ritstjórinn

Það hafa sennilega allir rætt þetta, fram og til baka. Ég hafði varla geð í að punkta niður mína skoðun og í raun hef ég ekki verið viss í þessu máli, sem margir hafa öskrað í nokkra daga yfir.
Það er þetta með Davíð Oddson og Morgunblaðið.


Í fyrsta lagi er náttúrulega afleitt, afspyrnu glatað og í raun stórskaðlegt að manneskja sem er svona nátengd hruninu (stýrði Seðlabankanum í gjaldþrot) sé að ritstýra einu helsta dagblaði landsins. Alveg sama hvort hún heiti Geir Haarde eða Ingibjörg Sólrún, Jón Ásgeir, Björgvin G, nú eða Davíð Odsson. Það á að vera algjörlega óháð manneskja sem setur blaðamönnum verkefni dagsins og þess vegna við þessar fréttir má eiginlega segja Mogginn RIP. Búið að afskrifa hann fjárhagslega en nú endanlega.


Nú kaupi ég ekki moggann en les (las) hann stundum og þá setur maður upp moggagleraugun, alveg eins og með fréttablaðið. Maður veit og gengur út frá því að blaðið hafi vissa afstöðu, t.d. gagnvart ESB eða kvótakerfinu. Kannski hefur þetta eitthvað með fordóma að gera, sbr. síðustu færslu. En maður gerir ráð fyrir því að það sem maður les sé ekki heilagur sannleikur heldur alltaf skoðanir. Vissulega eru til staðreyndir, en hvernig sagt er frá þeim ber alltaf vitni um afstöðu.


En það eru nokkrir punktar sem mér finnst í raun ágætt, eitt er að þetta var gert fyrir opnum tjöldum (takk æðislega, maður er ekki of góðu vanur svo það er ágætt að nefna það) og að það má koma með aðra fleti í umræðuna um IMF, ESB og Icesave heldur en hafa verið ráðandi. Það verður að segja hlutina eins og þeir eru; IMF verður að fara, ESB er ekki að fara að gerast og Icesave mun ekki vera greitt. Heimurinn endar ekki þar.


Þessi kall veit líka fullt af hlutum sem verða að koma í dagsljósið og ég býst við því að næsta árið verði tileinkað smáskömmtum af óreiðumannasögum. Þessi Davíð vs Jón Ásgeir er þreytt lumma en gmg ef það væri bara hægt að klára þennan slag og losa þjóðina undan svona rugli. Þeim báðum.


En við þurfum pepp. "Yes we can" ræður. Ungmennafélagsanda en ekki þessa fjandans flokkstrú þar sem fólk er hætt að hugsa, heldur bara með liði. Við þurfum stefnu og sýn úr Hugmyndaráðuneytinu sem við getum stillt kompásinn eftir. Núna róir hver í sína átt eða viljandi í öfuga, og sumir meira en aðrir.


Það er svolítið scary að hrunameistari Íslands ætli að stýra peppinu.

Mánudagur 28. september 2009 kl. 00:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 3

félagslegir fordómar og flokkapólitík

Það er að verða liðið ár frá hruninu. Ár síðan Ísland breyttist, að mörgu leyti til hins betra vil ég meina. Ekki það að fjárhagslega er landið algjörlega í steik og það eru vissulega margir í vandræðum.
En það er að verða liðið ár síðan við kvöddum fréttir af úrvalsvísitölu og tókum upp fréttir af fiskimiðum. Mér fannst þetta amk ótrúlega mikill léttir, en kannski er ég bara svona mikil ullarsokkapæja.
En þó að ár sé að verða liðið er erfitt að hefja hreinsunarstarf því stærsta vandamálið í okkar samfélagi í dag þvælist fyrir, sem er flokkapólitíkin og félagslegu fordómarnir sem hafa allaf fylgt henni.
Ein ágæt skilgreining á fordómum er það að dæma eina manneskju eftir hugmyndum sem maður sjálfur hefur um hóp sem maður heldur að viðkomandi tilheyri.


Það virðist nefnilega ekki vera hægt að gúddera neina hugmynd eða diskútera nokkuð án þess að því fylgi vandleg greining á því hvaða flokki viðkomandi tilheyrir, því þannig megi sjá hvurra erinda viðkomandi gengur. Maður er orðinn helsýrður af þessu kjaftæði sjálfur og á fullt í fangi með að lesa á milli línanna í fréttatímanum, hverjum eigi að treysta og af hverju þessi segir þetta en ekki hitt.
Ógeðslegt.
Samfélagsmál eru nefnilega mjög áhugaverð. Ég hef þá hugmynd að flestir vilji byggja gott og réttlátt samfélag. Pólitíkin er hins vegar búin að koma sér þannig fyrir að það er ekki hægt að skipta sér af samfélagsmálum nema tilheyra einhverjum flokki, einhverjum hópi, vera með einhvern svona stimpil á enninu.


Í vor eru sveitastjórnarkosningar. Getum við krafist þess að við fáum að kjósa fólk óháð flokkum?

Þriðjudagur 15. september 2009 kl. 12:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4