ritstjórinn

Það hafa sennilega allir rætt þetta, fram og til baka. Ég hafði varla geð í að punkta niður mína skoðun og í raun hef ég ekki verið viss í þessu máli, sem margir hafa öskrað í nokkra daga yfir.
Það er þetta með Davíð Oddson og Morgunblaðið.


Í fyrsta lagi er náttúrulega afleitt, afspyrnu glatað og í raun stórskaðlegt að manneskja sem er svona nátengd hruninu (stýrði Seðlabankanum í gjaldþrot) sé að ritstýra einu helsta dagblaði landsins. Alveg sama hvort hún heiti Geir Haarde eða Ingibjörg Sólrún, Jón Ásgeir, Björgvin G, nú eða Davíð Odsson. Það á að vera algjörlega óháð manneskja sem setur blaðamönnum verkefni dagsins og þess vegna við þessar fréttir má eiginlega segja Mogginn RIP. Búið að afskrifa hann fjárhagslega en nú endanlega.


Nú kaupi ég ekki moggann en les (las) hann stundum og þá setur maður upp moggagleraugun, alveg eins og með fréttablaðið. Maður veit og gengur út frá því að blaðið hafi vissa afstöðu, t.d. gagnvart ESB eða kvótakerfinu. Kannski hefur þetta eitthvað með fordóma að gera, sbr. síðustu færslu. En maður gerir ráð fyrir því að það sem maður les sé ekki heilagur sannleikur heldur alltaf skoðanir. Vissulega eru til staðreyndir, en hvernig sagt er frá þeim ber alltaf vitni um afstöðu.


En það eru nokkrir punktar sem mér finnst í raun ágætt, eitt er að þetta var gert fyrir opnum tjöldum (takk æðislega, maður er ekki of góðu vanur svo það er ágætt að nefna það) og að það má koma með aðra fleti í umræðuna um IMF, ESB og Icesave heldur en hafa verið ráðandi. Það verður að segja hlutina eins og þeir eru; IMF verður að fara, ESB er ekki að fara að gerast og Icesave mun ekki vera greitt. Heimurinn endar ekki þar.


Þessi kall veit líka fullt af hlutum sem verða að koma í dagsljósið og ég býst við því að næsta árið verði tileinkað smáskömmtum af óreiðumannasögum. Þessi Davíð vs Jón Ásgeir er þreytt lumma en gmg ef það væri bara hægt að klára þennan slag og losa þjóðina undan svona rugli. Þeim báðum.


En við þurfum pepp. "Yes we can" ræður. Ungmennafélagsanda en ekki þessa fjandans flokkstrú þar sem fólk er hætt að hugsa, heldur bara með liði. Við þurfum stefnu og sýn úr Hugmyndaráðuneytinu sem við getum stillt kompásinn eftir. Núna róir hver í sína átt eða viljandi í öfuga, og sumir meira en aðrir.


Það er svolítið scary að hrunameistari Íslands ætli að stýra peppinu.


Mánudagur 28. september 2009 kl. 00:01
Flokkað sem samfélag. Þar eru 67 færslur.

/ Álit

Arinbjörn Kúld:

Það fer umm mann nettur ótti þessi dægrin vegna þessa.
kveðja að norðan.

28.09.09 15:17


baddy:

ég hef nú ekki langt það í vana minn að lesa moggann, ekki nema glugga í hann á netinu en við Gunnar erum alvarlega að spá í að gerast áskrifendur! Nú koma loksins fréttir frá hinu sjónarhorninu. Allir vita að Jón Ásgeir og félagar ráða öllu hjá aðalkeppnisaðilanum og nú held ég að þeir séu hræddir. Jú það er bullandi spilling í þessu öllusaman en nú fara kannski hlutir að koma upp á yfirborðið.

29.09.09 12:00


Mundi:

þetta er magnað mál. Persónulega held ég að þetta sé upphafið af endi Morgunblaðsins. Héðan í frá mun það deyja í rólegheitum en á þónokkrum árum samt.


Ég er ekki hrifinn af Davíð eða hans gjörðum. En það verður ekki af honum tekið að hann er skarpgreindur og áróðursmeistari af bestu gerð. Hann átti frábæra innkomu í stjórnmál og farsælan feril framanaf bæði sem borgarstjóri og svo sem ráðherra. Á endanum skeit hann upp á bak. En Davíð er vandur að virðingu sinni og veit að sagan er skrifuð eftirá. Nú ætlar hann að koma sér í þá stöðu að geta stýrt blaðaskrifum í þá átt að smá saman þvoi hann hendur sínar af mistökum og misgjörðum sínum í hugum fólksins í landinu. Eftirmæli hans verði lofum hlaðin. Hann er semsagt að reyna að umrita söguna meðan hún er að gerast.

Annað hvort það - eða ég er bara orðinn snargeðveikur á þessu endalausu pólitísku umræðu allstaðar og er farinn að gera mér upp samsæriskenningar og farinn að sjá púka í hverju horni !!!!! :)

29.09.09 19:40


/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)