Frk. framkvæmdastjóri

Fyrr í vor skráði ég mig á námskeiðið Brautargengi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, 15 vikna námskeið í stofnun og rekstri fyrirtækja. Þessar 15 vikur eru núna búnar og eftir það er ég með í höndunum viðskiptaáætlun um fyrirtækið mitt litla, lýsingu á því hvað það er og hvert það vill fara og síðast en ekki síst, rekstraráætlun sem sýnir að með ákveðnum, raunhæfum forsendum þá getur batteríið gengið upp.
Þessi tími er búinn að vera alveg ótrúlega skemmtilegur, eiginlega skrýtið að ég hafi ekki bloggað um þetta áður en bloggið hefur aðeins dottið uppfyrir. Hópurinn var mjög skemmtilegur, konur á öllum aldri með allskonar hugmyndir. Fyrirlestrarnir voru líka innspýting hugmynda og krafts og námskeiðið allt mjög vel skipulagt.
Tímarnir voru einn dag í viku frá 9-13:30, semsagt nánast allur vinnudagurinn þar sem Emil hefur verið hjá dagmömmunni til kl. 14. Fyrirlestrarnir byggja á því að ákveðinn kafli í viðskiptaáætluninni er tekinn fyrir, svo eru heimaverkefni sem eru unnin eftir það.
Verkefnastaðan hefur líka verið mjög góð og það verður gott að fá auka dag í vikuna aftur.

Semsagt mjög skemmtilegur tími liðinn og við tekur vægast sagt áhugaverður tími. Sumarið verður notað til að pússa og undirbúa, svona eins og maður kemst upp með í fríinu, og svo þegar skólinn byrjar í haust verður farið af stað af fullum krafti með fyrirtækið. Við (já ég segi við) erum komin með húsnæði í sigtið, það verður nýtt nafn og rosa stuð. Segi betur frá síðar :)


Miðvikudagur 19. maí 2010 kl. 22:03
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / skólinn. Þar eru 11 færslur.

/ Álit

Gunz.:

Spennandi tímar vægast sagt. :)

27.05.10 14:59