Í bítið

Þegar litli stubbur vaknar rúmlega sex á morgnana og heimtar sinn hafragraut, þrátt fyrir að það sé laugardagur, þá þýðir yfirleitt ekkert að mótmæla. Við fórum því á fætur eldsnemma í bítið. Það er samt mjög góð tilfinning að vakna svona snemma, ná morgunkyrrðinni, þrátt fyrir lítinn svefn. Það verður svo mikið úr deginum.
Þannig að uppúr sjö, þegar morgunmaturinn var frá og stubburinn kominn í dótið sitt, fannst mér tilvalið að gera nokkuð sem ég hef lengi ætlað að gera. Búa til úrklippubók fyrir uppskriftir, þið vitið, þessar sem maður klippir úr dagblöðum, prentar út af netinu osfr. sem eiga eiginlega hvergi heima.


Það sem þarf er 1stk A4 gormabók úr Tiger, kostar 600 kall held ég. Gormarnir mega gjarnan vera svolítið rúmir þar sem bókin á eftir að fitna. Breiður og fínn túss, lím og límmiðar til að deila bókinni niður.


matarbok02.jpg

Flokkarnir fara auðvitað eftir hverjum og einum, kannski vill maður gera tvær bækur, aðra fyrir mat og hina fyrir kökur, það gæti verið skemmtilegt. Eins er mismunandi pláss fyrir hvern og einn flokk eftir því hvað þú heldur að það þurfi, hver smekkur þinn og fjölskyldunnar er.

matarbok03.jpg

Klippa og líma er skemmtilegasti hlutinn af þessu, það má auðvitað líka skrifa beint niður. Maður man oftast eftir uppskriftum eftir því hvað er í kringum þær.

matarbok04.jpg

Mér finnst líka ágætt að safna saman heilráðum og góðum aðferðum, það er með sér kafla í bókinni, það er innspýting og heldur manni við efnið.

matarbok01.jpg

Að lokum má auðvitað skreyta kápuna (skera í hana holu og skrifa "matargat" fyrir ofan) eða bara sleppa því.

Svo er bara að halda áfram að safna, góðir staðir eru t.d. www.eldhus.is og www.cafesigrun.com. Uppskriftirnar sem ég var byrjuð að líma inn eru teknar úr bæklingi frá líkamsræktarstöðinni Bjargi, má finna hér.

Laugardagur 21. nóvember 2009 kl. 09:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 4

Þjóðfundur

Í dag er Þjóðfundur haldinn í Laugardalshöllinni, sem hefur vonandi ekki farið framhjá neinum. Hérna eru 1500 gestir og um 300 sjálfboðaliðar. Ég ákvað að sjálfsögðu að reyna að taka þátt, þó ég hefði ekki fengið boðsbréf sem gestur, og er hérna stödd sem sjálfboðaliði. Fékk starf í bakvinnslu þannig að ég sit í tölvuverinu og slæ inn þær upplýsingar sem fólk á borðunum kemur frá sér. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með þessu, skipulagið er alveg ótrúlega gott, maður sér það best á því að það er allt ótrúlega smooth. Fyrir utan kannski svolítil bílastæðavandræði hérna fyrir utan í byrjun. Hérna eru allir ótrúlega jákvæðir og það er tilhlökkun yfir því hver útkoman verður úr þessum fundi.

Það er bein útsending á www.thjodfundur2009.is/straumur. Endilega kveikið á því og verið með í anda :)

Laugardagur 14. nóvember 2009 kl. 09:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 0