allt um ekkert

Ég hef ekki skrifað mikið á þessum vettvangi þrátt fyrir að vera límd við tölvuna dag og nótt. Það er mjög gott að vera bissí, ég get ekki hugsað mér að vera neitt öðruvísi.
Í síðasta mánuði byrjaði Emil hjá dagmömmu, hann er þar frá 8-14 og við það lengdist vinnudagurinn minn um ca 500%. Veitti ekki af því. Dagurinn byrjar líka á góðum göngutúr yfir í næstu götu. Hann er líka miklu hressari, finnst frábært að hitta hin litlu börnin og komast út á róló í þannig félagsskap.

Það eru nokkur skemmtileg verkefni sem ég er að vinna að. Eitt skemmtilegt er veitingastaðurinn Vegi-terian í miðbæ Akureyrar. Sá staður er nýfluttur frá Skipagötunni og eigandinn ákvað að byrja með nýtt concept og það er alveg frábært (og jafnframt krefjandi) að fá að stjórna því. Það sem er líka brýnt hjá mér núna er að koma nýju síðunni minni upp ásamt einu gæluverkefni sem mér finnst einstaklega áhugavert og spennandi. Ég skráði einmitt lén fyrir það fyrr í kvöld, sem verður örugglega aðalefni næstu færslu.


Þriðjudagur 27. október 2009 kl. 00:19
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 265 færslur.

/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)