Eftirfarandi eru færslur í flokknum "heimilið"
flutningar, part 2
Það hlaut að koma að því að við yrðum óheppin í þessum flutningsferli. Gámurinn kom til landsins á þriðjudaginn í síðustu viku. Þegar gellan í tolladeildinni hjá skipafélaginu sá að við vorum með einn kassa af Carlsberg á tollaskýrslunni (er hægt að finna betri minjagrip frá Danmörku?) fékk hún flogakast eins og árið væri 1988 og hún hefði ekkert fengið nema bjórlíki... og sagði að við þyrfum að borga áfengisgjald, ca 2600kr (fyrir bjór sem kostaði 1600kr) nú þyrfti þetta að fara í skýrslu upp í toll og sendillinn kæmi á morgun til að sækja skýrsluna því guðminngóður ekki fer ríkisstofnun að nota eitthvað tæknilegt eins og tölvupóst eða þaðan af verra.
Við signuðum okkur bara hérna heima, fyrir að vera svona heiðarleg, því önnur dama sem við töluðum við seinna hjá skipafélaginu var aðeins léttari á því og sagði að "yfirleitt væri fólk ekkert að gefa þetta upp".
En já, svo kom miðvikudagur og tilheyrandi hringingar og eftirspurnir.. gámurinn okkar á hafnarbakkanum í borg óttans og "skýrslan" komin í bunkann hjá Dilbert og félögum á Tryggvagötu. Fimmtudagur, kom í ljós að gámurinn er kominn í "vöruskoðun", sé bara fyrir mér gúmmíhanskann á lofti með stórum smelli, og "sennilega gerist ekkert fyrr en eftir helgi".
Alltílæ, ég er bara komin 34+ vikur á leið, á ekki eftir nema; að skrúfa saman barnarúmið, skiptiborðið, þvo sængurföt, allan fatnað (og strauja nema hugsanlega gef ég það eftir þar sem þetta er barn #2) og taubleiur, viðra dýnur og sængur og kodda og þvo himnasæng og hlífðarkantinn.
Fyrir utan annað sem fylgir flutningum svona yfirleitt, svosem að sauma til og setja upp gardínur, raða í eldhúsið, þvo og raða í fataskápana og koma einhverskonar skipulagi á heimilið.
Einmitt, ekkert stress hr. tollur. Mig langar heldur ekkert til að komast í rúmið mitt!
En íbúðin okkar er annars æðisleg. Dásamleg. Mikið pláss og mjög snyrtileg. Við Danni vorum þar í gær í dágóða stund á meðan Óli fór í golf. Danni uppgötvaði garðslöngu í garðinum og þráir núna að fá að skrúfa frá og "fá að vökva blómin" en þar sem við vorum ekki með nein aukaföt gaf mamman sig ekkert. Í staðinn skoðaði hann nokkra kassa með gömlu baby-dóti sem voru í geymslu á Dalvík, og ég fór aðeins í gegnum barnafatakassana sem við skildum eftir og tók það minnsta uppúr sem að fer í þvott fljótlega. Við fengum nýja þvottavél frá tengdó þar sem þau eru með okkar og hún verður send heim þegar við verðum eitthvað í íbúðinni.
Bíllinn er kominn, tengdó voru fyrir austan um helgina og tóku hann með norður.
Núna áðan kom svo símhringing frá skipafélaginu og einhver gögn voru send í tollinn (til dæmis kassainnihaldslýsingin sem við gerðum, sem telur upp allt sem er í hverjum kassa fyrir sig sem og lausamuni, ekki nema 3 síður í excel) þannig að vonandi fara hjólin eitthvað að snúast núna.
En við erum samt búin að hafa það rosalega gott þessa fyrstu daga á Íslandi. Danni er búinn að vera á útopnu síðan við komum enda frábært að hafa svona marga í kringum sig og mikið um að vera, útisund og ömmu og afadekur á hverjum degi.
Það er bara vonandi að þetta blessist og dótið okkar komi allt og í heilu lagi einhverntíman áður en krakkinn ákveður að koma.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
8
post páskar
Páskarnir búnir og alvara lífsins tekin við. Lífið er nú ósköp einfalt hérna við árósa. Ég fór í skólann í morgun, í annað skipti á árinu held ég, til að skila verkefni. Það eru engir tímar þessa síðustu önn heldur bara verkefni. Nú þegar þetta verkefni er búið þá er bara prófaverkefnið eftir, og því á að skila í júní. Og þar sem skólinn er ekki með aðstöðu fyrir okkur til að vinna í þá erum við bara send út og suður. Alveg sama er mér, skrifborðið mitt hérna heima er bara fínt.
Ótrúlegt en satt, að þá eru páskaeggin ekki búin.. stráksi minn hefur ekki mikinn áhuga á að borða leyfarnar sem eru inni í ísskáp og ég er ekkert að ota þeim að honum heldur reyni að gúffa sem mestu í mig þegar hann er sofnaður. Bumbubúinn er sérlega hrifinn af því svo þegar ég hætti átinu og lagðist til svefns fann ég í fyrsta skipti spörk í lófann... held að það hafi verið merki um að ég ætti að drífa mig fram í ísskáp aftur.
Akureyri
Þar sem það er ekki nema hálft ár í niðurpökkun og brottför og við að sjálfsögðu ekki þekkt fyrir skipulagsleysi, erum við farin að líta í kringum okkur á fasteignasölusíðurnar. Við erum reyndar með harðduglegan einkasölumann sem er sífellt að stinga að okkur eignum, og ekkert nema gott um það að segja, nema að helst myndum við vilja ákveða í hvaða hverfi við ætlum að planta okkur.
Það var fyrir löngu ákveðið að stefnan væri tekin á Akureyri, nálægðin við fjölskylduna (og fjöllin) hefur þar mesta aðdráttaraflið og þar eru sennilega bestu möguleikarnir á ágætis starfi utan höfuðborgarsvæðisins með húsnæðisverðinu stillt í hóf. Svo höfum við verið að velta fyrir okkur hverfunum, þau sem helst heilla eru Giljahverfi og Naustahverfi. Þar sem við höfum eiginlega ekki kynnst þessum hverfum persónulega að neinu ráði væri gaman að heyra í einhverjum sem búa þar og fá að heyra nokkurn vegin kosti og galla þessara hverfa að ykkar áliti... eða hvort maður á að kíkja eitthvert annað (innan póstnúmers 600/603)?
julefrokost og undirbúningur
Það má segja að jólaundirbúningurinn sé farinn á gott skrið hérna, á föstudaginn héldum við íslendingarnir hérna smá julefrokost með dönsku smørrebrød á meðan krakkarnir voru í leikskólanum. Á laugardaginn fórum við svo í alvöru julefrokost til dönsku vina okkar hérna, margréttað og virkilega gott. Við sátum og borðuðum frá hádegi til kl 18 og krakkarnir léku sér rosalega vel saman.
Sunnudagurinn var hrein afslöppun enda annað varla hægt eftir allt átið. Í vikunni ætlum við að halda til Þýskalands og versla jólagjafir, reyndar keypti ég nokkrar í sumar, það eru nefnilega bara tvær vikur þar til við sendum þær til Íslands og það verður fljótt að líða.
Um daginn sendi ég líka jólamyndirnar til prentunar (maður segir varla framköllun, því það á við um filmur og það er óralangt síðan ég lét framkalla filmur) og af því ég var hvort sem er að panta prentun þá sendi ég pöntun fyrir myndunum sem voru teknar 2006 og 2007. Það eru semsagt 1500 myndir á leiðinni í póstinum. :S
Í næstu viku byrjar prófaverkefni í skólanum, hópverkefni sem við eigum að skila 20. desember og verður prófað úr í janúar.
Það er ótrúlega gott að byrja snemma.
verslunarleiðangur
Sumarhýran er að koma inn þessa dagana þar sem ég er að skila verkefnum hverju af öðru. Að því tilefni skrapp ég niðrí bæ aðeins í dag og keypti mér golfskó og golfjakka af því það var svo fín , kostaði hvort um sig 399DKK sem er eiginlega nærri því gefins. Maður kom nú ekki með golfsettið út fyrir ekki neitt, reyndar hef ég varla snert á því, enda ekki verið tími fyrir ferðalögum, sumarfríi frá dagmömmunni, gestagangi eða rigningu. Reyndar náði tengdapabbi að viðra það þegar þau komu og það var ljómandi gott.
En... ef sumarið nær fram til loka október eins og í fyrra þá er nægur tími til að láta græjurnar koma að góðum notum.
Svo eru önnur kaup framundan, ný myndavél. Þessi sem við eigum hefur dugað vel og tekur ágætis myndir en mikið óskaplega langar mig að ganga aðeins lengra og eiga eina SLR digital vél, er að horfa á Canon EOS 400D sem, með betri linsu, er örugglega alveg afbragð...
Skotsilfur - færir gamanið aftur í budduna

Skotsilfur er nafnið á nýjum og spennandi vef sem var að fara í loftið, og fjallar um fjármál og peninga, (eins spennandi og það kann að hljóma). Mætti kannski segja að það sé vefur fyrir þá sem hafa áhuga á því að eiga peninga og eyða þeim á réttan hátt.
Það er nefnilega stórskemmtilegt að kaupa það sem manni langar í þegar maður hefur sparað lengi fyrir þeim og látið sig dreyma. Ég get ekki hugsað mér fyrir mitt litla líf að kaupa heimabíó og setja á raðgreiðslur, eða sjónvarp, eða utanlandsferð.. og vera svo að borga af því í marga mánuði þegar maður er löngu búinn að gleyma tilfinningunni fyrir því að eyða. Eina undantekningin sem við höfum gert var að taka 6 mánaða bílalán upp á 300þ þegar við keyptum Avensisinn en þá eyddum við líka hálfri millu af sparnaðinum okkar á móti.
Frekar vil ég spara fyrir hlutunum og þá auðvitað njóta þeirra ekki á meðan, og borga þá svo út í hönd og njóta þess í botn. (Þarna er kannski ástæðan komin fyrir því af hverju ég eignaðist ekki makka fyrr... ekki fyrr en eftir að við seldum íbúðina :s )
Það er eiginlega vonandi að Skotsilfur verði til þess að koma af stað smá neytendavakningu um það að það eru allir á höttunum eftir peningunum okkar en við erum þeir sem hafa valdið yfir þeim.. ennþá.. vonandi.
í bítið
Við erum vöknuð, erum að klára morgunmatinn og kveiktum jafnframt á Bangsimon. Það er skemmtilegasta sjóvarpsefnið akkúrat núna, Íslendingum er allavega ekki við bjargandi.
sambúðarafmæli
Það er ýmislegt sem getur gerst á einum áratug. 10 árum. Það er langur tími en er samt svo fljótur að líða. Í dag eru nefnilega 10 ár síðan við byrjuðum saman og mér finnst eins og það hafi gerst í gær.
Árið 1997:
- Clinton hóf seinna kjörtímabil sitt sem forseti Bandaríkjanna og Tony Blair tók við embætti í Bretlandi.
- OK Computer með Radiohead kom út
- Fyrsta Harry Potter bókin kom út
- Hönnuðurinn Gianni Versace er skotinn til bana
- Microsoft keypti $150 milljón hluti í Apple
- Southpark hefur göngu sína í bandarísku sjónvarpi
- Díana prinsessa lést í bílslysi
- Móðir Teresa lést
- Google lénið var skráð
- Orðið "weblog" verður til
- Yfirvöld í Hong Kong slátruðu öllum kjúklingum á svæðinu (1.25 milljón) til að hefta útbreiðu inflúensu sem hafði komið upp.
- Toyota Prius var fyrst sýndur opinberlega, fyrsti smábíllinn knúinn vetni, sem yrði framleiddur árið 2000.
Af því við erum svo ung í anda þá ætlum við ekki að fara út að borða eða í leikhús, eða elda steik með dýru rauðvíni, heldur ætlum við bara að panta pizzu :)
að verða steikt í hausnum
Netsnúran sem lá yfir stofugólfið að skrifborðinu mínu er farin. Til allrar lukku því það var bara tímaspursmál hvenær einhver hrasaði um gula ferlíkið og kippti tölvunni niður í leiðinni. Núna fara samskipti mín við umheiminn fram í gegnum andrúmsloftið, spurning ef hausinn á mér er mitt á milli tölvunnar og þráðlausa routersins, hvort að ég nái ekki að fylgjast með þræðinum í lost á meðan ég næ í hann.. hann er einmitt sýndur á aftur á morgun. Pæling.
Annars jukum við tenginguna um daginn upp í 4mb/sek og það er nokkuð hressandi. Það hefur hins vegar ekki mikil áhrif á höktið á fréttatímunum því flöskuhálsinn virðist vera á hinum endanum.
húsfrúarleikurinn
Það er mikið rætt í fjölmiðlum á íslandi um hátt matarverð þessa dagana. Sjálfri hlakkaði mig til áður en við fluttum að fara út í búð og kaupa nokkra poka af ferskum mat fyrir nánast engan pening, en sá draumur rættist varla, eða kannski var hann of háfleygur.
Flokkað sem danmörk / heimilið / matur / samfélag /
3
túristar í ársbyrjun
Þá er jólafríinu og hinum mikla ferðalagi lokið. Við erum komin heim og erum nokkurn vegin búin að jafna okkur á þessu öllu saman, búin að taka upp úr töskunum og þvottavélin snýr sér sem aldrei fyrr.
Þetta ferðalag frá Dalvík til Árósa tók hvorki meira né minna en 15 klukkutíma; frá hálf níu um morguninn til hálf tólf (íslenskum tíma - hálf eitt að dönskum) um kvöld. Það inniheldur tvær ferðir á einkabílum, tvær ferðir með leigubíl, eina rútuferð og tvær flugferðir. Þrátt fyrir það leið dagurinn nokkuð hratt og algjörlega áfallalaust. Það kannski munaði mestu að sonurinn svaf báðar flugferðirnar gjörsamlega af sér, sumum finnst eitthvað sefjandi við flugtak.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft / uppeldi /
3
Norðurlandameistari í innpökkun
Jólagjafirnar þetta árið eru komnar í pappír og eru ferðbúnar til íslands.
úr mér allur vindur
Já, það er úr mér allur vindur. Í dag skiluðum við lokaverkefni annarinnar í skólanum þrátt fyrir að lokaskil séu ekki fyrr en á morgun og ég held að það hafi gengið alveg frá mér. Ég var í 4 manna hópi með einum dana, stelpu frá eistlandi og annarri frá lettlandi, mjög hressir krakkar nema bara fjári ungir .. það fær mann bara til að yngjast aðeins upp, er það ekki? Ekki veitir af.
Eftir skóla fór ég aðeins í Mollið sem er rétt við hliðina á skólanum hans Óla (óréttlátt, mér finnst að það eigi að vera hjá mínum skóla...) og það var ekki að hjálpa hausverknum. Heima var sonurinn með ragettu í rassinum (sennilega af því mig langaði svo mikið í ís og lét það eftir mér/okkur).
Núna ætla ég að setjast upp í sófa með bókina og horfa á eitthvað skemmtilegt.
Og sofa svo út á morgun.
jólaundirbúningur

Við förum ekki varhluta af global warming hérna í Mörkinni. Það er svolítið erfitt að setja sig í jólagírinn þegar grasið sprettur grænt sem aldrei fyrr og hitinn fer í tveggjastafa tölu yfir daginn (15 gráður í dag, takk fyrir!). Ég ætla samt að reyna. Mér skilst að það sé aðeins ljósara yfir heima á frónni og eitthvað aðeins kaldara en það er bara í takt við dagatalið held ég.
Ég var búin að setja það markmið að klára jólainnkaup, innpökkun og jólakortaskrif fyrir mánaðarmótin. Þá þýðir ekkert annað en að vera skipulagður. Svo fer allt í kassa með skipi og familían sér um að dreifa og koma á pósthús. Dásamlegt.
Í dag versluðum við 7 (sjö) jólagjafir, er búin að hanna pakkaútlitið og það er með (surprise surprise) nokkuð dönsku ívafi. Einnig kom myndin á kortið í hús í vikunni, jólakortalistinn verður örlítið uppfærður frá því í fyrra - ef einhver vill kort sem fékk ekki í fyrra eða einhver sem fékk í fyrra og vill ekki aftur fá jólakort þá gefi viðkomandi sig fram við mig - og já, Áslaug.. þú fékkst aldrei kortið í fyrra því ég fékk það endursent frá póstinum seinnihluta janúar, spurning hvort ég sendi þér tvö núna ;)
- og við getum hafist handa við að skrifa. Þá vantar bara appelsínið og maltið, piparkökurnar og jólalögin,.. já og snjóinn.
jóla...
Við erum komin í jólagírinn hérna - nei ekki jólaskapið, heldur er kominn tími til að skipuleggja hvernig á að eyða jólafríinu. Óli er kominn í frí 18. des en skólinn minn ætlar að halda okkur út 21. des sem er ákaflega ójólalegt af þeim. Skólinn byrjar svo aftur strax 2. janúar, en að öllum líkindum verða fyrstu dagarnir ekki mjög merkilegir.
Við erum búin að ræða það fram og aftur að við verðum eiginlega að fara og vera heima um jólin. Þetta er náttúrulega fínt tækifæri að prófa að halda jól einusinni í útlöndum en einhvernveginn er nýungagirnin ekki það mikil, þegar maður veit hvað hinn kosturinn er frábær. Þetta eru líka svo merkilegur tími fyrir lítinn strák að maður vill að hann fái að njóta hans með ömmu sinni og afa og öllum hinum líka.
Ferðalagið er hins vegar langt; tæpra 4 tíma keyrsla til köben, svo 3 tíma flug og svo þarf að koma sér norður. Líklega kostar þetta ferðalag allt rúman 100þ kall, eða 10þ kall per dag í jólafríi! Sem betur fer eigum við gott fólk sem vill fá okkur heim, annars væri þetta ekki til umræðu :)
mótmælahugur
Þið hafið kannski ekkert heyrt af því en það hefur ekkert farið framhjá okkur þetta verkfall hjá leikskólakennurum hérna í Danmörku. Friðelskandi og barngóðir kennarar breytast núna í orðljóta kröfuskiltateiknara sem hanga úti á götuhorni 8 tíma á dag. Leikskólarnir eru þaktir orðum eins og "stop tyvene", "Børn er Danmarks råstof" (råstof þýðir hráefni held ég) og allt er held ég að verða vitlaust vegna þess að það á að gera mikinn niðurskurð í leikskólanum hérna þannig að gæðin á þjónustunni við börnin minnka mikið. Það vilja Danir alls ekki sætta sig við og það er ágætt að vita.
Þetta á víst langan aðdraganda, einhverntíman fyrir ári eða lengra síðan var hætt að elda mat á leikskólunum vegna þess að það þótti of dýrt. Síðan þá hafa börnin farið með madpakke í leikskólann þannig að það þýðir kaldur matur allan daginn, og reyndar ekki svo kaldur því víða var ekki leyft að hafa ísskápa (þó svo foreldrarnir hafi viljað leggja þá sjálfir til) og alls ekki hægt að hita neitt upp. Þannig að ástandið er ekki svo gott í þessu samfélagi sem flestir telja að sé svo barnvænt.
En núna er mælirinn víst fullur og það má sjá á hverju götuhorni. Það er svolítið ánægjulegt að sjá fólk sem kann að mótmæla og veit að verkfall er ekki frí, þeir eru sína 8 tíma á dag í hópum úti á götum, í fjölmiðlum og á meðal fólks að berjast fyrir sínum kröfum.
Þetta hefur reyndar ekki bitnað á okkar daggæslu því dagforeldrar eru ekki í verkfalli ennþá (gæti alveg trúað því að það komi samúðarverkfall), hins vegar eru margir staðir eins og leikvellir, garðar og frístundaheimili sem þau sækja á, lokuð.
Flokkað sem danmörk / heimilið / uppeldi /
7
flatskermur og lamagardínur
Áður en við fluttum gerðum við Óli samkomulag okkar á milli um að hann myndi sjá um sjónvarpskaupin og ég myndi sjá um að velja gardínurnar. Fyrirtaks sáttmáli að mér fannst, enda höfum við slegist nóg í gegnum tíðina yfir gardínuvali.
Við erum búin að vera hérna í mánuð og ekkert hefur bólað á sjónvarpinu. Í þrjú skipti hefur þetta eina sanna tæki verið valið; með tilliti til verðs (eða óverðs), myndgæða, HDMI og digital younameit, fyrst var það Philips og svo Sony.. við erum nokkrum sinnum búin að fara nokkrum sinnum í hinn eina sanna verslunarleiðangur en það hefur alltaf verið eitthvað sem hefur stoppað, annaðhvort ekki til á lager og nokkurra vikna bið (þó þau séu auglýst alveg á milljón) og í eitt skiptið fengum við höfnun á íslenska visakortið því upphæðin var of há fyrir staka erlenda færslu. Þannig að of oft höfum við komið tómhent heim.
Sömuleiðis hafa nágrannarnir notið útsýnisins inn í stofu til okkar á kvöldin, þar sem allir gluggar nema hornglugginn í stofunni eru klæddir, örugglega blöskrandi yfir því hvað við nennum að hanga lengi yfir tölvunni. Hérna er orðið slökkt klukkan ellefu í öllum öðrum gluggum í hverfinu, öllum nema í varðturninum.
En í vikunni var þessu bjargað. Nýja sjónvarpið okkar er geeeeðveikt.. alveg rosalegt! Núna getum við horft á alla skemmtilegu dönsku getraunaleikina (hvað er annars málið með það?), sænska Idolið og döbbaðar þýskar myndir en höfum aðallega verið að horfa á Bamba á DVD sem Danni fékk frá ömmu sinni og afa.
Þegar það var frágengið og komið inn í stofu gat ég varla setið lengur á mér og varð að redda gardínumálunum og setti því upp strimlagardínur (eða kaupfélagsskrifstofugardínur segir Óli) og ég er að missa mig, mér finnst þær ótrúlega flottar.
Góð tilfinning að geta loksins sett hak við þetta tvennt í todo listanum.
8381 Tilst
Hverfið sem við búum í er mjög indælt. Þetta er svolítið hringhverfi innst í botnlangagötu þar sem húsin snúa út að sameiginlegu túni. Við erum á efri hæð í fjögurra íbúða húsi en deilum stigagangi með öðrum fjórum íbúðum, við hliðina á okkur er íslenskt par með tvö börn en í öðrum íbúðum eru danir. Þetta eru sennilega allt leiguíbúðir sem húsaleigufélag á og rekur. Hérna eru nokkrar íslenskar fjölskyldur, ungt fólk í námi eða að klára nám og allir með börn á leikskólaaldri eða yngri, semsagt bara gaman að heyra í íslenskum krökkum hérna að leik úti á túni. Þetta fólk er allt algjörir gullmolar og allir alltaf tilbúnir að veita upplýsingar eða aðstoð, það er alveg magnað og kom mér svolítið á óvart hvað samheldnin er mikil hérna.
Íbúðin er alltaf að koma til. Það er skrýtið að vera allt í einu ekki með geymslu, nema útigeymslu og þar er ekkert hægt að geyma því þar myglar allt og fer í steik - nema bjórinn. Þess vegna erum við búin að kaupa ógrynni af frekar skrautlegum kössum og boxum til að hafa uppi á skáp til að setja ýmiskonar geymsludót í. Þegar það er farið af stofugólfinu er ekki alveg eins mikið drasl í íbúðinni.
skal vi snakke sammen
Ég er orðin nokkuð köld á að nota dönskuna. Allavega erum við búin að sækja um heimasíma, netið og gsm á dönsku, opna bankareikning og fá slatta af Dankortum hingað heim ásamt því að geta loggað okkur inn í netbankann þannig að eitthvað erum við að segja rétt. Auk þess fara öll samskipti okkar við dagpabbann fram á dönsku en ég náði samt ekki alveg því sem var að gerast í dag hjá þeim, eitthvað í sambandi við apa og gíraffa. Ég vona að hann hafi ekki farið með þau til Afríku. Ha ha.
En við reynum samt að hafa útvarpið í gangi þegar við erum hérna heima og í bílnum. Danmarks radio 1 og 2 eru alltaf með einhverja spjallþætti "svona Spegil RÚV-sins" og það er mjög gefandi þegar maður fattar um hvað er verið að tala. Gefandi já.
Sjónvarpið er hins vegar ekki komið í hús ennþá en það er allavega búið að velja það. Við gerðum heiðarlega tilraun til að ná í það í Electric City um daginn en það var svo óhemju mikil upphæð að það þurfti að hringja handvirkt til Visa á Íslandi (gott að heimilisfaðirinn er vel að sér í heimildaleitarkerfum) þannig að við við söltuðum það aðeins og ætlum að nálgast það eftir helgi með Dankortinu okkar. Við eigum hvortsemer ekki sjónvarpsskáp undir það (en erum búin að fara nokkrar ferðir í mublubúðir og sennilega búin að finna það sem virkar best; heldur litlum puttum í hæfilegri fjarlægð)
og það liggur ekkert á að fjárfesta í sjónvarpsskáp af því það er ekkert sjónvarp komið ennþá.
Sniðugt.
shop-a-holic
Íbúðin okkar er nokkuð vel staðsett, svona verslunarleg séð. Fyrir það fyrsta er macdonalds úti á horni sem kom sér vel fyrstu dagana þegar hnífapörin voru ekki komin en er orðið svona frekar pirrandi að hafa gullbogana í útsýninu út um stofugluggan (svona svipað og snæland video var í kaplaskjólinu). Í 5 minútna akstursfjarlægð er svo Bilka (sama hjólafæri reyndar líka, tékkaði á því í fyrrakvöld) sem er mega stórt vöruhús þar sem ALLT er til, svona hagkaupsbúð x10. Í Bilka hverfinu er líka El-Giganten (sama og ELKO heima) og Electric City sem eru raftækjabúðir, Toys'R Us og BabySam ásamt Jysk (Rúmfatalagerinn). Og sjitt hvað við erum búin að versla mikið.
Ég á samt eftir að finna það sem er eitthvað mikið ódýrara hér en heima, mér finnst matvara vera bara á svipuðu verði, kannski fyrir utan kjöt og sælgæti. Bjórinn er vissulega töluvert ódýrari og það er ákveðin stemmning í því að kaupa kassa af Carlsberg í gleri á þúsundkall.
pakkipakk
Flutningarnir eru komnir núna á háalvarlegt stig. Stráksi var sendur með flugi norður í morgun með ömmu sinni og meiri söknuður virtist vera hjá foreldrum hans en honum sjálfum. Nýjustu fréttir herma að sá stutti uni sér einstaklega vel hjá afa og ömmu, með stóran garð útaf fyrir sig, með rennibraut og hundi.. hvað meira biður maður um?
Við Óli erum á góðri leið með að koma öllu sundur og ofan í kassa og munum senda allt í gám, vonandi á morgun. Þá munu verða endurfundir við stráksa í norðansælunni.. mmmm, gerir allt þetta rykuga pökkunarstress þess virði.
hætt farin búið bless
Það var mjög tregablandin stund þegar ég tæmdi verkefnamöppuna mína í vinnunni og skilaði lyklinum mínum. Mér finnst ég eiga svolítið í þessu fyrirtæki enda búin að vinna þarna síðan haustið 2003, með hléum þó. Það er langur tími á lítilli auglýsingastofu. En það eru spennandi verkefnin sem taka við.
Til að byrja með ætlum við Danni að vera í sumarfríi í nokkra daga hérna heima, en hann hætti hjá dagmömmunni í dag líka. Við ætlum að kíkja saman í Nauthólsvík með fötu og skóflu, á róló auðvitað og sitthvað fleira skemmtilegt. Við ætlum eitthvað að reyna að pakka meira niður, en það sem er eftir er aðallega það sem við ætlum að taka með og erum að nota dag frá degi, þannig að það er voðalega erfitt að setja það niður í kassa. Eftir fyrstu vikuna fer það samt að bresta á, því við ætlum okkur að vera búin að flytja dót niður í gám þann 18. júlí. Á meðan á mesta hamaganginum stendur mun Danni fara norður til mömmu og pabba í nokkra daga og svo komum við til hans þegar allt brasið er búið í borginni.
En fyrst, sumarfrí.
selt á toppnum?
Það virðist sem við höfum selt íbúðina okkar á hárréttum tíma!
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
1
draumalandið - mörkin milli draums og veruleika
Ég les bækur ekki oft. Eiginlega allt of sjaldan. Síðasta bók sem ég las var Harry Potter en ég man ekki lengur númer hvað, sennilega sú næstsíðasta... er ekki bara ein eftir?
En núna er ég sokkin niður í bók, keypti hana í IÐU á Lækjargötu, hélt að ég væri þar með að styrkja einyrkja sem væri að berjast á móti straumi í harðri samkeppni bókamarkaðarins, líkt og ég fer glöð og eyði 25% meira í Melabúðinni fyrir sambærilegar vörur en í Bónus, nema þá heyri ég útundan mér að afgreiðslumaðurinn í IÐU segi við einhvern annan kúnna að hann ætli að leita að einhverju í lagernum á Eymundsson - þetta sé nefnilega sama keðjan! (Ég verð mjög sár ef ég heyri kjötsalann í Melabúðinni segja þetta einhverntíman um Bónus)
Dóh.
Allavegana, ég keypti bókina.
Ég opnaði hana í hádeginu í vinnunni í gær og var komin djúpt inn í nokkrar fyrstu blaðsíðurnar þegar ég rankaði við mér og fór aftur að vinna (við færibandið á hönnunarstofunni). Ég gjörsamlega sogaðist inn.
Í kvöld þegar strákurinn var farinn að sofa, Óli fór eitthvert út að horfa á körfubolta og ég ætlaði að fara að pakka niður fyrir norðurferðina á morgun greip ég bókina og settist í sófann okkar góða.
Mér líður núna vægast sagt eins og í einhverri geðshræringu, samt bara komin á blaðsíðu 85.
Akkúrat núna er maður að hugsa hvað er það sem skiptir engu máli í lífinu og hvað skiptir öllu máli. Það má ekki stimpla þessa bók sem pólitískt áróður eða athyglissýki einhverra listaspíra. Hún er ekki þannig.
Ég á örugglega eftir að segja meira um hana, en fyrst ætla ég að lesa meira og láta alla mína fjölskyldu, tengdafjölskyldu, vini og ættingja nær og fjær lesa hana líka.
Þessi bók heitir Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð og er eftir Andra Snæ Magnason
Ég skil alveg orð Silju Aðalsteins þó svo ég sé bara komin á blaðsíðu 85...
Fáið ykkur Draumalandið, takið hana að láni á bókasafninu, kaupið hana í bókabúðinni, lesið hana við bókaborðið eða stelið henni ef þið eigið ekki fyrir henni. Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA!
Flokkað sem bækur / heimilið / hönnun / lífið sjálft / ýmislegt /
4
frídagur
Mikið er ég glöð í mínu hjarta að það er frí á morgun. Það verður gripið til örþrifaráða og teppi límt upp í gluggann til að halda allri sól og birtu frá glugganum okkar á morgun, kannski nær litli gutti þá að sofa til níu. Það væri draumur. Hann er nefnilega óttaleg svefnpurrka á virkum dögum en um helgar.. já nei þá er það bara rise and shine klukkan sjö!
Sem er kannski ekki svo snemmt hjá sumum börnum en á mínu heimili er allt gert til að fá að sofa lengur.
íbúð til sölu, kostar eina tölu
Flottasta íbúðin í bænum kom á sölu í gær og fimm tímum síðar hringdi einn til að fá að koma og skoða. Hlutirnir gerast hratt. Núna þarf maður bara að vera viðbúinn og hafa svona nokkuð hreint og fínt hjá sér og vona svo að síminn stoppi ekki.
Annars fórum við í gærkvöldi í árlegt matarboð til yfirmanns og vinnufélaga hans Óla í Hafnarfjörðinn. Að venju var þar ótrúlega góður matur og fínn félagsskapur.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
4
frágangurinn er hafinn
Ég er búin að vera að ganga frá geisladiskunum okkar í dag. Ákvað að það verða ekki flutt fimm kíló af geisladiskahulstrum út enda engin ástæða til þess þegar maður spilar hvort sem er allt í tölvunni.
Í dag tók ég semsagt þá sem voru ekki nú þegar komnir inn á harða drifið og hugsanlega einhver möguleiki á því að við viljum hlusta á, og setti inn.
Diskarnir eru semsagt komnir í kassa og verða að öllum líkindum ekki spilaðir í einhvern tíma.
Auk þess eru tveir geisladiskarekkar sem standa nú tómir inni í stofu, þeir fara mjög líklega í hirðinn góða eins og margt annað á næstunni.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
2
framundan..
Tíminn líður maður, apríl búinn.
Það er ekki langt þar til við þurfum í alvörunni að fara að setja saman kassa og pakka niður dótinu okkar, því eins og ég hef nefnt áður erum við að fara til Danmerkur í skóla í haust - ja, eiginlega í byrjun ágúst. Ég hætti í vinnunni í lok júní því Danni er í fríi frá dagmömmu í júlí og við þurfum alla orkuna til að ná að koma draslinu niður í kassa og einhverju af því í gám.
Ég er ekki komin með stöffið okkar lengra en í eitt nokkurra síðna excel skjal, þar er allt dokúmentað hvað fer með og hvað ekki, en við þurfum að koma öllu okkar dóti einhversstaðar fyrir því við ætlum að selja íbúðina áður en við förum og eiga svo ógeðslega mikinn pening inni á einhverjum reikningi á meðan við erum úti.
En já, excel skjalið er að verða feitt og núna þarf að fara að framkvæma eitthvað af því sem stendur þar, til dæmis að fá sér gilt ökuskírteini (ég á bara svona stórt retró "so last century" ökuskírteini sem evrópubúar hlæja örugglega að) og ganga frá umsóknunum í skólana. Það er bara formsatriði en gott að klára í tíma samt.
Þetta er samt ótrúlega óraunverulegt ennþá.. að maður þurfi að fara að byrja að brasast í þessu. En það verður ekki aftur snúið og okkur hlakkar geðveikt til að fá smá nýtt start í lífið. Smá refresh.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
0
hádegismatur
Ég fór út í 10/11 í hádeginu, einu sinni sem oftar. Er farin að reyna að venja mig á það að borða brauð, álegg og jógúrt í hádeginu amk fyrstu þrjá daga vikunnar, ágætt að vera ekki að strauja kortið alla daga. Ég fékk mér banana ofan á brauðið og ætlaði svo að fá mér eitthvað kjötálegg og fór að skoða úrvalið.
Innihaldslýsingarnar fyrir svona kjötálegg eru ekki geðslegar; amk 3-5 E-merkt aukefni plús vatn, salt og sykur. Ég endaði á að kaupa einhverja kalkúnaskinku sem á víst að innihalda kalkúnabringu. Það sem sjokkeraði mig mest var samt að það er til eitthvað sem heitir Skóla Kjúklingaálegg, sem inniheldur kjúklingakjöt (ath ekki bringu) og svínaspekk! ásamt góðum slurk af bindi- og rotvarnarefnum. Auðvitað töluvert ódýrara en kalkúnabringan mín en sjensinn að maður myndi nokkurn tíman láta bjóða sér þetta!
Sorglegast er að þetta er selt sem "Skóla.." sem þýðir að það er verið að mælast til að krakkar borði þetta í nesti, að þetta sé "nógu gott" ofan í börnin. Pæliði!
Æji, þetta stuðaði mig svolítið. Ekki það að ég sé alltaf að borða eitthvað voða hollt og lífrænt og þannig, en mér finnst bara frekar óhugnalegt þetta rusl sem er í boði, og að það sé verið að ýta því að þeim sem hafa ekki þroska til að velja.
jólaundirbúningur.
Samkvæmt myndasafninu okkar heima þá tókum við jólakortamyndirnar um þetta leyti í fyrra. Ég man líka að það stóð svolítið tæpt á kortunum þá þannig að ég ætlaði að vera fyrr að þessu í ár.
Ég er samt ekki byrjuð. Ekki byrjuð að spá hvernig myndirnar eiga að vera einusinni, nema jú myndefnið verður auðvitað hinn bráðmyndarlegi erfingi.
Í fyrra var það falleg englamynd sem heppnaðist vel. Í ár er það spurning um meira gauralegt. Það er auðvitað klassískt að hafa jólahúfur og jólasveinaþema en það er kannski bara ofnotað.
Ætla að láta mér detta eitthvað í hug.
Við erum hálfnuð í jólagjafainnkaupunum, stöndum okkur vel þar. Ég vil reyna að teygja þann tíma eins og ég get þannig að maður geti einbeitt sér að því að baka og laga til og njóta lífsins á aðventunni í stað þess að bíða í röð á kassa eða vera í stresskasti á þessum dásamlega tíma.
Hver veit nema að það verði jafnvel tími til að baka piparkökuhús.
jóla jóla jóla...
það er ekkert rosalega langt þar til ég dett í jólagírinn, ég finn það alveg á mér. Málið er nefnilega að tíminn líður og jólin koma áður en maður veit af. Mig klæjar í puttana að fara að versla svolítið jólaskraut þó ég hafi reyndar tekið smá forskot á sæluna í jólahúsinu fyrir norðan um helgina.
Þrátt fyrir að þessi jól séu hrikalega "dagsett" þá verða þetta stór jól því þetta verða fyrstu jólin okkar ein saman heima hjá okkur. Allt of langt frá fjölskyldunni :( Minnir mig á lag með Svölu Björgvins held ég.
Sem þýðir að maður þarf að hugsa um jólaskraut, jólamatinn; rjúpurnar (sem eru komnar í frystinn), hangikjötið (sem er búið að reykja) og desertinn (sem er ekki búið að ákveða) og allt þetta sem mamman sér um.
Það er alveg rétt að maður fer að upplifa jólin upp á nýtt þegar litli stubbur fer að fatta þetta allt saman. Svo er það skórinn sem þarf að fara út í glugga fyrir jólasveininn..
náttúruhamfara dejavú
mig dreymdi svolítið scary, mig dreymdi að það væri eldgos á íslandi og ég sæji það út um eldhúsgluggann hjá mér í vesturbænum. Ekki eldgosið sjálft heldur bjarmann af því í fjarska, svona eins og það komi frá grafarholtinu eða austar. Svolítið ævintýralegt en jafnframt frekar mikið scary.
Ég vona að hérna sé ekki komin ástæða fyrir dejávú tilfinningu einhverntíman næstu ár, þegar maður upplifir eitthvað sem manni finnst maður hafa dreymt.
útþrá og afsakið hlé
Skrambi góð ástæða til að fara eitthvert annað að versla í haust.
Annars gaf sjónvarpið okkar sig í gærkvöldi, var að horfa á fréttirnar þegar allt í einu það slökkti á sér og gaf frá sér hátíðnismelli. Ég sá fyrir mér atburðarás þar sem við Danni myndum hlaupa út úr brennandi íbúð þannig að ég stökk á sjónvarpið og slökkti á því og tók úr sambandi. Þegar Óli kom heim prófuðum við að kveikja á því en "startarinn" er greinilega farinn svo það heyrist bara eitthvað furðulegt hljóð og auðvitað engin mynd.
Það versta er að þetta er sjónvarpið hennar Hönnu systur sem við fengum að láni fyrir tveimur vikum síðan þar sem okkar gamla tæki var við það að gefa upp öndina og fór beint á haugana.
Ég veit ekki hvort það sé hægt að gera við tækið án syndsamlegs kostnaðar eða hvað það sé sem hrjái það. Kannski er tími þess runninn upp og tími kominn á þetta
*NEW*

Hvílík umskipti sem urðu hér í gær, eftir kveðjuathöfnina var gamla settið borið út og ekki leið á löngu þar til flutningabíll kom með þrjá vel innpakkaða sófa, sem voru bornir upp í stofu og sóma sér afskaplega vel þar. (sjá mynd) Dásamlega fallegir og þægilegri en allt!
Gamli larfur var svo borinn upp í sama bíl og Óli fór með bílstjóranum út á endurvinnslustöð þar sem gámur Góða Hirðisins beið eftir honum. Nema hvað, að "Góði" Hirðirinn vildi ekki Gamla Larf!! Okkur var hreinlega skipað að setja hann í gám merktan "Grófur Úrgangur"!!
Jésús minn, Alla mína daga! Er ég búin að vera með "grófan úrgang" í stofu hjá mér öll þessi ár! Hann var ekkert svo slitinn! (tja, reyndar var hann alveg gauðrifinn en ég hélt að þessu mætti alveg bjarga, nennti bara ekki að gera það sjálf).
En já, þið hefðuð betur komið í gær og sótt hann, nú er hann horfinn á braut. Farinn. Að eilífu!
En stofan mín er ógó flott núna, nú langar mig bara að mála veggina (eða er veggfóður ekki mest inn ;) finna fína púða og gera einhverjar flottar myndir á veggina.
Sófinn
Ítalski DeCoro sófinn sem við pöntuðum í apríl er loksins að koma í dag, tæplega mánuði á eftir áætlun. Opinbera skýringin er sú að það eru búnar að vera tafir í flutningunum eða að litlu kínversku hendurnar voru aðeins of lengi að sauma (oj Dagný!).
En þetta þýðir að larfurinn, sem hefur átt einstaklega gott líf undir rassinum á okkur undanfarin ár, mun verða kvaddur í dag. Kveðjuathöfnin hefst klukkan 16 og eru blóm og kransar vinsamlega velþökkuð því blóm eru falleg og fara örugglega vel við nýja sófann.
Gamli larfur fer svo í gám í Sorpu seinnipartinn í dag, örugglega hágrátandi og blöskrandi yfir nýungagirni og pjatti húsbónda síns. Hann mun vonandi öðlast nýtt líf hjá Hirðinum þar sem einhver góðhjartaður bólstrari aumkar sig yfir hann og mun vinna dag og nótt við að gefa honum sál að nýju.
Honum til heiður ætla ég að setja inn mynd úr stofunni minni eins og hún er akkúrat núna, sem sýnir Gamla Larf algjörlega grunlausan um örlög sín.
Og ég minni á að ef einhvern langar í þennan dýrgrip skal sá hinn sami hringja í mig (8680443) í dag fyrir klukkan 16.

komin heim
Þá er sumarfríinu þetta árið að fara að ljúka. Við komum heim úr norðanreisu núna um helgina og höfum verið að ganga frá dóti, sansa íbúðina og almennt ná andanum hérna heima. Það er merkilegt hvað tíminn líður hratt, merkilegra er að það virðist alltaf koma manni jafn mikið á óvart.
Blákaldur veruleikinn hefst eftir mánaðarmót þegar ég fer að vinna og Danni fer til Örnu dagmóður. Ég hef engar áhyggjur af honum þar, þar er gott fyrir hann að vera yfir daginn.
Mig er farið að langa að gera eitthvað af alvöru fyrir herbergið hans hérna heima, fletti öllum blöðum sem ég kemst yfir og er að íhuga hvernig sé best að raða þessu upp. Þetta er nefnilega svo stórt herbergi, um 12fm, og býður því uppá ýmsa möguleika. Vandinn er bara að ég þarf að hafa mitt skrifborð með mínu tölvu- og föndurdrasli. Ég get ekki hugsað mér að gefa það eftir. Það þarf því góða innanhúshönnun í þetta rými, og nokkrir hundraðkallar skaða ekki heldur.
Mánudagsýsan
Kvöldmaturinn var í boði Krakkaeldhúsins, uppskriftabók með uppáhalds matnum úr leikskólanum. Flögufiskur. Soðin hrísgrjón, Ýsa, sósa úr sveppa- og blaðlauksosti, grænmetisblöndu og smá mjólk mixað saman og hellt yfir, smá mozzarella ostur og svo paprikuflögum stráð yfir. Bakað í ofni í ca 30-45 min. Skal setja inn nákvæmari uppskrift ef einhver óskar.
verslunarferð
Við Danni fórum út í stórmarkað í morgun, ég skildi hann -treg reyndar- eftir sofandi í kerrunni fyrir utan og gat ráfað frjáls um í búðinni, sem varð til þess að ég keypti allt of mikið.. náði að troðfylla körfuna undir kerrunni, sem þýddi vel kramið brauð, og var svo með bleiupakkann hangandi á handfanginu.
Ég held svona eftirá að ég hafi verið svolítið skrautleg.. dragandi kerruna um allt hverfið með barnið sofandi, með vikubyrgðir af mat (mætti halda) og bleiurnar danglandi framaná. Ég veit ekki hvað þeir sem sáu til mín hafi haldið. Kannski að ég væri aðþrengd eiginkona, svona Lynette týpa, búin að helga líf mitt kúkableium og andvökunóttum og að það sé minn frami í lífinu. Ef ég hefði verið með skilti framaná mér sem á stæði "mér finnst þetta víst gaman!" hefðu enn fleiri haldið að ég væri í afneitun.
En sennilega voru ekki margir að horfa út um gluggann eða að pæla nokkuð í þessu.
vorverkin
í blíðviðrinu í dag tók ég mér það bessaleyfi að róta aðeins í beðunum hérna í garðinum. Ég þarf reyndar ekkert leyfi svosem enda eigum við einhvern 12.5% hlut í þessum garði, sem er sirka skikinn sem við löbbum á út úr garðinum. Ég fyllti tvo ruslapoka af spreki, hitti nokkra massa stóra og skrautlega snigla (er ekki örugglega eitrað fyrir svoleiðis á vorin annars?) og fékk vonandi einhvern smá lit í framan. Ef veðrið verður gott á morgun gæti verið að ég fari aftur út því það eiginlega sér ekki högg á vatni eftir daginn í dag, svoleiðis er ástandið í garðinum.
sumarið er tíminn
Sumarsæla.. trúi því að sumarið sé komið. Ég tók mjög gáfulegar ákvarðanir fyrr í vor þegar ég ákvað að vera í fríi í sumar. Eftir mánaðarmót munum við Danni leika okkur saman heima; fara út að hjóla, moka sand, taka myndir, lesa bækur... ultradásemd í allt sumar, alveg fram í ágúst! Þá tekur harðneskjulegur raunveruleikinn við, en það er enn langt í það.
Danni er að verða öflugri bloggari en ég, þó ýmislegt sé í gangi þá er ég lítið í því að skrifa það hér niður þessa dagana.
það kemur.
hugmyndir úr elle
Stóðst ekki mátið og greip breska Elle Decoration úr hillunni í Hagkaup í dag. Flott blað. Eftir að hafa flett því í dag er ég búin að ákveða hvernig ég ætla að flísaleggja baðherbergið (eða hvernig ég legg til að það verði flísalagt) ;) Ekki slæmt að vera búin að ákveða það. Það verður reyndar ekki lagt í það fyrr en skiptiborðið er farið út og almennileg hurð komin í dyrnar. Sem verður ég veit ekki hvenær. En samt alltaf gott að vera komin með nokkuð mótaðar hugmyndir.
Já, pælingin er semsagt að hafa ljósar, ekki mjög kremaðar mósaíkflísar á veggjunum og milli vasks og speglaskáps ættu að vera örlítið dekkri í sama tón og sú rönd á að ná alveg út að sturtuklefanum. Æji þú verður bara að sjá þegar þetta er komið.
breytingar
Ég iða í skinninu mig langar svo að fara að útbúa barnaherbergi handa Danna, svona eitthvað í þessa eða þessa áttina. Hann sofnar á kvöldin um átta leytið og sefur alveg staight til sjö á morgnana og kúrir svo til níu en þá bókstaflega sparkar hann mér á fætur. Það er því mjög hentugt að hafa hann áfram inni í herbergi hjá okkur. Ég er að reyna að útbúa kósí horn handa honum og er núna að hugsa um að mála einn renning á vegginn fyrir ofan rúmið hans og hafa hann hvítan (herbergið sjálft er hvítt en með smá grænum tón svo það myndi sjást munur). Ég er svolítið veik fyrir ljósbláum og brúnum lit saman, það virðist vera voða vinsælt í fatnaði hjá svona litlum strákum núna. Þannig væri í raun gaman að mála allan vegginn ljósbláan og hafa svo hvíta rönd fyrir ofan rúmið hans. Svo er líka spurning hvenær vinnuherberginu verður fórnað fyrir barnaherbergi. Þetta er óneitanlega þægilegt að geta haft tvö skrifborð plús gestarúm, skáp og bókahillu en þegar stofan verður á floti í dóti þá væntanlega fær prinsinn herbergið sitt, eða amk einhvern hluta af því.
En well.. best að sofa á þessu.
enn af húsverkum
Þvottavélin mín tekur sennilega um sex kíló af þvotti, segjum fimm.. sinnum 5 vélar það þýðir 25 kíló af þvotti sem bíður þess að vera brotinn saman. Almáttugur. Draumurinn er að hafa sitt eigið þvottahús, þó svo sameignar þvottahúsið sé afburða gott þá er ekkert sem slær það út að vera með þvottahús inni hjá sér.
Danni sefur úti í vagni, svolítið kvefaður greyið og ekki með mikla matarlyst. Þrátt fyrir að hafa ákveðið að hafa engar áhyggjur af þyngdinni hans þá verður samt fróðlegt að fara með hann í 10 mánaða skoðun í næstu viku. Hann er örugglega ekki orðinn 8.5 kíló en er samt mjög sterkur og bústinn. Æji það er óþarfi að velta þessu fyrir sér, er ekki alltaf verið að kvarta yfir því að öll börn séu að verða svo feit.
Já, svona er þetta. Í kvöld ætla ég að prófa að gera grænmetislasagne úr Gestgjafanum, afburða hollt og gott, líka fyrir litla kvefaða stubba.
húsmóðirin
Fimm þvottavélar á tveimur dögum... hvað er hægt að eiga mikið af fötum??
Gamla settið
Það er spurning um að henda gamla settinu út svo nýtt sett komi fyrr inn. Þá er ég að tala um sófasettið sem er búið að fylgja okkur í nokkur ár og er orðið freekar lamað. Við erum búin að skoða á helstu stöðum en helgin verður notuð í að skoða fleiri sófasett, einhvernvegin vantar samt þetta spark í afturendann (eins og gauðrifinn sweaty sófi sé ekki nógu mikið motivation!).
Það er nefnilega úr vöndu að velja, við viljum áklæði en eitthvað sem er barnvænt og "leggst" ekki (a.k.a rússkins líki sem hægt er að teikna í). Auk þess á sófinn að vera hæfilega mjúkur, stílhreinn og dökk grár, svona sirka #666. ;) Þetta sófasett virðist ekki vera til. Natuzzi er náttúrlega dásamleg búð og það næsta sem við höfum komist draumnum, en þeir sófar eru svo fagrir að þeir henta varla sem sjónvarpssófar eins og við leitum að heldur frekar sófi í fínu stofuna, hvenær sem við eignumst hana.
En leitin mun halda áfram.
Gleðilegan bóndadag
Þegar maðurinn kemur heim............
1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karmönnum nauðsynlegt.
2. Notaðu 15 mín.til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.
3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.
4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.
5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvóttavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.
6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.
7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan drykk handa honum. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.
8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.
9. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.
Þessar reglur eru teknar úr kennslubók í heimilisfræði 1950.
Habitat og Tivoli
Ég var búin að gleyma því hvað Habitat er æðisleg búð. Ein af fáum sem er dásamlegt að heimsækja á útsölu, jólaskrautið er himneskt (ákvað að versla slatta af flottu jólaskrauti á útsölu og setja það svo beint ofan í jólakassann) og jólapappírinn sömuleiðis. Hann var ekki kominn þegar ég kíkti þangað fyrir jólin. Smáatriðin skipta svo miklu máli og um þau er hugsað í Habitat. God is in the details sagði einhver.
Við keyptum líka hillu til að setja yfir eldhúsborðið í eldhúsinu. Þar á að sitja jólagjöfin sem er á leiðinni frá ameríku, á vonandi að koma á morgun. Ég hlakka til.
eilítil hönnunarkrítík
Ég elska fallegar uppskriftabækur. Þær sameina þrennt sem ég hef mikinn áhuga á; matur, fallegar ljósmyndir og fallegt og vel upp sett letur. Þegar maður hefur auga og bragðlauka í þetta þá á það ekki að geta klikkað. Tímarit eru ennþá dásamlegri þegar þau heppnast vel, draumadjobbið væri í raun að setja saman röð tímarita sem fjalla um mat. MMMmmm já.
juletub
og svo tala menn um það að það sé ólöglegt að auglýsa bjór...
En það er stutt í að hefðin komist á að juletuborginn flytji í kælinn út á svalirnar hjá okkur.... Og ekki einusinni reyna það, við erum á annarri hæð!
Kynjaskipting heimilisins
Eftir að það fjölgaði í fjölskyldunni erum við komin í nýjan markhóp. Danni fékk fyrsta "ruslpóstinn" sinn þegar hann var rúmlega mánaðargamall og eftir það hef ég fengið nokkrum sinnum "tilboð fyrir barnið þitt", yfirleitt bleiur eða þvottaefni. Óli fékk hins vegar bréf í gær frá banka einum þar sem fjallað var um "reglulegan sparnað fyrir barnið".
Það hefði sennilega verið of mikið breikþrú í íslensku samfélagi að senda Óla bleiuprufurnar og mér fjármálapóstinn.
jólakortin
Já jólakortin. hérna eru hugmyndir fyrir þá hugmyndasnauðu. Margt mjög fínt og einfalt þarna.. minnir mig á þegar ég var í bókagerðinni í skólanum í gamla daga.. jummjummm. Svo langar mig að panta þetta blað, Card Creations
En ég þarf eiginlega að drífa mig af stað í þetta.. Listinn er kominn upp og sennilega þarf ég að gera um 70 kort.
Nú vantar að finna pappírinn sem ég ætla að nota, helst í réttri stærð svo ég þurfi sem minnst að klippa/rífa niður. Myndina tökum við af módelinu okkar einhverntíman í næstu viku þegar nýja myndavélin verður komin í hús, sendum demó til Hansa svo þetta komi nú örugglega rétt út áður en við pöntum 70 stykki.. það tekur einhverja daga.
Á meðan er alveg nauðsynlegt að vera búin að undirbúa kortið sjálft þannig að þegar myndirnar koma að þá verði hægt að líma þetta saman. Eftir það á nefnilega eftir að skrifa á allt saman. Mér datt í hug eitt augnablik að setja jólakveðjuna fínt upp og prenta út en það er eitthvað svo sterílt. Þetta á að gera í höndunum og "koma frá hjartanu.."
Talandi um að vera vera organæseraður til helvítis.
Mér finnst reyndar tilfinnanlega vanta góðar föndurbúðir hérna. Mér finnst vera svo mikið trédrasl og frauðkúludót í öllum föndurbúðum, nennir einhver að gera svoleiðis ennþá? ok fínt að það eru ekki allir með sama smekk. Mig langar að sjá meira úrval af pappír, tímaritum og verkfærum. Kannski maður þurfi bara að fara út, þetta yrði hvortereð svo fjandi dýrt hérna heima. Ég kíki í Föndru á morgun og svo er bara að setja upp verkstæði jólasveinsins hérna heima.
Ef þú ert hrædd/ur um að vera ekki á listanum en langar í kort, settu þá adressuna þína í kommentin og ég "sé til hvað ég get gert" ;)
enn um rúður
Góði guð.
Viltu senda mér lárétta rigningu í svona hálftíma með smá dropa af "Geisla fyrir gler og spegla".
Það myndi alveg bjarga útsýninu út um eldhúsgluggann og ég myndi hætta að fríka út á morgnana og halda að það væri snjór úti.
Takk.
það tókst!
það er ekki að spyrja að því, bökunarilmurinn fyllir húsið. Nú þarf bara einhver að koma og vaska upp!
hönnun heimilistækja
ég er einstaklega ánægð með nýja örbylgjuofninn, það sem ég hef hitað í honum hefur reynst vel en það sem mér finnst yndislegra er lúkkið á honum og að hann tekur ekkert pláss. Hann er svo einstaklega vel og lógískt hannaður að mér finnst skrýtið að hafa ekki séð það áður -kannski hef ég ekki verið að fylgjast svo vel með örbylgjuofnahönnun undanfarin ár. Eins og sést þá er hann ekki aflangur eins og flestir svona ofnar hafa verið heldur er stjórnborðið fyrir neðan gluggann, í sjálfri hurðinni í stað þess vera við hliðina á hurðinni og bæta við breiddina á ofninum. Svo er hann eins og "D" í laginu séð að ofan; bakið er hálfhringur eftir diskinum þannig að maður er ekki með nein leiðinda horn inni í ofninum sem er leiðinlegt að þrífa.
þetta er svo einfalt og snjallt og þar af leiðandi er ótrúlega gaman að borða 1944 þessa dagana.
baðherbergið
Baðherbergið er að smella saman þökk sé tengdó sem komu hérna yfir helgina og eru búin að vera þvílíkt dugleg. Vaskurinn er kominn upp og er tengdur þannig að núna er bara þetta skemmtilega eftir; að raða í hillur og hengja upp accessories.
ég gæli við það að kíkja í flísabúð og finna fallegar mósaíkflísar til að setja fyrir ofan vaskinn, bara til að fá svolítinn lit. það er samt ágætt að láta þetta allt gerast svona hægt og rólega, það er ekkert stress í gangi enda er nægur tími.
baðherbergisbreytingar..
Tókum smá skorpu inni á baði í kvöld, afraksturinn má sjá í myndaalbúminu. Nú er það bara að kaupa sparsl og smyrsl og fara að pússa..
framkvæmdir
Eftir tvær ferðir í Ikea og eina í Húsasmiðjuna komum við heim með nokkra skápa, vask og blöndunartæki. Planið er að ráðast í smá framkvæmdir á baðherberginu á næstunni. Borðplatan verður sennilega ekki til fyrr en seinna í vikunni svo það er nægur tími til að mála og rífa út þetta gamla.
það eru ýmsar framkvæmdir annarsstaðar líka. Vinnustaðurinn var að flytja um helgina og er kominn í glæsilegt húsnæði. Við vorum þar á laugardaginn aðeins að hjálpa til við að snurfusa og svona og staðurinn er orðinn mjög glæsilegur. það er greinilegt að ég valdi ekki alveg rétta tímann til að fara í barneignarfrí því ég næ ekki nema 2 mánuðum til að byrja með á nýja staðnum. það verður þeim mun skemmtilegra að koma aftur.
Svo eru fleiri í framkvæmdum, Lilja systir óla og Svavar eru búin að rústa gamla eldhúsinu sínu og eru komin með splunkunýtt (Ikea auðvitað) eldhús sem er alveg að smella saman. Við rákumst einmitt á Svavar í verslunarleiðangri áðan. það er ekki hægt að segja annað en það sé framkvæmdagleði í kringum okkur.
væntanlegt...
úff mánudagur. Helgin var góð en það er langt í næstu. Mánudagar eru samt fínir að öðru leyti. það er mikið að gerast í vinnunni minni því við erum að flytja í nýja húsnæðið í vikunni. það er búið að mála, parketleggja og koma fyrir nýjum stólum og skrifborðum, svo fæ ég nýja tölvu bráðlega og ný verkefni hrannast inn. Ekkert nema stuð þar.
Svo er reyndar allt í gangi hérna heima líka við að undirbúa væntanlega fjölgun, við ætlum aðallega að taka smá rasssíu (segir maður svona?) á baðherberginu, henda út skápnum og vaskinum og fá nýjan vask og skáp þar undir, og fá okkur svo kommóðu sem er með baði og skiptiborði. Svo er ég aðeins búin að kíkja á útsölur og kaupa nokkrar litlar flíkur sem allar eru svona semi uni-sex :) ég stóð mig að því í Mótor um helgina þegar ég var að skoða töskur að hugsa að þær hentuðu bara ansi vel sem skiptitöskur..



RSS veita