bleh
Ég er í því að endurskipuleggja mig þessa dagana, það felst ekki síst í nýja vinnustaðnum sem ég er að búa til með öðrum, sem fer af stað með sumrinu. Ég er líka að reyna að hætta að vinna á kvöldin, horfa frekar á tv eða fara í sund.. eða prjóna.. svolítinn me-time.
Mig langar líka til að fara að blogga aftur á ensku og þá minna um pólitík.. maður er alveg að krepera á því.. en ég veit að ég myndi aldrei meika það að blogga bæði á íslensku og ensku þannig að ég er að spá í að snúa þessu bara yfir á ensku.. hvað finnst ykkur um það?
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Helgi Þór:
Sæl Dagný,
Athyglisvert, ég hef sjálfur verið að hugsa svipað, þ.e. hvort ég eigi að blogga á íslensku eða ensku. Mér dettur í hug hvort það komi til greina að hafa 2 bloggsíður fyrir sitt hvort tungumálið.
Mér heyrist að efnistökin yrðu mismunandi eftir tungumálinu og þá væri kannski eðlilegt að blogga á víxl eftir því hvert efnið er hverju sinni. Eða væri það kannski bara flóknara?
Kveðja,
Helgi Þór
e.s. Forvitinn að heyra meira um nýja vinnustaðinn og hvað er framundan í haust.

