á akurinn
Þegar ég var í Árósum var ég með opin augun fyrir allskonar hugmyndum sem ég gæti flutt til Íslands, ein af þeim er hérna.
Eitt sinn fórum við Danni með Agnete og Bastian til jarðaberjabónda sem hleypti fólki inn á akurinn sinn, þ.e.a.s leyfði fólki að tína jarðaber í dollurnar sínar (sem voru vigtaðar fyrir tínslu og það skráð) og borgaði svo eftir vigt. Við fórum með tvær dollur og voru snögg að tína í þær, 4kg og borguðum 80dkk fyrir það (20dkk per kíló).

Það er kannski ekki alveg jafn góð jarðaberjaspretta hérna á Íslandi eins og í Danmörku þar sem það er ekki nógu mikil sól hérna í nógu langan tíma (reyndar drukknaði jarðaberjauppskeran í Danmörku í fyrrasumar vegna rigningar!).
Samt eru íslensk jarðaber algjört lostæti. Ég er búin að ákveða að vera með stórt jarðaberjabeð í garðinum mínum þegar ég verð stór.
En er þá ekki hægt að færa þetta yfir á eitthvað annað fyrir Ísland. Hvað með kartöflugarð? Við áttum alltaf kartöflugarð hérna einusinni og mér fannst það alveg misskemmtilegt að fara þangað, en hefði í dag ekki viljað missa það úr.
Ég væri alveg til í að geta farið laugardagsrúnt með strákana í sumar að einhverjum bóndabæ og geta tekið upp kartöflur sjálf, borgað t.d. 50-100kr fyrir kílóið (kostar núna ca 129kr í búð en þá með allskonar álagningu). Bæði er það jákvætt að geta fengið ódýran mat og nóg af honum en líka að búa til öðruvísi samverustund með fjölskyldunni og kenna börnunum hvaðan maturinn kemur.
Skora á einhvern bónda sem á tún sem er ekki í notkun að setja niður kartöflur þar, svo skal ég búa til auglýsingar handa honum þannig að hann þarf ekki að hafa neitt fyrir því að taka upp sjálfur ;)
Flokkað sem hugmyndir. Þar eru 7 færslur.
/ Álit
Gæti helst trúað að svoleiðis bóndi gæti jafnvel fengið hærra kílóverð fyrir kartöflurnar sínar heldur en ef þær væru seldar gegnum matvöruverslanir, en verð til neytenda gæti verið lægra en í búðum, enda búið að skera af flutningskostnað og álagningu verslunar.
Mér finnst einmitt æðislegt að kíkja á sumrin á grænmetismarkaðinn í Mosfellssveit, ef ég er á svæðinu. Þar er grænmetið selt spriklandi ferskt og tiltölulega ódýrt.
mamma:
Ef þig langar að setja niður kartöflur þá er nægilegt pláss í kartöflugarðinum á Hauganesi, Það var ekki nema helmingurinn notaður í fyrra, svo máttu líka hjálpa mér að stækka jarðaberjabeðið. Annars er hugmyndin góð. :)
Takk fyrir innlitið :)
Já ég hef farið á grænmetismarkaðinn í Mosfellssveit, dálítið langt síðan reyndar, en það var æði! Þar keyrðum við líka framhjá kartöflugarðalandi, mjög skemmtilegt, með litlum áhalda/nestiskofum. :)
Takk, mamma, ég tek þig á orðinu og verð mætt í stígvélunum þegar garðvinnan hefst.
Varðandi þessa hugmynd þá þyrfti ég að viðra hana við Birnu og co í Hléskógum, þetta passar örugglega fínt með öllu hinu sem þau bjóða uppá.
sædís:
frábær hugmynd Dagný, pottþétt markaður fyrir sjálfsafgreiðslu-kartöfflugarð.
ég myndi allavega nýta mér svoleiðis
strawberrys :) summer- where are you???!!!
oh - i wish ;)
já systir kær ég og Freyja vorum einar af þeim sem voru með kartöflugarð í mosfellsdalnum, það var stemmning en uppskeran kannski ekki alveg sú besta:) En já pabbi er enn á fullu með kartöflugarð heima á nesi- ég hef nú hjálpað honum við að taka upp kartöflur þar nokkrum sinnum og í sumar stungum við gréta upp matjurtarbeðið í garðinum hjá henni og skelltum niður nokkrum böllum og grænmeti - alveg dásamlegt, já og gunnar smíðaði jarðaberjakassa handa okkur og fengum við síðan plöntur hjá múttu:) algjör snilld - mér finnst alveg möst að vera með garð:) En ég heyrði hjá fróðri konu að ekki væri gott að hafa jarðaber og kartöflur í beði hlið við hlið - það er víst einhver rígur þarna á milli því jarðaberjunum líkar ekkert við kart"böllurnar":)
----
Annars þá man ég alveg eftir ferðunum í kartöflugarðinn í mývó. Það eru sælar minningar þaðan en einnig læðast inn minningar um hvað þetta var nú ekki alveg það skemmtilegasta sem við gerðum þá hehehehe:) en góðu minningarnar lifa:)

