búvörumarkaður og matjurtagarðar

Verð að pósta hérna skemmtilegri umræðu um búvörumarkað, og svo var ansi hreint skemmtileg frétt um matjurtagarða sem Akureyrarbær ætlar að setja upp í vor. Myndi panta mér pláss ef ég væri ekki með frátekið á bökkunum á Nesinu ;)

Er ökologiska / lífræna byltingin er loksins að koma til landsins? Fyrir nokkrum árum var það að velja lífrænt talið annaðhvort eitthvað dýrt snobb eða sérviska í meira lagi. En vonandi fer það að lagast, lífrænt er nefnilega málið. Back to the basics.

Laugardagur 14. febrúar 2009 kl. 00:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / matur / 1

góð grein

Þessa grein: Tími stórra breytinga « hjalli.com - Hjálmar Gíslason ætla ég að lesa núna á eftir þegar ég hef nægan tíma.. þú líka.

Mánudagur 09. febrúar 2009 kl. 11:15 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 0

Af hverju blogga þau ekki bara?

stjorn.jpg

Ég heyrði í hádeginu í gær þegar Jóhannu forsætis og Steingrímur fjármála voru með blaðamannafund, þau sögðu að núna ætluðu þau að halda vikulega blaðamannafundi, til þess að halda almenningi upplýstum um það sem þau eru að gera. Gott og vel.
En af hverju blogga þau ekki bara? www.rikisstjornin.is er laust, það er hægt að setja upp ókeypis bloggkerfi og gera marga usera þannig að maður getur séð: "posted by Jóhanna forsætis", og svo geta allir kommentað til hennar og komið með sínar lausnir, beint í æð.
Öll þjóðin er búin að blogga eins og brjáluð síðustu vikur og það skilaði sér (ásamt öðru) í byltingu! Takið upp þráðinn gott fólk.


Svo töluðu þau um mannaflsfrekar framkvæmdir.. ætli blaðamannafundir séu kannski hluti af því? ;)
Væri þá ekki betra að senda blaðamennina í rannsóknarblaðamennsku í staðinn fyrir að senda þá á blaðamannafundi þó svo það sé jú mannaflsfrekt. Eða það er sennilega betur borgað fyrir að sendast um allan bæ en að sitja saman og hugsa.

Miðvikudagur 04. febrúar 2009 kl. 10:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 3

á akurinn

Þegar ég var í Árósum var ég með opin augun fyrir allskonar hugmyndum sem ég gæti flutt til Íslands, ein af þeim er hérna.

Eitt sinn fórum við Danni með Agnete og Bastian til jarðaberjabónda sem hleypti fólki inn á akurinn sinn, þ.e.a.s leyfði fólki að tína jarðaber í dollurnar sínar (sem voru vigtaðar fyrir tínslu og það skráð) og borgaði svo eftir vigt. Við fórum með tvær dollur og voru snögg að tína í þær, 4kg og borguðum 80dkk fyrir það (20dkk per kíló).

jardaberjaakur.jpg


Það er kannski ekki alveg jafn góð jarðaberjaspretta hérna á Íslandi eins og í Danmörku þar sem það er ekki nógu mikil sól hérna í nógu langan tíma (reyndar drukknaði jarðaberjauppskeran í Danmörku í fyrrasumar vegna rigningar!).
Samt eru íslensk jarðaber algjört lostæti. Ég er búin að ákveða að vera með stórt jarðaberjabeð í garðinum mínum þegar ég verð stór.


En er þá ekki hægt að færa þetta yfir á eitthvað annað fyrir Ísland. Hvað með kartöflugarð? Við áttum alltaf kartöflugarð hérna einusinni og mér fannst það alveg misskemmtilegt að fara þangað, en hefði í dag ekki viljað missa það úr.
Ég væri alveg til í að geta farið laugardagsrúnt með strákana í sumar að einhverjum bóndabæ og geta tekið upp kartöflur sjálf, borgað t.d. 50-100kr fyrir kílóið (kostar núna ca 129kr í búð en þá með allskonar álagningu). Bæði er það jákvætt að geta fengið ódýran mat og nóg af honum en líka að búa til öðruvísi samverustund með fjölskyldunni og kenna börnunum hvaðan maturinn kemur.


Skora á einhvern bónda sem á tún sem er ekki í notkun að setja niður kartöflur þar, svo skal ég búa til auglýsingar handa honum þannig að hann þarf ekki að hafa neitt fyrir því að taka upp sjálfur ;)

Þriðjudagur 03. febrúar 2009 kl. 14:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hugmyndir / 7

hugmyndaflokkurinn

Einhverntíman í fyrra bjó ég til flokk hérna á bloggið sem heitir hugmyndir og ætlaði að vera dugleg að skrá það sem mér dytti í hug að væri skemmtilegt að gera eða eiga möguleika á því að gera.
En af einhverjum ástæðum (flutningum, barneignum..) datt það uppfyrir en verður vakið hér upp á ný. Maður fær nefnilega oft einhverjar flugur í höfuðið og með því að skrá þær, hversu vitlausar sem þær kannski hljóma og skapa kannski einhverja umræðu, þá gæti verið að það kæmi eitthvað viturlegt út úr því.

Þriðjudagur 03. febrúar 2009 kl. 13:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hugmyndir / 0

kalt, tími fyrir súpu!

Djö er kalt. Það verður ekkert ungbarnasund í dag vegna kulda, þó svo að innilaugin verði heit þá er loftið svo fljótt að kólna. Emil var annars að fíla sig alveg rosalega vel í sundinu í fyrstu tímunum, þeas fyrir hlaupabóluna. Svo missti hann af 3 tímum og í síðasta tíma var hann eitthvað úrillur og móðgaðist þegar mamman hans stakk honum í kaf. En í dag er semsagt frí.
Þegar er svona kalt er alveg dásamlegt að gera sér góða súpu. Þessa súpu gerði danska vinkona mín, mamma hans Bastian besta vinar Danna, þegar við fórum í bústað síðasta vetur og hefur eiginlega verið í uppáhaldi síðan.


Tyrknesk sveitasúpa / Tyrkisk landsuppe / Şehriye Çorbası
2 litlir laukar
3 hvítlauksrif
3 msk smjörlíki/smjör
250 g hakk
1 glas niðurskornir sveppir
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 tsk salt
2 tsk paprika
125 g smáar semuljenúðlur eða makkarónur
1 1/2 l heitt vatn
1/2 stk paprika, rauð eða græn
1 búnt steinselja
tandoori masala krydd
kjötkraftur


Lýsing:
1: Saxið lauk og mýkið í smjörlíkinu. Þegar hann er orðinn gylltur er kjötið sett í og steikt

2: sveppirnir skornir niður og settir út í ásamt tómatnum (geymið safann). Allt brúnað vel saman og kryddað

3: vökvinn af tómötunum settur saman við og látið malla í 10-15 min

4: núðlurnar settar samanvið ásamt soðnu vatni og paprikan, sjóðið skv tíma á núðlupakka

Þriðjudagur 03. febrúar 2009 kl. 11:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 0