Í bítið

Þegar litli stubbur vaknar rúmlega sex á morgnana og heimtar sinn hafragraut, þrátt fyrir að það sé laugardagur, þá þýðir yfirleitt ekkert að mótmæla. Við fórum því á fætur eldsnemma í bítið. Það er samt mjög góð tilfinning að vakna svona snemma, ná morgunkyrrðinni, þrátt fyrir lítinn svefn. Það verður svo mikið úr deginum.
Þannig að uppúr sjö, þegar morgunmaturinn var frá og stubburinn kominn í dótið sitt, fannst mér tilvalið að gera nokkuð sem ég hef lengi ætlað að gera. Búa til úrklippubók fyrir uppskriftir, þið vitið, þessar sem maður klippir úr dagblöðum, prentar út af netinu osfr. sem eiga eiginlega hvergi heima.


Það sem þarf er 1stk A4 gormabók úr Tiger, kostar 600 kall held ég. Gormarnir mega gjarnan vera svolítið rúmir þar sem bókin á eftir að fitna. Breiður og fínn túss, lím og límmiðar til að deila bókinni niður.


matarbok02.jpg

Flokkarnir fara auðvitað eftir hverjum og einum, kannski vill maður gera tvær bækur, aðra fyrir mat og hina fyrir kökur, það gæti verið skemmtilegt. Eins er mismunandi pláss fyrir hvern og einn flokk eftir því hvað þú heldur að það þurfi, hver smekkur þinn og fjölskyldunnar er.

matarbok03.jpg

Klippa og líma er skemmtilegasti hlutinn af þessu, það má auðvitað líka skrifa beint niður. Maður man oftast eftir uppskriftum eftir því hvað er í kringum þær.

matarbok04.jpg

Mér finnst líka ágætt að safna saman heilráðum og góðum aðferðum, það er með sér kafla í bókinni, það er innspýting og heldur manni við efnið.

matarbok01.jpg

Að lokum má auðvitað skreyta kápuna (skera í hana holu og skrifa "matargat" fyrir ofan) eða bara sleppa því.

Svo er bara að halda áfram að safna, góðir staðir eru t.d. www.eldhus.is og www.cafesigrun.com. Uppskriftirnar sem ég var byrjuð að líma inn eru teknar úr bæklingi frá líkamsræktarstöðinni Bjargi, má finna hér.


Laugardagur 21. nóvember 2009 kl. 09:19
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur.

/ Álit

Halla:

Dís, hvað þetta er flott hjá þér! :)
H x

22.11.09 21:26


Inga Hrund:

Rosa flott. Ég sting mínum útprentuðu uppskriftum á milli matreiðslubóka og svo þegar ég finn gatarann minn þá set ég þær í möppu sem fylgdi matarklúbbi sem fyrrum meðleigjandi var í haha. Mig grunar að kominn sé tími til að skella í möppuna góðu hjá mér.

24.11.09 11:02


Hanna sys:

vá þetta er fáránlegt. Í GÆR opnaði ég skápinn í eldhúsinu með uppskriftarbókunum í, og fékk flóðið af úrklippum á móti mér! Ég tróð þeim aftur upp í skáp og hugsaði með sjálfri mér: "Eftir prófin finn ég einhverja góða lausn á þessum uppskrifta,úrklippuvanda!"
... og daginn eftir opna ég bloggið þitt og volá - lausnin komin!!

Ég ætla meira að segja að freista þess að "nýta" eldri soninn í verkið og fá hann til að klippa með mér :)

26.11.09 00:16


Dagný:

takk :)
já og nú eru jólablöðin að hrúgast inn um lúguna og hver nennir að geyma þessi stóru dagblöð.. bara klippa út og líma inn.. reyndar verður dagblaðapappírinn alveg ómögulegur með tímanum út af sýrunni í pappírnum.. en það er seinni tíma vandamál ;)

svo þegar maður er kominn með heila síðu getur maður dúllað sér við að setja á hana bókaplast.. hehe, en það er bara ef maður er geðveikur ;)

26.11.09 00:27


/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)