áríðandi skilaboð

Ég er búin að vera gríðarlega pirruð í dag og mér finnst agalegt að vera pirruð á einhverju sem ég hef ekki stjórn á sjálf. Maður kemst nánast í andnauð yfir svoleiðis pirringi.
Pirringurinn er ekki bara út af þessu fjalli sem okkur Íslendingum mun reynast ógerlegt að klífa, heldur út af moðhausunum sem rífast út af tittlingaskít, bara til að koma smá höggi á "andstæðinga sína" í öðrum flokkum.


Skilaboð til ykkar, fávitar:
Mér er svo algjörlega DURRUUUULLLUSAMA í hvaða helvítis flokki þið eruð kæru þingmenn, hundskist til að taka höndum saman, leggjast saman á árarnar, allir sem einn, og fokkings RÓA fyrir framtíð þessarar þjóðar!


There. I said it.
Nú get ég farið að vinna aftur.


Fimmtudagur 18. júní 2009 kl. 22:42
Flokkað sem samfélag. Þar eru 65 færslur.

/ Álit

Jonni:

Já Dagný, láttu þessa froðuhausa heyra það!! :)

19.06.09 09:55


Guðrún Björk:

Já og hananú!!!

08.07.09 16:43


/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)