kalt, tími fyrir súpu!
Djö er kalt. Það verður ekkert ungbarnasund í dag vegna kulda, þó svo að innilaugin verði heit þá er loftið svo fljótt að kólna. Emil var annars að fíla sig alveg rosalega vel í sundinu í fyrstu tímunum, þeas fyrir hlaupabóluna. Svo missti hann af 3 tímum og í síðasta tíma var hann eitthvað úrillur og móðgaðist þegar mamman hans stakk honum í kaf. En í dag er semsagt frí.
Þegar er svona kalt er alveg dásamlegt að gera sér góða súpu. Þessa súpu gerði danska vinkona mín, mamma hans Bastian besta vinar Danna, þegar við fórum í bústað síðasta vetur og hefur eiginlega verið í uppáhaldi síðan.
Tyrknesk sveitasúpa / Tyrkisk landsuppe / Şehriye Çorbası
2 litlir laukar
3 hvítlauksrif
3 msk smjörlíki/smjör
250 g hakk
1 glas niðurskornir sveppir
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 tsk salt
2 tsk paprika
125 g smáar semuljenúðlur eða makkarónur
1 1/2 l heitt vatn
1/2 stk paprika, rauð eða græn
1 búnt steinselja
tandoori masala krydd
kjötkraftur
Lýsing:
1: Saxið lauk og mýkið í smjörlíkinu. Þegar hann er orðinn gylltur er kjötið sett í og steikt
2: sveppirnir skornir niður og settir út í ásamt tómatnum (geymið safann). Allt brúnað vel saman og kryddað
3: vökvinn af tómötunum settur saman við og látið malla í 10-15 min
4: núðlurnar settar samanvið ásamt soðnu vatni og paprikan, sjóðið skv tíma á núðlupakka
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur.

