grænir fingur
Það er gaman að segja frá því að eftir færsluna um jarðaberjasjálfsupptökugarðinn þá gripu bændurnir í húsdýragarðinum í Hléskógum hugmyndina um sjálfsupptöku- kartöflugarðinn á lofti og ætla að setja niður kartöflur. Þannig geta foreldrar, ömmur og afar tekið upp í haust, svona á meðan börnin sprikla um í sveitinni á meðal húsdýranna.
Það var líka gaman að það skyldi vera svona mikil ásókn í matjurtagarðana hjá Akureyrarbæ. Ég ætla að setja niður hjá ma+pa á nesinu, var að spá jafnvel að setja niður sætar kartöflur líka :)
Ég er búin að sá basiliku (og nóg af henni, gott að nota í pestó), myntu og kóriander. Mér skilst að það sé svolítið erfitt að rækta kóriander en ég nota það svo oft að mér fannst þess virði að prófa það. Eins ætla ég að gera tilraun með að gera avocado tré, en það er víst frekar ólíklegt að svona tré beri ávöxt. Það þarf víst fleira til.
Ég er alveg komin inn á þessa línu með að við þurfum að rækta eins mikið sjálf og við getum. Fyrir einu og hálfu ári síðan horfðum við á heimildarmyndina "End of Suburbia" sem fjallar um áhrif aukinnar eftirspurnar og minnkandi framboðs á eldsneyti og kolefnisorkugjöfum á daglega lífið í úthverfinu. Þó það sé lógískt að rækta á þeim stað þar sem skilyrðin og þekkingin eru best, þá gengur það ekki mjög lengi að flytja allar vörur fram og til baka heimshorna á milli. Svarið sem kemur fram í myndinni er að gera eins mikið "local" og maður mögulega getur. Þessvegna held ég að kreppan, eins illa og hún er að fara með marga, sé gott wake-up-call með að við aukum íslenska framleiðslu á öllum sviðum.
Flokkað sem heimilið. Þar eru 62 færslur.
/ Álit
Gunna:
Ef þú finnur töfralausnina í kóriander ræktuninni máttu láta mig vita, ég væri mikið til í að hafa slíkt lostæti mér innan handar.
Sá einhverstaðar mini-gróðurhús sem maður stakk í samband – hvort það hafi verið í Kokku á Laugaveginum? Man bara engan vegin hvað var í því, en minnir að það hafi verið kryddjurtir. Kostaði auðvitað mörg mörg þúsund. Ég er farin að gúggla ... :)
Sjálfsþurftarbúskaupurinn er málið.
Guðný tengdamömmusystir:
Þetta eru mjög skemmtilegar pælingar. Ég get ekki beðið eftir að snjóa leysi í vor svo ég geti byrjar að vinna í "kökkenhaven" mínum sem á að vera aftan við bílskúrinn. Er búin að teikna hann upp, Óttar smiður ætlar að hjálpa mér að ramma inn beðin og ég er strax farin að finna bragðið af jarðarberjunum....namm.... :0)
Spennandi að prófa að rækta sætar kartöflur!
til hamingju með daginn systir kær.
Hvar ertu að bralla svona mikið þessa dagana systir góð? Hefuru engan tíma fyrir blogg?

