Eftirfarandi eru færslur í flokknum "hönnun"
Hvað hefur gerst síðan ég bloggaði síðast ?
Fyrir utan síðustu færslu þá bloggaði ég síðast í mars. Það eru að verða 3 mánuðir síðan. Ársfjórðungur. Þriðjungur úr ævi yngri sonar míns. Já, hugsið ykkur, síðast þegar þið heyrðuð frá mér var hann liggjandi ósjálfbjarga hvítvoðungur. Brjóstmylkingur. Núna hefur hann útsýni yfir heiminn og hámar í sig lifrarpylsu, sætar kartöflur og mangó; ávexti sem þekktust ekki á norðurhveli jarðar fyrir nokkrum árum. Svona er hann fordekraður.
Síðan síðast hef ég stofnað mitt eigið firma, ráðið bókara og fengið nokkur verkefni til að dunda við og sent minn skerf í ríkissjóð. Þá botnlausu hýt. Ef þetta væri í fyrra væri ég sennilega búin að bóka viðskiptavildina og taka út fyrirframgreiddan arð, en nú er öldin önnur. Nú er mottóið að búa til verðmæti og skapa störf, fá góðar hugmyndir og útfæra þær, hugsa jákvætt, halda höfðinu hátt og brosa breitt. En helst af öllu hala inn erlendan gjaldeyri.
En í rauninni er þetta bara stök snilld; með stórt skrifborð, makkann, stóra bókahillu, barnið úti í vagni beint fyrir neðan gluggann og barnapíuna í gangi sem vaktar hverja stunu. Og ég sit við lítinn glugga og horfi beint upp í Hlíðarfjall og inn Glerárdalinn.
Svolítið eins og Carrie í SATS, nema að hún horfði út á götu á Manhattan, en annars alveg eins.
Það sem ég hef verið að baksa við eru merkingar á nokkrar plastumbúðir, bæklingur og merki ásamt nokkrum vefsíðum. Um daginn skráði ég líka daia.is og þegar mér gefst tími til verður því snúið yfir á okkar ástsæla tungumál.
Það er því nóg að gera hérna á efri hæðinni, alveg þangað til litli labbakútur fer að naga loftnetið á barnapíutækinu og iCal segir mér að nú sé tími til að hossast á fætur og hreyfa lappirnar í átt að leikskólanum.
En svo er það líka málið að góðu hugmyndirnar og framkvæmdagleðin vilja oftast komast í gang á kvöldin, helst eftir klukkan tíu.

Lopafrík
Um daginn bauðst mamma hans Óla til að prjóna á mig lopavesti. Dásamlegt boð en þegar ég fór að skoða litina í léttlopanum fékk ég snert af valkvíða. Þetta eru rosalega flottir litir, allir auðvitað svolítið "skítugir" og ótrúleg flottir tónar. Þá fékk ég hugmynd, af hverju ekki að útbúa forrit þar sem maður getur sett inn litatónana í mismunandi peysumynstur og séð hvernig þetta kemur út.
Og þá fæddist lopafríkin.
Hún er komin í loftið en er ennþá í vinnslu, svo hún gæti og mun auðvitað breytast eitthvað. Til þess að gera hana betri er nauðsynlegt að fá komment frá þeim sem villast þangað inn og prófa.
"Frík" er ekki endilega neikvætt orð, lýsir einhverjum sem hefur óseðjandi áhuga á einhverju, svolítið í ætt við "nörd" kannski. Sem dæmi er "heilsufrík" ekkert sérstaklega neikvætt, í mínum eyrum amk.
Þetta er semsagt forrit gert í flash. Ég hef alltaf hatað flash og fór í tveggja ára nám til að reyna að sættast við það og verða eitthvað góð í því. Það tókst ekki en þetta er hins vegar búið að vera mikið stuð og svei mér þá ef ég hef ekki bara lært eitthvað.
Nú er bara að halda áfram, bæta við pre-loader og fleiri mynstrum, setja inn hina lopalitina og tengja mynstrin við réttar lopategundir og setja jafnvel prjónáferð á peysurnar. Hugsanlega seiðandi bakgrunnstóna.
Ístex og Védís sem eiga textílhönnunina eru búnir að leggja blessun sína yfir þetta, en það væri gaman að heyra frá fleirum með ábendingar. Til dæmis hvort þetta geti verið nytsamlegt svona yfirleitt.
Hugsandi einstaklingar gera skapandi samfélag
Þó það sé kreppa í landinu þá er alltaf nóg að gera hérna megin við heiðina. Ég er með nokkur vinnuverkefni í gangi, reyni samt sem áður að takmarka það á meðan drengurinn er mjög ungur en ég verð samt að halda mér við og halda í samböndin. Auk þess sem mig langar til að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt, jafnvel þó það borgi ekki enda bannar sjóðurinn mér að vinna á meðan ég er á fæðingarstyrk námsmanna. Fáránlegt, en látum það vera.
Ég verslaði slatta af barnafötum þegar við bjuggum úti í DK jafnvel þó snáðinn minn væri ekki fæddur. Danir eru snillingar í að hanna barnaföt og fullt af merkjum (1,2,3,4,5,6) sem eru ekki bara með flott mynstur heldur frábær snið og leggja mikið uppúr gæðum þannig að bómullin sé lífræn og þannig laus við skaðleg efni, og að senda út góðan og fallegan boðskap í vörumerkinu. Mig dreymir þessa dagana að fara að sauma barnaföt með flottri grafík og þægilegu sniði, aldrei að vita nema ég skoði það betur eftir jólin. Hér með komið á todo listann.
Ég útbjó um daginn opnuna mína í Gráu bókina sem verður gefin út í tilefni af 55 ára afmælis FÍT, félags íslenskra teiknara. Arkitektafélag Íslands er líka að leita að nýju merki og ég hef verið að velta fyrir mér að senda í þá samkeppni, ekki komin langt með það reyndar og er að renna út á tíma með það. Svo var ég að spá í að taka þátt í vöruþróunarverkefni Útflutningsráðs Íslands og Hönnunarmiðstöðvar Íslands og er búin að vera að skissa á fullu. Það er skemmtilegt og virkilega krefjandi verkefni. Um daginn var haldin ráðstefna um hönnun og nýsköpun og það væri áhugavert að fá samantekt af henni til að sýna hverju hún hefur skilað, bæði fyrir þá (mig) sem komust ekki og svo boðskapurinn lifi áfram.
Ég finn það einhvernvegin í loftinu að það er ótrúlega mikil orka og vilji til að gera samfélagið meira skapandi og betra, og ef eitthvað jákvætt er við þessa niðursveiflu þá verður það að við erum farin að líta okkur nær. Það eru komnir 7 árgangar sem hafa útskrifast frá hönnunardeild LHÍ og þar margir alveg frábærir hönnuðir og multi-talentar. Núna er þessi hópur ásamt öðrum að taka við keflinu því það verður varla í boði lánsfjármagn til stórframkvæmda -amk ekki á sömu kjörum og voru, enda er það litlu framkvæmdirnar sem við þurfum á að halda - og fullt af þeim! Ég myndi til dæmis vilja sjá fókus Húsvíkinga beinast frekar að heilsuhótelinu að Þeistareykjum heldur en að drekkja sér í volæði yfir því að einhver kjelling fyrir sunnan hafi eyðilagt möguleika þeirra á að dansa við áldjöfulinn.
But hey, that's just me.
breakbeat plakatið

Um daginn fékk ég áskorun um að gera næsta Breakbeat fastakvöldsplakat. Það er verkefni sem Raggi er með í samvinnu við breakbeat.is og byggist á einföldu áskoranakerfi milli grafískra hönnuða. Textinn er yfirleitt mjög staðlaður og lausnin fer eftir stemningu og hugarástandi hönnuðarins hverju sinni.
Þar sem kvöldið umrædda er í kvöld fannst mér tilvalið að birta veggspjaldið sem ég gerði hérna (og ég vænti þess að það hangi um allan bæ) og hvet ykkur auðvitað til að mæta! :)
Fiðrildaáhrifin
Mikið finnst mér þetta falleg skilaboð:
Fiðrildið hefur tilvísun í alþjóðlega baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og hefur í gegnum aldirnar verið álitin táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. Fiðrildið stendur fyrir vonina og styrkinn í mýktinni. Fiðrildaáhrif vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft áhrif á stór veðurkerfi hinumegin á hnettinum.
--
Þegar konur eru heilbrigðar, menntaðar og njóta frelsis til þess að nýta þau tækifæri sem lífið hefur uppá að bjóða, þrífast börn og ríki blómstra, og konur og börn (samfélagið)
uppskera margfalt.
- Kofi Annan
Mikið held ég að heimurinn verði betri ef virðing fyrir konum og þeirra gildum yrðu í hávegum höfð, hvort sem það eru karlar eða konur sem bera þau uppi.
arkitektúrdraumar
Við fengum smá snemmbúið hreiðurgerðarkast um daginn, buðum í íbúð (eða reyndar parhús) á Ak og vorum nærri búin að festa okkur það þegar við föttuðum hvað við vorum brjáluð.. enda var bara lok janúar þá og meira en hálft ár þangað til við kæmum. Húsið er reyndar ennþá á sölu og verðið hækkar ekkert á meðan. Síðan þá höfum við verið að fylgjast með þeim fasteignum sem eru að koma inn (sem eru reyndar oft sömu eignirnar "nýskráðar" aftur).
Það eru reyndar meira en 10 ár síðan við höfum búið á Akureyri og ótrúlega margt breyst á þeim tíma í bænum svo það er svolítið erfitt að gera sér grein fyrir því hvar í bænum maður vill setja sig niður, því þó maður sé etv ekki að fara í framtíðareign held ég að það sé mikilvægt að halda sig í sama hverfinu. Eins og ég nefndi reyndar áður erum við frekar spennt fyrir nýju hverfunum og þá sérstaklega Naustahverfi sem er undarleg tilfinning af því maður hefur ekkert verið þar að ráði. Framtíðarhorfurnar fyrir hverfið, ef það myndi nú allt ganga upp, eru mjög heillandi.
Það eru nokkrar íbúðir í hverfinu sem við höfum verið að gefa auga, eitt sem vakti athygli var að í Sporatúni eru tvær raðhúsalengjur með fimm íbúðum í hvorri og átta þeirra eru enn á sölu (nema fasteignasalan ætli sér að selja sömu íbúðina oft.. heh). Átta af tíu, og íbúðirnar voru byggðar 2006, búnar að vera á sölu síðan síðasta haust þegar við byrjuðum að skoða og standa margar sennilega auðar og fokheldar í dag.
Án þess að vita nokkuð um þessi hús (og jú, ég hef heyrt orðróm um galla, lélegan frágang og jafnvel sig í undirlagi í hverfinu) þá langaði mig að giska á, eftir að hafa séð grunnteikninguna af íbúðunum, að skipulagið innanhús gæti haft eitthvað með þetta að gera.
Ég er reyndar mikil áhugamanneskja um arkitektúr og skipulag og ætlaði mér alltaf að verða arkitekt þegar ég yrði stór, og í sjálfu sér er ekki svo langt hugmyndafræðilega milli vefhönnunar og arkitektúrs (fyrir utan lengra og flóknara náms) því bæði snýst um að búa til umhverfi fyrir notendur þar sem notagildi og ákveðin fagurfræði er í fyrirrúmi. Ég skoða alltaf grunnteikningar sem ég sé af íbúðum og reyni að ferðast um þær í huganum til að fá tilfinningu fyrir rými og afstöðu.
Allavegana, skipulagið í þessum íbúðum í Sporatúni er alveg ótrúleg óaðlaðandi; miklir og dimmir gangar, lítið eldhús og aflöng stofa þannig að ef maður situr fyrir framan sjónvarpið og dyrabjallan hringir þá eru 18 metrar frá sófanum að hurðinni. Svolítið langt til að öskra "kom'inn!"
Auk þess pirrar mig alltaf að hafa eldhús og stofu svona mikið samliggjandi, mér finnst að fjölskyldurýmið eigi að vera þannig að maður geti skipt um umhverfi og ég þoli ekki að hafa steikingarlykt inni í stofu. But maybe that's just me.
En auðvitað á maður ekki að gagnrýna svona nema benda á það sem er betra. Ég breytti því teikningunni þannig að með því að færa eitt herbergi (rífa tvo gifsveggi og setja upp einn) og færa nokkrar leiðslur fyrir eldhúsið, bjó ég til rými sem ég held að sé mun vistlegra; stærra og fjölbreyttara fjölskyldurými, stærra eldhús (meira bekkjar/skápapláss), minni tilfinning fyrir ofurlengdinni og minna pláss sem fer í óþarfa dimma ganga. Einn helsti gallinn við það er að það eru þá núna 18 metrar frá hjónarúminu að barnaherberginu sem gætu orðið nokkrir kílómetra yfir hverja nóttu.
Báðar íbúðirnar, sú upprunalega til vinstri og mín tillaga til hægri, eru hér:
Ég er nú ekki beint að segja að við ætlum að skella okkur á þetta en þetta er samt áhugaverður möguleiki og gaman að láta sig dreyma :)
Framtíðarpælingar
Ég var að lesa áhugaverða áramótagrein frá fyrrverandi deildarstjóranum mínum í LHÍ, þar sem hann fjallar um hvernig stefnir í að framtíðin komi til með að þróast miðað við það sem á undan hefur gengið. Áhugavert já.
jólakort - oft spretta hugmyndir úr ósiðum
Mér finnst gaman að skrifa á jólakort, ég undirbý kortin nokkuð vel fyrir tímann og síðan Danni fæddist hefur mér nánast þótt skylda að hafa mynd af honum til að senda ættingjum, eingöngu vegna þess að mér finnst sjálfri svo gaman að fá myndir í jólakortum. Á danskann mælikvarða er jólakortalistinn minn nokkuð langur, um 70 kort því dönsk vinkona mín missti út úr sér augun þegar ég sagði henni fjöldann.
Í raun er þetta alveg stórkostlegur ósiður, þrátt fyrir að það sé gaman að fá opna og lesa jólakort uppi í sófa umkringdur fjölskyldunni og konfektinu, þá er álagið akkúrat á þessum tíma við að flokka og dreifa algjör vitleysa. Fyrir utan að það kostar slatta bæði í sendingargjaldi, ljósmyndinni og kortinu sjálfu.
Margir ákveða þessvegna að senda engar kveðjur eða kort heldur styrkja gott málefni og það er stórgott og blessað, ég hef samt verið að hugsa hvað getur komið í staðinn fyrir þessa stemmningu eða athöfn að fá jólakveðju frá vinum og vandamönnum þar sem fjölskyldan sameinast við að hlusta á persónulegar kveðjur. Það er auðvitað hægt að senda vefkort, eða jafnvel sms, en hvorutveggja er áreiti sem á ekki við þegar maður tekur á móti skilaboðunum og þau fara yfirleitt ekki lengra en til eins úr fjölskyldunni.
Best af öllu væri ef flatskjárinn í stofunni myndi taka við öllum kveðjunum sem berast á heimilið, hvenær sem þær berast, og ganga úr skugga um að þær sé ekki hægt að opna fyrr en á aðfangadagskvöld. Flatskjárinn í stofunni er jú altari heimilisins.
Þannig er hægt að senda myndir, texta, video, heilu ræðurnar, ágrip ársins eða bara hefðbundna árs og friðar kveðju að hætti Gerðar G. Bjarklind.
Auðvitað myndi skjárinn ekki geyma kveðjuna, heldur væri hún á vefnum sem gagnvirka sjónvarpið hefði aðgang að.
Held að þetta sé alveg málið, spurning hvort maður nái að græja þetta fyrir næstu jól... heh ;)
Flokkað sem hugmyndir / hönnun / tækni /
4
jólamaðurinn

Jólin nálgast, síðasti skiladagur í póst líka. Ég er nú reyndar langt komin með að skrifa jólakortin, langflestir pakkarnir eru komnir í umbúðir þannig að ég held að þetta náist að fara af stað rétt eftir mánaðarmót eins og stefnt er að. Það er svolítið þægilegt að geta svo bara farið að baka smákökur og föndra og skreyta. Reyndar er prófaverkefni að byrja skólanum og ég býst við að vera ekki búin fyrr en um 20. des.
Annars eru Danir ekkert að stressa sig hérna, við ætluðum að kíkja aðeins í Storcenter verslunarmiðstöðina sem er rétt hjá skólanum hans Óla í dag en það var bara lokað! Í allan dag, reyndar á sunnudegi en mánuði fyrir jól. Þennan dag eru Íslendingar og Ameríkanar að byrja á "ég er að missa af jólunum" stemmningunni.
Þegar ég pæli í því er ekkert sérstaklega mikið úrval af jólakortum hérna heldur og ég veit ekki hvort Danir séu að senda svona brjálæði af kortum til allra sem þeir þekkja. Ætli danski pósturinn myndi ekki þurfa áfallahjálp ef hver einasta danska fjölskylda sendi 100 kort eins og gerist á sumum stöðum.
Ég bjó til nokkrar jólamyndir eins og sæti jólasveinninn þarna að ofan. Þær náðu reyndar ekki á kortið þetta árið þannig að ég ákvað að birta þær samt, jólasveinninn kemur núna aðeins fyrir aðventuna. Kannski set ég hinar myndirnar inn þegar ég er búin að lita þær.
neytendaverðkönnunarpæling
Mikið var ég glöð í mínu hjarta að lesa fréttirnar hjá Rúv í dag, þegar þeir komu með skúbb með Krónuna og Bónus. Mér þykir svo vænt um að það sé einhver neytendavakning í gangi og fer til dæmis reglulega inn á OKUR síðuna hans dr.Gunna til að heykslast mér til gamans.. svo kíki ég líka reglulega inn á Skotsilfur, síðuna hans Ragga til að fá nýjustu fréttir í sparnaðarráðum og heimilisbókhaldi. Alveg gulls ígildi þessi vefur ;)
En í dag, í þessum pælingum um verðkannanir og neytendavitund, fékk ég hugmynd.

Út um allt eru neytendur að gera sínar eigin verðkannanir, hver í sínu horni, þó þeir láti kannski ekki mikið uppi um það.
Það þyrfti að vera til vefur þar sem maður setur inn verðin á vörunni sem maður er að kaupa, eftir að maður er búinn að versla. Hugsum okkur (í fyrsta lagi að einhver myndi nenna þessu) fara út í búð - kaupa kók í bauk (segi þetta bara af því ég er að norðan), opna vefinn og stimpla inn númerið í strikamerkinu. Strikamerkið er bara auðkenni sem er svo tengt við upplýsingar um vöruna í verslunarkerfinu, þannig hefur hver vara - eftir þyngd eða bragðtegund sitt auðkenni sem er svo tengt inn í hvert verslunarkerfi fyrir sig. Það er ekkert sem mælir gegn því að vefur geti ekki geymt þannig upplýsingar eins og verslunarkerfin? (Leiðrétti mig hver sem getur).
Ef kókið í bauknum hefur verið skráð inn áður þá kemur upp form þar sem kaupandinn er beðinn um að slá inn dagsetningu, verslun og verðið á vörunni. Þar getur hann líka séð hvað aðrir, sem hafa keypt sömu vöru, hafa borgað fyrir hana í gegnum tíðina.
Ef kókið í bauknum hefur ekki verið skráð inn þá þyrfti að setja inn upplýsingar um þá vöru; tegund, framleiðanda, magn oþh, áður en hægt er að setja inn verðið.
Þetta hljómar kannski svolítið leiðinlegt en með notendavænu viðmóti og fallegu útliti ásamt möguleikum til samskipta (skilaboð og spjallborð) og jafnvel því að gera þetta að léttum leik þar sem maður safnar stigum fyrir hverja vöru sem maður setur inn.. (svona eins og iconbuffet þar sem ég er komin með "gegt" mörg stig fyrir að bíttast á táknmyndum í gerviheimi...) gæti þetta orðið gott sport og geysilega gott aðhald fyrir verslanir því þannig er hver kúnni orðinn aktívur "verðkönnunareftirlitsaðili".
Þetta veltur auðvitað mikið á heiðarleika fólks og einhvernvegin þyrfti að vera hægt að færa sönnur á kaupin. Hugsanlega gætu neytendasamtökin staðið fyrir svona vef og gert þá kröfu um að fá kassastrimilinn ef eitthvað undarlegt er í gangi.
Með svona gögnum er hægt að fá upplýsingar yfir ákveðin tímabil, ákveðnar verslanir og ákveðnar vörutegundir. Þetta segir auðvitað bara ákveðna sögu og er ekki marktækt nema að vissu leyti en býr samt til landslag sem mér finnst vera öðruvísi en hefur verið.
Pæling sem vert er að þróa áfram ? Hvað finnst þér ?
Flokkað sem fólk / hugmyndir / hönnun / netið / tækni /
3
Veiðimann

Ég set þetta med det samme á jólagjafaóskalistann.. spilin með Veiðimann. Snilldarhugmynd hjá Stefáni Pétri, sem ég gæti kallað gamlan nemanda minn, þar sem hann var í kúrs sem ég kenndi í LHÍ fyrir nokkrum árum, en ég ætla ekki að kalla hann það af því ég hljóma svo hrikalega gömul við það :/ híh
En frábært hjá honum að fá svona hugmynd og ennþá frábærara að framkvæma hana!
lesefni
Ég kom við á bókasafninu í skólanum í dag áður en ég fór í geeky SQL tíma og fann þar hina fínustu bók.. reyndar ekki um SQL .. heldur heitir hún "Layout - n. an arrangement of parts ect. according to a plan" og fjallar um grunngildi grafískrar hönnunar; nefnilega griddið og "form follows function". Sjaldan of oft kveðin sú vísa.
Skemmtilegt finnst mér líka hvernig bókin er prentuð, bæði húðaðan, óhúðaðan og endurunninn pappír, með góðu indexi aftast og skemmtilegri lakkáferð á viðeigandi stöðum.. mmmm..
Það var heldur skemmtilegra að fletta þessari bók í tíma í dag heldur en kennslubókinni.
Lorem ipsum er sooo 2001
Ég nota Lorem ipsum gervitextann mjög mikið í layout vinnu til að sýna blokk af texta án þess að vera trufluð af innihaldi hans. Ég rakst hins vegar á "Lorem Ipscream" sem er frekar krúttleg síða til að finna þannig texta.
Vanillubragðið er best.
Nýr vefur Ekta fisks + smá greining

Á laugardaginn sendi ég í loftið nýja vefinn fyrir Ekta fisk sem ég hef verið að vinna núna síðsumars. Mig langar að segja svolítið frá því hvernig ég vann hann, því það er búið að vera mjög lærdómsríkt og skemmtilegt ferli.
Í raun hef ég unnið að öllum hliðum þessa vefs. Til að byrja með má nefna vinnslu efnisvals og veftrés út frá greiningu á stöðu, og ekki síst sérstöðu, fyrirtækisins á markaði. Ég hef reyndar góða þekkingu á þessu fyrirtæki þar sem bróðir pabba rekur það, og ég vann þar mikið í minni æsku í salfiski. Þar má segja að ég hafi kynnst kúltúrnum í fyrirtækinu en það er ótrúlega mikilvægt atriði þegar kemur t.d. að mörkun fyrirtækja, og vefurinn er stórt atriði í því.
Einnig að skrifa texta sem er vænn fyrir leitarvélar jafnt sem lesendur, skrá nýja hýsingu, breyta DNS stillingum, búa til netföng og setja upp blogg kerfi, sem sér um að fóðra nokkrar síður af efni sem kúnninn getur sjálfur uppfært.
Síðurnar sjálfar eru skrifaðar í xhtml og php, þar sem include skipunin er óspart notuð til að minnka endurtekningar á efni. Til dæmis er valmyndin lesin úr einni og sömu skránni, en glöggir sjá að hún breytist eftir því hvar maður er staðsettur í vefnum. Með því að gefa hverri síðu sérstakt nafn veit "valmyndaskráin" hvar maður er staddur og getur því sýnt þær undirsíður sem búið er að skilgreina. Kannski efni í aðra og nördalegri bloggfærslu.
Einnig kemur javascript við sögu sem og tungumálið sem Movable Type notar í sínum template-um. Svo er smá hluti vefsins lesinn úr xml skrá, nefnilega söluaðilarnir. Í dag er skráin lesin beint eins og hún leggur sig, en auðveldlega gæti ég sett upp skipanir sem næðu í upplýsingar um hverja verslunarkeðju fyrir sig. Ég ætlaði fyrst að útbúa Íslandskort í flash og lesa xml-ið þar í gegn en ég sá ekki alveg tilganginn og held að þetta sé þægilegra í svona lista. Kemur kannski seinna ef þörfin er mikil (...á því að hafa eitthvað sveitt).
Næstu skref er að setja inn meira efni og skoða þær ábendingar sem hafa komið fram, því strax á sunnudaginn komu bæði pantanir og komment um vefinn, sem er bara frábært. Ábendingar eru vel þegnar.
Ég notaði Coda ritilinn alfarið við að skrifa vefinn, hann er hýstur hjá Bluehost í USA, nýju merkin fyrir Ekta fisk og Ekta rétti voru teiknuð hjá Stíl á Akureyri. Sérstakar þakkir fær svo tölvunarfræðingurinn á heimilinu fyrir að hafa ávallt svör við misgáfulegum spurningum sambýliskonunnar. :)
keypti loft
Ég er búin að vera að versla svolítið á netinu í kvöld en á þó ekki von á neinum sendingum með póstinum eftir þessa verslunarferð, svo undarlega sem það virðist. Ég er hins vegar hæstánægð með þessi kaup..
1. Endurnýjaði áskriftina að flickr.com og eins gott að ég fari að nýta áskriftina eitthvað að ráði og senda inn fleiri myndir - $24.99
2. Keypti leyfi fyrir forritinu coda sem er stórskemmtilegur html ritill fyrir makkann og auðveldar lífið heilmikið, gerir líka vinnuna skemmtilegri og smekklegri sem er mjög mikilvægt þegar maður á svona sæta tölvu. - $79
3. Keypti árs áskrift inn á iconbuffet, sem er bíttimarkaður með icon fyrir grafíknörda. Eiginlega eini "tölvuleikurinn" sem ég spila þessa dagana, stórskemmtilegt á sinn hátt. - $48
Svona er hægt að versla með "loft", maður þarf ekki alltaf að fá eitthvað áþreifanlegt í hendurnar og satt best að segja líður mér ákaflega vel yfir því að versla þessi hugverk.
Í raun gæti ég sagt að ég hafi líka borgað með lofti því hvaða verðskyn hefur maður svosem þegar maður stimplar bara einhverjar tölur inn í einhver box og fær svo "takk æðislega" póst frá einhverjum róbóta í útlöndum.
frásagnir og kosningar
Verkefnið sem ég er að klára að smíða byggir á Storytelling aðferðum. Ég er búin að vera að lesa danska bók (enska þýðingu reyndar.. þessvegna sökka ég ennþá í dönsku af því ég æfi mig ekki nógu mikið) um Storytelling, eða "frásagnaraðferð" gæti maður kallað það, og byggir á því að finna kjarnann í sögu eða boðskap fyrirtækisins/vörunnar og setja hana fram á persónulegan og aðlaðandi máta, þannig að viðskiptavinurinn/notandinn geti samsamað sig og átt auðveldara með að skilja og líka við fyrirtækið/vöruna - og að sjálfsögðu er lokatakmarkið að selja, en ekki hvað.
Ásamt verkefninu, sem er flash vefur - fyrsti vefurinn sem ég geri alfarið í flash, hef verið svo einstaklega á móti *pjúra flash* vefsíðum að það hálfa væri nóg - ef af því þetta er skólaverkefni þá sló ég til - einhverntíman verður allt fyrst.
Ég ákvað að taka fyrir bjórinn "Kalda" sem er bruggaður á Sandinum (Árskógssandi fyrir þá sem ekki þekkja til) því þó hann eigi ekki langa sögu þá er hún samt mjög svo áhugaverð. Hann byggist nefnilega allur upp á einkaframtakinu, hvað er hægt að gera þegar maður trúir á sjálfan sig og hugmyndirnar sínar. Hann er frábært dæmi um þetta "eitthvað annað" sem við eigum ekki að geta gert og þessvegna þarf ríkið að byggja verksmiðjur út um alla koppa.
Þetta er í raun megininntakið í verkefninu mínu; Believe in yourself.
Ég var að tala um þetta við danska vinkonu mína í skólanum í dag. Hún minntist nefnilega á það að fyrra bragði að hún hefði heyrt að Björk, tónlistarkonan, hefði sagt að hún væri ekki lengur stolt því að koma frá Íslandi. Ég las það reyndar líka í Nyhedsavisen.
Ég sagði henni frá álæðinu og reyndi eins og ég mögulega gat að hemja mig, heldur bara útskýra þetta eins og það er; fólk vill fá fjölbreytni í atvinnulífinu úti á landi. En ég get ekki gert að því að þetta hljómaði alveg fáránlega:
Me: ... That's why they built this great dam, the biggest one in Europe up in the highlands, that gives energy to the aluminum plant in the small town in east iceland.
She: ok, so you have lots of aluminum-material in the ground to work with?
M: oh, no, it comes from Australia and Brazil, they just sail with it
S: ok, but the un-employment rate, is it high?
M: no, not really, people are generally working too much, but they are planning at least three more of these aluminum plants because there is nothing else to do.. i mean it's not like being a designer or programmer gives any real value...
..
segiði mér ... hvaða heilbrigði er í því að halda þessu áfram? Ég er allavega búin að gefa mitt atkvæði í það að þetta breytist, með nákvæmlega sömu rökum/ástæðum og hann Hjálmar setti fram. Það er ósk mín frá dýpstu hjartarrótum að það gangi upp á laugardaginn.
auðmelt efni
og hérna smá auðmelt efni því að síðast færsla var svona.. dáldið löng..
iconbuffet
![]()
Ég held að flestir eigi í svona "love / hate" sambandi við netið. Stundum getur maður ekki slitið sig frá því og öðrum stundum finnur maður gjörsamlega ekkert nýtt eða áhugavert. Alveg dautt.
Núna er ég í ~love~ gírnum því ég hreinlega get ekki slitið mig í burtu.. ég sagði frá scrapblogs um daginn en því miður hef ég ekki náð að kíkja aftur í það vegna þess að ég datt inn í Iconbuffet, sem er bíttimarkaður fyrir icon pakka (icon nörda kannski.. ) og þar má ekki bara finna flott merki / táknmyndir heldur líka skemmtilegt fólk (icon nörda..) og virkilega skemmtilegt og vel hannað viðmót.
skráðu þig endilega ;)
Scrapblogs
Scrapblogs er nýtt unaðslegt tól til að búa til scrap á netinu. (Scrap = skreytt myndaalbúm). Eftir að Danni fæddist hef ég verið að reyna að scrappa svolítið en hef aldrei haft almennilegan tíma til að setjast yfir það. Þegar ég sá þetta tól þá sé ég að þetta á eftir að verða mikill tímaþjófur... þá allt í einu hefur maður tíma ;)
Forritið er mjög skemmtilegt að vinna með, bæði flott tæknilega séð en líka gott viðmót og falleg grafík, hægt að tengjast beint við flickr (og YouTube er væntanlegt fyrir video) til að sækja myndir eða bara beint úr tölvunni. Maður á nú samt örugglega eftir að sakna þess að klippa ekki og líma.. og vera klístraður á puttunum.
Þessar síður gerði ég á hálftíma í gærkvöldi þegar ég var að prófa þetta:
* nýtt útlit *
Síðustu tvo daga hef ég aðeins verið að breyta útlitinu og uppsetningunni á blogginu. Ég er sífellt að reyna að finna betri leiðir til að setja upp bloggið en einhvernvegin fær maður alltaf leið á því að horfa á það sama. Ég er ágætlega sátt við þetta, enn sem komið er.
Það er líka fínt að vinna með bloggkerfið Movable Type. Eftir að ég uppfærði finnst mér það ganga hraðar og eftir að hafa horft yfir öxlina á Óla með sitt Wordpress þá er ég ennþá ánægðari með mitt MT.
Það eru örugglega einhverjir hnökrar á þessu, þannig að ég ætla að kíkja í Windows tölvurnar í skólanum á morgun.
En ef það er einhver MT notandi þarna úti sem vill fá template skrárnar mínar þá væri ég glöð að deila þeim, með smávegis breytingum auðvitað. Endilega hafa bara samband.
Storytelling / Listin að segja sögur
Bókabúðin í skólanum mínum er mjög fín, eiginlega ein af bestu upplýsingatækni-bókabúðunum á svæðinu. Eins og ég er mikill sökker fyrir bókabúðum svona almennt þá er ekki verra að þarna fást pennar í öllum sverleikum (Mmmm), og súkkulaði (MMmmm) við kassann. Mér finnst ekki verra að geta beðið þar inni og flett á meðan ég bíð eftir farinu heim.
Um daginn var haldin plakata samkeppni í skólanum til að auglýsa fyrirlestur og í verðlaun var inneign í bókabúðinni góðu. Ég sendi inn plakat og það var (að sjálfsögðu..) valið. Fyrir inneignina keypti ég bók sem heitir Storytelling, Branding in practice. Hún fjallar um það hvernig fyrirtæki og vörumerki geta sagt sögur sem auka gildi þeirra fyrir viðskiptavinum og starfsmönnum, mjög áhugaverð bók.
Svo skemmtilega vildi til að fyrirlesturinn sem posterið var fyrir, fjallaði líka um Storytelling, en ég missti af honum vegna veikinda. Vonandi bætir bókin það þá eitthvað upp.
orðalisti fyrir leturhönnun
Ég fæ stundum undarlega tölvupósta. Ég fæ reyndar daglega stórkostlega undarlega tölvupósta en ruslpóstsían hjálpar mér að halda sæmilegri geðheilsu við að skoða póstinn.
Um daginn skrifaði mér ísraelskur hönnunarnemi sem var að skrifa ritgerð um íslenska hönnun (i wonder why!!) og bað um mitt álit á því hvað væru séreinkenni íslenskrar grafískrar hönnunar.
Ég sendi honum einhverja pælingu sem ég skrifaði þegar langt var liðið á nóttina og ég hef ekki ennþá þorað að kíkja á hvað ég sendi honum eiginlega. En hann þakkaði fyrir og sagði að þetta hefði hjálpað sér mikið.
hahaha!
Núna fyrir nokkrum dögum fékk ég svo póst frá grafískum hönnuði frá Alaska, sem er að útbúa orðalista fyrir leturhönnuði, þannig að hann safnar ýmsum orðum úr allskonar tungumálum, sem er síðan notaður til að sjá hvernig letrið sem er hannað kemur út í allskonar orðum á tungumálum sem hönnuðurinn skilur ekki.
Reglan er sú að fyrir hvern staf í stafrófinu á að finna orð sem er með hann sem upphafsstaf, stafinn tvisvar inni í orðinu og enda á stafnum. Auk þess á orðið að birtast í þremur mismunandi formum í listanum.
Hann semsagt bað mig um að gera þennan lista yfir íslensk orð, sem mér finnst mjög skemmtilegt verkefni. Það var augljóslega ekkert mál að finna orð með upphafsstafinn en svolítið erfiðara að finna hin orðin, sérstaklega með tveimur sérhljóðum, (ég fann reyndar orðið "ugluungi" þegar ég var að fara að sofa í gær).
Listinn minn er hérna og ef þið hafið hugmyndir um breytingar eða viðbætur, eða athugasemdir, þá endilega látið mig vita.
Hönnunarhræðsla
Getur verið að það sé ákveðin hönnunarhræðsla á Íslandi?
Ég segi þetta af því ég var að hlusta á kvöldfréttirnar á ruv.is um helgina, þar sem var verið að sýna frá ræðu Steingríms J á landsþingi VG. Þar var hann að tala um hvað flokkurinn væri að vaxa og það væri út af því hvað málefnin væru sterk og þar frameftir.. og þá sagði hann; "... við þurfum enga hönnun" og var líklega að vísa í það að það er engin auglýsingastofa í vinnu við það að útbúa "feik glansmynd", en orðalagið stuðaði mig samt.
Það fyrsta sem kom í huga mér var setning sem oft hefur verið kveðin : "You cannot not communicate" því allt sem þú gerir mun búa til ákveðna mynd í huga fólks hvort sem þér líkar betur eða verr, og er þá betra að nota happa/glappa aðferðina heldur en að byggja á þeirri þekkingu sem er til hjá fagfólki?
Verslunin Bónus er með svipaða stefnu, því allt sem kemur frá þeim hefur hrásoðið útlit og ódýran blæ, sem er hluti af þeirra strategíu, en þeir eru ekki að borga neitt minna fyrir það heldur en ef þetta væri sæmilega smekklegt. Allt spurning um ákvörðun og stefnu.
Annað atriði sem leiddi til þessarar hönnunarhræðslupælingar var frétt á mbl.is um verkefni í Listaháskólanum sem nefnist Borðið: Stefnumót hönnuða við bændasamfélagið. Frábært verkefni þar sem nýsköpun og frumkvöðlahugsun fær að blómstra. Hins vegar eru það bloggin sem hafa verið skrifuð um þessa frétt sem mér finnst ekki uppörvandi, (reyndar mikið til skot bændasamtökin vegna klámráðstefnufréttarinnar sem er búin að trylla landann uppá síðkastið og nóg búið að ræða) að virðing fyrir bændastéttinni sé ekki í hávegum höfð.
Kannski er þetta út af því að hönnun er ennþá ný af nálinni á landinu og þjóðarsálin þekkir hana ekki, og setur þar með í sama flokk og listræna gjörninga eða Völu Matt?
Þá er bara vonandi að hönnunarvettvangur geti orðinn sterkt afl sem fræðir landann um hversu mikils virði hönnun getur orðið hér á landi. Ein forsenda fyrir því að nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi geti átt sér stað er sú að samfélagið sé laust við fordóma. Svona nokkurn vegin allavega.
Þetta gefur mér reyndar hugmynd um annað blogg um hugmyndaauðgi vs frumkvöðlastarfsemi (Creativity vs Innovation) en það verður að bíða betri tíma.
markaðsfræði 101 - how do you like iceland?
Það hefur mikið verið rætt um ímynd Íslands síðustu daga, sérstaklega eftir að Simon Anholt talaði á Viðskiptaþingi um daginn, og sagði að ímynd landsins væri ekki nægjanlega sterk.
Ég veit ekki hvort eitthvað er í gangi í framhaldi af þessari ráðstefnu en ég bíð spennt eftir viðbrögðum, áætlun eða einhverju slíku á því hvernig hægt sé að styrkja ímyndina eða hvort það á ekki að gera neitt. Það er ákvörðun í sjálfu sér.
Eins og sönnum Íslendingi er tamt, þá nota ég hvert tækifæri til að finna út hvað öðrum finnst um land og þjóð, ég ræði við félaga mína hérna í alþjóðlegu deildinni í skólanum og reyni að finna einhvern takt eða mynstur, tilfinningu fyrir því hvað er Ísland, jafnvel þó viðmælendur mínir hafi aldrei komið hingað. Sjálf hef ég líka ákveðna tilfinningu fyrir landinu eftir að hafa búið þar og ferðast um það þvert og endilangt, og með því að búa hérna úti þá fær maður að horfa á landið úr fjarlægð og við það opnast ákveðnar gáttir.
Hef heyrt það áður og tek undir að það er hverjum Íslendingi nauðsynlegt að búa í útlöndum í svona eins og eitt ár eða svo.
markaðsfræði 101 - ímynd
Í markaðsfræði höfum við svolítið verið að fjalla um ímynd. Ég hef mikinn áhuga á þessu viðfangsefni aðallega eftir að ég var að vinna hjá mixa (nú pipar) þar sem við unnum mikið með fyrirtækjaímynd (Corporate Identity) en ímynd er hægt að heimfæra á alla hluti, bæði einstaklinga, samtök, vörur sem og heilu löndin.
Í markaðsfræðitímanum hef ég alltaf verið með Ísland sem útgangspunkt í hausnum á mér, líklega af því þetta er svo mikið í umræðunni þessa dagana heima (allavega eftir því sem ég tek eftir); Vörumerkið Ísland, Framtíðarlandið (sem fjallar um hvernig viljum við vera og hvað getum við gert til að láta það verða að veruleika), Viðskiptaþing 2007 og svo mætti áfram telja.
Mig langar aðeins til að rifja upp þessi grundvallarhugtök sem við vorum að skoða í markaðsfræðitíma fyrir nokkru og hvað er betra en bloggið sitt þegar maður er að rifja upp glósurnar sínar og fá kannski einhvern til að leiðrétta sig ef maður fer með fleypur.
Ísland er líka ágætis útgangspunktur.
Flokkað sem hönnun / samfélag / skólinn /
0
mánudagur
Það er nú bara almenn leti hér á þessum mánudegi. Feðgarnir fóru reyndar hjólandi út á dýraróló (það er rólóvöllur hér í hverfinu sem er með hestum, geitum, kanínum og allskonar fuglum, við köllum hann bara dýraróló) og ég sit hérna og hlusta á hin ýmsu tónlistarblogg með nýja Peel lesaranum/spilaranum sem er alíslensk framleiðsla fyrir Mac OS X og á eflaust eftir að slá í gegn.
hönnunarvettvangur
Hönnunarvettvangur er kominn með stórgóða og verðmæta síða sem einblínir aðallega á viðskiptalegu hlið hönnunar. Ég held og vona að með þessu muni vegur og vitneskja um hönnun, og þá sérstaklega um grafíska hönnuna og "branding", aukast.
að hafa eitthvað fyrir augunum
Stundum get ég ekki byrjað daginn án þess að laga aðeins til í kringum mig. Ef það er kaos á borðinu mínu þá á ég erfitt með að hugsa. Ég þarf eiginlega að rífa mig út úr þessu (ágætt í því sambandi að skoða onmydesk.com) því ef ég held þessu áfram þá geri ég aldrei neitt nema laga til.
Allavega, ég er með ágætis todo lista fyrir daginn en ákvað að byrja á því að finna nýja mynd á desktopið. Það er algjör tímasóun að leita á Google því þar þarf maður að fara í gegnum haug af rusli áður en maður finnur eitthvað gagnlegt. Það sem ég er að leita að er flott grafík eða skýrar myndir, sem veita innblástur.
Það sem ég geri þá er að fara á portalsíður og leita þar að 'desktop' eða 'wallpaper' eða finn aðrar svalar myndir. En auðvitað ætti ég að gera eitthvað sjálf, hef enga afsökun.
En svo rakst ég á: desktopography og þar með er leitinni lokið í bili. Þetta eru myndir úr náttúrunni sem ýmsir grafískir hönnuðir hafa notað sem innblástur og eru búnir að vinna ofaní ýmsa grafík. Náttúruspjöll kannski? Þá vel ég heldur að framkvæma náttúruspjöllin í Photoshop heldur en á landinu sjálfu. Í Photoshop er nefnilega nokkuð sem heitir "Undo".
my portfolio
Jamm, komið upp aftur í endurbættri útgáfu. Ég er að reyna að veiða inn fleiri verkefni til að vinna að hérna heima og nú þegar eru nokkur komin í gang.
Ég ákvað líka að færa smá hönnunarblogg yfir á þessa síðu og ætla að reyna að taka það ekki of alvarlega heldur reyna frekar að finna eitthvað áhugavert og skemmtilegt til að setja þarna inn.
Hvað finnst ykkur?
piparkökujól
glöggir taka eftir að það eru krúttlegar jólamyndir komnar hérna upp en ég fékk svo skemmtileg piparkökuicon send frá iconbuffet í morgun. Þessi icon eru svo sæt. Ef einhver vill bíttast á þá endilega hafi samband við mig, ég á hellings.
Norðurlandameistari í innpökkun
Jólagjafirnar þetta árið eru komnar í pappír og eru ferðbúnar til íslands.
Blaðið vs TV2 news
Það er svolítið skondið að horfa á nýju dönsku fréttastöðina: TV2 News, þeir eru með sömu grafísku elementin og ákaflega svipað fótaletur og Blaðið sem er gefið út í Reykjavíkinni (fann ekki link á blaðið).
Flokkað sem danmörk / hönnun / samfélag /
2
vefrýni - noi.is
Mér finnst alltaf gaman að skoða þegar nýir vefir eru að opna og sjá hvernig verið er að breyta og hvað er verið að leggja áherslu á. Mig langaði til að minnast á þrjá núna; noi.is, eymundsson.is og amazon.com. (Kannski breyttist amazon.com fyrir löngu síðan en ég hef ekki tekið eftir því fyrr af því ég fer yfirleitt inn á amazon.co.uk því þar hef ég yfirleitt fengið vörurnar oggópoggó ódýrari og aðeins fyrr). EN anyhow, ég ætlaði að minnast á þessa þrjá en þegar ég byrjaði á fyrsta þá gat ég bara ekki hætt að rassskella þannig að ég geymi hina til síðari tíma.
Fyrir þá sem hafa á huga að lesa bendi ég á að lesa áfram (duh!) en fyrir hina er ég ekkert að troða þessu uppá þá. Og munið, ég er ekkert í sérstaklega slæmu skapi og ég hef ekkert útá neinn að setja persónulega, þetta bara stakk mig illilega og er, að sjálfsögðu, eingöngu mín skoðun.
nýtt stöff
Nýjungarnar eru allsstaðar sem maður lítur:
á ferðinni
Við erum búin að bóka heimferð um jólin enda ekki hægt þegar maður fær ferðalagið í jólagjöf. Þetta verður mikið gaman!
Það er bara eitt sem böggar mig afskaplega mikið, af hverju getur innanlandsflugvöllurinn ekki verið í Keflavík? Hvað er málið með að þurfa að taka flybus til UMFERÐAmiðstöðvarinnar og þurfa svo að krækja fyrir flugvöllinn í vatnsmýrinni með leigubíl? (sem b.t.w. er örugglega ekki með barnastól!) til að komast í flugstöðvarskúrinn. Hver skipuleggur þetta eiginlega?
Annars er Árósaflugvöllur, sem er líka alþjóðaflugvöllur, í um klst akstri frá borginni hér og ég heyri ekki marga kvarta yfir þeirri fjarlægð, né óskir um að fá flugbraut upp við Skejby spítalann, þó það sé laust tún þar!.
Við Danni erum í haustfríi núna (Efterårsferie, snilldar fyrirbæri!) og tókum strætóinn niður í bæ í morgun. Í vagninum var líka skemmtilega undarlegur, vellyktandi og hárprúður náungi, með stóran hund í bláum ikea poka sem virtist vera hundabælið. Hundurinn var alveg spakur þarna í pokanum enda greinilega ýmsu vanur af eiganda sínum, sem tók sig til á miðri leið og bjó sér til eina jónu á leiðinni, ekkert stressaður á því. Handverkið var stórgott og náunginn gæti örugglega fengið fínt djobb hjá Castro ef hann fengi borgað fyrir að hafa hund með sér þar eins og hér .
Í miðbænum var líf og fjör og við versluðum sitthvað sem verður opinberað á laugardaginn en þá á heimilisfaðirinn afmæli. Á heimleiðinni sofnaði Danni í kerrunni sinni og sefur ennþá hérna fyrir utan.
"Thank you for buying a Mac!"
Jebb, ég lét verða af því í síðustu viku, verslaði eina MacBookPro í gegnum vefverslun apple.com. Ég lét breyta henni aðeins þannig að hún fer ekki af stað fyrr en á morgun (frá Hollandi held ég..) og kemur því núna í næstu viku, en vá hvað ég hlakka til. Ég neyðist til að skrópa í skólanum í einhverja daga til að vera heima og taka á móti henni. Ég hefði átt að eignast svona vél fyrir ca 6 árum.. en biðin er að verða á enda og það er svolítið óraunverulegt að hugsa til þess.
Vörumerkið Ísland
Vörumerkið Ísland er kærkomin hugmynd, ein sú besta sem ég hef heyrt lengi.
Og ímyndarsköpun er ekki að búa til einhverja glansmynd sem við getum ekki staðið undir, heldur tæki þar sem við greinum hvað við erum, hvað við viljum vera, hvers vegna og hvernig við vinnum að því. Ég held nefnilega, og fannst það löngu áður en ég kom hingað út, að Íslendingar vanmeti það sem íslenskt er og hafi ákveðna minnimáttarkennd gagnvart því þrátt fyrir alla þjóðrembuna sem við (höldum að við) búum yfir.
Og ég skal leyfa mér að efast stórkostlega um að í vörumerkinu Ísland felist fleiri álver.
æji svona dót sem maður teiknar eftir...
Jonni félagi er kominn með verkin sín á flottri síðu Skapalónsins.
á förnum vegi...
Ömurlegt sumarveður úti þessa stundina, komin með uppí kok af því að raða í kassa svo að eina vitið er að henda sér aðeins á netið:
Hef rekist á nokkra hluti síðustu daga.
- Emigre eru komin með nýjan vef, alltaf smart.
- Skalli Zidane er innblástur ýmissa rugludalla þessa dagana.. spurning hvort skallinn verði nýja hreyfingin í FIFA 2007
- Þó hún sé á undarlegu tungumáli þá er My Desk City alveg ágætur staður til að ná í myndir á desktopið, nú ef þú vilt eitthvað meira designy þá er hægt að finna ýmislegt á thefwa.com
- FlashTV .. úff*
- Áhugavert og skemmtilegt blog layout: bearskinrug
Final admission letter
Í dag fékk ég póst sem staðfestir að ég hef fengið skólavist í Århus Tekniske Skole sem ég sótti um. Reyndar var þetta bara formsatriði því áður var ég búin að fá bréf sem sagði að umsóknin hefði verið móttekin og "jákvætt svar væri á leiðinni".. en það er þá allavega komið, gott mál það.
Óli á eftir að fá niðurstöður úr TOEFL prófinu sínu (Test Of English as a Foreign Language), það var sent frá USA þann 21. júní og er 6 virka daga á leiðinni til okkar (það var hægt að senda það beint í skólann en á þeim tíma vantaði upplýsingar.. löng saga), en þá á eftir að senda það út til Árósa og með express tekur það einn dag. Málið er að það þarf að berast fyrir 1. júlí þangað, annars er eiginlega voðinn vís. þannig að það er eins gott að enginn póstburðarmaður klikki í þessu ferli. Við krossum putta og vonum að það komi á miðvikudag!
MYND/Stefán
Það er alltaf gaman þegar fréttaljósmyndarar eru húmoristar.. eins og sjá má í þessari frétt hjá Vísi.
föstudagsfílingur
Danni litli var veikur í morgun svo ég fór með honum heim. Núna sefur hann og þá er tækifæri til að skoða eitthvað skemmtilegt á netinu. Er að skoða:
- Afterphase MAY 1st REBOOT Margt splunkunýtt og skemmtilegt að skoða.
- Reykjavik.com mag kom út í dag, ég hef ekki gripið blaðið ennþá en er að melta vefinn.
- Boltaleikir verða víst aðalmálið næstu daga. Ég væri samt alveg til í að fletta frekar þessari bók; Play loud! heldur en að horfa á imbann. Nú eða horfa á þennan leik.. híhíhí
Grafískur hönnuður
Góðar fréttir fyrir grafíska hönnuði. Löggilding starfsheitisins grafískur hönnuður er orðið að veruleika.
mánudagsmolar á þriðjudegi
Ég er að reyna að hemja ál-bræðina sem kraumar í mér núna eftir að hafa klárað bókina hans Andra Snæs. Engar ofsögur um að þessi bók á að vera til í hverju herbergi á landinu. Þó að ég hafi verið þunglynd síðan ég lokaði henni ætla ég að benda á nokkra jákvæða mánudagsmola, þó það sé þriðjudagur í dag:
- Rakst á dásemd frá Apple fyrir helgi; www.apple.com/pro fyrir fólk sem vinnur í skapandi störfum. Ef tengingin leyfir þá mæli ég með að kíkja á myndbandið umUniversal Everything frá Sheffield. Þetta gæti verið að gerast á Hauganesi ;) Á örugglega eftir að "sökkva mér" meira í þennan vef.
- Mundu eftir maxtango.com þegar þú vilt senda einhverjum sætt kort. Þú getur jafnvel búið það til sjálfur og leyft öðrum að senda dýrðina þína áfram.
draumalandið - mörkin milli draums og veruleika
Ég les bækur ekki oft. Eiginlega allt of sjaldan. Síðasta bók sem ég las var Harry Potter en ég man ekki lengur númer hvað, sennilega sú næstsíðasta... er ekki bara ein eftir?
En núna er ég sokkin niður í bók, keypti hana í IÐU á Lækjargötu, hélt að ég væri þar með að styrkja einyrkja sem væri að berjast á móti straumi í harðri samkeppni bókamarkaðarins, líkt og ég fer glöð og eyði 25% meira í Melabúðinni fyrir sambærilegar vörur en í Bónus, nema þá heyri ég útundan mér að afgreiðslumaðurinn í IÐU segi við einhvern annan kúnna að hann ætli að leita að einhverju í lagernum á Eymundsson - þetta sé nefnilega sama keðjan! (Ég verð mjög sár ef ég heyri kjötsalann í Melabúðinni segja þetta einhverntíman um Bónus)
Dóh.
Allavegana, ég keypti bókina.
Ég opnaði hana í hádeginu í vinnunni í gær og var komin djúpt inn í nokkrar fyrstu blaðsíðurnar þegar ég rankaði við mér og fór aftur að vinna (við færibandið á hönnunarstofunni). Ég gjörsamlega sogaðist inn.
Í kvöld þegar strákurinn var farinn að sofa, Óli fór eitthvert út að horfa á körfubolta og ég ætlaði að fara að pakka niður fyrir norðurferðina á morgun greip ég bókina og settist í sófann okkar góða.
Mér líður núna vægast sagt eins og í einhverri geðshræringu, samt bara komin á blaðsíðu 85.
Akkúrat núna er maður að hugsa hvað er það sem skiptir engu máli í lífinu og hvað skiptir öllu máli. Það má ekki stimpla þessa bók sem pólitískt áróður eða athyglissýki einhverra listaspíra. Hún er ekki þannig.
Ég á örugglega eftir að segja meira um hana, en fyrst ætla ég að lesa meira og láta alla mína fjölskyldu, tengdafjölskyldu, vini og ættingja nær og fjær lesa hana líka.
Þessi bók heitir Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð og er eftir Andra Snæ Magnason
Ég skil alveg orð Silju Aðalsteins þó svo ég sé bara komin á blaðsíðu 85...
Fáið ykkur Draumalandið, takið hana að láni á bókasafninu, kaupið hana í bókabúðinni, lesið hana við bókaborðið eða stelið henni ef þið eigið ekki fyrir henni. Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA!
Flokkað sem bækur / heimilið / hönnun / lífið sjálft / ýmislegt /
4
kraftaverkin gerast
tyger
Egill benti mér á Tyger. Held að það sé eitt það fallegasta sem ég hef séð á ævi minni. Fyrir utan son minn. Og mann. En strax á eftir því.
takk apple.. þið eruð ekki beint að hjálpa..
Loksins þegar tölvunarfræðingurinn var búinn að samþykkja kaupin, tók ekki nema um 7 ár eða svo, koma Apple menn og æla út úr sér nýjum útgáfum alveg hægri vinstri. Nú líst fræðingnum náttúrulega miklu betur á þessar nýju en þegar við hringdum niður í umboð til að athuga hvenær þær kæmu (á þessu árið eða..?) komu menn alveg af fjöllum og vissu ekkert um þessar nýju útgáfur... well...
Núna erum við að spá hvort við eigum að spara nokkra þúsundkalla og versla þessa nýju úti eða þá eldri útgáfuna (sem tölvunarfræðingurinn er búinn að komast að að er ekki alveg gallalaus) hérna heima og kaupa þá ábyrgðina með.
Oooaaacccckhhh.. Þetta getur ekki verið svona erfitt...
onrushdesign verður ragnarfreyr
Mig langar að óska Ragnari Frey - Typo/Graphic Designer til hamingju með nýja lénið! um leið er svolítill söknuður í gamla léninu, onrushdesign.com, en hann hefur örugglega einhver skemmtileg plön fyrir það
getamac
Ef þetta sannfærir ekki tölvunarfræðinginn á heimilinu... þá veit ég ekki hvað... Apple - Get a Mac - Watch The TV Ads
Flokkað sem hönnun / netið / tækni / video /
2
iceweb
Síðustu tvo daga hef ég setið á Iceweb ráðstefnunni um vefmál, innan um vefhönnunarliðið á íslandi og hlustað á Molly Holzschlag, Eric Meyer, Kelly Goto, Dave Shea, Andy Clarke, Joe Clark og Shaun Inman (missti reyndar viljandi af þessum tveimur síðastnefndu því vinnan kallaði og topicin þeirra voru aðeins of tæknileg fyrir minn grunn).
Það var ákaflega hressandi að hlusta á þessa snillinga, sem allir eru professional fram í fingurgóma. Mér var svo kippt aftur í íslenskan raunveruleika þegar ég kom í vinnuna og fékk það verkefni að gera eitt stykki vefútlit fyrir klukkan fjögur... æ lov it!
Núna langar mig bara að skreppa til amazons og versla nokkrar bækur, er það ekki allt í lagi? ég á nú einusinni afmæli á morgun! ;)
vefmál
Ég er búin að hafa reykjalin.com óvirkt núna í rúmlega tvö ár eða síðan eftir að ég kláraði skólann. Blómatíminn var sennilega árin 2000-2003 þegar nýtt útlit kom upp í hverjum mánuði. Ég hef samt alltaf ætlað mér að hafa eitthvað skemmtilegt í gangi þarna en það hafa verið aðrir vefir sem hafa gengið fyrir, auk þess sem mér finnst ég aldrei hafa verið að gera neitt sem ég gæti sett þarna.
En um daginn datt mér í hug að skrá mig í May1stReboot og koma með eitthvað almennilegt upp þann fyrsta maí og aldrei að vita nema að það geti gengið eftir.
En morgundagurinn og einhver hluti föstudagsins verður undirlagður undir Iceweb ráðstefnuna.
iPod seen from space
sjáið þið eitthvað sem þið kannist við?
Þessi linkur á eiginlega heima í daglegri yfirferð þar til það kemur í ljós hvað er eiginlega í gangi
...hvað ætlum við að læra já....
Eins og ég er búin að segja höfum við ákveðið að rífa okkur upp og flytja til Danmerkur til að læra meir. Við erum bara nokkurn vegin nýbúin að segja frá í vinnunni og það hefur aðeins haldið aftur af mér að blaðra um það hér, en það ætti samt alveg að vera í lagi núna, þessi færsla er því tileinkuð Áslaugu vinkonu minni.
Óli Helgi ætlar að taka master í tölvunafræði (datalogi á máli innfæddra) og sækir um bæði í Århus Universitet og Handelshøjskolen i Århus. Í síðarnefnda skólanum fór hann í viðtal um daginn þegar við fórum til Árósa og leist vel á en þetta verður samt mikil keyrsla. Þetta þýðir að ef hann kemst inn á öðrum hvorum staðnum verður hann ansi mikið upptekinn og ef ég færi líka í álíka viðamikið nám yrði það mikið álag á heimilislífið. Ég tók mér tíma til að leita að námi sem mig langaði að eyða tíma í næstu tvö árin og ég fann diplómunám í Århus Tekniske Skole í margmiðlun. Kannski ekki mest ögrandi nám sem hægt er að finna svona grafískt séð en ég held að þetta gæti orðið áhugavert. Ég hef aldrei verið mikill flash fan, þvert á móti eiginlega. Ég held samt að margmiðlun sé óskilgetið barn grafískrar hönnunar og oftast litið hornauga af hörðustu grafísku teiknurum og hönnuðum og ástæðan er nákvæmlega þessi: Forkröfurnar í námið eru nánast engar, bara stúdentspróf og það helst af stærðfræði- eða viðskiptasviði. Sem þýðir að 95% af liðinu sem mætir í skólann er nánast bókað gjörsneytt tilfinningu fyrir hönnun og útliti en vill læra þetta því það er INN og heldur að bara ef það kann nógu mikið inn á tæknina þá komi hlutirnir til með að vera flottir.
So wrong. Þess vegna er svo margt margmiðlunardót búið að vera ljótt, en sem betur fer er það að breytast. Til dæmis sá ég í kvöld nýja dagskrárkynningu á Sirkus sem mér fannst frekar töff, þó það væru tvær stafsetningarvillur í textanum.
Eeen. Ég held að þetta gæti orðið gaman og ég held að ég komi til með að læra fullt nýtt og skemmtilegt.
Flokkað sem hönnun / lífið sjálft / netið /
0
önnur hugmynd
Ég fór að pæla í því eftir að ég póstaði þessu með iPod aukahlutina í gær að flottir (og góðir) heddfónar eru ekki beint auðfáanlegir. Ég held að þarna sé gat í markaðnum og ætla framvegis að tileinka líf mitt húfum, svitaböndum og eyrnaskjólum sem hægt er að tengja við iPod.
flakkarar
Það er eiginlega orðið opinbert. Við ætlum að yfirgefa þetta sker í lok sumars og fara til Danmerkur. Óli er búinn að sækja um nám á tveimur stöðum í Árósum og ég sæki um á einum stað. Svo ætlum við bæði líka að sækja um í Kaupmannahöfn, þó svo ég hafi meiri trú á að við lendum í Árósum. Svörin frá skólunum koma nefnilega ekki fyrr en við verðum búin að pakka niður svo eins gott að hafa hraðar hendur í sumar.
Við erum ekki búin að ákveða hvað við ætlum að gera við íbúðina, leigja hana eða selja eða bílinn, hvort við tökum hann með. Fjárhagsáætlunin er í smíðum.
Þetta verður mikið batterí en það verður örugglega gaman og gott að skipta um umhverfi og búa í öðru landi, þó maður fari ekki lengra en Danmörk.
tveir vefir
Á þessum föstudegi fóru í loftið tveir vefir sem ég á svolítið í. Annars vegar er það securstore.com sem snillingarnir uppi á skaga útfærðu eftir útliti frá mér. Hins vegar er það leiguradgjof.is sem er settur upp í kerfi frá Hugsandi Mönnum.
Að öðru leyti hefur ekkert gerst í dag.
djamm djamm djamm
í gærkvöldi var það ímark hátíðin - langt síðan ég hef djammað svona rosalega (myndi segja nokkur ár.. ef síðasta helgi er ekki talin með.), í kvöld var það túskildingsóperan í þjóðleikhúsinu. Mikið stuð það en ég hefði örugglega notið þess betur ef hausverkurinn væri ekki til staðar. Sviðsmyndin var algjör unun.
Morgundagurinn er svo opinber þvottadagur, þarf að vinna eitthvað á þennan safnhaug sem virðist alltaf stækka, ef við eigum ekki að taka með okkur tómar ferðatöskur til Danmerkur á miðvikudaginn.
Já einmitt, gleymdi að minnast á það að við keyptum okkur far til Danaveldis í síðustu viku, svolítið spontant og kreisí.
Best before..

Það er alveg augljóst af hroðalegu auglýsingunum dæma að gaurarnir hjá Húsavíkurjógúrt eru engar mannvitsbrekkur. En ég brosti samt út í annað þegar ég sá þetta í morgun.
the communist party
Einhvernvegin átti ég von á því að The Communist Party væri aðeins öðruvísi en það virðist samt vera gott stuð á þeim ;)
The Design Encyclopedia
The Design Encyclopedia er gott stöff. Rakst þar á grein um Susan Kare en ég var og er ákaflega heilluð af því sem hún hefur gert.
lúkkið
Sansaði aðeins lúkkið á þessu hérna, setti inn ártal og fleira smávægilegt.
Taichi námskeiðið sem ég talaði um í síðustu færslu byrjar ekki í fyrramáli heldur næsta laugardag svo að í fyrramáli verður útsalan í next tekin snemma (talandi um jafnvægi, slökun og orkuflæði).. þokkalega búin að bíða alla vikuna eftir að komast á útsölur því mig vantar svoooo mikið af fötum. finn reyndar aldrei neitt á útsölum og enda alltaf á að kaupa eitthvað í *nýju* deildinni.
En já, ætli maður fari ekki að sofa núna.. ef sonurinn sofnar aftur bráðlega, hann vaknar við hvern flugeld sem sprengdur er í borginni svo það stefnir allt í að hann kúri á milli í nótt.
Flokkað sem hönnun / lífið sjálft / netið / uppeldi /
0
threadless holiday sale
mmmmmmmm.... útsala..
en eins og með allar útsölur er allt góða stöffið búið
hönnunardagskráin næstu daga
Það eru spennandi hönnunardagar framundan. Fyrirlestrasyrpa á föstudaginn og sýning Húss og hýbýla um helgina. Svo er stefnt á hádegisverðarfund í næstu viku og aðalfund félags íslenskra teiknara í lok mánaðarins. Svo er hin "árlega" kennsla framundan líka.
hönnuðir landsins
Síðasta færsla, veik börn og vond hönnun, er ennþá ofarlega í huganum, sérstaklega eftir öll þessi komment sem hafa komið.
Sem hönnuði finnst mér þetta svo gremjulegt að þetta þurfi að vera svona. Í vinnunni erum við að vinna með einum aðila sem kemur nálægt barnavörum og ég er viss um að sá aðili, ásamt ótal mörgum öðrum, væri til í að hjálpa við að gera Barnaspítalann að vinalegu og vel hönnuðu athvarfi. Það þarf bara að taka af skarið.
veik börn og vond hönnun
Þegar ég var ólétt kynntist ég nokkrum verðandi mæðrum á sama reki. Við eignuðumst allar börn í sama mánuðinum og höfum haldið hópinn núna í næstum tvö ár. Það er alltaf jafn gaman að hitta þær og ræða um þroska barnanna, aðbúnað í daggæslu og svo framvegis. Ég fór að hitta þessar stelpur í gærkvöldi, keyrði borgina endilanga alla leið upp í Vatnsenda.
J.
ég er greinilega hætt að skoða reffana í teljaranum, var að uppgötva jonna designalot bara núna í kvöldsárið.
grifflur óskast
þegar ég sit við tölvuna þá verður mér alltaf svo geeðveikt kalt á músahendinni.. kalt alveg í gegn!! hvar er hægt að fá töff grifflur? ef ég kynni nú bara að prjóna. jee
Heilmikið að gerast á næstunni, nóg að gera í vinnunni og Ágústa sessunautur komin aftur, það er gaman að vinna með skemmtilegu fólki sérstaklega þegar það er nóg af skemmtilegum verkefnum.
Eins er ég komin með tvö vefverkefni on-the-side og loforð um áframhaldandi kennslu í desember sem er mjög spennandi -og krefjandi. Ég þarf aðeins að taka mig á og gera eitthvað sjálf, fyrir utan það að "edjúkeita" sjálfa mig svo ég hafi eitthvað að segja.
En já, það er ekki hægt að tala við ÓH þessa dagana því 20. ágúst er á næsta leyti og núna talar hann bara í haglaskotsdreifingu, Stoeger vs Benelli og heiði -istungumáli. Skilji þeir sem vilja, ekki skil ég baun. Fegin verð ég ef eitthvað kemur í frystinn.
baggalútur - á netinu síðan 1944
Baggalútur er náttúrulega stök snilld. flott nýtt design. yeah
komin heim
Þá er sumarfríinu þetta árið að fara að ljúka. Við komum heim úr norðanreisu núna um helgina og höfum verið að ganga frá dóti, sansa íbúðina og almennt ná andanum hérna heima. Það er merkilegt hvað tíminn líður hratt, merkilegra er að það virðist alltaf koma manni jafn mikið á óvart.
Blákaldur veruleikinn hefst eftir mánaðarmót þegar ég fer að vinna og Danni fer til Örnu dagmóður. Ég hef engar áhyggjur af honum þar, þar er gott fyrir hann að vera yfir daginn.
Mig er farið að langa að gera eitthvað af alvöru fyrir herbergið hans hérna heima, fletti öllum blöðum sem ég kemst yfir og er að íhuga hvernig sé best að raða þessu upp. Þetta er nefnilega svo stórt herbergi, um 12fm, og býður því uppá ýmsa möguleika. Vandinn er bara að ég þarf að hafa mitt skrifborð með mínu tölvu- og föndurdrasli. Ég get ekki hugsað mér að gefa það eftir. Það þarf því góða innanhúshönnun í þetta rými, og nokkrir hundraðkallar skaða ekki heldur.
himnasending frá N.Y.
Baddý systir kom frá NY í morgun, ég sótti hana við sólarupprás og uppskar hinn ægifagra iPod mini. Loksins eplalykt í húsinu. Verst hvað litli fallegi iPodinn þarf að eiga samskipti við ljóta tölvu, honum finnst hann örugglega vera svolítið skítugur strax á fyrsta degi.
Litla systir kom líka með haug af dóti handa Danna; pólóboli og hnébuxur, fisher price, sandala, jakkaföt og körfuboltabúning, svo eitthvað sé nefnt.
Stórgott!
finnish design
Það er hægt að finna margt dásamlegt í Finnish Design Shop, mynstrin þarna eru mörg hver alveg meiriháttar, langar að mála svona upp á vegg.
sending frá barcelona
Langar að segja *takk* og knús* við Ágústu fyrir bókina frá Barcelona! Skemmtileg bók og mjög óvænt :)
júró design
Það er áhugavert að renna yfir lógóin sem hafa verið á söngvakeppninni alveg síðan 1957, ég er sérstaklega hrifin af 1966 og því sem er í gangi núna, ágætlega heppnað skipulag sem byrjaði í fyrra í Tyrklandi. Rosalega er samt búið að vera ljótt dót fyrir þetta undanfarin 10 ár, mesta stuðið er Sweden 1985 og Belgía 87 er líka alveg að gera sig.. hahaha
Form Islandia
Ragnar Freyr er farinn af stað aftur, í þetta sinn er það Form Islandia. Þetta verður mjög fróðlegt að fylgjast með, og vonandi leggja eitthvað af mörkum líka. Síðan Icelandic National Team lagði upp hefur maður lítið heyrt af gossi nema bloggsíðurnar spretta upp á víð og dreif. Form Islandia verður hins vegar annað og sterkara en INT, meira verið að reyna að kafa í kjarnann. Hvað er íslensk hönnun?
þráðlaus
Fullt af nýjum bolum á Threadless, spurning hvort maður eigi að fara að panta sér aftur? sem minnir mig á það að ég ætlaði alltaf að senda myndir af mínum bolum til að fá stig, ég er svo mikill sökker fyrir svoleiðis.
Vorsýning Listaháskólans
Í dag opnaði vorsýning útskriftarnema við Listaháskóla Íslands í Listasafni Íslands, Kjarvalsstöðum. Ég sé hana óneitanlega aðeins öðrum augum en margir aðrir því ég stóð í þessum sporum sjálf fyrir tveimur árum; að kynna, standa og falla með verkefni sem maður hefur lifað og hrærst í, í margar vikur, auk þess að vera þarna á palli sem verðandi hönnuður og aðrir spyrja í huga sér hvað maður hafi eiginlega fram að færa. Kannski er það bara ég sem tek ég þessu svona hátíðlega.
Það voru nokkuð margir staddir þarna í dag þannig að ég fór yfir þetta á svolitlum handahlaupum, ætla þess vegna að fara fljótlega aftur en langar samt aðeins að segja nokkur orð um sýninguna, með svolitlum fyrirvara samt.
Miss Broderi in action!
Einar Gylfason, sem er grafískur hönnuður hjá Óinu og kenndi mér m.a. síðasta veturinn í LHÍ, hafði samband um daginn til að fá afnot af letrinu Miss Broderi, sem ég gerði sem lokaverkefni í skólanum, fyrir verkefni sem hann var að gera. Sem var auðvitað ekkert nema sjálfsagt. Hann sendi mér útkomuna sem mér finnst alveg snilldarleg. Það er gaman að sjá litlu börnin sín vaxa úr grasi :)
arkitektar
Það er svolítið gaman að skoða hvernig skipulag Mýrargötu hefur verið unnið. Mér finnst arkitektar yfirleitt gera frekar smart og skemmtilegar myndir. Það er hægt að leika sér alveg ótrúlega með þetta.
hugurinn ber mig hálfa leið
Í gærkvöldi á meðan Óli var í körfu hannaði ég nýtt útlit á bloggið þar sem þetta er orðið frekar þreytt og hnjaskað. Núna get ég ekki hætt að hugsa um það og iða í puttunum í að setja það upp, og hreinlega hef ekki lyst í að skrifa neitt hérna fyrr en það er komið upp. Svona er maður bilaður.
Það er hér ægi fagurt veður. Væri alveg til í að vera að hjóla á fisher með syninum á Ægissíðunni akkúrat núna.
smáatriðin skipta máli
örlitlar útlitsbreytingar, svona smá upplyfting áður en ég hendi þessu út og set upp eitthvað nýtt.. það er alltaf á leiðinni.
allt við það sama
ég tók smá tiltektar og pússningarrispu á blogginu á laugardagskvöldið (á meðan hatrammur def jam bardagi stóð yfir í stofunni). Meðal annars setti ég inn þennan glugga í myndasafnið en komst ekki lengra með að útfæra stílinn á honum. Að öðru leyti var helgin róleg og venjuleg vinnuvika framundan.
rokk og ról!
Hver þarf að hafa itunes í gangi þegar það er partý á Kaffi Skít?
wow!
Ég held að Shaun Inman hafi búið til eitt fallegasta bloggið sem ég hef lengi séð. jawdropping eins og menn segja, og hægt að læra fullt af css trixum hjá þessum gaur.
hugmyndaleg fátækt
Þegar menn eru með tvö fyrirtæki í sama plássinu, af hverju reyna menn ekki að hafa svolitla fjölbreyti í merkjagerðinni! case 1 - case 2
reykjalin.com
er ekki kominn tími til að gera eitthvað almennilegt við reykjalin.com? Vefurinn sem er núna er bara mini portfolio, segir ekki mikið. Það væri gaman að hafa svolítið playground þarna, sem var nú upphaflega hugmyndin. Ég hef nefnilega lítið að gera með eitthvað showcase þar sem ég er ekki að selja sjálfa mig fyrir stofum eða verkefnum. Þarf að hugsa þetta aðeins. Hugmyndir vel þegnar
annar mars
Það er hættulegt að labba framhjá búðum á leiðinni í vinnuna. Í morgun sogaðist ég inn í Iðu í Lækjargötu eftir að sexan var búin að henda mér út. Ég var reyndar í leit að góðum penna, svona túss.. ég hata þessa kúlupenna, en fann síðan alveg dásamlega skissubók. Jedúddamía hvað hún er falleg. Ég er með ákveðið fetish gagnvart hönnunarbókum og fögrum skrifstofuvörum og hallelúja, ég verð aldrei söm. Og já, ég er geðveik.
Ég sogaðist líka inn í 10-11 og keypti núðlur sem ég borðaði í hádeginu og svoleiðis var dagurinn.
Hönnunarverðlaun FÍT
Annars fékk ég skemmtilegt verkefni í kvöld. Ég var nefnilega kölluð til að dæma tilnefningar ársins 2004 í Hönnunarverðlaunum FÍT (félags íslenskra teiknara). Ég fæ því að sjá rjómann af hönnun síðasta árs á einu bretti í kvöld og get lagt mitt að mörkum til að velja það besta.
hljómur vikunnar
Ég hef verið að hlusta svolítið á Nancy Sinatra undanfarið, dúndur góð tónlist hjá henni. Ég hef reyndar algeran viðbjóð á kántrí tónlist en hún gerir nokkuð vel heppnaða blöndu af amerískri folk tónlist og ofur retro 70s Tarantino stælum. Gott mix.
Nancy hljómar sérstaklega vel í nýja Tivoli útvarpinu okkar sem kom um daginn, viku seint vegna tafa hjá ShopUsa en gleðin þeim mun meiri.
Já Nancy og Tivoli eiga margt gott sameiginlegt, hljómurinn, mónóið og atmóið einhvernvegin.
shp
oh, mig langar geðveikt að kaupa mér flotta boli. Dollarinn er hagstæður núna og aldrei hægt að finna flott föt á þessum útsölum hérna í bænum, reyndar eru allir flottu bolirnir á threadless búnir líka, -í minni stærð amk.
Ég þarf allavega að hressa upp á fataskápinn áður en ég fer að vinna aftur, það er for sure.
Íslensk sjónmenning
"Icelandic National Team ætlar á næstu mánuðum að gera tilraun til gefa út veglegan PDF-bækling sem verður einskonar yfirlit yfir íslenska hönnun og sjónmenningu á árinu 2004. Bæklingurinn verður bæði á íslensku og ensku og verður honum dreift til helstu íslenskra og erlendra hönnunarsetra á netinu þar sem hann verður væntanlega boðinn til niðurhals. Allt er þetta gert til að kynna íslenska hönnun og sjónmenningu, bæði hér heima og erlendis. Hugmyndin er að sýna það ferskasta sem er að gerast í íslensku hönnunarlandslagi í dag".
Þetta er alveg málið. Ef ég hefði ekki verið upptekin við að unga út barni og ala það upp hefði ég örugglega eitthvað spennandi að senda, en eitt er víst að ég verð pottþétt (hlýt að vera) með á næsta ári. Til að það megi gerast þarf ég að vera dugleg, núna.
Siðareglur
Tölvupósturinn kominn á vísan stað
Ég var að ná í Mozilla Thunderbird sem er email forrit svipað og Outlook en bara miklu betra. Lúkkar mjög vel og öll funksjón gengur fullkomlega upp og því er það ákaflega vel hannað að mínu mati. Mun léttara og öruggara forrit. Hvet alla til að skipta yfir í Thunderbird (í staðin fyrir Outlook) og Firefox (í staðin fyrir Internet Explorer).
heit
Áramótaheitið hjá mér er að hluta kennt við neyslu eins og hjá mörgum öðrum. Þeir sem strengja svona heit á annað borð heita því að verða betri á eftir og lang flestir ætla því að hætta einhverjum ósið. Ég veit að ég á ekki sjens í að hætta að borða súkkulaði þannig að ég ætla ekki einusinni að fara þangað. Hins vegar ætla ég að reyna á það að hætta að drekka gos, núna er komin vika og það er auðvitað ekkert mál.. segi ég ennþá. Hitt kemur svo seinna.. vonandi.. kannski
En svo er eitt grafískt áramótaheit. Ég var nefnilega að fatta að ég er ekki búin að gera bobs svona hönnunarlega séð á síðasta ári. Ekkert sem ég get státað mig af enda verið upptekin við önnur yndisleg verkefni. Þetta fattaði ég þegar Raggó fór að auglýsa eftir efni í Icelandic Visual Culture 2004 En núna, samhliða uppeldinu, ætla ég að reyna að gera eitthvað merkilegt og skemmtilegt svona grafískt séð að minnsta kosti eitt verkefni í hverjum mánuði. Þá mun ég vonandi eiga 12 verk sem ég get sýnt með stolti á sama tíma á næsta ári. Það væri fjör.
bloggið
Frískaði aðeins uppá þetta. Bleika lúkkið varð til sem mótvægi við öllu ljósbláa dótinu sem hafði bæst við líf mitt, núna þarf maður aðeins jarðsamband. Smá ferskleiki er skrif-hvetjandi.
eilítil hönnunarkrítík
Ég elska fallegar uppskriftabækur. Þær sameina þrennt sem ég hef mikinn áhuga á; matur, fallegar ljósmyndir og fallegt og vel upp sett letur. Þegar maður hefur auga og bragðlauka í þetta þá á það ekki að geta klikkað. Tímarit eru ennþá dásamlegri þegar þau heppnast vel, draumadjobbið væri í raun að setja saman röð tímarita sem fjalla um mat. MMMmmm já.
Knappur skilafrestur er óhollur fyrir hjartað
Ekki góðar fréttir fyrir grafíska hönnuði hér á landi þar sem það er landlægt vandamál að allt er unnið á síðustu stundu.
Kennslan búin - komin í jólafrí
Ef þið viljið skoða hvað nemendurnir mínir litlu sætu og duglegu voru að gera þá má sjá þá hér: esther katrín ragnheiður ísak óðinn óli sunna.
Það bendir allt til þess að ég fái tækifæri til að endurtaka þetta á næsta ári, það yrði gaman en við sjáum bara til.
Í kvöld ætlar gamli LHÍ bekkurinn minn að hittast og sprella, það gæti því orðið þunnur þrettándinn á morgun.
frk. kennslukona
Í síðustu viku var haft samband við mig úr gamla skólanum mínum og ég beðin um að kenna einn kúrs þar í vefhönnun. Þar sem þetta er bæði fínn aukapeningur og dúndur klausa í CV-ið þá sló ég til, fer að kenna í lok mánaðarins. Undirbúningurinn fer að hefjast, þetta eru tvær vikur sem ég hef til að kenna krökkunum að setja verkin sín inn á vefinn á góðan og fallegan hátt þannig að þau (og ég) geta verið stolt af. Tvær vikur er bara grín, svo það er best að setja í skipulagsgírinn.
Danni verður að öllum líkindum heima með pabba sínum þessa daga (6 morgnar alls) nema einhver vösk barnapía gefi sig hér með fram :)
Ég held að þetta verði mjög fróðlegt og skemmtilegt en jafnframt frekar krefjandi. Sem er gott, gaman að kynnast þessari hlið.
+ SE +
Siggi Eggerts handskrifar bloggið sitt. æði! framtíðin er hafin.
með ofbirtu í augunum?
Ég fór á einstaklega áhugaverðan fyrirlestur í kvöld, maðurinn heitir Wolfgang Weingart og er ein skærasta stjarna í grafískri hönnun á 20. öldinni. Hann er gangandi sögukafli í námsbókunum og þekkir auðvitað allar hinar stjörnurnar eins og það sé bara .. alveg sjálfsagt.
Hann talaði aðallega um bókina sína (sem hann sagði að við ættum endilega ekki að kaupa heldur fá lánaða á safni og ljósrita upp úr henni, áhugavert á þessum copyright tímum) og þær aðferðir sem hann notast við til að nálgast leturhönnun. Leturhönnun er í hans skilningi ekki að hanna letur heldur að hanna MEÐ letri. Hann er lærður letursetjari, starf sem er útdautt í dag en hefur alveg óskaplega mikinn sjarma og er því algerlega af gamla skólanum. Hann sagði samt sem áður frá því að árið 1984 var honum boðið til San Fransisco þegar var verið að kynna hina nýju MacIntosh vél, þá fannst honum þetta svolítið sniðug græja og sá greinilega að þetta var framtíðin, þá gaf Steve Jobs forstjóri Apple honum 4 vélar til að fara með í skólann til Basel í Sviss (þar sem hann kenndi). Fljótlega fékk hann samt leið á henni því hann gat ekki komið við pappírinn eða blýið eða fundið lyktina af fixernum í ljósmyndakompunni. Síðan þá hefur hann ekkert verið fyrir tölvur.
Þetta er alvöru maður.
linkar:
svipaður fyrirlestur
bókin "my way to typography"
a dream
Mig dreymdi geðveikan draum í nótt, ég ætti eiginlega ekki að segja frá því heldur nota þetta einhverntíman.
En OK mig dreymdi semsagt að ég hafi farið inn á hamborgarabúlluna sem er við Slippinn, ég hef sko aldrei komið þangað inn en finnst þetta svolítið sneddí staður. ég kem þangað ein og teygi mig yfir afgreiðsluborðið til að ná mér í matseðil. Matseðillinn er semsagt ferhyrnd mappa sem maður flettir upp og fyrst er þar venjulegur hamborgari, nema að efsta brauðið er vagúmpakkað (e. vaccum) sér, steikt kjötið er vagúmpakkað sér og svo neðsta brauðið vagúmpakkað þannig að maður flettir einhvernvegin í gengum borgarann. Næst er svo ostborgarinn og hann er eins nema osturinn er vagúmpakkaður og er fyrir ofan steikta kjötið. Svo var þarna fleira af matseðlinum, píta og eitthvað.
Ok ekki mjög geðslegt en í draumnum var þetta geðveikt töff og þegar ég vaknaði í morgun hugsaði ég bara Vaaaá
Hér með slæ ég mér einkarétt á þessari hugmynd.
Fít
Plakat og kynningarefni fyrir Fít sýninguna er komið, Einar í Ó-inu gerði það, fékk 30 hönnuði til að gera sína eigin útgáfu af ákveðnum staf sem yrði svo raðað upp í setninguna 'Grafísk hönnun á íslandi 16.10-31.12' útkoman er áhugaverð.
Mér finnst hins vegar bæði merkilegt og sorglegt að af þessum 30 hönnuðum eru 25 karlar og 5 konur. Væri ekki hægt að hafa þetta aðeins jafnara?
Hringbraut - saknaðarorð
þær hafa ekki farið framhjá neinum vegaframkvæmdirnar í borginni þessi misserin. ég bý reyndar svo vel að þurfa ekki að ferðast mikið á milli bæjarhluta þetta sumarið, sem betur fer, þau fáu skipti sem ég fer eitthvað af stað þá get ég hæglega ærst. þessi hringbrautar"færsla" er ákaflega misheppnuð hugmynd sem hefði aldrei átt að fara í framkvæmd.
hugmynd

Hvað ætli mamma segði ef ég gæfi henni svona bol í jólagjöf?
jei húrrei
Ein af mínum uppáhalds: yayhooray.com er búin að breyta svolítið til og eru komnir með nokkurn vegin bloggþjónustu í samfélagi þar sem maður getur líka tengt sig við aðra, eignast vini (og óvini reyndar líka) og spjallað í senn, og allt lúkkar þetta afskaplega vel.
þarf að tékka á þessu betur. - hér er ég annars :p -
hönnun heimilistækja
ég er einstaklega ánægð með nýja örbylgjuofninn, það sem ég hef hitað í honum hefur reynst vel en það sem mér finnst yndislegra er lúkkið á honum og að hann tekur ekkert pláss. Hann er svo einstaklega vel og lógískt hannaður að mér finnst skrýtið að hafa ekki séð það áður -kannski hef ég ekki verið að fylgjast svo vel með örbylgjuofnahönnun undanfarin ár. Eins og sést þá er hann ekki aflangur eins og flestir svona ofnar hafa verið heldur er stjórnborðið fyrir neðan gluggann, í sjálfri hurðinni í stað þess vera við hliðina á hurðinni og bæta við breiddina á ofninum. Svo er hann eins og "D" í laginu séð að ofan; bakið er hálfhringur eftir diskinum þannig að maður er ekki með nein leiðinda horn inni í ofninum sem er leiðinlegt að þrífa.
þetta er svo einfalt og snjallt og þar af leiðandi er ótrúlega gaman að borða 1944 þessa dagana.
líttu í búðarborðið
ég þarf að gera mér ferð í sjoppu á eftir til að sjá eitt af mínum hönnunarverkum í réttu ljósi.. lakkrísbarinn er nefnilega kominn í búðir, allavega sá ég hann í krónubækling sem kom inn um lúguna. ég fer nefnilega oft ekki mikið lengra en niður í póstkassa sjáiði til.
FíT
í haust verður haldin risa sýning í hafnarhúsinu á vegum FíT, félags íslenskra teiknara um grafíska hönnun á íslandi. Raggi félagi minn er að safna saman efni og ég var að klára að setja saman á disk eitthvað af því sem ég hef gert undanfarin ár í von um að eitthvað af því gæti ratað inn á þessa sýningu. þar á meðal eru nokkur vefútlit sem ég hef gert fyrir mig persónulega frá 1999, alls 102 mismunandi útlit. það er nördalega há tala.. og fer hækkandi.
En þetta verður rosalega merkileg sýning og það á víst að gefa út einhvern svaka doðrant í tengslum við hana.
Við jr. fáum okkur smá labbitúr í hádeginu á morgun og skilum diskinum.
það var ákveðin nostalgía að
það var ákveðin nostalgía að fara og sjá útskriftarsýningu krakkanna úr lhí í dag. Gíslína frænka var með sitt lokaverkefni þarna sem leit mjög vel út og svo held ég að grahö deildin hafi komið einstaklega vel út líka. Myndlistardeildin finnst mér yfirleitt vera svolítið mikið bleh, ég þarf bara að rölta þarna niðureftir og skoða þetta betur í næði einhvern daginn, það var svo klikkað mikið af fólki þarna í dag.
Samt er ótrúlega skrýtið að hugsa til þess að það er ár liðið frá því ég stóð í stórræðum.
[ R ]
já, gleymdi einu sem ég gerði líka í gær.. lífgaði reykjalin.com við... þó fyrr hefði verið.
Egill sýnir það enn og
Egill sýnir það enn og aftur að hann er snillingur.
Arkitektinn ólöf skrifar grein um
Arkitektinn ólöf skrifar grein um baðherbergi sem er mjög áhugaverð þar sem baðið okkar er ennþá nokkurn vegin "í vinnslu"...
egils eða viking?
mjög svo áhugaverðar umræður eru komnar af stað um bjórstríðið áIcelandic National Team.
ekkert að gerast
æji vá ég er búin að vera allt of lengi að vinna í nýja vefnum..
það virðist vera að alltaf þegar ég sest niður hérna heima þá er eitthvað annað sem liggur fyrir og þegar ég ætla loksins að gera eitthvað í þessu þá finnst mér ekkert af þessu sem ég ætlaði að gera vera að virka.
kannski ég eigi bara að gera eitthvað allt annað þarna inni, ekkert stórt eða mikið.. bara eitthvað annað en ég hef verið að gera og gleyma öllu þessu gamla.
ég þyrfti eins og eina andvökunótt með nóg af góðri tónlist.
SíMINN.. sorgardagur í íslenskri hönnunarsögu
ég var í morgun að kíkja á þjónustusíður Símans vegna skráningar í símaskránna og þá var allt með kyrrum kjörum. þegar ég kíki svo núna í hádeginu hefur orðið sprenging.
Síminn er kominn með nýtt Company Image sem Gott fólk á sennilega heiðurinn að/af. ég veit ekki alveg hvort ég á að hlæja eða gráta. Mér finnst eins og það hafi verið unnið ótrúlegt skemmdarverk á þessu fyrirtæki og þeirri ímynd sem það hafði. það var reyndar alveg kominn tími á smá uppfærslu, smá litabreytingar og merkisbreytingar en mér finnst hafa gengið of langt. Merkið er leturgerðin Barmeno, örlítið teiknuð til en ótrúlega lítið þó (miðað við að það hafi örugglega kostað nokkuð marga þúsara) og litli sporðdrekinn við hliðina á því er eins og réttilega er bent á á INT miklu meira í takt við eitthvað HM merki í handbolta, þó svo það sé alveg hægt að rökstyðja það sem "stílfærða þrívíddarteikningu af hnetti og hnykki þannig á alþjóðlegri skírskotun". Svo er spurning hvernig menn ætli sér að setja það í pixel merki fyrir símaskjámyndina?
æji allt saman finnst mér þetta frekar sorglegt. Sérstaklega þegar gengið er of langt í óþarfa og sú sterka ímynd sem Síminn var búinn að byggja sér upp algjörlega brotin niður.
En þetta er kveisa sem er greinilega að ganga, sbr. ný merki Og Vodafone og KB banka. þar eru gömul og góð merki látin fara í hundana fyrir einhverja nýja bólu og virðist sem menn séu að undirbúa sig fyrir næsta hagvaxtarskeið og séu að þvo af sér gamlar syndir.
Naglarnir komnir á vefinn
Vefur 200.000 Naglbíta fór í loftið frá mér um helgina þó svo það vanti ennþá töluvert inn á hann til að gera hann meira djúsí.
ég veit ekki hvað það er með mig og brúnan lit þessa dagana en allt sem ég geri endar á því að verða einhvernvegin grábrúnt..
ég tók líka portfolioið mitt niður í síðustu viku því ég var komin með dauðleið á því. ég ætla að breyta því svolítið mikið því það er ennþá með svona "Hire Me" blæ sem þarf ekki að vera lengur. Temp síðan endaði því líka á því að vera brúnleit. En það kemur vonandi eitthvað meira og nýtt kjöt á hann í vikunni.
vefurinn fyrir Mixa
Stofan mín var að opna vefinn sem ég er búin að vera að gera sl. mánuði. það er ótrúlega góð tilfinning að vera komin með hann í loftið þó svo vefir séu verkefni sem taka aldrei enda.
síðan
ég veit, nýtt lúkk.. ég var komin með leið á hinu. þetta er kannski full dimmt og drungalegt en það var annaðhvort þetta.. eða eitthvað jóla!
mér finnst þetta skárra, sú mí.
það er ennþá fullt eftir að laga.. ég geri það annaðkvöld.
dugleg stelpa...
annar vefur upp í dag, núna er það Móna súkkulaðigerðin. Undanfarna daga hef ég verið angandi af súkkulaði eftir myndatökurnar fyrir vefinn.. ekki gott fyrir magann..
Svo eru þeir líka með uppskriftasamkeppni þar sem ég hvet að sjálfsögðu alla til að taka þátt.
ofurstelpan ég
ég er búin að vera alveg rosa dugleg síðustu vikur. Núna fara að koma í loftið nokkrir vefir sem ég hef verið að gera, fyrst má nefna blumaris.is en "offísíal lönsið" verður á næstu dögum. Kommenti þeir sem vilja, helst í meili samt. Svo læt ég vita þegar fleira fer upp.
atvinnumarkaður grafískra hönnuða
Sem betur fer virðist atvinnumarkaðurinn hjá grafískum hönnuðum vera eitthvað að batna. Síðan ég byrjaði að vinna hjá Höllu hef ég fengið tvö atvinnutilboð sem er ekkert nema gott mál. ég er hins vegar það ánægð þar sem ég er núna að ég hafnaði þeim báðum (sem er alltaf visst góð tilfinning). ég benti hins vegar á Vigdísi vinkonu mína og ég held hún sé byrjuð að vinna á öðrum staðnum. ég hef reyndar ekkert heyrt í henni síðan hún byrjaði en þetta starf hljómaði ofsalega vel. Hins vegar held ég að það séu ennþá nokkrir í bekknum sem eru ekki enn komnir í vinnu en þeim til huggunar segi ég að þetta sé allt að koma.
fíton
fyrr í kvöld fór ég í smá útgáfupartý til Fíton auglýsingastofu þar sem Fítonblaðið var að koma út í dag. ég, ásamt nokkrum öðrum úr bekknum, áttum efni í blaðinu.. endurhönnun á opal pakka sem kom nokkuð vel út. Partýið var líka fínt, hitti gömlu bekkjarfélagana sem ég var ekki búin að sjá síðan á útskriftinni.. hitti líka Villa og þórdísi, Odd dísilhnakka og Fríðu þannig að það var mjög gaman.
learn from the past and look to the future
ég fór á ráðstefnu í morgun með Viggu og Lellu. Sænska sendiráðið hafði boðað til ráðstefnu undir yfirskriftinni "Design opportunities for the Future" með áherslu á sænska og íslenska hönnun.
þar voru nokkrir fyrirlesarar t.d. Sigga Heimis sem er einn aðalhönnuða hjá IKEA og svo var íslenskur gaur frá Iðntæknistofnun sem kynnti þjónustu sem þeir kalla "Rapid Prototyping". Vá hvað það var flott... þeir basically „prenta“ út í þrívídd. Ef maður hugsar sér græju svipaða og prentara sem leggur 0.1mm þykkt lag aftur og aftur, í layerum.. þá er maður kominn með þrívíðan hlut, prentaðan út eftir þrívíðum tölvuteikningum og er hægt að prenta út í plasti, vaxi, keramik og einhverju fleiru. Sjá nánar hér.
þetta er svo flott en samt svo lógískt og einfalt að það er alveg brilliant.
*úff*
105
Verkefni mitt síðustu daga hefur verið að koma vef deildarinnar minnar fyrrverandi yfir á server í skólanum. ég setti hann nefnilega upp síðasta sumar á pjúsinu en núna var kominn tími til að færa hann.
ég verð að segja að það gekk ótrúlega vel, ekki nema nokkurra stunda (sem náði yfir nokkra daga) vinna. Hins vegar er margt þarna sem sæmir ekki beint grafískri hönnunardeild (lúkk sums staðar, þú skilur ef þú skoðar) þannig að það þarf að taka lúkkið aðeins í gegn.
ég veit það bara að þessi vefur er kjarni skólastarfsins í deildinni og ef hann væri ekki til staðar, ja þá væri ansi mikið prentað út og ljósritað og dreift með tilheyrandi kostnaði.
ég sakna þess óneitanlega að vera ekki að fara í skóla. Mig langar að fara aftur bráðum, ekki endilega þennan skóla, frekar útlendan skóla. Læra meiri hönnun.
nýtt efni á int
ég var að klára að setja inn viðtal við Svabba fyrrv. bekkjarfélaga minn inn á icelandicnationalteam. Hann er að vinna rannsóknarvinnu um íslenska leturhönnun, núna þarf ég bara að klára að vinna fontana mína svo ég geti sent honum.
Nýr INT vefur er í vinnslu og verður alveg massagóður þegar hann kemur upp, Raggi er náttúrulega snillingur.
horfið vel og vandlega á
horfið vel og vandlega á myndina af mér..
auglýsingar
Ef þú ert ekki búin að sjá þessa auglýsingu þá verðurðu bara að sjá hana! Líka þessa.
atvinnuleitin
Portfolio mappa dauðans er að skríða saman. ég er náttúrulega búin að hafa nógan tíma til að vinna í henni, meira en mánuður síðan ég útskrifaðist. So far veit ég um tvo sem hafa fengið vinnu í grahö bransanum sem útskrifuðust með mér, bæði hefur fólk ekki verið mjög bjartsýnt og ekki verið að sækja um á stofum og stofurnar hafa ekki verið að ráða, sérstaklega ekki óvana. ég ætla hins vegar að láta til skarar skríða bráðlega með góða möppu, allar ábendingar hvert skal fara eru vel þegnar.
mér finnst nýju litasamsetningarnar hjá
mér finnst nýju litasamsetningarnar hjá Símanum, litlu punktarnir á sumarkortinu, sérstaklega áhugaverðir. þetta eru sömu litir og ég setti í nýja Opal pakkann. þarna sjáið þið hvað ég er on!
got milk?
ég er nokkuð ánægð með nýju drykkjarmjólkina frá MS, umbúðirnar eru þrælfínar, enda runnar úr smiðju Hvíta Hússins trúi ég -miðinn allavega, flaskan er sennilega erlend steypa.
ég smakkaði einmitt þessa kakó mjólk, þar sem ég er óvirkur súkkulaði-orkumjólkarfíkill en það kom mér samt á óvart að það er eiginlega jafnmikill viðbættur í bragðbættu drykkjarmjólkinni eins og í venjulegri kókómjólk. (drykkjarmjólk: 8,7g kolvetni, kókómjólk: 9,7g, léttmjólk: 4,5g) Eini munurinn er að kókómjólk hefur 2g af fitu en drykkjarmjólk eiginlega enga.
Hvað sem því líður finnst mér þetta frábært og verður til þess að ég á örugglega eftir að drekka meiri mjólk en ég geri.
Svo eru umbúðirnar skemmtilega pixlaðar, ég er svo mikill sökker fyrir svoleiðis..
þá eru öll ummerki um
þá eru öll ummerki um skólavist mína í LHí horfin. Við óli fórum nefnilega í hádeginu og tókum niður verkin mín á sýningunni, skiluðum tölvunni sem var hluti af uppsetningunni aftur upp í skóla. Annars hef ég nælt mér í einhverja skrýtna kvefpest einhversstaðar sem er alveg óþolandi, örugglega af golfvellinum um helgina en ég kíkti aðeins með bóndanum á æfingarvöllinn úti á nesi. það eru ekki margir sem hafa fengið fugl á æfingasvæðinu en í öðru högginu sem ég tók (á ævinni) þá skoppaði boltinn í gæs sem lá í makindum sínum á grasflötinni þannig að hún stóð upp og labbaði í burtu. óendanlega fyndið. óli heldur að þetta viti á góðan golfferil en ég skal ekki segja.
Núna langar mig samt helst að skríða undir teppi og hlusta á Harry Potter hljóðbækurnar frá óla og Evu, þær eru snilld.
það er ekki hægt að
það er ekki hægt að segja annað en hilluæði hafi gripið um sig á heimilinu. í gær kíktum við í habitat og fórum út með eina bókahillu og eina litla þægilega hillu sem er komin upp í forstofunni undir síma, veski, lykla, póstinn og annað sem maður þarf að henda frá sér. Bókahillan fór upp í dag og allar sætu grahö og listaverkabækurnar komnar á sinn stað. það er svo gaman að vera organized =)
Vigga var að gera nýtt
Vigga var að gera nýtt á síðuna sína. mjög flott hjá stelpunni
Sveitta umsóknin bar árangur, ég
Sveitta umsóknin bar árangur, ég fer í viðtal eftir hádegi á morgun.
þess má líka geta að ég breytti lúkkinu á portfolioinu mínu af því ég telst ekki lengur nemi í grafískri hönnun heldur fullgildur grahö! Sem minnir mig á það að ég þarf að skila lyklunum að skólanum fyrir helgina, úff.. það verður erfitt, þá er einhvernvegin of raunverulegt að námsferli mínum á íslandi sé að ljúka. Nema ég fari bara í kennarann.
Annars veit ég ekkert hvernig viðtalið fer, geri mér engar sérstakar vonir um að það gangi endilega upp, reyni bara að brosa og vera sæt.. ætti ég kannski að fara í fleygna bolnum?
ég tók mér örlítið frí
ég tók mér örlítið frí frá sólinni til að gera sveittustu og sætustu atvinnuumsókn norðan suðurpólsins, skila henni inn á morgun og vona að hún skili árangri. segi ekki meir.
annars veit ég ekki hvort ég skrifi nokkuð meira fyrr en eftir helgina ef veðrið heldur áfram að vera svona brilliant.
myndir frá opnuninni + partýinu
myndir frá opnuninni + partýinu á eftir... já hérna!
sýningardagurinn
Gærdagurinn var hreinasta snilld. Sýningin opnaði kl 14, ég var reyndar komin niður í safn um kl. 12 og hjálpaði til við að ganga frá og hreinsa til áður en gestirnir kæmu. Dagurinn áður, eða þann 9. var ótrúlega atburðaríkur, best að skrifa það sem ég man bara á meðan það er í fersku minni, ekki endilega að þú nennir að lesa það heldur sérstaklega fyrir mig að lesa seinna....
til þín:
til þín:

haldið þið að við bekkjarsysturnar
haldið þið að við bekkjarsysturnar höfum ekki gerst ultimate gellur í morgun þegar við ákváðum að fá okkur "HOLLYWOOD TAN" í Lindarsól! (mæli með myndböndunum á síðunni, þau eru hillarious!). Brúnkan er að koma smám saman fram, nær sennilega hámarki um miðnætti og kemur sem betur fer ekki í flekkjum eins og ég var hrædd um, en ó mæ god, mér líður eins og skímó gelgju!
4 dagar í opnun
ég var orðin svo mygluð seinnipartinn í dag að ég ákvað að taka smá pásu eftir að vera búin að senda plakötin í prentun. ég fór heim, skrapp í sund og synti fram og tilbaka og fór svo í Smáralindina því ég var ekki alveg að fatta það að mig vantaði dress fyrir laugardaginn. Eins og Eva orðaði það vel að ef verkefnið manns er síðan bara ljótt þá getur maður kannski bætt það upp með því að vera sætur á opnuninni.
ég sá ýmislegt í Zara en tók með mér bara eina skyrtu og bol, ekkert endilega til að vera í á laugardaginn, hún passaði bara svo fínt og var eitthvað svo ódýr.
Annars elska ég hvað þessi stuttubuxnatíska ætlar að dragast á langinn.. aldrei hafa eins margar buxur smellpassað á mig eins og síðustu misserin.
Spurningin er bara, á maður að vera fansí og fínn eða hip og kúl? Svo fann ég reyndar röndótta skyrtu, skærgræna brúna og bleika alveg geðveikislega flotta en það er helvíti að finna buxur við hana, nema svartar plein leiðinlegar.. úff.. djúpar hugsanir...
lokaverkefnið
sjitt, núna eru plakötin mín farin í prentun. Snilldarfyrirtækið Dikta ætlar að prenta þau út fyrir mig þannig að nú verður ekki aftur snúið. þau verða tilbúin á morgun og ég vona að ég geti platað þá til að „fóma“ þau á fimmtudag. Núna fer vinnan á fullt í að gera slideshowið, Director ætlar að vera vinur minn í nokkra daga.
stundum snýst hönnun bara um
stundum snýst hönnun bara um ákvarðanir.
l
ég skrifa voða lítið hérna þessa dagana. ástæðan er einföld: ég á ekkert líf! ég hangi hérna uppi í skóla alla morgna, daga og kvöld að púsla lokaverkefninu saman þannig að ég þurfi ekki að labba fram af bryggju á laugardaginn kemur eða fá taugaáfall á föstudagskvöld... nema bæði verði, það kemur allt í ljós.
í kvöld var fiskur í
í kvöld var fiskur í matinn. þó ekki gullfiskur =þ
Núna stefni ég að því að klára seinni pósterinn svo ég geti sent þá báða í prentun í fyrramálið.. þetta er nefnilega ekki venjuleg prentun heldur líkara framköllun, fyrirtækið Dikta gerði mér mjög góðan díl í plakötin.
ég fór með strákunum niður í Hafnarhús í dag að skoða aðstæður því okkur var úthlutað sýningarsvæði í gærkvöldi. Svæðið sem ég fæ er uþb 5x3 m inni í salnum á jarðhæðinni, semsagt alveg flennistórt!
þær eru snilldarlegar MMS hreyfimyndirna
þær eru snilldarlegar MMS hreyfimyndirna frá Zoom inni á vit.is, sérstaklega finnst mér þessi brilliant, hún er komin í símann minn.
Reyndar er ég ekki alveg nógu ánægð með fontinn sem þeir nota til að merkja myndirnar, hann er mjög mismunandi og hann og copyright merkið verður óþekkjanlegur í sumum myndunum. það er samt góð og gild ástæða fyrir því þar sem skjáir gsm síma eru misstórir. þetta er samt eitthvað sem er vert að tækla.
morguninn var tekinn snemma,
morguninn var tekinn snemma, ég var komin upp í skóla um 9 leytið.. í þessu brilliant góða veðri. Svo er alveg bilað heitt hérna uppi á efstu hæð, sólin er grillar þakið og vinnustofan okkar er eins og bakaraofn. Steikin er að verða til!
Annars er ég að reyna að bægja frá allar hugsanir um það hvað mig langar að vera að gera annað en hanga hérna, taka til í fataskápnum, taka sprett á Fisher...
ég væri alveg til í að hafa svona dag eins og ása, það er þvílíkt langt síðan ég hef kíkt í IKEA og þó það sé alltaf sama dótið þar þá fær maður fráhvarfseinkenni eftir smá tíma.
Annars veit ég ekki hvort ég fari nokkuð heim fyrr en seint í kvöld. óli fór nefnilega norður í gær með óla og Evu, fór víst á einhverja byssusýningu í dag og er í golfi núna. þannig að það er ekkert að sækja heim í bili.
Og ég plataði tengdamömmu mína til að taka smá þátt í lokaverkefninu mínu, hún bjargar því alveg því ég hefði verið þvílíkt lengi að gera það sem ég veit að hún rúllar upp með stakri snilld. og svo ætlar hún að baka kleinur handa okkur þessi elska. =)
þó þetta verkefni sé ofsalega gaman þá er það ótrúlega þreytandi og viðbúið að það verði mikið spennufall þegar sýningin loksins opnar.. á þessum tíma eftir 2 vikur!
omg.
dagurinn
ég er búin að vera í skólanum síðan hálf níu í morgun. ég býst við að næstu vikur (allavega tvær) verði þannig svo að þetta verkefni klárist á tíma. ég fékk nefnilega martröð einhverntíman í febrúar sem var þannig að sýningin myndi opna á morgun og ég var ekki ennþá búin að ákveða hvað ég ætlaði að gera fyrir hana. Mjög svo óskemmtilegur draumur!
Planið er að allt verði tilbúið 3. maí þannig að mánudaginn 5. maí ætla ég að hengja upp verkefnið mitt og anda rólega í þeirri viku. Svo þarf að útbúa portfolioið betur og fara á stofuflakk.
En núna ætla ég að drífa mig heim, óli er búinn í körfubolta og ætlar að taka mig með í heimleiðinni. Ef við ættum baðkar heima myndi ég leggjast ofaní það.
þetta er það sem ég
þetta er það sem ég er búin að vera að gera sl. vikur
tadammm...

nafnatillögur óskast á þetta letur, já og komment ef þú vildir vera svo væn(n) =)
sýningin
ég fór í dag niður í Hafnarhús til að skoða salina sem við fáum fyrir sýninguna. þannig fær maður aðeins betri sýn á það hvernig lokaútfærslan kemur til með að vera, stærð og lögun og þessháttar. Hönnunardeildin fær meðal annars stóra salinn á neðstu hæðinni, inn af afgreiðslunni. Hann snýr út að götu og allir hlerar verða teknir frá gluggunum þannig að sá salur verður opinn frá götunni, sem er mjög fínt. Steinþór Kári, einn af hönnuðum hússins, er sýningarstjóri fyrir hönnunardeildina og er alveg ótrúlega klár í því, hann segir að þetta sé í fyrsta sinn sem húsið er undirlagt í eina sýningu! það verður því ótrúlega gaman að sjá útkomuna og ennþá ótrúlegra ef þetta á eftir að takast hjá okkur.
Helgin verður því að vera mjög smooth, fyrir þriðjudag ætla ég að vera komin með stærð og lögun fullmótaða þannig að ég geti fengið almennilegt tilboð frá prentsmiðju. það er margt sem á eftir að gerast í næstu viku!
í kvöld er stefnan sett á matarboð á Bólstöðum hjá heiðursfólkinu óla, Evu og væntanlegum erfingja.
það er eiginlega ekki föstudagur
það er eiginlega ekki föstudagur í dag hjá mér eins og hjá flestum. óli fer í 5 daga frí líka en ég verð að vinna í lokaverkefninu alveg á fullu svo það geti virkað vel 10. maí.
Staðan núna er sú að ég er búin að hanna letrið, núna er "bara" að setja það upp á áhrifaríkan hátt... þannig að það virki og skilaboðin komist til skila.
design n stuff
Endilega kíkið á Undirhyggjublaðið - 0203, gefið út af nemendum í skólanum.
OMG!!
það er orðið nokkurn vegin opinbert. Sýningin okkar verður í Hafnarhúsinu 10-29. maí nk. þýðir þetta að maður þarf að fara að gera eitthvað?
Svona spauglaust þá er ég frekar tens yfir þessari sýningu. áætlað er að um 8000 manns komi til með að sjá hana, húsið verður undirlagt.. meira að segja ERRó beygir sig fyrir okkur.. og það verður alveg smekkfullt á opnuninni þar sem þetta er kosningadagur og margir verða á ferðinni.
OMG!
ég fékk nett hjartaáfall áðan!
ég var stödd í director tíma inni í tölvustofu og ákvað að sýna sessunauti mínum grúvið sem ég gerði fyrir Fíton blaðið nema hvað að linkurinn á splass síðunni inn á portfolioið vísaði inn á einhverja gamla og brotna síðu en ekki litlu sætu síðuna sem ég gerði um heglina. úff.. þetta er svipuð tilfinning og maður fær þegar maður fattar að maður hefur gleymt að setja jógúrtið í möffinsdeigið...
þrátt fyrir ýmsar tilraunir við að breyta þessu í gegnum gamlan imac í tölvustofunni komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta hlyti að vera eitthvað minnisvandamál í vafranum inni í stofu því í öllum öðrum tölvum er þetta ekki vandamál.
En þetta varð til þess að ég er núna farin að taka til á vefsevernum mínum og allar gamlar syndir munu fjúka út í veður og vind.
aðeins seinna: núna er ég handviss um að búkolla var að spila 1. apríl með mig...
Sýnishorn af efninu mínu í
Sýnishorn af efninu mínu í næsta Fíton blað má sjá hér. þetta kláraði ég í gær, þetta gerði ég hins vegar í dag.
maður gerir aldrei eins mikið og þegar maður á að vera að gera eitthvað annað.
fimmtudagur
Dagurinn er búinn að vera átakalaus, mjög einfaldur fimmtudagur.
á morgun ætlum við að skila verkum okkar í Fíton blaðið þannig að ég sit ennþá uppi í skóla að klára giggið mitt. ég alveg elska svona föndur.. að "treisa" alls konar dúllerí í Illanum. Lokaverkefnið hrópar samt á mann hástöfum því ekki nema.. úps, fjörtíu og eitthvað dagar í sýningu =kaldur sviti=
bla bla..
Bekkurinn minn er þessa dagana afskaplega frjáls enda lokaverkefnisvinnan að fara á fullt. ég mætti í morgun gallvösk og er búin að gera tvær myndir fyrir næsta Frozt blað sem fjallar um stríð. Mín framlög má sjá hér og hér.
Annars er þetta búinn að vera ansi rólegur morgunn. Enginn mættur nema stelpurnar í vöruhönnun. ég býst við því að grafískir hönnuðir séu heima að vinna núna, eða sofandi? varla.
það er samt alltaf eitthvað sem nær að trufla mann frá þessu blessaða lokaverkefni. Fíton auglýsingastofa bauð okkur að taka þátt í næsta blaði sem þeir leika sér í að gefa út, það er mjög áhugavert verkefni og verður ef til vill vonandi kannski til þess að maður á meiri möguleika á því að fá vinnu í sumar? erfitt að segja en um að gera að vera bjartsýnn.. og halda áfram með lokaverkefnið því það skiptir mestu máli.
NO WAR
ég gerðist rebbel í morgun og útbjó no war grafík á frontinn á vefnum mínum í 'tilefni' af þessu heimskulega stríði sem er að fara af stað.
ég fór í dag upp
ég fór í dag upp í skóla til að vinna í verkefni sem er í gangi núna, við erum nokkrar saman að gera heimildarmynd, tókum upp uþb klst af efni, klipptum það niður og erum núna að klára að klippa það í FinalCut og vinna eftirvinnslu í AfterEffects. það er nefnilega ótrúlega gaman að fikta í þessu og vonandi náum við að klára þetta fyrir föstudaginn næsta, myndin verður örugglega um 10min löng.
skólinn og meira til
þessa dagana fer lokaverkefnisvinnan að fara af stað af því ritgerðin er búin. ég ætla að hitta leiðbeinandann minn á eftir og spjalla við hann um þær hugmyndir sem ég er með, sem ég veit ekki alveg hvað eru góðar. það eru ekki nema nokkrar vikur fram að sýningunni og maður fer að verða svolítið stressaður bráðum yfir því, hún opnar 10. maí í Hafnarhúsinu.
ég og Vigga fengum líka freelance verkefni um daginn sem við erum að vinna þessa dagana sem vill svo skemmtilega til að við fáum líka metið til eininga. það er alltaf gaman.
úff
jæja börnin mín, þá er BA ritgerðin mín komin út úr prentaranum, búið að fjölfalda hana og binda inn þannig að það eina sem hægt er að gera núna er að skila henni inn á skrifstofuna og slappa af það sem eftir er dagsins.



