Af hverju blogga þau ekki bara?

Ég heyrði í hádeginu í gær þegar Jóhannu forsætis og Steingrímur fjármála voru með blaðamannafund, þau sögðu að núna ætluðu þau að halda vikulega blaðamannafundi, til þess að halda almenningi upplýstum um það sem þau eru að gera. Gott og vel.
En af hverju blogga þau ekki bara? www.rikisstjornin.is er laust, það er hægt að setja upp ókeypis bloggkerfi og gera marga usera þannig að maður getur séð: "posted by Jóhanna forsætis", og svo geta allir kommentað til hennar og komið með sínar lausnir, beint í æð.
Öll þjóðin er búin að blogga eins og brjáluð síðustu vikur og það skilaði sér (ásamt öðru) í byltingu! Takið upp þráðinn gott fólk.
Svo töluðu þau um mannaflsfrekar framkvæmdir.. ætli blaðamannafundir séu kannski hluti af því? ;)
Væri þá ekki betra að senda blaðamennina í rannsóknarblaðamennsku í staðinn fyrir að senda þá á blaðamannafundi þó svo það sé jú mannaflsfrekt. Eða það er sennilega betur borgað fyrir að sendast um allan bæ en að sitja saman og hugsa.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.
/ Álit
Ég held að stjórnmál og réttlæti ættu að eiga sér stað á opinberum vettvangi fyrir allra augum. Því meir sem ber á þeim, því betra fyrir þau.
Bloggið er ókeypis, gagnvirkt, nýtt og vinsælt. Já, þau ættu að gera það. En vikulegur blaðamannafundur er gamaldags, traust form upplýsingaveitu. Þau upplýsa, við bloggum, og þannig eiga samskipti sér stað.
Mér finnst að rannsóknarblaðamennskan þurfi að eiga sér sjálfstæða tilveru við hliðina á þessu öllu.
Rétt er það, að blaðamannafundur er traustari og formlegri samskipti en það sem maður les á netinu. Kannski gætu þau blandað þessu eitthvað saman. Hins vegar held ég að vikulegir blaðamannafundir gætu orðið endalausar frásagnir af því sama.. nema þau ætli sér að vera þeim mun duglegri, sem ég vona auðvitað.
Takk fyrir innlitið
Þau eru nú með www.island.is og setja helling þar inn.
Annars ættu þau bara vera með facebook ;) ... jóhanna gæti sett í status: "var að rústa nýju lögunum", svo geta allir commentað á það hehe

