Eftirfarandi eru færslur í flokknum "fólk"
skriffinnska og skortur á samúð - undirskriftalisti!
Ég er aðeins búin að fylgjast með þessu máli um Paul Ramses á netinu síðustu daga og maður er bara orðlaus yfir þessu skriffinnskublaðri í kerfinu á Íslandi. Þegar skriffinnska og skortur á samúð fer saman, veit ekki á gott.
Ef þú ert ekki búin að skrifa undir áskorunina um að fá Paul Ramses aftur til Íslands, skora ég á þig að skrifa undir núna. Listinn verður afhentur á fimmtudaginn.
Hetjur hvunndagsins
Í gær horfði ég á alveg sláandi viðtal við hana Erlu konuna hans Jonna bekkjarbróður úr LHÍ. Þau eiga strák sem er jafnaldri Danna. Hún greindist núna nýlega með krabbamein í kviðarholi og er á leið til USA í mjög stóra aðgerð eftir nokkra daga. Viðtalið var alveg ótrúlegt því hún stóð sig svo vel og var svo yfirveguð og sterk að ég var alveg eftir mig.
Ég vona og bið að þeim gangi eins vel og mögulegt er, ég á eftir að hugsa þvílíkt mikið til þeirra.
Opið bréf til Biskups
Jóhanna systir mín sendi mér tengil á opið bréf til Biskups, sem fjallar um fjölskyldu séra Péturs heitins í Laufási og tilraunum kirkjunnar til að bola þeim burt af heimili sínu. Ég vona að því verði svarað á farsælan veg fyrir alla, því það væri ótrúlegt að hugsa til þess að skriffinnska standi ofar manngæsku, hjá sjálfri þjóðkirkjunni.
neytendaverðkönnunarpæling
Mikið var ég glöð í mínu hjarta að lesa fréttirnar hjá Rúv í dag, þegar þeir komu með skúbb með Krónuna og Bónus. Mér þykir svo vænt um að það sé einhver neytendavakning í gangi og fer til dæmis reglulega inn á OKUR síðuna hans dr.Gunna til að heykslast mér til gamans.. svo kíki ég líka reglulega inn á Skotsilfur, síðuna hans Ragga til að fá nýjustu fréttir í sparnaðarráðum og heimilisbókhaldi. Alveg gulls ígildi þessi vefur ;)
En í dag, í þessum pælingum um verðkannanir og neytendavitund, fékk ég hugmynd.

Út um allt eru neytendur að gera sínar eigin verðkannanir, hver í sínu horni, þó þeir láti kannski ekki mikið uppi um það.
Það þyrfti að vera til vefur þar sem maður setur inn verðin á vörunni sem maður er að kaupa, eftir að maður er búinn að versla. Hugsum okkur (í fyrsta lagi að einhver myndi nenna þessu) fara út í búð - kaupa kók í bauk (segi þetta bara af því ég er að norðan), opna vefinn og stimpla inn númerið í strikamerkinu. Strikamerkið er bara auðkenni sem er svo tengt við upplýsingar um vöruna í verslunarkerfinu, þannig hefur hver vara - eftir þyngd eða bragðtegund sitt auðkenni sem er svo tengt inn í hvert verslunarkerfi fyrir sig. Það er ekkert sem mælir gegn því að vefur geti ekki geymt þannig upplýsingar eins og verslunarkerfin? (Leiðrétti mig hver sem getur).
Ef kókið í bauknum hefur verið skráð inn áður þá kemur upp form þar sem kaupandinn er beðinn um að slá inn dagsetningu, verslun og verðið á vörunni. Þar getur hann líka séð hvað aðrir, sem hafa keypt sömu vöru, hafa borgað fyrir hana í gegnum tíðina.
Ef kókið í bauknum hefur ekki verið skráð inn þá þyrfti að setja inn upplýsingar um þá vöru; tegund, framleiðanda, magn oþh, áður en hægt er að setja inn verðið.
Þetta hljómar kannski svolítið leiðinlegt en með notendavænu viðmóti og fallegu útliti ásamt möguleikum til samskipta (skilaboð og spjallborð) og jafnvel því að gera þetta að léttum leik þar sem maður safnar stigum fyrir hverja vöru sem maður setur inn.. (svona eins og iconbuffet þar sem ég er komin með "gegt" mörg stig fyrir að bíttast á táknmyndum í gerviheimi...) gæti þetta orðið gott sport og geysilega gott aðhald fyrir verslanir því þannig er hver kúnni orðinn aktívur "verðkönnunareftirlitsaðili".
Þetta veltur auðvitað mikið á heiðarleika fólks og einhvernvegin þyrfti að vera hægt að færa sönnur á kaupin. Hugsanlega gætu neytendasamtökin staðið fyrir svona vef og gert þá kröfu um að fá kassastrimilinn ef eitthvað undarlegt er í gangi.
Með svona gögnum er hægt að fá upplýsingar yfir ákveðin tímabil, ákveðnar verslanir og ákveðnar vörutegundir. Þetta segir auðvitað bara ákveðna sögu og er ekki marktækt nema að vissu leyti en býr samt til landslag sem mér finnst vera öðruvísi en hefur verið.
Pæling sem vert er að þróa áfram ? Hvað finnst þér ?
Flokkað sem fólk / hugmyndir / hönnun / netið / tækni /
3
Pabbi
Það var fyrir algjöra tilviljun að ég kveikti á Rás 2 í iTunes núna áðan. Klukkan er náttúrulega bara rétt að verða 8 heima þannig að ég vissi að það væri sennilega ekki neitt af viti á Bylgjunni og ég er búin að vera að hlusta á mp3 bloggin og playlistann minn undanfarna daga þannig að eitthvað fékk mig til að tengjast inn á rás 2 og hver haldiði að hafi verið að tala við Gest Einar og Guðrúnu Gunnars .. enginn annar en hann PABBI minn!
Já, ég er ánægð með karlinn. Hann var að tjá sig um sín hjartans mál sem eru auðvitað sjómennskan og sambúðin við hvalina í og úti fyrir Eyjafirði, en þeim hefur fjölgað svo gríðarlega undanfarin ár og éta upp bæði þorskinn og fæðu hans. Hann vill að sjálfsögðu að við veiðum úr hvalastofnunum áður en þeir éta okkur út á gaddinn.
Það er hægt að hlusta á upptöku af þættinum á rás 2.
Hulda amma - minning
Hulda amma mín kvaddi í dag. Hún hefði orðið 93 ára núna í haust og varð alveg ótrúlega ern, en var orðin mikið slöpp núna síðustu mánuði. Hún var svo yndislega sterk og góð kona að það er leitun að annarri eins. Hún hafði húmorinn í lagi og var alltaf ung í anda og hafði svo mikinn áhuga á lífinu í kringum okkur, sérstaklega ef það fjallaði um kærasta eða börn. Hún átti ótal barnabörn og barnabarnabörn og var sennilega farin að týna tölunni á þeim öllum, en samt hugsaði hún jafnt til okkar allra og gerði ekki upp á milli nokkurs manns. Hún hafði yndi af því að segja sögur og sérstaklega sögur frá því hún var ung enda voru þær sögur ævintýrum líkastar fyrir litlar stelpur.
Hún fæddist árið 1914 og ólst upp fyrstu árin á torfbænum Kúgili í Þorvaldsdal, sem gengur upp úr Eyjafirði, en fluttist svo með fjölskyldunni í steinhús í Litla-Árskógi þegar hún var um 10 ára. Hún sagði okkur stundum frá því þegar hún bjó í torfbænum, hvað hún þoldi ekki þegar sængin hennar og hárið fraus fast við torfvegginn á vetrarnóttunum og hvað myrkrið gat orðið óbærilegt.
Það voru svona sögur sem fengu mann til að meta lífið á annan hátt.
Það voru sannkölluð forréttindi að eiga svona góða ömmu og eiga svo margar minningar um hana síðan hún var hress og kát. Ég veit að hún er glöð núna því hún er búin að bíða svo lengi eftir að fá að fara til Guðs og Afa.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Finnum Madeleine!
Ég er búin að fylgjast með leitinni að Madeleine síðan fréttir komu af því að hún hvarf. Mér finnst þetta svo óhugnalegt mál, að einhver skríði inn og ræni sofandi barni, að ég fæ illt í hjartað þegar ég hugsa um það. Það er svo skelfilegt að það sé ekki hægt að rekja slóðir og eða vita hvar hún er niðurkomin.
Það eru ekki margir sem hafa ráð á því að koma af stað alheims auglýsingaherferð til að finna eitthvað, sem þó verður aldrei metið til fjár, sem einhver annar er að fela.
Þess vegna fannst mér svolítið undarlegt að sjá auglýsingu um keppni/ raunveruleika sjónvarpsþátt um mannránið á Andrew Goodis, þar sem konan hans biðlar til áhorfenda í móðursýkiskasti og heitir verðlaunum þeim sem tekst að leysa gátuna.
Þessar andstæður stinga mig svo mikið að ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Annars vegar er barni rænt frá foreldrum sínum í alvörunni og hins vegar er fullorðið fólk að setja á svið mannrán þar þátttakendur fá vísbendingar og geta svo unnið pening ef þeir vinna leikinn.
Hefði ekki verið manneskjulegra að búa til "leik", styrktan af hinum ýmsu fyrirtækjum þar sem markmiðið er að finna Madeleine, kemba Evrópu og þétta netið. Það er miklu meira challange fyrir auglýsingafólk, PR aðila, margmiðlunarfræðinga, markaðsfræðinga og sjónvarpsfólk og myndi lyfta ímynd styrktaraðila á ansi mikið hærra plan heldur en það er á í sögunni um Andrew Goodis. Fyrir utan það að þegar Madeleine finnst þá er það ekki bara sigur fyrir þann sem hana finnur heldur von fyrir mannkynið allt.

dagurinn og síminn
Í dag er ég búin að fara Danmörkina endilanga, svo til. Ég er að vinna verkefni með tveimur úr skólanum, þeim Katrine og Kris og við erum með kúnna niðri í Rødekro sem við erum í raun að "re-branda". Markaðsgaurinn frá fyrirtækinu sótti okkur í morgun og við keyrðum niður eftir hraðbrautinni í nærri tvo tíma og vorum þá komin skuggalega nálægt þýsku landamærunum. Við skoðuðum mikið, tókum myndir og spjölluðum (á dönskunni auðvitað) og tókum svo lestina heim og ég var komin heim um sex leytið. Veðrið spillti ekki fyrir ferðinni, rúmlega 20 stiga hiti og glampandi sól. Þetta var áhugaverð ferð og gaman að kynnast aðeins atvinnulífinu hérna í Dk
Baddý systir fór frá okkur í dag, flaug til Barcelona til Ellýjar frænku. Litli stubbur saknar hennar nú þegar.
Ég fékk mér líka nýjan síma í gær, þar sem minn gamli gaf upp öndina. Við systur fórum í raftækjaverslun og af því ég var áður bara með svona frelsi þá ákvað ég að binda mig í áskrift í hálft ár, borga 120 danskar á mánuði og get sent öll þau sms sem mér hugnast. Ágætt. Af því tilefni fékk ég líka nýtt símanúmer, sem hljóðar svona á dönsku:
otte og tyve, sex og halvfjerds, to og halvfems, tre og firs.
Ég get engan vegin munað þetta númer, hvað þá sagt það á dönsku undir álagi. Jiminn.
ég blogga til að gleyma
Ég er að reyna að ná úr mér bræðinni, ég fór út áðan með ipodinn og skokkaði einn hring með Broken Boy Soldier með Raconteurs í eyrunum. Ég held ég hafi aldrei skokkað jafn ákveðið og það var fínasta hreinsun. Núna held ég að ég hætti að velta mér upp úr þessu, eins mikið og þetta sökkar, og einbeiti mér að því hvað það er margt fallegt til í heiminum.
Svo syngur sonur minn líka svo fallega með Latabæ:
29onthe29th
Þegar ég var lítil var ég alltaf frekar spennt fyrir 29 ára afmælisdeginum mínum, af því ég á afmæli þann 29. Þess vegna vorkenndi ég oft fólki sem átti afmæli snemma í mánuðinum (til dæmis Baddý systir, hún á afmæli þann 4.) því að fjögurra ára myndi hún ekkert njóta þess að vera jafn gömul og dagurinn hennar er. Skiljiði. Þetta er há alvarlegt mál!
...
En það er spurning hvort morgundagurinn verður eins merkilegur og ég hef ímyndað mér í brátt 29 ár, hann stefnir allavega í að verða feykilega skemmtilegur þar sem við ætlum að bruna strax við sólarupprás til Kaupmannahafnar (ekki amarlegt að fá ferð til Köben í afmælisgjöf ha!) og eyða deginum í tivoli með Hönnu systur, sem er þar í vinnu / skemmtiferð.
3. ára mamma
Þennan dag, um þetta leiti, fyrir þremur árum síðan, leit lítill snáði dagsins ljós. Tíminn hefur flogið frá okkur þrátt fyrir að núna finnist manni að hann hafi alltaf verið til.
Lára afmælisstelpa
Í dag á heiðurskonan Lára Stefánsdóttir afmæli, á morgun verður stórveisla haldin henni til heiðurs og þar sem ég sé mér ekki fært að mæta þá ber ég henni kærar kveðjur og treysti því að aðrir pjúsarar haldi uppi fögnuði.
Pétur Ben
Ég er að hugsa um að skella mér á tónleika með Pétri Ben með nokkrum nágrönnum mínum í kvöld. Það er ekki of oft sem íslenskir listamenn spila hérna í Árósum og hvað þá að maður hafi tækifæri til að fara.
sambúðarafmæli
Það er ýmislegt sem getur gerst á einum áratug. 10 árum. Það er langur tími en er samt svo fljótur að líða. Í dag eru nefnilega 10 ár síðan við byrjuðum saman og mér finnst eins og það hafi gerst í gær.
Árið 1997:
- Clinton hóf seinna kjörtímabil sitt sem forseti Bandaríkjanna og Tony Blair tók við embætti í Bretlandi.
- OK Computer með Radiohead kom út
- Fyrsta Harry Potter bókin kom út
- Hönnuðurinn Gianni Versace er skotinn til bana
- Microsoft keypti $150 milljón hluti í Apple
- Southpark hefur göngu sína í bandarísku sjónvarpi
- Díana prinsessa lést í bílslysi
- Móðir Teresa lést
- Google lénið var skráð
- Orðið "weblog" verður til
- Yfirvöld í Hong Kong slátruðu öllum kjúklingum á svæðinu (1.25 milljón) til að hefta útbreiðu inflúensu sem hafði komið upp.
- Toyota Prius var fyrst sýndur opinberlega, fyrsti smábíllinn knúinn vetni, sem yrði framleiddur árið 2000.
Af því við erum svo ung í anda þá ætlum við ekki að fara út að borða eða í leikhús, eða elda steik með dýru rauðvíni, heldur ætlum við bara að panta pizzu :)
"loksins loksins"
nýr bloggari.. kíkið á hann.



RSS veita