Lopafrík

lopafrik.jpg

Um daginn bauðst mamma hans Óla til að prjóna á mig lopavesti. Dásamlegt boð en þegar ég fór að skoða litina í léttlopanum fékk ég snert af valkvíða. Þetta eru rosalega flottir litir, allir auðvitað svolítið "skítugir" og ótrúleg flottir tónar. Þá fékk ég hugmynd, af hverju ekki að útbúa forrit þar sem maður getur sett inn litatónana í mismunandi peysumynstur og séð hvernig þetta kemur út.
Og þá fæddist lopafríkin.
Hún er komin í loftið en er ennþá í vinnslu, svo hún gæti og mun auðvitað breytast eitthvað. Til þess að gera hana betri er nauðsynlegt að fá komment frá þeim sem villast þangað inn og prófa.


"Frík" er ekki endilega neikvætt orð, lýsir einhverjum sem hefur óseðjandi áhuga á einhverju, svolítið í ætt við "nörd" kannski. Sem dæmi er "heilsufrík" ekkert sérstaklega neikvætt, í mínum eyrum amk.


Þetta er semsagt forrit gert í flash. Ég hef alltaf hatað flash og fór í tveggja ára nám til að reyna að sættast við það og verða eitthvað góð í því. Það tókst ekki en þetta er hins vegar búið að vera mikið stuð og svei mér þá ef ég hef ekki bara lært eitthvað.
Nú er bara að halda áfram, bæta við pre-loader og fleiri mynstrum, setja inn hina lopalitina og tengja mynstrin við réttar lopategundir og setja jafnvel prjónáferð á peysurnar. Hugsanlega seiðandi bakgrunnstóna.
Ístex og Védís sem eiga textílhönnunina eru búnir að leggja blessun sína yfir þetta, en það væri gaman að heyra frá fleirum með ábendingar. Til dæmis hvort þetta geti verið nytsamlegt svona yfirleitt.


Laugardagur 07. mars 2009 kl. 22:13
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.

/ Álit

Svanhildur:

Þetta er alveg frábært hjá þér, ekkert smá sniðugt!

08.03.09 10:24


:

Þetta er ekkert smá fínt. :) Hlakka til að sjá strákapeysurnar. :P

08.03.09 18:01


Mundi:

þetta er snilld hjá þér

08.03.09 22:13


Harpa:

Þú ert snillingur!! Ég er nú þegar farin að vísa prjónasjúklingum á bloggið þitt og stend sjálf í ströngu við að velja liti á mitt eigið prjónavesti. MJÖG SNIÐUGT!!

10.03.09 09:01


Harpa:

hmm.. kommentið mitt skilaði sér ekki en það var einhvern veginn svona:

þú ert snillingur - er búin að koma þessu á framfæri til nokkurra "prjónasjúklinga" sem ég þekki.

En svo ætlaði ég að bæta við að valkvíðinn minn versnaði eiginelga við þetta.. haha.. ég sit og skipti og skipti um liti..

10.03.09 09:18


baddy systir:

þetta er tær snilld. Stelpunumí vinnunni finnst þetta líka frábært - þær eru svo miklar prjónakonur hérna:) það er greinilegt að brjóstaþokan er ekki að hrjá hugmyndagleðina hjá þér:)

10.03.09 16:50