystir okkar dó. ég setti inn mynd í minningu hennar á júbílantavefinn okkar í dag en svo fór ég að spá pínu í hvort Lilja hefði viljað hafa þetta svona? Hefði hún ekki sagt að þetta væri einum of væmið?? Mig grunar það pínu. ég á hins vegar enga góða mynd af henni sem ég gæti sett inn þannig að ef einhver lumar á slíkri má sá hinn sami alveg koma henni til mín og ég set hana inn.
Svo setjum við það inn í dagskránna yfir hátíðarhelgina að leggja blóm á leiðið hennar. ég fór nefnilega ekki á jarðaförina fyrir ári síðan og sé mjög eftir því, þó svo ég hafi minnst hennar hérna heima. ég er nefnilega búin að hugsa mjög til Lilju síðustu daga eftir að við fréttum af önnu Maríu, fv. bekkjarsystur hans óla en hún dó í síðustu viku. Jarðaförin hennar var í dag.
ma98
Afrakstur dagsins má sjá á ma98.net. óli klári setti saman einn grunn og í samvinnu við Trigger eyddum við einni kvöldstund í að skrifa ofaní hann. Núna er málið bara fyrir samnemendur okkar að setja inn upplýsingar, ég ætla að senda út póst í fyrramálið, það er hér með komið á to-do listann!
Sumir eru greinilega dottinn í
Sumir eru greinilega dottinn í kosningahugleiðingarnar svipað og ég hef verið pínulítið undanfarið, bara af því ég á að vera að hugsa um aðra hluti en það.
Mér finnst nefnilega það sem er á boðstólum í þessum kosningum vera sama gamla klisjan og alltaf. Persónulega finnst mér Ingibjörg Sólrún og hennar gengi vera afskaplega óspennandi kostur og mun aldrei kjósa hana fyrir mitt litla líf. Svo eru líka forsetakosningar á næsta leyti þannig að maður veit aldrei nema hún bjóði sig fram í það, af fenginni reynslu!
Tryggvi talar svolítið um skattamál og ég er sammála mörgu sem hann segir. Samt er ég glöð yfir því sem ég heyrði einhversstaðar einhverntíman (örugglega frá Hannesi Hó) að skattalækkun leiði ekki endilega til þess að tekjur ríkisins lækki heldur eru þær hvetjandi til þess að menn vinni meira, kaupi meira og framkvæmi meira og þar með aukast tekjurnar í kassann.
ég er samt eiginlega alveg viss um að ég gleymi því að kjósa því lokasýningin okkar er 10 maí.. og á hverjum degi glymur niðurtalningin... aðeins 40 dagar í kosningar!!
æ æ
nýjustu tölur sýna að TU
nýjustu tölur sýna að TU bekkurinn er með forskot í stigakeppni póstlistans. Hvar eruð þið félagsfræðideildarfólk? offline?? trúi því ekki!
kosningaslagurinn er byrjaður, ég fékk
kosningaslagurinn er byrjaður, ég fékk hringingu frá Arnljóti Bjarka vini mínum og færeyinga um hóf í rúgbrauðsgerðinni í dag á vegum D í norð austur. ég nefndi það reyndar ekki við hann en ég hugsa að ég mæti ekki á svæðið.
Um daginn fengum við svo gesti í heimsókn, Laufey og Mumma sem núna er kosningastjóri fyrir vinstri græna í NV. Hann spurði hvort ég hefði tíma í að setja upp nokkrar auglýsingar fyrir flokkinn en þar sem lokasýningin byrjar á kjördag, 10. maí, hef ég ekki tíma fyrir neitt annað fyrr en eftir það, sem er aðeins of seint. ég er nefnilega ekki svo pólitísk þó svo pólitískur áróður sé með því kraftmeira og skemmtilegra sem maður sér sem grafískur hönnuður. -þegar það er vel heppnað! það gerist bara svo sjaldan á íslandi.
En allavega er ég frekar fegin að sýningin og kosningarnar bera upp á sama tíma, það gefur manni frí frá því að setjast fyrir framan sjónvarpið og fínt að fá frí frá því að fylgjast með. það breytist hvort sem er aldrei neitt.
ma98.net
slagurinn er byrjaður, G-ið og VX-ið eru nú jöfn að stigum í netfangaskráningakeppninni, bæði með 6 stig. AB ið rekur lestina með aðeins stigið frá særúnu. Spennan er gríííðarleg!
það er eitt jafn ömurlegt
það er eitt jafn ömurlegt og að gleyma símanum sínum heima, og það er að gleyma veskinu sínu heima. uhhh
jójójó!
árgangur 1998 frá MA er kominn með póstlistakerfi og eru allir viðeigandi vinsamlegast beðnir um að skrá sig á póstlista á www.ma98.net og breiða út boðskapinn á bloggum heimsins. Póstlistarnir verða notaðir til að senda út póst vegna vefsins, hátíðarinnar og almennrar gleði og hamingju. þess vegna er mikilvægt að allir nái að skrá sig svo hamingjan verði sem mest.
ma98.com
það fer alveg að koma tími á að gera eitthvað nýtt á www.ma98.com. Við Tryggvi byrjuðum að fiffa eitthvað um daginn en það varð ekkert meira úr því, sérstaklega þar sem ég var yfir mig stressuð út af ritgerðinni. ætli ég nái að gera eitthvað meira áður en ég verð yfir mig stressuð út af lokaverkefninu?
Allar hugmyndir eru líka vel þegnar varðandi vefinn, eiga þetta að vera "hvað-ertu-að-gera-í-dag" spurningar og þá hvaða spurningar??
10 ára stúdentar eru með vef á ma93.tk og 25 ára stúdentar eru með eitthvað hérna, það er ekki spurning um að okkar verður flottari... hvenær sem hann kemur nú upp...
mogginn lýgur ekki
Mási og Salvör fara á kostum í mjög áhugaverðri grein um blogg í miðopnu moggans í dag. þrátt fyrir að margir bloggarar hafi dáið bloggdauða um jólin og áramótin þá er bloggið bersýnilega ennþá inn.
afmæli
í dag á Páll Hlíðar, systursonur hans óla stórafmæli. það er ekki oft sem maður verður eins árs gamall! Litla krúttið býr í Glasgow þessa dagana og heldur uppá afmæli sitt þar.
og áslaug er ekki ennþá
og áslaug er ekki ennþá komin inn.. hvað er í gangi?
mein schwesterling
ég var að skipta út útlitinu á blogginu hennar Baddýjar, hún var í 40's förðun í skólanum og þessi skutlumynd var tekin þá.
Hún er á lausu.. eftir því sem ég best veit ;)
