Eftirfarandi eru færslur í flokknum "bækur"
Storytelling / Listin að segja sögur
Bókabúðin í skólanum mínum er mjög fín, eiginlega ein af bestu upplýsingatækni-bókabúðunum á svæðinu. Eins og ég er mikill sökker fyrir bókabúðum svona almennt þá er ekki verra að þarna fást pennar í öllum sverleikum (Mmmm), og súkkulaði (MMmmm) við kassann. Mér finnst ekki verra að geta beðið þar inni og flett á meðan ég bíð eftir farinu heim.
Um daginn var haldin plakata samkeppni í skólanum til að auglýsa fyrirlestur og í verðlaun var inneign í bókabúðinni góðu. Ég sendi inn plakat og það var (að sjálfsögðu..) valið. Fyrir inneignina keypti ég bók sem heitir Storytelling, Branding in practice. Hún fjallar um það hvernig fyrirtæki og vörumerki geta sagt sögur sem auka gildi þeirra fyrir viðskiptavinum og starfsmönnum, mjög áhugaverð bók.
Svo skemmtilega vildi til að fyrirlesturinn sem posterið var fyrir, fjallaði líka um Storytelling, en ég missti af honum vegna veikinda. Vonandi bætir bókin það þá eitthvað upp.
draumalandið - mörkin milli draums og veruleika
Ég les bækur ekki oft. Eiginlega allt of sjaldan. Síðasta bók sem ég las var Harry Potter en ég man ekki lengur númer hvað, sennilega sú næstsíðasta... er ekki bara ein eftir?
En núna er ég sokkin niður í bók, keypti hana í IÐU á Lækjargötu, hélt að ég væri þar með að styrkja einyrkja sem væri að berjast á móti straumi í harðri samkeppni bókamarkaðarins, líkt og ég fer glöð og eyði 25% meira í Melabúðinni fyrir sambærilegar vörur en í Bónus, nema þá heyri ég útundan mér að afgreiðslumaðurinn í IÐU segi við einhvern annan kúnna að hann ætli að leita að einhverju í lagernum á Eymundsson - þetta sé nefnilega sama keðjan! (Ég verð mjög sár ef ég heyri kjötsalann í Melabúðinni segja þetta einhverntíman um Bónus)
Dóh.
Allavegana, ég keypti bókina.
Ég opnaði hana í hádeginu í vinnunni í gær og var komin djúpt inn í nokkrar fyrstu blaðsíðurnar þegar ég rankaði við mér og fór aftur að vinna (við færibandið á hönnunarstofunni). Ég gjörsamlega sogaðist inn.
Í kvöld þegar strákurinn var farinn að sofa, Óli fór eitthvert út að horfa á körfubolta og ég ætlaði að fara að pakka niður fyrir norðurferðina á morgun greip ég bókina og settist í sófann okkar góða.
Mér líður núna vægast sagt eins og í einhverri geðshræringu, samt bara komin á blaðsíðu 85.
Akkúrat núna er maður að hugsa hvað er það sem skiptir engu máli í lífinu og hvað skiptir öllu máli. Það má ekki stimpla þessa bók sem pólitískt áróður eða athyglissýki einhverra listaspíra. Hún er ekki þannig.
Ég á örugglega eftir að segja meira um hana, en fyrst ætla ég að lesa meira og láta alla mína fjölskyldu, tengdafjölskyldu, vini og ættingja nær og fjær lesa hana líka.
Þessi bók heitir Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð og er eftir Andra Snæ Magnason
Ég skil alveg orð Silju Aðalsteins þó svo ég sé bara komin á blaðsíðu 85...
Fáið ykkur Draumalandið, takið hana að láni á bókasafninu, kaupið hana í bókabúðinni, lesið hana við bókaborðið eða stelið henni ef þið eigið ekki fyrir henni. Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA!
Flokkað sem bækur / heimilið / hönnun / lífið sjálft / ýmislegt /
4
atorkusöm kona
Mjög áhugavert viðtal við Láru má finna á fréttamiðlinum dagur.net. Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt um fólkið í kringum mann. :)
Bagdad brennur
Baghdad Burning er sennilega mestumtalaða blogg í dag. Engin furða, þetta er lesning sem tekur á.
Varðandi ránið í HHÍ...
.. ég veit reyndar ekkert meira um þetta mál, en ferlega hefði það verið fyndið ef ræninginn hefði verið með kalla kanínu grímu eða eitthvað álíka. (fyndið sko af því enginn meiddist).
Ég skal allavega veðja að löggurnar í Spaugstofunni eltast við grímuklædda "milljónamæringa" í næsta þætti.
hálfsblóðsprinsinn
Potter kom í fyrradag, ekki með uglu eins og Amazon hafði lofað, heldur með sveittum starfsmanni póstsins. Ég mundi það um leið og ég opnaði pakkann að ég hafði verið svo séð að panta fullorðins útgáfu af bókinni. Sem er nákvæmlega eins bók nema með tímavænni kápu. Barnabókakápan er svona alveg á mörkunum fyrir minn smekk.
HP
ég fór ekki í röð heldur til að ná í nýju Harry Potter. Hún er væntanleg í vikunni heim að dyrum frá amazon uk. Reyndar frekar seint finnst mér, síðast minnir mig að hún hafi verið komin til mín um svipað leyti og byrjað var að selja hana hér.
Æ, það gerir ekkert til, ég hefði sennilega ekkert byrjað að lesa hana um helgina. Ég ætlaði alltaf að taka upprifjun á fyrri bókunum í sumar en gafst aldrei tími til.
lesefni fyrir helgina
Ég held að það sé algjörlega málið að fara og ná sér í bæði cosmo og elle þessa dagana. Nema þetta sé svona týpískt íslenskt verðstríð þar sem bara eitthvað british ferða journal drasl og sex ára gömul sænsk krosssaumsblöð eru á útsölu. Svona eins og Open Bar í mexicoferðinni þar sem maður gat drukkið eins og manni lysti... af tequila og kahlua. æðislegt.
ég ætla samt að tékka á cosmó
HP6
það verður allavega ein bók lesin í sumar þar sem ég er búin að panta næstu bók um Potterinn. Hún kemur reyndar ekki fyrr en í júlí en ég hugsa að ég geti beðið.
Davinci code
Ég hef verið að lesa Davinci lykilinn og gvuð minn góður, af hverju er ég ekki búin að lesa þessa bók fyrr?? Hvílík og önnur ein snilld! Ég er gjörsamlega á nálum, gleymi tímanum og æði áfram, blaðsíðu eftir blaðsíðu og þori svo ekki að fara að sofa því ég býst við að albínóinn stökkvi á mig úr horninu. Ég er auðvitað búin að fletta listaverkabókunum mínum, skoða Síðustu kvöldmáltíðina og haaallilúja.. Ég kaupi allar þessar kenningar. Slegið!
þessi frægð...
í miðbæjarrúntinum mínum í dag, þar sem ég kíkti í vinnuna til að athuga hvort ekki væri allt í sómanum, lá leið mín inn í Eymundsson í austurstræti. þar kíkti ég yfir tímaritin og þegar þau voru ekki alveg að gera sig fyrir mig ákvað ég að fara á efri hæðina í hönnunarbókahilluna. þar rakst ég á eina bók sem ég var nýbúin að setja á óskalistann minn. Hún er núna komin af listanum og á náttborðið mitt og lofar mjög góðu. Svo rakst ég á aðra bók, WebDesignIndex nr 4 en útgáfu nr 2 keypti ég í Amsterdam um árið. Bókin inniheldur óteljandi mismunandi vefútlit frá ýmsum aðilum um allan heim og er flokkuð eftir litaskema. Af forvitni minni kíkti ég í indexið aftast til að athuga hvort það væru einhverjir íslendingar í henni og viti menn... stendur ekki bara nafnið mitt þarna! jessör. á bls 41 er síðasta útlitið á þessari ræmu sýnt í allri sinni dýrð!
Sem þýddi að ég pungaði út fyrir þessari bók líka og tók svo strætó heim.
samlokubókin
ég er sökker fyrir flottum bókum. þegar ég fór í hagkaup úti á nesi áðan til að versla í matin rakst ég á samlokubókina sem var að koma út. ég keypti hana bara af því hún er í svo flottu broti, svo komst ég að því þegar ég kom heim að hún er geðveikt girnó í þokkabót og stútfull af skemmtilegum hugmyndum. ein uppskrift af samloku er þannig: brauð, egg - tómatar - agúrka í sneiðum og nýtínd fjóla (blómið) ofaná. brilliant!
HP
766 blaðsíður að baki og þvílík gríðarleg spenna í einni bók! ég er búin að vera límd við Fönixregluna síðustu daga, neglurnar komnar niður í rót og varla litið upp til að borða og núna er það búið. ótrúlegur söguþráður, ótrúlegt.
lestur næstu kvölda/nátta
Núna í kvöld kom nýja Harry Potter bókin beint frá Amazon inn um dyrnar hjá mér, ég hafði pantað hana í forsölu einhverntíman í apríl, þegar ég pantaði mér einhverjar aðrar bækur. ég bjóst samt ekki við því að hún yrði svona fljót á leiðinni, fór frá amazon lagernum í uk á laugardaginn og lent til mín á mánudagskvöldi.
Umbúðirnar vöktu líka áhuga minn, pappakassinn var nákvæmlega jafn stór og bókin sjálf þannig að þeir sendu ekkert loft með þessum massafjölda sem seldu af bókinni, enda ekki ástæða til.
Er ekki málið að panta
Er ekki málið að panta eins og geðsjúklingur frá amazon þessa dagana?
Humarinn er með góða bók
Humarinn er með góða bók á náttborðinu hjá sér, held meira að segja að ég eigi þá bók! hehe
Potterinn
Hver ætli sé annars munurinn á venjulegu útgáfunni af Harry Potter og á Adult edition? ætli það sé bara kápan eða er hún kannski svæsnari.. hmm
bækur
ég gerðist mjög djörf í morgun og pantaði mér nýju grahö biblíuna sem var að koma út. Mjög undarlegt, hún kostar ca 14 pund á breska amazon en 40 dollara á bandaríska amazon. Sem gerir um 1500kr mun í íslenskum krónum. Hún er náttúrlega gefin út af Taschen í Bretlandi þannig að það gæti spilað inní.
ég notaði líka tækifærið og pantaði mér fönixregluna til að lesa í sumar. Hún kemur reyndar ekki út fyrr en í maí en ég vona að hin komi fyrir afmælið mitt.
vits er þörf, þeim er víða ratar...
ég skoða stundum reference listan á teljaranum mínum til að sjá hvaðan fólk er að koma sem heimsækir mig. þar rakst ég á náunga (veit reyndar ekki hvort þetta sé strákur eða stelpa) frá USA sem er með mig á linkalistanum sínum. Hann/hún er líka í grúbbu á livejournal sem heitir learn_icelandic. þar er fólk, aðallega frá Bandaríkjunum, sem hefur áhuga á að læra íslensku og við fyrstu sýn virðist áhugi þeirra hafa kviknað út frá aðdáun á Sigurrós og Björk. Allavega, ein spurning kom upp hvar hægt væri að kaupa íslenskar bækur á netinu og þá fór ég að pæla, er það yfirleitt hægt? Skífan og BT eru með sölu á geisladiskum og tölvuleikjum en eru Hagkaup og Bóksala stúdenta virkilega einu íslensku vefbókabúðirnar? tell me
