af kryddjurtunum er það helst að frétta..
Ég hefði betur hugsað aðeins meira um kryddjurtirnar mínar í glugganum, sem ég sáði í vor. Kórianderinn er búinn að vera slappur alveg ofboðslega lengi og ég hef nær ekkert getað nýtt hann síðan alveg snemma í vor. Ég skellti skuldinni eiginlega á það að hann þykir erfiður í ræktun og að ég væri bara ekki nógu flink, en svo sá ég í morgun að hann var hrikalega lúsugur, og þar sem hann var ekkert mjög fallegur (langur og vesældarlegur) ákvað ég að farga honum bara. Enginn kóriander á tortillurnar meir. En maður lærir. Jurtirnar virðast líka vera búnar í plöntusölunum svo kannski ég prófi að sá honum bara aftur, jafnvel þó það sé orðið svona áliðið á sumarið. En kannski virkar það ekki.
Basilikan er samt hress en ég ætla samt að þvo hana vel ef ske kynni að hún væri líka með lús. Á netinu komst ég að því að ein setur kaffikorg á moldina, bæði til að örva vöxt og til að halda lúsinni frá. Kannski maður ætti að hella uppá, verst að ég drekk ekki kaffi :)
Annað ráð sem ég fann var að útbúa brenninetluseyði en lýsingin er þannig að ég er ekki alveg að fara út í þetta:
"... er mælt með því að hella sjóðandi vatni á brenninetlu í hlutfallinu 1:10 (sumir segja 1 bolla af netlu í 4 lítra af vatni) og láta standa minnst 5 daga eða upp undir mánuð. Af leginum kemur megn fýla og þarf að hræra í daglega. Sýktu plönturnar eru síðan úðaðar með honum..."
En auðvitað vill maður nota eins náttúrulegar aðferðir og hægt er, ég ætla að byrja á því að skola með grænsápu og setja kaffikork á moldina og hver veit nema bragðið finnist í pestóinu, mokkapestó ;)
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur.

