Eftirfarandi eru færslur í flokknum "matur"
mánudagssoðning
Fyrir helgi kom "fiskibíllinn". Hann er reyndar ekki með bjöllu eins og ísbíllinn svo það lætur lítið yfir honum. Þetta er íslenskur maður sem flytur og selur fisk víða um Danmörku. Hann var reyndar búinn að hringja á undan sér og náði á nágrannakonu minni, sem tók niður pantanir fyrir nánast allt hverfið. Við keyptum þrjá kassa af sjófrystum ýsuflökum, alls 7.5kg. Ýsa heitir "Kuller" á dönsku og við höfum ekki fundið hana hér í fiskbúðum, í raun höfum við ekki fundið góðan fisk nema skötuselinn sem var frekar dýr steik.
Kílóverðið á ýsunni var 110dkr sem ég held að sé nokkuð íslenskt verð, en þar sem þetta er "munaðarvara" akkúrat núna þá gripum við tækifærið. Síðast þegar við keyptum íslenskan fisk, sem var í gegnum annan aðila, var kg á 60kr. Það var líka næstum gefins.
EN allavega, hún smakkaðist dásamlega og sonur minn gomsaði í sig tveimur skömmtum, sem er fáheyrt við matarborðið
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / matur /
1
Það má segja að ég hafi gefið upp öndina...
Stundum getur maður bara ekki staðist það. Ég er búin að horfa á þetta tilboð í nokkra daga, kíló af andabringum á 100 kall. Þrjár stórar og feitar ferskar bringur í pakka.
Ég ákvað að kaupa í sunnudagsmatinn.
Og sem þær voru góðar, Mmmm,.. ein og hálf var nóg ofaní fjölskylduna. Krydduð með salti, pipar og timjan, steikt á grillpönnu til að byrja með og svo inni í ofni. Meðlætið var grænmeti grillsteikt uppúr hunangi; gulrætur, sveppir, epli, paprika, laukur, ásamt bökuðum kartöflubátum. Hún smakkaðist dásamlega þó svo sonur minn hafi ekki verið sammála, en hann á aðeins eftir að þróa matarsmekkinn sinn.
Strax í gærkvöldi fór ég að finna smá ónot í maganum en vaknaði svo í nótt við að ég þurfti bara nauðsynlega að skila einhverju frá mér.. upp..
..og þar fór öndin.
Innyflin eru semsagt búin að vera á hvolfi í dag, óskemmtilega. Svona fyrir ykkur sem viljið vita.
Reyndar sluppu strákarnir báðir við þetta, annar borðaði aðallega eftirmatinn og ætli hinn hafi ekki svigað framhjá rjóðustu bitunum.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem ég fær í magann eftir að hafa borðað kjöt hérna, við erum eiginlega hætt að kaupa rautt kjöt og sérstaklega ekki þýskt kjöt eftir skandalinn sem varð hérna í fyrra. (Þá komst það upp að matvælaeftirlitið var í lamasessi, hafði engin fjárráð og fáa starfsmenn, og nokkrir gámar af tveggja ára gömlu kjöti biðu við þýsku landamærin eftir áköfum búðareigendum. Danir voru með æluna í hálsinum í nokkra mánuði). Yfirleitt kaupi ég danskt lífrænt hakk og einstaka sinnum danskar svínalundir. Kannski er ég með einstaklega ofverndaðan maga.
Ég þarf allavega að kíkja betur á umbúðirnar á þessum blessuðu andabringum í næstu búðarferð, kannski stendur í smáu letri að þessum öndum hafi verið slátrað í austurlöndum fjær og fluttar á fleka til Þýskalands þar sem þær voru geymdar í ókældu vöruhúsi áður en þær voru fótósjoppaðar að utan og sendar í Bilka handa grunlausum og gráðugum kjellingum sem horfa á verðmiðann í stað innihaldslýsingarinnar.
Kannski var þetta bara einhver pest sem er að ganga, vonandi því þá á ég eina og hálfa gómsæta andabringu í frystinum. En sennilega kemst ég aldrei að því, og á meðan liggur öndin frosin undir grun.
Það er nefnilega svo gjarnt með tilboðsvörur hérna að kjúklingabringurnar eru kannski frá Brasilíu eða Indonesíu (í alvöru, ég sá það einusinni) og þá eru þær náttúrulega bara á túkall stykkið. Lambakjöt er ekki hægt að fá nema Nýsjálenskt og mér finnst eitthvað rangt við að versla vöru sem var alin hinumegin á hnettinum. En sennilega er það bara ég.
Ég held að landbúnaðarvöruframleiðendur (er þetta orð?) á Íslandi þurfi ekkert að óttast þó svo það verði opnað fyrir markaðinn með erlendar landbúnaðarvörur heima, ef íslensku vörurnar eru vel merktar þá munu þær alveg halda sínum sessi því gæðamunurinn er svo mikill að hann réttlætir verðmuninn.
tómatsúpa með beikoni
Hún er ömurleg, pestin sem er búin að hrjá mig síðustu dag og ekkert lát er á. Þegar þannig er statt er ekkert betra í kvöldmatinn en góð, kraftmikil og heit súpa. Með nokkrar uppskriftir við hlið mér og afganga úr ísskápnum varð þessi til:
húsfrúarleikurinn
Það er mikið rætt í fjölmiðlum á íslandi um hátt matarverð þessa dagana. Sjálfri hlakkaði mig til áður en við fluttum að fara út í búð og kaupa nokkra poka af ferskum mat fyrir nánast engan pening, en sá draumur rættist varla, eða kannski var hann of háfleygur.
Flokkað sem danmörk / heimilið / matur / samfélag /
3
kvöldmaturinn
Kvöldmaturinn var sjúklega góður. Við fundum nefnilega ferskar kalkúnabringur á fínu verði í Krónunni um daginn og gerðum uppskrift úr uppáhalds uppskriftabók heimilisins: Uppskriftir Nýkaupa. Það eru örugglega allir búnir að gleyma því hvað Nýkaup var en þessi bók lifir góðu lífi, enda enginn annar en Siggi Hall sem á uppskriftirnar þarna.
Kalkúnabringan góða var fyllt og uppskriftin er sáraeinföld:
hádegismatur
Ég fór út í 10/11 í hádeginu, einu sinni sem oftar. Er farin að reyna að venja mig á það að borða brauð, álegg og jógúrt í hádeginu amk fyrstu þrjá daga vikunnar, ágætt að vera ekki að strauja kortið alla daga. Ég fékk mér banana ofan á brauðið og ætlaði svo að fá mér eitthvað kjötálegg og fór að skoða úrvalið.
Innihaldslýsingarnar fyrir svona kjötálegg eru ekki geðslegar; amk 3-5 E-merkt aukefni plús vatn, salt og sykur. Ég endaði á að kaupa einhverja kalkúnaskinku sem á víst að innihalda kalkúnabringu. Það sem sjokkeraði mig mest var samt að það er til eitthvað sem heitir Skóla Kjúklingaálegg, sem inniheldur kjúklingakjöt (ath ekki bringu) og svínaspekk! ásamt góðum slurk af bindi- og rotvarnarefnum. Auðvitað töluvert ódýrara en kalkúnabringan mín en sjensinn að maður myndi nokkurn tíman láta bjóða sér þetta!
Sorglegast er að þetta er selt sem "Skóla.." sem þýðir að það er verið að mælast til að krakkar borði þetta í nesti, að þetta sé "nógu gott" ofan í börnin. Pæliði!
Æji, þetta stuðaði mig svolítið. Ekki það að ég sé alltaf að borða eitthvað voða hollt og lífrænt og þannig, en mér finnst bara frekar óhugnalegt þetta rusl sem er í boði, og að það sé verið að ýta því að þeim sem hafa ekki þroska til að velja.
nammidagar og agaleysi
Eitthvað eru nammidagar ekki að virka fyrir þennan búk. Ég er búin að komast að því að ég er gjörsamlega agalaus og siðlaus þegar kemur að súkkulaði. Hika ekki við það að gabba sjálfa migút í einhvern óþverra sem ég hef móral yfir í marga klukkutíma. Ég hef næstum því ánægju af því líka. Hvað er málið?
Ég verð að fara að uppgötva eitthvað hollt í hádeginu. Það er ágætt upp að vissu marki að fara í 10/11 og kaupa sér brauð til að eiga í nokkra daga en þá er maður gjörsamlega vonlaus í að velja álegg. ÓM átti reyndar góðan sprett í upptalningu á miðbæjarstöðum hérna um árið og ætti hann skilið kommisjón hið minnsta, fyrir þessar ábendingar.
Kannski er málið bara að taka með sér nesti og samlokubókina.
brugghús
Jáh, ekki vissi ég af þessu brugghúsi sem á að byggja fyrir norðan, næstum því í bakgarðinum heima. Norðurferðirnar fara að verða sérstaklega áhugaverðar.
gestgjafinn og uppskriftir svona almennt
Ég verð að fá að hrósa vef gestgjafans sem er er ekki bara flottur heldur einstaklega nytsamlegur þar sem við erum alltaf að fletta upp og leita að uppskriftum á netinu. Eldhus.is hefur vissulega staðið fyrir sínu en þarf að fara að spýta í lófana (og þvo sér um hendurnar eftirá auðvitað) til að ná að halda í skottið á Nönnu og co.
Ég er reyndar ekki áskrifandi sjálf að blaðinu (ennþá í blankheita námsmannagírnum), en ég fletti því alltaf þegar ég kem til mömmu og finn nær alltaf eitthvað sem mig langar að prófa. Svo á ég líka stóru stóru bókina hennar Nönnu sem er eiginlega eina matreiðslubókin sem maður þarf að eiga.
Hvernig ætli höfundarréttur sé annars á uppskriftum? Ég er nefnilega að safna saman yfirliti yfir það sem við höfum yfirleitt í kvöldmatinn og er komin með ágætis lista. Sumt er úr uppskriftabókum en annað er frá vinum eða eitthvað sem ég hef sullað saman og óvart gert eitthvað gott.
Svo ætlaði ég að taka flottar myndir og setja saman í pdf bók sem hægt væri að skoða og bæta við, ætli það sé lagalega ekki alveg í lagi?.. ætli ég eigi von á að Siggi Hall banki uppá og skammi mig fyrir að sýna öllum pizzu-uppskriftina sína? Ég hef auðvitað vaðið fyrir neðan mig og segi hvaðan hlutirnir eru komnir, ef ég veit uppruna þeirra.
Eða er þetta kannski eins og með tónlistina að ef fjórði hver taktur er öðruvísi þá er verkið "orginal", þá væri nóg að setja smjörlíki í staðin fyrir smjör og salvíu í staðin fyrir basilíku. Maturinn yrði sennilega ekki eins góður en kópíur eru heldur aldrei eins góðar og orginallinn.
Ég þyrfti að spurja einhvern að þessu.
Og á meðan ég er á annað borð að fjalla um mat, hvað mynduð þið hafa með spínatfylltu fersku pasta?
kvöldmaturinn
Þegar við vorum fyrir norðan síðast gaf pabbi okkur saltfisk sem við elduðum í kvöld. Ég hef aldrei verið mikil saltfiskmanneskja, þrátt fyrir að geta státað af áralangri starfsreynslu í vinnslu hans, þannig að eitthvað varð að malla úr honum annað en þetta hefðbundna.
Reyndar fengum við hugmyndina að eldun hans í morgunsjónvarpinu og stóðumst ekki mátið. Saltfisk risotto. Auðvelt og merkilega gott!
morgunmatinn í rúmið?
Ég er alveg hrikalega löt við það að borða morgunmat á morgnana. Yfirleitt hef ég ekki verið með neina matarlyst þá, helst drekk ég kannski glas af eplasafa áður en ég rýk út. Ég reyndar komst inn í ágætis rútínu með morgunmatinn þegar ég var heima með Danna, þá fékk ég mér cheerios með jógúrt sem er alveg ágætt en einhvernvegin dettur það núna uppfyrir þegar maður hefur eytt of miklum tíma í að sjæna sig á morgnana. Það kemur því fyrir að ég fer út með tóman maga og man svo kannski ekki eftir því að borða fyrr en undir hádegi, sem er alveg arfavitlaust!
Eins og svo margt er þetta bara spurning um vana; að venja sig á að byrja á því að fá sér eitthvað. Rútína er hamingja.
Eitthvað í mér langar pínu að skoða þetta Spirulina dót sem fæst í apótekinu, auglýsingarnar (þó ljótar séu) glepja mann alveg en ég veit samt ekki um neinn sem hefur notað þetta. Æji annars trúi ég ekki á töflur.
æ karamba!
Í gær elduðum við mexikanskt nachos salat með kjúklingi sem var alveg svívirðilega gott, það er í raun allt mex sem manni dettur í hug; chilibaunir, maísbaunir, paprika, tómatar, nachos, hot salsa, avocado, chili, ferskur koriander... sett í eldfast mót með svolitlum osti og hitað í ca korter við 200´ getur varla klikkað. Nema í gær þá komumst við að því að ísland er algjörlega kórianders-laust í dag, þe þetta ferska er ófáanlegt, reyndar athuguðum við ekki í hagkaup, drottningu matvörubúðanna, en ef melabúðin og nóatún (sem stilla sig inn á gourmet) klikka þá er ástandið ekki gott.
Ég vænti þess því að kórianderinn sem ég sáði og er að vaxa í eldhúsglugganum hjá mér, verði seldur á uppsprengdu verði, ef ástandið heldur svona áfram.
me so huungry
Tíu Ellefu í götunni er undir major construction, búið að rífa allt út úr búðinni og ekkert nema spítur og steypa þar inni núna og enginn salatbar. Þetta verður mjög flott þegar allt er græjað, en ég er samt búin að vera að hugsa í allan morgun hvað ég eigi eiginlega að fá mér í hádegismat... eitthvað nálægt og ekki mjög dýrt. Subbuway kemur ekki til greina.
Annars er "kaffihúsið" hérna niðri að loka mjög fljótlega og þá finndist mér tilvalið að jói fel opni eins og eitt nett bakarí fyrir neðan. ég lifi í draumi, ég veit.
Deli kemur til greina, Sómaloka í einhverri sjoppunni, jafnvel Serrano handan við hornið, svo er reyndar ákaflega stutt í Hlölla. Ég sé út um gluggan að það er ekki löng röð... right
jahérna hér
Í súkkulaðikexinu Elitesse sem ég var að borða er eitt af innihaldinu "hreinsuð repjuolía!" Hvað í fjáranum er Repjuolía?? ég vil ekki vita það reyndar, hljómar eins og eitthvað miður geðslegt. Huggun í harmi kannski að hún er "hreinsuð!"
*huhuughhh..*
Pizza a la chef
Kvöldmaturinn þennan ágæta dag var frá Eldsmiðjunni þar sem við létum kokkinn ráða álegginu og útkoman var heldur betur ekki ónýt: pepperoni, sólþurrkaðir tómatar, sveppir, rjómaostur, ólívur, parmesan ostur og krydd. Ójá.
sunnudagsmaturinn
Ég ætlaði alltaf einusinni að vera rosa dugleg við að pósta kvöldmatsuppskriftunum hingað inn því stundum vantar manni alveg ferlega hugmyndir að kvöldmat. En einhvernvegin hefur þetta farið fyrir ofan garð og neðan. Í kvöld var bara dósar tikkamasala kjúklingur með grjónum, gott en mjög hversdags. Í gær hins vegar önd í matinn, (átak í að losa um pláss í frystinum fyrir næstu veiðivertíð) mikið rosalega var sú önd góð. Svona var hún elduð...
þetta eina sanna
Getur einhver sagt mér hver munurinn er á diet coke og coca cola light? Ég er auðvitað hætt í kókinu en af því ég er nýungagjörn og læt platast í svona markaðstrixum þá fékk ég eina svona "light" (brandið minnir mig á sígarettur) og þvílíkt ógeð, alveg eins og diet coke. Fyrsta bragðið sem ég fann var helv, aspartam bragðið. Þegar ég var hálfnuð með flöskuna fann ég vissulega þetta kókbragð en restinni hellti ég niður.
eilítil hönnunarkrítík
Ég elska fallegar uppskriftabækur. Þær sameina þrennt sem ég hef mikinn áhuga á; matur, fallegar ljósmyndir og fallegt og vel upp sett letur. Þegar maður hefur auga og bragðlauka í þetta þá á það ekki að geta klikkað. Tímarit eru ennþá dásamlegri þegar þau heppnast vel, draumadjobbið væri í raun að setja saman röð tímarita sem fjalla um mat. MMMmmm já.
kvöldmaturinn
Júgóslavneskur gúllasréttur úr dásamlegu matreiðslubókinni hennar Nönnu.
me likes
Samkvæmt þessu er ég með mjög svo hjartvæna skúffuköku í ofninum.
súkkusukkið
Það er orðin ákveðin regla að þegar við keyrum suður eftir að hafa verið í góðu yfirlæti hjá fjölskyldunni fyrir norðan að við ræðum um mataræðið okkar og það að fara í nammibann og hætta að drekka gos og svona. í‰g veit ekki hvað vekur upp þær umræður, ekki það að við sukkum svona mikið að okkur sé ofboðið eða slíkt. En allavega þá er niðurstaðan yfirleitt á við hefðbundið áramótaheit: að hætta að borða óhollt. Svo þegar komið er inn fyrir borgarmörkin þá einhvernvegin gleymist þessi eldmóður sem ríkti á Holtavörðuheiðinni og hugsunin um að panta sér bara pizzu í kvöldmatinn verður yfirsterkari.
Annars er Óli nokkuð öflugur í þessu, enda segi ég að það sé miklu auðveldara fyrir stráka en stelpur að ætla sér að hætta að borða súkkulaði. Hann er hættur í kruðinu í vinnunni og ég er að verða búin með hraunkassann sem ég faldi inni í skáp. Enda vil ég meina að það sé álíka erfitt fyrir stráka að hætta að drekka bjór eins og stelpur að neita sér um súkkulaði.
En ætli árangurinn muni ekki sjást í holdarfarinu, því er nú verr.
ilmur dagsins
það hlýtur að hafa verið þannig í gamla daga að þegar börnin sváfu úti í vagni og mömmunni langaði geðveikt út í bakarí að hún byrjaði bara sjálf að baka. þannig hófst sagan.
það er nefnilega kryddkaka í ofninum, ég hef gert svona stykki svo oft að ég gæti gert hana blindandi með vinstri hendi og fyrir aftan bak. Lestu meira til að sjá uppskriftina
kvöldmaturinn
Kvöldmaturinn kom ágætlega út, við áttum svolítið eftir af humri inni í frysti skelltum því í þessa uppskrift sem var frekar einfalt og gott. Minnti mjög mikið á fiskréttinn sem við höfum oft gert og ég mæli sérstaklega með!
can't beat the feeling
þegar ég var yngri þá ákvað ég og var staðráðin í því að drekka ekki kók þegar ég yrði ólétt. það er fullt af óhollum aukaefnum og pakkað af sykri að ég gat ekki hugsað mér að gera litla barninu það að dæla í því óhollustu.
ég vil telja mér trú um að ég hafi valið mig frá því (þe valið frekar sódavatn) á mest krítíska tímanum en því miður helst þessi staðfesta ekki nógu lengi og núna langar mig geeeeheeðveikislega mikið í kók -ískalda súperdós. ég vona bara að sonurinn erfi ekki þessa lifnaðarhætti.
kvöldmaturinn
Nú þegar ég er búin að vera í "orlofi" í nokkra mánuði (aldrei verið eins mikið að gera þrátt fyrir það) þá hef ég reynt að lifa mig inn í húsmóðurhlutverkið eins og ég mögulega get. ég er (but ofcourse) búin að baka nokkrum sinnum -ilmurinn úr eldhúsinu verður svo góður við það- en ég er að kljást við sömu spurninguna á hverjum degi; hvað á að hafa í kvöldmatinn? það má nefnilega ekki allt hafa sama svarið. Oftast leysist þetta farsællega og ég sé oft eftir því að hafa ekki skrifað niður ef við höfum dottið niður á eitthvað sniðugt, en nú ætla ég að reyna að bæta úr því og segja hvað var í matinn í kvöld...
á sunnudaginn var haldin hér
á sunnudaginn var haldin hér síðbúin skírnarveisla til heiðurs honum Daníel. á boðstólum var dýrindisréttur #686 (kickass!) og #349 örlítið breyttur en þrusugóður þó -ásamt sörunum frá tengdó sem hafa aldrei klikkað. Kransakökuafgangurinn gleymdist þó fyrir norðan og ég vona að ma og pa hafi nartað í síðustu hringina.
feed me!
ég trúi því ekki ennþá hvað ég borðaði mikið í gær. Við fórum út að borða með vinnufélögum hans óla á Apótekið sem er alveg snilldar staður. án gríns þá erum við að tala um þríréttað plús sushi og maki á milli rétta og örugglega líter af vatni. ég held ég geti ekki borðað það sem eftir er vikunnar.
brauð dagsins..
Bakaði fyrirtaks skinkuhorn í dag, henti hveiti um allt eldhús og yfir sjálfa mig og klíndi deigi á öll þau eldhúsáhöld sem ég gat fundið. Afraksturinn bragðaðist vel og er dágóður slatti kominn í frystinn sem kemur sér vonandi vel á næstu vikum.. allavega stendur í öllum þessum gömlu húsmæðrabókum að maður eigi að eiga eitthvað svona í frystinum, ég hlýði bara enda þarf ég að lifa mig inn í hlutverkið.
það komu líka afskaplega ljúfir tónar frá uppþvottavélinni eftir athafnir dagsins. þarf að fá mér átómatíska bekkjartusku, eða svona mr proper kall sem þrífur í einni svipan.
Guð er góður!
þetta er það besta sem ég hef heyrt lengi, kom í fréttablaðinu í dag:
„Niðurstöður nýrrar könnunar voru birtar nýlega en þær snúa að súkkulaðiáti og barneignum. Vísindamenn sem stóðu fyrir könnuninni fullyrða að konur sem bryðja súkkulaði á hverjum degi meðan þær eru barnshafandi eignist hamingjusamari börn en þær sem fúlsi við súkkulaði. Vísindamenn segja ákveðin efni í súkkulaði vekja vellíðan hjá fóstrinu og það leiði til þess að eftir fæðingu hlæi börn og brosi meir en ella. Könnunin var gerð í Helsinki þar sem 300 konur og börn þeirra voru rannsökuð.“
Say no more!
Páskadraumur
ég myndi fá mér páskaegg ef það væru framleidd egg úr dökku súkkulaði. ég sé fyrir mér að inni í því væri marsipansúkkulaði, djúsí rjómakaramellur, súkkulaðihúðaðar kaffibaunir, líkjörfyllt konfekt......úff, get bara ekki haldið áfram. Nema að Litla Syndin Ljúfa verði bara páskaeggið mitt sem er súkkulaðikaka með blautum kjarna.
Svo var sambýlismaður minn að benda mér á að það er hægt að fá páskaegg í Café Konditori Copenhagen, kannski maður kíki á það. Svo bendir óli líka á að það er ekki nauðsynlegt að borða páskaegg. ég blæs nú bara á svoleiðis vitleysu.
hmm..
ætli það sé óhollt að borða heilt bréf af SS spægipylsu á dag í nokkra daga.. þetta er unaðslega gott álegg!
namm namm
Við hjónin fórum í fylgifiska eftir ungbarnasund í gær...vá! Kokkurinn þarna er guð. Keyptum smá af humarforrétti með saffran, sem var rándýr en hver vill ekki smakka humar og saffran. þetta var guðdómlegt. Svo voru keyptar silungssteikur með sesamfræjum og kóriander, það var bara snætt með kús kús með smá ekta smjöri saman við O! my! god!
Tilvalið þegar maður er með gesti í mat. Las það í Elle decoration að það er inn að leggja vel á borð og skreyta, helst svona soltið barrokk og panta svo bara tilbúin mat. Himnesk upplifun og úber kúl.
Matur 2004
þessi helgi er búin að vera tileinkuð mat. í gær fórum við óli út að borða á cafe operu því Halla hafði gefið mér gjafabréf þar sem við ákváðum að nýta á meðan það var eitthvað pláss eftir í kviðnum á mér. Eftir dásemdar steik fékk ég mér þann mesta delisjuss eftirrétt sem ég hef vitað af.. (Sweet Suffle Sensation hefði einhver sagt). Ber, ávextir og hnetur í bland við súkkulaði suffle og vanilluís, ásamt þremur tegundum af sósu. Gvuð minn!
í dag rákum við nefið inn á matarsýninguna í kóp sem var ákaflega fín, allavega höfðum við ekki mikla lyst á kvöldmat.
var einhver að tala um mat..
fjörmjólk er best.... með feeeeeitri skúffuköku
Pot-roasted Pork in White Wine
Pot-roasted Pork in White Wine with Garlic, Fennel, and Rosemary. Chardonney frá Chile. Tómat, mozzarella og basil salat. Heilir hvítlauksgeirar. Kertaljós. Cappuchino, hvítvín og súkkulaðiostakaka. Say my name.
á þessu heimili er fólk
á þessu heimili er fólk að kveikja á kókosgrilluðum kjúklingi hann er álíka góður og hnetupastað enda líka með hinni heilögu þrenningu, hvítlauk, engifer og chili. Svo er ég búin að uppgötva nýja heilaga þrenningu, tómatar, mosarella og basil, allt ferskt vitaskuld.
fishyfishy
Fiskur í hátíðarbúningi hefur aldrei klikkað svo við skelltum honum í ofninn.
Smákökusæla
Núna eru síðustu smákökurnar að skríða út úr ofninum í fyrsta smákökuhollinu. þær eru alveg ágætar, heitar með kaldri mjólk, þó ég segi sjálf frá. Reyndar átti að vera púðursykur í þeim líka (2 bollar) en hann var svo glerharður (fattaði ekki að setja brauð á hann í gær) að eftir að hafa náð að mala 2 msk af honum í mixernum ákvað ég að sleppa honum bara.
í þeim eru svo möndlur og súkkulaðibitar.. jummm.. myndirnar til hliðar tala kannski sínu máli.
laugardagskvöldmaturinn
Kvöldmaturinn var hátíðlegur. Ekkert sérstakt tilefni nema það að við þurftum aðeins að rýma til í frystinum fyrir fiskinum sem pabbi ætlar að færa okkur á morgun. Við elduðum semsagt tvær gæsabringur, af gæs sem féll þetta haustið. Uppskriftina fengum við í Veislubók sem ónefnd stórverslunin gaf út fyrir einhverjum árum. Gæsin var guðdómleg, þó væg lýsingarorð séu notuð.
Við skárum smá vasa í hvora bringu, endilangt og fylltum með niðurskornum eplum, pekanhnetum, timjan og bráðnu smjöri, kryddað með salti og pipar og steiktu létt á hvorri hlið. Svo pensluðum við þær með hunangi og settum inn í ofn í 10-15min. Með þessu var svo villisósa, (úr bréfi) bragðbætt með rifsberjahlaupi og bláberjum (innfluttum sem allir vita að eru engan vegin eins og íslensku bláberin), kartöflur í skallotlauksgratíni. Almáttugur hvað ég hef ekki etið svona mikið lengi.
samlokubókin
ég er sökker fyrir flottum bókum. þegar ég fór í hagkaup úti á nesi áðan til að versla í matin rakst ég á samlokubókina sem var að koma út. ég keypti hana bara af því hún er í svo flottu broti, svo komst ég að því þegar ég kom heim að hún er geðveikt girnó í þokkabót og stútfull af skemmtilegum hugmyndum. ein uppskrift af samloku er þannig: brauð, egg - tómatar - agúrka í sneiðum og nýtínd fjóla (blómið) ofaná. brilliant!
síðasta kvöldmáltíðin
kvöldmaturinn? kjúklingur að hætti Lilju mágkonu (bringa í bitum böðuð í sólþurrkuðum tómötum, fetaosti, pesto og olíu, eldað í ofni), eftirréttur? Rjúkandi nýjar biscotti að hætti húsbóndans!



RSS veita