Hvað hefur gerst síðan ég bloggaði síðast ?
Fyrir utan síðustu færslu þá bloggaði ég síðast í mars. Það eru að verða 3 mánuðir síðan. Ársfjórðungur. Þriðjungur úr ævi yngri sonar míns. Já, hugsið ykkur, síðast þegar þið heyrðuð frá mér var hann liggjandi ósjálfbjarga hvítvoðungur. Brjóstmylkingur. Núna hefur hann útsýni yfir heiminn og hámar í sig lifrarpylsu, sætar kartöflur og mangó; ávexti sem þekktust ekki á norðurhveli jarðar fyrir nokkrum árum. Svona er hann fordekraður.
Síðan síðast hef ég stofnað mitt eigið firma, ráðið bókara og fengið nokkur verkefni til að dunda við og sent minn skerf í ríkissjóð. Þá botnlausu hýt. Ef þetta væri í fyrra væri ég sennilega búin að bóka viðskiptavildina og taka út fyrirframgreiddan arð, en nú er öldin önnur. Nú er mottóið að búa til verðmæti og skapa störf, fá góðar hugmyndir og útfæra þær, hugsa jákvætt, halda höfðinu hátt og brosa breitt. En helst af öllu hala inn erlendan gjaldeyri.
En í rauninni er þetta bara stök snilld; með stórt skrifborð, makkann, stóra bókahillu, barnið úti í vagni beint fyrir neðan gluggann og barnapíuna í gangi sem vaktar hverja stunu. Og ég sit við lítinn glugga og horfi beint upp í Hlíðarfjall og inn Glerárdalinn.
Svolítið eins og Carrie í SATS, nema að hún horfði út á götu á Manhattan, en annars alveg eins.
Það sem ég hef verið að baksa við eru merkingar á nokkrar plastumbúðir, bæklingur og merki ásamt nokkrum vefsíðum. Um daginn skráði ég líka daia.is og þegar mér gefst tími til verður því snúið yfir á okkar ástsæla tungumál.
Það er því nóg að gera hérna á efri hæðinni, alveg þangað til litli labbakútur fer að naga loftnetið á barnapíutækinu og iCal segir mér að nú sé tími til að hossast á fætur og hreyfa lappirnar í átt að leikskólanum.
En svo er það líka málið að góðu hugmyndirnar og framkvæmdagleðin vilja oftast komast í gang á kvöldin, helst eftir klukkan tíu.

Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.
/ Álit
Solla:
Þú ert dugleg kona! :)
Mundi:
bara nýtt kompaní og alles. frábært. þetta mun blómstra hjá þér. það er nefnilega eftirspurn eftir fólkið eins og þér. til hamingju með allt.
guggi:
magnað. til hamingju. greinilega allt að gerast ;)
hljómar allt mjög vel systir og muna bara að hafa litla hugmyndabók á náttborðinu til að geta skrifað þær jafnóðan niður. Mínar hugmyndir eru gjarnar á að koma þegar ég er í sturtu þannig að ég þarf að fá mér vatnshelda minnisbók:) hlakka til að sjá ykkur eftir helgi - við getum kannski verið með einhverja grill-gleði á LasHaugas í vikunni:), jafnvel skroppið í blómaleiðangur við núverandi og verðandi mæður:)

