pestó

Smá framhald frá síðustu færslu, ég ákvað að klippa basilikuna dálítið niður, en þó þannig að hún næði að stækka vel fljótlega aftur (þegar hún fær kaffibooztið), þannig að nú er ég með haug af basilikublöðum.. og reyndar enn meira í frystinum. Hvað er þá betra en að gera bara pestó ofaná brauð í hádeginu?
Pestó - pestó..

Föstudagur 10. júlí 2009 kl. 12:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 0

af kryddjurtunum er það helst að frétta..

Ég hefði betur hugsað aðeins meira um kryddjurtirnar mínar í glugganum, sem ég sáði í vor. Kórianderinn er búinn að vera slappur alveg ofboðslega lengi og ég hef nær ekkert getað nýtt hann síðan alveg snemma í vor. Ég skellti skuldinni eiginlega á það að hann þykir erfiður í ræktun og að ég væri bara ekki nógu flink, en svo sá ég í morgun að hann var hrikalega lúsugur, og þar sem hann var ekkert mjög fallegur (langur og vesældarlegur) ákvað ég að farga honum bara. Enginn kóriander á tortillurnar meir. En maður lærir. Jurtirnar virðast líka vera búnar í plöntusölunum svo kannski ég prófi að sá honum bara aftur, jafnvel þó það sé orðið svona áliðið á sumarið. En kannski virkar það ekki.
Basilikan er samt hress en ég ætla samt að þvo hana vel ef ske kynni að hún væri líka með lús. Á netinu komst ég að því að ein setur kaffikorg á moldina, bæði til að örva vöxt og til að halda lúsinni frá. Kannski maður ætti að hella uppá, verst að ég drekk ekki kaffi :)
Annað ráð sem ég fann var að útbúa brenninetluseyði en lýsingin er þannig að ég er ekki alveg að fara út í þetta:
"... er mælt með því að hella sjóðandi vatni á brenninetlu í hlutfallinu 1:10 (sumir segja 1 bolla af netlu í 4 lítra af vatni) og láta standa minnst 5 daga eða upp undir mánuð. Af leginum kemur megn fýla og þarf að hræra í daglega. Sýktu plönturnar eru síðan úðaðar með honum..."

En auðvitað vill maður nota eins náttúrulegar aðferðir og hægt er, ég ætla að byrja á því að skola með grænsápu og setja kaffikork á moldina og hver veit nema bragðið finnist í pestóinu, mokkapestó ;)

Föstudagur 10. júlí 2009 kl. 11:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 0

Landráðs-lasagne

Það er ein uppskrift af grænmetislasagne sem ég bara hreinlega elska og reyni að hafa í matinn allavega einusinni í mánuði. Hún er fengin úr Gestgjafatímariti frá 2005 og fylgir með grein um matarboð sem Jóhannes í Bónus hélt og bauð nokkrum góðum vinum sínum, t.d. Björgólfi Guðmunds og Tryggva Jóns. Einstaklega hugguleg kvöldstund hjá þeim félögum þar sem þeir ræða um "gróða en ekki græðgi".
Sumir kannski missa matarlystina við að heyra þetta en örvæntið ei, lasagne-aið er þrátt fyrir allt dúndurgott!


(uppskriftin er alveg tvö föt þannig að það er fínt að helminga eða frysta annan skammtinn)
2-3 rauðlaukar
1 hvítlaukur
3 paprikur (gul, rauð, græn)
2 kúrbítar (ég reyndar hef bara einn)
200g sveppir
4 gulrætur
1 vænt spergilkálshöfuð
2 stórar dósir niðursoðnir tómatar
1 dós tómatmauk
pipar
origano & basil eftir smekk

500g kotasæla
lasagne plötur
rifinn ostur (mozzarella, gouda) og jafnvel rjómaostur

Allt grænmeti skorið niður og sett í pott, kynt undir og tómaturinn settur í og látið malla við lágan hita í uþb 30 min. Hræra af og til. Kotasælan sett út í og blandað vel saman. Látið malla í 20-30min í viðbót.
Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu, smá sósu í botninn og svo lasagne plötur, til skiptis þar til mótið er fullt (ekki of fullt samt)
Eldað í 30 min við 180°c . Borið fram með góðu salati og grilluðu brauði.

Fimmtudagur 02. júlí 2009 kl. 21:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur / 1