félagslegir fordómar og flokkapólitík

Það er að verða liðið ár frá hruninu. Ár síðan Ísland breyttist, að mörgu leyti til hins betra vil ég meina. Ekki það að fjárhagslega er landið algjörlega í steik og það eru vissulega margir í vandræðum.
En það er að verða liðið ár síðan við kvöddum fréttir af úrvalsvísitölu og tókum upp fréttir af fiskimiðum. Mér fannst þetta amk ótrúlega mikill léttir, en kannski er ég bara svona mikil ullarsokkapæja.
En þó að ár sé að verða liðið er erfitt að hefja hreinsunarstarf því stærsta vandamálið í okkar samfélagi í dag þvælist fyrir, sem er flokkapólitíkin og félagslegu fordómarnir sem hafa allaf fylgt henni.
Ein ágæt skilgreining á fordómum er það að dæma eina manneskju eftir hugmyndum sem maður sjálfur hefur um hóp sem maður heldur að viðkomandi tilheyri.


Það virðist nefnilega ekki vera hægt að gúddera neina hugmynd eða diskútera nokkuð án þess að því fylgi vandleg greining á því hvaða flokki viðkomandi tilheyrir, því þannig megi sjá hvurra erinda viðkomandi gengur. Maður er orðinn helsýrður af þessu kjaftæði sjálfur og á fullt í fangi með að lesa á milli línanna í fréttatímanum, hverjum eigi að treysta og af hverju þessi segir þetta en ekki hitt.
Ógeðslegt.
Samfélagsmál eru nefnilega mjög áhugaverð. Ég hef þá hugmynd að flestir vilji byggja gott og réttlátt samfélag. Pólitíkin er hins vegar búin að koma sér þannig fyrir að það er ekki hægt að skipta sér af samfélagsmálum nema tilheyra einhverjum flokki, einhverjum hópi, vera með einhvern svona stimpil á enninu.


Í vor eru sveitastjórnarkosningar. Getum við krafist þess að við fáum að kjósa fólk óháð flokkum?


Þriðjudagur 15. september 2009 kl. 12:34
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 264 færslur.

/ Álit

Dagný:

og ágætis framhaldslesning hérna:

http://ak72.blog.is/blog/ak72/entry/944417/

15.09.09 12:40


Valdís:

Þetta er með flottari skilgreiningum á fordómum sem ég hef heyrt.

15.09.09 17:05


Mundi:

það er mikið til í þessu og ég er þér hjartanlega sammála.

15.09.09 17:20


Guðrún Björk:

Þetta er eilíf barátta um völd: When the power of love will overcome the love of power the world will know peace.

23.09.09 19:35


/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)