icesave brjálæðið

Ég er brjáluð!
Ég á tvo unga drengi sem ég hamast við að ala rétt og fallega upp. Ég er Íslendingur í húð og hár og veit hvað fólk hefur þurft að genga í gegnum á Íslandi síðustu aldir. Amma mín sagði mér oft sögur af því m.a. þegar hún vaknaði í rúminu sínu með hárið frosið við vegginn í moldarkofanum, hvað myrkrið var stundum óbærilegt. Íslensk alþýða hefur drýgt hetjudáðir í gengum aldirnar og maður getur nánast sturlast yfir því hvað síðustu tvær, þrjár kynslóðir hafa rústað því sem þær hafa fengið í hendurnar.
Þetta er hin versta martröð.
Að setja ríkisábyrgð á Icesave innistæðurnar, þegar óvissan er ALGJÖR, er algjört brjálæði, föðurlandssvik, landráð - það er varla nógu sterkt orð.
Við erum að díla við þjóðir sem hafa reynslu í gegnum margar kynslóðir af því að kúga smáþjóðir, kreista allt sem þeir mögulega geta úr sínum nýlendum fyrir fólkið í sínu landi.
Auðvitað finn ég samt sem áður til með þeim einstaklingum sem áttu þessar innistæður, þetta var í mörgum tilvikum sparifé og það fólk var gabbað alveg jafn mikið og við hin.

En það sem er mikilvægast er að þetta var EINKAFYRIRTÆKI og samkvæmt íslenskum lögum er tryggingasjóður innistæðna EKKI MEÐ RÍKISÁBYRGÐ.


Ábyrgðin á fyrst og fremst að falla á eigendur bankans.

Frekar væri ég til í að ganga í gegnum nokkur ár með börnunum mínum í stífum gjaldeyrishöftum þar sem eingöngu lyf, olía og einstaka matvörur eru fluttar inn, fá mér kú og hænur og harka þetta af, heldur en að þurfa að borga af þessu í viðbót við allt annað. Þetta er ógjörningur!


Ég er með svo mikinn stein í maganum yfir gunguskap íslenskra ráðamanna, brjálæði fjárglæframanna og andvaraleysi fjölmiðlamanna að ég veit ekki hvað ég á til bragðs að taka.
En það minnsta sem ég get gert er að senda bréf. Til allra þingmanna. Ég fékk forskriftina senda í pósti og hvet þig til að lesa það, kópera, skrifa nafn þitt undir og senda á netfangalistann. Fyrirsögnina geturðu valið sjálf/ur.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Kæri þingmaður


Nú er loks að skýrast hvað IceSave samningurinn raunverulega geymir.


Fullkominn rétt Hollendinga (Breta líka?) til að hirða allar eignir Íslenska ríkisins ef við getum ekki borgað. Þar með talið orkuna, fiskinn, landnæði og hugsanlega olíu. Og sökum næsta liðs verður engin raunhæf leið fyrir okkur að véfengja neinar kröfur þeirra. (1)


Fullkomið afsal Íslendinga á því að sækja ágreining eða skort á greiðslugetu á alþjóðagrundvelli. Hugsanleg mál væru rekin sem einkamál fyrir breskum dómstólum. Þar sem breskir lögfræðingar myndu takast á um samning sem skrifaður er af breskum lögfræðingum á ensku. (2)


Enginn spunaleikur getur breytt því sem stendur í samningnum. (3)


Þau efnisatriði samningsins sem þegar eru komin í ljós sýna það skýrt að þeir sem samþykkja þennan samning eru að samþykkja landráð. (4)


Að láta sér detta í hug að taka þann séns að eignir Landsbankans verði einhvers virði eftir 7 ár og þann séns að krónan verði einhvers virði eftir 7 ár er ótrúleg heimska (bjartsýni ef kurteisi væri viðeigandi á þessari ögurstundu) og fullkomin vanvirðing á því trausti sem þér er sýnt með því að vera kosinn sem þingmaður á Alþingi Íslendinga.


Ég bið þig innilega, sem Íslendingur að samþykkja ekki þennan Afsalasamning heldur neita honum alfarið. Og krefjast þess í leiðinni að IceSave verði útkljáð fyrir alþjóðlegum dómstól eða á annan sambærilegan hátt sem er eðlilegur í samskiptum tveggja sjálfstæðra ríkja.


Ég þakka þér fyrir að hafa lesið þetta og treysti því að þú munir hafa framtíð Íslands sem sjálfstæðs ríkis í huga þegar atkvæðagreiðsla um IceSave samninginn fer fram.


Dagný Reykjalín,
Daníel Skíði Reykjalín Ólafsson, 5 ára
Emil Ragnar Reykjalín Ólafsson, 9 mánaða


Heimildir:

1) og 2) er erfitt að vísa beint í heimildir þar sem samningurinn sem mun stjórna framtíð allra Íslendinga um ókomin ár er leyndarmál! Og miðað við http://thorsaari.blog.is/blog/thorsaari/entry/898381/ þá er sú leynd ekki tilkomin vegna kröfu Hollendinga (og þar með varla Breta) heldur tilraun íslenskra stjórnvalda til að fela raunveruleikann fyrir bæði Íslendingum og Alþingi.


1) Get ekki vísað beint í samningstextann þar sem hann er leyndarmál en
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item285804/
“Í sextánda lið samningsins segir enn fremur að standi Íslendingar ekki við hann, til dæmis ef misferst að greiða af láninu, geti Hollendingar gengið að eigum íslenska ríkisins, þó að því marki sem stjórnarskrá leyfir. Engir fyrirvarar virðast vera á því hvaða eigna Hollendingar geti krafist. Lögfræðingar sem fréttastofa hefur borið samninginn undir telja þetta einkennilegt. Þá telja þeir að samþykki Alþingi samninginn geti það leitt til þess að það þurfi síðar meir að greiða fyrir því að Hollendingar geti gengið að þessum eigum, t.d. með lagasetningu. Þetta finnst þeim tæpast eðlilegt í samskiptum þjóða.


Gera má ráð fyrir að samningur Íslands og Breta vegna Icesave reikninganna sé í aðalatriðum eins og sá sem gerður var við Hollendinga.”


Einnig:
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/icesave-hollendingar-geti-gengid-ad-eignum-islenska-rikisins
http://eyjan.is/blog/2009/06/17/hugsanlegur-agreiningur-um-icesave-samningana-verdur-lagdur-fyrir-breska-domstola/

http://eyjan.is/silfuregils/2009/06/16/spurningar-vegna-icesave/#comments


2) “16.3. Waiver of Sovereign Immunity


Each of the Guarantee Fund and Iceland consents generally to the issue of any process in connection with Dispute and to the giving of any type of relief or remedy against it, including the making, enforcement or execution against any of its property or assets (regardless of its or their use or intended use) of any order or judgment. If either the Guarantee Fund or Iceland or any of their respective property or assets is or are entitled in any jurisdiction to any immunity from service of process or of other documents relating to any Dispute, or to any immunity from jurisdiction, suit, judgment, execution, attachment (whether before judgment, in aid of execution or otherwise) or other legal process, this is irrevocably waived to the fullest extent permitted by the law of that jurisdiction. Each of the Guarantee Fund and Iceland also irrevocably agree not to claim any such immunity for themselves or their respective property or assets.”


Tekið af http://robertvidar.blog.is/blog/robertvidar/entry/898566/ sem tók skjámynd af fréttum RÚV sem ekki sér sóma sinn í því að birta samninginn, allavega ekki þegar þetta er skrifað.


Einnig:
http://pressan.is/Frettir/LesaFrett/icesave-samningurinn-sagdur-kludur-fullur-af-gildrum-breskra-logspekinga
http://eyjan.is/silfuregils/2009/06/16/spurningar-vegna-icesave/#comments


3) Spunatilraun til að réttlæta IceSave samninginn
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item285798/ – Takið eftir að hér er talað um óvissu með eignasafn Landsbankans en ekkert! rætt um hver gengisþróun íslensku krónunnar verður. Ég minni á að upphæðin hækkaði um 72 milljarða króna á tíu dögum frá því samningurinn var undirritaður! Hver ætli staðan sé í dag? En á morgun?


4) Almenn hegningarlög
X. kafli. Landráð.
86. gr. Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ofbeldi, hótun um ofbeldi, annarri nauðung eða svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.
http://www.althingi.is/dba-bin/unds.pl?txti=/wwwtext/html/lagasofn/136b/1940019.html&leito=almenn#g86


5) Almennt ítarefni
http://thorsaari.blog.is/blog/thorsaari/entry/898381/
http://birgitta.blog.is/blog/birgitta/entry/898211/
http://www.cepr.org/pubs/PolicyInsights/PolicyInsight26.pdf

Netföng þingmanna:
atlig@althingi.is, alfheiduri@althingi.is, arnipall@althingi.is, arnij@althingi.is, arnithor@althingi.is, asbjorno@althingi.is, asmundurd@althingi.is, arj@althingi.is, birgir@althingi.is, birgittaj@althingi.is, birkir@althingi.is, bjarniben@althingi.is, bgs@althingi.is, bjorngi@althingi.is, einarg@althingi.is, eygloha@althingi.is, gudbjarturh@althingi.is, glg@althingi.is, gudlaugurthor@althingi.is, gudmundurst@althingi.is, gunnarbragi@althingi.is, , helgih@althingi.is, hoskuldurth@althingi.is, illugig@althingi.is, johanna@althingi.is, jb@althingi.is, jong@althingi.is, jrg@althingi.is, katrinja@althingi.is, katrinj@althingi.is, kristjanj@althingi.is, klm@althingi.is, lrm@althingi.is, liljam@althingi.is, magnusorri@althingi.is, margrett@althingi.is, oddnyh@althingi.is, olinath@althingi.is, olofn@althingi.is, petur@althingi.is, ragna.arnadottir@dkm.stjr.is, rea@althingi.is, ragnheidurr@althingi.is, marshall@althingi.is, sdg@althingi.is, ser@althingi.is, sii@althingi.is, sij@althingi.is, siv@althingi.is, skulih@althingi.is, sjs@althingi.is, svo@althingi.is, svandiss@althingi.is, tryggvih@althingi.is, ubk@althingi.is, vbj@althingi.is, vigdish@althingi.is, thkg@althingi.is, thorsaari@althingi.is, tsv@althingi.is, thrainnb@althingi.is, thback@althingi.is,
ogmundur@althingi.is, ossur@althingi.is

Fimmtudagur 18. júní 2009 kl. 11:54
Flokkað sem samfélag. Þar eru 65 færslur.

/ Álit

Dagný:

18.06.09 22:37


/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)